Færsluflokkur: Evrópumál
Mánudagur, 23. september 2019
xD: Að skemmdaraðgerðum loknum
Nú þegar forysta og þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lokið sér af í skemmdaraðgerðum í bili og tætt fullveldið af íslenska lýðveldinu í orkumálum, þá er komið að uppskerunni sem mælist 18,3 prósentur. En það þýðir að 81,7 prósent kjósenda geta ekki hugsað sér að kjósa flokk með vitfirrtu, ósjálfbjarga og huglausu fólki við stjórnvölinn
Geðhjálp hlýtur að gera Valhöll tilboð um að hún fái magnafslátt á geðklofanum sem borinn er gratís á öll borð í Titanic-bunker forystunnar, sem er af aðalsættum. Kannski að ísjaki láti sjá sig, því hver veit hvar næstu tækifæri bíða til enn frekari skemmdaraðgerða. Bóka má að á þau öll mun hin huglausa og raðbilaða Plebbahöll hoppa
Fyrri færsla
Björn Bjarna ekki í lagi - ræðst á landvarnirnar
![]() |
Fylgi Sjálfstæðisflokksins 18,3% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 22. september 2019
Björn Bjarna ekki í lagi - ræðst á landvarnirnar
EINKENNIN
Það sem einkennir sanna esb-krata og heimsveldissinna Evrópusambandsins er það, að hjá þeim er það ávallt frumskylduverkefni að ráðast að þeim sem verja land sitt, þjóðina og frelsi hennar, og hafa afl, réttvísi og burði til að verja dýrmætt þjóðfrelsið. Og það sem meira er, það sem einkennir tímana núna og síðastliðin 25 ár er það, að ráðist ER viðstöðulaust á þau ríki sem verja vilja hagsmuni sína, viðhalda fullveldinu og hlúa að sjálfsákvörðunarrétti þjóðar
Finnst virkilega einhverjum sjálfstæðismanni þetta sniðugt; þ.e. að ráðist sé þannig viðstöðulaust að fullveldi og þjóðfrelsinu? Finnst þeim sniðugt að viðstöðulaust sé verið að reyna að hafa fullveldið og sjálfsákvörðunarréttinn af þjóðum, og nú síðast hér heima með orkusambandspökkum Evrópusambandsins. Finnist þeim það, þá geta þeir að minnsta kosti ekki kallað sig sjálfstæðismenn. Aðeins ees-ofsakrötum og esb-elítum finnst þetta sniðugt mál. Þeir eru auðvitað ekki í lagi
Davíð Oddsson er hins vegar í lagi og hefur alltaf með yfirburðum verið í mjög svo góðu lagi. Hann er hárréttu megin í stuttu lífi réttlætis og þjóðfrelsis á Vesturlöndum, þegar horft er til nær tveggja árþúsunda ofríkis heimsvelda mannkynssögunnar yfir sama stað, enda einn mikilhæfasti, dáðasti og öflugasti stjórnmálamaður Íslandssögunnar. ESB-kratar eru hins vegar röngu megin við rétt. Væl gærdagsins fer Birni Bjarna því ekki vel. Allir sem til þekkja vita að ekkert hefur komið út úr hinum svo kallaða "innri markaði" Evrópusambandsins [stuðpúðasvæði hins ofurútflutningsháða Þýskalands, e. buffer-zone] fram yfir það að vera ekki með í honum. Og í mörgum tilfellum hefur aðildin að honum haft neikvæð áhrif. Af hverju ætti þá að trúa EES-krata fyrir sjálfsrannsókn á honum. Sú spurning á mjög svo rétt á sér. Einhver sem man eftir Theresu May, röngu manneskjunni til rangra verka. Það fór ekki vel
TIL HÖFUÐS ÞJÓÐFRELSI ÞJÓÐRÍKJA
Evrópusambandið er ofboðslega slæm hugmynd fyrir Evrópu, eins og sést mjög svo vel í dag. Það hefur hent álfunni úr því jafnvægi sem dýru verði var keypt. Og það sem meira er, það hefur hent löndum álfunnar úr jafnvægi að innan, og innbyrðis við hvort annað. Með öðrum orðum, þá hefur Evrópusambands-hugmyndinni tekist að ríða álfunni meira en hálfa leið til heljar á ný. Enn ein útópía álfunnar er komin á fætur og kappklædd. Heldur virkilega einhver ees-krati að þetta geti gengið svona mikið lengur. Það gerir það auðvitað ekki, nema með skelfilegum afleiðingum. Verð þessarar mjög svo slæmu hugmyndar er þegar orðið allt allt of hátt fyrir okkur sjálf og flestar þjóðir Evrópu
Það er frumskylda hinna þjóðkjörnu að verja þjóðfrelsið og sjálfsákvörðunarrétt íslensku þjóðarinnar. Frændur Björns, Bjarni og Benedikt létu hjá líða að verja Ísland, þjóðina, þjóðfrelsið og sjálfsákvörðunarrétt hennar, sem barist var hart fyrir öldum saman. Það hafa þeir látið hjá líða í meira en áratug, enda hugsa þeir fyrst og fremst um að halda Íslandi föstu í ánauð ees-samnings og meira að segja einnig að þyngja ánauðarok Evrópusambandsins yfir Íslandi sem allra mest. Það ok stækkar bara og þyngist með dyggri aðstoð þeirra. Benedikt er ekki sjálfstæðismaður og Bjarni frændi er það ekki heldur hafa sennilega aldrei verið það og Björn varla lengur. Eiga þeir því best heima í leynifélagi, og hið sama gildir um fleiri, sem hverfa vilja á vit afturhaldsaflanna sem Jón Sigurðsson barðist gegn áratugum saman; á vit nýlendu- og imperíal- heimsvelda
Þorsteinn Pálsson: ekki sjálfstæðismaður
Þorgerður Katrín: ekki sjálfstæðismaður
Benedikt Jóhannesson: ekki sjálfstæðismaður
Bjarni Benediktsson: ekki sjálfstæðismaður
Björn Bjarnason: ees-krati
Fleiri leynifélagsmenn.. plús hálft bé Blöndal
Heldur kannski einhver að flokkur með þessu fólki í sé á réttri leið. Ég bara spyr. Nei að sjálfsögðu ekki. Þeir eru komnir hálfa leið í ruslið, enda stjórnað af þessu fólki
Pólverjum og Ungverjum skal af ESB refsað fyrir að vilja verja þjóðir sínar og lönd. Grikkjum skal af ESB refsað fyrir að vilja verja sig og sína þjóð. Ítölum skal refsað af ESB fyrir að reyna að sinna frumskyldum sínum við kjósendur. Bretlandi skal refsað hart af ESB fyrir að vilja huga að sínum eigin þjóðarhag og fyrir að hafa kosið að verja sjálfstæði landsins. Og refsa átti Íslandi af ESB fyrir að verjast ees-knúnu bankahruni. Þar naut Evrópusambandið stuðnings Bjarna og Benedikts. Og viti menn, þrjú bé klúbburinn veifaði sama gamla ESB-refsivendinum á ný í orkupakkamálinu, enda í góðri æfingu og kannski það eina sem þeir kunna úr þessu
ÞÁ SKIPTIR ÞJÓÐERNIÐ ALLT Í EINU ÖLLU MÁLI
Þegar að áföllum kemur í hinum nú hálf-svo sovéska þjóðníðingaklúbbi Evrópusambandsins, þá er reglan sú að byrðum áfalla skal skellt á herðar þeirra þjóða sem heita vissum röngum nöfnum. Þær sem heita hins vegar réttum nöfnum, þær skulu vera Yfir-Evrópubúar sem nota axlir annarra til að halda sér á floti. Ekkert hefur breyst, enda er þetta sjálfur stofntilgangur Evrópusambandsins. Að viðhalda veldi þeirra sem réttilega höfðu tapað því og ættu aldrei nokkru sinni að komast yfir það aftur
Allir sem halda vilja sjálfsákvörðunarrétti þjóða á lofti eru óvinir Evrópusambands sem elítur allra landa styðja og dýrka eins og sést hér heima, nú síðast í orkupakkamálinu, þar sem Bjarni, Björn og Benedikt runnu saman í eitt og brenndu fullveldi Íslands í orkumálum niður. Þeir gerðu árás á fullveldi Íslands, hvorki meira né minna
Allir vissu hverju ICEsave-menn vildu henda á herðar íslensku þjóðarinnar; þ.e. þjóðsvikum. Þar voru Bjarni og Benedikt að verki. Sama gildir um þriðja orkupakkann, sem Björn, Bjarni og Benedikt eru allir með ást sína á, algerlega röngu megin við rétt
- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður
Fyrri færsla
Loftárás klerkaveldis Írans á orku - Hong Kong
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 02:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Miðvikudagur, 18. september 2019
Loftárás klerkaveldis Írans á orku - Hong Kong
ÍRAN OG ORKAN
Evrópa sem á mikið undir olíu frá Miðausturlöndum komið, er að sjálfsögðu að undirbúa svar við loftárásum Írans á olíuverk Sádi-Arabíu. Eða heldur kannski einhver strákústkjaftandi esb-kratinn það? Nei, Evrópa er háð velvilja Bandaríkjanna í þeim efnum
Rússneski Pútín-kommizarinn sem rétt í þessu kominn er með sitt eigið litla Tjernóbyl á sínar eigin hendur, nuddar nú lófunum saman vegna tilvonandi verðhækkana á olíu, en sem hins vegar munu ekki koma. Bandaríkin, sem orðin eru yfirþyrmandi stærsti olíuframleiðandi heimsins, hafa fyllt allar allar þær holur sem OPEC-ríkin og Rússland hafa reynt að mynda með kartel-samráði sínu til að halda verðinu uppi. Og það sem meira er; það fall í framleiðslu sem verður vegna árásarinnar um helgina, kemur einungis í stað þeirrar takmörkunar sem OPEC-ríkin með Rússland í bandi höfðu á prjónunum
Vestur-Texas Premian-menn höfðu rétt í þessu sökkt fjögur þúsund brunnum ofan í sökkul svæðisins þar vestra. Aðeins var beðið eftir startskotinu og það kom um helgina. Og nú þarf ekki lengur að bíða og markaðsbúa við flöskuhálsa á leið þeirrar olíu á markað, því þeir innviðir eru nú þegar komnir í gagnið. WTI og Brent verðin munu því fylgjast að. Flöskuhálsaverðmunurinn kemur ekki aftur. Þessi staðreynd hefur nú þegar rifið tennurnar úr þeirri 20 prósent árásar-verðhækkun sem varð um helgina og á mánudag. Hún er komin niður í 4-5 dali. Og olíuverð núna er því að nálgast það lægsta sem verið hefur í sögu mannkyns, miðað við kaupmátt. Aðeins árið 1998, þar sem norski forsætisráðherrann var lagður-inn með taugaáfall, er á svipuðu róli, eða um það bil 1,6 til 1,8 prósent af ráðstöfunartekjum bandarískra heimila, sem eru ekki skattpínd til helvítis af hinu opinbera sogröri sósíalismans ofan í næstum hvað sem er, eins og hér heima hjá EES-krataflokki xD og komma. Það þarf 110 dala verð á tunnuna til éta upp þrjú prósent af ráðstöfunartekjum bandarískra heimila. Verið á skrifandi stund er 58,9 dalir fatið, miðað við 54,8 fyrir helgi
Land hinna frjálsu í vestri mun aldrei ganga í EvrAsíu-knúið verð-kartel. Heimilin ættu því að hneigja sig í vestur og fara með MAGA-bæn fyrir þjóðfrelsinu. Mín skoðun er sú að lítið verði aðhafst, eins og er, til að svara árás klerkaveldis Írans, sem er sú þriðja í röðinni síðan í maí, nema þá kannski í Líbanon, þar sem hægt væri að þurrka Hezbollah þeirra út núna. Hafnbann á Íran er of flókið á þessum stað og huga verður að því eldfima ástandi sem nú ríkir milli tveggja helstu hreyfinga hins íslamíska heims, þar sem tvö bandalög hafa myndast gegn hvort öðru. Þar sem Sunnimúslímar óttast Íran meira en allt annað og eru í óformlegu bandalagi með Ísraelsmönnum og Bandaríkjunum, gegn Íran og gervihnöttum þess í Miðausturlöndum. Lengra en á síður fölnandi fjölmiðla nær meint andúð meðal múslíma á Ísraelsríki ekki. Loftárásin sýnir glöggt örvæntingu klerkaveldis Írans, og að efnahagsaðgerðir Bandaríkjanna bíta vel
Skyldi eitthvert viðskiptaútópískt viðrini í forystu og þingflokki Sjálfstæðisflokksins halda að einhvern tíma í sögu mannkyns muni ríkja frjáls verðmyndun í lífsnauðsynlegum orkugeira jarðar, þá get ég upplýst viðkomandi um að hann standi uppréttur í dag vegna þess að svo er ekki. Þar eru það aðrir kraftar en klofsjúkir markaðs-kratar á borð við þá sjálfa sem ráða ferðinni. Kraftar sem þú annað hvort stendur með eða á móti. Sért þú með, en ekki á móti, þeim kröftum sem tryggja þér frelsi í þeim efnum, þá kýst þú ekki orkusjálfstæðið undan þjóð þinni. Svo einfalt er það. Sama lögmál gildir núna og á 700 ára tímabili nýlendukúgunar erlends valds yfir Íslendingum, með aðstoð innlendra þjóðsvikara. Annað hvort stendur þú með Íslandi eða ekki. Allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, nema einn, kusu að standa ekki með nýstofnuðu lýðveldi okkar Íslendinga. Þeir eiga hina mestu fyrirlitningu þjóðarinnar verðskuldaða. Þriðja hönd alræðisaflanna hefur á þeim hreðjatak
HONG KONG
Kínverski Kommúnistaflokkurinn sem Heiðar Már tengdasonur Björns Bjarnasonar treystir svo vel, hefur skipað fyrirtækjum sínum að auka við sig hlutdeild og koma sér valdasterkara fyrir í fyrirtækjum Hong Kong til þess þannig að ná alræðisvöldum yfir sjálfsstjórnarhéraðinu. Fara á þriðju-handar fyrirtækjaleiðina til að stúta freslinu. Það sama gildir kannski um fyrirtæki Heiðars sem starfar út frá Sviss. Hefðu Bandaríkin ekki bannað sölu fyrirtækja Bandamanna til Sovétríkjanna, þá hefðu þau sennilega ekki fallið. Forhertur skógur af gervikapítalistum á Vesturlöndum hefði haldið þeim á lífi og í söðlinum sem allsherjar kúgara af mafíusort. En það er það sem Kína er: illkynja mafíusort valdaklíku í öllu sínu versta veldi
Og ég sem hélt að fábjánaskapur Heiðars olíuleitarmanns úti í 130 dala break-even ballarhafi með beint útsýni yfir komandi hrun olíuverðs, væri næg sönnun þess að ekkert, ekki einu sinni eitt orð, er að marka sem þessi maður segir, þegar hann eins og aðrir íslenskir óligarkar lendir hér heima til að mjólka landann. Það leiðinlega við marga íslenska auðmenn er að þeir, einhverra hluta vegna, breytast of oft í stórkallalega hrossabresti af oligarkakyni, landi sínu til ógagns og óþurftar
Hið opinbera stendur nú í því að leggja mjaltakerfi í formi ljósleiðara um landið til handa þessum ósjálfbjarga ólígörkum, svo að getulausir þeir geti án eigin áhættutöku mjólkað landann. Pilsfaldakapítalismi af óligarakyni er hér á ferðinni, einu sinni enn
Fyrri færsla
Hringurinn þrengist um Valhöll
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 16. september 2019
Hringurinn þrengist um Valhöll
Sérstakir viðskiptaútópískir uppgjafarpólitíkusar Sjálfstæðisflokksins hafa undirgengist tvö yfirríki á síðustu 10 árum:
1. Hreyfingu nýlendusinna Evrópusambandsins og
2. Hreyfingu sovétskömmtunarstjórnar lofthjúpsmanna
Báðar hreyfingar hafa alræðislegt stjórnarfar sem efsta og eina atriði á málefnalistanum. Hreyfing númer eitt er þegar búin að leggja undir sig stóran hluta fullveldis og sjálfstæðs Evrópuríkja, og berst gegn því að nokkurt þeirra komst lifandi úr gúlaginu. Þar dúsa þau og bíða þess að verða sótt sem nytsamt byssufóður Brusselveldisins þegar því hentar, og langar til dæmis í orkukerfi þeirra, náttúruauðlindir, seðlabanka, löggjöf, fiskimið, stjórnarskrár og stjórnarráð
Óendanlegir nýsovéskir- og nýnasistískir möguleikar hreyfingar númer tvö eru að renna upp fyrir vinstrimönnum þessa dagana. Helst ber þar að nefna útrýmingu kapítalisma, öndunarmælar, mannakjötsát, nasísk-kínversk stjórnun fæðinga með aðstoð barna- og fósturdrápa. Reiðhjólaveldi Kristjaníu Reykjavíkurborgar er þegar orðin maóísk stjórnstöð þessa fólks. Hvað annað. Gamla gleðigangan til helvítis vinstrimanna hefst að sjálfsögðu þaðan, og hún liggur ekki til Tipperary, því þá hæfist hún héðan
Hégómaritaraklúbbi hins tannlausa Sjálfstæðisflokks þykir hins vegar að sér standi mest ógn af Miðflokksmönnum þjóðfrelsisins, því bara tilvist þess flokks, ein og sér, afhjúpar Sjálfstæðisflokkinn sem ósjálfbjarga og ómálga fyrirbæri skríðandi um í þeirri Litlu-kró sem nýlendusinnar allra annarra flokka hafa búið honum. Sjáðu mamma, þessir menn ganga ekki með hækjur. Get ég ekki orðið svona? Nei væna mín þú verður kjurr hér, segir alræðismóðir allra annarra flokka, og klappar hégilju Valhallar á sköllóttan kollinn, kitlar báða hégóma hennar, til að kalla fram ískalt bros, og sjálfgreiðir sér því næst enn hærri laun úr ríkiskassanum, sem amma bjó til og lagði afrakstur fullveldisins inn. Þú verður kjurr hér
Og þar er sú höll og verður. Engum til gagns - nema nýlendusinnum og sovétskömmtunarstjórn lofthjúpsmanna, sem mata hana á málefnum
Fyrri færsla
Segir fylgi Sjálfstæðisflokksins óásættanlegt [u]
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Föstudagur, 13. september 2019
Veðurfræðingar: nýtt framhald af seðlabönkum?
Mynd, Wall Street Journal: Engar spár ECB-sogrörsseðlabanka Þýskalands um eðlilega hlýnun verðlags hafa staðist í meira en átta ár. Bara alls engar. Svört lína er hitastig verðbreytinga. Grænar línur eru spár ECB. Rauð lína er nýjasta spá þessa stórfurðulega seðlabanka. Og eins og ESB-menn eiga að vita, átti þessi ECB-seðlabanki og myntin hans evra, að vera "reglubyggð mynt" í "reglubyggðu hagkerfi" e. "rule based currency in a rule based economy" => þ.e. alþjóðasamfélagið (ekki til). Subbuskap hins lýðræðislega stjórnarfars og hins óreglulega kapítalisma hagkerfa Engilsaxneskra, skyldi loksins sparkað út úr Evrópu fyrir fullt og allt. Þannig hljómaði stofnsáttmálinn um evruna
****
Til eru ágætis seðlabankamenn og til eru ágætis veðurfræðingar og sumir miklu betri en aðrir. Þeir (flestir) eiga það þó sameiginlegt að hafa lært fræði sín í háskólum þeim sem byggja á grunni "guðlegra radda opinberunar". Svo merkilegt sem það kann að hljóma eiga margir stofnfeður heimspekinnar og frumspeki vísindanna það sameignlegt að hafa heyrt "vísindi" sín koma af himnum ofan sem opinberun. Þannig sagðist forfaðir þess sem menn Upplýsingarinnar dýrka meira en allt annað, hafa heyrt kenningar sínar koma sem opinberun af himnum ofan. Það var gríski heimspekingurinn Parmenídes, sem talinn er forfaðir frumspeki og það sama gerði landi hans Sókrates. En sökum illvilja út í Biblíuna og sérstaklega Gamla testamentið tóku menn Upplýsingarinnar hinar guðlegu raddir heimspekinnar og kölluðu hana rökhyggju til þess að gera lítið úr því sem spámenn á borð við Jeremía Hilkíason höfðu heyrt koma af sínum himnum ofan. Upplýsingin átti þess vegna afar erfitt með að þola Gamla testamentið og Kant sagði að það mætti þurrka það út úr sögunni, ásamt öllu því sem Hebreska heimspekin stóð fyrir. Hvorki meira né minna; þurrka út sjálfa hornsteina Vesturlanda. Menntamálaráðherra Prússlands, Wilhelm von Humboldt, var á sömu skoðun eins og sést á skrifum hans, þar sem "..the study of Greek history is not as it is with the history of other peoples.. og bang, æðri kynstofn ofurmenna er fæddur, eða að minnsta kosti þungaður:
"Knowledge of the Greeks is not simply pleasing, useful, and necessary to us--it is only in them that we find the ideal which we ourselves would like to be and to bring forth. Although every other period of history enriches us with human wisdom and human experience, we acquire from the contemplation of the Greeks something more than the earthly, something even almost divine." - leturbreyting GR
Arfleið Prússans Humboldts varð svo þeir háskólar sem mennta seðlabankastjóra og veðurfræðinga í dag. En eins og við vitum þá voru það einmitt menntamenn á borð við hann sem stuttu síðar á 19. öld gátu af sér nasismann, sem viss herr Adolf Hitler tók til sín og framkvæmdi með glans í byrjun næstu aldar. Og þar sem mannakjötsát sem (endanleg?) lausn er þegar orðið hluti af nýnasistahreyfingu umhverfis- og lofthitunarsinna, þá þarf ekki einu sinni forfaðir marxismans, Hegel -sem var sömu skoðunar og bæði Kant (forfaðir ESB) og Humboldt- til að geta sér til um framhaldið
Hinir Engilsaxnesku eru hins vegar öðruvísi þegar að toppstykkinu the Top Gun á herðum mannslíkamans kemur. Þeir hentu aldrei Gamla testamentinu út, eins og sést. Sem betur fer. Hjá þeim eru Gyðingar nauðsyn ef menn vilja lifa pólitískar plágur Evrópu af, og þar með talin eru geggjunarfræði loftslags- og umhverfismála-nasisma nútímans, - hrærð út í gamla góða sovétið. Hitler var nefnilega fyrst og fremst sósíalisti. Hann þjóðnýtti stjórnmálin og fólkið, það varð einkaeign hugsjóna, þar sem hugsjónin átti fólkið. Það sama gildir um ESB í dag. Mikið óskaplega lítilfjörlegt og máttlaust er stórveldi Kaþólsku kirkjunnar á miðöldum orðið miðað við Heiðnikirkjuveldi háskólanna í dag
Liggja því "the honourable member for the 18th century" á borð við Jacob Rees-Mogg ekki á lausu í dag
Fyrri færsla
![]() |
Valkvæð túlkun á orðum mínum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 10. september 2019
Frjálsir markaðir aðeins í þjóðfresli þjóðríkja
Aðeins þjóðríki eða þjóðfrjáls lönd geta skaffað umgjörðina og jarðveginn fyrir frjáls hagkerfi með frjálsum mörkuðum, og þokkalega virkandi kapítalisma. Afbökun á þessum sögulegu staðreyndum sjáum við í dag þar sem verið er að reyna að innleiða eins konar markaðsríki í stað þjóðríkis. Það mun ekki ganga upp, heldur aðeins enda í gamalþekktum helvítum hámenntaðra plebba af slæmum en dulbúnum ásetningi
Þú getur ekki sýnt frjálsum markaði og kapítalisma tryggð og hollustu án þess að hollusta þín og tryggð við þjóðríkið þitt og þjóðfrelsið sé mörgum sinnum æðri en tryggð og hollusta þín er við frjálsa markaði. Tryggð og hollustu við arfleiðina, maka þinn, börn, ættbálkinn, sjálfa þjóðina þína og menningu hennar, velferð og farsæld þjóð-félagsins. Frjálsir markaðir geta aðeins verið frjálsir í þjóðfrelsi þjóðríkjanna, því aðeins þjóðríkin og þjóðfrelsið geta skaffað borgurunum takmarkað ríkisvald. Heimsveldum þarf hins vegar ávallt að halda saman með terror hins ótakmarkaða ríkisvalds
Frjálsir markaðir verða að búa við takmarkað ríkisvald því annars breytast þeir í alræðisstjórnarfar þar sem þeir sjálfir verða ofríkið. Nýjustu dæmi þannig misfóstra sjást í Evrópusambandinu og Kína í dag. Kína er þegar helvíti á jörð -spyrjið fólkið í Hong Kong- og Evrópusambandið er að verða það líka, eins og sést til dæmis á orkupökkum þess, og á þeim menntaða liðsöfnuði háplebba sem studdi þá
Heimsveldi umrótsmanna líberalismans geta aldrei skaffað eða alið af sér takmarkað ríkisvald. Þeim er bara hægt að halda saman með ótakmörkuðu ríkisvaldi. Og þegar þau reyna að innleiða frjálsa markaði þá verða þeir næstum samstundis markaðsofríkið sjálft
Svo langt er klikkun dagsins í dag náð meðal fræðiplebbamanna og fjölmiðla, að þeir menn hanga flesta daga ársins úti á heilaþvottasnúrum líberalismans (þ.e. imperíalismans) og halda því fram að ekki megi sporna við alræðisófreskjunni Kína, af tillitssemi við "glóbal", þ.e. "hnattrænar afhendingarkeðjur". Það sama var sagt í Svíþjóð þegar ekki mátti trufla afhendingarkeðjur til Hitlers. Enda aðhylltust sænskir sósíaldemókratar og margir aðrir heimsveldi og kenningar nasismans, sem evrópskt hámenntaðir fræðimenn unguðu út í lok nítjándu aldar, og sem Hitler síðan innleiddi og framkvæmdi snemma á tuttugustu öld. Heilabú þessa fólks er haldið sama þurrafúa líberalismans í dag. Ekkert má gera sem raskað getur einræði markaðarins, sem orðinn er ofríki, þökk sé ótakmörkuðu ríkisvaldi. Þetta eru og verða ávallt ófreskjur. Evrópusambandið er til dæmis þegar orðið ófreskja eins og sést. Og það styttist í helvíti þess
Þetta orkupakk á heilaþvottasnúrum imperíalismans myndi fara að grenja úr áhyggjum í dag ef að Bandaríkin væru að lýsa yfir sjálfstæði sínu núna. Reynið að ímynda ykkur fréttafyrirsagnirnar og áhyggjurnar um "pólitíska óvissu". Orkupakk þurrafúa líberalismans myndi einnig umhverfast af skelfingu ef að Ísland væri að lýsa yfir fullveldi í dag. Þetta er handónýtt þurrafúafólk úr Heiðnikirkjuveldi háskólanna, þurrafúið út í gegn úr markaðskirkju líberalismans (sem er imperíalismi nútímans). Þetta fólk veit ekki hvað það er að biðja um. Það veit ekki hvað það er að dýrka við markaðsaltari hins ótakmarkaða valds ofríkisins
Það er því ekki tilviljun að Bretland og Bandaríkin eru byrjuð að gera upp sakirnar við djöfullegan imperíalisma þennan í dag. Anglo-Ameríkan-arfleiðin er Hans Sóló, Fálkinn og Krafturinn
Fyrri færsla
Eftir þriðja orkupakka heimsveldis í smíðum
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 11:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 8. september 2019
Eftir þriðja orkupakka heimsveldis í smíðum
Það er ansi merkilegt að ríkisstjórn og Alþingi Íslendinga -nema Miðflokkurinn- með Sjálfstæðisflokkinn í fararbroddi, hafi ákveðið að taka lög imperíal-heimsveldis fram yfir lög íslenska þjóðríkisins, og meira að segja ákveðið að setja þau ofar íslenskum lögum. Þetta er ekkert minna en gerræði þegar um ofboðslega mikilvæg mál er að ræða. Og sama má reyndar segja um flest önnur mál, þegar nánar er skoðað
Íslenska þjóðin varð fullvalda til þess að hún gæti stjórnað ríki sínu sjálf; þjóð-ríki hennar. Hún varð ekki fullvalda til þess að láta erlent og í óþokkabót algjörlega umboðslaust vald skipa sér fyrir í sínu eigin þjóðríki
Íslenska þjóðin er fullvalda. Það er ríkisstjórnin hins vegar ekki, og það er Alþingi heldur ekki. Fullveldið er á höndum þjóðarinnar. Það er ekki á höndum Alþingis né heldur ríkisstjórnarinnar, sem eiga að vera á höndum þjóðarinnar. Þjóðin ein getur sparkað þinginu, ríkisstjórn og forseta. Enginn getur hins vegar sparkað þjóðinni. Samt er það það sem ríkisstjórnin, þingið og forsetinn eru að gera. Þau eru að sparka þjóðinni og í hana
Öldum saman var íslenska þjóðin ekki fullvalda. Hún gat því ekki haft sína eigin ríkisstjórn. Þing þjóðarinnar var lokað. Það mátti ekki setja þau lög sem þjóðin vildi að sett væru, í hennar þágu. Þjóðin var í vösum erlendra yfirdrottnara, sárfátæk, kúguð og þjáð. Með því að hefja það gamla ferli til heljar á ný, hefur Sjálfstæðisflokkurinn í höndum fáráðlinga gert sig brottnuminn af þeim vettvangi sem hann dregur nafn sitt af. Það verða flokksmenn að gera sér klárt. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið þræddur upp á aðra lyklakippu
Harðir tímar eru framundan. En sem betur fer veit íslenska þjóðin, og reyndar margar aðrar þjóðir Vesturlanda líka, hver viðfangsefnin framundan eru: Þau eru að gera upp sakirnar milli þjóðríkjanna og hinna ýmsu heimsvelda sem þola þau ekki á ný. Sagan hefur því miður endurtekið sig og Vesturlönd þurfa að bretta upp ermar sínar á ný. Tungumál fólksins er sem betur fer að verða skýrt í þessum efnum. Fólkið er því vakna upp við vondan draum. Það er farið að gera sér grein fyrir því hvað er að gerast; Það er að segja, að mætt eru á vettvang hin gömlu skrímsli til að taka frelsið frá fólkinu; þjóðfrelsið
Evrópusambandið er imperíal-heimsveldi. Alþjóðaelítan er imperíal-heimsveldi. Glóbalisminn er imperíal-heimsveldi. "Alþjóðasamfélagið" er imperíal-heimsveldi. Sameinuðu þjóðirnar eru því miður að taka á sig þá mynd líka. Ómynd sem þeim var bara alls ekki ætluð. Sú stofnun hefur að miklu leyti verið grafin út innan frá af nýjum imperíal-heimsvaldasinnum
Það eina sem dugar á þetta er hin fróma Þjóðarstefna gegn imperíal-heimsveldum (e. nationalism vs. imperialism) sem gerði okkur á sínum tíma frjáls í okkar eigin landi, og sem önnur lönd tóku upp líka og urðu frjáls. Kirkjuklukkur þá hljómuðu og þjóðir skáluðu
Aðeins fullvalda þjóðríki geta boðið upp á lýðræði og aðeins þjóðríki geta boðið borgurunum upp á takmarkað ríkisvald. Heimsveldi geta hvorugt. Þau bjóða aðeins upp á það sama og síðast: kúgun, ótakmarkað ríkisvald -eins og sést til dæmis á erlendum orkupökkum- og endalausa harðstjórn og ánauð. Þeim verða þjóðirnar að fá að vera frjálsar frá. Bandamenn háðu Heimsstyrjöldina síðari og stuttu síðar Kalda stríðið til að kveða svona imperíal-heimsveldi niður. En þau eru komin til baka, hálfklædd og þegar byrjuð að þjarma að þjóðunum. Þau eru að þræða þjóðirnar upp á lyklakippur sínar
Látum hart mæta hörðu. Söfnum ofurefli. Því fyrr, því betra
Fyrri færsla
Kosningar á næsta leyti við næsta leiti
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 07:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Fimmtudagur, 5. september 2019
Kosningar á næsta leyti við næsta leiti
Það er að segja í Bretlandi. Þó svo að atburðir síðustu daga þar sem 21 þingmenn voru reknir úr Íhaldsflokknum fyrir að neita að fylgja flokknum hverra merkjum þeir buðu sig fram undir sem meðlimir einnar samfelldrar pólitískrar heildar, og sem komið verður í veg fyrir að geti boðið sig fram undir merkjum þess flokks á ný, þá lítur út fyrir að stjórnarandstaðan geti ekki komið í veg fyrir nýjar kosningar með því að nota það að tveir þriðju hlutar þingsins verði að samþykkja að boðað sé til þeirra. Boris Johnson getur til dæmis lýst yfir vantrausti á sjálfum sér og þar með ríkisstjórn sinni og þannig kallað fram nýjar kosningar með einföldum meirihluta. Hann hefur einnig fleiri ráð
Breskir dálkahöfundar segja að atburðir síðustu daga á breska þinginu og í Íhaldsflokknum hafi fyrir löngu síðan verið fyrirséðir og ákveðnir af ríkisstjórn Johnsons. Allt gangi því samkvæmt áætlun þó svo að menn standi á öndinni, sem er önd
Ef að Valhöll hefði sýnt bara hálft prósent af svona baráttuþreki og hugrekki til varnar fullveldi og sjálfstæði Íslands vegna yfirríkis Evrópusambandsins í orkumálum, sem algjörlega og gersamlega ónauðsynlegt var að undirgangast, þá væri Sjálfstæðisflokkurinn ekki sú klessta mýfluga á vegg sem hann er í dag. Aldrei hefur þessi ömurlega flugnahöfðingja-pokahöll plebbanna sem sitja þar núna staðið með íslensku þjóðinni síðastliðin 10 ár
Aðeins einn þingmaður Sjálfstæðisflokksins fylgdi stjórnarfarslegum stofntilgangi flokksins. Það var Ásmundur Friðriksson. Hann er það eina sem eftir er af flokknum. Restin er landsölumenn á borð við þá sem Jón Sigurðsson slóst við hvern einasta dag ársins, áratugum saman. Leiðari Morgunblaðsins fimmtudaginn 15. júní 1944, Sjálfstæðir menn, var afar skýr um þetta mál
Fyrri færsla
Boris Johnson hefur styrkt stöðu sína [u]
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 4. september 2019
Boris Johnson hefur styrkt stöðu sína [u]
ÞAÐ VIRKAÐI
Austan Atlantsála hefur Boris Johnson nú styrkt stöðu sína. Formlegur meirihluti flokks hans á þingi hvarf þegar undir vesalingatímabili Theresu May gúmmídúkku-ESB við völd í Westminster, og sem var á borð við núverandi ESB-gúmmídúkkuna Bjarna Ben og kó-plebba hans í Valhöll
Boris hefur tekist að kalla fram gúmmídúkku-verksmiðju ESB í flokki sínum, stilla öllum afurðum hennar út í búðarglugga ESB, einangra hana, og bomba þær síðan í klessur og sparka þeim út. Fjöldi þeirra var 21-dúkka alls
Fossandi reiðin staðfestir nákvæmnisverk Borisar. Kenneth Clarke féll saman undan ESB-spiki sínu án þess að jafnvel ekkert yrði eftir á gólfinu þar sem hann hafði staðið með kalt blóð í æðum. Svo flattur var hann út að enginn fótur manna með rautt og heitt blóð í æðum gat flatt hann þynnri
Næsti leikur er líklega kosningar, stórsigur Borisar, og þar með út úr ESB, og inn í frelsið. Það er lagalegur ógjörningur að taka útgöngu án samnings af borðinu, lögin sjá fyrir því, og flokkur Borisar stendur nú loksins sameinaður. Reyni ESB-gúmmídúkkur þingsins að koma í veg fyrir kosningar, þá geta þær gert það í vissan tíma, en í leiðinni grafið algjörlega undan sjálfum sér og framtíð sinni að eilífu í breskum stjórnmálum. Það kemur sem sagt dagur eftir þennan dag, DDRÚV-ríkinu í ríkinu til mikils ama
Þar með eru tvö helstu stjórnmálaöfl hins frjálsa heims að verða frjáls og fullvalda á ný. Trump hreinsaði flokk sinn út í vestri, einhentur, og Boris er að hreinsa fimmtu herdeildina út í austri
Þessu geta sjálfstæðir menn Íslands fagnað vel. Það er því gott að við fegnum Mike Pence varaforseta Bandaríkjanna til landsins í dag. Þökk sé kjöri og flokksuppreisn Trumps í vestri!
Kannski kemur Boris Johnson hingað næstur
uppfært kl. 23:22
STALDRAÐ VIÐ
Hér ættu menn að staldra aðeins við og skoða viðhorf ESB-manna og Evrópusambandsins til kosninga yfir höfuð. Það er nefnilega mjög svipað og viðhorf Kremlar var til kosninga í löndum Austur-Evrópu á meðan þau voru læst og lokuð á bak við járntjald alræðis Sovétríkjanna, sem hið íslenska vinstri dýrkaði. Kæmi ekki rétt svar upp úr kjörkössunum þá var þeim hent á öskuhaugana og nýrra krafist, eða þá að þeir voru bara framleiddir og fyrirfram fylltir með réttum krossum á bak við tjöldin. Viðhorf Evrópusambandsins til kosninga og þjóðaratkvæðis er mjög svo svipað. Og það versta er að plebbar Valhallar hafa hálft í hvoru hoppað með á þann vagn, eins og sást svo gjörla á orkupakkamálinu og undirskriftasöfnun Sjálfstæðismanna
HIÐ AUGLJÓSA VONDA
Fjölmiðlar staglast á því að öryggisgæsla vegna komu Mike Pence varaforseta Bandaríkjanna sé meiri en áður hafi sést. Svarið við því er auðvitað það, að vegna aðhildarleiks Íslands að Schengen-blöffinu verður hún að vera svona mikil og þung, því engin Schengen-lönd hafa stjórn á neinu sem í þeim löndum eru. Þau vita nánast ekkert. Þau eru öll orðin full af hryðjuverka- og glæpalýð upp í kok. "Fjölbreytnin" er orðin svona mikil á ættarvakt Sjálfstæðisflokksins. Þess vegna flaggar til dæmis hið ónýta Advania-fyrirtæki vírus-fánanum í samræmi við hugbúnað sinn, sem fullur er orðinn af hinni ótrúlegustu fjölbreytni
Hugtakið "fjölbreytni" kemur úr latínu og þýðir veiking efnis (diverso). Dæmi: sjó blandað í steinsteypu, sem elur af sér alkalívirkni og eyðileggingu. Annað dæmi: Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er til dæmis ekki fjölbreyttur. Væri hann það, þá myndi hægrimennska eyðileggja vinstrimennsku hans. Hann er því bara vinstri-mennta-maður og verður aldrei neitt annað, sama hvað blóðugar staðreyndir alræðissögunnar tauta og raula
Enginn vinstriflokkur hefur nokkru sinni þolað fjölbreytni. Þeir byggja allir á einhverskonar alræði. Í dag nota þeir hugtakið fjölbreytni til að villa á sér heimildir til þess að ná völdum. Hugtakið er því orðið pólitískt valdatæki vinstrisins og eins konar troll til að fanga veiklunda kjána vinstrisins í nýjustu net alræðisins á ný
Fyrri færsla
Ert þú meðlimur í nýja sovéska kommúnistaflokknum?
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 1. september 2019
Ekki heimsstyrjöld fyrr en 1941
Fram á sumarið 1941 var síðari heimsstyrjöldin álitin eins konar framhald af þeirri fyrri, sem kölluð var Stríðið mikla. Fram til þess, eða frá og með 1939, var stríðið í Evrópu álitið landamæraerjur og staðbundin átök. Það var ekki fyrr en með innrás Þýskalands í Rússland sumarið 1941, árás Japana á Bandaríkin í desember og vanvita stríðsyfirlýsingu Þýskalands á hendur Bandaríkjunum nokkrum dögum síðar, að um heimsstyrjöld var að ræða. Fékk Stríðið mikla þar með nafnið Fyrri heimsstyrjöldin og átökin á síðari hluta ársins 1941 fóru almennt að heita sú Síðari
Japan hafði verið í gangi með herjun á Kína frá og með 1937 og Bandaríkin höfðu þegar verið þar á fullu í nokkur ár að reyna að hefta útbreiðslustefnu japönsku herstjórnarinnar í Asíu
Engum í Washington datt í hug að valdajafnvægið í Evrópu myndi hrynja til grunna á sex vikum. En það gerði það, vegna þess að Bretland og Frakkland höfðu ekki hirt um viðhald fælnimáttarvopna sinna, stundað niðurlægjandi friðþægingu og látið undan síbyljuáróðri og sírenusöng Þjóðverja og áhangenda þeirra um að Versalasamningurinn hefði verið "óréttlátur". En það var hann alls ekki miðað við stund og stað. Hann var ekkert miðað við það sem Þýskaland gerði við Rússland með Brest-Litovsk-samningum. Sömuleiðis var hann ekkert miðað við það sem Þýskaland ætlaði sér að gera við Frakkland með Septemberprógramminu, hefði Þýskalandi tekist áform sín með Fyrri heimsstyrjöldinni, þ.e. Stríðinu mikla
Frá byrjun kusu Bretland og Frakkland að bera ekki byrðarnar. Frakkland gafst upp og Bretland víggirti sig um tíma heima og varðist vel. Ef að Bandaríkin hefðu verið í bandalagi með þessum tveimur á þessum tíma, hefði öll byrðin lent á þeim. Það er staðreynd sem flestir gleyma. Uppgjöf Frakklands sýnir það, og víggirðing og vörn Bretlands heima, í byrjun, gerir það líka. En hafa verður í huga að Frakkland og Bretland voru á þessum tíma enn þungt haldin á sál og líkama eftir Stríðið mikla
Þarna var Bandaríkjaher ekki nema um 125 þúsund hermenn og foringjalið þess var um 12 þúsund manns og útgjöld Bandaríkjanna til varnarmála voru aðeins 300 milljón dalir. Þessi tala átti hins vegar eftir að hækka hratt og ná hámarki með 11,5 milljón manna her 1944. Bandaríkin höfðu nefnilega afvopnast frá og með 1919. Þau mistök kom ekki til greina að gera aftur. Sem betur fer fyrir okkur hér á Íslandi
Engum datt þarna í hug að afleiðingar þess sem stuttu síðar fékk nafnið Síðari heimsstyrjöldin, myndu verða þær að Bandaríki Norður-Ameríku sæju sig tilneydd til að veita óvinum sínum ótakmarkaðan aðgang fyrir útflutning að Bandaríkjamarkaði. En fyrir þann markað var opnað til þess að reisa heiminn úr rústum Síðari heimsstyrjaldarinnar, svo að fyrrum óvinir Bandaríkjanna gætu staðið vaktina gegn kommúnismanum með þeim
Þarna voru flestir núlifandi íslenskir efnahagsfræðimenn og áhugamenn okkar á því sviði að fæðast, og þeir fæddust inn í heim sem þeir héldu að gæti ávallt gengið út á það að fyrrum óvinir Bandaríkjanna hefðu skýlausan rétt á því að éta þau út að innan. Enginn heimspekileg kenning er til um "frjáls viðskipti" og verður aldrei til án þess að vera hin fullkomna þvæla úr heimsveldi Útópíunnar, sem er stórt í dag. Það sama gildir um þjóðarstefnuna. Hún er ekki kenning heldur erfðafræðileg staðreynd eins og móðurástin, þ.e. ástin á sínum nánustu; Hún er
Bandaríska verkalýðshreyfingin var mjög óhress með þetta og barátta hennar náði hámarki þegar innflutningur þýskra og japanskra bifreiða tókst á loft á sjöunda áratug 20. aldarinnar. Donald Trump er foringi hennar núna
Stóra-Bretland sem valdi leið sósíalisma og þjóðnýtinga frá og með ríkisstjórn Verkamannaflokksins 1945, varð ófært um að taka þátt nýrri uppsetningu heimsins og þeim kapítalisma sem Bandaríkin sömdu reglur og regluverk yfir, en sem nú hafa verið eyðilagðar af þeim sem nutu þeirra hve mest og ýtrast. Það var ekki fyrr en að Margrét Thatcher komst til valda að Bretland fór að ná sér á strik á ný. En Bretar voru eina þjóðin sem barðist frá fyrsta degi til síðasta dags Síðari heimsstyrjaldarinnar. Og þeir framleiddu meira magn af vopnum og hertækjum en Þýskaland undir heimsvaldaríkisstjórn Hitlers náði að framleiða með allt það landsvæði undir sér sem er Evrópusambandið í dag. Tími Stóra-Bretlands er sennilega að koma aftur núna, frá og með brexit
Heimurinn er kominn í nýjan uppsetningarfasa, einu sinni enn. Og á um það bil 80 ára fresti hefst nýtt rassakastatímabil Þýskalands í Evrópu. Það er því hafið á ný, eins og sést. Ekki þarf annað en að hella tveimur bjórum ofan í þýskan til að fá út hvað honum finnst í raun og veru, 80 árum síðar. Honum finnst að Þýskaland hefði átt að sigra. Öll samviska Þýskalands vegna þess sem gerðist fyrir 80 árum er gufuð upp. Ný samvika er kominn í staðinn og hún er þessi; "Við áttum skilið að sigra". Þessi þvæla hefur líka tekið sér bólfestu í hugum margra þeirra sem tilheyra íslenskri stjórnmála- og gáfumennastétt í dag. Þýskaland er því nú þegar komið í slagsmál við Pólland, hvers þjóðar það drap um fimmtung af, Austur-Evrópu, Suður-Evrópu og Bretland á ný. Þýsku rassaköstin í Evrópu eru hafin
Og hvað raðbilaða forystu Sjálfstæðisflokksins varðar í dag, þá er klisjan um "fríverslun" á þessu 80 ára tímabili orðin að heilabilun hjá henni, eins og hjá öðrum Samfylkingarflokkum af verstu sort. Forystan er þungt haldin af fávísi og hættulegri heimsku í þeim efnum, því hún hyggst leiða Ísland inn í nýtt tímabil viðskiptaánauðar. Mikið skal sá flokkur fá í afturendann fyrir ferðina
Fríverslun síðustu 70 ára var einungis barn síns tíma. Hún var tímabundin viðbrögð við geópólitískum staðreyndum. Nýjar stefnur eru að taka við, byggðar á nýjum afleiðingum geópólitískra staðreynda. Það sama gildir um EES-samninginn. Honum verður því að segja upp hið fyrsta, svo að hægt sé að gera pláss fyrir farsæla för lýðveldis Íslendinga inn í framtíð nýrra staðreynda. Gamli gullfóturinn kemur ekki aftur. Honum skyldi enginn fórna sér fyrir. Ísland er á Vesturhveli jarðar. Við tilheyrum Nýja heiminum
Fyrri færsla
Úrbeinaðir smáfuglar Valhallar komnir í trekt
![]() |
Bað Pólverja fyrirgefningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Nýjustu færslur
- Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km ...
- Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]
- Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.8.): 1
- Sl. sólarhring: 20
- Sl. viku: 154
- Frá upphafi: 1407225
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 93
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008