Leita í fréttum mbl.is

Björn Bjarna ekki í lagi - ræðst á landvarnirnar

EINKENNIN

Það sem einkennir sanna esb-krata og heimsveldissinna Evrópusambandsins er það, að hjá þeim er það ávallt frumskylduverkefni að ráðast að þeim sem verja land sitt, þjóðina og frelsi hennar, og hafa afl, réttvísi og burði til að verja dýrmætt þjóðfrelsið. Og það sem meira er, það sem einkennir tímana núna og síðastliðin 25 ár er það, að ráðist ER viðstöðulaust á þau ríki sem verja vilja hagsmuni sína, viðhalda fullveldinu og hlúa að sjálfsákvörðunarrétti þjóðar

Finnst virkilega einhverjum sjálfstæðismanni þetta sniðugt; þ.e. að ráðist sé þannig viðstöðulaust að fullveldi og þjóðfrelsinu? Finnst þeim sniðugt að viðstöðulaust sé verið að reyna að hafa fullveldið og sjálfsákvörðunarréttinn af þjóðum, og nú síðast hér heima með orkusambandspökkum Evrópusambandsins. Finnist þeim það, þá geta þeir að minnsta kosti ekki kallað sig sjálfstæðismenn. Aðeins ees-ofsakrötum og esb-elítum finnst þetta sniðugt mál. Þeir eru auðvitað ekki í lagi

Davíð Oddsson er hins vegar í lagi og hefur alltaf með yfirburðum verið í mjög svo góðu lagi. Hann er hárréttu megin í stuttu lífi réttlætis og þjóðfrelsis á Vesturlöndum, þegar horft er til nær tveggja árþúsunda ofríkis heimsvelda mannkynssögunnar yfir sama stað, enda einn mikilhæfasti, dáðasti og öflugasti stjórnmálamaður Íslandssögunnar. ESB-kratar eru hins vegar röngu megin við rétt. Væl gærdagsins fer Birni Bjarna því ekki vel. Allir sem til þekkja vita að ekkert hefur komið út úr hinum svo kallaða "innri markaði" Evrópusambandsins [stuðpúðasvæði hins ofurútflutningsháða Þýskalands, e. buffer-zone] fram yfir það að vera ekki með í honum. Og í mörgum tilfellum hefur aðildin að honum haft neikvæð áhrif. Af hverju ætti þá að trúa EES-krata fyrir sjálfsrannsókn á honum. Sú spurning á mjög svo rétt á sér. Einhver sem man eftir Theresu May, röngu manneskjunni til rangra verka. Það fór ekki vel

TIL HÖFUÐS ÞJÓÐFRELSI ÞJÓÐRÍKJA

Evrópusambandið er ofboðslega slæm hugmynd fyrir Evrópu, eins og sést mjög svo vel í dag. Það hefur hent álfunni úr því jafnvægi sem dýru verði var keypt. Og það sem meira er, það hefur hent löndum álfunnar úr jafnvægi að innan, og innbyrðis við hvort annað. Með öðrum orðum, þá hefur Evrópusambands-hugmyndinni tekist að ríða álfunni meira en hálfa leið til heljar á ný. Enn ein útópía álfunnar er komin á fætur og kappklædd. Heldur virkilega einhver ees-krati að þetta geti gengið svona mikið lengur. Það gerir það auðvitað ekki, nema með skelfilegum afleiðingum. Verð þessarar mjög svo slæmu hugmyndar er þegar orðið allt allt of hátt fyrir okkur sjálf og flestar þjóðir Evrópu

Það er frumskylda hinna þjóðkjörnu að verja þjóðfrelsið og sjálfsákvörðunarrétt íslensku þjóðarinnar. Frændur Björns, Bjarni og Benedikt létu hjá líða að verja Ísland, þjóðina, þjóðfrelsið og sjálfsákvörðunarrétt hennar, sem barist var hart fyrir öldum saman. Það hafa þeir látið hjá líða í meira en áratug, enda hugsa þeir fyrst og fremst um að halda Íslandi föstu í ánauð ees-samnings og meira að segja einnig að þyngja ánauðarok Evrópusambandsins yfir Íslandi sem allra mest. Það ok stækkar bara og þyngist með dyggri aðstoð þeirra. Benedikt er ekki sjálfstæðismaður og Bjarni frændi er það ekki heldur –hafa sennilega aldrei verið það– og Björn varla lengur. Eiga þeir því best heima í leynifélagi, og hið sama gildir um fleiri, sem hverfa vilja á vit afturhaldsaflanna sem Jón Sigurðsson barðist gegn áratugum saman; á vit nýlendu- og imperíal- heimsvelda

• Þorsteinn Pálsson: ekki sjálfstæðismaður
• Þorgerður Katrín: ekki sjálfstæðismaður
• Benedikt Jóhannesson: ekki sjálfstæðismaður
• Bjarni Benediktsson: ekki sjálfstæðismaður
• Björn Bjarnason: ees-krati
• Fleiri leynifélagsmenn.. plús hálft bé Blöndal

Heldur kannski einhver að flokkur með þessu fólki í sé á réttri leið. Ég bara spyr. Nei að sjálfsögðu ekki. Þeir eru komnir hálfa leið í ruslið, enda stjórnað af þessu fólki

Pólverjum og Ungverjum skal af ESB refsað fyrir að vilja verja þjóðir sínar og lönd. Grikkjum skal af ESB refsað fyrir að vilja verja sig og sína þjóð. Ítölum skal refsað af ESB fyrir að reyna að sinna frumskyldum sínum við kjósendur. Bretlandi skal refsað hart af ESB fyrir að vilja huga að sínum eigin þjóðarhag og fyrir að hafa kosið að verja sjálfstæði landsins. Og refsa átti Íslandi af ESB fyrir að verjast ees-knúnu bankahruni. Þar naut Evrópusambandið stuðnings Bjarna og Benedikts. Og viti menn, þrjú bé klúbburinn veifaði sama gamla ESB-refsivendinum á ný í orkupakkamálinu, enda í góðri æfingu og kannski það eina sem þeir kunna úr þessu

ÞÁ SKIPTIR ÞJÓÐERNIÐ ALLT Í EINU ÖLLU MÁLI

Þegar að áföllum kemur í hinum nú hálf-svo sovéska þjóðníðingaklúbbi Evrópusambandsins, þá er reglan sú að byrðum áfalla skal skellt á herðar þeirra þjóða sem heita vissum röngum nöfnum. Þær sem heita hins vegar réttum nöfnum, þær skulu vera Yfir-Evrópubúar sem nota axlir annarra til að halda sér á floti. Ekkert hefur breyst, enda er þetta sjálfur stofntilgangur Evrópusambandsins. Að viðhalda veldi þeirra sem réttilega höfðu tapað því og ættu aldrei nokkru sinni að komast yfir það aftur

Allir sem halda vilja sjálfsákvörðunarrétti þjóða á lofti eru óvinir Evrópusambands sem elítur allra landa styðja og dýrka eins og sést hér heima, nú síðast í orkupakkamálinu, þar sem Bjarni, Björn og Benedikt runnu saman í eitt og brenndu fullveldi Íslands í orkumálum niður. Þeir gerðu árás á fullveldi Íslands, hvorki meira né minna

Allir vissu hverju ICEsave-menn vildu henda á herðar íslensku þjóðarinnar; þ.e. þjóðsvikum. Þar voru Bjarni og Benedikt að verki. Sama gildir um þriðja orkupakkann, sem Björn, Bjarni og Benedikt eru allir með ást sína á, algerlega röngu megin við rétt

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður 

Fyrri færsla

Loftárás klerkaveldis Írans á orku - Hong Kong 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Mikið assgoti geta þessir bangsar verið slóttugir; það kemur ekki til mála að hafa þá lengur inn á,eða ætlum við að líða þeim baráttulaust að hafa rangt við.   Við höfum hingað til ekki neytt aflsmunar en svo sannarlega er kominn tími til að fylla upp í flokk manna sem ætla að verja okkar ástkæra Ísland; þakka þér fyrir pistilinn.

Helga Kristjánsdóttir, 22.9.2019 kl. 03:11

2 identicon

Ég fæ ekki séð að nokkur alvöru sjálfstæðismaður geti kosið flokkinn lengur.

Það er mjög slæmt að vera kommúnisti.

En það er mun verra að vera kommúnisti sem þykist vera hægri maður.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 22.9.2019 kl. 09:04

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvað er Sigmundur Davíð? Framsóknarmaður eða þjóðernissinni eða hvorutveggja?

Halldór Jónsson, 22.9.2019 kl. 12:06

4 identicon

Smellhittir hér boltann Gunnar, sem iðulega, og beint í mark.  Betur er ekki hægt að flokka ávextina. 

Berlega hefur komið í ljós hver ættin er sem ætlar að ræna okkur sjálfstæði og fullveldi lands og þjóðar.  

Berlega hefur komið í ljós að þar fara þeir fremstir, Engeyingar og kúlukellingar og stráklingar, ríkisstyrktir búrakrata vesalingar í Sjálfstæðisflokknum.

Það er engin furða að myndin af Davíð að hampa Sigmundi Davíð, sem sínum rökrétta eftirmanni, átti svo vel við, því þar var Bjarni Junior sýndur sem hinn illi púki sem setti allt ríki Lion King á vonarvöl.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.9.2019 kl. 12:57

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ráddu í gerðir hans sem forsætisráðherra,þegar græðgisöflin stoppuðu hann með okkar eigin miðli! Ófyrirgefanlegt þannig heldur EEeee áfram meðan við trúum ekki okkar bestu sonum.

Helga Kristjánsdóttir, 22.9.2019 kl. 13:00

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Já Helga, sá tími er kominn fyrir lögnu. 

Já Kristinn, en það er ekki hægt að vera óalvöru sjálfstæðismaður, því að sá maður er ekki sjálfstæðismaður, hann er eitthvað annað.

Halldór. Ef ég ætti að leggja mat á Sigmund Davíð og Miðflokkinn þá myndi ég giska á að þeir séu þjóðaríhaldsmenn (e. national conservatives). Og það er ekki hægt að vera íhaldsmaður án þess að vera þjóðarsinni; það á að minnsta kosti ekki að vera hægt.

Ég óttast að fæstir Íslendingar, og þar með talið þeir sem þykjast vera íhaldsmenn í dag, vita hvað það er að vera Íhaldsmaður. En menn vissu það hér áður fyrr, en varla lengur. Hér má fræðast um hvað Íhaldsstefna er: What Is Conservatism?

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.9.2019 kl. 13:02

7 identicon

Búrkrata brussel libbarnir, engeysku júnkera blairista makrónarnir, eru afætur.

Eins og Gunnar hefur marg oft bent á, er löngu kominn tími til, að sannir sjálfstæðismenn, íhaldsmenn sem unna landi sínu og ný endurheimtu fullveldi okkar dvergsmáu þjóðar, séum tilbúnir að berjast gegn búrkrata libbunum sem sóttu sér erlent vald til að níða þjóðina í rúm 650 ár, köstuðu þjóðveldinu og fullveldinu á glæ, og eru enn fjandar okkar.   

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.9.2019 kl. 13:28

8 identicon

Ég, Símon Pétur frá Hákoti, er, mun vera, og hef alltaf verið sjálfstæðismaður, þjóðaríhaldsmaður.

Og því hef ég ekki kosið, og mun aldrei kjósa, flokk brusselskra búrkrata afæta og þjóðníðinga, undir stjórn Bjarna Benediktssonar yngri.  

Þeir, sem enn ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, þrátt fyrir að sá flokkur hafi opinberað sig að vera haldinn brusselskri illsku og yfirgangi, verða að eiga það við eigin samvisku og sögu lands okkar og sögu í gegnum aldirnar.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.9.2019 kl. 13:52

9 identicon

Þeir ... verða að eiga það við eigin samvisku og sögu lands okkar og sögu þjóðar okkar í gegnum aldirnar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.9.2019 kl. 14:04

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Simon Pétur.

Yfirsást innlegg þitt kl. 12:57

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.9.2019 kl. 14:53

11 identicon

Þakka þér sömuleiðis Gunnar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.9.2019 kl. 15:59

12 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Arið 2000 ESB VIÐRÆÐUR.

2008 HRUNDI BANKAKERFIÐ. 8 arum seinna

LANALINUR LOKUÐUST TIL BANKANA!

Akvaða timapunkti ?

Svar .. þegar að island vað fara með FORMLEGIM HÆTTI  ibnn i ESB

KAUPÞING  með ÞYSKAB INN A GAFLI HJA DER ??

Þessi sami þyski banki borgar krofuhofum i gegnum London 400 MILJARÐA an þess að hafa verið dæmdir til þ að gera það fyrir domstolun. 

Hvrr borgar slika upphæð nema að það se eitthva sem ciðkom efur að fela ?????

VOru þetta þ kannski seðlabanka peningarnir ??

Bankahrunið var að hluta hryðjuv aras a landoð með þ að marmiði að taka landið inn i ESB og lata greipar sopa i kjolfarið.

Banka hrunið h aldrei verið full rannsakað og þ ætti að vera ALÞJOÐLEG GLÆPARANNSON I GANGI

Hreiðar mal og felagar eru algert AUKA ATRIÐI I ÞESSU OLKU DAMAN.. en veta þyskabanka inn a GAFLI hja þeim felogum er aðal atriðið.

Heldur folk að bankahrunið hafi verð TILVILJUN EÐA SLYS??

ALTT TENGT UMSOKNINNI I ESB

8 ARUM SEINNA. ALLT HRUNIÐ MEÐ ÞYSKAB INN A GAFLI HJA ÞJOÐINNI

Kv.

Lig

Ps..Svo ma nu ekki gleyma þvi GUÐL ÞOR r naturul orðin JOHNSON.!!

Lárus Ingi Guðmundsson, 22.9.2019 kl. 23:46

13 Smámynd: Jón Valur Jensson

Góður og beittur Gunnar sem oftar. 

Tek undir með Helgu og Kristni hér í byrjun, og fleiri eiga hér góða spretti.

Gunnar tekur B-in þrjú réttilega á beinið. Allir eru þeir Engeyingar, og tveir í viðbót, sem Gunnar nefndi, eru það líka: orkupakkamálpípan Halldór Blöndal, fyrrv. alþingisforseti, og hinn heldur fjarskyldari Þorsteinn Pálsson, fyrrv. forsætisráðherra. Tveir þessara eru nú þegar komnir út úr skápnum sem ESB-þjónar og tilheyra því flokknum með stolna nafninu, "Viðreisn": þeir Þorsteinn og Benedikt Jóhannesson skammtímaráðherra, en í þeim flokki ættu þeir allir fimm heima og réttast að losa okkar gamla Sjálfstæðisflokk undan áþján slíkra hérvillinga sem blindir vilja leiða blinda þingmenn Sjálfstæðisflokksins, rétt eins og Bjarni reyndi í Icesave-málinu, já, einnig þá með svikum við landsfund flokksins! Og þá byrjuðu menn að hrekjast úr flokknum, það gerði ég nauðbeygður strax fyrir 10 árum.

Jón Valur Jensson, 23.9.2019 kl. 09:37

14 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þökk hafðu Gunnar Rögnvaldsson fyrir staðfestu og trúmensku við íslenska þjóð á vandræða tíma þegar stjórnaráðið hefur verið hertekið af kommum sem hafa laumast á þing og inní stjórnarráðið undir fölskum merkjun til fullþingis við erlend átrúnaðargoð sín.

Nú vantar klubbur pála og rekur til að hrekja þessa EES óværu af höndum okkar ef við ætlum að lifa hjér við sæmilegan frið og  öryggi. 

Ljóst varð fyrir allnokkru að íslenskum stjórnmála mönnum er ekki treystandi fyrir svona samningi. Svo vangefnir sem eru eða forpokaðir að þeim verðum við en ekki þeir að setja regglur og heimildir.

Það eru vinnusvik að hamast við sín eikamál í vinnutímannum en laumast svo með veggjum sem þjófar með leyndarmál.

Hrólfur Þ Hraundal, 23.9.2019 kl. 10:58

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Lárus Ingi: Þakka þér fyrir lesturinn og innlit.

Jón Valur: þakka þér fyrir. Já þetta er að verða saga þessa flokks, sem svo margir hafa yfirgefið. Veltan er mikil, en tapið er stórt, og stærst. Engin sókn myndi viðhaldast með svona falsspámönnum sem sóknarprestum.

Hrólfur: Þakka þér væn orð. Já altarið með átrúnaðargoðum líberalismans er beintengt skorsteininum sem stendur upp úr Valhöll. Þar er fylginu er brennt þar til ekkert er eftir nema fullur öskubakki forystunnar, sem hoppar svo yfir í björgunarbátinn Viðreisn, þegar öllu hefur verið brennt sem brunnið getur á báli hennar.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 23.9.2019 kl. 12:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband