Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Evrópumál

Írskt efnahagslegt evru-sjálfsmorð í vændum? Örvænting grípur um sig á Írlandi

Aðild Írlands að myntbandalagi Evrópusambandsins hefur komið landinu fram á hengibrún ríkis- og fullveldisgjaldþrots. 20 ára efnahagskreppa bíður Írlands ef þeir afhenda ekki restina af fullveldi landsins til Berlín og Brussel. Strax.

Fyrir helgina reyndi ráðstjórn ESB-sovétríkjanna að þvinga Írland til að hækka skatta á írsk fyrirtæki svo loksins megi takast að miðstýra viðskiptum og atvinnulífi frá Írlandi og inn að kjarna ESB-sovétríkjanna sem vantar meiri atvinnu og meiri völd. Írar segjast vera útkjálkaland á hjara ESB-sovétríkjanna og að fullveldi í skattamálum sé eina fullveldið sem landið á eftir. Allt hitt hefur verið gefið eftir til miðstjórnar sovéts ESB. Gegn restinni af fullveldi Írlands lofa ESB-sovétríkin að lækka vextina á lánum þeim sem þau þvinguðu upp á Írland til að bjarga m.a. gjaldþrota bankakerfum Þýskalands. Þetta eru sólrúnir brenndar á Írland, eins og reynt var við Ísland. 
 
International aviation tycoon Ulick McEvaddy said it was crucial for Ireland to retain one of the few competitive advantages it had.

"We are a small island on the edge of Europe, we need some advantage in order to attract companies here," he said. 

Fari þessi afgangur af fullveldi landsins mun þetta útkjálkaland þurfa að horfa á eftir atvinnu og viðskiptum hverfa úr landi og hagnaði verður þá öllum útskipað til kjarna ESB-sovétríkjanna, eins og gerðist hjá Nýfundnalandi eftir að það afsalaði sér fullveldi landsins til sambandsríkisstjórnar Kanada árið 1949, aðeins fimm árum eftir að Ísland fagnaði stofnun lýðveldis okkar hér heima. 
 
"The corporation tax rate was one of the main reasons I opposed the Lisbon Treaty the first time around. We then got the guarantee on it. [..] It is also one of the few things the Government "has full control over", having already ceded functions such as setting interest rates to the EU.

Írar velta því nú fyrir sér hvernig þeir geti sloppið út úr ESB-sovétríkjunum og undan sovét-evrunni. Þeir segja, sem rétt er, að helsti bandamaður þeirra í atvinnu og viðskiptum sé Stóra Bretland og vonast til að Bretland hjálpi þeim til að losna undan ofurvaldi hinnar sovésku myntar Evrópu, evrunni, og hleypi þeim inn í breska Sterlings-pundið. Fyrir þetta verða Írar örugglega ásakaðir um að vera andevrópskir og að stunda andevrópskan áróður. 

Við höfum séð þetta allt áður. Sovét er flutt til Berlín og Brussel og heitir nú bara Evrópusambandið.
 
 
Fyrri færsla
 
 

Dönsk uppreisn gegn ESB-aðild að mótast?

Konservativ ungdom Danmark 
Mynd; landsfundur KU
 
Ungliðahreyfing danska íhaldsflokksins, konservativ ungdom, krefst þess að Danmörk segi sig úr Evrópusambandinu. Hvorki meira né minna. Unga fólkið vill út úr ESB. Út!
 
Jeg mener at Grundloven er den vigtigste del af vore danske love, og at denne lov er ukrænkelig i forhold til det at være dansker [. . ] Og hvad mener EU om vor Grundlov? Tillad mig at citere EU’s forfatning: ”Forfatningen og den ret, der vedtages af Unionens institutioner (…) har forrang frem for medlemsstaternes ret (artikel 1-6)” Dette betyder at den lovgivende magt, bliver givet fra nationalstaterne til EU og at linjen mellem en selvstændig stat, og en forbundsmagt bliver udvisket.

Um stóran meirihluta fyrir þessari ákvörðun hreyfingarinnar var þó ekki að ræða. En fyrir mér hljómar þetta eins og viss súpubylting. Þetta eru að minnsta kosti alveg nýjar bollur í súpunni sem Danmörku hefur verið hellt út í. Miklar fréttir. Og meira að segja fyrrverandi Nyrup-formanni danskra sósíaldemókrata blöskrar þróunin í ESB  svo mikið að hann getur ekki orða bundist. Hvar er lýðræðið spyr hann. Maðurinn sá er farinn að skilja að hann er að drukkna í naglasúpunni sem hann eldaði fyrir þjóð sína.     

Síðustu 25 árin ól ég manninn í Danmörku. Það besta við Danmörku er ekki ESB aðild landsins. Nei, það besta við Danmörku eru Danir. Margir Íslendingar uppgötva Dani aldrei því þeir halda að Danmörk sé Ráðhústorgið í Kaupmannahöfn. Þar býr enginn Dani. Að fara til náms á ensku í Danmörku er svona eins og að horfa á Danmörku í gegnum sjónvarpið heiman að frá.   

Eitt það versta við Danmörku fannst mér hins vegar vera orðið Evrópusambandsaðild landsins. Þegar ég flutti til Danmörku var Evrópusambandið ekki til. Og ári eftir komu okkar til landsins fullvissaði forsætisráðherrann dönsku þjóðina um að Evrópusambandið yrði heldur aldrei til. Að ESB væri andavana fædd hugmynd og steindauð. Níu árum seinna sat þessi kaldi karl sem þingmaður á þingi þess Evrópusambands í Brussel sem átti ekki að vera orðið til - og þáði þar laun fyrir að hafa logið þjóð sinni svona hratt en örugglega að feigðarósi fullveldis. 

Nú um mundir státa svona galeiðuþrælar Brusselveldisins sig á laun af því að Evrópusambandið sé Bandaríki Evrópu í smíðum. Önnum kafið við að slíta barnsskónum. Að ESB hafi náð því sem svarar til fyrstu 50 áranna af sameiningarferli Bandaríkja Norður Ameríku. Hinum megin við sundið laug svo sænski Persson-forsætisráðherrann því að Svíum að heldur ekki þeir væru að skríða inn í skipasmíðastöð Bandaríkja Evrópu. Danmörk, Svíþjóð, Burmeister & Wain, Kocums, Volvo og allt heila dótið er nú orðið að frímerkjasleikjurum í stað strokka í eigin aflvél. Og vélarvana er þetta orðið, trúið mér.
 
CDS Iceland versus Greece 
Iceland vs Greece; The first difference is that Iceland was a direct, relatively isolated banking crisis. (Iceland is a relatively independent, in the sense of uncorrelated, entity, whereas Greece clearly is not.) Greece is one sovereign aspect of a broader European situation that we see as generally a banking crisis; FT/Alpaville
 
Engum af 500 milljón þegnum landa Evrópusambandsins hefur þó verið sagt frá þessu. Að þeir búi í bakaraofni Bandaríkja Brussels. Hinu andstæða hefur stanslaust verið logið að þeim af litlum körlum eins og til dæmis þáverandi forsætisráðherra Danmerkur og Uffe Ellemann Jensen, sem er sá krossfari Evrópusambandsins í Danmörku sem riðið hefur hve lengst á þeim stolnu hestum sem hann og kumpánar í leyfisleysi hafa hnuplaði frá kjósendum. Engin er virðing mín fyrir þessum ESB-fíklum lengur. Þeir eiga mikla skömm skilið fyrir að vera orðnir blindir ESB-dópistar sem selt hafa land sitt fyrir þorskklapp á báðar axlir frá torfustofum Brussels. Nei, þetta er ekki rétt hjá mér. Búið er að spenna þorskinn fyrir þessa menn. Hann löðrungar þá stanslaust á óþreytandi sundi sínu um þvagsíkin í Brussel. En út mun hann brjótast.   

Á 25 árum sá ég hvernig þetta skrímsli hefur þróast án samþykkis þjóðarinnar í reynd. Illa gefin aðild Danmerkur að ESB er orðin að handjárnum og hugarfarslegri spennitreyju fyrir dönsku þjóðina. Hjálparleysið er algert. Danmörk bara er próvins í ESB eins og Grikkland er það. Hún getur hvorki lifað né dáið.
 
Shit og lort er ekki það sama. 
 
Krækjur
 
Ud af EU! - Konservativ Ungdom
Vejen ud af EU - Konservativ Ungdom
Nyrup går imod Rompuys europagt - Folkebevægelsen mod EU
 
Fyrri færsla
 

CDS markaðurinn veðjar á ríkisgjaldþrot Grikklands, Írlands og Portúgals. Spánn og Ítalía í biðstöðu og sleppa í bili [u]

Bloomberg segir að skuldatryggingamarkaðurinn veðji nú á ríkisgjaldþrot evruríkjanna Grikklands, Írlands og Portúgals. Í gær þurfti ríkissjóður Portúgals að greiða 6 prósent vexti til að fá lán til fjögurra ára. Í september var þessi tala 4,1 prósent. Ef um 10 ára lán er að ræða þá þarf ríkissjóður þessa evrulands að greiða 7,49 prósent í vexti til alþjóðlegra fjárfesta. Alveg er lokað á öll erlend lán til alls bankakerfis Portúgals og hefur verið svo í heilt ár.
 
Láns- og vaxtakjör evruríkja eru orðin hrikaleg og óbærileg. Óstöðvandi snjóboltaáhrifa í skuldastöðunni fer að gæta. Næstum öruggt er að Portúgal mun lenda í faðmi AGS og EFSF og í framahaldi af því í ríkisgjaldþroti eins og Grikkland. Írinn David McWilliams óttast nú að írska ríkið hirði peninga fólksins til að halda sér gangandi um stund í evru klúbbnum. 

Þeir Íslendingar sem ætla að feta í fótspor Írlands, Grikklands og Portúgals með því að samþykkja að yfirtaka tröllauknar Icesave skuldir gjaldþrota banka, þurfa að hugsa sig vel og vandlega um. Hugsa sig betur um en þegar fólk á sínum tíma lét þessa nú gjaldþrota banka plata inn á sig ólöglegum lánum og óreiðufjármangi í tonnatali, sökum eigin fjármálalegs ólæsis og glæfra bankamanna.
 
Markaðurinn mun ekki taka neinum vettlingatökum á ríkisfjármálum Íslands ef svo skyldi fara að erlendar skuldir Landsbankans lendi á ríkissjóði með samþykki þjóðar. Ríkisfjármál Íslands eru nógu slæm fyrir. 
 
Uppfært
 
Rétt í þessu lækkaði Moody's lánshæfnismat Spánar frá Aa1 til Aa2 og aðvarar um enn frekari lækkun. Ástæðan? Jú, það mun kosta landið næstum þrefalt meira að koma bankakerfi landsins ofansjávar á ný en ríkisstjórnin hafði áætlað (munið þið allar Icesave áætlanir sósíalista ríkisstjórnar Íslands?) og spænska ríkið mun ekki ráða við þær skuldbindingar án mikillar skuldsetningar og hún mun svo koma niður á hagvexti sem Moody's segir að verði á ísaldarlegum skriðjökulshraða. Nú mun CDS-markaðurinn væntanlega taka Spán til endurskoðunar. Atvinnuleysi á Spáni er nú um 20,4 prósent og 43,1 prósent hjá ungu fólki undir 25 ára aldri. 
 
Yfir-skuldsett ríki geta ekki vaxið. Þau fara bara í gjaldþrot. Ríkisstjórnir Spánar og Íslands eiga að minnsta kosti tvennt sameiginlegt; þær eru sósíalistar og vanmeta áhættu, þrefalt! 
 
 
Fyrri færsla
 

Extacy Evrópusambandssinna

 
M Y N T B A N D A L A G  E V R Ó P U S A M B A N D S I N S 
 
Fullveldi, peningastefna og vaxtavopn þeirra evrulanda sem heita ekki Þýskaland né Frakkland 

Í dauðadái og í öndunarvél liggja:
  • GRIKKLAND
  • ÍRLAND
  • EISTLAND
  • ERM II LETTLAND
  • ERM II LITHÁEN
Í sjúkrabíl á leið á bráðavaktina eru
  • PORTÚGAL
  • SPÁNN
Einkenni upptöku efnahagslíkamans á evru Evrópusambandsins eru mikilmennskubrjálæði, falskur lífsstíll, afneitun og ofsahræðsla við að mæta hvunndeginum vímuefnalaus. Glötun sjálfræðis fylgir alltaf í kjölfarið á upptöku. Engin þekkt meðferð er til við evrum nema gereyðing. Það eina sem þjóðir þurfa að muna er að taka aldrei upp evru Evrópusambandsins og þá mun þeim sjálfkrafa vegna vel.
 
Evra skal geymast þar sem börn ná ekki til hennar og úr augsýn fjármálageirans. Hún er landgönguprammi.
 
Fyrri færsla
 
 


Algerlega lokað á öll erlend lán til Landsvirkjana og bankakerfis Portúgals

"According to the central bank, Portuguese banks have not succeeded in making any international debt issues since April 2010."
  
Raunstýrivextir í evrulandinu Portúgal 2002 til 2011
Mynd: Orsök ófara Portúgals: m.a. röng peningastefna seðlabanka Evrópusambandsins í Portúgal 
 
Financial Times skrifar að Standard & Poor’s hafi lækkað lánshæfnismat fjögurra portúgalskra ríkisfyrirbæra niður í ruslflokk. Um er að ræða samgöngu- og orkufyrirtæki eignarhaldsfélaga portúgalska lýðveldisins. 
  • Rede Ferroviária Nacional - landsnet járnbrautarkerfi
  • Comboios de Portugal -  rekstur járnbrauta landsnets
  • Metropolitano de Lisboa - samgöngur höfuðborgar
  • Parpública - eignarhaldsfélag í m.a. orku
Segir S&P að herra eigandi fyrirtækjanna, portúgalska ríkið, sé ófært um að styðja við rekstur þeirra því hvorki ríkið sjálft né bankakerfi landsins hafi aðgang að erlendum lánum til svona rekstrar. Peningar portúgalska ríkisins fara í að reyna halda ríkisjóði landsins frá gjaldþroti. Vaxtagreiðslur vegna eldri lána, með útgáfu nýrra ríkisskuldabréfa, ganga því fyrir í samkeppninni um peningana í hálsbrjótandi tilveru landsins í Evrópusambandinu.
 
Vaxtakostnaður evrulandsins Portúgals frá janúar 1997 til mars 2011: 10 ára ríkisskuldabréf.
Mynd: Trading Economics: Vaxtakostnaður Portúgalska ríkisins frá janúar 1997 til mars 2011: 10 ára ríkisskuldabréf.

Samkvæmt upplýsingum frá seðlabanka Portúgals hefur allt portúgalska bankakerfið ekki haft neinn aðgang að erlendum lánum síðan í apríl á síðasta ári. Portúgalska evrubankakerfið hefur því verið fryst úti frá erlendu fjármangi í næstum heilt ár. Þetta gerist þrátt fyrir - en í sannleika sagt vegna þess - að landið er í Evrópusambandinu, hefur tekið upp myntina evru, og er þar með sjálfviljugt gengið í peningalegt pyntingafélag ESB-landa. Það hefur afsalað sér öllu fullveldi landsins í mynt, vaxta og peningamálum um alla framtíð. Landið er sem sagt gengið í Evrópusambandið sem sumir halda ennþá að sé tollabandalag. 
 
Lönd evrusvæðis lögð í rúst með rangri peningastefnu
Enginn þegni Portúgals hefur nokkurn tíma verið spurður að neinu í sambandið við neitt sem viðkemur Evrópusambandinu. Þegar stjórnarskrá Evrópusambandsins var þvingað yfir höfuð 500 milljón íbúa landa Evrópusambandsins, þá ætluðu stjórnvöld að spyrja portúgölsku þjóðina. En þá kom í ljós að stjórnarskrá Portúgals var samin af Steingrími J. Sigfússyni. Þar með var ekki heimild fyrir því að spyrja þjóðina um mál er varðar alþjóðlega sáttmála. Þjóðaratkvæðagreiðslunni var því frestað en í millitíðinni samþykkt af ESB-elítunni samkvæmt hefðum lýðræðisins í Evrópusambandinu. Hún, stjórnarskrá ESB, er því samþykkt í Portúgal.

Allt Evrópusambandið er byggt upp svona, meira heldur en minna, eða álíka og Frakkland var undir Adolf Hitler; þ.e. tvískipt landslag hugarfars. Lækningunni á djúpum sárum Frakklands síðan þá, er ennþá ólokið.

Kínverjar Evrópu, þ.e.a.s. Þýskaland, sem enn heldur sér marrandi ofansjávar með falsaðri gengisskráningu þýska hagkerfisins, geta hér bráðum komið í gegnum frægt beinagrindasafn gjaldþrota Landesbanka-kerfis Þýskalands, og keypt sér innviði portúgalska lýðveldisins fyrir heiðarlega fengnar evrur.
 
Þingmenn sækja umboð sitt til þjóðarinnar. Þessir gerðu það ekkiÞetta mun gerast algerlega óvænt eða eins álíka ófyrirsjáanlega og þegar forysta Vinstri grænna, sem er helsti kosningasvikari íslenska lýðveldisins, mun fá skyndilegar fréttir um breytt eignarhald á innviðum lýðveldis okkar. Þetta gerist þó varla fyrr en eftir að Vinstri grænum hefur tekist að ljúga Íslandi inn í Evrópusambandið af ófyrirleitinni valdaklíku flokksins. 

Formaður Vinstri grænna - sem kennir sig við góða stjórnarhætti þegar af honum bráir á kosningadögum fyrir framan kjós endur sem hann þá gefur brauðið sem hann fékk að láni hjá börum -  hefur nýlega myndað bandalag með forystusmjörlíkisklessu Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benedikssyni Jr. Saman ganga þeir út frá því að ávalt eigi að stjórna gegn vilja fólksins sem kaus þá. Hið nýja verktakafyrirtæki Steingríms J. og Bjarna B. Jr. heitir Bolverk Eignarhaldsfélag Icesave V/S. Ríkisstjórnarfyrirtækið DDRÚV sér um ímyndar kynningu á verkefnum félagsins. Gratís og við hvert tækifæri sem gefst. Þá mun Portúgal rætast. 
 
Tegnt
 
 
Krækja

 

Er ríkisstjórnin þá bara banki? Eru "nánast allar líkur" á því?

Import
 
Nú er að gerast það sama og gerðist þegar foringjar í ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins hófu erlenda áróðursherferð fyrir þrem rosalega sterkum íslenskum bönkum; Glitni, Landsbankanum og Kaupþingi. Þá þurfti bráðnauðsynlega að sækja sér fjármagnið erlendis. Engar líkur voru á að bankarnir yrðu gjaldþrota. Samfylkingin vissi þá svo vel hvað hún var að segja og ég horfði á hana segja það í danska sjónvarpinu. Hún sá nefnilega um eftirlitið með þessum bönkum öllum. Fjármálaeftirlitið var hennar.

Export
 
Það sem er að gerast í ríkisstjórn Íslands í dag er það sama og gerðist í þeirri síðustu. Samfylkingin er þó ekki alveg sú sama - orðin mörgum sinnum verri - og situr enn í ríkisstjórn. Það eina sem hefur breyst er að nú verður ríkisstjórnin að sækja sér fjármagnið innanlands; hjá börnum, gamalmennum, vinnandi og líka veiku fólki. Til þessa notar ríkisstjórnin einn fremsta kosningasvikara Íslandssögunnar til að villa um fyrir þjóðinni. Hann kann það fag fram í alla fingurgóða. Hér er kominn á vígvöllinn sjálfur Steingrímur J. Sigfússon, gamall en þvottaekta kommúnisti. Liturinn fer aldrei úr honum. 

Ríkisstjórnina vantar bráðnauðsynlega peninga til að fylla aftur á bankana sem engar líkur voru á að tæmdust né færu í gjaldþrot. Hana vantar peninga sem hægt er að flytja út og gefa í útlöndum svo hún sjálf geti setið hér aðeins lengur. Aftur er stuðst við líkindareikninginn. Eða ætti ég að segja út-reikninginn fyrir líkin.   

Litlar 2008 líkur: "Ný skýrsla Moody's segir litlar líkur á hremmingum"

"Ísland er eina ríkið með lánshæfiseinkunnina Aaa hjá matsfyrirtækinu Moody's þar sem bankarnir eru að meðaltali með lánshæfiseinkunn fyrir fjárhagslegan styrk undir C, segir í nýrri greiningarskýrslu Moody's. Fyrirtækið lækkaði einkunn bankanna úr C í C- í febrúar. Staða bankanna er sögð valda áhyggjum en litlar líkur séu á hremmingum í efnahagslífinu vegna hennar."
 
2008: "líkurnar á því"
 
"Moody´s sendi frá sér mat á stöðu íslenska bankakerfisins í dag. 
Styrkleikana segir Moody´s vera sterk vörumerki, landfræðilega dreifingu starfseminnar og líkurnar á því að stjórnvöld komi til aðstoðar ef nauðsyn krefur."

2008:  "nánast engar líkur" 
 
"En hvað er þá til ráða. Rauði þráðurinn í vörn okkar og ímyndarvinnu á næstu vikum og mánuðum er að hamra á sterkri eiginfjárstöðu, glæsilegri hagnaðarsögu, litlum útlánatöpum, góðu lánshæfismati, góðum árangri í þolprófum, og að nánast engar líkur séu á að bankarnir verði gjaldþrota – eða komist í þá aðstöðu að kalla þurfi út hjálparsveitir. Annað getum við ekki gert. En við getum gleymt því að ætla að stjórna umræðunni erlendis."
 
Fyrri færsla
 
 

Matvæli Finnlands í ruslflokki eftir ESB aðild

Hard Rock and Water. Af hverju vegnar Íslandi svona miklu betur en Nýfundnalandi 
Tengt efni: Kvikmynd; Ísland og Nýfundnaland - hver er munurinn? Svona myndi fara fyrir Íslandi í ESB. Athugið: ESB er komið enn lengra í sameiningarferli landanna en sambandsríki Kanada hefur náð. 
 
Ímynd trausts, öryggis og hreinleika þess matar sem Finnar leggja sér til munns í ESB-landi sínu er hratt að breytast til hins verra, skrifar Helsinki Times

Maturinn er orðinn rusl. Skinka á pitsum er innmatur úr pylsum, kjötbollur eru úr kjúklingaskinni í stað hakkaðs kjöts, avokado innihaldið í guacamole var 0,7 prósent og svörtum ólívum var drekkt í efnalegi áður en þær voru litaðar í geislavirkri málningartunnu frá matvælaþróunarfyrirtækjum Evrópusambandsins. Food enhancement and recipe development er þetta kallað. Þetta eru skítakraftaverk unnin á mat sem var ónýtur fyrir. 

Fjölbreytni er meiri í mat hér á Íslandi en í ESB og hann er miklu betri og ferskari. Innlend hráefni eru afar góð. Þetta sé ég með gestsauganu því ég bjó í dönsku ESB síðustu 25 árin og ekkert var mér orðið eins leiðinlegt og að kaupa þar í matinn. Tveir menn ráða því hvað öll danska þjóðin borðar; innkaupastjórarnir í FDB og Dansk Supermarket, sem eru þau fyrirtæki sem eiga 90 prósent af markaðinum. Þau fá svo afhenta mjólkurvörur frá skítafyrirtækinu Arla Foods sem hefur heltekið danskan landbúnað með allt að 90 prósent einokun og fjöldamorðum á öllu sem sú kompa kemur nálægt. Nú koma allir ostar Danmörku úr einum og sama tankinum með grunnefnum. Ekkert er eins leiðinlegt og að kaupa þarna inn. 

Að borða matinn er enn leiðinlegra. Bakarar eru að drepast því brauð og bakkelsi er orðrið svo vont eftir að þeir hættu að vera sannir handverksmenn og breyttust í þann dósaupptakara sem fær tilbúið deig á tunnum frá ESB-Sovéskt miðstýrðum lagar sem fóðrar þá með tilbúnu 100 ára gömlu deigi sem smakkast eins og torf eða sag úr vélsög bleytt upp í hlandi. Hér mega íslenskir bakarar passa sig líka. Brauðið þeirra er ekki gott lengur. Það er orðið gamalt torf og sag; massi. Ekki vottar lengur fyrir stúktúr í deginu. BM-Vallá gæti afhent þeim betri vörur en þær sem koma til þeirra á tunnum frá ESB. Þegar handverksmenn stytta sér svona leiðir þá endar það alltaf á einn veg; þeir útrýma sér sjálfir.

Hér má bæta því við að íslenskir ísframleiðendur eru því miður að verða búnir að eyðileggja vörurnar sínar með því að detta ofan í tunnu af rusli frá ESB, efni sem notuð eru til að drýgja það eina sem þeir hafa umfram aðra; íslensku hráefnin. Asnar. Ísinn er þó mörgum sinnum verri í ESB. Honum hendi ég oftast eftir fyrsta bitann.  

Sem betur fer kunna íslenskir iðnaðarmenn flestir fagið sitt enn, því mig langar svo oft að éta verkin þeirra. Íslenskur landbúnaður er algerlega einstakur. Hann mun allur deyja í ESB og síðasti sporðurinn af fiski frá íslenskum fyrirtækjum mun hætta að sprikla á innan við 10 árum eftir að Ísland hefur verið innlimað í hin nýju Sovétríki Evrópu: ESB 
 
Helsinki Times: Why are we fed this rubbish? 
 
Tengt
 
Svona myndi fara fyrir Íslandi í ESB: Ísland og Nýfundnaland - hver er munurinn? 
 
Fyrri færsla
 

Evruaðild gereyðir eignum fjárfesta Írlands. Mesta eignahrun í 215 ár.

 Hvernig spilling og heimska drap keltneska Tígurinn
 
Þegar þú kaupir hlut í fyrirtæki þá ertu orðinn meðeigandi í fyrirtækinu. Þú skalt vita það að þú keyptir part í fyrirtæki X vegna þess að þú varst búinn að rannsaka svo vel allt það sem fyrirtækið stendur og stendur ekki fyrir. Þú veist nákvæmlega hvað þú ert að gera. Þú gerir ekki eins og fjárfestarnir Össur Skarphéðinsson ráðherra og Árni Þór Sigurðsson sem seldu vitringahluta sína í sparibankanum SPRON sem þeir áttu, en vissu svo þegar allt kom til alls ekki af hverju þeir áttu - en seldu svo undurfurðulega allt klabbið á einu hárréttu sekúndunni áður en fyrirtækið varð allt í einu jafn mikið einskis virði og gulltryggt eignasafn Landsbankans verður á því einasta eina sekúndubroti sem til þarf.
 
Ég bíð nú spenntur eftir því hvenær þeir selja hlut sinn í Íslandi, því vitringarnir tveir eru nánast báðir með ríkisstjórnun lands okkar í höndum sér. 

Fregnast hefur líka að ríkisstjórn Suður-Afríku hafi óvænt neitað að ríkisábyrgjast birgðir gullframleiðenda þar í landi. Þetta áfall kom eins og elding. Gull sveiflast svo mikið í verði. En það gerir eignasafn Landsbankans auðvitað ekki.  

ISEQ20 5 ár
En já, á Írlandi þá gengu menn - þar eru menn alltaf að ganga - út frá því að eignasafnið sem velt er um á þurrum gólfum kauphalla landsins væri algerlega gulltryggt því landið væri með gulltryggða mynt sem heitir evra og væri þar að auki meðlimur í klúbbi vitrustu manna Evrópu. Írar höfðu nefnilega lagt svo mikið á sig með því að ganga - já þarna kemur það - í myntbandalag Evrópusambandsins.

En nú er allt brunnið sem brunnið gat á Írlandi og götin í gólfum kauphalla landsins eru orðin svo stór að þar horfa menn niður til helvítis ártalsins 1793. Það þarf að leita aftur til ársins 1793 til á fá spegilmynd af því sem gerst hefur í eignasöfnum Írlands. Eignasöfnum. 

Hafið þið kannski heyrt það að evrulandið Írland er líka að verða ríkisgjaldþrota vegna þess að ríkisstjórn landsins skrifaði upp á skuldbindingar evrubanka landsins.  Allt var þetta svo gulltryggt í evrum.
 
Kauphöll Írlands hóf stafsemi sína árið 1793. Hefði hún verið eldri hefðum við ef til vill þurft að horfa aftur til stærsta hruns Írlands síðan risaeðlur átu þar þá sem langa löngu síðar hefðu getað orðið menn.
 
Það skyli þó ekki vera að Evrópusambandið sé risaeðla?
 
 
Fyrri færsla
 

Jæja, nú er Ísland svo að segja komið inn í Evrópusambandið.

Hvernig líður ykkur? Er þetta ekki dásamlegt? Við erum loksins komin með verðbólgu sem er svo lítil að hún er minni en í ESB. Er þetta ekki dásamlegt?

Atvinnuleysi hjá okkur fer að jafnast á við atvinnuleysi eins og það hefur verið samfleytt í Evrópusambandinu síðustu 25 árin. Þó ekki alveg eins mikið. ER þetta ekki dásamlegt! 

Atvinnumarkaður okkar fer að nálgast eymdina á atvinnumarkaði ESB-landa. Fleiri hundruð manns sækja um að fá að stýra sama kústskaftinu. Svo munu opinberir besservissar finna upp óendanlega marga skóla sem kenna fólki að stýra kústskötum og um fram allt munu háskólar sem kenna fólki að sækja um vinnu sem er ekki til spretta upp eins og gorkúlur. Fleiri og fleiri fá vinnu við að kenna öðrum svona vandasöm verk. Því verður hagvöxtur sá sjaldgæfi evrópski fugl sem verpir einu eggi hvert árþúsund í birkihreiðrið á tómu höfði fjármálaráðherra.

Við erum líka komin með nýjan ESB-legan undirklassa af fólki í land okkar sem er í litlu eða engu sambandi við samfélagið. Talar hvorki né skrifar en kann þó skiltamál. Þetta er fólkið á vegunum í Evrópu. Hinn nýi undirklassi ESB sem á hvergi heima og er alltaf fátækur en hefði átt að vera heima hjá sér við að byggja upp landið sitt eftir gereyðingu síðustu sósíalista Evrópu. Heimaland undirklassans verður því alltaf fátækt.
 
Fólkið var flutt hingað inn þegar það vantaði svo fólk sem kunni það sem við vorum of menntuð til að geta. Svo þegar atvinnan fer aftur þá fer þetta fólk á hérlendar atvinnuleysisbætur og er svo sett í skóla og fær vinnu við að bora í nefið á hinum sem hafa ekki neitt annað að gera en að kenna fólki að sækja um vinnu sem er ekki til. Svo kemur ný uppsveifla og þá vantar meira fólk því þá eru allir orðnir svo ofmenntaðir í nefborun að þeir geta ekki unnið. Þá þarf að flytja inn enn meira fólk. Og svona gengur þetta koll af kolli þangað til enginn framleiðir neitt nema eyðublöð, alveg eins og í Evrópu. Það er svona sem menn leggja hvatann að hagvexti framtíðarinnar, ekki satt? Með því að klippa hvert annað sama þó sköllótt séum. Aftur og aftur.    

Svo hækka skattarnir alveg eins og í Evrópusambandinu. Heilbrigðiskerfið fer að marra í krónísku kafi því skattatekjur frá hinni nýju eins strokka vél hagkerfisins eru krónískt of litlar til að halda uppi öllum eyðublöðunum og kústskaftaskólunum. Áður var þessi vél hagkerfisins V8 og gat allt. 

Svo er skattað enn meira og meira því atvinna verður alltaf minni og minni og svo endum við með því að velferðarsamsteypan sem samanstendur af opinberum starfsmönnum, ellilífeyrisþegum, atvinnuleysingjum, fólki á bótum og bóta bótum er orðin svo stór að hún telur 75 af hverjum 100 kjósendum. Þá er orðið úti um allar breytingar til hins betra því enginn getur keppt við dópsölu ríkisins á kosningadögum og sem sýgur tekjur sínar upp úr vösum þeirra fáu sem vinna og deilir þeim út til þeirra sem eru fastir á dópinu í velferðarsamsteypu hins opinbera.  

Þá er þetta allt loksins orðið alveg eins og í Evrópusambandinu. Eins og í himnaríkjum dópsölu sósíaldemókrata. Þá mun nú verða gaman.

Svo þarf bara að kála sjávarútveginum, landbúnaði og byggingabransa og þá erum við að fullu komin alveg inn í Evrópusambandið, hjá Kínverjum Evrópu, sem heita Þjóðverjar. Himnar helvíta sósíaldemókrata opnast þá öllum og menn æla ævilangt. En þá er allt orðið of seint. Ó ríkisgjaldþrot, hvar ertu? Og þetta er allt saman gratís. Enginn getur keppt við dópsölu stjórnmálamanna. Rúðubrot ríkisins. 

Suckers!
 

Verður pasta-tómatsósuverðbólga myntarinnar evru tekin upp?

Innkeyrslan við þýska seðlabankann 
Mynd: aðalstöðvar þýska seðlabankans 
 
Þá vitum við það. Eftirfarandi evruupptaka hefur náðst á segulband. Ef skipa ætti Ítala sem bankastjóra seðlabanka Evrópusambandsins (ECB), þá þýðir það aðeins eitt: verðbólgu. 

Þýska blaðið Bild-Zeitung, sem kemur út í hve stærstu upplagi allra blaða í Evrópu, hefur áhyggjur af því að Ítali geti hugsanlega orðið næsti bankastjóri seðlabanka Evrópusambandsins. Blaðið segir að verðbólga sé eins órjúfanlegur og rótgróinn þáttur í lífi Ítala og pasta og tómatsósa eru það. Hver veit. Kannski fá Esbbúar gleraugun sín loksins á einn milljarð.      

Ykkur finnst kannski kátbroslegt hversu verðbólguhræddir Þjóðverjar eru. En menn hætta hratt að brosa þegar þeir komast að því að á fyrri hluta ársins 1921 ríkti verðhjöðnun í Þýskalandi, en á seinni hluta þess sama árs var verðbólgan komin upp í 500 prósent. Allt þetta innan eins og sama ársins. Þökk sé verðbólguvæntingum sem fóru úr böndunum og litlu öðru. Þýskaland er ekki eins og önnur lönd. Ef verðbólguvæntingar þýsks almennings fara úr stálböndum arfleiðar þýska seðlabankans, Deutsche Bundesbank, þá mun verðbólgan fara um landið eins og sinubruni og hraðar en hendi er hægt að veifa. Og þetta er ekki fyndið.  

Ef þýskur almenningur fær á tilfinninguna að makkarónumenn í myntmálum séu sestir að í aðalstöðvum seðlabanka Evrópusambandsins í Frankfurt - og sem skilyrðislaust átti að byggja á arfleið Deutsche Bundesbank - þá er leikurinn úti fyrir allt myntbandalag Evrópusambandsins. Þýskaland myndi þá umsvifalaust varpa evrunni fyrir borð, fara létt með það, og stálkrumlum Bundesbankans yrði sigað á alla stjórnmálamenn landsins í formi Neue Deutch-Mark og über sjálfstæðrar peninga- og vaxtastefnu seðlabankans. Þar með væri úti um alla ökumenn Club Med öskubifreiðar evru og öllum þeim sem þar hafa fengið að fljóta "ókeypis" með. 

Vel er hægt að skilja verðbólgufóbíu Þjóðverja, ef menn reyna. Sem betur fer hefur íslenska krónan aldrei hagað sér svona, þó svo hún á stundum hafi stunið undan því velmegunar hraðameti hagsögunnar sem sett var á Íslandi síðustu marga áratugi. Það þarf góðan gjaldmiðil til að standast svona prófraun.

Þar síðasti gjaldmiðill Þýskalands stóðst ekki. Og engin von er til þess að myntin evra standist svona þolraun. Hún gerði það ekki á Írlandi. Það er vegna þess að hún er gjaldmiðill elliheimila og stöðnunar. Myntsvæði evrunnar á heimsmet í lélegum hagvexti og fastforsinni efnahagslegri stöðnun. Til þess að rjúfa vítahring hnignunar, stöðnunar og demens Evrópu, þarf myntin evra að deyja. Og það getur ekki gerst nógu hratt. 

Sannleikurinn er einnig sá að níðþung ríkisútgjöld stærsta elliheimilis heimsins, Þýskalands, þola ekki meira en 2 prósent ársverðbólgu. Ef hún fer hærra þá verður ríkissjóður Þýskalands gjaldþrota á augabragði. Verðtrygging níðþungra ríkisútgjalda þýska öldrunarhagkerfisins og nú eðlislæg efnahagsstöðnun í klóm ESB og EMU virkar þannig.

En Ítalir skilja þetta ekki. Enginn skilur myntmál evrunnar nema Þjóðverjar. Nú vita þeir bæði leynt og ljóst að á aðeins 8 árum hefur Jean-Claude trésetti ECB frá Lyon tekist að gera mynt og seðlabanka myntar Þýskalands að ruslatunnu.

En Ítalir eru ekki hrifnir af þessari þróun, því þeir skilja ekki Þjóðverja. Strax hafa þeir tekið sér í munn hugtakaþrennuna, þjóðernishyggja, kynþáttafordómar og hroki.  

Sannleikurinn um Evrópusambandið er sá að fyrir Evrópu er ESB ekki sjálfbær þróun. ESB er orðið að óbærilegri þróun á Evrópu.
 
Evran eykur svo friðinn í Evrópu. Ekki satt? 
 
 
Tengt
 
Fyrri færsla
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband