Leita í fréttum mbl.is

NS2 og Þýskaland-fyrst-stefna þýskra stjórnvalda í ESB

Kokhraust þýsk stjórnvöld ásamt krónískum kóráhangendum þeirra hér heima, segja nú í kjölfar þvingunaraðgerða Bandaríkjaþings og bandaríska forsetans vegna Nord Stream2 gasleiðslunnar frá Rússlandi til Þýskalands, að "evrópsk orkumál séu ákveðin í Evrópu og stjórnað þaðan"

En er það nú svo? (lesendur muna kannski ennþá eftir orkupakka3)

Nei það er ekki svo. Því fer fjarri. Þessi gasleiðsla er því miður aðeins enn eitt ágætis dæmið um Þýskaland-fyrst-stefnu þýska stjórnvalda í Evrópusambandinu; og í NATO; og í ERM; og í EMS; og gagnvart Grikklandi; og gagnvart Suður-Evrópu; og gagnvart Bretlandi; og gagnvart Póllandi; og gagnvart hverjum þeim sem vogar sér að vilja ekki það sama og Þýskaland, innan þessarar svokölluðu (hlægja hér) "samvinnu" í ESB-útópíunni og innan NATO sem Þýskaland hunsar skyldur sínar við, og hvetur þar með öll önnur ríki álfunnar til að gera hið sama

Þessa orkuleiðslu ákvað Þýskaland einsamalt og alveg sér, í óþökk landa Evrópusambandsins, sem það hefur læst föst við sig með þýsksniðnum lögum og reglum um að ryksuga Þýskalands innan ESB sé steypt föst niður í þau en ekki niður í Þýskaland

Þýskaland ákvað einnig þessa gasleiðslu í óþökk meirihluta Evrópuráðsins. Það ákvað hana líka í óþökk framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og í óþökk gúmmíþings þess. Í stuttu máli þá er NS2 ágætis dæmi um Þýskaland-fyrst stefnu Þýskalands í Evrópusambandinu á kostnað allra annarra. Og það vill svo til að Þýskaland hefur skrúfað lög Evrópusambandsins og reglur þess þannig saman að þau séu sérstaklega hagstæð fyrir það eitt og Frakkland, en fjandsamleg öllum þeim löndum sambandsins sem ekki heita Þýskaland og eru ekki á sporbraut um Þýskaland. Sama gildir um EES; Orkupakki3 er fjandsamlegur Íslandi –hvernig sem á hann er litið– en hagstæður Þýskalandi. Hann er samsæri gegn Íslandi

Þessi Þýskaland-fyrst stefna þýskra stjórnvalda í Evrópusambandinu svarar til að þess að Donald Trump myndi nota alríkislöggjöf Bandaríkjanna til að keyra New-York-fyrst stefnu á kostnað allra annarra fylkja Bandaríkjanna. Slíkt kæmi auðvitað aldrei til greina

Svarið við svona imperíal-yfirgangi er aðeins eitt, eins og Biblían segir frá: Ísland fyrst. Pólland fyrst. Grikkland fyrst. Frakkland fyrst. Bandaríkin fyrst. Hvert land gæti sinna þjóðarhagsmuna án þess að traðka á þjóðarhagsmunum annarra ríkja

Þetta er sem sagt hin fullkomna þýska frekja og yfirgangur sem mótað hefur flest í þessari álfu frá 1871 og síðan að Þýskalandi og Evrópu var komið á réttan kjöl á ný, og á ný, og á ný með aðstoð Bandaríkjanna frá 1917 til 2013:

• Fyrri heimstyrjöldinni
• Síðari heimstyrjöldinni
• Kalda stríðinu
• Og í evrukreppunni -

- þar sem bandaríski seðlabankinn bjargaði Evrópusambandinu í tvígang frá dauða með ótakmörkuðu aðgengi að Bandaríkjadölum. Hefði hann ekki gert það væri evran hrunin í dag og ESB þar með líka, samkvæmt innbrenndu kokhreysti-ruglinu í höfðum kanslara Þýskalands og forseta Frakklands

En nú er hins vegar sagt stopp; hingað og ekki lengra. Við Bandaríkin ætlum ekki að líða Þýskalandi að byggja risavaxna gildru fyrir þá bandarísku hermenn til að ganga í, sem verja eiga þetta króníska vesalingaveldi gegn hinu króníska vesalingaveldinu austar í álfunni

Yfir til þessa aulaveldis hefur Sjálfstæðisflokkurinn samþykkt að flytja fullveldi Íslands í orkumálum. Aulafélag xD hefur sent Ísland til súgþurrkunnar (the cleaners) í ESB. xD stundar Þýskaland-fyrst og Ísland-síðast stefnu

Ég óska lesendum mínum gleðilegra jóla - og vona að allir sem vilja hafi rafmagn til afnota, því það er Guðs gjöf

Fyrri færsla

Öll vinna við lagningu Nord Stream2 gasleiðslunnar stöðvuð í gær


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Eigðu gleðileg jól Gunnar og þakkir fyrir öll þín ÁHUGAVERÐU skrif.

Ragnhildur Kolka, 24.12.2019 kl. 11:06

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Gleðileg jól til ykkar Gunnar og Ranhildur! 

Helga Kristjánsdóttir, 24.12.2019 kl. 13:34

3 Smámynd: Óskar Kristinsson

Megi þið öll eiga Gunnar Ragnhildur Helga og fl, gleðileg og góð jól,og takk fyrir allar góðu romsurnar og góð skrif.

Óskar Kristinsson, 24.12.2019 kl. 14:25

4 identicon

Óska þér og fjölskyldu þinni

gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. 

Þakka góða pistla líðandi árs.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 25.12.2019 kl. 13:27

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Viðhorf og hegðun Þýskalands og Rússlands til heimsins, hvar sem þau komast í áhrifavalds-snertingu við tilvist annarra ríkja, hefur ávallt verið sú; að eitt ríki, einn keisari, eitt fólk, sé það sem koma skuli og verði ofaná. Það er að segja; að innrétta heiminn, hvar sem þau komast í aðstöðu til þess, sem hús fjötranna.

Þýskaland getur í þeim skilningi ekki skilgreinst sem verandi Vesturland (the West), enda hefur það sennilega aldrei tilheyrt Vesturlöndum, nema þegar það hefur verið þvingað til þess, sökum hins innbyggða sjálfstortímingar-mekanisma þess.

Þýskaland og Rússland hafa aldrei stundað það sem Bandaríkin hafa stundað; að hvetja og styðja önnur ríki til fullveldis og sjálfstæðis, sem gerir þeim kleift að að nota þann sjálfsákvörðunarrétt þjóða sem Biblían boðar; sérstaklega Gamla testamentið.

Egro: Evrópusambandið er nú þegar orðið Hús fjötranna, þar sem Þýskaland-fyrst stefnan ræður yfir öðrum ríkjum núna.

Og nú þegar öllum með bara eina litla baun í heilastað, má vera þetta eðli Evrópusambandsins fullkomlega ljóst, þá nálgast það landráð að Sjálfstæðisflokkurinn skuli hafa troðið Íslandi inn í Orkubandalag Þýskalands, með því að viðhafa Ísland-síðast stefnu flokksins, og sem er að kála honum.

Þarna ráða fullkomnir plebbar för. Sömu plebbar og studdu ógildingu Brexit í Bretlandi; það er; KRATAR (vinstrimiðjumorðskjánar). En þeirra tími er sem betur fer liðinn núna, og koma ekki aftur næstu mörgu áratugina.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.12.2019 kl. 16:48

6 Smámynd: Borgþór Jónsson

Mér þykir orðið nóg um hvað þú ert orðinn mikill Evrópusambandssinni.
Þú getur ekki á þér heilum tekið að Þýskaland skuli hafa tekið upp hjá sjálfu sér að taka við gasi frá Rússlandi,Gasi sem þeir þurfa nauðsinlega á að halda.
Það er ekkert í reglum ESB sem bannar Þýskalandi að kaupa gas frá því ríki sem þeim er hentar best.
Þú ert orinn gróflega í andstöðu við sjálfan þig þegar þú segir að ESB sé "hús fjötranna" ,en vilt jafnframt að það drottni yfir innanríkismálum Þýskalands hvað varaðar orkumál.
Þú verður að velja annað hvort.

Ég vil líka minna á að gasleiðslurnar eru tvær. Nordstream II og Turkkstream.
Turkstream kemur til með að fæða Suður Evrópu í framtíðinni.
Sú gasleiðsla hefur ekkert með Þýskaland að gera.

Tilkoma Nordstreamm II stafar að sjálfsögðu af því að Evrópubúar skitu upp á bak þegar þeir í samvinnu við Bandaríkjamenn komu Nasistum til valda í Úkrainu.
Nasistar eru með öllu óútreiknanlegir og Þjóðverjar og fleiri áttuðu sig fljótt á að það er engin leið að treysta á að flytja gas í gegnum ríki sem er undir ógnarstjórn Nasista.

Nú standa yfir hægfara breytingar í heimspólitíkinni þar sem Bandaríkjamenn eru að skifta um helsta leppríki sítt í Evrópu.
Þýskaland er á leiðinni út en Pólland á leiðinni inn.
Pólverjar eru alveg einstaklega ólánsamir þeger kemur að því að velja sér bandamenn,þeir eru alltaf í tapliðinu.
Alveg frá því að Rússar ráku Pólsk Litháenska sambandsríkið af höndum sér hafa Pólverjar verið þjakaðir af stórveldisórum.
Alla tíð síðan hafa þeir reynt að húkka sér far með hvaða einrðisherra sem er.

Fyrst marseruðu þeir til Moskvu með Napoleon.
Síðan tóku þeir höndum saman við Nasista og hófu seinni heimstyrjöldina með því að skifta með þeim hluta af Tékkoslovakíu.
Bretar og Frakkar sem höfðu lofað að verja sjálfstæði Tékkoslovakíu létu sér þetta vel lynda ,enda lögðu þeir allt kapp á að beina Hitler til austurs.


Ný gögn sýna að það gekk ekki hnífurinn á milli Pólskra ráðamanna og Nasista þegar kom að Gyðingaofsóknum.
Pólski forsetisráðherrann lofaði meðal annars að reysa risavaxna styttu af Hitler í Varsjá ef honum tækist að hrekja alla Gyðinga til Afríku.
Þetta er afar undarlegt bandalag í ljósi þess hvaða áætlanir Hitler hafði þegar kom að Slövum. Hatur hans og fyrirlitning á Slövum var engu minni en á Gyðingum.
Stalin,blessuð sé minnig hans, tók sér svo fyrir hendur að hreinsa nasistana út úr Pólska hernum í skógarrjóðri í Póllandi.

Nú síðast hafa þeir tekið þá ákvörðun að stilla sér upp við hliðina á hnignandi stórveldi,Bandaríkjunum.
Þrælslund Pólskra ráðamanna er alveg einstök.
Þeir eru ekki eingöngu að stilla Póllandi upp sem vigvelli ef Bandaríkjamenn ákveða að ráðast gegn Rússum ,heldur hafa þeir ákveðið að borga Bandaríkjamönnum fyrir það stórar upphæðir.
Undirliggjandi er alltaf hinn gamli draumur um að þeir geti endurheimt sinn forna stórveldisstatus.
Undirliggjandi er sama heimskan sem leiddi þá til bandalags við Napoleon og Hitler.

Ég kann ákaflega vel við þá Pólverja sem ég þekki og hef ekkert nema gott um þá að segja svo það er meir hulin ráðgáta af hverju þeirra ágæta ríki hefur engann metnað til að vera sjálfstætt ríki og gera það sem er best fyrir þá.
Það er eins og þeir þurfi alltaf að  haga sér eins og  einhverskonar tilberi og sjúga lífsblóðið úr öðrum ríkjum.
Þegar júgur Sovétríkjanna fóru að tæmast snéru Pólverjar sér að ESB og úðuðu í sig nýmjólkinni nótt sem nýtann dag.
Nú eru júgur ESB að tæmast og Pólland er að reyna að koma sér fyrir á steingeldum spenum hins hnignandi heimsveldis Bandríkjanna.

Árið 2013 og 2014 gerðu Þjóverjar ásamt bandamönnumm sínum,Frökkum,Bandaríkjamönnum og Pólverjum allsherjar árás á Rússland. 
Einn ganginn enn.
Eins og venjulega þá mistókst árásin og nú leita Evrópuríkin leiða til að binda enda á átökin án þess að missa algerlega andlitið.
Bandaríkjamenn kynda svo undir átökunum eins og þeir geta, að venju.
Líklega verður ekki hægt að leiðrétta þetta öðruvísi en með nýjum leiðtogum í Evrópu.

Mér er það mikið umhugsunarefni af hveju þessi Evrópuriki ,sem mörg eru á barmi gjaldþrots , tóku þá heimskulegu ákvörðun að ráðast gegn stærsta,ríkasta og mikilvægasta ríki Evrópu.
Samt hafði Merkel sýnt það á NATO fundinum í Bukarest árið 2009 að mig minnir,að henni var full ljóst að árás af þessu tagi væri sjálsmorðsárás.
Eina skýringin sem ég sé er að hún var svo heilluð af Obama að hann gat fengið hana til að gera hvað sem er.

Þessi risavöxnu mistök  eru á pari við heimboð hennar til muslima heimsins að yfirtaka Þýskalnd. Sem er líklega líka ættað frá Obama en í andstöðu við yfirgnæfandi meirihluta Þjóðverja og Evrópubúa almennt.
Flestir herir Evrópu hafa eftirarandi reglu í bókum sínum.
" Whatever you do,dont march on Moskow"
Samt er eins og Evrópskum ráðamönnum sé ekki sjálfrátt. Þeir falla stöðugt í þessa sömu gryfju. Líka Ísleskir ráðamenn.



"Þýskaland og Rússland hafa aldrei stundað það sem Bandaríkin hafa stundað; að hvetja og styðja önnur ríki til fullveldis og sjálfstæðis, sem gerir þeim kleift að að nota þann sjálfsákvörðunarrétt þjóða sem Biblían boðar; sérstaklega Gamla testamentið"

Þessi klásúla er eins og andskotinn hafi párað hana með öfugum klónum ,svo ég noti orðfæri afa heitins.

Finnst þér afskifti Bandaríkjanna af orkumálum Þýskalands benda til að þeir vilji fóstra sjálfstæði Þýskalands.
Hvað um stöðugar árásir á lífskjör almennings í Rússlandi?
Hvað um árásir þeirra á Venesuela?
Hvað um árásir þeirra á Líbýu og þjófnaði þeirra á olíu landsins.
Hvað um þjófnað þeirra á gullforða Libýu
Hvað um árásir þeirra á Sýrland og þjófnaður þeirra á olíu Sýrlendinga?
Hvað um hótanir þeirra gagnvart Íslandi.
Hvað um útgerð þeirra á hryðjuverkamönnum sem veldur þjáningum og dauða um allan heim og eyðileggur hvert samfélagið á fætur öðru?

Bandaríkjamenn hafa aldrei stutt sjálfstæði neins ríkis.
Það sem þeir gera er að koma upp leppríkjum með hvaða ráðum sem er.
Fari þessi leppríki út af sporinu á einhvern minnsta hátt er þeim refsað tafarlaust og harkalega.

Afskifti Bandaríkjamanna af innanríkismálu Þýskalands er ágætt og nýlegt dæmi um þetta.
Annað örlítið eldra er þegar Joe Biden fór til Búlgaríu og neyddi stjórnvöld þar til að hætta samvinnu við Rússa um lagningu gasleiðslu og stöðvaði jafnframt framkvæmdir við kjarnorkuver Búlgaríu.
Bara gasleiðslan kostaði Búlgaríu 8% af landsframleiðslu að minnsta kosti. Líklega hefur kjarnorkuverið kostað annað eins.
Hvar var sjálfstæði Búlgaríu þá?

Varaforseti Bandaríkjanna hafði ekki miklar áhyggjur að að stöðva framþróun eins fátækasta ríkis Evrópu.

Bandaríkin liggja eins og mara á heimsbyggðinni allri og eru orðin stórkostlegur dragbítur á framfarir og þróun.
Vegna eigin óreiðu og ósamlyndis eru þau ekki lengur samkeppnisfær og reyna að bæta sér það upp með ofbeldi af öllu tagi.

Í gegnum heimssögun hafa stórveldi alltaf beitt önnur ríki ofríki,Sama hvort þau heita Bandaríkin ,Rússland ,Þýskaland,Frakkland eða Bretland,en aldrei í heimssögunni höfum við orðið vitni að örðum eins skepnuskap og Bandaríkin hafa sýnt af sé undanfarin 20 til 25 ár.
Það er aldrei upprof einn einasta dag.
Hvern einasta dag síðustu 20 ár hafa einhverjir verið drepnir eða limlestir einhverstaðar í heiminum fyrir atbeina Bandaríkjamanna. Hvern einasta dag.
Hvern einasta dag deyja börn um allan heim vegna lyfja og matarskorts af völdum yfirstéttar Bandaríkjanna.
Og það stafar ekki af ást þeirra á lýðræði og sjálfákvarðanaréttar þessara þjóða.
Það stafar að óheilbrygðri gróðafíkn og hömlulausri valdagræðgi Bandarísku elítunnar.

Borgþór Jónsson, 26.12.2019 kl. 15:08

7 Smámynd: Borgþór Jónsson

Dæmi um hörmuleg afskifti Bandaríkjanna var nýlegt uppþot gegn Rússum í Georgíu.

Á undanförnum árum hafa samskifti Rússlands og Georgíu verið að batna og samskiftin að aukast sem hefur fært Georgíu aukna hagsæld.
Rússar eru annar stærsti viðskiftaaðili Georgíu og uppspretta að lang stærtum hluta gjaldeyristekna þeirra.

Fyrir um ári síðan ferðaðist einn af drulluhölunum í utanríkisþjónustu Bandaríkjanna til Georgíu og lýsti opuinberlega þeirri skoðun sinni að ástandið væri óviðunandi og hættulegt.
Mestur hluti þessara 1,5 milljón Rússneskra ferðamanna væru án vafa njósnarar.

Nokkrumm dögum seinna verður stórkostlegt uppþot öfga þjóðernissinna og Rússneskir borgarar voru í stór hættu.

Dæmigerð viðbrögð Bandarískra stjórnvalda væru viðskiftabann og lokun, bankareikninga og þjófnaður á eigum borgara og ríkis viðkomandi ríkis.

Putin brást hisvegar ekki við eins og Kaninn hafði reiknað með.
Hann sagði að það kæmi ekki til greina að láta það bitna á allri Georgísku þjóðinni þó að hópur af leiguþýi Bandaríkjanna  hagaði sér með þessum hætti og viðskiftin héldu áfram þrátt fyrir andmæli Rússnesska þingsins.
Í fyrstu spiluðu Georgísk stjórnvöld með,en að lokum var eins og einhver skíma kæmist inn í brenglað hugskot þeirra og þau áttuðu sig á að það væri kannski ekki sniðugt að fórna hagsmunumm almennings á altari heimsveldisstefnu Bandaríkjanna.

Ef Putin hefði verið eins grunnhygginn og ofbeldisfullur og Bandarískir ráðamenn hefði þetta endað með ósköpum fyrir Georgísku þjoðina.

Vissulega mun taka einhvern tíma að græða þessi sár að fullu,en mér finnst líklegt að þetta hafi verið svanasöngur Bandarískra yfirráða í Georgíu.
Georgískur almenningur lætur varla bjóða sér svona aftur.

Borgþór Jónsson, 26.12.2019 kl. 15:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband