Laugardagur, 11. janúar 2020
Aðeins tímamunur á ISIS og klerkaveldi Írans
Klerkaveldi Írans er aðeins ef yfir höfuð nokkru hænufeti frá því að samsama sér með ISIS, eða Ríki íslams. Klerkaveldi Írans hefst við í ríki sem nýtur réttinda samkomulagsins um fullveldi ríkja, sem kennt er við Vestfalíufriðinn 1648. En á sama tíma vinnur það að því að tortíma því fyrirkomulagi fullvalda ríkja heimsins
Það rekur ekki bara ríkisher eða landvarnarlið, heldur rekur það líka sérstakan byltingarherafla sem starfar við að flytja út byltinguna sem leggja á fyrirkomulagið um fullvalda ríki frá 1648 í rúst. Ekkert hefur lýður landsins um neitt að segja í þessu hryllingsbæli. Hann er miskunnarlaust tekinn af lífi í sínu eigin ríki af byltingarvarðliðinu sem viðhalda- og flytja á út tortímingu Vesturlanda
Að vitsmunalega örkumlaðir vinstrimenn á Vesturlöndum skuli halda andlegum verndarvæng yfir þessu skrímsli, sem gert er sérstaklega út til að tortíma því sjálfu, er ekki bara inngróin heimska úr grútmygluðu forðabúri kommúnismans, heldur vitsmunaleg örkumlun sem aðeins líberalistavængur sósíalismans er fær um að koma heilabúum manna í. Aðeins þannig leppalúðar taka þetta ríki sem góða og gilda vöru
Það fór því vel á því að Bandaríkin skyldu taka úr umferð útflutningsstjóra tortímingar á fyrirkomulagið frá 1648. Hann var réttdræpur hryðjuverkamaður sem herjaði á önnur ríki og sitt eigið fólk, og drap það í bunkum, eins og aðeins vígamenn Ríkis íslam gera. Hann var útflutningsstjórinn sjálfur og hafði ekkert með sjálfsvarnarlið eða her Írana að gera
Ef að betri menn hefðu ekki ráðið niðurlögum ISIS, þá væru stórir hlutar Íraks og Sýrlands á valdi manna eins og hans; í nýju morðríki, sem síðan krefðist viðurkenningar hjá því fólki sem ég nefni á nafn hér fyrir ofan
Eini munurinn á klerkaveldi Írans og ISIS er sá að Klerkaveldið kom á undan og lifði lengur en það. Því miður
Fyrri færsla
Tapsgefandi "nýjungar": er verið að skrúfa fyrir heita vatnið?
![]() |
Segjast hafa skotið vélina óvart niður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 10. janúar 2020
Tapsgefandi "nýjungar": er verið að skrúfa fyrir heita vatnið?
Mynd af ísöld: "Dow Jones Industrial Average" vísitalan - sögulegar tölur áranna frá 1965 til 1986. Myndin verður enn verri, eða hin fullkomna hryllingsmynd, sé tillit tekið til verðbólgunnar á þessu tímabili, sem var mikil. Ekkert gerist fyrr en að fyrstu persónulegu-tölvunar-fyrirtækin sem byggja allt sitt á örgjörvanum, eru í þann mund að koma á markað í kringum 1980-1982. Þarna dó 50-ára hagsveifla bílaiðnaðarins og verður aldrei endurtekin. Bílar urðu "old-tech"
****
Um þessar mundir er hlutfall tapsgefandi nýrra fyrirtækja á hlutabréfamarkaði það sama og það var á hátindi ný-þvælunnar sem fékk nafnið dot.com bólan eða internet-fyrirtækja-bólan frá 1997-2002. Í mars 2000 hrundi þessi bóla og hélt áfram að hrynja fram í október 2002. Talið er að þar hafi brunnið næst mesta misstæða fé í sögu mannkyns, næst á eftir sjónhverfingum evrunnar frá 2001-2008. Svo kallað fólk með "fullu viti" henti sér þá án björgunarhrings í ískaldan sjóinn; til þess eins að komast hjá því að líta út sem gamaldags imbar í augum vina, kollega og "almenningsálitsins". Þannig eru allar bólur; þær snúast um að girða sig af gegn heimsku; á ensku; "hedging against stupidity"; að verja sig gegn því að líta út sem bjáni í augum annarra
Hlutfall tapsefandi nýrra fyrirtækja í hlutafjárútboðum er hvorki meira né minna en 80 prósent í dag. Eða eins og það var á hátindi dot.com bólunnar. Þetta þýðir að átta af hverjum tíu nýjum fyrirtækjum sem sækjast eftir hlutafé á mörkuðum eru rekin með tapi, er þau sækjast eftir fjármunum annarra. Þeir sem þekkja tímana fyrir "hvað er þetta maður, fæ ég ekki fjármögnun", þ.e. tímana þegar maður mætti með að minnsta kosti break/even í bankann til að frá rekstrarlán, vita hvað svona tapsgefandi latína þýðir
En í sjálfu sér þarf slíkt ekki að vera sjálfkrafa "óeðlilegt", því að ný fyrirtæki þurfa kapítal til að geta vaxið upp í arðbæran rekstur. En þannig spilaði úrverkið hins vegar ekki þegar öld persónulegrar tölvunar hófst í kjölfar algerrar stöðnunar við endalok 50-ára hagsveiflu bílaiðnaðarins. Endalok 50-ára bílahagsveiflunnar þýddi 20-ára ísöld á hlutabréfamörkuðum; frá 1965 til 1989. Þau nýju fyrirtæki sem þá lögðu grunninn að persónulegri tölvun, voru ekki eins og þau fyrirtæki sem nú er um að ræða. Þau voru sannarlega brautryðjandi tæknifyrirtæki. Það eru flest nýju fyrirtækin í þessum geira í dag hins vegar ekki. Þau eru old-tech
Vöxtur í framleiðni er að mestu horfinn síðustu mörg mörg árin og það eitt og sér gæti þýtt að 50-ára hagsveifla örgjörvans sé að enda. Heimurinn hefur átt þrjár 50-ára hagsveiflur: Eitt; þegar rafmangið kom. Tvö; þegar bílaiðnaður varð til. Og þrjú; þegar örgjörvinn (tölvun) varð til
Þegar dot.com bólan sprakk, þá man ég aðeins eftir einum hagfræðingi á Norðurlöndum sem trúði ekki á "nýja hagkerfið". Það var Daninn Torben M. Andersen. Restin af sérfræðinga-söfnuðinum söng með og fraus náttúrlega í hel, án þess þó að viðurkenna það. En kannski voru þeir fleiri sem sáu þetta, en þorðu bara ekki að segja frá því, stöðu sinnar vegna. Eflaust
Þá er það næsta stóra spurning; Er 5G, þ.e. fimmta kynslóð þráðlausra víðáttuneta (WAN), jafn mikil þvæla og hin hljóðfráa Concorde farþegaflugvél var? Sú flugvél var fullkomið efnahagslegt fíaskó og flýgur því ekki lengur. Frá því að setja vægni á bíl og betrumbæta "bílasveiflu-hugmyndina" næstu mörgu áratugina og aldrei að detta neitt nýtt í hug á meðan er mjög svo sennilega það sem er að gerast með rafbílana og tapsgefandi félagskap svo kallaðra "græningja". Þeir verða sennilega "ný Concorde" á hjólum ásamt 5G-concorde eftir nokkur ár. Og fleira má nefna sem bara tapar og tapar fé í dag; allt byggt á þráðlausum tengingum og þar með á örgjörvum
Þetta er ekki spá, heldur aðeins vangaveltur, með harðfisk og heimagerða kindakæfu í munni. Það er hins vegar fyrir mig traustvekjandi að sjá að nýr Ásgeir seðlabankastjóri Íslands er að minnsta kosti með fullu viti þegar hann segir að hagvöxtur á Íslandi geti ekki byggst á lélegasta, leiðnilegasta og verst launaða atvinnugeira veraldar; þ.e. á steikingu erlendra ferðamanna. Það er nefnilega hárrétt hjá honum og hefði þurft að segjast fyrr. Miklu fyrr
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 8. janúar 2020
Hvað sagði Trump í dag?
Frá vefsíðu Hvíta hússins á YouTube
****
Fyrst að DDRÚV ríkisfjölmiðill vinstrimanna treysti sér ekki til að segja frá því sem er að gerast í heiminum í dag, þá er hér sú ræða sem forseti Bandaríkjanna flutti í morgun, eftir að Íran skaut 15 skotflaugum á bandarísk skotmörk í Írak í gærkvöldi
Vert er að vekja athygli á því að skotflaug (e. ballistic-missile) er ekki það sama og eldflaug. Skotflaugar fljúga að mestu eftir fyrirfram ákveðinni braut og halda sig á henni með aðstoð leiðréttingarbúnaðs. Þeim svipar til byssukúlu. Eldflaugum er hins vegar hægt að stýra
En með því að skjóta 15 skotflaugum og hitta nokkuð vel í mark, en samt ekki um of, sýndi Íran að það er í standi til að hæfa fjarlæg skotmörk af mikilli nákvæmni og að koma miklu magni af eyðileggingarafli á fyrirfram ákveðinn áfangastað. Skotflaugar Írans ná til Evrópu og þær eru með norður-kóreanska tækni innanborðs. En sérstaklega ná þær vel til skotmarka í Ísrael
Íran kaus að nota ekki þau erlendu landsvæði sem eru á valdi þess, sem skotstöðvar. Skotið var beint frá Íran og þar með var ákveðið að gera skotstöðvarnar sýnilegar til þess að ögra Bandaríkjunum til andsvara, sem Donald Trump ákvað að gera ekki
Hvort að Miðausturlönd séu enn miðja einhvers, er vandséð á viðbrögðum markaða. Olíuverð er á ný komið niður í það sem það var um áramótin. Og eftir ræðu Trumps í dag ákváðu þeir að halda upp á aðgerðir og viðbrögð bandaríska forsetans með því að segja skál og fara í allra hæstu hæðir - og Bandaríkjadalur styrktist og olíuverð féll. DXY er vísitala Bandaríkjadals. BRN er Brenthráolían. Og CL er WTI-Texashráolían
Það sem uppúr stendur er það, að frá og með nú eru Miðausturlönd fyrst og fremst miðja vandamála fyrir meginland Evrópu (og jafnvel Asíu). Þau eru ekki lengur miðja vandamála fyrir Bandaríkin. Hið sama gildir um tolla. Þeir eru fyrst og fremst vandamál hinna útflutningsháðu ríkja veraldar, hvort sem um vörur eða byltingar er að ræða. Íran er stærsti útflytjandi íslamískrar byltingar í heiminum, og líf klerkaveldisins veltur á þeim útflutningi. Hann er skær terror eins og einnig var í tilfelli byltingarútflutnings Sovétríkjanna. Trump herti því enn frekar útflutningstollana á byltingarafurð klerkaveldisins í dag
Donald Trump sagði að svo lengi sem hann væri forseti Bandaríkjanna myndi Íran ekki koma sér upp kjarnorkuvopnum. Það erindi Bandaríkjanna er fyrst og fremst við Íran, og það krefst ekki fastrar viðurvistar Bandaríkjanna í heimshlutanum, því þau geta lagt það prógramm allt í rúst úr fjarlægð, og nú án þess að efnahagslíf Bandaríkjanna sé tekið í gíslingu vegna olíuhagsmuna
Fyrri færslur
Enginn talar um ESB í Stóra-Bretlandi lengur
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.1.2020 kl. 02:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Miðvikudagur, 8. janúar 2020
Missir af Jóni Val Jenssyni
Þær fregnir hafa borist að Jón Valur Jensson sé látinn. Af honum er eftirsjá svo um munar, því Jón var hugaður maður. Ég mun sakna skriflegra heimsókna hans hingað. Þar fór maður sem stóð fyrir því sem betra er, þ.e. lífinu sjálfu.
Blessaður sértu Jón Valur Jensson
![]() |
Andlát: Jón Valur Jensson |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 7. janúar 2020
Enginn talar um ESB í Stóra-Bretlandi lengur
Mynd WSJ DS 2019; Þáttur hráolíu við framleiðslu á landsframleiðslu Bandaríkjanna. VLF (GDP) => fyrirtæki landsins framleiða landsframleiðsluna og neytendur neyta hennar og þess sem ekki er neytt innanlands er flutt út (12 prósent í tilfelli Bandaríkjanna og helmingur þess fer til Kanada og Mexíkó) eða sparað upp. Hér má sjá hráolíuútflutning Bandaríkjanna frá 1920. Bandaríkin eru orðin stærsti olíuframleiðandi veraldar og eru um þessar mundir að verða nettóútflytjandi af hráolíu
****
Taflan er þurrkuð hrein í Bretlandi. Það eina sem stendur á henni eftir kosningasigur Borisar Johnsons í desember, er breski Íhaldsflokkurinn næstu 10 árin, og endalok 45 ára innri sundrungar og hnignunar í landinu á niðurlægingartímabili Bretlands í Evrópusambandinu í 45 ár. Niðurlægingartímabil þar sem landið var tætt í sundur að innan, misskipting varð landlæg, hroki ESB-elíta varð höfuðborgarplága og lífið gert súrt fyrir hinn almenna borgara, og landsbyggðin lögð í rúst
Enginn þingmaður stjórnarandstöðunnar í Bretlandi né neinn annar talar um og fyrir ESB-aðild og enn síður um EES lengur. Enginn. Allir vita að slíkt er dauðadómur fyrir þá sjálfa og flokk þeirra
Á þessu ári mun Stóra-Bretland gera samninga um stóraukin viðskipti og samvinnu við fyrrum nýlendur þess í Bandaríkjum Norður Ameríku og í Samveldislöndunum. Sem eitt af helstu innflutningslöndum veraldar ásamt Bandaríkjunum, mun þessi samvinna kreista safann úr þeim löndum heimsins sem hve mest eru háð útflutningi; Þýskaland er þar númer eitt ásamt Kína, ýmsum Asíulöndum og Rússlandi. Þessi lönd verða kreist eins og sítróna. Við kaupum ekkert af ykkur nema að því tilskyldu að þið, en ekki við, gerið svona og svona. Þýskaland sækir helming landsframleiðslu þess hjá neytendum erlendis, því það sjálft er svo gott sem búið að vera að innan. Það getur ekki búið til eftirspurn í sínu eigin hagkerfi lengur
Evrópusambandið er þegar fallið svipað og OPEC hefur misst öll völd. Þær fimm prósent verðhækkanir á hráolíu sem urðu í kjölfar atburða síðustu daga í Miðausturlöndum, hafa ekki komið fram á bensínstöðvum í Bandaríkjunum. Þar kostar enn nánast ekkert, miðað við sovétríkið hér heima og ESB-líkhúsin í Evrópu, að fylla tankinn og skoða sig um á Vesturhveli jaðrar, eða bara að fara í vinnuna. Það er aðeins í sovéskum hagkerfum Evrópu að heiladauður Stalín stendur við dæluna og skammtar áhrifalausum peðum sínum hina þekktu rauðu lífshamingju í skattagúlaginu, þar sem ekkert fæst fyrir þá peninga sem hann trylltur tætir úr launaumslagi peðanna
Five-Eyes enskumælandi viðskiptasamband Bretlands, Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu og Nýja Sjálands verður tvöfalt stærra en Evrópusambandið, eða tæplega 30 billjón dalir, og þar verður ekki eitt hár á fullveldi og sjálfstæði landanna skert í nafni viðskipta og hagsældar. Þvert á móti - og engum nema ESB-heilabiluðum manni myndi detta slíkt viðskiptasamband í hug
Fyrri færsla
Krakka-krakkfréttir DDRÚV um stöðu heimsmála
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 6. janúar 2020
Krakka-krakkfréttir DDRÚV um stöðu heimsmála
Skattpíndur landsins lýður, sem útbreitt og gegn vilja sínum, látinn er greiða stórar summur fjár til þess að halda megi íslensku þjóðinni í greipum eins konar vitsveltandi vinstrimafíu DDRÚV, sem fáir nema áhangendur gömlu Sovétríkjanna kjósa, og hvers áframhaldandi tilvist krefst nýbyggingu heils nýs frétta-sovétríkis í kringum sig á Íslandi samkvæmt hugmyndum hálfsovéskrar Framsóknarlilju í kringum kjósendur, sem flestir vilja ekki kjósa hana já, þá fékk sá lýður í gær þau algóðu og hindurvitnandi tass-sannindi úr DDRÚV-fréttasovétríkinu á jötunni, að þingið, já þingið í Írak hefði "samþykkt" að gera Bandaríkjaher "útlægan" úr Írak
Það svo kallaða þing, sem er tímabundið gerviþing sjía-múslíma, vegna þess að Kataib Hezbollah herklíkan sem er bandamaður Quds-herliðsins sem réðst á bandaríska sendiráðið í Bagdað í síðustu viku, hótaði þeim sem kysu gegn henni í þessu máli, öllu illu. Kúrdar mættu ekki til atkvæðagreiðslu og flestir súnní-múslímar létu ekki sjá sig. Atkvæðagreiðslan rétt marði það, og hún var algjörlega óbindandi. Hún fór fram undir til bráðabirgða-sitjandi forsætrisráðherra sem lofað hefur kosningum, svo reyna megi að reisa þingið við því það missti lögmæti sitt í augum borgaranna í fyrra
Þessi atkvæðagreiðsla hefur því ekki neina aðra merkingu en þúsund fréttatímar DDRÚV hafa gegn Samherja, gegn Íslandi, gegn SDG, gegn xD, gegn fullveldi Íslands og þjóðfrelsi okkar Íslendinga, sem DDRÚV virðist fyrirlíta allra mest. Þetta er ógnvekjandi og stjórnarfarslega óverjandi hálf sovésk staða fyrir okkur Íslendinga á 21. öld
Allir minnihlutar Íraks styðja áframhaldandi veru Bandaríkjahers í landinu og þeir eru að minnsta kosti álíka margir og allir sjíta-múslímar í Írak. Bandaríkin eru með fimm þúsund manna herlið í landinu í þágu Íraks og Bandaríkjanna, sem nánast einsömul hafa svarað því stríði sem múslímar lýstu á hendur þeim og öllum Vesturlöndum. Bandaríkin ein hafa staðið á múrnum gegn þessum öflum í næstum 20 ár. Án þeirra væri dauðvona Evrópa í enn verra ásigkomulagi en hún er núna. En þar í álfu ræður tómhyggjan næstum ein ríkjum, allar götur frá því að Evrópusambandið eitraði fyrir álfunni með nýju nýlenduvaldi á heimavelli, því álfan komst ekki lengur út í heim og varð því að láta sér heimanýlendurnar nægja
Það sætir furðu að talað sé um morð þegar einkennisklæddur yfirmaður hryðjuverkasveita þess ríkis sem lýst hefur heilögu stríði á hendur Bandaríkjunum og síendurtekið hótar að þurrka út heilt ríki í nánasta nágrenni þess, er drepinn þar sem hann mátti ekki vera. Já, hinn íranski ríkishryðjuverkamaður var að störfum í Írak. Og samkvæmt samþykkt Öryggisráðs S.þ frá 2007; þ.e. samkvæmt svo kölluðum "alþjóðalögum", var vera hans í Írak algerlega "ólögleg". Hefði hann og hryðjuverkaríkisstjórn hans í Teheran hlýtt þeim lögum, þá væri hryðjuverkahershöfðinginn enn á lífi í dag. En ekki væri það þó betra
Allir vita að án aðstoðar, styrks og getu Bandaríkjahers hefði ekki verið hægt að ráða niðurlögum ISIS og taka Mosul
Bandaríkin munu varla binda sig niður í þessu nánast eilífðar-vandræðasvæði veraldar mikið lengur. Það besta sem þau gerðu væri sennilega að selja báðum aðilum nóg af vopnum þannig að þeir geti gegnið frá sér sjálfir. En þar sem Kína er algerlega háð olíu frá þessum heimshluta þá er aldrei að vita hvað gerist næst, og sérstaklega ekki eftir að Tyrkland, sem sparað hefur saman ferskum kröftum í veraldarhyggju-dulbúningi þess í hundrað ár, er komið út úr skápnum og mætt með ferska krafta sína til leiks. Kannski leysir Tyrkland Vesturlönd af í þessum heimshluta, það skyldi þó ekki vera?
Klessuverk tveggja vesalinga liggur nú sem rúin rúst á tómum borðum líberalismans. Prinsippfast raunsæi tók þá klessu af lífi (PDF). Hér er átt við "kjarnorku-samkomulagið" sem Evrópusambandið og Barack Obama gerðu við klerkaveldi hryðjuverkanna í Íran. Teheran henti því nefnilega í hakkavélina í gær og gáfu heilabú beggja líberalista í því sig svo hratt, að í Berlín stakkst tunga út um glugga, sem Mike Pompeo sá um leið og sagði að væri sótsvört. Tungur Bretlands og Frakklands voru hins vegar ekki þannig er þær sýndu sig opinberlega í gær. Þær tóku að mestu undir með aðgerðum forseta Bandaríkjanna. Jafnvel þeir sem oft eru kallaðir "flestir" virðast sammála um að frekari viðskilnaður við Bandaríkin í Evrópu, þýði rússneskan náðarfaðm
En það er þangað sem Þýskaland virðist stefna. Þess vegna er það að verða mjög svo mörgum manninum ljóst, að Nord-stream-2 gasleiðslan frá Rússlandi til Þýskalands mun aldrei komast í gagnið, nema þá helst til að dæla einhverju öfugt í gegnum hana. Þess vegna er tungan sem ullar í Berlín svona svört. Þýskaland er orðið sér á þóftu og einsamalt á þeim báti, enda snérist það mál eingöngu um Þýskaland-fyrst stefnu Berlínar á kostnað allra annarra sem njörvaðir eru fastir við það í ESB og evru, með lögum og reglum Evrópusambandsins, sem Þýskaland að mestu er með í rassvösum sínum (sjá til dæmis orkupakka 3). Massífar refsiaðgerðir bíða Þýskalands haldi þýska ríkisstjórnin NS2 firrunni til streitu
Eins og ég varaði við hér; þá er nýtt og hættulegt ár þegar hafið
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 3. janúar 2020
Nýtt Tyrkjaveldi sjósett
MYND ÚR VERULEIKA
Mynd; DoD DVIDSHUB birt 1. janúar 2020: Bandarískur hermaður gætir sendiráðsstarfsmanna Bandaríkjanna í Bagdad. Og nú vita leiðtogaráðsvinir Írans í Norður-Kóreu hvers þeir mega vænta að fá í hausinn eftir að Soleimani hershöfðingi og leiðtogi árásar Írans á einmitt þetta sendiráð og víðar fékk brottfararleyfi í gær; sem bandaríska varnarmálaráðuneytið útskýrir hér
TYRKJATAKA TVÖ
Sé einhverstaðar til þjóð sem þekkir flókna stöðu og lifir í flókinni stöðu, þá hljóta það að vera Tyrkir. Og nú skulum við taka okkur á og tala um það sem er að gerast í stað þess sem við viljum að gerist. Það sem hjálpar okkur einna mest í þannig greiningu er að við höfum hvergi áhrif og því engu að tapa. Við getum sagt það sem okkur sýnist, því við höfum ekkert embætti að missa. Það er kostur
Byrja: Tyrkland hefur ákveðið að senda stórt herlið inn í Líbýu, sem er 17 sinnum stærra land en Ísland. Líbýa liggur í Norður-Afríku, eða réttara sagt, í syðsta hluta fyrrum heimsvelda Evrópu. Mannfjöldi er tæplega sjö milljón manns. Líbýa á mikla olíu hér og nú, og án olíu verður ekkert nýtt Tyrkjaveldi byggt
Borgarastyrjöld geisar í Líbýu. Hún er númer tvö síðan 2011 og Rússar styðja þann hluta sem berst við hlutann sem Tyrkland slæst nú í lið með. Stutt framhjáhald Tyrkja með Rússlandi er því að enda, eins og búast mátti við. Bandalag Tyrkja og Bandaríkjanna undir fána NATO er því sennilega komið í endurreisnarferli, þökk sé meðal annars visku og þolinmæði Trumps
Tyrkland sjálft á ekki mikla olíu núna, heldur síðar. En það mun sennilega breytast núna, því þvert yfir sæ austurhluta Miðjarðarhafs hafa Tyrkland og Líbýa lagt saman efnahagslegar lögsögur sínar, þannig að úr verði ein lögsaga, þar sem þær mætast. Þetta belti þvert yfir Austur-Miðjarðarhaf kemur við margt annað á leiðinni og mun því valda miklum deilum. Talið er að Líbýa eigi stærsta olíuforða Afríkuríkja og þann tíunda stærsta í heimi. Bandalög hafa því nú þegar myndast við þessa þróun mála: a) bandalag Tyrkja og GNA-hluta Líbýu og hins vegar b) bandalag Grikkja, Ísraelsmanna, Egypta, Kýpur og LNA-hluta Líbýu, sem Rússar styðja. Stuðning Tyrkja við GNA-hluta Líbýu ber að skoða í ljósi olíuforðans sem getur aðstoðað Tyrkland við að skáka Sádi-Arabíu, Egyptum og Rússum
Nýtt Tyrkjaveldi mun vaxa svona:
Það mun beina vaxandi völdum þess í norðvestur, upp Balkanskaga
Það mun beina vaxandi völdum beint norður og upp Svartahaf
Það mun beina vaxandi völdum í norðaustur, inn í Lág,- og Há-Kákasus
Það mun beina vaxandi völdum inn í allan hinn arabíska heim
Það mun beita völdum sínum á Miðjarðarhafi
Og það mun líklega finna einhverja pólitíska fótfestu í einhverju norðurstrandarríki þar
Hvar Frakkland mun koma þarna inn er óvíst enn. En Frakkland er eina landið á meginlandi Evrópu sem er bæði Norður-Atlantshafs,- og Miðjarðarhafsland í einu og sama ríkinu. Sú sérstaða mótar stjórnmálin í París á allt annan hátt en þau mótast í Ný-Berlín og gervihnattalöndunum á sporbraut um hana. Frakkland er mun meira ClubMed-ríki (Miðjarðarhafsríki) en það vill láta uppi og viðurkenna, og það mun spila inn í samskiptum þess við ESBRÚSTIR og NATO. En þarna hafa Frakkar enn sem komið er ekki látið mikið uppi og vita sennilega ekki enn hvað þeir eiga að hugsa, því staða Tyrklands í heiminum hefur breyst svo hratt
Bretland á einnig mikilla hagsmuna að gæta við Miðjarðarhaf. Stóra-Bretland hefur ávallt annast og viðhaldið samskipum þess við meginland Evrópu með því að bora í það til að splitta því, og koma þannig í veg fyrir að veldi sem skákað gæti Stóra-Bretlandi næði að myndast; þ.e. að brjóta skipasmíðastöðvar þannig fyrirbæra í spón áður en þau gætu myndast og sett fley sín í sjó
Þarna sýna Bandaríkin skýrt hversu vel þau strategískt eru í sjó sett. Þarna munu þau sennilega halda áfram að gera það sem þau gera best í aðdraganda stórflugeldasýninga: þ.e. að aðhafast lítið sem ekkert, enda eiga þau meira en nóg af olíu og orku sjálf og gott betur en það. Þau munu því að líkindum einbeita sér við byggja sig upp að innan eftir úthýsingarrugl næstum alls á síðustu 30 árum, og að herða þannig stórstálið gamla svo að það sé einn risavaxinn rass sem sest á stöðuna á réttum tíma, smellir handjárnunum á og þvingar fram niðurstöðu og kemur nýju valdajafnvægi á eins og síðast og þar síðast líka. Þetta er bæði meðvituð en þó mest ómeðvituð sjálfstýring í utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Þingheimur og sjálfur forseti þar er bæði meðvitaður en á sama tíma ómeðvitaður um þetta ósjálfráða taugakerfi sitt. Það er að langsamlega mestu leyti innaná-liggjandi, en ekki utanáliggjandi eins og það er í víti meginlands Evrópu, þar sem einn skór sem engum passar trampar á utanáliggjandi tugar hinna, við hvert einasta skref. Ópassandi skór ríkja sem eru svo útflutningaháð, að bara einn erlendur kúnni á borð við Bandaríkin er næstum nóg til að loka þeim niður
Hænufet í þessari þróun er hér með tekið. Hvert það leiðir Tyrkland er þó ekki vitað enn. Taka ber því þessum vangaveltum mínum sem vangaveltum aðeins. Þetta er það sem ég tel líklegt að geti gerst, og á lítið skylt við persónulegar óskir mínar
Heimurinn er ofboðslega stór og yfirþyrmandi flókinn. Hann er risavaxinn - og hann á lítið skylt við óskir útópískt-firrtra og umhverfðra kjána í ríkisstjórn Íslands þessi árin. Þar vaxa grænir bananar núna
Tengt
Hættulegt ár að byrja, frá og með nú
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 1. janúar 2020
Hlægilegar áramótatölur
Það hellist í bakkafullan lækinn þegar að fyrirmenni dulbúin sem kóngafólk flytur áramótaræður sem ríkisstjórn þess hefur skrifað, og síðan þegar að táknmáls-forseti eins og okkar flytur áramótaræðu sem hann ræður litlu um sjálfur
Síðan koma miðilsfundir fjölmiðla og dásama eða lasta þessa smekksdómara, sem reyndar eru mállausar strengjabrúður. Allir vita að ef kóngafólkið segir ekki það sem því er fyrirskipað að segja, þá er fjandinn laus fyrir það sjálft og lokað verður fyrir peningana
Og ef að forseti okkar minnist ekki á annað hvort "umhverfismál" (bankaþvæla nútímans) eða opnun hinna eða þessara (hryllings) "slóða" sem rugl tímans á að sjá um að opna, já þá er hann úti í kuldanum og kominn í djúpa frostið sem þá er skyndilega nóg til af. Svipað gildir um flesta svo kallaða "vísindamenn" og opinberar stofnanir.
Hér á minni bloggsíðu fer ekkert slíkt fram
Ég þakka lesendum fyrir árið sem leið og óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs
Fyrri færsla
Trump skorar hæst í Þýskalandi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Mánudagur, 30. desember 2019
Trump skorar hæst í Þýskalandi
Virðing Þjóðverja fyrir Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna vex nú með degi hverjum. Svo mikla og óttablandna virðingu bera Þjóðverjar fyrir bandaríska forsetanum, að þeir segja að engin ógn í heiminum sé stærri en einmitt hann. Og eins og flestir vita þá bera Þjóðverjar ekki mikla virðingu fyrir þeim sem ekkert er að óttast frá. Þannig ypptu þýsk stjórnvöld bara þeim öxlum sem Bandaríkin höfðu gefið landinu þeirra er þessi hér orð manns í Hvítu húsi vestanhafs voru sögð:
"Having been turned down by the U.S. and U.K. on the directorate, de Gaulle turned to Germany. This helps to keep Germany from looking to the Russians." - og það er meira -
"One effort we must make", the President continued, "is to seek to prevent European states from taking actions which make our balance of payments problem worse. For example, we maintain large forces in Germany. We must firmly oppose West Germany if it increases its agricultural production to our detriment. We have not yet reached the point of wheat against troops but we cannot continue to pay for the military protection of Europe while the NATO states are not paying their fair share and living off the "fat of the land." We have been very generous to Europe and it is now time for us to look out for ourselves, knowing full well that the Europeans will not do anything for us simply because we have in the past helped them.
John F. Kennedy 22. janúar 1963 (hér)
Og það var eins og við manninn mælt; Þjóðverjar hafa snúið sér til Rússa, því að sá maður sem í Hvítu húsi situr núna, er einmitt maðurinn sem Þjóðverjar loksins óttast. Staðfesting á því var birt á jóladag í könnun sem þýska DPA-fréttastofan lét gera fyrir sig. Þar segja 41 prósent Þjóðverja að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sé hættulegri en Vladímír Pútín, og líka hættulegri en Kim Jong-un og Xi Jinping, sem eru leiðtogar alræðisstjórnar kommúnista í Norður-Kóreu og Kína. Fyrir aðeins nokkrum vikum fyrirskipaði Xi Jinping forseti Kína húskarli sínum Kim Jong-un í Norðrinu að hefja á ný eldflaugaskot, því að forseta Kína vantaði eitthvað sem hann þættist geta sagt Donald Trump að einungis hann, einn og sjálfur, gæti gert fyrir hann; þ.e. að stöðva það sem hann setti húskarl sinn til að setja í gang. Og næstum allir vita hvað það er; meira að segja Trump líka; og frá og með nú; þú líka
ELDVEGG TAKK!
Þjóðverjar Björns og Bjarna eru því að leita til Rússlands eftir nýjum niðurgreiðslum í varnarmálum núna. Talsmaður svo kallaðs kanslara Þýskalands, þ.e. Angelu Merkels, segir því að Þýskaland verði að byggja "eldvegg" til að einangra Bandaríkin frá því sem þýsk stjórnvöld segja að sé Evrópa núna; les. að Evrópusambandið (og EES-lönd?) í vösum Þýskalands einangri sig frá hinum frjálsa heimi. Þýsk stjórnvöld segja að þetta verði að gerast svo að Trump geti ekki stöðvað Nord-Stream-2 hárlagningu Merkels hjá frisør Pútín. Þýskir benda á að Pútín Rússlandsforseti sé kominn með greiðslumiðlun (ekki hár) sem Bandaríkin hafi engan séns á að tilstoppa né snerta. Um er að ræða banka- og greiðslukerfi milli Kína og Rússlands (og Írans?), sem snertir Bandaríkin hvergi. Nema náttúrlega að kínverskum kommúnistum sé alveg sama um China National Petroleum Corp, sem skráð er í gegnum kínverskan banka á kauphöllina í Nýju Jórvík; þ.e. New York Stock Exchange. Kínverskir bankar hafa nefnilega neyðst til að stöðva greiðslur til Klerkaveldisins í Íran, því annars kemur Donald Trump og sér persónulega um afskráningu hins kínverska þjóðarolíufélags kommúnista, með tandurhreinni ánægju. Virðist því ekki að um neinn Jimmy-Stewart-forsetaling sé þar að ræða ja
"Europe (hvaða Evrópa?; GR) needs new instruments to be able to defend itself from licentious extraterritorial sanctions" - tísti Niels Annen aðstoðarutanríkisráðherra (?) Þýskalands í síðustu viku
Á þennan eldvegg hafa vofur Sjálfstæðisflokksins nú hengt allar þær innistæður sem þær þykjast eiga hjá þeim fáu kjósendum flokksins sem eftir eru; miðað við alla liðna Íslandstíma hans
LOKSINS, LOKSINS!
Hér eru kannski gífurleg tækifæri að opnast fyrir Rússland. Það gæti nefnilega boðið fyrirtækjum veraldar upp á að þjónusta þau með rússnesku réttarfari (hvorki meira né minna!) á hinu alþjóðlega milliríkjasviði, og fært þeim alþjóðlega rússneska fjármálaþjónustu undir vernd rússneskra viðskiptadómstóla. Allir hljóta að sjá að þarna eru ofboðsleg tækifæri að opnast fyrir Vladímír Pútín og ríkisstjórn hans, með rússneskt réttarfar sem helstu útflutningsvöru landsins. Kúnnarnir myndu bókstaflega sturtast að. Jafnvel Evrópusambandið gæti orðið kúnni með aðstoð hins nýja Stór-Þýskalands. Hver veit, og látið hann hafa evruna uppí
"This helps to keep Germany from looking to the Russians." - JFK
Kannski að algóður Kennedy sem Þjóðverjar óttuðust því ekki, hafi þrátt fyrir allt haft rétt fyrir sér, og að Donald J. Trump viti það jafnvel manna best
Fyrri færsla
Hvað segir ástralska veðurstofan?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Laugardagur, 28. desember 2019
Hvað segir ástralska veðurstofan?
Stærsta gáfnabrenna sögunnar - eða voru aflátsbréfin stærri?
Eins niðrandi og mér finnst það vera fyrir mína eigin meðfæddu heilastarfsemi og gáfur, sem eru bara svona rétt í meðallagi og varla það, að eyða hér bara einni hitaeiningu í að hugsa um það sem velmegunarskaddað fólk á Vesturlöndum kallar "loftslagsbreytingar" og "hlýnun jarðar", þá stenst ég ekki mátið að pósta hér krækju á Veðurstofu Ástralíu. Þar geta þeir sem ekkert annað hafa við gáfur sínar að gera en brenna þeim af og fárast yfir hinum og þessum hindurvitum um næsta heimsendir í boði hins gamla og hefðbundna vinstriflokks Vesturlanda sem málað hefur sig í grænum felulitum núna skoðað sig um í talnadýrð þeirrar stofnunar; Hér eru tölurnar
Hún eins og aðrar veðurstofur verður auðvitað að hafa eitthvað glópa-glingur hangandi á sinni heimasíðu um komandi pólitískan heimsendir vinstrimafíu grænna, því annars mun það græna en rauða fólk ráðast til inngöngu í veðurstofuna, og hengja alla veðurfræðinga stofnunarinnar í næsta óbrennanlega tröllatré; sem vegna milljóna og aftur milljóna ára þróunar í Ástralíu... já hérna kemur það... þolir elda og bruna bara nokkuð vel. Hmm, kannski talandi tré?
Heilabilun ofdekraðra vinstrimanna á Vesturlöndum þvingar of marga til að grípa til þannig varúðarráðstafana í stað þess að sveifla því sverði sem Guð gaf þeim; þ.e. sínum meðfæddu og dýrmætu gáfum, knúnum vesturlenskum framförum. Svo langt hefur velmegun Vesturlanda leitt vanþakkláta; að þeir eru að kafna úr frekju yfir þeirra eigin ímyndaða ágæti og mikilvægi, og svo kölluðu "réttlæti"
Þessir tímar vinstrisins núna, eru farnir að minna óþægilega mikið á þá tíma þar sem margt gott fólk hengdi á sig merki nasista [Nationalsozialistische Deutsche Arbeiterpartei] til þess að verjast ofsóknum af höndum klerkaveldis þeirrar ofsapólitísku hreyfingar vinstrimanna. En þegar svo allt lá í rúst eftir nasismann, þá þóttist auðvitað enginn hafa spilað með. En þeir gerðu það nú samt
Þetta er sennilega plebbalegasta efni sem ég hef þvingað mig til að hugsa um og fella niður á blað. Bókmenntarannsóknir á Tígulgosanum eru margfalt göfugra viðfangsefni en hin risavaxna lofslagsþvæla vinstrisins
En kannski er það einmitt á tímum eins og þessum, þegar blóðið flýtur og óttinn ríkir, að gott er að huga að fjárfestingum. Það segir til dæmis Warren gamli Buffet, sem býr norður í Nebraska, mjög svo fjarri Wall Street, þar sem einmitt fyrsta íslenska konan í læknastétt, hún Hrefna Finnbogadóttir frænka mín, bjó og stundaði lækningar í oft afar hörðum veðrum (PDF). Heldur ekki hún hefði keypt heimsendaþvælu vinstrisins í dag. Það held ég að minnsta kosti
Þetta eru niðrandi tímar fyrir þá sem byggðu upp Vesturlönd
Fyrri færsla
Hér væri hagvöxtur ef hreppspólitík Reykjavíkur nyti ekki við
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 7
- Sl. sólarhring: 29
- Sl. viku: 413
- Frá upphafi: 1404725
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 269
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008