Leita í fréttum mbl.is

Kva! Án dóms og laga?

Í þessari frétt Moggans á netinu segir:

"Mót­mæli gegn kynþáttam­is­rétti hóf­ust í Bristol í kjöl­far þess að lög­reglumaður drap Geor­ge Floyd, svart­an mann í Banda­ríkj­un­um. And­lát hans knúði fram mót­mæli á heimsvísu, meðal ann­ars í Bretlandi þar sem áhersla hef­ur verið lögð á ný­lendu­tím­ann og þann þátt sem Bret­ar áttu í hon­um." (mbl.is)

Eitt: Bíddu nú hægur. Er ekki farið heldur betur of hratt þarna. Það er ekki búið að dæma í málinu og það hefur alls ekki verið sannað að lögreglumaður að skyldustörfum hafi drepið blökkumanninn Floyd. Krufning sem gerð var sýndi þess ekki merki að blökkumaðurinn hefði látist fyrir tilstilli lögreglunnar. Síðari "sýndarkrufning", eins konar pappírsrannsókn án líks, var hins vegar aðeins endurskoðun á pappírum frá hinni eiginlegu krufningu. Hún var þess utan fjármögnuð af ættingjum og skyndilegum "vinum" hins látna

Þegar myndin af lögreglumanninum með hné á höfði hins grunaða er stækkuð og skoðuð, þá sést að næstum allur líkamsþungi lögreglumannsins hvílir á hinum fótleggnum, en ekki á þeim sem hvílir á Floyd. Engin mikilvæg æð er á þessum stað höfuðsins og langt er frá hné niður á sjálfan háls mannsins og öndunarveg. Sá hafði kvartað yfir því að geta ekki náð andanum áður en honum var komið í þessa stellingu. Löngu áður. En það vissu hins vegar ekki þeir lögreglumenn sem komu á staðinn síðar, og héldu hinum grunaða í þeirri stöðu sem myndin sýnir

En auðvitað eiga menn helst ekki að deyja í vörslu og umsjá lögreglunnar. En það gerist samt, því aðstæður eru oft þær sem glæpamennirnir sjálfir skapa, og meirihluti þeirra sem þannig enda líf sitt eru reyndar hvítir en ekki svartir, miðað við mannfjölda. Lærdómurinn er því sá að koma sér ekki í kast við verði laganna, því þeir einir hafa lögfestan einkarétt á beitingu ofbeldis. Allir vita að myndavélar ljúga, því þegar maður hittir það fólk sem lítur vel út á endalausum sjálfsmyndum af sjálfu sér, þá er það mjög svo oft bara svipur hjá þeirri sjón sem birt var, og oft jafnvel bara imbasíld í tómri tunnu að innan er það opnar munninn

Annað: Það var ekki "mótmælt á heimsvísu" því það er bannað að mótmæla í nær öllum múslímaríkjum, Kína, Norður-Kóreu, Rússlandi og víðar. Afríkuríkin öll nema þrjú eða fjögur höfðu engan áhuga á þessu máli. Íbúarnir þar höfðu ekki áhuga á tómstundaiðju blökkumanna í Bandaríkjunum, sem er besti blettur jarðar fyrir blökkumenn veraldar að búa. Hvergi á jarðríki hafa blökkumenn heimsins það eins gott og í Bandaríkjunum. Suður-Ameríka yppti hins vegar öxlum því hún hefur meira en nóg af eigin vandamálum, til að bíta í og brenna. Þess utan er Suður-Afríka önnum kafin við að reka þá hvítu menn úr landi sem byggðu hana upp. Hið sama á við um Zimbabwe (áður Rhodesia) sem nú flytur inn matvæli því búið er að rústa því sem þar hafði af hvítum verið byggt upp

En nú er peak-jakobínisma þessa skrílsliðs í Bandaríkjunum og víðar um Vesturlönd sennilega náð. Röðin í fallöxina sem skríllin sá byggði er byrjuð að þynnast, og selfie-smiðirnir sem smíðuðu hana eru farnir að óttast að hún snúi sér að þeim sjálfum næst. Og þar sem fallöxin er litblind þá er hún byrjuð að gúffa þá svörtu í sig líka. Þarna er að verki sama úrverk slæmra vinstrimanna og stofnuðu MeToo-hreyfinguna, sem át sjálfa sig upp til agna á smátíma. Hún var stofnuð til höfuðs Trump, en um leið og sigurför hennar byrjaði að flæða frá Brett Kavanaugh hæstaréttarfdómaraefni Trumps og yfir til Hollywood-plastsins og þaðan yfir á Joe Biden forsetaframbjóðanda? nú Stalín-Demókrataflokksins, þá þagnaði hreyfingin strax og át sjálfa sig. En áður en hún náði því vanþróunarstigi hinnar útópísku vinstrimennsku, hafði hreyfingin breyst í það að vera verkfæri frægðarfólks til að stela störfum og atvinnutækifærum annarra til handa sjálfu sér. Hér á Íslandi hoppaði vitsmunalega- og raðdómgreindarskert fólk í vinstriflokkum á borð við Sjálfstæðisflokk, Framsókn, Vinstri rauðgræna, Pírataskríllinn ásamt nýlendu-Samfylkingar- og Viðreisnarsósíalistunum á þetta illfygli, sem er eins konar glamúr-nýnasistahreyfing á Ittalakristalnótt. Dómgreindarskert fólk flykktist þarna inn og gerði sig fyrir vikið að enn meiri fíflum en það var, jafnvel sem ráðherrar!

Þau 10 prósent Suðurríkjamanna í Bandaríkjunum sem áttu þræla á frumstigi þeirra sem þjóðríkis, hljóta í gröf sinni að vera að springa úr hlátri yfir fávisku og frummannaheimsku þessa skríls, sem nú rasar um götur landsins og tætir og tortímir því sem hann stendur á og nýtur góðs af, því restin af Suðurríkjamönnum (hin 90 prósentin) voru hvítir fátæklingar sem fylgdu aðeins þeim að málum sem stóðu upp í hárinu á því sem þá þótti ofríki norðursins, frá þeirra bæjardyrum séð. Deilan sem hófst í aðdraganda borgarastyrjaldarinnar er geisaði frá 1861-1865, hafði í upphafi minnst með þrælahald að gera. Var hún fyrst og fremst deila um hver hefði réttinn til skipa fyrir í landinu. Þjóðríki fæðast nefnilega ekki með því að gefa út fæðingarvottorð úr pappír. Þau vottorð þjóða eru næstum alltaf úr blóði. Að kalla borgarastyrjöldina þrælastríðið er því rangnefni. Þrælahaldið var upphaflega hliðarmálefni. Allir vissu að dagar þess voru taldir á Vesturlöndum

Flest handskotvopn eru nú uppseld í ríkjum vinstrimanna í Bandaríkjunum. Vinstrimenn þekkja sjálfa sig og stjórnvöldin sem þeir kusu útópíumannamanna best, og búa sig því þannig undir komu fallaxarinnar, sem þeir sjálfir settu í gang. Nóvember verður því sennilega mánuður Wyatt Earp

Nóvember 2020? It All Ends Now!

Við Íslendingar bíðum sem kunnugt er enn eftir afsökun og skaðabótum frá Tyrkjum, ekki satt, því þeir rændu 400 Íslendingum, hnepptu þá í þrældóm og slátruðu mörgum ættingjum okkar líka. Brytjuðu þá í spað. Talan 400 svarar til að 240-þúsund manns í Bandaríkjunum anno 1860 hefðu verið hnepptir í þrældóm og skipað til útlanda

Ergo: Eigum við ekki bara að sleppa þessum sósíalista-dómstólum götunnar og sameinast um réttarríkið sem er forsenda svo kallaðra mann-réttinda. Hugtak sem mér finnst vera orðið klámyrði og hóruungi í meðferð vinstrimanna og helsjúkra fjölmiðla þeirra; Sjá uppsagnarbréf Bari Weiss blaðamanns á stórheimskublaðinu New York (Space) Times, sem býr í geimstöð á plánetu í annarri stjörnuþoku, svipað og DDRÚV: Dear A.G.,. Tilvitnun:

"The paper of record is, more and more, the record of those living in a distant galaxy, one whose concerns are profoundly removed from the lives of most people. This is a galaxy in which, to choose just a few recent examples, the Soviet space program is lauded for its "diversity"; the doxxing of teenagers in the name of justice is condoned; and the worst caste systems in human history includes the United States alongside Nazi Germany."

Hér má einnig lesa svipað aukanúmer hjá Bruce Bawer og er það um reynslu hans af sama sovétblaði, þ.e. New York TimesQuitting the Times

Fyrri færsla

Vesturlöndum bannað að reisa kirkjur í múslímaríkjum og 5G-net í Kína


mbl.is Styttu af svartri konu steypt af stalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Aumingja Floyd, hann átti ekki góða ævi.Sat 5 ár í fangelsi fyrir vopnað rán. Typiskur minnihlutamaður sem var farið illa með. Ofan á allt annað í óhamingju. Samúð manns er mikil fyrir öllu þessu. En maður getur bara svo lítið gert til að hjálpa nema að reyna að bæta sjálfan sig andlega.

Halldór Jónsson, 17.7.2020 kl. 00:45

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Við erum allir minnihlutar Halldór minn. Aðeins einn maður og eitt atkvæði. Sá minnsti minnihluti sem til er. Við einir ráðum því að mestu hvað úr okkur verður.

Sumir eiga erfiða ævi, eins og þú vafalaust veist, en ævi Floyd var ekki öll erfið né slæm. En sennilega voru það fíkniefnin sem rústuðu lífi hans endanlega. Sorglegt já. Hjartað hefur ekki gott af eiturlyfjum.

En lögreglumaðurinn átti líka líf. Hann hafði gegnt herþjónustu í Þýskalandi og staðið sig vel og fengið heiðursmerki fyrir störf sín í lögreglunni. Íbúarnir skrifuðu honum þakkarbréf. En nú er konan hans farin og lögreglumenn neyðast til að gæta tómrar fasteignar hans, svo hún sé ekki brennd til grunna.

Meirihluti lögreglumanna í Bandaríkjunum vilja helst hætta því starfi í ríkjum Demókrata. Líka þeir hafa fengið nóg; hvítir sem svartir.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.7.2020 kl. 01:01

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 17. júlí 2020 kl. 03:30:18

Fréttaaðvörun til mín frá WSJ áðan segir að ríkisstjórn Trumps sé að íhuga ferðabann á þá og fjölskyldur þeirra sem eru meðlimir í Kínverska kommúnistaflokknum. Að þeir og fjölskyldur þeirra fái ekki að stíga fæti í bandaríska lögsögu.

Hvað verður brátt um þá raðdómgreindarskertu stjórnmálamenn sem sitja í bankaráði AIIB, sem er imperíal-armur Kínverska kommúnistaflokksins? Ég spyr.

====

Gunnar Rögnvaldsson, 17.7.2020 kl. 03:30

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Í fréttum er þetta hel

Kannski að kvenrembu-blökkukonan Angela Davis og fyrrum varaformaður bandaríska kommúnistaflokksins og (sjá) friðarverðlaunahafi hins náhvíta Kommúnistaflokks Leníns 1979 (friðarverðlaun KGB), verði varaforsetaefni Demókrataflokksins núna, því hún segir að atkvæði greitt Joe Biden sé atkvæði greitt henni og hennar líkum, ásamt hvíta stalínistanum  Gus Hall. Joe Biden græðir þarna stuðningsmenn á tá og fingri og hlýtur hann að gleðjast yfir því.

====

Gunnar Rögnvaldsson, 17.7.2020 kl. 07:02

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 17. júlí 2020 kl. 07:32:33

Yekaterina Mishkina lögregluforingi í Khabarovsk í Rússlandi féll út um glugga á fimmtu hæð og dó eftir að hafa vitnað gegn yfirmanni sínum í kúgunarglæpamáli.

Hún er nýjasta dæmið um fólk sem deyr eftir að hafa sett sig upp á móti yfirvöldum í Rússlandi, draumalandi Angelu Davis og ritstjórnar New York Times.

===

Gunnar Rögnvaldsson, 17.7.2020 kl. 07:33

7 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Takk Gunnar nú sem áður. Já virðist svarið við spurningunni vera. Dómstólar götunnar stjórnast af andlega van þroskuðum lýð sem virðir engar lýðræðislegar reglur og það merkilega er að sumir þessara van þroskuðu ruggludalla kemur úr háskólum og eru þar sumir prófesorar.

En það er líka athyglisvert að í kommúnistaríkjum, fasistaríkjum, nasistaríkjum sem og öðrum einræðis og eða stjórnræðisríkjum eru dómstólar götunnar bannaðir og menn hafa horfið ef þeir hafa vogað sér að dæma stjórn völd af götunni.

Í raun þá eru dómstólar götunnar líka bannaðir í lýðræðisríkjum og það er ýmislegt bannað einfaldlega svo hægt sé að tryggja rétt einstaklinga. En til þess að svo sé hægt þá verða einstaklingarnir að hlíða löggjafannum og gæslu mönnum laga og réttar.

Galdrabrennur þóttu mjög til ágætis af heimskum illa innrættum mönnum og nútíma dómarar í dómstólum götunnar eru mjög á pari við galdra brennumenn. Kommúnistum hefur aldrei varið hægt að treysta, frekar en Fasistum, Nasistum og öfga trúvillingum. ESB er svo ekkert annað en mulningsvél lýðræðisins og trúarfasistmi, sem virðir engar lýðræðisreglur.

Hrólfur Þ Hraundal, 17.7.2020 kl. 19:53

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir Jónas og Hrólfur.

Heyrst hefur: að þar sem mikið magn af götum er staðsett, séu dómstólar götunnar staðsettir líka.

Heyrst hefur þess vegna líka: að staðir með miklu magni af götum, séu á leið í þrot, vegna þess að heiðarlegt fólk vill almennt ekki una þess konar dómstólum. Það pakkar saman og fer.

Við erum því að upplifa hrun stórborga, þar sem fólkið flýr þær, og götudómstóla þeirra líka.

Það styttist til dæmis í gjaldþrot Reykjavíkurborgar, því þar hafa stjórnmálamenn hagað sér eins og götudómstólar stórborgar, með heilan en þó takmarkaðan kviðdómsher af skríl í bakið. Þeir munu því verða þar einir eftir, og afar gjaldþrútnir, innan skamms, og dæma sjálfa sig, aðeins.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.7.2020 kl. 21:35

9 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Takk fyrir trúverðuga messu og hafðu góða nótt Gunnar.

Hrólfur Þ Hraundal, 17.7.2020 kl. 23:04

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sömuleiðis - góða og blessaða nóttina Hrólfur.

Gunnar Rögnvaldsson, 17.7.2020 kl. 23:19

11 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Saell Gunnar og frabaer pistill.

Vinur minn i Jóhannesborg hefur alltaf furdad sig á thví

hvers vegna aldrei er talad um mordin á hvítum í Sudur Afríku

en thau eru daglegt braud thar. Enginn mótmaelir og vesturlond 

thegja á sama tíma og Ástralir einir hafa opnad fyrir líflínu

hvítra til Ästralíu med ríkisborgararétt tilbúin vid komu.

Svo alvarlegt er thad ordid í Sudur Afríku. Svo annad

sem gleymist, ad árd[ 2019 í USA var ástandi svona...

 Staðreyndin er sú, að árið 2019 skaut lögreglan í Bandaríkjunum 370 hvíta til bana og 235 hörundsdökka. Hörundsdökkir eru þó ekki nema 13.5% íbúafjöldans. Séu tölur yfir ofbeldisglæpi skoðaðar til samanburðar, þá kemur í ljós að hörundsdökkir fremja 22.4% þeirra. Fjöldi ofbeldisglæpa á móti fjölda þeirra sem falla í valinn fyrir lögreglunni er því nánast sá sami skv. þessari tölfræði. Segir það einhverja sögu? 

Svo med thessari vitleysu BLM, hafa ennthá fleiri dáid í

USA úr COVID vegna thessara vitleysinga sem hópast saman

bara til thess ad mótmaela einhverju og hverju sem er.

Ef thú ert hvítur,skiptir thitt líf thá engvu máli..??

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 18.7.2020 kl. 05:56

12 Smámynd: Jóhann Elíasson

"ALL LIVES MATTER" hrópaði hvít kona í "mótmælagöngu" i San Fransisco, hún var skotin til bana með það sama. Er þetta ekki rasismi??????????

Jóhann Elíasson, 18.7.2020 kl. 22:23

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur Sigurður og Jóhann fyrir innlit og skrif.

Já þarna er lítið nýtt undir sólinni. Við þekkjum þessa kjánaþvælu.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 19.7.2020 kl. 07:41

14 Smámynd: Borgþór Jónsson

Brietbart er ekki alltaf besta heimildin Gunnar.
Lögreglukonana sem var hent út um gluggann var vitni Rússneska saksóknarans í máli Rússneska ríkisins  gegn borgarstjóra Khabarovsk,en hann er sakaður um að stunda skipulagða glæpastarfsemi og að hafa skipulagt morð.
Hún hafði þannig ekki sett sig upp á móti Rússneskum yfirvöldum heldur var aðal vitni þeirra.
Stundum skrifar þú tóma þvælu geskur.

Borgþór Jónsson, 26.7.2020 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband