Leita í fréttum mbl.is

Pólland spyr hvort að þetta sé rétt

Utanríkisráðherra Póllands hefur spurt þeirrar spurningar hvort að Evrópusambandið ætli virkilega að koma í veg fyrir útgöngusamkomulag við Stóra-Bretland vegna Írlands. Afstaða Póllands til þessa máls mótast af sögulegri vináttu við Bretland og hins gamla bandalags ríkjanna gegn Þýskalandi í Síðari heimsstyrjöldinni, þar sem tapararnir drápu 75 prósent af þeim tæplega 70 milljón manns sem létu lífið og 80 prósent þeirra voru óbreyttir borgarar. Þar reyndist Þýskaland Evrópu ver en Svarti dauði, því það knúði fram meira mannfalli en hann. Segja má að Þýskaland sé að því leytinu versta plága sem herjað hefur á mannkynið. En svo tóku Sovétríkin og Kína við drápskeflinu, en þó að mestu innvortis, með drápum á sínu eigin fólki. Gordon A. Craig hefur útskýrt þetta dapurlega fyrirbæri mannkynssögunnar með því að sameining og myndun Þýskalands 1871 hafi verið afskræming, eða afmyndun. Ef til vill eins og myndun Evrópusambandsins er að virka fyrir álfuna og efnahagsmál heimsins í dag? Það gæti vel hugsast

Andúðarafstaða Þýskalands til Póllands mótast af ágirndarvináttu við Rússland, því þar er Pólland fleygur á milli og strategískur vinur Bandaríkjanna. Afstaða Þýskalands til Írlands mótast af vináttu Írlands við Þýskaland í Síðari heimsstyrjöldinni, gegn Bretum, þar sem Írar veittu þýskum kafbátum skjól. De Valera þriðji forseti Írlands ritaði þannig forsetanafn sitt og samúðarkveðjur til Þýskalands vegna dauða Adolfs Hitlers kanslara í kveðjubók þýska sendiráðsins í Dyflinni í apríl 1945

Bretland og Pólland hafa nú gert með sér nýtt samkomulag á sviði varnarmála. Evrópa virðist enn geta treyst því að leiðtogar Þýskalands taki flestar rangar ákvarðanir fyrir álfuna sem það hefur ekkert umboð frá, og sem þegar bitna illþyrmilega á henni, sérstaklega í suðri, þar sem Grikkland er nú til sýnis sem versta efnahagslega örkumlað land í hagsögu síðustu nokkur hundruð ára. Fjórðungur gríska hagkerfisins er horfinn í þýskt hannaðri evruárás á landið

Kínverska lögreglan var send inn í fjármálahverfi Pekings til að bæla niður óeirðir vegna gjaldþrota lánafyrirtækja þar sem fjöldi fjölskyldna tapar aleigunni. Skothríð var einnig í þarsíðustu viku nálægt aðalstöðvum kínverska kommúnistaforsetans. Kínverska myntin heldur áfram að falla þrátt fyrir aðgerðir seðlabankans. Sumarráðsefna kommúnistafokksins í Beidaihe mun ekki verða fagnaðarfundur, því kínverski forsetinn er ekki lengur fastur í sessi og elíta hans óttast um hag sinn í landinu sem hún rændi frá þjóðinni

Seðlabankastjóri Írans hefur nú verið fangelsaður og ásakaður um gengis- og gjaldmiðlafúsk. Gengi ríal fellur mikið og verðbólga sækir á

Fyrrverandi Sovétaðdáandi íslenskra vinstrimanna, en nú málaður grænn, ritar andúðargrein á þjóðríki Gyðinga í Ísrael í Morgunblaðinu í dag

Fyrri færsla

Af hverju er sífellt verið að tala um loftárásir Bandamanna?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er margt sem þú dregur fram Gunnar sem margir vilja ekki muna.

Því miður er allt satt þó að það henti ekki okkar góða fólki.

Halldór Jónsson, 7.8.2018 kl. 20:24

2 Smámynd: Borgþór Jónsson

Hefurðu nokkuð hugleitt hver heldur á drápskeflinu í dag félagi?

Það skildu þó ekki vera að Bandaríkjamenn og Bretar sem hanga á sitt hvorum endanum á því og fara eldi um heiminn.

Það er best að leita þar sem flest eru líkin.

Borgþór Jónsson, 7.8.2018 kl. 21:56

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það gleður mig Halldór hve illa evrópu-safninu er við Donald J. Trump. Það eru mikil meðmæli með bandaríska forsetanum. Og því meira sem glóballardeild Sjálfstæðisflokksins er illa við Trump, því betri verður flokkurinn er undan þeim fjarar sem halda að tímarnir núna snúist um GDP (VLF).

Kommarnir eru líka að kallast heim, eins og sést og heyrist á bænaturni þeirra í Mogganum í dag, sem kallar þar til hins gamla guðlausa bænahalds þeirrar guðlausu kirkju. Þeir þola ekki hornsteininn "þinn Guð er minn Guð og þitt fólk er mitt fólk" og heldur ekki þann forna ísraelska stein sem boðar að "þú skalt aðeins hafa kóng fyrir þitt eigið fólk, en ekki annað fólk" punktur og amen plús landamæri.

Góðar kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 7.8.2018 kl. 22:00

4 Smámynd: Borgþór Jónsson

Ég er ekki frá því að Trump hafi verið einlægur í málflutningi sínum í kosningabaráttunni. Hann gerði sér augljóslega grein fyrir að Bandaríska samféladið er sundurrotið af spillingu og að í nánast hverju einasta embætti á vegum ríkisins situr mútuþegi og oft á tíðum glæpamaður.

Þetta var það sem hann kallaði "The swamp"

Það er líka augljóst að hann dáist mjög af Vladimir Putin og sér sjálfan sig í draumum sínum gera sömu hluti og hann,en eins og við vitum tók Putin við samfélagi sem var í svipuðu ástandi og Bandaríkin nú ,og snéri því til betri vegar.

Það sem á hinn bóginn skilur að ,er að Trump er síhræddur vesalingur sem getur aldrei haldið beinni línu. Trump mun ekki breyta neinu til hins betra. Hann vissi til dæmis vel að Bandaríska hernaðarmaskínan er gjörspillt og hrifsar til sínn helminginn af skattpeningum Bandaríkjamanna í skifturm fyrir einskis nýta draumóra sem þeir kalla vopn.

Í  stað þess að ráðast á þessa óseðjandi hít glæpamanna kiknaði hann og rétti þeim á silfurfati auka 70 Milljarða dollara til að leika sér með. Vesaldómurinn kom í ljós ,nánast fyrsta daginn.

Vesaldómurinn kom líka í ljós þegar hann þorði ekki að hitta átrúnaðargoð sitt,Putin í meira en ár,af því að krimmarnir bönnuðu honum það. Þegar hann loksins fékk leyfi til að hitta hann og tala við hann,þorði hann ekki annað en að draga samstundis til baka það sem hann hafði sagt við Putin,þþegar hann kom heim. Í sjálfu sér var margt satt sem hann hafði sagt ,en hann hafði ekki manndóm til að standa við það. Það var engu líkara að hann hefði gleymt að yfirmenn hans heyrðu til hans,þó hann væri í Evrópu.Það leið ekki nema einn sólarhringur áður en hann sat skjálfsndi fyrir framan fréttamann og játaði sindir sínar.

Trúlega hefur hann fundið til öryggis meðan hann var í fylgd með fullorðnum ,en þegar hann var ekki lengur í skjóli og vindarnir fóru að blása um hann, kiknaði hann aftur og varð eins og lítið barn. Það má kannski segja að honum sé nokkur vorkun ,af því að hann er fangi forhertustu glæpaklíku sem heimurinn hefur nokkurntíma séð. Glæpaklíku sem hefur farið eldi um allann heiminn í áratugi,með hótunum ,drápum og kúgun af öllu tagi.

.

Nú hefur Trump snúið af þeirri braut að uppræta "The swamp" og hefur brugðið á það ráð að reyna að draga fé allstaðar frá úr veröldinni til að fóðra þessa ófreskju. Bandaríkin sjálf eru þegar á hnjánum eftir áratuga rányrkju þessa glæpalýðs.

"Fenið" er ágætlega sátt við þetta ,en heldur rýtingnum stöðugt að síðunni á honum. 

Jafnvel þó að Trump í vesaldómi sínum geti engu breytt í þessum efnum,(ef það hefur þá einhverntíma verið ásetningur hans),hefur þetta brambolt hans þó orðið til þess að augu fjölda fólks hafa opnast fyrir þessu vandamáli,sem sáu það ekki fyrr. Sumir eru þó enn blindir. Kannski kemur í kjölfarið einhver sem ræður við verkefnið. Hver veit.

Það sem er hættulegt við Trump er hinsvegar að hann er haldinn þeirri ranghugmynd að hann sé í forsvari fyrir miklu valdameira ríki en hann er.                                                 Dagar heimsyfirráða Bandaríkjanna eru liðnir og við hefur tekið dreifðara valdakerfi.

Mest af óróanum sem við sjáum í heiminum í dag ,er að sum ríki eru að losna úr hreðjataki Bandaríkjanna og eru að reyna að finna fjölina sína í nýjum heimi. Manndrápin og kúgunin sem við sjáum eru Bandaríkin að reyna í örvæntingu að halda takinu.

Þetta er góð þróun,þó hún sé sársaukafull í byrjun.

Trump á hinn bóginn er haldinn þeirri ranghugmynd að hann sé keisari heimsins og allir verði að lúta honum og greiða honum skatt. Þessi leiði misskilningur gæti auðveldlega leitt til heimsstyrjaldar því að mörg ríki munu ekki sætta sig við að hverfa aftur inn í þetta myrka tímabil.

Bandaríkin hafa í dag og hafa lengi haft,svo til öll einkenni Þýskalands nasismans.

Þeir hafa hernaðarmaskínuna,heimsyfirráðastenuna,ritskoðunina ,manndrápin,spillinguna,blóðþyrstu elítuna,rasismann ,spilltu fjölmiðlana,persónunjósnirnar,og samruna ríkis og stórfyrirtækja. Þetta er allt þarna.

Rasisminn sem gegnsýrir Bandarískt samfélag er sennilega verstur af þessu og er grunnurinn og réttlætingin á hölmulausu ofbeldi Bandaríkjanna gegn öðrum þjóðum.  Þegar ég tala um rasisma er ég ekki að tala um að einhver sé kallaður nigger eða skáeygður skratti. Ég er að tala um exeptionalismann sem hefur verið innprentaður í Bandarísku þjóðina svo áratugum skiftir.

Exeptionalisminn,sem er nákvæm hliðstæða við yfirburði Aríanna í Þýskalandi ,er ástæðan fyrir að Bandaríkjamenn telja sig ekki þurfa að alþjóðalögum ,almennum samskiftareglum eða siðgæði á alþjóðavísu. Hann er líka ástæðan fyrir að þeir sofa rólegir eftir að hafa rústað hverju landinu á fætur öðru og valdið almenningi þar ósegjanlegum þjáningum. Þeir standa jú hærra og sjá lengra en annað fólk eins og einn forráðamaður þeirra orðaði það svo ágætlega. Móralskir yfirburðir þeirra gefa þeim heimild til að ráðskast með líf annarra þjóða. Það gildir einu þó að 500.000 börn svelti til bana sagði Magdalene Albright. Hún stóð jú hærra. Hún ætti að vita þetta.

 Nasistarnir fundu ekki til neinna óþæginda þegar þeir voru að leiða Slava og Gyðinga til slátrunar. Þeir stóðu hærra og sáu lengra.

Margir eru að kaupa þetta,þar á meðal greinarhöfundur að mér virðist

Það má vera að Trump sé ekki hluti að þessu öllu,en þeir spila á hann eins og fiðlu og hann ráfar stefnulaust eins og vitleysingur meðan "Fenið" ræður ferðinni.

En þrátt fyrir þetta allt er ég ánægður með að Trump komst í Hvíta Húsið en ekki Hillary. Sá forherti stríðsglæpamaður væri sennilega búinn að drepa okkur öll.

Borgþór Jónsson, 8.8.2018 kl. 01:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband