Leita í fréttum mbl.is

Svartbókaferðir Þorsteins samhljóms Pálssonar

Lítil deili veit ég á manninum Þorsteini Pálssyni (sjá tengda frétt Morgunblaðsins hér neðst) - enda er ég nýfluttur til Íslands eftir 25 ára samfleytta búsetu í Evrópusambandinu. En eitt veit ég þó núna. Þorsteinn Pálsson er kjáni. Og eitt í viðbót veit ég. Hann var ritstjóri augnaloka Fréttablaðs Baugsmiðila. Miðill sá var með öll augu saumuð saman. Þorsteinn kom og sá ekki neitt sem ritstjóri þessa sorprits. Þökk sé meðal annars ritstjórn Þorsteins Pálssonar á Fréttablaðinu er Ísland margri tönninni fátækara í dag og liggur mikið lægra í sjó. Þorsteinn sá og gerði ekki neitt því hann er staurblindur. 

Nú er Þorsteinn kominn á staurblint stjá á ný. Nú er það fullveldi Íslands sem á að selja með svikum og prettum upplýsinga sem sóttar eru í smiðju ofurjarls Sovétríkjanna; í áróðurssmiðju Evrópusambandsins í Brussel.

Áróðurssmiðja Evrópusambandsins hefur sérhæft sig í að uppfylla sérþarfir síþyrstra manna. Hún afhendir þeim vörur sem hægt er að versla með. Varningur ESB er sérsniðinn og svo sérstakur að um hann gildir eftirfarandi þrennt.

1) "Óði hattarinn sagði Lísu í Undralandi að orð hafa þá meiningu sem þú vilt að þau hafi. Óði hattarinn hefði verið eins og heima hjá sér í Evrópusambandinu því þar fær orðið “nei” þýðinguna “já” og pólitískum áróðri er básúnað út sem upplýsingum."

2) “Hið sanna markmið áróðurs er ekki að sannfæra né hvað þá að telja fólki trú um eitthvað. Nei, hið sanna hlutverk áróðurs er að búa til heilsteyptan jafnsléttan opinberan jarðveg þar sem fyrstu sprotar hugsana trúvillinga munu birtast sem brak og brestir mishljómsins. Í nótnabók Evrópusambandsins eru ósamhljóma raddir ekki liðnar."  

3) Nú er tími nýrra upplýsinga gamalla Þorsteina að renna upp á Íslandi. Markmiðið er að fá sem flesta til að halda að Evrópusambandið sé eitthvað annað en pólitík, eitthvað annað en stórpólitík. Ef Evrópusambandinu tekst að fá íslenska menn til að trúa því að allt varðandi sambandið sé eitthvað annað en venjuleg pólitík, þá munu dyrnar að 700 ára þykkri bankahvelfingu íslensku þjóðarinnar - sem geymir og gætir fullveldis Íslands - opnast eins og peningaveski þeirra, sem til dæmis gegnsýrðu íslenskt þjóðfélag með boðskap Baugs-Fréttablaðsins. Með þöggun, svikum, vesaldómi, þrælslund og aumingjaskap. Þess vegna er Evrópusambandinu svona annt um að fá óskert tækifæri til að básúna út pólitískum áróðri sínum sem upplýsingum. Þá afvopnar sambandið alla sanna umræðu og tekst að fá heilbrigða menn til að tapa áttum hefða. 

Þannig lenda saklausir menn í hinni alræmdu gildru hlutlausrar umræðu Evrópusambandsins. Þá tekst ESB og liðsmönnum þess - og þar á meðal Þorsteini Pálssyni - að afvopna sannleik heilbrigðra manna og góða menn til að tapa sínum meðfædda áttavita. Í þessari fölsku umræðu tapa öflugustu menn auðveldlega áttum, og vita hvorki upp né niður hvernig þeir eiga að bregðast við hinu upplogna hlutleysi umræðunnar.
 
Þetta trix fær góða menn til að gleyma hinum algilda og óumbreytanlega sannleika um að hlutlaus umræða um pólitík er ekki til. Enginn - ég endurtek - enginn getur komið hér og sagt mér, né neinum öðrum Íslendingi, að til sé hlutlaus umræða og upplýsingar um pólitík. Allir Íslendingar vita betur. Jafnvel þeir ófæddu. Það er þessa vegna sem Evrópusambandið er miklu verra en áróðursdeild Sovétríkjanna var, því þar vissu allir sæmilega heilbrigðir menn að um forhertan áróður var að ræða. En þetta lyklamál er sem sagt miklu verra og lævísara hjá Evrópusambandinu en það var hjá gamla Sovét. Þessu falla veikir menn, eins og Þorsteinn Pálsson, fyrir. 

Takist Evrópusambandinu og leiguliðum þess að gyrða herferðina á þennan þrautreynda hátt, þá fá þeir hina upplýstu hlutlausu umræðu sína í gegn. Þá fá þeir upplýsingar Þorsteina dulbúnar sem pólitískan áróður. Evrópusambandið hræðist ekkert eins mikið og sanna upplýsta umræðu. Þetta er sannleikurinn um Evrópusambandið og liðsmenn þess. 

Írar vita þetta manna best. Þeir grófu upp svartbók ESB. En svona upplýsingar, eins og Írar fundu, fær Þorsteinn Pálsson ekki í Kremlarhöllum Brussels. Ef hann kynni hinsvegar á tölvur, þá myndi hann vita þetta. En það væri lige meget, því þá myndi hann bara ekki segja neinum frá neinu. Það er þessa vegna sem ég segi ykkur þetta hér og bendi ykkur á það sem Írar komust að:
 
Eur lex 52002DC0350 1.1. ‘Genuine communication by the European Union cannot be reduced to the mere provision of information.’ og hér
 
 
Upplýsingar Evrópusambandsins eru ekki upplýsingar. Þær eru áróður. Það stendur blátt á gulu í svartbók upplýsingafölsunar Evrópusambandsins í Brussel. Miljörðum evra er varið í áróður fyrir pólitík sambandsins á hverju ári. Gleymið ekki að hinum lagalega ramma fyrir efnahagslegri sameiningu ríkja Evrópusambandsins er þegar búið að koma fyrir, þeim kafla er lokið. Það sem er í gangi í Evrópusambandinu núna er hinn pólitíski samruni ríkja sambandsins. Þessu má aldrei gleyma því þetta er svo ákaflega mikilvægt. Þeir sem predika ESB-aðild á Íslandi eiga að vera heiðarlegir og segja Íslendingnum um hvað er að ræða. Þeir eiga að segja; leggjum niður Ísland og göngum í Bandaríki Evrópu. Þeir verða að vera tilbúnir til þess gjörnings. Annars eru þeir óheiðarlegir.   

Kæri Íslendingur. Trúir þú hlutlausum upplýsingum Sjálfstæðisflokksins um pólitík Sjálfstæðisflokksins? Vinstri grænna um pólitík Vinstri grænna? Samfylkingarinnar um pólitík Samfylkingarinnar? Framsóknarflokksins? Eða ríkisstjórnarinnar um pólitík ríkisstjórnar Íslands? Auðvitað ekki. Þú veist að um venjulega pólitík er einungis að ræða. En ríkisstjórn Evrópusambands meginlandsins á trilljón sinnum meiri og fleiri peninga en allir þessir til flokkar til samans. Peninga til að pakka pólitískum áróðri sínum inn og básúna honum út sem upplýsingum. Láttu ekki breyta þér í Evrapa með stórgrýtiskasti upplýsinga Þorsteina. Höldum höfði. Allir heilbrigðir menn eiga einmitt að óttast upplýsingar Evrópusambandsins. 
 
Opið bréf til Þorsteins Pálssonar 
 
Þökk sé Víglundi manni Þorsteinssyni les Þorsteinn Pálsson árangurslaust bloggsíðu mína oft á hverjum degi. Hæ Þorsteinn, ertu kominn að málinu - er þetta allt að gera sig - eftir fréttabaðið? Þessi pistill minn er ekki hlutlaus. Ég held með Íslandi.
 
Fyrri færsla
 
 

mbl.is Eiga ekki að hræðast upplýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

Sæll Gunnar.

Þorsteinn Pálsson er algerlega umboðslaus og baklandslaus í þessari svokölluðu ESB viðræðunefnd. 

Hann er ótýndur leigupenni á fóðrun í Beitarhúsum Baugs og það fúafen er hans eina bakland og þar verður æra hans urðuð.

Gunnlaugur I., 17.11.2010 kl. 08:37

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Þorsteini Pálsyni er gjarnt að klifra upp á sinn Kögunarhól. Þaðan þykist hann sjá allt milli himins og jarðar, en staðreyndin er að hann er með bundið fyrir bæði augu. Hugur hans er hins vegar tjóðraður í Brussel.

Gunnar Heiðarsson, 17.11.2010 kl. 08:56

3 identicon

  Óvenjulega rætin svívirðingagrein,sem dæmir sig sjálf.

Eiður Guðnason (IP-tala skráð) 17.11.2010 kl. 10:16

4 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Þorsteinn er Mr Clean séð í samhengi Sjálfstæðisflokksins dauða. Hann gekk að vísu ekki frá flokknum dauðum enda er hann dauðhreinsaður af smálegheitum þjóðernisrembusvínanna. Þorsteinn getur talað mannamál og án vafninga enda sló hann í gegn sem talsmaður Víglundar og félaga í VSÍ og það kom honum á endanum í fremstu raðir FLokksins. en hann gekk samt ekki af honum og Íslensku efnahagslífi dauðu. Hann er rödd skynseminnar sem þægileg tilbreyting frá hatursáróðurssöfnuðinum sem hefur ekkert á hann nema að Víglundur er með ólund.

Gísli Ingvarsson, 17.11.2010 kl. 10:31

5 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Ekki batnar ruglið og vitleysan frá þér Gunnar við það að flytja heim. Þú virðist hræðast Þorstein Pálsson mest í dag, annar mundirðu ekki rægja hann í þinni langloku að framan. En sem betur fer held ég að fáir taki mark á þér sem manni sem segir orð af viti.

Sigurður Grétar Guðmundsson, 17.11.2010 kl. 22:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband