Leita í fréttum mbl.is

20 sammála Írskir hagfræðingar

20 sammála Írskir hagfræðingar - gegn - 32 sammála hagfræðingum á Íslandi

Eilífðarverkefnið

Við höfum á undanförnum mánuðum hlýtt á stutta lagstúfa 32 sammála íslenskra hagfræðinga í þokulúðrasveit Samfylkingarinnar á Íslandi. Lúðrasveit þessi segir samhljóma að Ísland bjargist alveg sjálfkrafa frá afleiðingum frekar illa rekinna bankastofnana á Íslandi og frá dauðadái Fjármálaeftirlitsins, ef það aðeins afsali sér fullveldi og auðlindum Íslands yfir til Evrópusambandsins. Margir þessara 32 hagfræðinga unnu þó sjálfir í þessum hrundu fjármálastofnunum á meðan Fjármálaeftirlit Samfylkingarinnar hélt verndarhendi yfir þeim og gerði þeim kleift að koma fjármálum Íslands á hliðina

Það sem er þó nýtt í málefnum lúðrasveita hagfræðinga er það að nú hafa 20 sammála Írskir hagfræðingar stofnað með sér lúðrasveit á Írlandi. En Írland þjáist af þeim kosti, samkvæmt áliti 32 sammála íslenska hagfræðinga, að vera í Evrópusambandinu og einnig í sjálfu myntbandalagi Evrópusambandsins. En lagaval þessarar írsku lúðrasveitar er samt alveg öndvert við lagaval 32SH á Íslandi. Tóntegundin er einnig önnur. Á Írlandi segja nefnilega 20SH að það þurfi að þjóðnýta alla stærstu banka Írlands og það geti ekki gengið nógu hratt fyrir sig. Þessir 20SH segja að núverandi mynt landsins (evra) - og allar þær ríkisábyrgðir sem búið er að gefa út til handa írskum bönkum - nægi alls ekki til að bjarga landinu. En eins og sumir vita þá skall efnahagslegt fárviðri á ströndum Írlands síðasta haust. Þetta fárviðri var þó að mestu leyti írsk framleiðsla. Framleidd með miklum stuðningi frá sjálfum Lykla Pétri í ESB og einnig borið undir álit 32SH og Banka-Samfylkingarinnar á Íslandi. Hér á ég auðvitað við seðlabanka Evrópusambandsins, aðalstöðvar Evrópusambandsins, myntbandalag Evrópusambandsins og hinn innri markað Evrópusambandsins. En þetta virðast vera stofnanir og fyrirbæri sem virka hvergi nema í ímynduðum heimi 32SH og Banka-Samfylkingar Íslands. Ekkert af þessu hefur a.m.k. virkað á sjálfu Írlandi.

Það verður að þjóðnýta bankakerfi Írlands til að auka trúverðugleika þess 

20SH á Írlandi segja í stuttu máli að bankakerfi Írlands sé læst fast niðri í frystikistu og gjaldþrota í praxís. "Við álítum að það sé sama hvað gert er. Markaðurinn álítur að bankakerfi Írlands sér frosið. Það sé því mikilvægt að bankakerfið sé afþýtt með því að ríki skattgreiðenda á Írlandi (ekki Brussel) taki allt bankakerfið yfir, þjóðnýti það og komi að minnsta kosti þeim hluta þess í gang aftur sem hefur brýna samfélagslega þýðingu".

Einnig segja 20SH að "það verði að þjóðnýta bankana til þess að vernda þær mörgu evrur írskra skattgreiðenda sem eru inni á reikningum í írskum bönkum. Það verði að auka trúverðugleika írskra banka því annars flýr þetta fjármagn".

Já það var nefnilega það. Akkúrat. Írska ríkið, skattgreiðendur, þurfa nú að gangast í ábyrgð fyrir þeim myntbandalagsvasapeningana sem þeir eiga og skulda í írskum bönkum. Já, auðvitað. Hvað annað? Þetta er þrautarganga, ekki þrautarvarnir. Írskir skattgreiðendur þurfa sem sagt núna einnig að gegna því seðlabankahlutverki sem þeim var talið trú um að væri þeim ávalt til handa í borginni Frankfürt á meginlandi Evrópu. Lofað af ESB "sérfræðingum" þegar þeir á sínum tíma voru lokkaðir inn í þetta myntbandalag Evrópusambandsins. Núna komast þeir ekki út úr þessu bandalagi aftur. Reyndar komast Írar aldrei út aftur. Aldrei.   

Ertu dauður banki eða ekki? 

Kæri lesandi. Næst þegar þú ferð í göngutúr og rekst á banka sem virðist vera að dauða kominn, þá skaltu spyrja bankann um þetta: "ertu dauður banki?" Ef bankinn svarar: "nei nei, ég er ekki daður, ég er bara með erlenda mynt í magnum og fastur í myntbandalagi sem önnur lönd stýra. Ríki skattgreiðenda mun koma og lífga mig við". En hér skaltu vara þig. Þetta er nefnilega merki þess að bankinn veit ekki að hann er dauður. Þetta er hættulegur banki því þú getur átt á hættu að hann ráðist á þig og plati út úr þér peningana í gegnum bakdyrnar. En ef bankinn svarar spurningunni hinsvegar á þessa leið: "já ég er dauður banki, steindauður. Ég fór á hausinn því ég datt ofaní tunnu sem var full af eitruðu áfengi. Tréspíritus sem gerði mig fyrst blindan og svo dauðan". Þarna þarftu ekki að vara þig á neinu sérstöku. Bankinn er heiðarlega á hausnum. Hann veit að hann er dauður og mun ekki plata peninga út úr þér til þess eins að láta þig halda að hann sé lifandi.

Afturgengi 32SH hljómplatna, eða hvað? 

Aldrei aftur

En þetta er bara ekki það lag sem 32SH og Banka-Samfylkingin flytur okkur á Íslandi. Reyndar er lag þeirra alveg öfugt við það sem 20SH spilar á Írlandi. Kanski gengur hljómplatan afturábak á Íslandi?

Kæru Íslendingar. Gangið endilega og endanlega í Evrópusamband Banka-Samfylkingarinnar. Þá getur þetta nefnilega ekki orðið verra nema að því leyti að þú kemst aldrei út úr Samfylkingunni aftur. Evrópusambandið er nefnilega eins flokka kerfi alveg eins og í gömlu Sovétríkjunum. En Sovétríkin tilheyrðu fyrstu kynslóð áætlunarbúskaparsamfélaga - og eru eiginlega úrelt núna. Nýtt er komið í stað þess. Að vera á hausnum innan í Evrópusambandinu er svo gaman. Þá þarf ekkert að hugsa eða gera. Ekkert annað en að drepast. Lærið nú af Írum, Lettum, Litháum, Eistlendingum, Spánverjum, Ítölum, Portúgölum og Grikkjum. Lærið.

Gengi evru er ekki gott fyrir alla. Það gegnir ekki 

Evran fellur og fellur, en bara ekki nógu mikið. Evra Evrópusambandsins er núna fallin um tæp 20% gagnvart dollar á síðustu 12 mánuðum og um tæp 5 á síðasta mánuði. En það er bara ekki nóg. Þetta gengi evru gagnvart öðrum mikilvægum gjaldmiðlum er ennþá 50-60% of hátt fyrir Lettland, Eistland, Litháen, Spán, Ítalíu, Portúgal og Grikkland. En þá segi ég. Af hverju fella þau þá bara ekki gengið til að bjarga sér út úr þeim stórkostlegu vandamálum sem löndin eru í? Fyrst gengi evrunnar er svona alltof hátt fyrir þessar þjóðir, af hverju gera þær þá ekkert í málunum? Kæru lesendur, þetta er víst ekki svona einfalt. Kjáninn sem ég er, ætti ekki að segja svona því þetta er nefnilega mjög viðkvæmt mál. Þetta má ekki segja. Má ekki segja á vissum stöðum á Íslandi og heldur hvergi í ESB. En jú. Lettland mun fella gegnið. Það sama mun Eistland og Litháen gera. Þessi lönd munu fella gengið um ca 50-60% í sumar eða haust. Þetta er einnig nýleg ályktun sérfræðinga stærsta banka Bretlands.

<><><> SÍMSKEYTI AÐ HANDAN <><><>

HUGLEIÐING DAGSINS

Argentina

1) Since 1991, the peso has been fixed to the dollar at a one-to-one rate under a currency board system. Þökk sé slæmum ráðum IMF 
1 Peso = 1 Dollar

 

<><><>

2) "All of our economy ministers have gone to Harvard -- to learn what? To rob the country?" said one frustrated woman, voicing widespread anger at a political class seen as corrupt and inept.(FT)

 

<><><>

3) With Argentina devaluing its peso over the weekend,
the conventional economic wisdom finally got its way.
Wall Street Journal, editorial, 2002-01-08

<><><> SÍMSKEYTI ENDAR <><><> 

Eitthvað verður að brotna. Á gegnið að brotna eða vilt þú brotna? Hvort viltu? 

Ef gengið fær ekki leyfi til þess að gefa eftir eða brotna, þá verður eitthvað annað að gefa eftir eða brotna í staðinn. Ef það er gegnið sem fær leyfi til þess að gefa eftir eða brotna þá bjargar það yfirleitt útflutningsatvinnuvegunum. Þá geta þessir atvinnuvegir betur keppt við vörur sem framleiddar eru undir gengi annarra mynta og kanski mynta landa sem engu ráða um peningamál sín.

Umboð seðlabanka Evrópusambandsins

Þetta þýðir að þú munt betur geta haldið þínu lífi áfram, því það munu peningar halda áfram að koma inn í samfélag þitt. Kanski af skornari skammti en áður, en koma þó. En það mikilvægasta er þó að útflutningsatvinnuvegirnir þurfa ekki að brotna niður og fara á hausinn. Þeir munu ekki tapa þeirri markaðshlutdeild og mörkuðum sem þau hafa keypt dýrum dómi með mikilli vinnu og dýrum fjárfestingum áratugum saman. Þau munu ennþá verða til staðar í þjóðfélaginu þegar kreppunni lýkur. Þá munu þessir atvinnuvegir dæla peningum inn í samfélagið í formi aukinna og verðmætari útflutningstekna, hærri launa, fleirri starfa og afleiddra starfa, meiri og betri hagnaðar sem svo er hægt að fjárfesta á ný. Þeir munu standa sterkt að vígi og koma efnahag landsins á hraðferð upp á við á ný. Algveg eins og lyf sem virka.

Annars brotnar samfélagið 

En fái gengið ekki að gefa eftir þá mun útflutningsatvinnuvegunum ekki vegna vel, því gengið fyrir kostnaðargrundvöll þeirra er alltof hátt, eins og í tilfelli Írlands og fleirri landa sem ekkert gengi hafa. Þá verður það þú, efnahagur þinn, atvinna þín, lífskjör þín og samfélags þíns sem mun þurfa að brotna niður. Þá verður margt slæmt ennþá verra. Mun verra. En það versta er þó að langtíma atvinnuleysi sest að í þjóðfélagi þínu og mun smá saman grafa undan öllu samfélagi þínu. Fyrirtækin fara úr landi, til svæða sem bjóða betra og samkeppnishæfra gengi, skattar hækka því skatttekjur minnka. En það sem er enn verra er að fólkið sem knýr verðmætasköpunina mun einnig fara. Það fer nefnilega þangað sem betri og meiri atvinna býðst og þar sem hæfileikar þeirra eru betur umbunaðir - til lengri tíma litið.

Núna er rétti tíminn til að halda fögnuð 

Þessvegna er full ástæða til að allir Íslendingar haldi fögnuð núna. Þeir geta nefnilega sturtað niður í klósettinu núna. Það geta Írar alls ekki. Núna ætti því að halda uppá að bankanir eru raunverulega dauðir. Alveg steindauðir. Sturtaðir niður og nýjir eru á leiðinni. Það ætti því að efna til erfidrykkju fyrir alla landsmenn Íslands. Það er allt í lagi að bjóða 32SH með, því þeir eru hvort sem er hálffullir ennþá, eða hálftómir. Stúta því næst nokkrum góðum lítrum af vökva, éta slátur, harðfisk, svið, súran hval, SS pylsur, lambahryggi og lærvöðva. Halda uppá þetta og dansa. "Bankarnir eru dauðir, steindauðir, dauðir eins og sauðir".

Svo kemur nýr dagur og þá á að fara í gömlu vinnufötin aftur og hamast. Vinna, vinna, byggja og bæta. Bras, as, þys og gustur. Þetta hefur alltaf verið einmitt svona og verður aldrei örðuvísi. Aldrei á meðan Íslendingar hafa ennþá sál sína. Á meðan 20SH á Írlandi eru að koma bönkum Íra niður í langtíma, aflvana og mynt-bandorma hrjáðu meltingarfæri írskra skattgreiðenda til þess að auka á trúverðugleika galdrabandalagsins, þá eru Íslendingar löngu komnir yfir timburmennina og fyrir löngu búnir að byggja nýjan bát. Skip sem kemur drekkhlaðið að landi. Áhöfnin verður svo ánægð og gamlir og góðir söngvar munu hljóma á ný 

Børsen: Tyve økonomer: Nationaliser bankerne

Irish Times: opinion piece 

Fyrri færsla

Ágrip sögu Íslands: Ísland varð sjálfstætt lýðveldi þann 17. júní árið 1944

Forsíða þessarar bloggsíðu 

 

<><><><> 

Annað símskeyti að handan hefur borist

Viðauki 20SH - 20 sammála írskir hagfræðingar

 <><><><><><><><>

  1. Karl Whelan, professor of economics, dept of economics, UCD
  2. John Cotter, associate professor of finance, Smurfit School, UCD
  3. Don Bredin, senior lecturer in finance, Smurfit School, UCD
  4. Elaine Hutson, lecturer in finance, Smurfit School, UCD
  5. Cal Muckley, lecturer in finance, Smurfit School, UCD
  6. Shane Whelan, senior lecturer in actuarial studies, school of mathematics, UCD
  7. Kevin O’Rourke, professor of economics, Trinity College Dublin
  8. Frank Barry, professor of international business and development, school of business, Trinity College Dublin
  9. Pearse Colbert, professor of accounting, school of business, Trinity College Dublin
  10. Brian Lucey, associate professor of finance, school of business, Trinity College Dublin
  11. Patrick McCabe, senior lecturer in accounting, school of business, Trinity College Dublin
  12. Alex Sevic, lecturer in finance, school of business, Trinity College Dublin
  13. Constantin Gurdgiev, lecturer in finance, school of business, Trinity College Dublin
  14. Valerio Poti, lecturer in finance, DCU business school
  15. Jennifer Berrill, lecturer in finance, DCU business school
  16. Ciarán Mac an Bhaird, lecturer in finance, Fiontar, DCU
  17. Gregory Connor, professor of finance, department of economics, finance and accounting, NUI Maynooth
  18. Rowena Pecchenino, professor of economics, department of economics, finance and accounting, NUI Maynooth
  19. James Deegan, professor of economics, Kemmy School of Business, Limerick 
  20. Cormac Ó Gráda, professor of economics, UCD

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Karl

Sæll Gunnar, en segðu okkur, hvað ert þú að hýrast þarna og lepja dauðann úr skel í Sovét-ESB-landi??

Einar Karl, 20.4.2009 kl. 22:24

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hvað ég er að gera Einar?

Jú við rekum þjónustufyrirtæki fyrir íslensk fyrirtæki í útlöndum og þjónustum Íslendinga í útlöndum. En eins og er erum við að reyna að selja kofann okkar og flytja til Íslands því börnin okkar eru orðin fullorðin og geta sjálf og eru einnig á leiðinni út úr ESBé.

Það er mun hagstæðara fyrir okkur að reka fyrirtæki okkar á Íslandi því þá erum við nær viðskiptavinunum og getum betur verðlagt okkur samkvæmt greiðslugetu viðskiptavina okkar. Samgöngur og samkipti eru einar þær bestu i heimi þannig að við erum fljótari frá Keflavík til CPH en frá Jótlandi til CPH. Svo erum við með tæki sem heitir sími og getum talað í hann við útlönd.

Þessutan höfum við núna setið hér í mörg mörg ár og horft uppá Ísland verða ríkara og ríka á meðan við höfum staðið frekar í stað heldur en hitt. Við lítum á þessa kreppu sem afvötnun fyrir suma Íslendinga og sjáum mikil og góð tækifæri á Íslandi um alla framtíð. Landið er svo ríkt og samfélagið sterkt. Svo erum við einnig Íslendingar og söknum landsins okkar sem sumir eru orðnir svo leiðir á uppi á Íslandi að þeir vilja gefa það til útlendinga fyrir ekki neitt. Það þolum við ekki. Við þolum ekki að það megi ekki víkja sér frá án þess að landið manns sé selt fyrir túkall með gati á meðan.

Má ég spyrja þig að því hvað þú sért að gera þar sem þú ert?

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 20.4.2009 kl. 23:05

3 identicon

Þessi ESB herleiðing hérna er yfirgengileg.  Veit ekki hvað hægt er að gera til að vekja þjóðina af dáleiðslunni.  Það er eins og menn geti ekki áttað sig á því að héðan af er ekki annað að gera en að vinna sig út úr vandanum.  Evruvæðing gæti ekki með nokkru móti bætt úr skák nema að gulltryggja eymdina.

Það allra furðulegasta er að vinstri menn - jafnaðarmenn skuli hrópa hæst á Evruna.  Fátt er það sem vinnur betri vinnu við að jafna kjör landsmanna en eigin gjaldmiðill.  Hann deilir út góðæri til allra í formi ódýrari innflutnings, ódýrari utanlandsferða og þess háttar.  Í góðæri hjálpar hann öllum að njóta hagstæðra innkaupa.  Í hallæri dreifir hann byrðunum í formi dýrari innflutnings og allir verða að herða ólina.  Hann veldur því að þjóðin einbeitir sér að framleiðslu og bætir samkeppnisstöðu sína þegar illa árar.  Krónan er því eitt virkasta jöfnunartæki sem landsmenn eiga.  Evra er fyrir fólk sem er óháð verðmætasköpuninni s.s. hagfræðiprófessora, starfsmenn greiningardeilda, starfsmenn ESB og fleiri slíka.  Svo lengi sem þetta fólk heldur vinnu sinni þá munu hallæri framtíðarinnar (þ.e. ef draumurinn um Evru rætist) ekki skerða kjör þeirra svo mikið því gjaldmiðillinn fellur ekki og verðlag helst lítt breytt.  Mismunurinn fellur af auknum þunga á þá sem missa vinnuna og grípur þá kverkataki.

Við getum auðvitað bætt stjórnun okkar á peningamálum og ég er sannfærður um að háir vextir þurfa ekki að vera lögmál.  Lán til framkvæmda munum við að sjálfsögðu fá áfram, annað er bull.  Lánsfé fer að öðru jöfnu þangað sem líkur eru á endurgreiðslu.  Auðvelt er að finna dæmi um einstaklinga og jafnvel þjóðir sem hafa átt  í erfiðleikum og jafnvel þurft að semja niður skuldir sínar.  Engu að síður orðið góðir og gegnir lánþegar síðar.  Þótt syrti í álinn um stund munum við geta endurheimt traust umheimsins fljótt og vel.  Það gerum við þegar við bætum í framleiðsluna (sem gerist vegna lægra gengis og betri samkeppnishæfni), aukum tekjur og minnkum útgjöld.

Þú ert nú búinn að segja þetta allt Gunnar og ég þakka dugnaðinn.  Of fáir nenna að puða svona í þessu. 

Elvar Eyvindsson (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 00:15

4 identicon

Sæll Gunnar. Frábærir pislar hjá þér.

Ég legg til að þú sendir þessa upplýsingar til fréttastöðvanna og blaðanna og sjá hvort þeir birti þessar fréttir.

Einnig væri gott að senda þetta á viðskiptaráðuneytið.

Eggert Guðmundsson (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 00:29

5 Smámynd: Þorsteinn Helgi Steinarsson

Þetta eru frábærar greinar hjá þér Gunnar.

Sendi þér hér hlekk til að skoða stöðuna í Ráð(herra)stjórnarríkjunum

http://thorsteinnhelgi.blog.is/blog/thorsteinnhelgi/entry/855516

Kveðja

Þorsteinn Helgi Steinarsson, 21.4.2009 kl. 01:17

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú ert ótrúlega skemmtilegur, Gunnar minn.

Pistlarnir svolítið langir, en auðvelt að komast í gegnum þá með þennan léttleika þinn stráðan yfir allt saman.

Gætirðu ekki fengið vinnu hérna við að kenna almenningi hagfræði?

Jón Valur Jensson, 21.4.2009 kl. 04:05

7 identicon

jæja samfylkingarfólk er alveg á því að treysta fyrrverandi viðskiptaráðherra þrátt fyrir hans svefntíma í síðustu ríkisstjórn.  Hérna er mín skoðun á stjórnmálum.  Stjórnmál eru eins og að halda með Liverpool eða manchester.  það er alveg sama hvaða rugl björgvinn segir þá er klappað fyrir honum. 

hafþór skúlason (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 16:45

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlitið

Ég varð eiginlega mjög hræddur í gær. Verulega hræddur. Ég horfði nefnilega á viðtal við Jóhönnu Sigurðardóttir á vefsíðu Morgunblaðsins. En Jóhanna Sigurðardóttir er stand-by forsætisráðherra Banka-Samfylkingarinnar á Íslandi.

Og ég sem hélt að þeir sem ráku bankana á Íslandi hefðu verið úti að aka. Jóhanna hefði átt að vera yfir-útrásarbankastjóri þeirra allra. Hún hefði ekki staðið sig verr en þeir, því hún trúir nefnilega sjálf því sem hún segir. Hún er 100% clueless og stórhættuleg Íslandi. Stórhættulegur lýðskrumari af verstu skúffu.

Það sama virðsit gilda um næstum alla Samfylkinguna. Stand-by menn á borð við fyrrverandi yfirmann Banka- og Fjármálaeftirlits Íslands sem ætti að sitja á bekknum í réttarsölum núna.

Hvenær kemur eiginlega að pay day fyrir þessa tækifærissinna? En þeir vita greinilega mjög vel að þeir þurfa að hamra járnið á meðan ótti ríkir meðal Íslandinga. Hræða þá til að gefa frá sér dýrmætt sjálfstæðið, fullveldið og auðlindir þjóðarinnar. Hræðsluherferðin og áróðurinn er verri en hann var hjá öllum peningasjóðum bankanna til samans

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 21.4.2009 kl. 18:31

9 identicon

Menn hafa áhuga á því að koma sér upp internasjónal gjaldmiðli, aðallega til þæginda og telja að auki að það geti verið ódýrara í rekstri. Fyrir þá sem selja/kaupa bara til/í Evrópu myndi þetta hafa stabílíseringu í för með sér.

Í staðin sætum við uppi með efnahag sem við hefðum enga möguleika á að stjórna, mikið atvinnuleysi (amk á köflum) og peningastefnu sem er í raun fastgengisstefna, sem hvergi hefur virkað, nema helst í Danmörku gagnvart marki.

ESB sinnar segja að við myndum leysa öll okkar vandamál með því að ganga í ESB og taka upp evru.

Gunnar Rögnvaldsson segir að við myndum sökkva til botns ef við gengum í þennan ólýðræðislega klúbb og sér ekkert gott við hann.

Ég ætla að leyfa mér að trúa hvorugum alveg.

Doddi D (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 17:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband