Leita í fréttum mbl.is

Blökkumenn styðja Biden enn síður

Donald J. Trump

Mynd: Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna

****

Um dúkkupússara Demókrataflokksins í kjallaraholunni hjá Biden fer nú skuggalegur kuldahrollur. Staðan er nefnilega sú að Joe Biden –sem er væntanlegt forsetaefni hins nú róttæka vinstriflokks svo kallaðra Demókrata, sem nær allar skrílsfelldu stytturnar voru af– nýtur enn minni stuðnings meðal bandarískra blökkumanna en Hillary Clintonkona-Bills gerði 2016, þ.e. kona Bills sem dæmdur var fyrir þið vitið hvað (nenni ekki að segja það hér, en það var ekki fallegt)

Og ekki nóg með það, þá hýrast nú blökkumenn í íbúðum sínum í þeim borgum sem demókrataflokkurinn stýrir, og þora varla út vegna demókrataskapaðra óeirða og skorts á löggæslu, og sem haft hefur þær afleiðingar í för með sér að eins konar Al Capone-ástand (löggur í slæmum vösum) hefur myndast þar. Blökkumenn geta því valið á milli þess að loka sig inni, eða farið út til að láta skrílslið Demókrata herja á sig, smitast af veiru sem vegna skrílsmótmæla hefur blossað upp, eða látið glæpona herja á sig. Sala skotvopna til blökkumanna hefur því aukist mikið í borgum Demókrata. Þeir vilja helst ekki fara varnarlausir inn í nóttina, skiljanlega

En nú hefur Trump-maðurinn á hvítum hesti sent þeim löggunar-fulltrúa sína til bjargar og það líkar yfir-Demókrötum í Biden-kjallaraholunni afar illa, því þeir eru svo hræddir um að blökkumennirnir í stofufangelsunum kjósi Trump í staðinn, sem takk fyrir frelsið

Og ekki nóg með það þá hefur Trump-maðurinn sent fulltrúa sína til að vernda og gæta eigna bandarísks almennings í brjálæðisborgum Demókrata. Dómshúsbyggingar alríkisins og alríkis-póstþjónustan hafa til dæmis verið undir áhlaupi frá Demókrataskrílnum, þannig að bara það ástand –eitt og sér út af fyrir sig– kallaði á að Trump sendi alríkisfulltrúa sína til að gæta eigna ríkisins á borð við þessar og minnismerkja á borð við Abraham Lincoln, sem er eign allra landsmanna Bandaríkjamanna

Hafa Demókrataborgirnar –plús Hollywood og vinstra-fjölmiðlaliðið sem aldrei hefur þorað (né viljað) að gera upp við kommúnisma Stalíns– nú trompast yfir því að Trump skuli dirfast að gæta lífs, lima og eigna borgaranna, og þannig varið sjálfa stjórnarskrá Bandaríkjanna. Þetta endar því eins og við má búast

Fyrri færsla

SDG-greinin: Tek undir með Jóni Magnússyni


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Gott, hver greinin annari beetri,

Egilsstaðir, 02.08.2020   Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 2.8.2020 kl. 08:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband