Leita í fréttum mbl.is

Enn þynnist eggjaskurn myntbandalags ESB: lokað á írska bankakerfið

Myntbandalagið sekkur 
 
Saga dagsins er sú að Írland féll í nótt í gegnum næfurþunnt gólf peningamarkaðs þeirra landa sem eru svo óheppin að hafa látið blekkja sig inn í myntbandalag Evrópusambandsins. Bankakerfi Írlands á nú að vera nokkuð lokað og læst úti frá peningamörkuðum alþjóðlegs fjármagns (FT). Mörkuðum er orðið ljóst að í pakkaboði myntbandalagsins eru aðeins tvær tegundir á borðum: niðurskurður, ríkisgjaldþrot eða hvort tveggja. Evran er ekki trygging.   

Nú halda menn að næsta skref Íra sé að afklæðast evru-smokk Samfylkingarinnar og láta skjaldborg Evrópusambandsins ýta sér nöktum í fang Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins, sem Bandaríkin hafa ákveðið að aðstoða, og sem einnig veitir ríkisgjaldþrotasjóði ESB aðstoð við skiptaráðin. 

Nota þarf nú enn stærri snjóþrúgur þegar gengið er á næfurþunnri eggjaskurn myntbandalags Evrópusambandsins. Inni í egginu veit enginn hvað er að gerast. Evran gegn dal hefur fallið á mörkuðum síðustu daga, þrátt fyrir peningaprentverki fyrir vestan.
 
Stjóri stærsta gjaldeyriskaupasjóðs heimsins, John Taylor, segir að evran verði álíka mikils virði og ítölsk líra eftir aðeins nokkra mánuði. Það eina sem getur hindrað að þetta gerist er að stofnuð verði Bandaríki Evrópu í einum grænum hvelli. Aðeins þannig geti mýmörg hálf gjaldþrota lönd myntbandalags Evrópusambandsins komist alveg til botns í gullforða og peningakistum Þýskalands.
 
Íslenskir fræðimenn segja að þetta muni bara gleðja þýsku þjóðina, fullveldi Írlands stóraukist og að friður í Evrópu sé þar með gulltryggður. Luck of the Irish
 
Fyrri færsla

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið er þér í nöp við EU. Þetta ver að jaðra við einelti hjá þér maður, maður er farin að loka augnum þegar maður fer á mbl.is og sér fyrirsagnir þínar, þetta er í fyrsta sinn sem ég fer á bloggið með hnút í maganum.

Er ekki betra að ræða málin á jafnréttisgrundvelli og komast að niðurstöðu í stað þess að vera með endalausa blammyrðingar. Ég væri til dæmis til í að hitta þig og fá að skrafa við þig sem jafningi á málefnalegum nótum mér til fróðleiks.

Kristinn M Jónsson (IP-tala skráð) 12.11.2010 kl. 09:21

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Eins og þú veist Kristinn, þá er þetta allt að gerast á jafnréttisgrundvöllum Evrópusambandsins. Samfylkingin hefur sagt okkur það. Nú er til dæmis verið að jafnrétta Grikkland. Írland er líklega næst, svo koma Portúgal og Spánn. Finnland er einnig að komast í gerjun. 

Það er ekki til nein niðurstaða um Evrópusambandið. Það sýna flestar atkvæðagreiðslur í löndum ESB, flestar skoðanakannanir og sérstaklega árangur ESB, sem er til dæmis yfirvofandi ríkisgjaldþrot nokkurra landa þess og brotthvarf hagvaxtar og maasíft atvinnuleysi þar í samfleytt 30 ár.

Mín niðurstaða eftir 25 ár í ESB er sú að það myndi ríða Íslandi að fullu að ganga í Evrópusambandið. ESB-aðild gæti bundið enda á framtíð íslensku þjóðarinnar. Þess vegna blogga ég um þetta. Mikið er í húfi fyrr okkur. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2010 kl. 10:11

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Saxað frá ágætis samantekt Rebecca Wilder

“The austerity measures are weakening the economy, their approach to bank resolution is disappointing,” Stiglitz, a Columbia University economics professor, said in an interview in Hong Kong today. “The prospect of success is very, very bleak” for the government’s plan to resolve the problem, he said.

Hér: Ireland: the battle against "markets" 

Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2010 kl. 17:26

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hér er einnig ágætis samantekt frá Pimco stjóranum Mohamed El-Erian, sem birtist í Financial Times í morgun

  • Consider three worrisome facts. First, default is now no longer just a Greek concern; measures of default risk for Ireland, Portugal and Spain reached record levels this week. Second, the drivers are now clearly internal, as opposed to some generalised deterioration in risk aversion. Third, this has happened despite continued buying of peripheral government bonds by the European Central Bank 
  • The policy responses of eurozone governments were supposed to buy a few years of calm, but ended up by delivering only a few months.

Hér: Irish crisis demands new EU response

Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2010 kl. 17:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband