Leita í fréttum mbl.is

OPEC ágætis dæmi um svo kölluð "samkomulög"

Myndskeið: Gamla testamentið blessar nýkjörinn forseta

Í fyrra lofuðu OPEC-ríkin hvort öðru að þau myndi skera niður olíuframleiðslu. Þessi ríki hafa bundist samtökum, eins og í París, um að minnka eitthvað. Gera sínum þjóðum eitthvað slæmt ef hinir lofa að gera eitthvað jafnslæmt við sínar þjóðir. Á ESB-máli er þetta kallað "samhæfing". En framleiðslan minnkaði ekki af því að Rússlandi sárvantar peninga, svo "talið er víst" að þeir hafi "svindlað" á framleiðslutölunum

Þetta er enn eitt dæmið um "samkomulag" á borð við það sem heimurinn hoppaði upp í sjálfan sig yfir að Donald J. Trump neitaði þátttöku í. Hann neitaði þátttöku í Parísar-samsærinu sem reynt var að breiða yfir með hugtaka-dúnsæng "samkomulaga"

Það fyndna er að olíuverð stjórnast hvorki af framboði né eftirspurn, því orka er mannkyninu of mikilvæg til að verði hennar sé leyft að stjórnast af því, nema að hluta til. Og það fyndna er einnig að ristilspeglaheimur féspeza sem segir Bandaríkin búin að vera, stjórnast af því sem Bandaríkin segja og gera, eða gera ekki. Froðan sullast þar upp um alla spegla ef Bandaríkin segja nei

OPEC og Parísarsamkomulagið er ein og sama skúffan. Og Kína er stærsti leiðtogi fátæktar og kúgunar í heiminum. Það land verður ávallt þannig því það krefst kúgunar til að hægt sé að halda því saman. Það verður því ávallt einungis musteri látaláta og mun aldrei ráða neinu nema með kúgun

Bandaríkin voru hins vegar stofnuð til að virka ekki nema að hluta til. Þau voru stofnuð til að ríkisstjórnin myndi ekki virka. Og þau voru stofnuð til að Sameinuðu þjóðirnar myndu aldrei virka, því ef sú stofnun virkar þá verður Parísarsamsærið heimur allra til að láta kúga sig í

Bandaríkin voru stofnuð til að atvinnulíf fólksins myndi virka en ríkisstjórn þess helst ekki, nema að lágmarki til. Sterkar ríkisstjórnir eru afleiðing en ekki orsök. Þær eru slæm afleiðing vandamála sem aldrei verða leyst

Fáninn

Til hamingju íslenska þjóð á Sjómannadaginn. Fullveldi Íslands ber hann uppi. Blessuð sé Íslenska Þjóðkirkjan mín, því vér mótmælum enn

Fyrri færsla

Svona ganga breytingar fyrir sig


Svona ganga breytingar fyrir sig

John Selden (1584–1654)

Íhaldsmaðurinn

Þeir sem undrast ástandið í Bandaríkjunum gera sér ekki grein fyrir að einmitt svona ganga breytingar fyrir sig undir forseta sem kosinn var til að gera miklar breytingar. Hann setur að sjálfsögðu margt í uppnám. Hann er uppnáms-forseti því það er ekki hægt að gera breytingar án þess að setja það sem ekki vill breytast í uppnám. Uppnám verður því það sem einkenna mun breytingamanninn Donald J. Trump. Þetta er ekki þægileg innivinna hjá honum

Í Bretlandi kaus þjóðin í þjóðaratkvæði miklar og sögulegar breytingar sem að Sir John Fortescue hefði glaðst yfir. Líklega þær mestu á Vesturlöndum frá lokum Síðari heimstyrjaldar. Það á sem sagt að breyta mikilvægum hlutum. Og þær breytingar valda uppnámi. Vanvita elítur misskilins John Locke skjálfa, því hann skildi heldur ekki sjálfan sig

Það sem sameinar þessi tvö lönd eru sterkar lýðræðislegar stofnanir sannra Íhaldsmanna þar sem þrískipt valdið hefur stanslaust eftirlit með hvort öðru. Það skákar og mátar í tafli sem engan enda má taka. Og þetta þrískipta vald er komið úr einmitt Gamla testamentinu, þ.e. Ísraelaríki hinu forna. Þessi tvö lönd munu því áfram standa sem vitaverðir hins frjálsa heims. Það geta þau af því að þau voru byggð af sönnum Íhaldsmönnum, sem lásu Biblíuna og skildu hana. Restin af heiminum eru mest sökkvandi sovétríki og evrópusambönd prinsa. Lengi lifi engilsaxneskt lýðræði!

Fyrri færsla

Er Air Iceland Connect Eyjafjallajökull


Er Air Iceland Connect Eyjafjallajökull

Ein leiðin til að drepa forvitinn ferðamann er svona sveitamennska. Að láta hann halda að hann hafi aldrei farið að heiman. Vesalingar Flugfélags Íslands eru svo hræddir við grundvöll sinn að þeir hafa hoppað af honum. Svífa þeir nú um í lausu lofti. Og til að geta lent þurfa þeir fjarvistarsönnun frá skynseminni. Að þeirra mati getur Maersk ekki staðist, en það er stærsta skipafélag heimsins. Að fljúga með Lufthansa er malbik sem endar í Badedas

F L U G F É L A G   Í S L A N D S

Þegar ég sá það vegaskilti á ensku hefði ég málað yfir það ef málning hefði verið við höndina. Og gamlir herstöðvarandstæðingar hefðu haldið að verstu spár þeirra hefðu ræst. Að kaninn hefði bara tekið allt landið yfir og lagt íslenska menningu í rúst. En nei, þetta eru þá bara þeir sjálfir! Þetta var í Lundareykjadal, þetta malbik endar skilti Vegagerðarinnar á ensku

Hvaða alger aumingjaskapur er þetta eiginlega? Eru menn búnir að missa vitið! Því meiri enska, því meira líkist Ísland ömurlegri túristagildru, og sem landið sannarlega er að verða. Open í stað opið og closed í stað lokað. Best færi á að þessi búlla lokaði bara strax, áður en verra hlýst af. Maður vissi þó í gamla daga að Kanaútvarpið var kanaútvarp. En í dag veit maður ekki hvort að um aumingjaskap er að ræða eða bara svæsna spéhrædda sveitamennsku númer hundrað og eitt

Aumingjar!

Fyrri færsla

Banka-ruslatunna evrusvæðis flutt úr einni í aðra


Banka-ruslatunna evrusvæðis flutt úr einni í aðra

Spænski stór-bankinn Banco Popular hefur nú verið færður sem ónýtt rusl til í ruslatunnufjármálageira evrusvæðis og sem evru-seðlabankaveldi og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sögðu fyrir ekki svo löngu (október 2012) að væri skotheld fjármálastofnun sem þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur af, eins og sömu "stjórnvöld" sögðu á sama hátt og svo flott þegar þau gerðu Dexia-bankann að "skotheldri" fjármálastofnun þvers á landamærum Láglanda, en sem hrundi svo í fullkomna rúst stuttu síðar. Tekjurnar af földum lífeyrissjóðum ríkisstarfsmanna Þýskalands í skúffufélögum þess á Írlandi voru leynilega notaðar til að fjármagna þá "björgun" Dexia

Spænski bankinn var því í gær færður yfir í stærri ruslatunnur Santander banka keppinautarins á Spáni, fyrir bara eina evru. Ku það vera sú eina og sama evra sem tyllt var framan á svitabolsmaga fjármálaráðherra Íslands. Undanfarnar vikur hefur áhlaup á Banco Popular verið í gerjun. Búið var að tæma 1/4 úr honum. ECB-svitabolsyfirvöld evrunnar sögðu því allt í einu kófsveitt síðustu reykfylltu nótt, að bankinn væri gjaldþrota í evrum

Banco Popular stofnaði árið 2009 dóttur-brunagildruna Aliseda Gestion sem sá um að kaupa þær fasteignir sem bankinn hafði lánað til með ónýtum lánum, en sem hverra eigendur lágu þá gjaldþrotnir undir. Aliseda Gestion endurbauð svo fram gjaldþrotnar brunarústir bankans til sölu, með hundrað prósent 40 ára lánum á engum vöxtum til aumingja mest í útlöndum, og helst alls konar kínverja, sem pissa áttu hagkerfið út á ný með eins konar rakvélablöðum krónísks ESB-lekanda, sem öllum evrulöndum er skylt að hafa að eilífu

Að forsögn afglapaveldis ESB átti evran að bjarga efnahag Spánar og var það því af henni umsvifalaust lagt í rúst. Aldrei í mannkyns-sögunni hefur ein mynt eyðilagt eins mikið og evran. En hún er einkaryksuga Þýskalands. Þá peninga sem vantar á Spáni er nú að finna á kistubotnunum heima í Þýskalandi, sem ryksugustýran Merkel þykist stjórna, en stjórnar ekki samt

Já, ein evra var það. Eftir situr hinn íslenski Benedikt-fjármálaráðherrann brennimerktur með magasýrum einnar skaf-evru. Situr sá skaf-miði fastur á honum um aldur og ævi. Ein evra, ekki satt

Atvinnuleysi á Spáni mælist tæp 18 prósent og 40 prósent hjá ungu fólki, en það fólk ku eiga að fjármagna framtíðina á Spáni, skyldi hún óvænt birtast

Fyrri færsla

Hvað er Bandaríski herinn að hugsa?


Hvað er Bandaríski herinn að hugsa?

Jú. Frá því að Rússland kom til baka úr fríinu frá sögunni og Evrópusambandið hóf upplausnarferli sitt 2008, hafa menn neyðst til að hugsa upp nýja hluti í sambandi við varnarmálin í Evrópu. Ljóst er að sjónarmið Bandaríkjanna innan NATO hefur áratugum saman ekki verið virt. Þýskaland og fleiri lönd Vestur-Evrópu hafa ekki staðið við skuldbindingar sínar í NATO frá því að Rússland kom til baka úr fríi sínu frá sögunni árið 2008, er það tók Georgíu og hélt síðan af stað til Krím, Úkraínu og nágrennis. Þetta er sú skoðun sem einnig ríkir meðal almennings í Bandaríkjunum sjálfum og sem borgað hefur NATO-brúsann. Að sjónarmið hennar hafi ekki verið virt

Núverandi ríkisstjórn Bandaríkjanna er sú sem allra ósáttust er við þróun varnarmála í Evrópu. Hún ályktar að samband Bandaríkjanna og NATO-landa Evrópusambandsins gangi ekki endilega lengur upp. Hún hefur dregið þá erfiðu ályktun af slæmri reynslu og sem er sú; að ekki sé hægt að stóla á stærstu lönd álfunnar

Bandaríkin eru því tilbúin að veita þeim formlega lausn frá NATO-aðild, sem hingað til hefur of mikið og að mestu verið óformleg í verki. Í staðinn ætla Bandaríkin að handvelja áreiðanlega bandamenn að eigin vali úr upplausnarferlis-grúppu Evrópusambandsins. Hóp landa sem hafa gagnkvæmra hagsmuna að gæta

Þessi lönd eru að líkindum Pólland og Rúmenía sem allra efst á lista, Ungverjaland, Búlgaría, Eystrasaltslöndin, Skandínavía og Bretland og sennilega Ísland

Innan skamms verður Pólland áhrifameira ríki í Evrópu en Þýskaland hefur verið. En þannig fer oft er mikilvæg ríki verða strategískt mikilvægir bandamenn Bandaríkjanna (dæmi: Ísland, Suður-Kórea og Vestur-Þýskaland). Sameinað Þýskaland er ekki lengur mikilvægt fyrir Bandaríkin. En það er Pólland hins vegar orðið og landið er einnig sögulega ákafur bandamaður Bretlands og Bandaríkjanna

Bandaríkjamenn vita að valdatímabil Vladimírs Pútín mun einn góðan veðurdag taka enda, og líklega fyrr en síðar, því verr sem gengur í Rússlandi. Þar ganga hlutirnir nefnilega mjög illa. Og þeir vita að "Póst-Pútín" Rússland verður þá mjög hættuelgur staður miðað við stöðuna núna. Í millitíðinni vonast þeir til að hafa búið svo um hnútana að þýsku valdastéttinni í uppleystu Evrópusambandi og NATO, sé á ný gert kleift að viðhafðast hjálparlaust, en ytra verndaðri, í gömlum neðanjarðarbyrgjum Berlínarborgar

Bandaríkin hafa því að mestu látið þarna við sitja og hafið nauðsynlegar gagnaðgerðir sem felast í hönnun nýs varnarsvæðis sem kalla má "Norhtern Tier Defence System", eða Norður-Varnarbandalagið. Hvað verður um NATO skiptir Bandaríkin ekki afgerandi máli lengur. Þetta varnarsvæði í smíðum er þegar byrjað að þjálfa sig saman. Upplausnarferli ESB er ekki hægt að stöðva en það er hins vegar hægt að einangra það frá varnarmálunum. Fullur þýskur ryksugupoki af gjaldþrota ESB-ríkjum verður aldrei sterkur söfnuður bandalagsmanna

Tvennt vinnst með þessu. 1. Öryggi Evrópu er tryggt og 2. upplausnarferli Evrópusambandsins er tryggður lokaður heimur til að falla saman í innávið - en ekki út og til austurs. Ekkert getur lengur stöðvað þetta upplausnarferli álykta Bandaríkin. Þessi einangruðu lönd að baki nýja varnarsvæðisins geta svo stofnað með sér nýjan kjaftaklúbb fyrir hin gömlu málefni sín í poka, sem seðlabanki Bandaríkjanna mun kannski hjálpa til við halda lokuðum á meðan hann er að falla saman

Bandaríkin hafa staðsett þúsundir bandarískra hermanna í þessum löndum Austur-Evrópu til að láta drepa þá. Það er að segja, ef að Rússland haggar sér enn frekar vestur á bóginn, þá þurfa þeir að drepa þessa Bandaríkjamenn fyrst. Við það hrekkur dyrabjalla í Washington í gang og glymur slæmum tónum, fyrir vesturfarann sem þar með hefur ráðist á Bandaríkin. Ofsóknir Evrópusambandsins á hendur Póllandi ber að skoða í þessu ljósi

Þetta útskýrir afstöðu Donalds J. Trump í þessum málum. Og þess vegna staðfesti hann ekki í mæltu máli sínu hinar fyrri skuldbindingar Bandaríkjanna í NATO-bandalaginu, á fundinum í Brussel í síðustu viku. Bandaríkin hafa gefist upp á að bíða eftir því að þau lönd sem látin verða sigla sinn sjó, gangi í NATO

Fyrri færsla

Stærsta vandamál Evrópu er áfram Þýskaland


Stærsta vandamál Evrópu er áfram Þýskaland

"Ég var kjörinn fulltrúi fólksins í Pittsburgh en ekki París"

- Donald J. Trump

Þeir sem neita því að Þýskaland sé stærsta vandamál Evrópu, gleyma því að öll Evrópa snýst einmitt um vandamálið Þýskaland. Búið er að segja okkur í samfellt 60 ár að svo sé. Og sem bein afleiðing þeirrar ályktunar er krafist þess að íbúar meginlands Evrópu samþykki að búið sé að umturna Evrópu yfir í það sem hún ekki endilega sjálf vill vera, en þarf að vera, er okkur og þeim sagt. Hún er orðin svona vegna Þýskalands. Heilt batterí af ólýðræðislegum stofnunum og pólitískt ólögmætum svikráðum í einmitt krafti þeirra, stýrir Evrópu núna. Það batterí er Evrópusambandið og elítur þess

Og Evrópusambandið var stofnað til að glíma við vandamálið Þýskaland, ekki satt. Þýskaland er sem sagt vandamálið. En nú hefur Þýskaland tekið vandamálið yfir og það sjálft er orðið Evrópa, að mestu leyti. Frakkar mega því nú sitja heima í landi sínu, sem í of lágreista rúst er lagt vegna myntar, yfirríkislegra stofnana og batterís sem þeim er enn sagt að séu tilkomin vegna vandamálsins með Þýskaland. Ekki satt

En nú hefur vandamálið það öðlast sitt eigið líf, þannig að verkum innan Frakklands núna eru virk öfl sem aðeins er hægt að líkja við þau virku öfl sem unnu saman með Þýskalandi í Síðari heimsstyrjöldinni: unnu með því við að "sameina" Evrópu". Framgangsmátinn er hins vegar annar í dag en hann var þá. En imperíal er hann samt. Adolf var imperíal-veldi kynþáttaelíta með heimsyfirráð í eftirrétt

Emmanuel Macron var sem persóna kjörinn forseti Frakklands um daginn. Það var hins vegar ekki pólitík hans sem var kjörin forseti. Þjóðin studdi ekki pólitík hans, heldur studdi hún persónuna Macron til að koma í veg fyrir að önnur persóna yrði forseti landsins. Umboð Macrons hjá sundraðri þjóð er því ekki mikið. Enda sýnir það sig í stjórnmálum Frakklands, núna strax, og langt aftur í fortíðina allar götur frá Frönsku byltingunni. Landið er á sinni fimmtándu stjórnarskrá síðan þá. Það segir okkur að eitthvað margt og mikið virkar ekki eins og vera skyldi innanborðs í Frakklandi, sem er á sínu fimmta lýðveldi. Hvað er að í Frakklandi fimmunnar og þeirrar fimmtándu?

Marcon hagar sé eins og kjáni gagnvart þeim sem hann skuldar flest. Hann gerir lítið úr forseta Bandaríkjanna og lítilsvirðir hann. Það voru Bandaríkjamenn sem kusu þann forseta sinn og það sem þeir kusu var einmitt pólitík hans, þrátt fyrir persónuna. Í engilsaxnesku lýðræði er málefnið ávallt stærra en maðurinn sem koma á því til framkvæmda. Slíkt stjórnarfar er mjög slæmar fréttir fyrir þá sem aðhyllast einræði og andlýðræðisleg öfl. Þannig að Macron forseti Frakklands er hér fyrst og fremst að ausa úr sér yfir sjálfa bandarísku þjóðina. Því hefur hann ekki efni á. Frakkland getur ekki staðið á eigin fótum. Hvorki í fjármálaheimi veraldar undir mynt Þýskalands, né í utanríkismálum, né í efnahagsmálum og allra síst í varnarmálum, nema með því að segja sig úr Evrópusambandinu fyrst. Landið hefur lítið að segja miðað við fyrri tíð, nema með því að annast fyrst og fremst sig sjálft og sína kjósendur, en ekki Evrópu sem er ekki til, nema sem landfræðilegt hugtak

Og annars staðar í Evrópu, á austri væng hennar, hugsa menn sitt. Þar eiga menn næstum engra sameiginlegra hagsmuna að gæta með Frakklandi og heldur ekki með uber-vandamálinu Þýskalandi. Austur-Evrópa getur staðið sjálf af því að Bandaríkin vilja það. En án hennar stenst Vestur-Evrópa hins vegar ekki. Og sérstaklega ekki með Macron sem forseta Frakklands, ef þetta er þá ekki bara enn eitt umboðslausa baby-face álfunnar að gera í sig, áður en andlitið frýs fast til er kaldur pólitískur veruleikinn frostbítur það af honum

Frakkland skuldar Bandaríkjunum óheyrilega eftir síðustu hundrað árin. Í 15 ára stríði er hófst sem árás á NATO-ríkið Bandaríkin árið 2001, var bandalagið í fyrsta sinn virkjað samkvæmt samningi sem til er vegna veldis Bandaríkjanna og sem þar í stendur: "allir fyrir einn og einn fyrir alla". En það fór samt þannig að Bandaríkjamenn máttu sætta sig við að heyja lengsta stríð í sögu lands síns að mestu einir, án virkra bandamanna að ráði. Tryggð er einungis tryggð þegar flest í veröldinni segir þér að þú eigir ekki að vera trúr einmitt núna, en þú ert það samt. Það er tryggð. Og Frakkland og Þýskaland brugðust bandamanni sínum er þau afneituðu vandamáli hans og létu Bandaríkin sitja ein, ásamt Bretum, föst í vandamálum næstu 15 árin

Þessu hefur forseti Frakklands ekki efni á. Og franska þjóðin veit það. En henni er hins vegar sagt að hún eigi áfram að lifa vanrækt sem grunnpólitísk eining landsins og mest á lygi. Á lyginni um Evrópu sem á ný orðin er næstum því Þýskaland. Of mikið Þýskaland. Of mikið vandamál. Of mikið næstum því óleysanlegt vandamál á ný

Þegar Macron segir eftirfarandi til að hæða og spotta forseta Bandaríkjanna: "Gerum heiminn mikilfenglegan á ný" (e. “Make our planet great again”) - þá er hann að segja: "fórnaðu landi þínu svo að heimurinn megi verða mikilfenglegur á ný". Hann segir hér með að heimurinn hafi verið mikilfenglegur vegna Bandaríkjanna. Það getur vel verið að einmitt það sé rétt hjá honum, en þá varð heimurinn aðeins þannig vegna þess að Bandaríkin sjálf voru mikilfengleg. Og þau urðu að vera það, til að geta haft eitthvað gott að segja

En enginn leiðtogi neinnar þjóðar í heiminum var kjörin, né verður nokkru sinni kjörinn, til að gera heiminn mikilfenglegan á ný. Enginn hefur umboð til slíks. Og enginn ætti nokkru sinni að reyna það. Því það er uppskriftin að helvíti á jörð. Það er aðeins hægt að vísa veginn og aðstoða aðra með svipuð viðhorf til að gera sín eigin lönd mikilfengleg á ný. Að þjóðin vísi veg með flottu fordæmi og það hefur Bandaríska þjóðin svo sannarlega gert. En það er greinilega ekki það sem forseti Frakklands hefur á sinni dagskrá. Hann er greinilega kominn til valda til að sparka dósinni enn lengra niður götu Evrópu til glötunar og inn í næsta lýðveldi Frakklands, í röð næstum of endalausra slíkra torgreinanlegra mistaka

Macron hefur ekki efni á að heyja neins konar stríð við Bandaríkin. Bandaríkin hafa hins vegar efni á að heyja stríð og styrjaldir og tapa þeim. Kerfið stenst það mjög vel því engilaxneska kerfið er ávallt stærra en einn maður. Þegar hins vegar Macron tapar stríði (deilum) við Bandaríkin, sem hann mun gera, þá hrynur um leið fimmta lýðveldi Frakklands, því Macron er stærri en pólitík þess. Þannig er nú það. Þannig kerfi hafa ekki efni á að tapa. Og þau geta næstum aldrei sigrað, vegna þess að þau eru bara einn maður

Evrópa nálagst 1914 hægt en örugglega á ný. Þökk sé Evrópusambandi þess. Það er þjóðfélagslega séð ólögmæt pólitísk eining. Það er hins vegar þjóðin sem er hin eina sanna pólitíska eining sem komin er til að vera. Það stendur svart á hvítu í Gamla testamenti Vesturlanda. Allt annað er rusl og létt bráð ömurlegra afla, eins og sést. Þetta endar ekki sérlega vel. Það er mín skoðun

Donald Trump hefur svarið þjóð sinni hollustu, með því að kyssa stjórnarskrá hennar á Biblíu Lincolns. Hann ætlar að gera Bandaríkin mikilfengleg á ný. Án aðstoðar Frakklands, Þýskalands, Evrópu og heimsins. Til þess var hann kjörinn og þannig urðu Bandaríkin til: þau gerðu sig sjálf. Þau eru og verða áfram Made in USA

Fyrri færsla

Þrír stórir hvellir þann 1. júní 2017


Þrír stórir hvellir þann 1. júní 2017

Þrennt

Á sama degi og USS Nimitz lagði í hann, frá Bremerton-flotastöðinni á vesturströnd Bandaríkjanna, til Vestur-Kyrrahafs, þar sem tveggja þrepa skagi Kóreu rís úr sæ, gerðist allt þetta þrennt:

1. USS Nimitz lagði í hann og mun sameinast flota tveggja annarra flugmóðurskipa Bandaríkjanna skammt undan Kóreuskaga. Þrír bardagahópar verða þá þar til (á)taks ásamt strategískum sprengjuflugvélaflota Bandaríkjanna á Guam. Í Persaflóa er fjórða flugmóðurskipið staðsett, USS George H.W. Bush og árásarhópur þess, til að tryggja að Asíulönd geti keypt olíu og fengið hana afhenta með skipum sem sigla þurfa um kyrkingarsund guðsins gamla Hormoz. Eins og flestir vita greinilega ekki, þá stjórnast olíuverðið ekki af framboði og eftirspurn, heldur af geópólitískum veruleika heimsins. Orkumarkaðurinn, í hvaða formi sem er, er ríkjum of mikilvægur til að verðinu sé leyft að stjórnast af svo kölluðum "markaðsöflum"

2. Sama dag var nýtt flugmóðurskip Gerald R. Ford-klassans afhent bandaríska flotanum til sjóprófa og uppsetningar-fullnustu. Það verður bardagklárt eftir tæplega þrjú ár. Þetta skip, USS Gerald R. Ford (CVN 78), var smíðað í Newport News skipasmíðastöðinni í Virginíu og er dýrasta skip sem bandaríski flotinn hefur nokkru sinni fengið afhent. Það kostar tæpa 13 milljarða dala

3. Sama dag var fjárkúgunarveldi hugtilbúnaðar-delludeildar hinna alþjóðlegu afganga kommúnistaflokks gömlu sovét-akademíunnar, sparkað út úr Bandaríkjunum. Forsetinn gerir hér grein fyrir rothögginu sem dáleiða mun sjálfkeyrandi bransann undir grænar torfur

Á meðan halda Bandaríkin áfram að þróa sífellt ódýrari lyftur fyrir græjur út í geim, sem skaffa munu þeim geim-sólar-orku næstu mörg hundrað þúsund árin. Henni verður með einhverskonar bylgjum beint til réttra móttökustaða í þeirra landi. Fréttamönnum er hins vegar sagt að þróun þessa verkefnis sé fyrirhuguð mönnuð ferðalög sjálfkeyrandi sturtuklefa til Mars. Svipað og Kína sagði sömu fréttamönnum að skrokkur hins ný-gamla flugmóðurskips þeirra sem fannst í þrotabúsbókhaldi gjaldþrota sovétríkis, ætti að sjálfsögðu að vera fljótandi jómfrúarhótel fyrir ferðamenn undan sextán metra strandlengjum Hong Kong. Þegar svo til Mars er loks komið, tekur sjálfkeyrandi geðveikin við og sturtuklefinn breytist í gufuáhvolf

Íslendingar ættu að reyna að framleiða eitthvað mikilvægt og óétandi fyrir kannann. Þar sem ég bjó á Jótlandi í tæp 30 ár, áður en ég forðaði mér heim í þjóðríkið mitt burt af öskuhaugum Evrópusambandsins árið 2010, voru í litlum bæ í Terma A/S fyrirtæki framleiddir hlutar í orrustuþotur bandaríska flughersins. Þetta gæti orðið fínt hernaðartæknilegt fyrirtæki í stað steiktra hamborgara ofan í lágfargjalda fólk á bænum úr ESB. Svona fyrirtæki ætti til dæmis að liggja við Hvalfjörð eða Eyjafjörð í öruggri fjarlægð frá Stóra-Kleppi borgarinnar. Ég get þegar séð þetta fyrir mér á þessum stöðum þar sem þeir hafa felst er til þarf. Öryggi, gott fólk, hráefni, orku og óbrenglaðar sveitastjórnir

Fyrri færsla

Þýskaland ætti að segja sig úr NATO


Þýskaland ætti að segja sig úr NATO

Ein leiðin til að styrkja NATO væri sú að Þýskaland myndi fara úr varnarbandalaginu. Þýskaland hefur ávallt litið svo á að varnabandalagið þurfi ekki á sér að halda, því það neitar ávallt að taka þátt í öllu sem bandamenn þess lenda í og álita að þurfi að glíma við. Það tekur að vísu stundum pappírslegan 83-fyrirvara þátt, en svo ekki meir. Landið er með sérskoðun á öllu sem viðkemur NATO. Best færi því á að það segði sig úr NATO

Já. Þannig gæti Þýskaland lagt bandalaginu til vígvöll sem að mati þess sjálfs er bandalaginu sæmandi. Bandalagið hefur eðli sínu samkvæmt engu hlutverki að gegna innan varnarsvæðis þess. Og flestir hljóta að skilja það. Öll viðfangsefni bandalagsins eru utan þess. Og þannig á það að vera. Það á að verjast þeim hættum sem steðja varnasvæði þess. Það er ekki hægt að setja bandalagið inn vegna sífellt ömurlegri þróunar árása á almenna borgara innan varnasvæðis NATO. Og Þýskaland neitar að taka þátt í og fjármagna alla getu bandalagsins utan varnarsvæðisins, sem myndi ráða niðurlögum vandamálanna sem svo verða innan þess

Með því að Þýskaland segði sig úr NATO þá væri loksins hægt að beita bandalaginu á stærsta vandamamálið sem Evrópa glímir við: sjálft Þýskaland

Þetta gæti verið lausnin. Þýskaland álítur að hernaðargeta NATO sé ekkert sem þarf að hugsa um. Það álítur að hlutverk bandalagsins sé helst pólitískt. Þarna væri hægt að sleppa NATO lausu á pólitíska vandamálið sjálft: á Þýskaland!

Fyrri færsla

Bandaríski flotinn tekur stjörnusiglingafræði upp á ný


Bandaríski flotinn tekur stjörnusiglingafræði upp á ný

Navigation aboard the guided-missile destroyer USS Stout

Mynd og frétt: NPR 22. febrúar 2016

Svo seint sem í fyrra var stjörnusiglingafræði tekin upp á ný sem námsefni í akademíum bandaríska flotans. GPS tæknin er óáreiðanleg, viðkvæm og komandi skotmörk í hverslags hernaði. Langt er síðan að til dæmis Rússar gátu brenglað GPS merki og gert þau að svo gott sem rugli

Það fólk sem alið hefur allan sinn mann í borgum er orðið svo heimsku-hættulegt að það stefnir heiminum í hættu. Því lengra sem borgarfólk fjarlægist sveitina, hugsun og vitran lífsmáta byggðan á landnematilfinningu og lífsnauðsynlegri svartsýni í lífinu, því heimskara og óhamingjusamara verður það. Sokkinn skipafloti bjartsýnisfólksins liggur því enn á sjávarbotni við strendur Noregs. Ekkert land það fólk nam. Í dag situr það króknað fast í föl á heiði

Nýjasta dæmið um þannig heimsku eru "sjálfkeyrandi bílar". Þetta er svo heimsk hugsun að hún er orðin viðtekin sem staðreynd í hugum þeirra sem orðnir eru malbikaðir bjálfar

Tölvu og hugbúnaðarfólk veraldar er búið að byggja upp heim sem þolir ekki að hann sé notaður, né hvað þá að tækni þeirra sé notuð í mikilvæga hluti né trúað fyrir neinu mikilvægu. Að brjótast inn í ónýt kerfi er það sem er að gerast dag hvern. Svo ömurlegur er minnisvarði þessi. Þeir sem þekkja þennan heim best vita að þetta er rétt. Annars þekkja þeir alls ekki heiminn sinn

Þegar fjárkúgunarhugbúnaður glæpalýðs veraldar birtist á tímatöfluskjáum lestarkerfa stórborga og á skurðstofum sjúkrahúsa, þá veit maður að núverandi mest úrbreiddu hugbúnaðarkerfi heimsins eiga ekki nema 10 ár eftir ólifuð í

Þeir sem bjuggu þennan hugbúnað til voru bjálfar og þeim hefur mistekist í allra lægstu þrepum erfiðleikaskalans. Yfirbygging þeirra er því rusl sem þolir ekki notkun

Donald Trump sigraði yfirgnæfandi stórt í persónulegum atkvæðafjölda í Bandaríkjunum öllum, ef að New York og stórborgir Kaliforníu eru teknar út. Það segir okkur að landnemasál Bandaríkjanna er enn ekki orðin geðveik, ef litið er burt frá ófrjósömum alþjóðaelítum úrkynjarða stórborga. En þær elítur hafa misst vitið, eða jafnvel aldrei frá fæðingu haft það. Í Brexit-kosningunum var sagan sú sama. Bretar eru enn óbrjálaðir, nema í borgarvirkjum gegn veruleikanum

Þeir sem muna Búrfell hér heima muna hvernig þessi landnemahugsun er. Hún er varfærin og þjóðfélagsleg, tekur mið af því sem getur gerst mörgum skerfum síðar og flanar ekki út í sjálfsmorðsborgarlínur sem liggja inn í gaukshreiður grasasna í sjálfkeyrandi apabúrum. Þar sem yfirlæknirinn er stanslaust í ímyndaðri ferð til Mars að skoða hundrað milljón drepnar klukkustundir Sigmundar Freud, sem liggja ofan á hundrað milljón líkum Karls Marx, borandi í nef sitt - svo nefndar séu bara tvær yfir-þvælur tuttugustu aldarinnar sem komu úr sömu skúffu og sjálfkeyrandi vitsmunalegar drepsóttir nútímans eru fastar í

Það er millistétt okkar með landnemahugsun sem byggt hefur Ísland upp og það sama gildir um Bandaríki Norður-Ameríku. Og það er hún sem fjármagnar mesta herveldi mannkynssögunnar, þar sem eitt sykki af öllu strategískt mikilvægu kostar milljarða dala

Utanríkisráðherra okkar er sennilega orðinn algert borgarbarn. Hann heldur að NATO sé sjálfkeyrandi banki sem hægt er að taka allt út án þess að leggja nokkuð inn

Krækja: U.S. Navy Brings Back Navigation By The Stars For Officers

Fyrri færsla

Verður Norður-Kórea ríkt land?

Myndband: Stjörnusiglingafræði 1942


Verður Norður-Kórea ríkt land?

Nú er úr vondu að ráða. Ég get ekki lengur lesið Financial Times. Það er búið að sanna sig sem ekki-fjölmiðill með því að hafa alltaf rangt fyrir sér um flest. Einu sinni áttu starfsmenn þess og svipaðra fjölmiðla góða og kórónaða daga. Það var á meðan þeir, en ekki almenningur, höfðu beint símasamband við útlönd. Þeir fengu markaðs-fréttir og annað á undan almenningi og gátu þannig selt fólki áskrift að því sem það hafði ekki efni á sjálft. Þetta var greinilega það eina sem þessir fjölmiðlar höfðu fram yfir apa með lyklaborð í búri

Nú er þessi munur farinn. Almenningur er kominn með sama síma og FT og WSJ. Og þá sér maður að þeir hafa oftast rangt fyrir sér um næstum allt sem máli skiptir. Restin er suð. Ekkert er að marka svo kallaðar markaðsfréttir og ekkert er að marka skrif þeirra um efnahagsmál og síst af öllu er neitt að marka nein skrif þeirra um stjórnmál. Ég er að hugsa um að segja upp sem greiðandi

Wall Street Journal get ég heldur ekki lesið lengur því þeir eru svo gegnsúrir út af kjöri Donalds Trump að þeir falsa flestar fréttir svo úr verður súrt kál. Snúa flestu á haus. Maður veit og sér að skrif þeirra eru svindl og blindskrift. Paul Krugman er heldur ekki hægt að lesa lengur, því hann er orðinn úthverfur af bræði. Rangan á honum snýr út og úr öllu. Hann er orðinn stjórnmálamaður, loksins. New York Times er heldur ekki hægt að lesa því þeir eru enn súrari vegna Trumps en WSJ. Ég er því að hugsa um að segja upp. Ég horfi á sömu hlutina og sé það sama og þeir, en skil flest á allt annan hátt. Svo af hverju ætti ég að hlusta á þá sem höfðu svona allt allt of oft rangt fyrir sér

Jæja, að efninu

Það eru tvær leiðir sem Norður-Kórea getur farið til að öðlast ríkidæmi:

Leið 1. Halda áfram á þeirri leið sem þeir þegar eru á. Það eina sem landið stendur fyrir er þróun kjarnorkuvopna. Haldi þeir því áfram geta þeir orðið ríkir á að selja kjarnorkuvopn til aðila sem eiga slík vopn ekki. Nóg er af mögulegum viðskiptavinum. Engin hugmyndafræði liggur á bak við ríkisstjórn landsins. Hún er bara hreint helvíti. Ekkert hugmyndafræðilegt afl er að flækjast fyrir við stjórnun landsins. Enginn mórall. Engin samviska. Engin mennska. Ekkert, nema hrein og skær græðgi. Valdastétt landsins ætlar sér að nota þjóðina áfram sem sínar einka-þrælabúðir svo að hún geti áfram lifað í vellystingum, hvað sem það kostar. Þetta er hin fullkomna "stealth" lokaútgáfa sósíalismans. Þessu geta þeir orðið ríkir á og lifað hátt í langan tíma. Þetta er hægt því nóg er af drullusokkum í veröldinni til að kaupa af þeim fullbúin kjarnorkuvopn og flest sem í þau þarf. Alltaf

Enginn mun geta komið í veg fyrir kjarnorkuvopnasölu þeirra næstu marga áratugi. Og ekkert getur lagfært stjórnmálastétt landsins annað en að drepa hana. Þessi viðskiptauppskrift og stefnumörkun þýðir að leiðtoginn getur ekki gefist upp á komandi misserum - og aldrei í framtíðinni. Hann verður að fara í stríð sé sótt að honum núna og alltaf síðar. Öll valdastétt landsins myndi persónulega skera úr honum líftóruna í trylltum ótta ef hann svo mikið sem blikkar einu auga. Hann fer í stríð, það er öruggt. Hann velur leið eitt

Á næstu vikum verður hann að sannfæra Bandaríkin um að hann hafi stóru bombuna klára sem einhverskonar vopn. Ef hann hefur hana klára sem vopn, þá verður hann að sýna vopnið á næstu vikum. Til dæmis með því að keyra fyrir okkur demó með því að sprengja hana á hafi úti með flaug. Ekkert mark verður tekið á neinu neðanjarðargutli. Þetta verður hann að gera til að fá frið og framhaldslíf. Vopnið veitir valdastéttinni framhaldslífið. Það tryggir að enginn sé að káfast upp á hana

Þetta er kallað "nuclear clarity" (ég sprengi án fyrirvara vopnið mitt svo allir sjái, ergo: ég er með vopn). Hingað til höfum við einungis fengið að sjá "nuclear ambiguity" (ég er með vopn, en sýni það ekki, en sprengi einhverja klessutunnu neðanjarðar, trúið mér)

Það erfiðasta er að búa til sjálft vopnið úr stórri klessutunnu. Það þarf að minnka það og herða. Það þarf að þola 10G hröðun framan á eldflaug út í geim, svo kuldann í geiminum, endurkomuhitann inn í gufuhvolf jarðar og svo að springa á réttum tíma á réttum stað. Það má helst ekki lenda og springa ekki með merkimiðann "framleitt í Norður-Kóreu" á halanum. Sé um næstu nágranna að ræða, sem á að kála, þá þarf flaugin ekki að yfirgefa gufuhvolfið

Leið 2. Gera eins og Suður-Kórea. Verða strategískur vinur Bandaríkjanna. Allir sem verða þannig vinir Bandaríkjanna verða ríkir. Dæmi? Ísland, Þýskaland, Japan, Suður-Kórea. Og næst á þeim lista núna eru Pólland, Rúmenía og Búlgaría. En Norður-Kórea gæti hins vegar komst efst á listann, strax, immed. Það getur landið gert með því að gefast upp og sameinast suðurhlutanum. Þetta kostar eitt símtal. Þetta er mjög auðvelt, en samt ekki hægt

Norður-Kórea mun ekki velja leið númer tvö. Þeir munu velja leið númer eitt. Það verður stríð. Og hinir mörgu komandi viðskiptavinir verða bandamenn landsins í því stríði

Nú er sem sagt fyrir valdastéttina að drepast eða láta sprengja sig í tætlur. Aðeins leið númer tvö getur komið í veg fyrir að valdastéttinni verði bara tortímt. Leið númer tvö tryggir að valdastéttinni verður ekki tortímt, heldur verður henni vandlega tortímt

Bara síminn getur reddað þessu. Sími sem almenningur hefur ekki

Fyrri færsla

USS Nimitz leggur í hann


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband