Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Evrópumál

Andstaðan gegn evru eykst í Danmörku. Stuðningur við hernaðar- og réttarfarsmálefni ESB hrynur

úr verkefninu 

Evrustuðningur fellur í Danmörku

Stuðningur við hernaðar- og réttarfarsmálefni ESB hrynur í Danmörku.

Skattatekjur Þýskalands hrynja

Þjóðarframleiðsla Þýskalands hrynur 

Meira um lýðræði ESB, góðsemi ESB, réttlæti ESB og ónýta þýska skipafélagið í Evrópusambandinu -  á tilveraniesb.net: Andstaðan á móti evru eykst í Danmörku

 

Fyrri færsla


Eystrasalt. Deutsche Bank: notið ykkar eigin mynt og fellið gegnið, núna!

Bjargið samfélögum ykkar með því að nota sveigjanleika eigin myntar. Notið styrkleika þess að hafa eigin mynt

Stærsti banki Þýskalands, Deutsche Bank ráðleggur Eystrasaltslöndunum að flytja erlendar skuldir sínar yfir í eigin myntir og fella síðan gengið með því að leggja niður fastgegnisstefnu myntráða sinna þannig að gengi gjaldmiðla landanna geti endurspeglað samkeppnishæfni og hagvaxtarhorfur þeirra 

Tilkynnt var um hrikalegan 18% samdrátt í hagkerfi Lettlands í gær. Þetta er næstum einn fimmti af hagkerfinu sem er að hverfa í Lettlandi. Lesið meira hér á www.tilveraniesb.net => Deutsche Bank: notið ykkar eigin mynt og fellið gegnið, núna!

 

Fyrri færsla

Forsíða þessarar bloggsíðu


Kranarnir á Spáni benda mest í átt að gjánni. Virkar peningastefna evrópska seðlabankans á Spáni núna?

The Cranes in Spain Point Mainly to a Strain

Juan Sancho Toro þénaði vel á því að leigja út byggingakrana á meðan byggingabóla Spánar var að blása út hin síðastliðin 10 ár. En núna á hann 800 byggingakrana og veit ekki hvað hann á að gera við þá . . . 

Virkar peningastefna evrópska seðlabankans á Spáni núna?

Á meðan EURIBOR viðmiðunarvextir á evrusvæði hafa farið hratt lækkandi frá því í byrjun október 2008, þá hafa vextir á húsnæðislánum á Spáni haldið áfram að hækka . . . 

Lesið meira um byggingakrana og peninga(vanda)mál Spánar hér á www.tilveraniesb.net

 

Ný ríkisstjórn á Íslandi, ef svo skyldi kalla

Ekkert minna en fullt gjaldþrot allra Íslendinga virðist duga nýrri ríkisstjórn Íslands. Hún ætlar nefilega endanlega að ganga frá landinu með því að fara með það á hausinn og á hausnum inni í ESB. Það er nefnilega "svo gott" að vera á hausnum þar

Í stað þess að standa vörð um framtíð og auðæfi allra Íslendinga, leggur ný ríkisstjórn Íslands til að allt landið verði gert gjaldþrota sem fyrst. Gert gjaldþrota til þess að sú elíta landsins sem sigldi og klappaði efnahag Íslands í kaf í Zeppelin loftförum fjármálageirans, fái áfram að hafa allt að segja um framtíð allra Íslendinga og óborinna afkomenda þeirra. Þetta virðist vera orðið The New Academic Industrial Military Complex of Iceland - óstöðvandi. Við höfum séð svona fyrirbæri áður. Eitt táknrænt dæmi um svona óstöðvanleika má sjá hér, þegar táningastúlkan bendir honum Richard Nixon sáluga á að hann sé jafn valdalaus og þau 71% kjósenda á Íslandi sem kusu ekki Samfíklingana ( "þetta er ófreskja og þú ert valdalaus" ). Eina stjórnmálaflokkinn sem hafi ESB sem eina aðalmálið á stefnuskrá sinni

Rangt er rangt 

Þetta er rangt, alveg kolrangt. Lausnin er því eins og Jim Rogers segir hér á myndbandinu; látið óhæfa fólkið fara á hausinn. Og ekki glopra raunverulegum auðæfum landsins úr höndum ykkar. Auðæfi Íslands eru auðæfi Íslands en ekki auðæfi framtíðarfátæklinga Evrópusambandsins - hins komandi efnahagslega öryrkjabandalags Evrópu. Látið óhæfa fólkið og klapplið þess fara á hausinn - bæði í veraldlegum og andlegum skilningi

Let the Incompetent People Go Bankrupt - látið óhæfa fólkið fara á hausinn

Pappírsmenn missa völdin. Það hefur gerst áður. Tímarnir breytast 

Landbúnaður og hráefni eru stór hluti af framtíðarsýn Jim Rogers: fyrri hluti Jim Rogers 21. janúar 2009 seinni hluti Jim Rogers 21. janúar 2009 

Látið ekki auðæfi lögsögu Íslands verða elítunni að bráð. Nóg er komið. Þetta þarf að standa vörð um

Efirmáli lýðræðis á Íslandi?

Það er alltaf mjög stór spurning hvor leyfa eigi að lýðræðið sé kosið undan þjóðinni. Það verður nefnilega mjög erfitt að fá það til baka - ef ekki ógerningur. Þetta er ekki neitt venjulegt málefni þetta Evrópusambandsmál. Þetta yrði stærsta mál í sögu íslenska lýðveldisins

Þetta mál snýst um hvort íslenska þjóðin afsali sér fullveldinu og leggi niður lýðræðið eins og við þekkjum það. Lýðræðið er á undanhaldi í Evrópusambandinu. Þjóðir Evrópusambandsins eru hvað eftir annað látnar éta úrslit kosninga ofaní sig aftur. Kjósa aftur og aftur ef Samfylkingunni í ESB finnst ekki koma rétt út úr kosningunum. Ef eitthvað er, þá hefur ófriðarhættan aukist verulega í Evrópu með tilkomu Evrópusambandsins. Lýðræðisþjóðir fara nefnilega ekki í stríð við aðrar lýðræðisþjóðir. En það gera hinsvegar lönd og svæði þar sem lýðræði er á undanhaldi. Lýðræðið er einmitt á undanhaldi í Evrópusambandinu. Því hefur ófriðarhættan aukist í takt við aukin völd Evrópusambandsins. Þetta er staðreynd

Að vera smáþjóð í Evrópusambandinu krefst algerrar samvinnu. Ekki bara samvinnu, heldur ALGERRAR samvinnu. Þess vegna eru Írar þvingaðir aftur inn í kosningabúrið. Og þeim er eins gott að kjósa "rétt" í þetta skiptið því annars mun hin "algera samvinna" rúlla yfir þá

Við erum ekki að tala um venjuleg kosningamál hér. Hinum efnahagslega samruna Evrópusambandsins er lokið. Það sem er í gangi núna er hinn pólitíski samruni Evrópu. Þetta benti Uffe Ellemann Jensen ykkur meðal annarra svo réttilega á. Ekki einu sinni sambandsríki Kanada eru komið svona langt í sínu sameiningarferli eins og Evrópusambandið er náð núna

Því miður eru fjölmiðlar Íslands algerlega clueless. Það hættulega við þá er að þeir vita ekki að þeir vita ekki neitt. Og þið haldið ennþá að ESB snúist um efnahagsmál. Þetta er bæði sprenghlægilegt og grátlegt í senn

 

URGENT URGENT

SÍMSKEYTI HEFUR ÞEGAR BORIST AÐ HANDAN  

<><><><> 

A matter of urgency - niður með brækur (eru niðri) og upp með hendur. Mamma ég er búinn! Styrkleikur í innlimunarferli

Jóhanna Sigðurardóttir í Coulisse de Bruxelles

Iceland’s new leftish government has formally decided to start a process leading to full EU accession, a decision to be backed up a parliamentary vote next Friday, Coulisse de Bruxelles reports. This will be the second day of session of the new parliament – and a sign of the urgency the Icelandic government attaches to this issue. The government wants to make a formal request for EU accession by July. The latest polls suggest that over 60% of the population is in favour of accession negotiations, with 27% against (Iceland’s new government pushes EU accession)

<><><><> 

Fyrri færsla

Forsíða þessarar blogggsíðu


Írski hagfræðingurinn David McWilliams: Förum íslensku leiðina. Hendum evrunni

Þýtt og endursagt úr ensku - 6. maí 2009

Að henda evrunni og endurræsa hrunið hagkerfi Írlands

Grein eftir Írann David McWilliams hagfræðing, birtist á netinu og í írskum dagblöðum í dag. David vann m.a. áður hjá seðlabanka Írlands

David McWilliams

"Einn af fylgifiskum krísu er sá að "trúverðugleiki dyravarða hinnar réttu hugsunar" sturtast oft út í sjó (hér á eftir bara kallaðir dyraverðirnir).  Dýrðarljómi boðskapar dyravarðanna er mikill og áhrifaríkur því að trúa á hann er auðveldara en að hugsa sjálfur. Ef nógu margir dyraverðir endurtaka boðskapinn nógu oft þá verður boðskapurinn að "sannleika". Svo í staðinn fyrir að hugsa sjálf, þá grípum við boðskap dyravarðanna og trúum á hann. Írland hefur orðið fyrir áhrifum svo mikils sannleika þessara dyravarða að hann mun endast Írlandi heila mannsæfi." . . . .  Ég hef þýtt greinina svo hægt er að lesa hana alla á íslensku hér á www.tilveraniesb.net => Írski hagfræðingurinn David McWilliams: Förum íslensku leiðina. Hendum evrunni

Fyrri Færsla
 
Forsíða þessarar bloggsíðu

Finnskur ráðherra: mistök að Finnland skyldi taka upp evru

Paavo Väyrynen

Það voru mistök að Finnland skyldi að taka upp evru

Viðskipta- og þróunarráðherra Finnlands, Paavo Väyrynen, segir í viðtali að það hafi verið mistök að Finnland skyldi að ganga í myntbandalag Evrópusambandsins

 

Lesa nánar hér á tilveraniesb.net  Finnskur ráðherra: mistök að Finnland skyldi taka upp evru 

Fyrri færsla

Forsíða þessarar bloggsíðu

 

 


Ónýta þýska skipafélagið sekkur. Þarf Þýskaland að leita til IMF?

Þýska skipafélag Evrópusambandsins 

Þér eruð vitni að stofnun hins nýja evrópska skuldabandalags. Það mun eiga að heita Evrópuskuldasambandið - skref II - The European Debt Union (EDU)

Er þetta ekki dásamlegt. Að vera sjálf vélin í Evrópusambandinu og ætla að fá sér hinn versta niðurtúr meiriháttar lands í hinum vestræna heimi, síðan 1930. Þýskaland, mínar dömur og herrar, ætlar að skera burt heil 6% af þjóðarframleiðslu Þýskalands á þessu ári. En þetta er ekki nóg. Þeir ætla að skera burt meira á næsta ári. Þýska ónýta skipafélagið mun þá skreppa saman um 7-8% á 24 mánuðum. En bíðum bara. Það mun koma meira. Það mun koma meira því skipstjórar þýska skipafélagsins eru haldnir sjúklegri afneitun. Þeir eru fyrst að viðurkenna núna að það er til heimur

Ætla að bíða eftir að heimurinn togi þá upp úr svaðinu

En hvað ætlar þessi aflvana vél hins dauðadæmda Evrópusambands að gera í málunum? Ekkert mínar dömur og herrar, ekkert. Þeir eru nefnilega í myntbandalagi. Ha ha ha

"Economy minister Karl-Theodor zu Guttenberg said the slump was almost entirely due to the collapse of exports, insisting that a "global revival" will restore growth next year"

 

Pathetic pathetic pathetic pathetic

Þeir ætla að bíða eftir að heimurinn togi þá í gang aftur. Auðvitað, auðvitað. Bíða og bíða. Þetta er alveg 100% í anda Evrópusambandins. Lélegasta hagvaxtarsvæði heimsins og hið verðandi stærsta elliheimili í heiminum, ever. (Gleðifréttir úr gamla heiminum í ESB)

Plús - peningaleg þýsk þurrkví ECB á evrusvæði

Innistæður fyrirtækja á evrusvæði eru að þorna upp, hverfa!  

Eurozone bank deposits fall at fastest rate since Depression. Professor Tim Congdon from International Monetary Research said company bank deposits in the eurozone have begun to contract at rates not seen since the early 1930s, threatening severe damage in coming months unless the European Central Bank shifts gears fast 

 

Öll fréttin: Germany contracts 6pc as eurozone bank deposits fall at fastest rate since Depression

Tengt efni 

 Fyrri færsla


Forsíða þessarar bloggsíðu 


Alþýðuhreyfingin gegn ESB-aðild Danmerkur krefst rannsóknar

Vilja að löggjafahlutverk Evrópusambandsins verði rannsakað

Fokebevaegelsen logo

Eftir að nýleg athugun í Þýskalandi hefur leitt í ljós að 84 prósent af þeim lögum sem sett voru í Þýskalandi frá 1999 til 2004 komu frá Evrópusambandinu, krefst danska Folkebevægelsen mod EU at rannsakað verði hve mikið Evrópusambandið ráði yfir lagasmíði Danmerkur. "Eins og við upplifum þetta þá hefur ESB fyrir löngu farið yfir strikið. Við sjáum hvað eftir annað að ESB og EF-dómstóll þess hefur krafist að lög danska þingsins séu ógild og lög og reglur ESB séu sett í staðinn og yfir dönsk lög - að ósk Brussel".

Það þóttu talsverð tíðindi í Danmörku þegar aðalforstjóri hins árangursríka danska og alþjóðlega fjárfestingarbanka Saxo-Bank gékk í Folkebevægelsen mod EU. Hann sagðist leggja "mannorð sitt að veði" í baráttunni gegn því að Danmörk taki upp mynt Evrópusambandsins, evru . "Við viljum ekki að "afdalamenn" í mið og suður Evrópu stýri peningamálum dönsku þjóðarinnar. Þau mál eru of mikilvæg til að setja í vald annarra en okkar sjálfra". Í efnahagsspá Saxo Bank fyrir árið 2009 gerir bankinn ráð fyrr að Ítalía geri alvöru úr hótunum sínum og yfirgefi myntbandalagið 

Fyrir nokkru gerði breska Bruges Group úttekt á því hvort Bretland gæti ennþá talist sjálfsætt og fullvalda ríki (sjá: mynd). Útkoman var neikvæð

Bretland no longer an idependent state 

Sjá einnig:Er Bretland ennþá sjálfstætt og fullvalda ríki? 

Eistland kemst ekki með í myntbandalag ESB fyrr en 2013

Þetta segir lánshæfnismatsfyrirtækið Fitch&#39;s rating. Eistland gékk í ESB fyrir 5 árum síðan þ.e. árið 2004. Gangi spá Fitch&#39;s eftir mun það taka Eistland 10 ár að komast inn í myntbandalag ESB. Lánstraust Eystrasaltsríkjanna þriggja - Lettland, Litháen, Eistland - er nú svipað og lánstraust íslenska ríkisins, sem þó stendur með hrunið bankakerfi í maga sínum. Ekki eru þó bankakerfi þessara ríkja hrunin, ennþá. En munurinn er sá að íslenska ríkið er að tæma magann og þá mun magapína íslenska ríkisins hætta

Fitch&#39;s rating heldur því fram að Evrópusambandið muni standa fast á öllum inntökuskilyrðum inn í myntbandalagið því sambandið sé hrætt við að hleypa þar inn nýjum löndum sem eiga á hættu að brotna niður undan hinum efnahagslega og pólitíska sársauka sem því fylgir að uppfylla skilyrðin. Þetta gæti leitt til þess að löndin vilji yfirgefa myntbandalagið aftur og það gæti haft þær afleiðingar að önnur lönd taki uppá því sama

Fitch believes that the EU authorities remain disinclined to "premature" euro adoption for fear that a country might subsequently find itself unwilling or unable to bear the economic and political cost of adjustment within the euro area, and even possibly seek to leave it, triggering contagion to other countries within the single currency (sjá einnig: Nýja Argentína er í ESB og heitir að minnsta kosti Lettland)

 

Á mannamáli myndi þetta þýða að ESB óttist hrun myntbandalagsins ef svona aðstæður skyldu koma upp. Þegar myntbandalagið var stofnað uppfyllti aðeins eitt land öll inntökuskilyrðin, svo núna er Evrópusambandið hugsanlega orðið reynslunni ríkara

Öll undirbúningsvinnan við evru var hastverk og lítið sem ekkert var farið eftir skoðunum akademískra hagfræðinga og sérfræðinga á forsendum og skilyrðum fyrir því að svona myntsamstarf gæti heppnast vel. Werneráætlunin frá 1970 var því tekin fram aftur, eftir að hafa verið kistulögð árum saman, stílfærð og sett í framkvæmd. Aðeins eitt land af ellefu uppfyllti öll upptökuskilyrðin þegar ákveðið var hvaða lönd gætu tekið upp evru, nefnilega Lúxemburg, en Werneráætlunin er verk Pierre Werner fyrrverandi forsætisráðherra Lúxemburgar (sjá: Þrífst frelsið í faðmi ESB og evru

 

Anders Dam: EMU høring Folketinget 

Forstjóri Jyske Bank sammála Saxo Bank um ókosti evru

Forstjóri Jyske Bank, Anders Dam, hefur einnig lýst yfir að hann telji Danmörku best borgið utan myntbandalags Evrópusambandsins. Jyske Bank er næst stærsti banki Danmerkur. Í ræðu sinni fyrir framan evru-nefnd danska þingsins hellti forstjórinn sér yfir röksemdafræslu forsætisráðherra Danmerkur. Hann benti á að fjármálakreppan væri yfirvöldum á evrusvæðinu sjálfum að kenna. Hann benti á að sænska ríkið, sem stendur alveg fyrir utan myntbandalagið, nýtur mun betri og lægri vaxtakjara á lánsfjármörkuðum en öll þau lönd sem eru í myntbandalaginu, þar með talið Þýskaland sjálft (neikvæður vaxtamunur/spread við Þýskaland). "Það kæmi mér ekki á óvart að markaðurinn álykti sem svo að sænska ríkið sé betri skuldari, til legnri tíma litið, en löndin í myntbandalaginu vegna þess að Svíþjóð hefur sína eigin mynt". Þessi mynt Svía, segir Anders, gerir það að verkum að Svíar hafa betri verkfæri til að tryggja að skattatekjur - og þar með greiðslugeta sænska ríkisins - þorni ekki upp í takt við að atvinnuástand versni og útflutningur stoppi vegna lélegrar samkeppnishæfni sem kemur þegar lönd ráða engu um gengi og vaxtastefnu gjaldmiðla sinna.

Í lok ræðu sinnar sagði Anders Dam: "Forsætisráðherrann segir okkur að allir sjái að það kosti að standa utan við myntbandalagið. Þá segi ég: ekkert jafnast á við góða hagstjórn - og ég heiti ekki Allir ". Hér er myndbandið með ræðu Anders Dam: Anders Dam kritiserer regeringen til euro-høring 

Tengt efni

Fyrri færsla

Fjölmiðlarnir unnu Alþingiskosningar á Íslandi: sigur RÚV 


Ég skora á alla sjálfstæðismenn Íslands að kjósa

Kæru Íslendingar

Núna er runninn upp sá tími sem kemur yfirleitt ekki þegar kosið er um málefni hér í Evrópusambandinu. Þú skalt fara út í dag og kasta atkvæði þínu á íslenskan stjórnmálaflokk. Á flokk sem ber hag Íslands fyrir brjósti sér

Sjáðu kæri lesandi. Málin eru nefnilega þannig að þú átt ekki landið Ísland. Það er landið sem á þig. Þannig er það að vera Íslendingur. Þetta rann upp fyrir mér þegar ég eftir 25 ára dvöl í ríki Samfylkingarinnar í ESB var uppi í Hvalfirði að tína bláber í fyrra. En eiginlega var það systir mín sem benti mér á þetta. En ég vissi að þetta var rétt þegar hún sagði þetta við mig.

Olíumálverk: Þórdís Rögnvaldsóttir 

Í dag skaltu fara út og kjósa Ísland. Þér verður ekki boðið uppá að kjósa aftur líki þér ekki úrslitin. Ísland er sem betur fer ekki í Evrópusambandinu þar sem kosið er aftur og aftur þangað til það kemur "rétt" út úr kosningum

Þjóðir Evrópusambandsins eru hvað eftir annað látnar éta úrslit kosninga ofaní sig aftur. Kjósa aftur og aftur ef Samfylkingunni í ESB finnst ekki koma rétt út úr kosningunum. Ef eitthvað er, þá hefur ófriðarhættan aukist í Evrópu með tilkomu Evrópusambandsins. Lýðræðisþjóðir fara nefnilega ekki í stríð við aðrar lýðræðisþjóðir. En það gera hinsvegar lönd og svæði þar sem lýðræði er á undanhaldi. Lýðræðið er einmitt á undanhaldi í Evrópusambandinu. Því hefur ófriðarhættan aukist í takt við aukin völd Evrópusambandsins. Þetta er staðreynd. En Samfylkingin í ESB vill ekki að þú fáir að vita þetta

Njóttu kosta Íslands  

Njóttu þess að á milli Íslands og Evrópusambandsins er hálft Atlantshaf og heill Norðursjór sem verndar Ísland. Þetta hefur oft komið sér afskaplega vel og aldrei háð Íslandi. Njóttu þess að þurfa ekki að búa í sama herbergi og 80 milljón Þjóðverjar og 60 milljón Frakkar, ásamt öllu því lausa sem fylgir í túnfæti margra landa gömlu og þreyttu Evrópu. Sérstaða Íslands er mikill kostur. En Íslandi fór fyrst að vegna vel eftir að landið varð sjálfstætt og fullvalda ríki. Vöðvar frelsisins þola ekki spennitreyjur á borð við Evrópusambandið. Þá visna þeir og hverfa

Þetta er ekki svona hér hjá okkur í Evrópusambandinu. Ef löndin hefðu notið þessara kosta einstakrar landlegu Íslands, hefðu margar þjóðir Evrópu aldrei gengið í Evrópusambandið. Ekki gengið í ESB til þess eins að láta reka kosningaúrslit ofan í sig aftur og aftur þangað það til það kemur rétt út úr þeim fyrir suma

Ég kaus Sjálfstæðisflokkinn 

Kjóstu því landið þitt. Þú vilt ekki að aðrir eignist landið þitt, því þá eignast þeir þig í leiðinni. Sjálfur kaus ég Sjálfstæðisflokkinn. Ég gerði það eftir að vinur minn á Íslandi hafði tekið persónulegt loforð af nýjum formanni flokksins um að flokkurinn myndi ávalt halda áfram að vaka yfir sjálfstæði og fullveldi Íslands. Sjálfstæðisflokkurinn er og verður sjálfstæðisflokkur Íslands. Skyldi þér ekki hugnast að kjósa Sjálfstæðisflokkinn þá bendi ég á Frjálslynda flokkinn og Vinstri Græna sem eru ekki landsölu flokkar. Ég hef að minnsta kosti valið að trúa því. En það er trú Íslendinga á landinu okkar sem hefur alltaf flutt fjöll þegar á þarf að halda. Núna er sá tími 

En menn ættu þó alltaf að muna að blessuð mannskepnan er þannig innréttuð að hún vaknar á morgnana og fer fram úr rúminu í þeirri von að henni vegni aðeins betur í dag heldur en í gær. Að uppskeran verði ekki minni í dag en í gær - og jafnvel meiri. Þetta er eðli mannsins. Ef manninum finnst hver dagur enda á því að honum ávannst aðeins minna í dag en í gær, þá mun maðurinn halda sig í rúminu (sjá ESB). Sem víti til mikils varnaðar eru flest ríki með of mikilli og ráðandi vinstrimennsku, - og Evrópusambandið. Þau eru víti til vanraðar því þau vinna oftast á móti þessari frumþörf mannsins

Ég vona svo sannarlega að við þurfum ekki öll að breiða upp fyrir haus eftir þennan kosningadag. Ég er alls ekki viss um að allir stjórnmálamenn og því síður kjósendur þeirra skilji þetta. Skilji þetta ekki fyrr en eftir langa rúmlegu

Gefðu þjóðríki Íslands atkvæði þitt 

Þjóðríki er fyrirkomulag sem er best. Það er staðreynd. Ég hvet því alla sjálfstæðismenn til að kjósa. Ekki kasta frá þér atkvæði á myllu niðurbrots þjóða

Blómin munu vaxa í garði Íslands á ný, sannaðu til. Ekki gefast upp þó á móti blási um stundarsakir

 

ESB-frétt dagsins:

Spánn: atvinnuleysi mælist nú 17,4% 

Fyrri færsla:

WSJ: Afturganga vandamála þýska Weimar lýðveldisins? 


WSJ: Afturganga vandamála þýska Weimar lýðveldisins?

Wall Street Journal skrifar í dag um það sem þeir kalla

 

"The Weimar Complex"

 

The Illustrated Road to Serfdom Planners

 

Nánar á heimasíðu minni. Einnig síðustu tölur yfir nýjar pantanir til iðnaðarins í ESB. Þær komu út í gær og líta alls ekki vel út:  Afturganga vandamála þýska Weimar lýðveldisins?

 

Hugrenning

Myndin hér að ofan er frá: The Illustrated Road to Serfdom 

Eftir: Friedrich A. Hayek 

 

Fyrri færsla

Evra: Frankenstein peninga og fjármála Evrópu?


Evra: Frankenstein peninga og fjármála Evrópu?

Þýskar evrur eftirsóttar

Stjórnmálamennirnir hafa búið til fjármálalegan Frankenstein í Evrópusambandinu, segir fransmaðurinn Chrarles Gave

Lesið nánar hér á heimasíðu minni: Evra: Frankenstein fjármála? 

 

Fyrri færsla

20 sammála Írskir hagfræðingar

Forsíða þessarar bloggsíðu 

  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband