Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010

Fyrirtækin flýja írsku evruna

Það er svona sem evran mun láta lífið

Poul Krugman nóbels segir í dag að það bankaáhlaup sem nú er í gangi á Írlandi sé fyrirboði þess hvernig evran sem mynt mun láta lífið. Fyrirtækin treysta ekki lengur á þessa mynt, þau þora ekki að geyma fjármuni sína í þessari mynt, þau taka peningana út, þau færa sig, þau flýja yfir í ekta sjálfstæðar myntir fullvalda ríkja. Á Írlandi er þetta að gerast í slow-motion. 

Fyrir evruríki - og sérstaklega bankakerfi þeirra - fer sá tími að koma að kostnaðurinn við að hoppa fyrir evruhamra - og taka því sem svoleiðis allsherjarhruni fylgir - mun verða minni en sá kostnaður sem fylgir því að vera með evruna áfram sem gjaldmiðil landsins. 

Ef fyrirtækin fara frekar en að deyja í evrum, þá er þetta orðið sjálfgefið. Það er ekkert grín að búa við mynt sem hefur innbyggðar meðfæddar erfðir sjálfstortímingar. Evran er þannig mynt.  

Auður kapítals er ekki myntin evra. Þeir sem trúa því eru brennimerktir auðkenni heimskunnar.
 
 
Fyrri færsla
 
 

Lagaumhverfi evrusvæðis ónýtt. Regluverkið verra en ekkert. Stjórnsýsla ESB önd. Bankaáhlaup hafið.

Evrubjörgunarskilti
Þá vitum við það. Undir hótunum er fjármunum otað að ríkisstjórn Írlands. Henni er sagt að taki þeir ekki við, þá hafi þeir á svartri írskri samvisku sinni dauða sjö dverga Mjallhvítrar súgþurrkunar Merkel, sem nú hoppar um evrusvæðið með heimagerð þýsk sjálfspyntingartól, handa öllum sem ekki þegar eru þýskir og nískir. 
 
Írsk fyrirtæki þora ekki lengur að geyma peninga sína í evrubankakerfi landsins. Áhlaup á írska bankakerfið er hafið. Traustið á kraftaverk evrunnar er svona yfirþyrmandi. En Össur er í landinu, að deila út hlutlausum upplýsingum, sem Þorsteinn skaffaði.

Hlutverk yfirgreiddra skattlausra stjórnenda ESB og evrusvæðisins var að sjá til þess að myntin sem enginn þorir að nefna sínu rétta nafni lengur, myndi ekki verða að gjalli þó svo að bankar og dvergar sjö dyttu í það á meðan fjármagninu sem rann úr haughúsum seðlabanka Evrópusambandsins var otað að ekki-þýskum evruríkjum á neikvæðum raunstýrivöxtum - og þar af leiðandi sprengdi efnahag þessara evruríkja í loft upp.

Nú er sem dæmi verra að vera franskt ríkisskuldabréf en þau sem gefin eru út af ríkisstjórn Chile eða Indónesíu. Menn bíða bara eftir froðufalli franskra á eftir greiðslufalli dverga og þeirrar stundar þar sem evran breytist í ítalska líru og ekki neitt. 

Rannsóknarréttur evrureglunnar er þegar lentur í Dyflinni. Þríeyki ESB, AGS og Evrustapó. Á meðan heldur sérhannaður forseti ESB ræður um að þjóðríkin í Evrópusambandinu séu dauð, lygar og blekking (1).

Myndband; Þýskar efnahagsaðgerðir að "gera sig" í Evrópu
 
 
 
 
 
Fyrri færsla
 

Svartbókaferðir Þorsteins samhljóms Pálssonar

Lítil deili veit ég á manninum Þorsteini Pálssyni (sjá tengda frétt Morgunblaðsins hér neðst) - enda er ég nýfluttur til Íslands eftir 25 ára samfleytta búsetu í Evrópusambandinu. En eitt veit ég þó núna. Þorsteinn Pálsson er kjáni. Og eitt í viðbót veit ég. Hann var ritstjóri augnaloka Fréttablaðs Baugsmiðila. Miðill sá var með öll augu saumuð saman. Þorsteinn kom og sá ekki neitt sem ritstjóri þessa sorprits. Þökk sé meðal annars ritstjórn Þorsteins Pálssonar á Fréttablaðinu er Ísland margri tönninni fátækara í dag og liggur mikið lægra í sjó. Þorsteinn sá og gerði ekki neitt því hann er staurblindur. 

Nú er Þorsteinn kominn á staurblint stjá á ný. Nú er það fullveldi Íslands sem á að selja með svikum og prettum upplýsinga sem sóttar eru í smiðju ofurjarls Sovétríkjanna; í áróðurssmiðju Evrópusambandsins í Brussel.

Áróðurssmiðja Evrópusambandsins hefur sérhæft sig í að uppfylla sérþarfir síþyrstra manna. Hún afhendir þeim vörur sem hægt er að versla með. Varningur ESB er sérsniðinn og svo sérstakur að um hann gildir eftirfarandi þrennt.

1) "Óði hattarinn sagði Lísu í Undralandi að orð hafa þá meiningu sem þú vilt að þau hafi. Óði hattarinn hefði verið eins og heima hjá sér í Evrópusambandinu því þar fær orðið “nei” þýðinguna “já” og pólitískum áróðri er básúnað út sem upplýsingum."

2) “Hið sanna markmið áróðurs er ekki að sannfæra né hvað þá að telja fólki trú um eitthvað. Nei, hið sanna hlutverk áróðurs er að búa til heilsteyptan jafnsléttan opinberan jarðveg þar sem fyrstu sprotar hugsana trúvillinga munu birtast sem brak og brestir mishljómsins. Í nótnabók Evrópusambandsins eru ósamhljóma raddir ekki liðnar."  

3) Nú er tími nýrra upplýsinga gamalla Þorsteina að renna upp á Íslandi. Markmiðið er að fá sem flesta til að halda að Evrópusambandið sé eitthvað annað en pólitík, eitthvað annað en stórpólitík. Ef Evrópusambandinu tekst að fá íslenska menn til að trúa því að allt varðandi sambandið sé eitthvað annað en venjuleg pólitík, þá munu dyrnar að 700 ára þykkri bankahvelfingu íslensku þjóðarinnar - sem geymir og gætir fullveldis Íslands - opnast eins og peningaveski þeirra, sem til dæmis gegnsýrðu íslenskt þjóðfélag með boðskap Baugs-Fréttablaðsins. Með þöggun, svikum, vesaldómi, þrælslund og aumingjaskap. Þess vegna er Evrópusambandinu svona annt um að fá óskert tækifæri til að básúna út pólitískum áróðri sínum sem upplýsingum. Þá afvopnar sambandið alla sanna umræðu og tekst að fá heilbrigða menn til að tapa áttum hefða. 

Þannig lenda saklausir menn í hinni alræmdu gildru hlutlausrar umræðu Evrópusambandsins. Þá tekst ESB og liðsmönnum þess - og þar á meðal Þorsteini Pálssyni - að afvopna sannleik heilbrigðra manna og góða menn til að tapa sínum meðfædda áttavita. Í þessari fölsku umræðu tapa öflugustu menn auðveldlega áttum, og vita hvorki upp né niður hvernig þeir eiga að bregðast við hinu upplogna hlutleysi umræðunnar.
 
Þetta trix fær góða menn til að gleyma hinum algilda og óumbreytanlega sannleika um að hlutlaus umræða um pólitík er ekki til. Enginn - ég endurtek - enginn getur komið hér og sagt mér, né neinum öðrum Íslendingi, að til sé hlutlaus umræða og upplýsingar um pólitík. Allir Íslendingar vita betur. Jafnvel þeir ófæddu. Það er þessa vegna sem Evrópusambandið er miklu verra en áróðursdeild Sovétríkjanna var, því þar vissu allir sæmilega heilbrigðir menn að um forhertan áróður var að ræða. En þetta lyklamál er sem sagt miklu verra og lævísara hjá Evrópusambandinu en það var hjá gamla Sovét. Þessu falla veikir menn, eins og Þorsteinn Pálsson, fyrir. 

Takist Evrópusambandinu og leiguliðum þess að gyrða herferðina á þennan þrautreynda hátt, þá fá þeir hina upplýstu hlutlausu umræðu sína í gegn. Þá fá þeir upplýsingar Þorsteina dulbúnar sem pólitískan áróður. Evrópusambandið hræðist ekkert eins mikið og sanna upplýsta umræðu. Þetta er sannleikurinn um Evrópusambandið og liðsmenn þess. 

Írar vita þetta manna best. Þeir grófu upp svartbók ESB. En svona upplýsingar, eins og Írar fundu, fær Þorsteinn Pálsson ekki í Kremlarhöllum Brussels. Ef hann kynni hinsvegar á tölvur, þá myndi hann vita þetta. En það væri lige meget, því þá myndi hann bara ekki segja neinum frá neinu. Það er þessa vegna sem ég segi ykkur þetta hér og bendi ykkur á það sem Írar komust að:
 
Eur lex 52002DC0350 1.1. ‘Genuine communication by the European Union cannot be reduced to the mere provision of information.’ og hér
 
 
Upplýsingar Evrópusambandsins eru ekki upplýsingar. Þær eru áróður. Það stendur blátt á gulu í svartbók upplýsingafölsunar Evrópusambandsins í Brussel. Miljörðum evra er varið í áróður fyrir pólitík sambandsins á hverju ári. Gleymið ekki að hinum lagalega ramma fyrir efnahagslegri sameiningu ríkja Evrópusambandsins er þegar búið að koma fyrir, þeim kafla er lokið. Það sem er í gangi í Evrópusambandinu núna er hinn pólitíski samruni ríkja sambandsins. Þessu má aldrei gleyma því þetta er svo ákaflega mikilvægt. Þeir sem predika ESB-aðild á Íslandi eiga að vera heiðarlegir og segja Íslendingnum um hvað er að ræða. Þeir eiga að segja; leggjum niður Ísland og göngum í Bandaríki Evrópu. Þeir verða að vera tilbúnir til þess gjörnings. Annars eru þeir óheiðarlegir.   

Kæri Íslendingur. Trúir þú hlutlausum upplýsingum Sjálfstæðisflokksins um pólitík Sjálfstæðisflokksins? Vinstri grænna um pólitík Vinstri grænna? Samfylkingarinnar um pólitík Samfylkingarinnar? Framsóknarflokksins? Eða ríkisstjórnarinnar um pólitík ríkisstjórnar Íslands? Auðvitað ekki. Þú veist að um venjulega pólitík er einungis að ræða. En ríkisstjórn Evrópusambands meginlandsins á trilljón sinnum meiri og fleiri peninga en allir þessir til flokkar til samans. Peninga til að pakka pólitískum áróðri sínum inn og básúna honum út sem upplýsingum. Láttu ekki breyta þér í Evrapa með stórgrýtiskasti upplýsinga Þorsteina. Höldum höfði. Allir heilbrigðir menn eiga einmitt að óttast upplýsingar Evrópusambandsins. 
 
Opið bréf til Þorsteins Pálssonar 
 
Þökk sé Víglundi manni Þorsteinssyni les Þorsteinn Pálsson árangurslaust bloggsíðu mína oft á hverjum degi. Hæ Þorsteinn, ertu kominn að málinu - er þetta allt að gera sig - eftir fréttabaðið? Þessi pistill minn er ekki hlutlaus. Ég held með Íslandi.
 
Fyrri færsla
 
 

mbl.is Eiga ekki að hræðast upplýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þýskalandsvæðing Evrópu og Öxulveldi sníkjudýra

Evruhagkerfi í meðferð
Fáir efast lengur. Verið er að Þýskalandsvæða Evrópu með ofbeldi í gegnum myntbandalag Evrópusambandsins. Þýskaland þeysir um Evrópu eina ferðina enn og lemur heimsálfuna til hlýðni og niðurskurðar þegar hið algerlega öndverða ætti að eiga sér stað. Þýskaland heilaþvær stjórnmálastéttina sem nýlega komst í hrunfeitt og fitnar nú á ný a la 1970 á kostnað þeirra sem greiða þeim launin. Tími fáráðlinga stjórnmálastéttarinnar er kominn aftur. Og þá þurfti myntbandalag Evrópukrata endilega að hrynja - eins og spáð hafði verið, en enginn hlustaði - og þetta fyrirbæri þolir því miður ekki viðurkennd og prófuð verkfæri úr kistum John Maynard Keynes og klassískrar hagfræði.

Heilaþvottaefni Þýskalands er gamalt bras á dósum og heitir merkantílismi (kaupauðgisstefna). Hún gengur í megin dráttum út á að flytja út vörur til annarra pláneta og að fá alla Evrópu til að gera hið sama. Útflutningurinn verður að enda á öðrum plánetum því öll Evrópa, Kína og öll Asía ætla að auðgast svo mikið á kostnað annarra landa. Saman ætla þau öll að flytja út sínar vörur, en ekki kaupa neitt utan frá af neinum öðrum. Þetta eru sníkjudýr heimsins. Eftirspurn heima fyrir í löndum þessum hefur verið eyðilögð af miðalda hagfræði stjórnmálastéttar Evrópu, áætlunarbúskap, mauraverkfræði og kommúnisma. 

Seðlabanki Evrópusambandsins er afskræming sem byggir undir þennan sjúkdóm. Hann er það versta sem gat komið fyrir Evrópu á friðartímum. Honum mun framtíðin ekkert þakka. Hann er að verða enn verri en fyrirmyndin þ.e.a.s sá klumpfótur af málmrusli sem kom haltrandi út úr verksmiðju manna með einglyrni, pípuhatta, annað heilahvelið gegnsósa, en hitt nýlendudautt; gullfótarfábjánar heimsins nefnast þeir. Útdauðir heilahvalir meginlands Evrópu ganga nú aftur. 

Svo illa er komið fyrir heiminum núna að eini stóri seðlabanki heimsins sem sýnir samfélaginu ábyrgð á krepputímum massífs atvinnuleysis og í brotthvarfi hagvaxtar, er seðlabanki Bandaríkjanna undir stjórn Ben S. Bernanke.
 
Gerald Epstein orðar þetta vel; "Undarlegir hlutir gerðust á leið leiðtoga heimsins á G-20 ráðstefnuna sem haldin var í síðustu viku. Álit heims-elítunnar hefur snúist gegn aðgerðum seðlabanka Bandaríkjanna (QE2 prógrammið). En þessi seðlabanki er eina meiriháttar stefnumarkandi efnahagsstofnun heimsins sem hefur sett í verk aðgerðir samkvæmt kreppu-forskriftum John Maynard Keynes. Þarna er staðið andspænis massaatvinnuleysi í stærstum hluta hins þróaða heims, en ekkert er gert, nema í Bandaríkjunum. Gagnrýni elítunnar fær undirtektir á hinum furðulegustu stöðum og jafnvel hjá framsæknum hagfræðingum. Á meðan fær merkantílista-stefna Þýskalands og Kína ókeypis flugfar og sendiboðar með hálm í heila stað fá að hrópa og æra alla með skilaboðunum um "að ríkin hafi ekki efni á neinum [Keynesian] aðgerðum því allir skulda svo mikið".   

Poul Krugman slær botninn vel í þetta; "staða heimsins er ekki flóknari en svo að við erum í miðju skulda-hjöðnunarferli, þar sem þeir sem skuldsettu sig mikið eru að greiða upp gamlar skuldir. Vatnaskil kreppunnar þvingar stórskuldara til að greiða skuldir sínar hratt. En á meðan verður einhver að muna eftir því að sú horfna eftirspurn sem þessir skuldarar bjuggu til í hagkerfunum á meðan þeir gíruðu upp skuldir sínar, verður einhver að bæta upp, því annars fellur allur heimurinn niður í verðhjöðnun" - þ.e.a.s ofan í djúpan skít.

Það er einmitt þetta sem seðlabanki Bandaríkjanna veit. Því framkvæmir hann samkvæmt þekkingu sinni. Það er ansi hart, eftir að hafa komið heiminum nokkrum sinnum til helvítis, að Evrópumenni meginlandsins skuli ennþá ekkert hafa lært af sögunni, annað en að saga alltaf undan sér tilveruna og þursast áfram á kostnað annarra. Svona er að hafa gerviseðlabanka og gervimynt. Trabant seðlabankanna er ECB.
 
Evrópusambands-handjárnuð ríkisstjórn Jóhönnu ESB Sigurðardóttur hefur keypt sér þýskan Trabant. Honum er ekið af yfirfáráðlingi Íslands; Steingrími AGS Sigfússyni í djúpum skít. Þar sitjum við öll föst. 

 
Tengt efni
 
Fyrri færsla
 

Af hverju er Evrópusambandið orðið kirkjugarður?

Hvenær skyldi Þýskaland yfirgefa sökkvandi skipið? 
 
Hvar endar þetta? Listinn yfir þau lönd sem eru að geispa golunni inni í Evrópusambandinu lengist bara. Í gærkvöldi hvöttu yfirmenn Írlands í Brussel heimastjórn landsins til að sækja sér ölmusu hjá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum og í ríkisgjaldþrotasjóði evrulanda - á okurvöxtum (1)

G) Evru-Írland er að þrotum komið. AGS bíður eftir faxi frá Dyflinni (2) (atvinnuleysi 14,1%)
 
J) Evru-Grikkland er komið í ESB-þrot og er í umsjá AGS og ríkisfjármálahersveita ESB (atvinnuleysi 12,X%)
 
A) Evru-Portúgal er vel hugsanlega að komst í ESB-þrot. Skuldatryggingaálag landsins er meira en tvöfalt hærra en á íslenska ríkið og vaxtakjör verri. Er þetta evru vörn Samfylkingarinnar? (atvinnuleysi 10,6%)
 
L) ESB-Ungverjaland komst i ESB-þrot og er hjá AGS (atvinnuleysi 10,8%)
 
D) ESB-Lettland komst í ESB-þrot og er hjá AGS (atvinnuleysi 19,5%)
 
Þ) ESB-Rúmenía komst í ESB-þrot og er hjá AGS (atvinnuleysi 7,1%)
 
R) Evru-Spánn er svo stórt að menn þora varla að hugsa hugsunina til enda. En þar eru málin í mikilli gerjun í 21% atvinnuleysi og hríðversnandi skilyrða á fjármálamörkuðum.

Hvað mun gerast nú um helgina og í næstu viku? 

Heimurinn fyrir utan kirkjugarð Evrópusambandsins er góður og stór staður. Þar er best að vera. Frelsið er aðeins fyrir fullvalda ríki.  
 
 
Fyrri færsla
 

Enn þynnist eggjaskurn myntbandalags ESB: lokað á írska bankakerfið

Myntbandalagið sekkur 
 
Saga dagsins er sú að Írland féll í nótt í gegnum næfurþunnt gólf peningamarkaðs þeirra landa sem eru svo óheppin að hafa látið blekkja sig inn í myntbandalag Evrópusambandsins. Bankakerfi Írlands á nú að vera nokkuð lokað og læst úti frá peningamörkuðum alþjóðlegs fjármagns (FT). Mörkuðum er orðið ljóst að í pakkaboði myntbandalagsins eru aðeins tvær tegundir á borðum: niðurskurður, ríkisgjaldþrot eða hvort tveggja. Evran er ekki trygging.   

Nú halda menn að næsta skref Íra sé að afklæðast evru-smokk Samfylkingarinnar og láta skjaldborg Evrópusambandsins ýta sér nöktum í fang Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins, sem Bandaríkin hafa ákveðið að aðstoða, og sem einnig veitir ríkisgjaldþrotasjóði ESB aðstoð við skiptaráðin. 

Nota þarf nú enn stærri snjóþrúgur þegar gengið er á næfurþunnri eggjaskurn myntbandalags Evrópusambandsins. Inni í egginu veit enginn hvað er að gerast. Evran gegn dal hefur fallið á mörkuðum síðustu daga, þrátt fyrir peningaprentverki fyrir vestan.
 
Stjóri stærsta gjaldeyriskaupasjóðs heimsins, John Taylor, segir að evran verði álíka mikils virði og ítölsk líra eftir aðeins nokkra mánuði. Það eina sem getur hindrað að þetta gerist er að stofnuð verði Bandaríki Evrópu í einum grænum hvelli. Aðeins þannig geti mýmörg hálf gjaldþrota lönd myntbandalags Evrópusambandsins komist alveg til botns í gullforða og peningakistum Þýskalands.
 
Íslenskir fræðimenn segja að þetta muni bara gleðja þýsku þjóðina, fullveldi Írlands stóraukist og að friður í Evrópu sé þar með gulltryggður. Luck of the Irish
 
Fyrri færsla

ECB Trichet: Sníða þarf 27 lönd ESB að þörfum seðlabanka Evrópusambandsins

ECB's Trichet: "Europe Must Evolve Toward Greater Federalism" 
 
Æðsti stjórnmálaleiðtogi seðlabanka Evrópusambandsins, hinn fyrrverandi franski opinberi starfsmaður, Jean-Claude Trichet frá Lyon, hefur talað. Hann sagði það sem stendur í yfirskriftinni hér að ofan; "Evrópa (hér á hann að sjálfsögðu við ESB) þarf að þróast í enn meira sambandsríki." Ástæðan? Jú, annars dettur þessi mynt hans í sundur og Evrópan verður að engu. Vegna þessarar "hlutlausu" hættu þarf að taka eins og rúmlega 27 ríki niður í kjallara seðlabankans, kippa þar af þeim restinni af fullveldinu, pakka þjóðþingum þeirra saman, leggja niður fánann og troða kjósendum þeirra upp í súgþurrkun ESB-mafíunnar í Brussel. Svo verða gefnir út bæklingar.
 
 

****************

First of all, the existing fiscal rules embodied in the Stability Pact must be "strictly respected," Trichet stressed in a panel discussion on European governance here.


The ECB has fulfilled its mission in guaranteeing price stability, he said with satisfaction, noting that inflation expectations in the Eurozone are better anchored than in any other industrialized country.


Now it is up to governments to construct a kind of federal governance as a counterpart to the monetary federalism, Trichet said, urging them to go "as far as possible" in the direction of a "quasi budgetary and economic federation."


"It is absolutely necessary to change the governance of Europe," Trichet insisted. "We don't know where the march toward European unity will end."


Better governance will also bolster confidence, which is necessary for a return to sustainable growth, he noted.


Surveillance of fiscal policies should be flanked by surveillance of other economic criteria, for example unit labor costs and inflation, he said. Countries that ignore the ECB's price stability benchmark "take considerable risks," he warned.

**************** 

 
Fer þetta ekki að minna dálítið á bókabrennur nasista í Þýskalandi? Hér er það hins vegar ekki ofsahrifinn almenningur í Evrópu sem hendir bókum sínum á bálið. Nei, hér er það ofsahrifin stjórnmálaelíta ESB, sem bíður eftir að geta hent stjórnarskrám rúmlega 27 ríkja á það bál sem brennur svo látlaust af pólitískri græðgi í hallargarði ESB-mafíunnar í Brussel.

Það var eins gott að Jean-Claude Trichet lagði ekki til neina þjóðlega Davíðssálma hér, því þá hefðu aðal gungur & druslur Íslands gengið amokk í fullkomnum takt af bræði. Og það viljum við ekki. 

Þetta er voðalega gott. Þetta passar eitthvað svo vel, tímalega séð, það sem Trésettið frá Lyon segir. Það er um að gera að láta alla halda að þetta sé allt saman ríkisstjórnum ESB að kenna, því þá er hægt að gera margt með svona miklum skömmum á sem skemmstum tíma. Tíminn er það sem Trésettið óttat mest. En hagfræðingurinn Paul de Grauwe hefur séð í gegnum Trésettið frá Lyon. Hann veit að það var sjálfur seðlabanki Evrópusambandsins sem sprengdi myntbandalag ESB í loft upp, og þó nokkuð mörg lönd þess í leiðinni.

Sem sagt; skuldakreppa Evrópusambandsins keyrir á fullu stími. Hún mun birtast okkur sem svartur ísbrjótur á þurru landi og sem stanzar ekki fyrr en hann þrýstir sér á milli augnatófta þeirra sem sitja andvana af skömm við við gluggana í stjórnarráði Íslands - og bíða þar eftir Davíð ennþá.

Munið kæru lesendur: þið lásuð þetta ekki fyrst á DDR-RÚV. En ráðfærið ykkur samt fyrst við aðal-rauðvínshagfræðing stofnunarinnar, Egil hinn helga.
 
Krækjur
 
Fyrri færsla

Evru-Írland; allur tekjuskattur næstu 7 ára fer í bankabjörgun

Skuldatrygginaálag á ríkisskuldir Írlands skaust fram úr Argentínu í gær. Það gerðist vegna þess að Írland er orðið evruríki í ánauð evrubankakerfis. Í tilefni dagsins kom ríkisfjármála-marskálkur Evrópusambandsins í heimsókn til Dyflinar. Sá foringi er kommissarinn Olli Rehn sem stækkaði. Yfirkerling Evrópusambandsins orðaði þetta mjög vel; "látum foringjana um þetta", 

Margot Wallström:
"Let's leave it to the leaders" (hér)

 
Írski hagfræðingurinn Morgan Kelly birti í gær hræðilega niðurstöðu um gang fjármála írska evruríkisins. Þar kemst hann að þeirri niðurstöðu að björgun írska bakakerfisins muni kosta ríkissjóð Írlands svo mikið að kostnaðurinn jafngildi öllum þeim tekjuskatti sem Írar munu greiða á næstu 7 árum. Hann segir að verði þetta raunin og á þeim lánskjörum sem björgunarsjóður Evrópusambandsins bjóði í boðhaldinu, þá sé Írland fyrir fullt og allt algerlega ríkisgjaldþrota.
 
As a taxpayer, what does a bailout bill of €70 billion mean? It means that every cent of income tax that you pay for the next two to three years will go to repay Anglo’s losses, every cent for the following two years will go on AIB, and every cent for the next year and a half on the others. In other words, the Irish State is insolvent: its liabilities far exceed any realistic means of repaying them. 

 
Næstum samdægurs segir gerilsneyddur forseti Evrópusambandsins, Herman Van Rompuy, að hann vilji ekki hafa kjósendur. Hann vill bara hafa lesendur. Getur þetta orðið betra? Þetta kom fram í nýrri bók þessa forseta yfir öllum fimm hundruð milljón manns Evrópusambandsins, - sem kusu hann ekki. Kannski veit allt þetta fólk ekki af manninum í Róm ennþá. 

Hér fer föst gengisskráning Þorvalds G. að blikna. Ég hélt eitt augnablik að hann væri sú mannlega vera sem héldi sér fastast í þá einu óumbreytanlegu stærð efnahagsmála sem haldið hefur fullu verðgildi frá upphafi: heimsku manna. Gengi heimskunnar stendur bjargfast á hanafæti með innbyggðri rekkju og þaki. Baba Jaga gullfótargildra Evrópu glansar og myntbrandarinn evra geislar léttum aðhlátri út um allar heimsins jarðir. En yfirstjórn ESB slær Þorvald margfalt út í trú sinni á eldspýtustokk, einn stein og sjö sardínur.   

Ó! - ekki nóg með þetta. Veruleikafirrtur fjármálaráðherra Þýskalands kom akandi á súgþurrkandi dráttarvél Angelu Merkel og fór samdægurs yfir allt með herfi hennar hátignar. Þessi dráttarvél gengur fyrir viðskiptahalla annarra evruríkja og Bandaríkjanna og fékkst í tank hennar með innvortis gengisfellingu Þýskalands á evrusvæðinu og fölsuðu gengi þýska hagkerfisins síðastliðin 12 ár. Fjármálaráðherrann þýski herfaði það ofan í heiminn að þúsund miljarða dala viðskiptahagnaður Þýskalands við nokkur súgþurrkuð evrulönd og ein Bandaríki, hefði fengist í hlöðu með mikilli "samkeppnishæfni" - og ekki með gervi-gengi. "Vaxtarlíkan" bandaríska hagkerfisins væri í djúpri kreppu, sagði hann. Bandaríkin "lifðu á lánum" og að fjármálageiri þess væri ofvaxinn. 

Fjármálaráðherrann veit ekki hverjir það eru sem hafa fjármagnað viðskiptahagnað Þýskalands. Hann veit ekki hvað viðskiptajöfnuður er. Eini móralski jöfnuður sem Þýskaland þekkir er hagnaður þess á kostnað annarra. Sá maður sem fann upp hugtakið "jöfnuður" veit hins vegar að þetta er núll-jafna. Summan er alltaf núll. Schaeuble veit heldur ekki að fjármálageirinn í ESB er stærri hluti af hagkerfinu í ESB en í BNA og að hagvöxtur Þýskalands heyrir sögunni til. Að hrun þýsks hagvaxtar var svo massíft síðasta ár að bara smá bati fær tölurnar til að verða afar þakklátar. En auðvitað er best að lifa á þjófnaði. Það sjá menn hér. 

Þetta er fjármálaráðherrann á evrusvæðinu sem er í faðmi Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins. Brandara myntinni hans var bjargað af Bandaríkjunum í maí. Landinu hans var bjargað af Bandaríkjunum áratugum saman. Friðurinn í landi hans var varðveittur af Bandaríkjunum og bankakerfi lands hans var bjargað frá glötun af einmitt seðlabanka Bandaríkjanna, vorið 2009. Restin af evrusvæðinu er nú aftur - og einu sinni enn - komið undir hælinn á þessum vanvitum Evrópu og því einfaldlega komið fyrir á gjaldþrotbekk, sem þeir vesalingar og asnar sem fjármögnuðu þann viðskiptahagnað sem Þýskaland liggur nú á eins og ormur á gulli - sem skiptaráðandi ESB. Hvernig stendur á því að Þýskaland hefur haft tvo fjármálaráðherra í röð sem eru fullkomlega innilokaðir frá raunveruleikanum? Er öldrunarvandamál Þýskalands orðið svona agalega framskriðið? Ég spyr.
 
Bandaríkjamenn tóku þessum fyrirlestri með jafnaðargeði og afsökuðu manninn með skýrskoti til vandamála hans á heimaslóðum. En auðvitað vill Evrópa hér að Bandaríkjamenn afsaki þá abbý-normal löngun að vilja endilega freista þess að bjarga við efnahags lands síns, svo Þýskaland geti nú áfram haft svona heimska viðskiptavini. Hér hefði James Baker þurft að vera.
 
Krækjur
 
 
Fyrri færsla
 
 

Prófessor Max Otte; evran á 4-6 ár eftir ólifuð. Það verður gott fyrir Evrópu að losna við hana


Prófessor Max Otte var einn fárra manna sem sáu fyrir það fjármálahrun og þá efnahagskreppu sem skall á heiminum á árunum tveimur, 2007-2008.

 
Er þetta þá svona?

Innst inni vita flestir sem hugsa, að dagar evrunnar eru taldir. Hin pólitíska stétt veit þetta þó ekki, ennþá. Fyrir fimm mánuðum vissi stéttin heldur ekki að hún fengi eina helgi til að bjarga evrunni frá upplausn. Þetta gerðist í maí. Financial Times hefur skrifað ágætis þriggja greina seríu um björgunina. 

Það vefst hins vegar dálítið fyrir okkur, sem hugsum, hversu marga daga vil þurfum að telja niður til endaloka evrunnar. Prófessor Max Otte kom með ágætis boð; 4-6 ár. 

Fyrstu viðlagasjóðir til að mæta upplausn evrunnar eru þó komnir á sinn stað, þökk sé Bandaríkjunum.

Síðan vitum við það að Axel Weber seðlabankastjóri Þýskalands vill helst ekki starfið sem nýr bankastjóri seðlabanka Evrópusambandsins. Hann vill ekki starfið.

Þegar mestu og innilegustu áhugamenn og aðdáendur evrunnar, menn eins og Wolfgang Munchau, eru farnir að skrifa opinberlega að þeir sjái þetta gerast, og að þetta sé reyndar að verða óumflýjanlegt, þá er það nokkuð merkilegt. Svo ekki sé meira sagt. Það koma reyndar fram fleiri og fleiri hugsandi menn sem segja að evran VERÐI að fara.
 
Eftir, sem og áður, mun Seðlabanki Íslands og krónan okkar standa.  
 
Tengt efni
 
Fyrri færsla

Írland í dag; hvar eru Lissabon-fjárfestingarnar? Hvar eru Lissabon-atvinnutækifærin?

We want the Lisbon jobs now!
We want the Lisbon jobs now! 
 
Alþýðuhreyfingin á Írlandi (Peoples Movement) stóð fyrir mótmælum gegn samtökum atvinnurekenda í vikunni. Skiltin sem meðlimirnir báru voru mörg hver frá síðustu en endurteknu kosningum um nýju stjórnarskrá Evrópusambandsins - dulnefnd; Lissabon sáttmálinn

Þegar Írar kusu nei í þjóðaratkvæðagreiðslu um þessa nýju stjórnarskrá Evrópusambandsins, þá var ártalið 2008. En því miður; í háborg afskræmingar lýðræðisins, já í Evrópusambandinu, var þetta þjóðaratkvæði Íra ekki tekið gilt.   

Sjá viðtal við eina æðstu kerlingu (takk Kolbrún) þessa sambands hér að neðan. 

En nei. Írar voru pískaðir inn í kosningabúrin á ný því Brussel þurfti á jái að halda. Nei er ekki tekið gilt í ESB. Áður en allt þetta gerðist höfðu Frakkar og Hollendingar fellt frumritið í þjóðaratkvæðagreiðslu heima hjá sér. En svo var sáttmálinn wordaður & vínklaður upp á nýtt í ritvinnslu þeirra sem enginn kaus. Út úr því kom það sem ekki mátti kalla stjórnarskrá lengur, þ.e.a.s. út kom sminkuð marggóð sósíaldemókrataísk metrópólítönsk kerling með dulbúna stjórnarskrá í skjalatöskunni. Það þurfti jú að ljúga þessu í gegn hjá 27 þjóðum Evrópusambandsins. Eins gott var standa sig því stykki. Bjarga þurfti andlitum þeirra sem enginn kaus. Á ESB tungumáli var þetta framferði kallað að "bjarga Evrópu".  

Þessi steypa var svo sett aftur út í þjóðaratkvæðagreiðslu á Írlandi. Nú dugðu engin mjúk vettlingatök. Írska þjóðin var hrædd frá sans og viti til að segja já. Atvinnurekendur, þið vitið, sögðu að Írland myndi sökkva ef Írar kysu ekki rétt í þetta skiptið. ESB tók upp pumpuverkið og dældi stolnum peningum úr fölsuðum ársreikningum sambandsins inn í kosningabaráttuna á Írlandi. Mykjan lak og Írlandi var drekkt í þeim ósóma. Engin þjóð í öllu Evrópusambandinu var spurð álits á stjórnarskránni, nema Írar, tvisvar!  

Rauðvínshagfræðingurinn Egill hinn helgi Helgason hefur kannski tekið þetta mál fyrir hjá DDR-RÚV á Íslandi á sínum tíma. En ekki veit ég það, því þá bjó ég í ESB. Þið skuluð samt ráðfæra ykkur við þann mann allan og helst einhvern erlendan gest hans líka.  

Nú vilja Írar fá að sjá þessar fjárfestingar sem óði hattarinn í ESB lofaði þeim. Þeir vilja líka fá atvinnutækifærin sem þeim var lofað. En staðan hins allra írskra vega er sú að Írland siglir harðbyri í ríkisgjaldþrot. Hvorki meira né minna. Enginn vill fjárfesta á Írlandi. Í gær gáfu rússneskir ríkisfjárfestingarsjóðir út blátt bann við því að kaupa skuldabréf írska ríkisins. Þeir bönnuðu evrulandið Írland. Halló! Bankakerfi Íra er allt gjaldþrota og hvílir sem tröllskessa á herðum þjóðarinnar. Fasteignaverð eru fallin um 40-50 prósent og fólkið þarf að yfirgefa heimili sín. Skuldir fólks hafa ekki lækkað þó svo að laun fólks hafi lækkað í niðurskurði og mikilli verðhjöðnun.

Þær "erfiðu" eignir sem írska ríkið yfirtók úr bókum bankanna til að létta undir með þeim (NAMA), eru orðnar lítils virði. Þær voru lýstar  73 prósent ónýtar og vanskila í fyrradag. Atvinnuleysi á Írlandi er meira en tvöfalt hærra en á Íslandi, eða 14,1 prósent . En já, Írar hafa jú þessa svo kölluðu evru með gríska tákninu € prentað á alla seðla og myntir.  

Það átakanlega er að lánshæfnismatsfyrirtækið Moody's notar nú hrun Finnlands árin 1990-1993, löngu áður en það gekk í ESB, til að útskýra hvert Írland, Grikkland, Portúgal og Spánn stefna núna. En staða þessara ríkja er bara mörgum sinnum verri en staða Finnlands var þá, því Finnland hafði það sem skiptir þjóðir mestu máli; sína eigin mynt, sitt eigið gengi og vaxtavopn. Það hafði allt fullveldi þjóðarinnar - og notaði það!  

Blábjánaverk ESB er engu líkt. Árangur þess er einstaklega falleg sovésk þróun í öllu Evrópusambandinu. Evrópusambandið er nú orðið sterkasta sundrungarafl Evrópu. Enda er ekki langt að sækja fyrirmyndina. 
 
Þrátt fyrir björgunarsjóð Evrópusambandsins og Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins er skuldatryggingaálag á 5 ára ríkisbréf Írlands nú á skrifandi stundu 581 punktar - eða tæplega tvöfalt hærra en á skuldabréfum ríkissjóðs Íslands. Mynt Íslands er íslensk króna.
 
Það er meðal annars vegna krónunnar - okkar eigin myntar í fullvalda ríki - sem ríkissjóði Íslendinga bjóðast betri lánskjör en ríkissjóði Evru-Írlands standa til boða.
 
 
 
2008; Margot Wallström kerling 
 
  
Hér fyrir neðan fjallar BBC Hard Talk um stöðuna eins og hún var í síðastliðnum maí mánuði. Talað er við írska hagfræðinginn og fyrrum seðlabankamann, David McWilliams, sem áður hefur lagt til að Írland yfirgefi myntbandalagið og fari "íslensku leiðina". Einnig er talað við evrutrúarmanninn Thomas Mayer úr þýska stórbankanum Deutsche Bank, sem skuldar næstum alla landsframleiðslu Þýskalands. Svitna hér.
 
 Maí 2010 - hluti 1: skuldatryggingaálag Írlands var þá 200p en er núna 581p, eða tæplega þrefalt hærra en í maí. 
 
 
Maí 2010 - hluti 2: skuldatryggingaálag Írlands var þá 200p en er núna 581p, eða tæplega þrefalt hærra en í maí
 
 
Maí 2010 - hluti 3: skuldatryggingaálag Írlands var þá 200p en er núna 581p, eða tæplega þrefalt hærra en í maí 
 
Tengt efni
Fyrri færsla

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband