Leita í fréttum mbl.is

Stendur Kína í raun fyrir Norður-Kóreu? Trump sendir armöðu af stað

"we are sending an armada . . . far more powerful than the aircraft carrier" - Donald J. Trump

Er Kína heimsins stærsta blekking? Er það í raun Kína sem stjórnar Norður-Kóreu?

Fugl, reyndar örn, hvíslaði því að mér að Kína stjórni sennilega Norður-Kóreu og noti ríkisstjórn þess lands sem mola í kaffið sem það ber á borð fyrir gesti, sérstaklega þá bandarísku

Molakaffi Kína virkar svona

a) Þegar Kína var hleypt inn í alþjóða-viðskiptakerfið þá átti það að láta WTO í té skýrslu um ríkisstuðning í hagkerfi sínu. Nú eru liðin 16 ár og skýrslan hefur ekki borist enn

b) Í hvert skipti sem Bandaríkjamenn byrja að sækja að Kína í þessum efnum, þá er eldflaug skotið á loft frá Norður-Kóreu. Næstum alltaf

c) Þetta er reykský sem ætlað er að villa um fyrir þeim sem sækja að Kína vegna ofangreindra viðskipta- og efnahagsmála. Reykskýið segir: gestur minn góði, farðu nú varlega vegna rammskakkra svindlandi efnahagsmála okkar í Kína, því Norður-Kórea er að tryllast og þú þarft á aðstoð okkar í Kína að halda til að ná þeim niður. Molinn dettur út í kaffið og það sykrast. Gesturinn drekkur og finnur ekki með vissu skítabragðið af kaffinu sem malað er úr mold

d) Ef einhver lógík er í þessu máli þá ætti Norður-Kórea að hafa hljótt um sig þegar gesturinn snar-vondi nálgast þessi málefni Kína og með það fyrir augum að þrýsta einnig á kínversk stjórnvöld varðandi nágranna þeirra, Norður-Kóreu. Sem gesturinn er að tryllast yfir. En nei, þá sendir Norðrið bara upp rakettur

Hafa Donald J. Trump og Mattis séð í gegnum þetta? Trump tístir núna að hann sé ekki bara að senda flugmóðurskipið USS Carl Vinson og árásar-grúppu þess á staðinn (e. Carrier Strike Group), heldur heila armöðu af öllu og með því. Heila lúðrasveit

Hvað segið þið um þetta. Er Norður-Kórea proxí-ríki sem Kína notar sem fyrirbyggjandi kaffikorg. Er landið aukabúgrein Kína?

Og ekki nóg með það. Nokkur dagblöð í Japan og Suður-Kóreu segja að Kína sé að flytja 150 þúsund hermenn kíverska alþýðu-hersins í átt til Yalu landamæra-fljótsins. Um er að ræða 16. plús 23. plús 39. plús 40. hergrúppu kínverska plat hersins. En þetta eru samt óstaðfestar fréttir. Nokkur Evrópsk blöð eru með álíka fréttir, en einnig allar óstaðfestar

Fyrri færsla

Af hverju skutu Rússar ekki Tomahawk eldflaugarnar niður? [u]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hvernig myndi kína bregðast við ef að USA myndi senda sprengjur á helstu kjarnorkustöðvar/skotpalla og hernaðar-mannvirki í N-Kóreu?

Hvaða atburðaráð væri líkleg að færi af stað?

Jón Þórhallsson, 12.4.2017 kl. 09:44

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Jón

Þetta er nú ekki svona einfalt Jón. Mesta hættan sem stafar af Norður-Kóreu er sérstaklega í Suður-Kóreu, Japan og Bandaríkjunum.

Ef Bandaríkin hafa sannanir sem þeir trúa með vissu að séu áreiðanlegar, þ.e. fullvissu, um að Norður-Kórea sé í standi til að senda kjarnorkuvopn með eldflugum til vesturstrandar Bandaríkjanna, til dæmis San Francisco og Los Angeles, þá verður Kína ekki spurt að neinu áður en slegið er til. Þeim yrði hótað öllu illu ef þeir væru ekki samvinnuþýðir og aðstoðuðu sín megin frá.

Það er næstum útilokað að sprengja kjarnorkuvopna stöðvar NK í tætlur með öryggi. Það yrði afar óviss aðgerð. Þær eru svo margar og búið er að koma þeim fyrir inni í fjöllum og neðanjarðar. Hins vegar væri hægt að varpa kjarnorkuvopnum á þær allar samtímis. Ef farið er út í það þá verður að rústa þeim öllum samtímis, til að tryggja að ekkert fari á loft. Þetta er mjög langsótt. En samt ekki langsótt ef menn eru vissir um að Norður-Kórea geti náð vesturströnd Bandaríkjanna. Það er stóra málið sem myndi fá menn til að yfirvega þann möguleika.

En mesta hættan er í Suður-Kóreu vegna stórskotaliðs Norður-Kóreu sem nær til útjaðars Seoul, sem er 10 milljón manna borg. Það þyrfti að taka út með hroðalega öflugri reiknigetu miðunarstöðva og samstundis hroðalega öflugu svari um leið og stöður þess blotta sig með bara einu skoti. Það þarf massífa uppsetningu til þess og súper hraðvirka massífa svörun.

Svo er það kafbátafloti NK sem er umtalsverður. Hann getur skotið upp vissum hlutum. Lofther Norður-Kóreu er hins vegar svo gott sem ónýtur. Svo eru það efnavopn Norður-Kóreu. Þau eru mikil og voðaleg.

Þetta er stórt reiknistykki. En mælirinn er greinilega að fyllast, komi ekki einhver afsönnun á alvöru atómgetu Norður-Kóreu, sem hægt er að treysta og skoða með eigin augum. Staðfesta.

Öllum er skítsama hvað Kína segir. Bandaríkin þurfa ekki að hræðast Kína. Það er Kína sem hræðist Bandaríkin. Kína er fyrir löngu búið með þann yfirdrátt sem þeir höfðu og meira en það. Bandaríski flotinn getur hvenær sem er lokað landið af frá öllum siglingarleiðum um hnöttinn. Lokað Kína inni í sjálfu sér. Sett það í hverkví ef með þarf. 

Svo Kína kemur þessu máli ekkert við, ef örugg staðfesting fæst um hið versta. Til þess er forseti Bandaríkjanna kjörinn. Að vernda líf og limi Bandaríkjamanna, en ekki Kínverja.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 12.4.2017 kl. 10:23

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ef að þú værir Trump myndir þú þá " hrökkva eða að stökkva";

eins og máltækið segir?

að klæða sig í RIDDARA-BRYNJUNA og leggja af stað í krossferð?

EÐA

Að leyfa "úlfinum" í N-Kóreu að byggja sig upp og senda ÖRYGGISRÁÐINU fingurinn? 

Jón Þórhallsson, 12.4.2017 kl. 11:01

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það verður aldrei um að tala að hrökkva eða stökkva Jón. Þetta verður vel yfirvegað og aldrei neitt gert nema í síðustu lög og þá þaulskipulagt undir smásjá.

Það er náttúrlega hryllingur að staðan skuli kalla á að kjarnorkuvopn séu yfirleitt til umræðu í þessu máli. En þau eru komin inn í myndina. Því er ekki hægt að neita.

En ég vildi helst ekki vera Donald J. Trump með þessa helvítis byrði vegna geðsjúklinga Norður-Kóreu á öxlunum. Það fer hrollur um mann. Og svo vesalings fólkið sem býr undir þessum skrímslum. 25 milljón manns sem búa í hryllingi Norður-Kóreu glæpa gengisins.

En fyrst þarf að hræða líftóruna úr Kínverjum og leppi þeirra. Sú hræðslu- og skímslaherferð þarf að afhjhúpa hvort að Kína hafi yfir höfuð nokkuð að segja um eða hafi áhrifa-ítök í Norður-Kóreu. Ef Kína hefur það ekki, þá er Kína búið að ljúga að Bandaríkjunum áratugum saman. Þá er Kína smáríki sem er að reyna að blöffa sig til veldis í augum heimsins. Þá er það núll.

En ef þeir hafa hins vegar eitthvað segja um Norður-Kóreu, þá þarf að þvinga þá til aðgerða.

Þetta leiðir svo af sér einn möguleika í viðbót. Að Kína sé í raun Norður-Kórea. Þar myndi þá koma í ljós að Kína er að nota Norður-Kóreu sem vogarstangarafl gegn Bandaríkjunum. En ég veit ekki hvernig er hægt að komast það því. En til að byrja með þá er lúðrasveitin send á staðinn. Skoða þarf viðbrögðin við því. Setja þarf þá úr jafnvægi og skoða viðbrögðin.

Góðar kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 12.4.2017 kl. 13:40

5 identicon

Sæll Gunnar.

Allt frá lokum Seinni heimsstyrjaldar hefur það
legið fyrir að Kína var í raun ekki annað
en leppur Sovétríkjanna og jafnframt 
mikilvægur hlekkur í því áformi Sovétríkjanna að
ná völdum yfir Kóreuskaganum öllum og í
framhaldi af því helstu nágrannaríkjum.

Í lok Seinni heimsstyrjaldar voru Bandaríkjamenn
með yfirburðastöðu á sviði hernaðartækni og
bjuggu yfir kjarnavopnum sem Sovét-Rússland-Óskalandið
átti ekki yfir að ráða á þeim tíma.

Truman og Douglas MacArthur deildu um aðferðarfræði
á Kóreuskaganum.

Við ofurefli var að etja og Douglas MacArthur vildi
að geislavírku belti yrði komið fyrir við Gula fjlót
Í framhaldi af því var Douglas Mac Arthur settur af.

Tengsl þau sem að framan eru rakin hafa verið deginum
ljósari allt frá styrjaldarlokum.

Húsari. (IP-tala skráð) 12.4.2017 kl. 15:40

6 identicon

Sæll aftur!

Reyndar gleymist í þessari umræðu
þegar Japanir óðu upp allan Kóreuskagann
á árunum 1936 og 1937 og það var einmitt
hinn ástæli leiðtogi Kim il Sung,
gagnmenntaður í Sovétríkjunum, sem barðist
hvað harðast í gegn þeim og í framhaldi af
því ávann hann sér traust meðal samlanda
sinna og ekkert síður sá uppsölujafningur sem
hann hafði fram að bjóða.

Á þessum tíma sem tiltekinn var þá námu Japanir
þúsundir kvenna í kynlífsþrælkun og þar af er
ódulin andúð milli ríkja á Kóreuskaganum og Japan.

Því færi ég þetta til sögunnar að Japan kann
að eiga meira á hættu en nokkru sinni Bandaríkjamenn.

Húsari. (IP-tala skráð) 12.4.2017 kl. 17:32

7 identicon

Bandaríki Norður-Ameríku eru blekkingar fyrirtæki.  Þeirra afstaða til Kína er svona: Við skuldum ykkur trilljónir dollara, ef þið viljið fá þær, þá er eins gott fyrir ykkur að hlusta á okkur.

Þetta er rétt hjá kananum, Kínverjar eru svo peningagráðugir að það nær engri átt ... þannig að þegar allt er í botninn hvolft, mun N-Kórea standa einir síns liðs.

N-Kórea, á enginn vopn sem geta ógnað neinum ... þeir geta "varið sig" lítið annað.  Allar "sögur" um eitthvað annað er bull, og kunáttuleysi.  Kjarnorkuvopn eru einföld í sníðum ... það sem erfitt með þær, er að koma í veg fyrir að þær spryngi í andlitið á þér.  Ef kim jong pong ding dong, eða hvað hann nú heitir ... vill framleiða slík vopn, er hann að því til að nota þetta sem "vörn" og er því engin ógn af honum.  N-Kórea, hefur líka fulla ástæðu til að vera hræddir við bandaríkjamenn, því bandaríkjamenn notuðu lifræn vopn í stríðinu og ollu miljóna manna dauða í N.Kóreu ... glæpur kanans er botnlaus.

Vandamálið er svona, ef N-Kórea vill gera bandaríkjamönnum mein ... þá nota þeir þessi vopn sín, gegn flota kanans ...  bandaríkjamenn hafa ekkert svar, og geta ekki notað kjarnorkuvopn gegn almennum borgurum N-Kóreu ... ef þeir gera slíkt, neyðast Kínverjar til að fara gegn kananum.

EF N-Kórea gerir eitthvað, tapar kaninn ... á allan hátt.

Þið þessir glópar, ættuð að reyna að skilja að eiturvon, kjarnavopn og sýklavopn eru fyrst og fremst vopn hryðjuverkamanna.  Bandaríkin, Rússar og Kínverjar nota þetta sem ógnun gegn öllum öðrum.  Ef N-Kórea notar þetta, eru þeir í raun og veru að gera heimun "gott" ... þó svo að þetta "góða" í þessu dæmi er vafasamt ... en bandaríkin eru stærstu stuðningsmenn hryðjuverkamanna í heiminum.  Ef ekki væri fyrir tilstylli bandaríkjanna, hefði aldrei árásin í stokkhólmi átt sér stað.  Svíar ganga að öllum skilmálum hryðjuverkamanna ... beygja sig eins og mella, og láta taka sig í rassinn ... allt er Rússum að kenna, og alls ekki að hefta för hryðjuverkamanna ... né heldur, að hafa samstarf innanlands.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 12.4.2017 kl. 20:14

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Húsari

Já mikið rétt hjá þér.

Það var gott hjá Trump að láta kínverska einræðisherrann fá vitneskjuna Tomahawk-flaugarnar yfir súkkulaðikökunni, sem gerð var úr mónónatríumglútamati. Hann hefði líka átt að hella þriðja kryddinu út í kaffið hans. En sennilega er Xi ónæmur fyrir þriðja kryddinu svo honum var bara gefinn sykur sem ku vera hreint eitur þessa dagana.

Þetta gengur bara vel, verð ég að segja. Andspænis alþjóða-universal-imperíalista-kerfinu, sem imperíalistar úniversal-líberalismans halda að megi ekki blása á án þess að heimurinn farist, stendur Donald Trump, tundurspillirinn sjálfur, sem enginn veit hvað gerir næst.

Þetta er strategísk staða sem enginn annar forseti Bandaríkjanna hefur getað skapað til að nýta sér, síðan að Richard Nixon sat í Hvíta húsinu. Og eins og það sé ekki nóg, þá nýtur Donald Trump einnig gæfu sama fávitastimpils og Ronald Reagan naut næstum öll sín átta ár í sama embætti. Að hann hefði ekki vit til setu í þessu Hvíta húsi kjósenda Bandaríkjanna

Donald J. Trump gengur sem sagt vel og samkvæmt áætlun. Þetta er frumskilyrðið fyrir breytingum; að koma heiminum úr jafnvægi og negla hann síðan saman á ný eftir sínu lagi. Naglasúpa verður það heillin. Meiri súpu herra forseti?

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 12.4.2017 kl. 20:38

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir þetta Bjarne. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 12.4.2017 kl. 21:51

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Frá norðurhluta landsins og suður eftir liggur kjarnorkuvígbúnaðar prógramm Norður-Kóreu á fjórtán svæðum, dreift jafnt yfir allt landið, sem er 20 prósent stærra en Ísland, með 25 milljón íbúum:

    • Punggye-Ri

    • Yongjo-Ri

    • Musudan-Ri

    • Hagap

    • Kumnho-Chigu

    • Cheonama-San

    • Taechon

    • Yongbyon

    • Kumpung-Ri

    • Pakchon

    • Tongchang-Ri

    • Sunchon

    • Pyongsong

    • Pyongsan

    Þessa staði þarf að taka út samtímis, alla, ef kála á prógramminu öllu, til að fyfirbyggja að það geti risið upp úr öskunni á ný.

    Gunnar Rögnvaldsson, 12.4.2017 kl. 22:18

    11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

    Xi forseti Kína talaði við Trump í síma í dag. Varnarmálaráðuneyti hans afneitar algerlega fréttum um útkall alþýðu-hersins til Yalu.

    Það að foresti Kína skuli hafa snúið sér svo hratt til forseta Bandaríkjnna á ný, getur gefið til kynna að hann óttist yfirvofandi árás Bandaríkjanna. Sérstaklega eftir að Trump tilkynnti um að ekki bara CVN70 USS Carl Vinson Strike Group sé á leiðinni, heldur einnig heil armaða af öllu.

    Í dag setti æðsta-ráð gerviþings Norður-Kóreu á ný sendifulltrúaþjónustunefnd landsins til starfa (diplomatic commission). Hún var stofnuð 1989 en lögð niður 1998. Þessi nefnd átti að vera ábyrg fyrir utanríkissamskiptum landsins við umheiminn. Hér gæti mögulega verið um mannaskipti að ræða á þeim sem ábyrgur er fyrir utanríkistengslum Norður-Kóreu. Þeir munu þurfa á því að halda ef þeir ætla að halda sér ofansjávar eitthvað áfram.

    Ekki slæmur dagur

    Gunnar Rögnvaldsson, 12.4.2017 kl. 23:02

    12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

    Lykilorð síðustu 7 daga var líklega: "ég mun gera þetta einn, ef með þarf". Það tilkynnti Trump kínverska forsetanum og öðrum. Að Bandaríkin einsömul myndu sjá um Norður-Kóreu, ef með þyrfti.

    Það er þegar byrjað.

    Gunnar Rögnvaldsson, 12.4.2017 kl. 23:25

    13 identicon

    Sæll Gunnar.

    Sá óvinurinn sem aldrei er þess
    virði að vera nefndur á nafn
    gæti jafnframt verið sá sem helst
    ætti von á að vera boðið í kaffi og kökur!

    Húsari. (IP-tala skráð) 13.4.2017 kl. 02:24

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Höfundur

    Gunnar Rögnvaldsson
    Gunnar Rögnvaldsson

    Búseta: Ísland.
    Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
    tilveraniesb hjá mac.com

    Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

    Bloggvinir

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband