Leita í fréttum mbl.is

Er evran landgönguprammi? Mikil spilling í Evrópusambandinu og í Brussel segja þegnarnir.

Bloomberg: Ireland, Greece May Leave Euro, Standard Bank Says. 

Er evran landgönguprammi? 

Fullfermi af fíflum. Bók eftir Fintan O'Toole 

Spilling er tískuorð á að minnsta kosti á tveimur eyjum og heilu meginlandi. Þetta á ekki bara við núna heldur næstum alltaf. Inn á tölvuskjá minn rataði írska bloggsíðan Sinn Féin Keep Left. Ástæðan var sú að ég var að "Googla" Finnland. Jahá svona gerist þetta. Þessi írska bloggsíða fjallar ekki um Finnland heldur um Írland. Þar var verið að vitna í bókadóm í blaðinu Guardian. Bókin heitir: “Fullfermi af fíflum - hvernig heimska og spilling sökkti hinum keltneska tígur”

Irish GDP is now shrinking faster than in any other advanced economy, and the country's gross indebtedness is larger than Japan's

 

Mín reynsla er sú að það fyrsta sem manni dettur í hug er yfirleitt það rétta. Þegar ég sá mynd bókarkápunnar af þrífóta evrunni þarna á kafi í höfninni í Dyflinni, þá datt mér strax í hug sokkinn landgönguprammi. Búið er að losa og tæma djásnið. Upp er svo sprottinn skógur byggingakrana. Afleiður byggingakrana eru yfirleitt byggingar - og skuldir, miklar skuldir.

En byggjendur eru nú flestir lagstir í rúmið inni í svefnálmunni sem NAMA-ríkisstjórn Írlands er að leigja undir alla þá sem byggðu þessa risastóru svefnálmu - og sem seinna urðu atvinnulausir eftir að þeir voru búnir að losa, tæma og byggja úr prammanum. Það er sem sagt komið að útborgunardegi. Ekki fyrir Íra heldur fyrir þá sem sendu þeim evruna með neikvæðum stýrivöxtum árum saman. Það er að segja, stýrivextirnir voru neikvæðir á Írlandi því þar var verðbólgan miklu hærri en heima á þýska stýri-vaxtaheimilinu í Frankfurt. Þessir þýsku vextir stýra svo vel. 

Perhaps its best hope now is to revert as soon as possible to third world status and qualify for a loan from the IMF.

 

Það er eiginlega ekki hægt að hafa eftir það sem stendur um það sem stendur í bókinni. Best er að lesa það í hljóði. En þarna á bloggsíðunni er nefnt að Írar verði að byrja þjóðfélag sitt uppá nýtt, því það sé svo spillt. Þetta hefur maður kannski heyrt áður? En maður, var þetta ekki paradísin sjálf? Var þetta ekki í ESB? Var evran þá sem Trójuhryssa Landgönguprammadóttir fyrir Íra? Já það var hún, greinilega; Bloggsíðan Sinn Féin Keep LeftTime for mutiny on this ship of fools 

Svo er það meginlandið sjálft - og Brussel

Þar er ástandið víst ekki mikið betra ef marka má skoðanakannanir. Niðurstöður Eurobarometer um spillingu í ESB eru eftirfarandi:

Þrír af hverjum fjórum 500 milljón manns Evrópusambandsins segja að það sé mikil spilling í samfélagi þeirra. Þetta eru þá 375 milljón manns sem segja að þeir búi í spilltu samfélagi. Þeir segja að spillingin sé fólgin í samspillingu stjórnmála- og viðskiptalífs. Þetta er ekki nýtt því þetta er það sama og fólk sagði í flestum löndunum árið 2007.

Nema í Finnlandi, því þar segja tvöfalt fleiri Finnar að það sé spilling í finnska samfélaginu núna en árið 2007 - eða 51% Finna í dag á móti 25% Finna árið 2007. Það eru fjármál stjórnmálaflokka og einstök skandalamál einstaklinga í fjölmiðlum sem valda þessari breytingu í Finnlandi.

Svipuð en þó verri er sagan í Austurríki. Þar álíta 61% að það sé spilling í þjóðfélagi þeirra á móti 47% á árinu 2007. Austurríkismönnum finnst vera spilling í dómskerfinu, lögreglu og stjórnmálum. Mútur eru þar líka nefndar.

Einna verst er ástandið á Möltu. Þar finnst næstum öllum íbúum þessarar eyju að spilling ríki í samfélagi þeirra, eða 95% á móti 84% árið 2007. Lengi getur vont versnað.

Í Bretlandi álitu 74% land sitt vera spillt. Þetta er 9 prósentustigum verra en árið 2007. Næstum allir Búlgarar álitu samfélag sitt vera spillt, eða 97% þjóðarinnar. Einungis 22% Dana finnst danska samfélagið vera spillt. Margir Íslendingar vita ennþá að Danmörk er eitt af fimm Norðurlöndum.

Svo kemur rúsínan í ESB-endanum: Yfir 75% af 500 milljónum íbúum ESB álíta að Evrópusambandið sjálft og stofnanir þess séu spilltar; EU Observer; Europeans see corruption as major problem

Þetta er allt saman frekar "valla valla bing bang"

Fleiri stuttar fréttir í glugganum 

 

Fyrri færsla

Gríski harmleikur gærdagsins 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Hansson

Við viljum að sjálfsögðu losna við spillingu hér á landi, bæði úr stjórnmálum og viðskiptum. En það er alltaf jafn pínlegt þegar menn tala um að gera það með því að ganga í Evrópuríkið. Þar drýpur spilling af hverju strái.

Einhverra hluta vegna gleymdist að nefna spillingu í ESB þættinum vonda sem RÚV gerði um Möltu.

Haraldur Hansson, 11.12.2009 kl. 12:50

2 Smámynd: Haraldur Baldursson

Þó inntakið sé annað, þá hlýtur fólki að vera ljóst að AGS er að reyna, sem verkfæri fyrir ESB, að færa einkaskuldi (Landsbankans) yfir á ríkið til þess að ná valdi hér á landi. Spillingin sem hér hefur ríkt mun þá taka á sig stærri blæ, því með því að stjórna ríkisstjórninni og aðgerðum/aðgerðaleysi hennar hefst innreið alvöru spillingarafla... Annað þrep í þessu er vitanlega líka að koma öllum fjármálastofnunum í erlenda eigu... enn smá vonarneisti í Sparisjóðunum, ef AGS leyfir það þá. Þegar fjármálastofnanir allar eru komnar í erlenda eigu verður ekki spurningin svo mjög um ESB af eða á... við fáum ekki að ákveða neitt um það því okkur verður ráðstafað eins og reitum í Excel skjali.

Haraldur Baldursson, 11.12.2009 kl. 13:41

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlitið 

================================

Bloomberg fréttir í dag:

Dec. 11 (Bloomberg) -- Greece and Ireland are among countries in an “intolerable” economic situation, which may lead to bailouts or even an exit from the euro area by the end of next year, according to Standard Bank Plc.

The absence of a mechanism to permit so-called fiscal transfers within the 16-nation region may undermine the exchange-rate system, said Steve Barrow, head of Group of 10 foreign-exchange strategy at the bank in London. Concern some nations will need to be rescued may drive the premium investors demand to hold 10-year Greek debt instead of benchmark German bunds to 400 basis points next year, from 214 basis points today, he said. The Irish premium may also jump, he said. 

================================

Fréttin er mikið lengri. Smellið á slóðina til að lesa hana alla.  

Ireland, Greece May Leave Euro, Standard Bank Says 

Svo mun Finnland fylgja á eftir - á meðan það hefur krafta til þess.

Skjaldborgir H/F. Stjórnarráðinu.   

Gunnar Rögnvaldsson, 11.12.2009 kl. 15:36

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Afsakið slóðin var víst ekki alveg rétt. 

Rétt slóð: Ireland, Greece May Leave Euro, Standard Bank Says 

Gunnar Rögnvaldsson, 11.12.2009 kl. 15:40

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Við eigum ekki að þurfa langan tíma til að gera þetta EU mál upp við okkur. Við skulum bara fara yfir stöðuna: Hvaða þjóðir hafa reynst okkur verst eftir hrun bankanna?

Svarið er aldrei þessu vant ósköp einfalt.

Eigum við að biðja þessar þjóðir að sparka lengur og meira í okkur með því að ganga þeim á hönd?

Árni Gunnarsson, 11.12.2009 kl. 16:44

6 Smámynd: Haraldur Baldursson

Þó áhugi íslendinga á evrópskum sparksérfæðingum hafi alltaf verið mikil, sé ég ekki ástæðu til að halla mér of mikið upp að þessari íþrótt. Sleppum þessum pínurum okkar við frekara áreiti í formi umsókna, en leyfum þeim sem turður sparka áfram að ljóma.

Haraldur Baldursson, 11.12.2009 kl. 16:50

7 identicon

Auðvitað er spilling þar rétt eins og ávallt hefur verið hér í okkar þjóðfélagi. En ég vil samt sjá hvað samningur, sem lagður verður í hendur þjóðarinnar til að kjósa um, býður upp á, áður en ég segi já eða nei. Það sem skiptir mig mestu máli er að kaupmáttur hins venjulega launþega aukist verulega. Hvort það gerist með aðild að ESB kemur vonandi í ljós þegar samningur liggur fyrir.

Guðmundur (IP-tala skráð) 11.12.2009 kl. 21:21

8 Smámynd: Árni Gunnarsson

Stundum finnst mér EU sinnar minna mig á hamingjusamlega giftan mann sem fer á skemmtistaði um hverja helgi. Ekki endilega til að ná sér í aðra konu heldur "til að sjá hvað er í boði!"

Árni Gunnarsson, 12.12.2009 kl. 00:55

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir

Guðmundur: Nú er ég búinn að búa í 25 ár í þessu "boði" sem þú nefnir. Hér á þessum blogg skrifa ég reglulegar útsendingar úr þessu boði. Svo ég ráðlegg öllum að fylgjast vel með í því sem ég skrifa um úr boðinu.  

Já Árni. Það var m.a. þessi hugsunarháttur sem leiddi íslenska fjármálageirann í glötun. Þetta er góð samlíking hjá þér. Allt sem maður á er vanrækt á kostnað þess sem maður á ekki og getur aldrei eignast eða orðið. Þetta er kallað að vera shopaholic. Fullir skápar af boðsmiðum sem aldrei voru notaðir til neins nema að grobba sig. 

Gríska boðið 

Hér er smá slóð á það sem er í boði hjá Grikkjum. Þeir eru jú líka í ESB eins og Írar. Við vitum nú þegar hvað er að gerast í boðinu hjá vinum okkar Írum. RÚV fræddi okkur svo um alla spillinguna á Möltu (not). Svo þá vitum við það þökk sé RÚV (not)

Gerið svo vel, hér er gríska teboðið

15 Things You Must Know About The Ongoing Greek Debacle 

Gunnar Rögnvaldsson, 12.12.2009 kl. 09:11

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

 Þeir sem hafa áhuga á myntbandalaginu (EMU), seðlabankamálum þess (ECB) og á því hvað er í boðinu hjá ECB, þá er hér grein sem ég mæli eindregið með. 

That Which The ECB Hath Separated, Let No Man Join Together Again! 

===================  

Seðlabankastjóri ECB sagði (að vísu á spænsku og því tók enginn eftir því sem hann sagði) að það væri ekkert í boði nema eitt:

he told Ramon Tremosa in no uncertain terms that there would be no second chance for the banks, "There is not one Euro for Spain, and another for the other countries. There is only one Euro, one rate of interest, and one exchange rate". 

=================== 

Spánn er í sama teboði og Írar, Grikkir, Portúgal, Ítalía og fleiri ESB ríki sem standa afar afar illa og sem við munum heyra mikið mikið meira frá á næstu tveim árum.

Þetta gengur allt eins og það á að ganga. Beint til heljar í EMU.

Þetta mun fara eins og síðast þegar Ísland ætlaði að ganga í myntbandalag. Það dó bara áður en Íslendingar komust þar inn. Þvílík ósvífni: Gengið á gullfótum yfir silfur Egils

Gunnar Rögnvaldsson, 12.12.2009 kl. 10:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband