Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Evrópumál

Lokun landamæra: tímabær undirbúningur undir hrun evrunnar?

Hví skyldi eitt lokaðasta hagkerfi Evrópusambandsins og OECD-landa þurfa á enn meiri lokun af frá heiminum að halda? Enn meiri lokun en landið glímir við þegar í dag. Frakkland er eitt lokaðasta hagkerfi hins Vestræna heims og á svipuðu lokunarstigi og Grikkland. Svífur um sjálft sig i sínu 400 lokaða osta veldi. Heimsveldinu þar sem herra De Gaulle gékk án árangurs á ostavegg.

Væri nú ekki heppilegt ef hægt væri að setja upp landamæravörslu út um allt þegar bankakerfi Ítalíu hrynja ofan á bankakerfi Frakklands. Sem síðan hrynja yfir evruna. Þá væri nú gott að geta stöðvað alla umferð í svona eins og 30 daga og leitað vel. Eða bara yfir eina langa helgi. Á meðan skipt er um peningalegar kennitölur og búsáhaldabylting barinn inn. Og svo eru það hin rafmögnuðu viðskipti á milli landa. Að loka á rafmagnið til þeirra í þágu þjóðaröryggis?
 
Ég trúi ekki nema helmingnum af helmings spuna þessarar fréttar. Hér liggur meira á bak við
 

  

Verða franskir sparifjáreigendur neyddir til að fjármagna skuldir franska ríkisins?

Credit Agricole 2012-04-21 lokun
 
Úr frönsku kosningabaráttunni berast afar slæmar fréttir. Að erfitt sé orðið fyrir franska ofurríkið að fjármagna skuldir sínar undir myntinni evru. Að bæði lofuð lánskjör og vaxtalag undir sameiginlegri mynt sé orðið falskt og komið úr samhengi við það sem upphaflega átti að réttlæta heilaga upptöku evru og niðurlagningu frankans. Að of dýrt sé nú orðið fyrir Frakkland að sækja sér lánsfé á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Því er lagt til að sparifjáreigendur landsins verði heimsóttir í buddur sínar í þeim tilgangi að þeir láni stjórnmálamönnum fyrir áframhaldandi taprekstri þeirra með góðu eða illu. Líklega mest með illu.

Atvinnuleysi í Frakkalandi hefur verið fastfrosið á um það bil 10 prósentum í samfellt 30 ár. Enginn árangur er af neinu þar hvað varðar Evrópusambandsaðild landsins. Ætli maður að vera kurteis já-já-maður sem spyr háttsetta í atvinnulífi landsins hvort ESB hafi ekki gert voðalega mikið gagn í landinu, já, þá fær maður bara yfir sig reiðilestur um ESB-báknið sem er að eyðileggja Frakkland. Ég er varla búinn að jafna mig eftir reiðilesturinn um möppuverkið, glataða samkeppnisaðstöðu, eymd, volæði og heilaflóttann frá landinu enn.

Hlutabréfaverð franskra stórbanka hefur lækkað um það bil 90 prósent á síðustu 5 árum og er öll CAC40 vísitalan nú 50 prósent lægri en hún var fyrir franskt hrun. Hún heldur krónískt áfram að lækka. Enginn bati er í augsýn næstu áratugina m.a. vegna þess að Frakkland er í krónísku Evrópusambandi sem það getur ekki losnað úr. Þjóðnýting franskra banka færist nær og nær. Peningum franskra sparifjáreigenda verður líklega einnig dælt inn í gangandi dautt bankakerfi landsins, svo það geti haldið áfram að kaupa bréfsefnin af ríkissjóði sem getur ekki fjármagnað sig lengur vegna einmitt evruupptöku embættis- og stjórnmálamanna ESB-elítunnar. Þetta er eins og tromla bakkandi steypubíls sem snýst öfugt og steypir sig sjálfur í kaf inn í efnahagslegan tjernóbyl.

Mynd, euroland.com; hlutabréfaverð stærsta banka Frakklands, Credit Agricole, síðustu fimm árin.
 
Fyrri færsla
 

Óttast um afdrif ECB-seðlabanka Evrópusambandsins

Átta leiðandi efnahagsrannsóknarstofnanir Þýskalands óttast um afdrif ECB-seðlabanka Evrópusambandsins. Segja þær að sjálfstæði seðlabankans sé í hættu vegna ástandsins á myntsvæði evrunnar.
 

Og einnig segja þær að svo kallaður trúverðugleiki hans sem seðlabanka sé teflt í tvísýnu með allskonar neyðar þessu og neyðar hitt. Að seðlabankinn muni ekki lengur geta varist því að sogast ofan í þá atburðarás á evrusvæðinu sem öllum var upphaflega sagt að aldrei myndi geta gerst. Skýrsla stofnanna verður lögð inn á borð ríkisstjórnarinnar á morgun; FAZ

Der Spiegel um þýska seðlabankann

Seðlabanki Þýskalands, Deutsche Bundesbank — sem nú heyrir undir ECB-seðlabanka Evrópusambandsins og sem þessi skýrsla átta stofnana fjallar um — var gjöf Bandamanna til Þýskalands í kjölfar síðustu heimsstyrjaldar Evrópu.

Sjálfstæði þýska seðlabankans átti að koma í veg fyrir að hið efnahaglslega vald í Þýskalandi félli aftur í hendur brjálaðra embættis- og stjórnmálamanna; S 

Kýpur

Þetta smáríki ásamt Möltu tók upp evru þann 1. janúar 2008. Lánshæfnismat og lánstraust Kýpur hefur því verið lækkað niður í ruslflokk. All fjármála- og banakerfi landsins hefur verið lokað úti og einangrað af frá alþjóðelgum fjármálamörkuðum í meira en eitt ár. Atvinnuleysi er nú orðið það mesta í sögu lýðveldis Kýpur.

Fiscal slippage and heavy exposure of Cyprus’ banking sector to Greece have seen the island's credit ratings cut to junk by two of the world's three ratings agencies. The island has been shut out of international debt markets for almost a year (CM)
 
Fyrri færsla
 

Fanga mark ríkisstjórnar - ekki þjóðar

Lögbergsgangan á Þjóðfundinum 1907 - Morgunblaðið 21 nóvember 1956
 
Þegar fréttir fóru að berast af hinni skipulögðu hungursneyð yfirvalda Sovétríkjanna og enn fremur af hungursneyð fólksins í sjálfu kornforðabúri Sovétríkjanna —árið 1932— þá sátu kommúnistar á Vesturlöndum og lásu um allsnægtir Sovét kommúnismans í blöðum, tímaritum og auglýsingabæklingum, útgefnum af yfirstjórn hungursins í Kreml. Milljónir og aftur milljónir dóu úr hungri, samkvæmt áætlun.

Í dag berast okkur fréttir af hungruðu fólki í Grikklandi Evrópusambandsins. Miðstýrt Evrópusamband hefur nú eyðilagt tilveru Grikkja í eigin landi. Þeir eru orðnir fangar Evrópusambandsins. Samkvæmt áætlun.
 
Það er því átakanlegt að þessa sömu daga hungursins í Grikklandi, vinnur ríkisstjórn Íslands að því með hörðum fölskum höndum sósíalismans að afvegaleiða ungt lýðveldi Íslendinga inn í þetta helvítis samband evrunnar.

Árið 1906, fyrir aðeins 106 árum síðan, börðust íslenskir þjóðfrelsismenn fyrir því að við Íslendingar fengjum okkar eigin fána. Að fáninn væri eins konar "fangamark þjóðarinnar". Og "fyrir þá sök vildum vér hafa sérstakan fána". Íslenskan fána. Þetta sagði Guðmundur Finnbogason á fundi 1906.
 
Í afturljósi frelsisins sem vannst, væri —kannski og hugsanlega— hægt að útleggja þetta svona í dag: Ef við værum eða yrðum nokkurn tíma fangar, þá væri best að við værum fangar okkar sjálfra undir eigin þjóðfána, en ekki undir fána annarra. Notkun orða breytist oft með tímanum. Í dag myndu sumir nota orðið aðfangamark eða búmerki. En hugsanir eru þó alltaf vöðvaafl frelsisins. Og merki frelsis okkar varð og er þjóðfáninn.

En þessi þjóðfáni okkar er greinilega ekki fangamark ríkisstjórnar Íslands. Fanga mark ríkisstjórnarinnar er blátt með gulum stjörnum.

Ég varð bæði glaður og stoltur þegar ég sá Hjört langafa minn á myndinni hér að ofan sem sýnir Lögbergsgönguna á Þjóðfundinum 1907. Myndin er úr grein Morgunblaðsins 21. nóvember 1956. En mikið skammast ég mín fyrir ríkisstjórn Íslands. Að við skulum þurfa að standa í þessu svo stuttu eftir 1944. Og Sovétið varla kólnað í kistunni enn. Hér er greinilega ekkert síðasta orð!

 
Krækja
 
 
Fyrri færsla
 

"Síðasta orðið" um morðið

ESB-aðildarsinnar staglast á því að þjóðin eigi að hafa síðasta orðið um eitthvað sem hún bað aldrei um. Síðasta orðið um morðið.

Vinstri grænir urðu sigurvegarar síðustu kosninga með því að auglýsa sig sem staðfasta umboðsmenn þeirra kjósenda sem mestir voru andstæðingar ESB-aðildar Íslands. Þingmenn sækja umboð sitt til kjósenda í þingkosningum. Sigur þeirra VG-manna vannst með því að lofa þjóðinni því —meðal annars í DDRíkisútvarpinu— að hún, en ekki fámenn ESB klíkuelíta, fengi þarna tækifæri til að eiga síðasta orðið um þetta mál. Þá óskaði ég VG til hamingju með sigurinn og bað þá um að fara vel með valdið sýna því virðingu. Aðeins 27 prósent kjósenda undir stóráfalli kusu flokka sem höfðu ESB aðild sem sitt baráttumál. En lítið vissi kjáninn ég; að þarna væri ég að ávarpa lýðræðislega, pólitíska og stjórnarfarslega svikamyllu.

Ég get svo sannarlega alveg lifað með vinstri-stjórnir. Kerfisskipti eru oft ágæt sé rétt og lögmætlega til þeirra stofnað. Þetta segi ég því Alþingiskosningar eru haldnar á fjögurra ára fresti í fullvalda lýðveldi mínu. Hármarks sársauki fyrir mig sem kjósanda er því í mesta lagi fjögur ár. Max_pain er hámark fjögur ár. Þá er kosið aftur og ég sem kjósandi get hent ríkisstjórninni á dyr. Þetta er kallað lýðræði.

Ég sætti mig aldrei við að þurfa að búa til frambúðar við síðustu orð umboðslauss Steingríms og þingflokks hans. Að búa við mottó sem segir; Þú skaffar fórnarlömbin í kosningum og við afhendum morðin. Vonandi eru þetta síðustu orð foringjaklíku flokksins sem umboðslaus umboðsmaður kjósenda.

Aðeins kjánar halda að nokkurn tíma verði sagt síðasta orðið um ESB. Vinstri grænir og blóðrauður vettvangur eru til dæmis á ný farnir að tala um Marx-Lenínisma. Héldu þó sumir að þarna væri síðasta orðið sagt. Leshringur þeirra hefur á ný myndast um það síðasta og stærsta morð sögunnar.

Norðmenn hafa verið látnir kjósa um ESB aðild tvisvar sinnum. Þetta hættir aldrei fyrr en það kemur já. Því þegar þjóðir hafa einu sinni í hræðslukasti sagt já við að skríða í ESB, þá er aldrei kosið aftur. Aldrei. er því síðasta orðið um morðið á lýðræðinu. Það ætti að banna þjóðum að kjósa undan sér lýðræðið á þennan hátt.

Ég segi nei. Umsókn Íslands inn í Evrópusambandið er algerlega án umboðs kjósenda. Hún er árangur hreinna og beinna kosningasvika. Draga á hana umsvifalaust til baka. Hún er skammarblettur á Íslandi.
 
Fyrri færsla
 

Eistland tók upp evru og varð "Mið-Afríkuríki"

Eistland tók upp evru eina mínútu yfir miðnætti 31. desembers 2010. Sven Kunsing eigna-stjórnandi sænska SEB —Skandinaviska Enskilda Banken— í Eistlandi segir að landið standi nú í sporum vanþróaðra ríkja Mið-Afríku.

“Foreign investors have stopped buying local stocks, there is no market for stocks or bond and local pension funds play a marginal role. It’s like Central Africa,” says Sven Kunsing from the asset management arm of SEB.

Enginn lífeyrissjóður Eistlands hefur áhuga á að fjárfesta í eistlenskum fyrirtækjum á markaði. Í vestrænum ríkjum er fjárfestingahlutfall lífeyrissjóða í innlendum fyrirtækjum um það bil 60 prósent af heildarfjárfestingum þeirra. En ekki í Eistlandi; þar er hlutfallið aðeins 6 prósent. Það er sem sagt 10 sinnum verra að vera evrulandið Eistland en að vera Vesturland eins og Ísland.

Trúin á bjarta framtíð eigin fjármagns í eigin landi er orðin eistlenskum fjárfestum ofviða. Eða eru þeir kannski bara flúnir með peningana úr landi? Það kæmi mér ekki á óvart. Þetta yrði einnig raunin á Íslandi ef upplýstu pakki ESB-elítunnar tekst að framselja fullveldi og sjálfstæði íslenska lýðveldisins yfir til Evrópusambandsins, sem er nýtt ríki í smíðum. 

Svo að segja engir erlendir fjárfestar kaupa heldur hluta- eða skuldabréf fyrirtækja í Eistlandi, segir Sven Kunsing.

Þetta gap ESB-dauðans gapir nú alla leið inn á Alþingi Íslendinga; þar sem kosningasvikarar og fullveldis-spákaupmenn Vinstri grænna skríða um íklæddir hnjáhlífum Samfylkingar ESB
 
Fyrri færsla
 

mbl.is Lífeyrissjóðir jafnvel til taks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spákaupmenn Vinstrisins

Föstudagurinn endar afar illa. Þú pakkar saman og ekur heim í helgi. Staðráðinn í því að endurmeta stöðuna. Yfir eina rólega og yfirvegaða helgi kemstu að þeirri niðurstöðu að markaðurinn sé á villigötum. Að burðargeta raunveruleikans sé lítil sem engin og að vísitalan sé komin út í loftin blá. Þetta heldur ekki. Ákvörðun er tekin. Á mánudag ætlar þú að mæta til vinnu og selja allt. Koma þér þurrfóta út úr markaðnum áður en hann hrynur yfir þig. Þetta er bjargföst niðurstaða hugsana helgarinnar. Það var sko gott að komast burt frá ys og þys kauphallarinnar í helgarfrí. Þá getur maður vandað sig. 

Á mánudag mætir þú þungbúinn í vinnu með þína bjargföstu ákvörðun. Hana ætlar þú að setja í framkvæmd um leið og markaðsdruslan opnar. Execute, execute, execute immed! En hvað er að gerast? Þegar þú stígur út á dansgólf vísitölunnar þá mæta þér bara glaðir menn. Allir eru kátir og kalla hátt; ég ætla að kaupa A og ég ætla kaupa B. Markaðurinn æðir upp. Allir brosa nema þú. Ætlar þú einn að ganga á móti öllum. Þessum öllum? Nei, þú hikar um stund, stekkur svo á vagninn og dansar. 

Þetta var sagan af spákaupmönnum markaðarins. Þessir eiga ekkert skylt við fjárfestingar. Þetta eru bara drengirnir. Raunverulegir fjárfestar eru maraþonhlauparar markaðarins. Þeim haggar ekkert. Þeir spila ekki póker. Þeir dansa ekki. Þeir standa við ákvaðarnir, sama þó ALLIR segi; seldu og seldu nú!

En þetta ER reyndar sagan af pólitískum spákaupmönnum Vinstrisins. Svona mættu Vinstri gæjar grænir til þingkosninga vorið 2009. En nú er allt selt. Selt, selt og selt. Gjaldþrotið blasir við. Þeir spiluðu póker með atkvæði kjósenda. Fjárfestu vörslufé kjósenda í pólitískri neðanjarðarstarfsemi. Umboðssviku allt, jafnvel áður en markaðurinn opnaði. Og þeir eru enn að spila póker; með sjálft fullveldi íslenska lýðveldisins. Svona leikur pólitísk græðgi smámennin.

Ekkert er ömurlegra en pólitísk græðgi. Hún er margfalt verri, afdrifaríkari og óæðri hinni efnahagslegu græðgi. Hún tortímir löndum, samfélögum og þjóðum þeirra. Slátrar milljónum. Tugum milljóna

Fyrri færsla
 
 

Hæsta einkunn breska pundsins staðfest. Evrunni hent út úr seðlabönkum heimsins

"Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur staðfest óbreytt lánshæfismat breska ríkisins. Bretlands verður því áfram með hæstu einkunn eða AAA", segir í frétt Morgunblaðsins hér að neðan.

Central Banks Dump Euros for Dollars

Við þetta get ég bætt þeirri staðreynd að hlutfall evru sem alþjóðleg mynt í forðabúrum seðlabanka heimsins fer mjög hratt minnkandi. Evrum Evrópusambandsins er skipað þaðan út - og Bandaríkjadölum þangað inn - með því að seðlabankar heimsins losa sig við ríkisskuldabréf evrulanda. Þannig minnka þeir evruforða sína og áhættuna sem samfara er því að sitja fastir uppi með þann ráfandi svarta pétur sem nú þrammar heimilislaus á snjóþrúgum um næfurþunnt peningagólf seðlabanka Evrópusambandsins. Tilraunin með evru sem alþjóðleg mynt, hefur mistekist. Og enn verr hefur tiltekist á heimavelli hennar.

Ríkisskuldabréf evruríkja eru orðin áhættusöm fjárfesting í mjög vafasömu fyrirbæri sögunnar. Gengisáhættan sem lækna átti með tilkomu evru hefur nú stökkbreytst yfir í fyrirvaralausa ríkisgjaldþrota áhættu. Hagkerfi margra evrulanda riða til falls. Draumórar um þjóðríkislausan seðlabanka sem handhafa peningamála, var frá byrjun fráleitt fölsk hugmynd, eins og bandarískir hagfræðingar margbentu Evrópumönnum á frá byrjun. Hlutfall evru sem forðamynt hjá seðlabönkum heimsins hefur því hrunið frá 34 prósenta hámarks hlutfalli árið 2009 og niður í 23 prósent. Og fer hlutfallið enn lækkandi.

Hér verða seðlabankar heimsins þó að fara varlega því ef þeir ætla allir að henda fullveldishaftamynt Evrópusambandsins út samtímis og samstundis, þá myndast hrun. Þær eru því látnar seytla út eins hratt og kostur er. ECB-seðlabanki Evrópusambandsins hefur misst tökin á peningamálum myntsvæðisins í núverandi mynd þess, til frambúðar. Evran endurspeglar nú lítið annað en 34 ára samfellt mistakaferli Evrópusambandselítunnar

Krækjur 

Fyrri færsla

Mynt Evrópusambandsins ER evra 


mbl.is Hæsta einkunn og stöðugar horfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mynt Evrópusambandsins ER evra

Þeir sem daðra við ólesinn sannleikann. Og þeir sem settir hafa verið í svæfingu í ráðuneyti sínu, ættu að íhuga eftirfarandi staðreyndir:

Mynt Evrópusambandsins ER evra.

Þessi einfalda sáttmálalega staðreynd er skjalfest í Lissabon sáttmála Evrópusambandsins. Það tók 27 ríki sambandsins NÍU ár að staðfesta sáttmálann. Níu ár!

Þetta þýðir það að engin lönd komast hjá því að taka upp evru og afsala sér öllu fullveldi í peningamálum. Það er engin leið að hætta með evruna. Alveg sama þó að hún leggi efnahag lands þíns í rústir. Mynt Evrópusambandsins ER evra.

Eina leiðin til að losna við evruna er að segja sig úr Evrópusambandinu. Og það geta engin lönd gert nema að þau hafi stórleika og hervald til þess í praxís. Ekki eftir að stjórnarskrár-mynt Evrópusambandsins varð evra. Ekki eftir að sú staðreynd var njörvuð niður í níu ára stjórnarskrárfæðingu Evrópusambandsins.

Þeir sem daðra við sannleikann verða brenndir á báli sögunnar. Þeir eru hættulegir heimskingjar. Þeir sem vísvitandi krefjast þess að lýðveldi Íslendinga verði fært  inn í þetta Evrópusamband; þeir verða í sögunni dæmdir sem landráðamenn

 
Búið ykkur undir hrylling í Evrópusambandinu. Frá hinni gömlu deyjandi Evrópu. Einu sinni enn

Fyrri færsla
 

Þýskaland komið í nýtt myntsamstraff

CMA Global Sovereign Credit Risk Report 1 fjórðungur 2012
Riskiest sovereign credit bet in the world pr 11 apríl 2012
 
Ríkissjóður Kýpur nýtur nú þess vafasama heiðurs að vera útgefandi af áhættusömustu ríkisskuldabréfum heimsins. Kýpur tók upp evru 1. janúar 2008. Það tók því aðeins fjögur ár að rústa efnahags, peninga- og bankakerfi landsins. Í næsta sæti á áhættulistanum er tilraunasvæði myntfangabúða Evrópusambandsins; Portúgal. Evruríkið Grikkland er sprengt út af listanum því það er — í samfélagi þjóðanna — þegar orðið ríkisgjaldþrota í evrum. Evruríkið Kýpur hefur því tekið sér sæti Grikklands í aftökustólnum fyrir heimsins hættulegustu útgefendur ríkisskuldabréfa. Segið svo að evran virki ekki! 
 
Líkurnar á því að verða ríkisgjaldþrota Evrópuríki hafa aldrei verið eins bjartar og nú. Þær geta því miður ekki orðið meiri en 100%, því þá væri Grikkland enn lifandi í efsta sætinu. Samkvæmt áhættulistanum, sem er hér, eru næstum engar líkur á því að Bandaríkin, Noregur, Sviss og Svíþjóð verði ríkisgjaldþrota. Þýskaland er í þrefalt meiri hættu; það er evruland. Áhættan er minni hjá ríkissjóði Chile en ríkissjóði Þýskalands. Og áhættan samfara því að kaupa ríkisskuldabréf af íslenska krónu lýðveldinu er aðeins rúmlega þrefalt meiri en að eiga sömu viðskipti við ríkissjóð Þýskalands.
 
Hnjáhlífar frá heimsveldi hugleysisins í Icesavepakkhúsi Steingríms J. Sigfússonar, Jóhönnu og Össurar verða líklega sendar frá Íslandi sem þróunaraðstoð handa Kýpur. Ríkisstjórn þeirra þremenninga heldur síðan eftir pakksendingar til ESB, ótrauð áfram að auka við áhættu Íslands. Á fullum launum hjá skattgreiðendum og án umboðs kjósenda. Fullkomlega meðvituð. Landsdómur hlýtur að ná til yfirvegaðs aðgerðarleysis þessa fólks.
 
Atvinnuleysi í Þýskalandi og kosningafylgi öfgahóps nasista
Endurskoðaðar tölur frá gjaldþrota Grikklandi segja að almennt atvinnuleysi þar sé nú komið yfir 21,8 prósent. Svo eru sumir enn að tala um smá-kreppuna 1930 sem ættleiddi sósíalistann Adolf litla til valda í kjölfar massífs niðurskurðar ríkisútgjalda. Aðgerð sem átti að auka tiltrú erlendra fjárfesta á Þýskalandi!
 
Mynd, Brad DeLong
 
 
Fyrri færsla
 
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband