Þriðjudagur, 7. ágúst 2018
Pólland spyr hvort að þetta sé rétt
Utanríkisráðherra Póllands hefur spurt þeirrar spurningar hvort að Evrópusambandið ætli virkilega að koma í veg fyrir útgöngusamkomulag við Stóra-Bretland vegna Írlands. Afstaða Póllands til þessa máls mótast af sögulegri vináttu við Bretland og hins gamla bandalags ríkjanna gegn Þýskalandi í Síðari heimsstyrjöldinni, þar sem tapararnir drápu 75 prósent af þeim tæplega 70 milljón manns sem létu lífið og 80 prósent þeirra voru óbreyttir borgarar. Þar reyndist Þýskaland Evrópu ver en Svarti dauði, því það knúði fram meira mannfalli en hann. Segja má að Þýskaland sé að því leytinu versta plága sem herjað hefur á mannkynið. En svo tóku Sovétríkin og Kína við drápskeflinu, en þó að mestu innvortis, með drápum á sínu eigin fólki. Gordon A. Craig hefur útskýrt þetta dapurlega fyrirbæri mannkynssögunnar með því að sameining og myndun Þýskalands 1871 hafi verið afskræming, eða afmyndun. Ef til vill eins og myndun Evrópusambandsins er að virka fyrir álfuna og efnahagsmál heimsins í dag? Það gæti vel hugsast
Andúðarafstaða Þýskalands til Póllands mótast af ágirndarvináttu við Rússland, því þar er Pólland fleygur á milli og strategískur vinur Bandaríkjanna. Afstaða Þýskalands til Írlands mótast af vináttu Írlands við Þýskaland í Síðari heimsstyrjöldinni, gegn Bretum, þar sem Írar veittu þýskum kafbátum skjól. De Valera þriðji forseti Írlands ritaði þannig forsetanafn sitt og samúðarkveðjur til Þýskalands vegna dauða Adolfs Hitlers kanslara í kveðjubók þýska sendiráðsins í Dyflinni í apríl 1945
Bretland og Pólland hafa nú gert með sér nýtt samkomulag á sviði varnarmála. Evrópa virðist enn geta treyst því að leiðtogar Þýskalands taki flestar rangar ákvarðanir fyrir álfuna sem það hefur ekkert umboð frá, og sem þegar bitna illþyrmilega á henni, sérstaklega í suðri, þar sem Grikkland er nú til sýnis sem versta efnahagslega örkumlað land í hagsögu síðustu nokkur hundruð ára. Fjórðungur gríska hagkerfisins er horfinn í þýskt hannaðri evruárás á landið
Kínverska lögreglan var send inn í fjármálahverfi Pekings til að bæla niður óeirðir vegna gjaldþrota lánafyrirtækja þar sem fjöldi fjölskyldna tapar aleigunni. Skothríð var einnig í þarsíðustu viku nálægt aðalstöðvum kínverska kommúnistaforsetans. Kínverska myntin heldur áfram að falla þrátt fyrir aðgerðir seðlabankans. Sumarráðsefna kommúnistafokksins í Beidaihe mun ekki verða fagnaðarfundur, því kínverski forsetinn er ekki lengur fastur í sessi og elíta hans óttast um hag sinn í landinu sem hún rændi frá þjóðinni
Seðlabankastjóri Írans hefur nú verið fangelsaður og ásakaður um gengis- og gjaldmiðlafúsk. Gengi ríal fellur mikið og verðbólga sækir á
Fyrrverandi Sovétaðdáandi íslenskra vinstrimanna, en nú málaður grænn, ritar andúðargrein á þjóðríki Gyðinga í Ísrael í Morgunblaðinu í dag
Fyrri færsla
Af hverju er sífellt verið að tala um loftárásir Bandamanna?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 5. ágúst 2018
Af hverju er sífellt verið að tala um loftárásir Bandamanna?
Af hverju eru fjölmiðlar endalaust að tala um einmitt þessar loftárásir sem Bandamenn stóðu fyrir og svo það sem gerðist í Hirosima og Nagasaki? Það er eins og að menn séu að reyna að snúa sögunni á hvolf og búa til eins konar fjarvistarsönnun fyrir þá sem stóðu fyrir þessum ósköpum. Þetta fólk -tapararnir- stóð fyrir 75 prósent af því mannfalli sem varð í Síðari heimsstyrjöldinni, þar sem það var á við samanlagt mannfall í styrjaldarsögu síðustu 300 ára þar á undan
Tapararnir: Þjóðverjar, Japanir og öxulveldin drápu sem sagt 75 prósent af þeim tæplega 70 milljón manns sem létu lífið í Síðari heimsstyrjöldinni. Tuttugu og sjö þúsund manns misstu lífið að meðaltali á dag. Af hverju er verið að vorkenna þessu fólki svona hina síðustu marga áratugi? Er verið að reyna að snúa sögunni á hvolf? Er verið að reyna að koma vonda-stimplinum yfir á Bandamenn, sigurvegarana? Frelsarana sjálfa!
Og ekki nóg með það, þá voru 80 prósent þeirra sem féllu í heimsstyrjöldinni sem þetta fólk stóð fyrir, óbreyttir borgarar. Japanir drápu sjö sinnum fleira fólk en þeir misstu, sem er ótrúlegt hlutfall þegar um tapara er að ræða. Og nú eru menn byrjaðir að impra á þýskum kjarnorkuvopnum í Þýskalandi. Og Þýskaland er þegar orðið það land í Evrópu þar sem andúð eða jafnvel hatur á Bandaríkjunum mælist hve mest. Hvað er að?
Það sem Þýskaland stóð fyrir í Evrópu var verra en Svarti dauði fyrir álfuna. Mannfallið var meira. Og þökk sé Evrópusambandinu, hefur Þýskaland nú sest ofan á meginland álfunnar og er byrjað að kúga það, einu sinni enn. Svo virðist sem fólk hafi almennt misst áttavitann sinn. Hvorki Hitler né Stalín stóðu í sláturiðnaði á þjóðunum einhentir. Almennir Þjóðverjar vissu nákvæmlega hvað var að gerast í Evrópu undir stjórn Hitlers, en aðhöfðust ekkert. Alveg eins og þeir aðhafast ekkert núna, þegar Þýskaland er að ganga frá Suður-Evrópu, efnahagslega séð, og hafa nú þegar kálað Grikklandi. Sameining Þýskalands er greinilega misheppnuð í þessu tilliti og Gyðingahatur víða í Evrópu er á hraðri uppleið á ný
Hvað með að segja sögu þeirra sem stöðvuðu þetta helvíti. Og hvað með að segja söguna eins og hún er. Það er gott að fá hér persónulega sögu af málinu og henni fagna ég, en stóra myndin verður samt ávallt að vera heiðskýr og klár. Það virðist hún því miður ekki vera lengur, hjá mörgum þeim sem fjalla um söguna í dag, því svo margir eru hættir að þola sannleikann og segja hann því ekki eins og hann er. Aðvörunarljósin blikka því á ný. Fælnimáttur sannleikans dvínar hratt, því honum þarf að viðhalda og efla, en það er ekki gert. Evrópa er því byrjuð að springa í loft upp á ný
Fyrri færsla
Google breytist úr vondu í verst. En hvað með xD og VG ?
![]() |
Martröð í mörg ár á eftir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
Föstudagur, 3. ágúst 2018
Google breytist úr vondu í verst. En hvað með xD og VG ?
Mynd U.S. EIA: Hráolíuútflutningur Bandaríkjanna í maí 2018 var rúmar tvær milljón tunnur á dag, samkvæmt tölum EIA
****
Þeir furðufuglar sem stýra dílastafrænum iðnaðarfyrirtækjum á borð við Google og Facebook virðast ekki hafa alist upp sem menn, heldur sem fáráðlingar
Stofnsáttmáli Google samsteypunnar átti að heita þessi: "ekki verða illt fyrirtæki" (e. Dont be Evil). Sú afsökun var notuð þegar fyrirtækið neitaði að aðstoða bandaríska varnarmálaráðuneytið í sambandi við þróun á flygildum til landvarna. En nú er Google hins vegar orðið svo aðframkomið af útópískri góðmennsku að það ætlar að aðstoða kínverska kommúnistaflokkinn við ritskoðun í Kína. Google er að þróa leitarvél fyrir Kínamarkað sem uppfyllir kúgunarritstjórn kommaliðsins yfir 1500 milljón manns
Þetta er ef til vill í boðskaps-anda greinar flokksfélaga míns í Sjálfstæðisflokknum, Vilhjálms Bjarnasonar þingmanns flokksins, sem leggur fram hrunda spilaborg glóballaristanna í flokknum í grein sinni í Morgunblaðinu í dag
Það eina sem glóbalistunum virðist heilagt, er "frjálst" þrælahald á milli landa, útblæðing millistéttar með því að flytja afkomugrunn og vogarstangarafl hennar í kjaramálum burt úr þjóðríkinu, og síðan frjálst flæði peninga glóballaristanna á milli landa, sem svo í framhaldinu skattpína þegna sína inn í dauða millistéttarinnar, sem aldrei fyrr, svo að starfshópurinn sem embættismannaveldið tilheyrir geti haldið áfram að ríða á bökum fórnarlambanna, sem er þjóðin
Mynd: Frá innsetningarathöfn Donalds J. Trump í forsetaembættið. Þegar forsetinn og Steve Bannon voru að undirbúa athöfnina nóttina áður, þá langaði þeim mest að Trump myndi snúa öfugt svo hann gæti þrumað ræðu sína yfir valda- og glóbalista-elítum Bandaríkjanna, sem sitja að baki hans, er hann ávarpaði þjóðina. En það var ekki gert. Forsetinn snéri fram. Að vera elítuisti og blankur, eða hins vegar vinur litla mannsins og fossríkur, er hvorki mótsagnakennt né nýtt í sögunni. Slík viðhorf eru oftar en ekki óháð efnahag
****
Frjáls viðskipti eru ekki til og þau hafa aldrei verið frjáls, því annars myndu þingmenn á borð við þennan fást í innfluttum kippum frá láglaunalöndum á einum fimmtugasta af launum þeirra sjálfra í dag, og ritstjórar fjölmiðla og DDRÚV myndu þá einnig flytjast inn á sömu kjörum, eða á borð við kjör þeirra innfluttu þræla sem þjóna ferðamönnum á Íslandi í dag, og sem byggja hér hús yfir þingmenn og halda verðbólgunni niðri, því án innfluttra þræla væri hún hærri, þ.e.a.s eðlileg, miðað við hita hagkerfisins
Þú ert kominn fram yfir síðasta söludag með þennan málflutning, kæri þingmaður Sjálfstæðisflokksins, því þið glóballaristarnir sprengduð eftirstríðs-heiminn í loft upp á árunum 1991-2008. Ykkur var ekki treystandi. Þið vissuð ekki hvað þið voruð að gera. Og nú er Donald J. Trump að slá á putta ykkar, því þeir urðu einfaldlega of langir og heimskir af sérfræði. Ykkur er illa við hann, því hann er í kjarabaráttu fyrir hönd þjóðarinnar. Viðskiptastríð eru kjarabarátta. Þar er enginn munur á
Og bara svona til að segja það, þá er 180 prósent skráningargjald ofan á FOB-verð á innfluttar bifreiðar, eins og er í Danmörku, ekki frjáls viðskipti þó svo að tollar á þeim séu lágir. Þetta virðist vera sú braut sem ríkisstjórn ykkar er að steypa hér um þessar mundir: gjöld gjöld gjöld og meiri gjöld. Ég þakka því Donald J. Trump fyrir að bregðast við, því aðeins Bandaríkin geta bjargað alþjóðaviðskiptum og sambúð þjóða áður en þau leggja Vesturlönd að velli
Gunnar er Íhaldsmaður í Sjálfstæðisflokkunum
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 2. ágúst 2018
Kjarnorkuvopnað Þýskaland?
Christian Hacke er þýskur pólitískur spekingur með langan og mikinn feril í þjóðaröryggismálum Þýskalands og utanríkisstefnu. En samt heldur hann að Evrópa sé nafli heimsins og segir að Bandaríkin séu "einangrunarsinnuð" - á sama tíma og ekkert þróað ríki heimsins er eins einangrunarsinnað og Þýskaland. Og þar sem Hacke lifir í miðjum nafla heimsins, sem er þýskt-barnlaus með stálhring en engum streng, þá veit hann ekki að Bandaríkinu voru heldur betur að skipta sér að málunum 1920+ og 1930+ í bæði Asíu og á Kyrrahafi, þar sem þau studdu Kínverja gegn Japan með því að senda til dæmis skip og flugvélar, settu Japan í flotakví eftir innrás þess í Indókína og reyndu að hindra japönsku útþensluna. Bandaríkin neituðu hins vegar að láta draga sig inn í hinn þýska einangraða nafla-heim Hacke, því Evrópa er ekki heimurinn og landamæradeilur hennar urðu ekki að heimsstyrjöld fyrr en 1941
Ekkert ríki Evrópu hatar Bandaríkin eins mikið og Þýskaland gerir í dag. Þess vegna kennir það Bandaríkjunum um, en er samt á framfærslu þeirra. Bandaríki Norður-Ameríku hafa aldrei verið einangrunarsinnuð og þau eru það heldur ekki í dag, því annars væri Þýskaland komið í vasa Rússlands því Bandaríkin verja það í austri í Póllandi og Rúmeníu, halda siglingaleiðum þess um heimshöfin opnum, eru kýlandi niður Norður-Kóreu án þess að til stríðs komi, og verndandi Japan og Suður-Kóreu, og við skulum ekki tala um allt annað sem Bandaríkin bera á sínum herðum, einsömul, með Þýskaland hangandi sem óábyrgan og hættulegan skemmdarvarg um háls sér í NATO. Án Bandaríkjanna væri Þýskaland bæði bensínlaust og útflutningsstopp í dag. Á sama tíma getur Þýskaland ekkert og gerir ekkert, annað en að ryksuga og rukka heiminn um eftirspurn
Það sem er merkilegt við hinn þýska naflabúa Christian Hacke, er það að í nýrri grein í Cicero kemur hann með nýjar þjóðaröryggishugmyndir handa Þýskalandi og segir að tími sé kominn til að byrja að tala um þýsk kjarnorkuvopn handa Þýskalandi
Sjálfsmorðsveitir þýskra stjórnmálamanna fyrir opnum tjöldum liggja ekki á lausu og hafa aldrei gert, því þeir starfa á bak við tjöldin. Erfitt er að gera sér í hugarlund göngu þeirra upp að hinu pólitíska sjálfsmorðsaltari í þýska þinginu til að fyrirfara sér þar með opinberum tölum og tillögum um þýsk kjarnorkuvopn. Þeir munu því kjósa að fara með hugmyndir Hacke inn í hin hefðbundnu reykfylltu bakherbergi esb-hælisins, þar sem Grikklandi var banað á laun. Þýskaland mun svo nota komandi kjarnorkuvopn Evrópusambandsins á sama hátt og það notaði sambandið til að kála Grikklandi. Eitt og sér, hefði Þýskaland aldrei þorað að ganga þannig til verks gagnvart Grikklandi, og Suður-Evrópu, því það hefði einfaldlega ekki komst upp með það. Evrópusambandið er fjarvistarsönnum Þýskalands. Hana mun það nota að vild, til að ganga í skrokk á allri Evrópu, einu sinni enn. Enda er það einmitt það sem er að gerast
Svona er að hafa umboðslausan og ábyrgðarlausan staðgengil sér til einkaafnota og uppihalds, með hinu eina sanna falska vörumerki ESB, sem ræður för í öllu er varðar fjarvistarfölsun alls í Evrópu. Sambandið er og verður alltaf einungis elítu-persónuvernd embættis- og stjórnmálamanna gegn kjósendum. Næsti bær við mafíu
Fyrri færsla
Persónuvernd þingmanna gegn kjósendum
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 31. júlí 2018
Persónuvernd þingmanna gegn kjósendum
Rúðubrot ríkisstjórnar og þingmanna í formi persónuverndarlaga hins tröllslega bákns Evrópusovétríkis ESB, er að kosta almenning í landinu milljarða króna með gorkúluvæðingu sem banar bæði hagvexti og verðmætasköpun í landinu. Í nýjasta hefti Sveitastjórnarmála kemur fram hvernig illgjarnt, skemmandi og velmegunartortímandi lagabákn þingsins er að lenda á herðum skattgreiðenda. Evrópusambandið er sérhönnuð sláturstofnun velmegunar og nýþýskar útrýmingarbúðir fyrir lýðræði og þjóðfrelsi. Þeir þingmenn og ráðherrar sem samþykkt hafa hér steypuverk ESB, hafa gert sig minna verðuga þess að sitja á þingi sem fulltrúar kjósenda. Þeir hafa ekki unnið fyrir launum sínum og gætt hagsmuna þjóðarinnar. Hvað veldur þessum aumingjaskap? Íslenska þjóðin getur ekki lifað á rúðubrotum hins opinbera eins og þið gerið í þessu máli sem og of mörgum öðrum. Þannig atvinnusköpun leiðir fyrr en síðar til þjóðargjaldþrots, því hún er hrein og skær skemmdarverkastarfsemi
Persónuvernd þingmanna Sjálfstæðisflokksins er að verða Vinstri grænir eins og sést kannski best á því að heimasíða Birgis Ármannssonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins (www.birgir.is), eins og Alþingi gefur hana upp (í að mestu pathetísku safni af félagsmiðlaruslatunnum yfir ekki-heimasíður þingmanna), leiðir mann að sjálfsögðu inn á heimasíðu Vinstri grænna, þar sem hann ásamt dómsmálaráðherranum sem stóð fyrir ruglinu, og sem virðist líta á sig sem embættismann, eru greinilega að verða persónuverndaðar skrifstofupersónur í Marx-Lenín-grænu búri VG. Nema náttúrlega að vefur Alþingis sé kominn í persónuverndaða hakkavél
Bandarískir fjölmiðlar, og sumar heimasíður, eru þegar byrjaðir á því að hafna algerlega evrópskum IP-tölum og loka þar með á ESB- og EES löndin sem samþykkt hafa þetta steypuverk ESB, eins og kemur fram í tilkynningu þeirra á skjánum á http-porti. Þessu hef ég lent þrisvar í á aðeins nokkrum dögum. Þetta á greinilega sérstaklega við um minni fjölmiðla, sem eru ekki með ranann á ljóshraða ofan í vösum skattgreiðenda eins og DDRÚV-skrímslasafnið hér heima og í sovétríkjum ESB. Þessi kommasteypa mun ekki storkna slödduð á næstu kjörseðlunum xD, sem virðist stunda sjálfstortímingar og sovéska heimspeki, á meðan landið er selt undan þjóðinni
Fyrri færsla
Fyrirtækin munu segja upp fólki
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 30. júlí 2018
Fyrirtækin munu segja upp fólki
Mynd WSJ: Framleiðni eftir kyni, hjúskaparstöðu og aldri. Eru það ábyrgðarfullir miðaldra feður sem halda hagvexti uppi? (WSJ). Sennilega, því þeir eiga börn. Og svo er líka erfitt er að verða góður yfirmaður, nema að hafa átt börn. Það segja stjórnunarfræðin. Að eignast börn er lykillinn að farsælla lífi - fyrir alla
****
Þegar launakostnaður fyrirtækja verður of hár, er lítið annað að gera en að reyna að lækka hann. Það er hægt með því að segja upp fólki og reyna að efla framleiðni þeirra sem eftir eru, eða sem koma inn næst. Segist fyrirtækjum svo hugur að þvinga eigi upp á þau enn hærri launakostnað en þegar er orðinn, þá mun fjöldi uppsagna afvopna verkalýðshreyfinguna að hluta til. Það er gefið og vitað
Í því ofsagóðæri sem verið hefur undanfarin ár er líklegt að framleiðni sé ekki upp á marga fiska. Þeir sem vilja fara ofsaleiðina í kjölfar ofsagóðæris, hljóta að mæta fullu húsi af eiginfé fyrirtækjanna sem nota má til að koma framleiðni upp á ný og til að bæta framleiðslu á vörum og þjónustu. En þar sem ríki og bær njóta sérstöðu með því að fá að gera almannafé gratís upptækt, þá er ekki víst að þetta dugi til að halda hagvexti uppi. Stór opinber rekstur er vandamál sem elur af sér stöðnun og handjárnun hagvaxtar
Hagvöxtur er t.d. munurinn á heilbrigðiskerfinu 1930 og 2018, þ.e. núna. Sama byggingin, en allt önnur útkoma, því það var hagvöxtur sem skaffaði þá velmegun sem menntaði starfsfólk, þróaði græjur og lyf. Þeir sem skilja ekki hagvöxt ættu að láta leggja sig inn á sjúkrahúsið eins og það var 1930. Sama byggingin, en nú niðurslitin, vegna skorts á hagvexti, en óbreytt útkoma og enn verri vegna slits. Án velmegunar (hagvaxtar) er engin velferð fyrir stjórnmálamenn til að deila út. Allar tekjur hins opinbera koma frá fyrirtækjum landsins. Allar. Engar aðrar tekjur eru til
Fyrri færsla
Á meðan Ísland er selt: "getum ekkert að gert" volið, einu sinni enn
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 28. júlí 2018
Á meðan Ísland er selt: "getum ekkert að gert" volið, einu sinni enn
Þetta er sama "við getum ekkert að gert" volið og var viðhaft þegar bankahrunið var að búa um sig. Sakleysi, vanræksla og kæruleysi. Þegar 1 til 51 prósent af Íslandi er komið á erlendar hendur þá verður ekki eitt látið yfir alla ganga og það verður ekki gaman, því það mun ekki ganga jafnt yfir alla. Auðmenn með ágirnd á landi í vörslu pólitískra sakleysingja ganga aldrei jafnt yfir alla, eins og sagan sýnir. Og það þýðir ekkert að reyna að hvítþvo þetta með akademískum rökum né náttúru-hitt-eða-þetta sjónarmiðum né kjölfestum "fjárfestum" alþjóðlegra peningadalla, sem enginn veit hvaða farm eru með í lestunum. Við eigum nóg af peningum sjálf og höfum ekkert að gera við sama glóballar-kjölfasta flóð- og fjöru peningadraslið og síðast
Það er merkilegt að núverandi forysta Sjálfstæðisflokksins skuli svona samviskusamlega neita að standa fast með Íslandi, liggur manni við að segja, við hvert einasta tækifæri sem henni býðst til að sýna dug. Til hvers eruð þið þarna. Eruð þið kannski að verða bensínlaust jólaskraut?
Hvar ætlið þið að stöðva söluna á Íslandi. Við 1 prósent eða 90 prósent? Af hverju ekki stöðva hana strax, því allir vita að þetta verður að stöðva. Hvað er að ykkur? Ætlið þið áfram auglýsa útsölu á Íslandi um allan heim eða ekki?
Sýnið dug!
Fyrri færsla
Fjárfestar rifu fésið af Facebook Inc.
![]() |
Eitt verður yfir alla að ganga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 27. júlí 2018
Fjárfestar rifu fésið af Facebook Inc.
Líkar ekki
Þeim líkaði skyndilega ekki við Facebook, fjárfestum veraldar. Stærsta virðisútþurrkun í veraldarsögunni fór fram í Bandaríkjunum í gær, er Facebook Inc. ræddi ársfjórðungsuppgjör fyrirtækisins á opinnni símaráðstefnu með greinendum (e. earnings conference call). Í hvert skipti sem stofnandi fyrirtækisins opnar munninn -og sem virðist vera brauðfæddur kjáni- sagar hann minnst eina grein af trénu sem hann hefur hengt fyrirtækið á. Þegar fjármálastjórinn kom í símann og reyndi að skauta hratt yfir greniskraut stofnandans, þá misstu fjárfestar skyndilega trúna á félagsmiðla-viðskiptalíkan Facebook Inc, og þutu allir út um neyðarútganginn á sama tíma. Þeir þurrkuðu þar með út virði sem nam næstum öllu markaðsvirði McDonalds - á aðeins nokkrum mínútum
Facebook og öll félagsmiðlafyrirtæki heimsins hafa ekkert með tækni að gera. Það er rangt að flokka þau sem tæknifyrirtæki, því iðnaðarfyrirtæki eru ekki tæknifyrirtæki. Facebook stundar einungis stafrænan iðnað á borð við prentsmiðjur. Fyrirtækið býr til díla á skjá úr því sem því er skaffað af innihaldi frá öðrum. En munurinn á til dæmis Morgunblaðinu og Facebook er sá að hið fyrrnefnda er með ritstjórn sem stjórnar því hvað fer sem dílar á pappír í fullkominni prentsmiðju þess, og einnig sem stafrænir dílar út á skjá neytenda. Facebook er ekki náð svo langt sem útgáfufyrirtæki og gerir það aldrei, því þá þyrfti það að ráða milljónir manna við að ritstýra mörgum sinnum fleiri milljónum notenda, og slíkt er ekki mögulegt, því það kostar of mikið, og svo vegna þess að það er ekki hægt að ritstýra níutíu prósent taugaveiklun og öðrum helming glæpagengja veraldar. Engar vélar eða hugbúnaður geta ritstýrt neinu, nema þá útgáfufyrirtækjum inn í gjaldþrot
Það var þetta sem rann upp fyrir fjárfestum í fyrrakvöld. Það rann upp fyrir þeim að þeir sjálfir, sökum hjarðhegðunar, höfðu gert sjálfa sig háðari Facebook en notendur fyrirtækisins eru háðir því. Fjöldi þeirra verður rekinn úr störfum í mörgum af stærstu fjárfestinga- og eignavörslufyrirtækjum veraldar. Reknir fyrir að geta ekki hugsað á of háum launum og fyrir að vera varanlega bæklaðir af of mikilli menntun
Eftirleikurinn verður sá að nú er félagsmiðlaformið komið á þann stað sögunnar þar sem eignarétturinn slær inn. Notendur Facebook (varan sjálf), eru byrjaðir að vera þess meðvitandi, að þeir eru varan sem enginn vill borga fyrir nema kannski þeir sjálfir. Þegar félagsmiðlar þurfa að selja eitthvað annað en ókeypis notendur, þá vita allir hvar sagan endar. Hún endar sem reikningur til notenda - fyrir að láta nota sig. Og þann reikning vilja aðeins fáir notendur borga. Of fáir til að standa undir því virði sem stafræn iðnaðarfyrirtæki á borð við Facebook eru metin á í dag. Hlutfall markaðsverðs af hagnaði slíkra fyrirtækja er passlegt sem fimm- til tífalt, en ekki fertugfalt, eins og Facebook stóð í, fyrir 20 prósent hrun eitt miðvikudagskvöld. Langur en strangur verður niðurtúr félagsmiðla á markaði. Það verður hins vegar til góðs fyrir heiðskýr tæknifyrirtæki að losna við þau sem þykjustu-jafninga úr sínum geira. Og fyrir hefðbundin útgáfufyrirtæki með sóma, þá er þetta byrjunin á nýju lífi fyrir þau. Það sem gildir er að vera heiðskýrt fyrirtæki, en ekki skýjað
Fyrri færsla
Ég sagaði af mér hausinn (næstum)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 25. júlí 2018
Ég sagaði af mér hausinn (næstum)
Enginn ostur - engin pylsa
Tvær greinar í Morgunblaðinu í dag fá mann til að saga af sér hausinn. Til vinstri er grein um hrokann sem þingflokkur pírataskíthæla og þingmaður lýðskrumsfylkingar sýndu forseta Folketinget, sem er þjóðþing Dana. En til hægri á sömu síðu er grein sem vonar að við (já Íslendingar) "festum okkur ekki í sessi sem (ó)menningarleg hjálenda Bandaríkjanna"
Bob bob, jamen dét er ju bare dejligt! Það er nú það. Halla ég mér svo aftur og virði síðuna fyrir mér. Horfi fyrst til vinstri og síðan til hægri. Aftur og aftur - og saga af mér hausinn, því það er svo stutt síðan að Bandaríkin voru hjálenda/nýlenda eins og við. Þau sigruðu nýlenduherra sinn, breska heimsveldið, eins og við sjálf sigruðum loks og fengum okkar fullveldi, en sem nú er notað til að selja landið undan þjóðinni, á hundrað ára afmæli þess. Þökk sé "stórmenningu Evrópu", sem frá dögum Rómarríkis, ávallt hefur leitast við að setja Evrópumennið í stað Guðs. Síðast í gamla sovétinu en í dag í nýju ESB. Ekkert nema hörmungar hefur stærstur hluti ómenningar Evrópu fært okkur. Álfan þar sem vér einir vitum-pakkið býr, með alla sína að-mestu misheppnuðu heimspeki og sem síðast dritaði yfir álfuna svo kallaðri "upplýsingu" með klikkaðan Kant í fararbroddi hins nýja úníversal allsherjarsovéts, sem koma skyldi
En samt átti breska heimsveldið heilar aldir eftir af góðu þurru púðri, þó svo að Bandaríkin sigruðu það. Þetta er náttúrlega allt svo alveg hroðalega ó-menningarlegt að það jaðrar við hamborgara, pitsur og gult hár. Svo skrifuðu þeir stjórnarskrá sem studdist pólitískt hugmyndafræðilega að mestu við Gamla Testamentið, en bara þrjú prósent við kommann John Locke, og komust þar með glans hjá því að enda sem algerlega misheppnað Frakkland. Hún stendur enn sú stjórnarskrá Bandaríkjanna, því henni er nákvæmlega sama um gult og bleikt hár og úníversal réttindi andskotans
Svo ég hugsa; hvort var nú verra á einni og sömu síðunni, fyrirlitningin sem lýst er til vinstri, eða sá (tja hvað á maður að segja) rassismi? sem þulinn er til hægri. Njörður: af hverju hernemur þú ekki heiminn og gerist alheimssetulið eins og Sovétríkin ætluðu að verða. Það hlýtur að ganga upp, ef reynt er aftur, eina ferðina enn. Hold da kæft mand, vi prøver sgu igen (við prófum nýtt Sovét Aps fyrst að gamla Sovét A/S fór á hausinn (það þarf minna startkapítal í Aps))
Íslenskir vinstrimenn snobbuðu takmarkalaust fyrir kommamenningarkláminu úr austri. En það sem verra var, margir áttavilltir hægrimenn gerðu það líka - og sögðu skál - og gera enn
Jæja, nú er að verða komin milljón prósent verðbólga í Venesúela. Hún mun ná því stigi á þessu ári, segir Reuters. Skrifast 1.000.000%. Skálið þið vinstrimenn, skálið.. og I prøver sgu igen.. og igen..
Fyrri færsla
Frosti: Ráðaleysið algert meðan landið er selt undan þjóðinni
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 23. júlí 2018
Frosti: Ráðaleysið algert meðan landið er selt undan þjóðinni
Segir Frosti Sigurjónsson hér
Áfram Frosti!
Í sumarhefti Þjóðmála 2012 ritaði ég greinina; "Byggðastefna undir sjálfstæðisyfirlýsingu - Vegurinn opnaður vegna jarðarfarar?" Þar sagði ég að sú byggðastefna, eða sá skortur á henni, sem viðhöfð er á Íslandi hafi þýtt og muni þýða eftirfarandi:
Tilvitnun hefst:
Af svona byggðastefnu leiðir:
- Verðbólga verður meiri. Það þekkja þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu því þeir hafa knúið verðbólguna áfram með eins konar hurðaskellum.
- Bólumyndun í hagkerfinu verður eðlilega meiri.
- Nýsköpun verður minni því of margir hugsa eins við svipaðar aðstæður.
- Samkeppni minnkar því svæða- og héraðsöfl landsins eru orðin geld.
- Fjölbreytni minnkar því svo fáir vita um alla möguleikana annars staðar. Þeir eru í hjörð sem bítur gras á sama bala á sama stað.
- Fákeppni innanlands og eignaupptaka fyrir utan ferkílómetrana fáu verður ráðandi.
- Samfélagið verður vanskapað, visnar og gæti veslast upp.
- Landið verður tekið af okkur og aðrir munu nema það
Fólkið verður að sjá tækifæri í byggðastefnu. Það verður að gera það á sama hátt og það sá tækifærin í Reykjavík og fluttist þangað þeirra vegna. Þegar byggðastefna er nefnd á nafn í dag sér fólkið fyrir sér kjördæmapot þingmanna en ekki tækifæri. Og þegar "byggðastefna" er nefnd á nafn utan höfuðborgarsvæðisins sér landsbyggðin einungis fyrir sér brostnar vonir, svikin loforð og hræsni.
Byggðastefna til góðs eða ills
Það er hægt að nota byggðastefnu sem valdaverkfæri til að ná fram ákveðinni þróun og árangri en oftast til að ná fram öðru af tveimur markmiðum:
a) Byggðastefna er notuð til að mynda, styrkja og halda þjóðríki borgaranna saman. Þá er hún notuð sem verkfæri í þágu þjóðríkis borgaranna og til að styrkja það. Byggðastefna er þá lím (ethos) fyrir land þjóðríkis fólks (demos) sem á sér sameiginleg markmið (telos), þ.e.a.s. þann sameiginlega tilgang og markmið sem myndar þjóðríki þeirra.
b) Byggðastefna (í ESB) er notuð til þess að slökkva og til að sundra og þurrka upp þann jarðveg sem þjóðríki borgaranna getur þrifist í. Undir þannig skipulagi og lagaramma er byggðastefna notuð sem eins konar slökkvitæki og verkfæri niðurrifs. Hún kemur inn í samfélag þjóðríkisins sem tundurspillir. Þannig stefna getur einnig komið innan frá úr þjóðríkinu með aðstoð og fyrir tilstilli utan að komandi afla eins og við erum að upplifa í dag sem Evrópusambandsmartröð ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. Tilgangurinn er að sundra, spilla, etja fólki saman og upp á móti samfélagi sínu og koma þjóðríkinu fyrir á biðlistanum eftir engu nema þeim hægfara dauða sem ég kynntist svo vel í dreifbýli meginlands Evrópu.
Tilvitnun endar.
Eftirmáli
Varðandi verðbólguna núna; þá er hún einungis lág vegna innfluttra vinnuþræla í ferðaþjónustu, byggingum og öðru. Íslendingar eru byrjaðir að ESB-geldast og ESB-vanskapast, þökk sé EES-aftökustól ESB. Og verið er að selja landið undan þjóðinni! - þökk sé EES-tengingunni, sem orðin er að martröð. Þetta er að gerast á vakt Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sem er minn flokkur. Á ég kannski að þurfa að kjósa Miðflokkinn næst?
Fyrri færsla
Viðskiptastríð ljósmæðra - og Bandaríkjanna
![]() |
Aðeins einstaklingar geti keypt jarðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 17
- Sl. sólarhring: 88
- Sl. viku: 742
- Frá upphafi: 1404491
Annað
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 481
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008