Leita í fréttum mbl.is

USS Nimitz leggur í hann

1 + 1 + 1 = ofurefli

Bandarísk flotayfirvöld hafa tilkynnt að USS Nimitz (CVN-68) láti úr höfn flotastöðvarinnar í Bremerton í  Washingtonfylki á vesturströnd Bandaríkjanna þann 1. júní 2017

1. Flugmóðurskipið USS Nimitz og árásarhópur þess leggur sem sagt í hann á fimmtudaginn. Förinni er heitið til Vestur-Kyrrahafs, en þar er land sem heitir Norður-Kórea. Hópurinn verður viku á leiðinni. Þar mun hann sameinast flota:

2. USS Carl Vinson (CVN-70) og árásarhóp þess sem staðsett er undan Kóreusaga. Heimahöfn CVN-70 er San Diego í Kaliforníu

og svo

3. USS Ronald Reagan (CVN-76) og árásarhóp þess, sem einnig er staðsett undan Kóreuskaga. Heimahöfn CVN-76 er Yokosuka í Japan

Er þá allt þegar þrennt er? Það hugsa ég

Eða þarf að panta heila opnu í fjölmiðlum til að auglýsa það sem er að gerast beint fyrir framan augun á öllum sem augu ættu að hafa

Norður-Kórea, starir nú niður í ofboðslegt hyldýpi sem er að opnast

Tengt:

Fyrri færsla

Nýtt viðtal við varnarmálaráðherra Bandaríkjanna (mæli með)


Nýtt viðtal við varnarmálaráðherra Bandaríkjanna

CBS-viðtal við James Mattis

Það er ekki á hverjum degi sem James Mattis ráðherra varnarmála talar við fréttamenn um nýjar áherslur í varnarmálastefnu Bandaríkjanna. Hún breytist í eðli sínu aldrei og getur ekki breyst, því hún mótast af legu Bandaríkjanna sem ein heild í veraldarhafinu. En nýjar áherslur verða þó til. Þær taka mið af því sem brennur á Bandaríkjunum sem táningi með yfirgnæfandi heimsáhrif, sem áður tilheyrðu Evrópu í 500 ár. Þeim stútaði Evrópa sjálf á 30 árum, eða frá 1914 til 1945. Hún gerði sig að engu og verður aldrei aftur neitt annað en þýðingarlítill landmassi með 52 ríkjum á, því annað er ekki hægt. Evrópuskaginn út úr Móðir Rússlandi býður ekki upp á neitt annað

Fjórði hver dalur heimsframleiðslunnar verður til í Bandaríkjunum. Fjörutíu prósent einkaneyslunnar fer fram í Bandaríkjunum, því hið opinbera sem neytandi er svo hlutfallslega lítið miðað við flest önnur lönd. Í Bandaríkjunum er stærsta samhangandi landbúnaðarsvæði veraldar, svo stórt og frjósamt að það getur brauðfætt flestar manneskjur á plánetunni. Um það streyma siglanleg fljót sem eru lengri og ódýrari flutningaleið en öll samanlögð önnur siglanleg fljót jarðarinnar. Sjöundi hver gámur sem fluttur er út frá Kína fer til aðeins einnar verslunarsamstæðu í Bandaríkjunum, Walmart.

James Mattis segir að hugmyndin á bakvið Ríki íslams sé banvænn hugmyndafræðilegur ruslahaugur sem sviðinn verður niður í rót og malbikað yfir. Og Norður Kórea er bein ógn við Bandaríkin, segir hann. Þarna hafið þið það. Og Rússland er úti að aka í bensínlausri nafnlausri bifreið sem hann botnar ekkert í. Gefum hermanni Mattis orðið, en þar hóf hann feril sinn árið 1969, eða fyrir 48 árum, í bandaríska hernum

Eldflaug skotið upp frá Wonsan í Norður Kóreu flaug ca. þessa leið 28. maí 2017

Ágiskuð stefna er mín: 450 km gul loftlína dregin

Norður Kórea skaut annarri eldflaug upp í gærkvöldi. Að sögn þeirra sem skrifa fréttir flaug hún 450 kílómetra frá Wonsan og lenti í efnahagslögsögu Japans. Giskað er á að þetta hafi verið sovéskt hönnuð flaug sem í stærstu útgáfu nær jafnvel til höfuðbogar Japans, eða þúsund kílómetra. Sem er aðeins rúmlega tvöfalt lengra en hryðjuverkandi flaugin í gærkvöldi var látin fljúga

Fyrri færsla

Norður-Kórea nú eða aldrei?


Norður-Kórea nú eða aldrei?

Það að Norður-Kórea sé orðin fær um að framleiða og skjóta upp eldflaugum knúnum föstu eldsneyti, boðar ekki gott. Það þýðir að japanska þjóðin hefur ekki nema nokkrar mínútur, kannski sjö, til að undirbúa sig fyrir kjarnorkuárás. Tíminn sem vesturströnd Bandaríkjanna hefur er nokkuð lengri, í mínútum talið

Þegar eldflaugar nota hins vegar fljótandi eldsneyti, þá þarf að koma því á flaugarnar áður en þeim er skotið upp og það tekur tíma. Sé vitað hvar þær eru staðsettar er hægt að fylgjast með áfyllingu og undirbúningi skots með aðstoð gervihnatta - og ná að búa sig undir kjarnorkuárás eins mögulega og hægt er

Nýr leiðtogi Suður-Kóreu tók sér sólarhringsfrí frá stöfum í síðustu viku. Það er ekki dæmigerð suður-kóreönsk hegðun, því þeir vinna mest allra þjóða. Hvað var það sem krafðist svona mikils næðis að nýr þjóðarleiðtogi Suður-Kóreu þurfti að stimpla sig út til að geta gert. Þurfi hann að taka erfiða ákvörðun. Þurfti hann að hugsa sig vel um?

Ef Norður-Kórea kemst upp með að þróa kjarnorkuvopn sem með rekstraröryggi ER hægt að beita, þá markar sá atburður að ekki er lengur hægt að eiga við landið. Ef því er leyft að komast yfir þann erfiða þröskuld, þá er orðið of seint að gera nokkuð í málinu. Þannig virka kjarnorkuvopn

Hvað mun gerast næst? Þetta vandamál er ekki á förum, þvert á móti, það er sífellt meira aðkallandi

Fyrri færsla

Utanþings ríkisstjórn Þýskalands lækkar í hafinu


Utanþings ríkisstjórn Þýskalands lækkar í hafinu

Myntbandalagið sekkur

Mynd: "Very bad" að sökkva

Utanþings ríkisstjórn Þýskalands, Deutsche Bank AG, er að sjálfsögðu niður á mörkuðum í dag um 2,1 prósent. Donald Trump forseti Bandaríkjanna er staðráðinn í að koma upp um og kveða niður misnotkun Þýskalands á löndum Evrópusambandsins og umheiminum

Rannsókn hans á gerræðislegum viðskiptaójöfnuði mun birtast í júní. Þá gæti farið svo að Þýskaland yrði stimplað sem gengisfalsari. Hann sagði að Evrópusambandið sé einkabifreið Þýskalands. Það notar þá haugsugu sem ryksugu ofan í 26 önnur ríki sambandsins í krafti handjárna myntbandalags ESB sem Þýskaland skrúfaði saman sér í hag, en öðrum til skaða. Þetta falsar gengi Þýskalands í veraldarhafinu, hroðalega

Hann hefur rétt fyrir sér. Þýskaland er að tæta Evrópu í tætlur. Þessi birtingarmynd brýst einnig fram í NATO, eins og sést á gíslatökuhóp þýska kanslarans, í fyrri færslu, sem þorir ekki að yrða á bandaríska forsetann. Talaði því enginn við hann nema Stoltenberg. Ég man vel eftir svona hegðun frá því í gaggó

Fyrri færsla

Donald Trump til NATO: borgið eða..


Donald Trump til NATO: borgið eða..

Forseti Bandaríkjanna heldur ræðu í nýjum aðalstöðvum NATO í Brussel 25. maí 2017

Ræða Donalds Trump í nýjum aðalstöðvum NATO, féll ekki í góðan jarðveg hjá hjörðinni sem hann verndar í Evrópu, eins og sjá má á andlitum svo oft kallaðra "leiðtoga Evrópu", sem hlógu vandræðalega til að reyna að breiða yfir getu- og allsleysi sitt í öllum málum

NATO segist ætla að taka þátt í pappírsvinnu ásamt fljúgandi ratsjá, en án allra bardaga, í baráttunni við Ríki íslams og þeirra afla sem það ríki gengur fyrir

Ríki íslams er land í Mið-Austurlöndum, þvers á landamæri nokkurra ríkja. Landsvæðið sem það stjórnar er á bilinu 50 til 100 þúsund ferkílómetrar. Þetta ríki eins og stendur í nafni þess, er ríki íslams. Það stundar utanríkisviðskipti, innheimtir skatta og veitir þjónustur. Það skaffar menntun og rekur sitt eigið stjórnmála- og réttarkerfi byggt á alræði. Það rekur einn hæfasta herafla í Mið-Austurlöndum sem berst, sigrar og tapar án þess að missa móðinn. Það rekur hryðjuverkafaraldur í Evrópu til að draga til sín lifandi aðföng og kveikja elda handa sér innan Mið-Austurlanda, sem á endanum sprengja mun allan heimshlutann saman í eitt stórt ríki Íslams, ef áætlun þess gengur upp

En þetta vita leiðtogar Evrópu víst lítið um, því þeir, en þó einungis varnalaust fólk þeirra, sem verið er að sprengja í loft upp, ætla að taka þátt í pappírsvinnu og skaffa ratsjárflugvélar sem bandaríkin létu þá hafa og borguðu fyrir. Þetta heitir að taka þátt. Kannski hafa NATO ríkin í Evrópu þarna gefið Bandaríkjunum fyrirheit háð 83 fyrirvörum um þátttöku eins og var svo oft í Afganistan. Oft var betra að sleppa því að hafa fyrirvaraveldi Evrópu með en ekki, var stundum sagt

Því nánar sem maður skoðar og virðir meginland Evrópu fyrir sér, þá gerir maður sér grein fyrir því að ekkert hefur breyst síðan 1932. Allt er við það sama. Sami skítamórallinn ríkir um alla álfuna og á milli landanna. Segja má með öryggi að Evrópusambandið sé Ríki skítamórals

Fyrri færsla

Ferðaþjónusta á krossgötum


Ferðaþjónusta á krossgötum

Það sem kom Íslandi fyrir alvöru á landakort ferðamanna, var fjármálahrunið. Alþjóðlegir "hrægammar" lágs verðlags í hinum almenna heimilisgeira erlendra ríkja, lyktuðu blóð. Þannig tala menn venjulega um "spákaupmenn" þegar þeir geta ekki borgað þeim, en þegar þeim hins vegar vantar peninga þeirra þá eru þeir kallaðir "fjárfestar". Og þegar blóðið flýtur þá kaupa menn. Lækkun gjaldmiðilsins í kjölfar bankahrunsins var hið íslenska hagkerfi að segja: komið hingað og gerið góð kaup á meðan birgðir endast. Og þetta virkaði. Gjaldmiðillinn virkaði og Ísland er uppselt

Ef Grikkland færi úr evrunni þá myndi hið sama gerast þar. Pantanakerfin myndu brasa saman og allt seljast upp sem hendi væri veifað og hagvöxtur kæmist í gang á ný og skattatekjur ríkissjóðs myndu þar af leiðandi ekki þorna upp og skera lánshæfnismatið undan honum. Þetta er hið mannlega eðli. Allir vilja gera góð kaup, ef það mögulega er hægt

Fjármálahrunið varð sem sagt góð landkynning. Ísland er algerlega uppselt. Og þegar allt er uppselt þá þarf að hækka verðið til að hármarka gróðann á meðan það er hægt. Neyta á meðan nefi okkar stendur. Og þar með talinn er virðisaukaskattur á greinina

Segja má að kominn sé tími á væga og hefðbundna kreppu á Íslandi (e. recession, þ.e. samdráttur í minnst tvo ársfjórðunga í röð). Kreppur eru nauðsynlegar því þær taka til í hagkerfinu og henda illa reknum einingum út, lagfæra lélega framleiðni og binda enda á taprekstur. Of mikið af of mörgu er rekið með tapi í þessum nýja geira hagkerfisins. Smá kreppa myndi hreinsa út

Að sjálfsögðu á að herða ferðamannabransann eins og aðra bransa. Burðarvirki hans getur og má aldrei tengjast verðlagi. Menn eiga ekki að fylla gagnagrunna íslenskrar ferðaþjónustu upp með nöfnum og heimilisföngum á verðviðkvæmum viðskiptavinum, því þannig verður hann lítils virði og bara enn eitt blóðrauða hafið í samkeppninni. Okkar haf á að vera blátt. Slá þarf á þennan gorkúluskóg svo að upp rísi geiri í hagkerfinu sem þolir áföll

Erlendir ferðamenn sem skila íslenskum frímerkjum er þeir sjá hvað þau kosta í erlendri mynt, eru með hundrað prósent öryggi staðsettir á röngum stað á plánetunni. Þeir eiga að fara til ESB-Rúmeníu, þaðan sem þeir hafa efni á að senda póstkort sín heim í evruþrælaríkið, þar sem raun-launahækkanir, sökum gengisbindingar, koma til launþega á 18 ára fresti

Ég vissi að krónan okkar myndi gera sitt til að hrista lúsina af bransanum. Takk íslensk króna. Þú vinnur verk þín vel. Komi og dugi náttúruleg kreppa ekki eins og vera ber, þá þarf að hækka stýrivexti til að koma henni af stað

Nálgast nú sumarfrí þingmanna. Komast þeir þá heim í garðinn sinn til að reyta þann arfa sem kominn er. Og heit efnalaugin bíður fjármálaráðherrans, sem orðinn er allsber

Fyrri færsla

Bandaríkin búa sig undir styrjöld


Bandaríkin búa sig undir styrjöld

CVN-70, USS Carl Vinson og árásarhópur þess flugmóðurskips (carrier strike group; CSG) er nú staðsett undan Kóreusaga. Heimahöfn CVN-70 er San Diego, Kaliforníu

CVN-76, USS Ronald Reagan og CSG þess flugmóðurskips er einnig staðsett undan Kóreuskaga. Heimahöfn CVN-76 er Yokosuka í Japan

CVN-71, USS Theodore Roosevelt er nýkomið úr þjálfunarleiðangri til heimahafnar í San Diego og hafa flotayfirvöld sagt að flugmóðurskipinu og komandi CSG þess verði sett ný verkefni á næstunni, en áfangastaður var ekki gefinn upp

Hundrað F-16 orrustuþotur Bandaríkjahers eru staðsettar í Suður-Kóreu

Andersen flugstöð bandaríska flughersins er á eyjunni Guam, þrjú þúsund kílómetra suðsuðaustur af Pyongyang, sem er höfuðborg Norður-Kóreu. Þar eru strategíaskar sprengjuflugsveitir bandaríska flughersins staðsettar. Þær sem eru lítt sýnilegar á ratsjám - ásamt þungavinnuvélunum B-52. Flotastöð sjóhersins er einnig á Guam

Lítt ratsjár-sýnilegar F-35 flugvélar Bandaríkjanna hafa frá því í janúar verið staðsettar í Japan

Hvar eldflaugakafbátar Bandaríkjanna eru staðsettir veit enginn, nema þeir sem stjórna aðgerðum þeirra

Almannavarnir og þjóðaröryggisstofnun halda kynningu á fundi á vegum viðskiptaráðs Guam-eyju á miðvikudaginn í næstu viku, þar sem borgaralegar öryggisvarnir verða kynntar vegna stöðunnar á Kóreuskaga. Eyjan er hluti af Bandaríkjunum og þar búa um 160 þúsund manns

Engar tilraunir hafa verið gerðar til að fela neitt. Mikil uppbygging hernaðarmáttar Bandaríkjanna fer nú fram fyrir opnum tjöldum undan Kóreuskaga

Bandaríkjaforseti er á ferðalagi erlendis til 27. maí. Gera má og gera má ekki ráð fyrir að beðið verði með aðgerðir þar til hann er kominn heim. En það veit enginn fyrr en þá

Sagt er að forsetar skapi ekki söguna, heldur að það sé sagan sem skapi þá

Bandaríkin hafa fyrir langa löngu dregið rautt strik sem Norður-Kóreu verður ekki liðið að stíga yfir. Því striki er líklega náð. Og samt veit það enginn með vissu. En þá áhættu er varla hægt að taka mikið lengur, það er greinilegt

Donald Trump sagðist ælta að senda heila armöðu til Norður-Kóreu. Og það er hann að gera. Hann gerir allt sem hann segir. Stefna hans er gagnsæ. Blindingjar veraldar eru hins vegar flestir

Fyrri færsla

Verður Ungverjaland sett í poka og sent til Brussel?


Verður Ungverjaland sett í poka og sent til Brussel?

Í síðustu viku ákvað þing Evrópusambandsins sem enginn kaus, hið svo kallaða Evrópuþing, að nú ætti Evrópusambandið, sem enginn kaus heldur, að hefjast handa gagnvart Ungverjalandi. Þinginu líkar ekki við löglega kjörin stjórnvöld Ungverjalands. Þar situr ríkisstjórn sem hefur hugsað sér að gæta hagsmuna Ungverja. Þetta er skelfilegt. Og markmiðið með aðförinni er að ESB takist með sovéskri stjórnarskrá í rassvasanum að taka burt atkvæðarétt Ungverjalands í Evrópusambandinu. Að Ungverjaland eigi að sitja þar við hlaðborð Samfylkinga-Viðreisnar og horfa á aðra fara með málefni landsins eins og þeim sýnist, ókjörnir. Algerlega ókjörnir og án umboðs

Þetta minnir mig dálítið á innrás Sovétsambandsins í Afganistan (Soviet-Union). Miðstjórnin með uppstoppaðan Brezhnev á skafti, réðst inn í landið á jóladag 1979 með þeim rökum að þar væri farin að grassera "þjóðernishyggja" sem myndi smita út frá sér inn í hin svonefndu sovétlýðveldi (hin þyngri útgáfa fullrar ESB-aðildar). Þið vitið kæru lesendur; í steypustöð vinstrisins er hverskonar frelsi ávallt kallað "þjóðernishyggja" þegar vinstrið heldur að burðarþol kúgunarinnar sé að minnka í steypu þess. Þannig fór sá jóladagur og höfuð Hafizullah Amin forseta Afganistan var af sovéskum sérsveitum sent í plastpoka til Kreml sem sönnunargagn fyrir vel unnu verki, en sem þó aldrei lauk. Kreml hélt jafnvel að forsetinn hefði ætlað að hafa samband við Bandaríkin, og það gekk náttúrlega ekki

Reyndar minnir aðalritari Evrópu, Angela Merkel, mig nokkuð á Leonid Brezhnev að því leyti að hún virðist vera stoppuð upp af svipaðri miðstjórn og samskonar þingi. En Brezhnev var þó mun skemmtilegri en hún og heilastarfsemi hans líklega léttari

En dagatal sambandanna beggja er þó hið sama. Jóladagur var notaður til að gera innrás í Afganistan og 17. júní var notaður til að tilkynna Íslandi að aðlögunarinnrás Brusselveldisins hæfist formlega einmitt þann eina dag ársins af öllum öðrum mögulegum

Pólland segist ætla beita neitunarvaldi verði Ungverjaland sett í poka. En það er nú ekki víst að það gildi þá, mín kæra Varsjá

Lotharinga öxull Berlín-Parísar hræðist Pólland og Intermaium hugmynd Pilsudski, sem nú er í uppbyggingu. Pólland verður orðið meira veldi en Þýskaland innan Evrópu innan næstu 20 ára. Pólland er nefnilega, eins og öll Austur-Evrópa, í tilvistarhættu beggja megin frá. Úr austri sækir Rússland að Austur-Evrópu og úr vestri sækja hin gömlu öxulveldi ESB að henni

Sterkasti og traustasti bandamaður Austur-Evrópu eru Bandaríki Norður-Ameríku. Flest ríki sem eru í strategísku sambandi við Bandaríkin verða stórveldi í sínum heimshluta. Annars væri Suður-Kórea ekki á Samsung-setrum heldur á hrísgrjónum í dag. Þýskaland skiptir Bandaríkin ekki máli lengur. Bless

Fyrri færsla

Samruni - stöðnun - upplausn


Samruni - stöðnun - upplausn

Í dag föstudaginn 19. maí 2017, hefst fyrsta ferð hins nýkjörna forseta Bandaríkjanna til útlanda. Fyrsta vestræna stoppið er Jerúsalem. Það kemur á undan Vatíkaninu, enda er Gamla testamentið hornsteinn Vesturlanda og það er haft á undan Nýja testamentinu í hinum Heilögu ritningum Vesturlanda. Engan er hægt að tala við í ESB svo það tekur því ekki fyrir POTUS að reyna það sérstaklega. Hann flýgur bara hjá og droppar inn hjá NATO sem hann heldur uppi

****

Á öllum tímabilum sögunnar verða til viðtekin hugtök sem lýsa eiga í einu orði því sem er að gerast í veröldinni. Frá 1945 til 1991 var það hugtakið Kalda-stríðið sem átti að lýsa stjórnmálastöðunni á Vesturlöndum og víðar. Frá 1991 þ.e. frá hruni Sovétríkjanna og fram til ársins til 2008, var talað um "samruna Evrópu". Hugtakið samruni varð hið staðlaða svar við öllu því sem menn héldu að væri að gerast

En á þessu tímabili varð til samferðarmaður sem lítið var talað um. Hann hét stöðnun. Evrópa var stöðnuð. Það þýddi að samruninn hafði þegar átt sér stað, eins og seðlabankastjóri Danmerkur frá 1965 til 1994, Erik Hoffmeyer, benti dönskum stjórnmálamönnum á, er hann sagði að efnahagslegri sameiningu ESB væri þegar lokið með tilkomu hins innri markaðar og það sem á eftir kæmi væri pólitískur samruni Evrópu. Þetta sagði hann árið 2000

En lítið vissi Hoffmeyer um það sem koma skyldi. Árið 2008 sprengdi Evrópusambandið sig í loft upp með sjálfsmorðssprengjubelti sem sambandið hafði sjálft lagt um alla álfuna á árunum frá 1991 til 2008. Þetta sjálfsmorðssprengjubelti ESB var lítt sýnilegt. En það þurfti bara rétt að stíga einum höllum fæti á það til að fútta mest allri Evrópu af eins og púðurtunnu, sem springur innávið. Hún féll saman

Það hugtak sem lýstir með einu orði ástandinu í Evrópu núna, er því þetta: upplausn. Og upplausnin er andhverfa samrunans. Þar falla hlutirnir í sundur, tvístrast. En enginn veit enn hvernig Evrópa mun lenda. En lenda mun hún samt, og með miklu öryggi sem enn eitt hefðbundið tímabil sögunnar, þ.e. sem styrjöld

Engin öld mun líða án styrjalda. Það eina sem hugsandi menn vita ekki enn, er í hvaða formi styrjöldin verður. Mun hún verða í sínu versta og sársaukafyllsta formi eða ekki: þ.e. verður hún borgarastyrjaldir eða ekki. Ansi er ég hræddur um að einmitt þannig muni hin gamla hefðarfrú sögunnar líta út; sem borgarastyrjöld. Öllu tiltæku hefur Evrópusambandið og tilvist þess að minnsta kosti í langan tíma sáð til að svo megi verða

Öll dagblöð sem vilja láta bendla sig við veruleikann, ættu að stofna málaflokks-flipa í öllum útgáfuformum sínum. Flipa sem ber heitið: upplausn Evrópu. Það myndi auðvelda lesendum að gera sér grein fyrir þeim raun-veruleika sem þeir þrátt fyrir allt lifa enn í. Og ég geri ráð fyrir að jafnvel ungir þingmenn okkar geti lesið þessi tvö orð: upplausn Evrópu. Þetta er að vísu dálitið langt, en það verður bara að hafa það

Fyrri færsla

Jæja, virka stýrivextir ekki?


Jæja, virka stýrivextir ekki?

Því var árum saman haldið fram hérna heima á meðan koppasveit Samfylkingaflokka var að reyna að troða Íslandi inn í Evrópusambandið, að stýrivextir krónunnar okkar virkuðu ekki. Þetta var gert til að blekkja almenning, kjósendur

En núna er mikið grátið yfir því hve stýrivextir Seðlabankans virka vel. Og að þeir séu náttúrlega allt allt of háir í hraðast vaxandi hagkerfi Vesturlanda, sem er jafn galin ályktun og sú fyrri

Stýrivextir virka. Þeir virka alltaf en það tekur mismunandi langan tíma að láta þá virka. Það sést til dæmis á allri Suður-Evrópu. Hún liggur í rúst eftir neikvæða raunstýrivexti ECB-aukaseðlabanka Þýskalands, sem bjó þar til stærstu fjármálabólu veraldar. Raunstýrivextir hans voru háðir þjóðerni og útkoman úr hamförum þessa ECB-eiknaseðlabankalings Þýskalands eru háðar þjóðerni

Þetta er hinn innbyggði kerfis-nasismi Evrópusambandsins, hann er háður þjóðerni og sem logið var upp sem sú stofnun sem átti að búa til evrópskrar útkomur, en ekki útkomur byggðar á þjóðerni. Ef þú heitir Þýskaland þá ertu í góðum málum. En ef þú heitir Grikkland eða Suður-Evrópa þá ertu rusl. Svona er allt sambandið

Á Íslandi er engin sérstök eyfirsk útkoma úr krónunni né heldur reykvísk útkoma. Það er vegna þess að íslenska krónan er raunveruleg mynt, en evran er hins vegar gjörspillt pólitískt ökutæki dulbúin sem mynt. Evrópusambandið er ónýtt og það er að eyðileggja Evrópu

Og nú hefur koppaþing ESB lagt til að atkvæðaréttur Ungverjalands í Evrópusambandinu verði afnuminn og frá landinu tekinn. Og sennilega er Pólland næst á þeim lista. Þetta gengur bara vel. Rússland gleðst og Hitler væri stoltur

Vestur-Evrópa býr ekki á sömu pólitísku plánetu og Austur-Evrópa. Svo halda menn að þessi lönd geti verið á sömu mynt. Þvílíkir grasansar. Vestur-Evrópa mun aldrei koma Austur-Evrópu til aðstoðar. Alveg sama þó svo að Rússland réðist inn í hana, Vestur-Evrópa myndi ekki lyfta litla fingri þeim til aðstoðar. Það eina sem verndar Austur-Evrópu eru Bandaríki Norður-Ameríku af því að þau hafa sameiginlega hagsmuni. Pólland á ekkert sameiginlegt með Frakklandi og öfugt. Ekkert! Evrópa er ekki til nema sem landfræðilegt heiti

Evrópusambandið og morknar stofnanir þess halda tortímingarför sinni áfram um allt meginlandið. Það hefur sambandið gert frá stofnun þess. Enginn skreiðarhjallur Íslands væri nógu stór til að hengja koppasveitir Evrópusambandsins þar upp til þerris. Svo stórt er þetta heimsveldi afglapa

Fyrri færsla

Microsoft í samvinnu við Norður-Kóreu gegnum NSA?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband