Leita í fréttum mbl.is

Dönsk uppreisn gegn ESB-aðild að mótast?

Konservativ ungdom Danmark 
Mynd; landsfundur KU
 
Ungliðahreyfing danska íhaldsflokksins, konservativ ungdom, krefst þess að Danmörk segi sig úr Evrópusambandinu. Hvorki meira né minna. Unga fólkið vill út úr ESB. Út!
 
Jeg mener at Grundloven er den vigtigste del af vore danske love, og at denne lov er ukrænkelig i forhold til det at være dansker [. . ] Og hvad mener EU om vor Grundlov? Tillad mig at citere EU’s forfatning: ”Forfatningen og den ret, der vedtages af Unionens institutioner (…) har forrang frem for medlemsstaternes ret (artikel 1-6)” Dette betyder at den lovgivende magt, bliver givet fra nationalstaterne til EU og at linjen mellem en selvstændig stat, og en forbundsmagt bliver udvisket.

Um stóran meirihluta fyrir þessari ákvörðun hreyfingarinnar var þó ekki að ræða. En fyrir mér hljómar þetta eins og viss súpubylting. Þetta eru að minnsta kosti alveg nýjar bollur í súpunni sem Danmörku hefur verið hellt út í. Miklar fréttir. Og meira að segja fyrrverandi Nyrup-formanni danskra sósíaldemókrata blöskrar þróunin í ESB  svo mikið að hann getur ekki orða bundist. Hvar er lýðræðið spyr hann. Maðurinn sá er farinn að skilja að hann er að drukkna í naglasúpunni sem hann eldaði fyrir þjóð sína.     

Síðustu 25 árin ól ég manninn í Danmörku. Það besta við Danmörku er ekki ESB aðild landsins. Nei, það besta við Danmörku eru Danir. Margir Íslendingar uppgötva Dani aldrei því þeir halda að Danmörk sé Ráðhústorgið í Kaupmannahöfn. Þar býr enginn Dani. Að fara til náms á ensku í Danmörku er svona eins og að horfa á Danmörku í gegnum sjónvarpið heiman að frá.   

Eitt það versta við Danmörku fannst mér hins vegar vera orðið Evrópusambandsaðild landsins. Þegar ég flutti til Danmörku var Evrópusambandið ekki til. Og ári eftir komu okkar til landsins fullvissaði forsætisráðherrann dönsku þjóðina um að Evrópusambandið yrði heldur aldrei til. Að ESB væri andavana fædd hugmynd og steindauð. Níu árum seinna sat þessi kaldi karl sem þingmaður á þingi þess Evrópusambands í Brussel sem átti ekki að vera orðið til - og þáði þar laun fyrir að hafa logið þjóð sinni svona hratt en örugglega að feigðarósi fullveldis. 

Nú um mundir státa svona galeiðuþrælar Brusselveldisins sig á laun af því að Evrópusambandið sé Bandaríki Evrópu í smíðum. Önnum kafið við að slíta barnsskónum. Að ESB hafi náð því sem svarar til fyrstu 50 áranna af sameiningarferli Bandaríkja Norður Ameríku. Hinum megin við sundið laug svo sænski Persson-forsætisráðherrann því að Svíum að heldur ekki þeir væru að skríða inn í skipasmíðastöð Bandaríkja Evrópu. Danmörk, Svíþjóð, Burmeister & Wain, Kocums, Volvo og allt heila dótið er nú orðið að frímerkjasleikjurum í stað strokka í eigin aflvél. Og vélarvana er þetta orðið, trúið mér.
 
CDS Iceland versus Greece 
Iceland vs Greece; The first difference is that Iceland was a direct, relatively isolated banking crisis. (Iceland is a relatively independent, in the sense of uncorrelated, entity, whereas Greece clearly is not.) Greece is one sovereign aspect of a broader European situation that we see as generally a banking crisis; FT/Alpaville
 
Engum af 500 milljón þegnum landa Evrópusambandsins hefur þó verið sagt frá þessu. Að þeir búi í bakaraofni Bandaríkja Brussels. Hinu andstæða hefur stanslaust verið logið að þeim af litlum körlum eins og til dæmis þáverandi forsætisráðherra Danmerkur og Uffe Ellemann Jensen, sem er sá krossfari Evrópusambandsins í Danmörku sem riðið hefur hve lengst á þeim stolnu hestum sem hann og kumpánar í leyfisleysi hafa hnuplaði frá kjósendum. Engin er virðing mín fyrir þessum ESB-fíklum lengur. Þeir eiga mikla skömm skilið fyrir að vera orðnir blindir ESB-dópistar sem selt hafa land sitt fyrir þorskklapp á báðar axlir frá torfustofum Brussels. Nei, þetta er ekki rétt hjá mér. Búið er að spenna þorskinn fyrir þessa menn. Hann löðrungar þá stanslaust á óþreytandi sundi sínu um þvagsíkin í Brussel. En út mun hann brjótast.   

Á 25 árum sá ég hvernig þetta skrímsli hefur þróast án samþykkis þjóðarinnar í reynd. Illa gefin aðild Danmerkur að ESB er orðin að handjárnum og hugarfarslegri spennitreyju fyrir dönsku þjóðina. Hjálparleysið er algert. Danmörk bara er próvins í ESB eins og Grikkland er það. Hún getur hvorki lifað né dáið.
 
Shit og lort er ekki það sama. 
 
Krækjur
 
Ud af EU! - Konservativ Ungdom
Vejen ud af EU - Konservativ Ungdom
Nyrup går imod Rompuys europagt - Folkebevægelsen mod EU
 
Fyrri færsla
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þeir eru margir erindrekarnir frá Brussel, nokkrir sitja hér á þingi og ríkisstjórn, ætli þeim hafi verið lofað feitum sætum í Lúxemburg eða Brussel?

Ég þekki fólk í Austurríki, Danmörku, Þýskalandi og fleiri ríkjum allt þetta fólk er andvígt úr í ESB, og undrandi á að við skulum vera að hugsa um inngöngu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.3.2011 kl. 11:20

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þessa grein ættir þú að setja í Blöðin og senda ríkisstjórninni. Ég hef  adrei treyst þessum UFFe.

Valdimar Samúelsson, 11.3.2011 kl. 11:24

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Heill þér Gunnar fyrir vöku þína yfir landi og þjóð!

Halldór Jónsson, 11.3.2011 kl. 12:43

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir innlit, innlegg og góðar kveðjur

Lengi lifi bláa eyjan okkar.

Gunnar Rögnvaldsson, 11.3.2011 kl. 20:16

5 Smámynd: Vendetta

Gunnar, ég bjó jafnlengi og þú í Danmörku eða alveg frá árinu 1980. Og hef sömu skoðun á ESB og þú. Ég þekki vel Dani og hef bloggað oft um ESB-mál í Danmörku eða skrifað athugasemdir um það. T.d. hef ég nýlega leiðrétt vitleysu eins ESB-sinnans, sem skrifaði gleiður um þjóðaratkvæðagreiðslur í Danmörku án þess að hafa minnstu hugmynd um þær.

Ég og fjölskylda mín urðum fyrir kartöflukúrnum illræmda, sem bílasalinn Poul Schlüter kom á og sem bitnaði fyrst og fremst á  láglaunafólki. Það varð öllum ljóst að það var ekkert að marka neinar staðhæfingar Schlüters  eftir að hann sagði: Unionen er stendöd og samt skall hún á nokkrum árum síðar. Þótt það sæti tíðindum að Konservativ Ungdom hugnist ekki ESB og er þar með á kant við þingflokkinn sem elskar ESB það mikið, að (fyrrv.?) utanríkisráðherra, Lene Espersen samþykkti að taka upp ESB-skatt, sem jafnvel Venstre var á móti, þá er það staðreynd með öll þessi pólítísku ungmennafélög í DK (VU, KU, Soc.U, SFU, DFU) að meðlimirnir ganga alltaf út frá upphaflegri stefnumiðum móðurflokksins. Þannig er VU meiri frjálshyggjumenn, SFU sósialískri og KU meiri íhaldsmenn. Það ætti því ekki að koma neitt á óvart þótt KU álíti að stefna og eðli ESB sé andstætt íhaldsstefnu.

Margir hægrimenn í Danmörku, bæði meðal De Konservative og í Venstre, hafa haldið því fram að ESB sé sósíaldemókratísk í uppbyggingu sinni. Engin furða, þótt Nyrup (sem kom óorði á flokkinn sinn í stjórnartíð sinni) hafi verið svona hliðhollur ESB. Ef Nyrup er eitthvað að æmta og skræmta núna, þá er það eins og óviti sem kveikir á þúsund kertum heima hjá sér til að fá birtu, en kvartar svo yfir því að það kvikni í kofanum. Hræsni og skammsýni, ekkert annað. Ég tel líka, að SF hafi mýkt andstöðu sína við ESB vegna þess að þeir hafa séð, að forræðishyggjan er í takt við sósíalismann. Svo er spurningin: Hvers vegna voru (og eru) Anders Fogh og Lars Lökke í Venstre svona ákafir fylgismenn ESB? Er það út af peningastefnunni sem Þjóðverjar stýra, sem er í takt við líberalismann? Ekki get ég séð það. Bæði ESB-sinnar úr mismunandi flokkum hafa mismunandi ástæður fyrir að vera hlynntir ESB, og sama gildir ESB-andstæðinga. Andúð DF á ESB er af öðrum toga spunnin en andúð EL.

Þó er eitt sem stendur upp úr fyrir mitt viðkomandi: Flestallt sem hefur farið úrskeiðis í Danmörku er landráðaflokknum De Radikale Venstre að kenna. Þessi pínulitli, hægrisinnaði, fyrrum hjáleigubændaflokkur fékk allt of mikil völd á 9. og 10. áratugnum og hefur skaðað danska þjóðfélagið meira en nokkur annar flokkur. Sá flokkur sem kemst næst honum hér á landi er sennilega Framsóknarflokkurinn. Það sem Framsókn og De Radikale Venstre eiga sameiginlegt, fyrir utan það að vera fyrrverandi bændaflokkar er stefna þeirra að hafa enga hugsjón æðri en að vera í ríkisstjórn, skiptir þá engu máli með hverjum. Þetta var amk. stefna Framsóknar frá 1971 - 2008. Hins vegar er Radikale Venstre landráðaflokkur í mínum augum vegna þess að flokkurinn stóð fyrir óheftum innflutningi á múslímum á 20 ára tímabili og gerði auk þess allt sem í valdi flokksins stóð til að grafa undan sjálfstæði danska þjóðríkisins gagnvart EBE/ESB. De Radikale Venstre er eitrað epli sem allir flokkar ættu að halda sig frá. Vonandi sér Helle Thorning-Schmidt það, en það er ekkert víst.

Svo vona ég að þú fyrirgefir þessa langloku.

Vendetta, 13.3.2011 kl. 14:17

6 Smámynd: Vendetta

Fyrst þú minntist á Nyrup vil ég hér bæta við útdrætti úr bréfi frá Pia Kjærsgaard til Evrópuþingmannsins Poul Nyrup eftir að hann lýsti því yfir 2009 enn einu sinni að DF væri ekki stjórntækt (stuerent). Síðast þegar hann lýsti því yfir var árið 2001, þegar hann tapaði kosningunum sem DF vann:

"Først og fremmest ærgrer det mig, at Poul Nyrup Rasmussen åbenbart mentalt har opholdt sig så langt fra Danmark, at han slet ikke har opdaget, at Dansk Folkeparti med ti finanslove, et utal af forlig samt store reformer har opført sig langt mere ansvarligt, loyalt og modent end de partier, som Nyrup i sin tid baserede sin magt på.

Dernæst er jeg ked af, at Poul Nyrup Rasmussen ikke alene håner Dansk Folkeparti – det må vi forsøge at komme os over – men også den knap halve million danskere, som ved sidste folketingsvalg satte deres kryds ved liste O. Er de ikke stuerene? Tæller deres bekymringer og meninger slet ikke? På en måde forstår jeg godt, at kontakten til Danmark og ganske almindelige mennesker går tabt, når man næsten udelukkende færdes i Bruxelles.

I EU er tiden stået stille. EU har forskanset sig og lukket alle skotter til de europæiske befolkninger i. Med rullegardinerne trukket godt ned forsøger man her at ignorere, at indvandringsskeptiske partier vinder frem de fleste steder, selv om panikken breder sig. I Holland er Geert Wilders Frihedsparti blevet regeringsbærende, og i Sverige opnåede Sverigedemokraterne valg til Riksdagen. Samtidig har selv forbundskansler Angela Merkel i Tyskland erklæret, at multikulturalismen har fejlet. Er Merkel heller ikke stueren, Poul Nyrup?"

Að vísu fjallaði bréfið aðallega um innflytjendapólítík, en það sýnir líka hvað Nyrup og margir aðrir ESB-þingmenn í Strasbourg eru í litlu sambandi við kjósendur heima fyrir. Það má segja Nyrup til afsökunar, að hann hefur aldrei verið í neinum tengslum við dönsku þjóðina, heldur ekki í þau tíu ár sem hann var forsætisráðherra. Nyrup var á sínum tíma eins konar Frankenstein-skrímsli, sem Helveg Pedersen skóp. Sem forsætisráðherra var Nyrup svo duglaus, að hann varð að skipa jafn duglaust fólk í ráðherrastólana (Frank Jensen, Björn Westh, Sonja Mikkelsen o.fl.) til að líta betur út sjálfur.

Vendetta, 13.3.2011 kl. 14:39

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega fyrir Vendetta, það er innilega gaman og gott að fá innlegg þín og sérstaklega þessi hér að ofan og hvert ég þig eindregið til að hefja bloggskrif. Þekking og innsýn þín er of dýrmæt til að vera lokuð inni handa einum. Mikið er ég sammála flestu af því sem þú skrifar hér að ofan.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 13.3.2011 kl. 15:19

8 Smámynd: Vendetta

Takk fyrir, Gunnar. Varðandi bloggskrif mín, þá er ég vanur því að eyða öllum færslum á 12 mánaða fresti og byrja upp á nýtt. Þess vegna er ekkert þar í augnablikinu. Það er víst óþarfi að ég sé að skrifa fleiri færslur um ESB, stjórnarskrána o.fl., þar eð það væri að bera í bakkafullan lækinn. Aðrir ESB-andstæðingar gera því svo góð skil, bæði þú, Jón Valur, Jón Baldur, Guðmundur Ásgeirsson, Sigurður Þorsteinsson og margir fleiri. Mér finnst betra að láta mér nægja að skrifa athugasemdir við þær færslur þar sem mér finnst ég hafa eitthvað að segja.

Ég vil líka segja það, að þótt sumir bloggarar hafi hent mér út ef ég hef verið of gagnrýnin á ríkisstjórnina og spillinguna, þá er það ekkert miðað við það sem mér finnst innst inni: Gremjan, reiðin, vonsvikin eru svo gífurleg, að ég á fullt í fangi með að vera kurteis. Það sem ég myndi raunverulega vilja skrifa er alls ekki prenthæft og varðar við lög. En þótt þunglyndið sé alveg að drepa mig, þá fylgist ég vel með því sem er skrifað hér á moggablogginu.

Vendetta, 13.3.2011 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband