Leita í fréttum mbl.is

Jæja, nú er Ísland svo að segja komið inn í Evrópusambandið.

Hvernig líður ykkur? Er þetta ekki dásamlegt? Við erum loksins komin með verðbólgu sem er svo lítil að hún er minni en í ESB. Er þetta ekki dásamlegt?

Atvinnuleysi hjá okkur fer að jafnast á við atvinnuleysi eins og það hefur verið samfleytt í Evrópusambandinu síðustu 25 árin. Þó ekki alveg eins mikið. ER þetta ekki dásamlegt! 

Atvinnumarkaður okkar fer að nálgast eymdina á atvinnumarkaði ESB-landa. Fleiri hundruð manns sækja um að fá að stýra sama kústskaftinu. Svo munu opinberir besservissar finna upp óendanlega marga skóla sem kenna fólki að stýra kústskötum og um fram allt munu háskólar sem kenna fólki að sækja um vinnu sem er ekki til spretta upp eins og gorkúlur. Fleiri og fleiri fá vinnu við að kenna öðrum svona vandasöm verk. Því verður hagvöxtur sá sjaldgæfi evrópski fugl sem verpir einu eggi hvert árþúsund í birkihreiðrið á tómu höfði fjármálaráðherra.

Við erum líka komin með nýjan ESB-legan undirklassa af fólki í land okkar sem er í litlu eða engu sambandi við samfélagið. Talar hvorki né skrifar en kann þó skiltamál. Þetta er fólkið á vegunum í Evrópu. Hinn nýi undirklassi ESB sem á hvergi heima og er alltaf fátækur en hefði átt að vera heima hjá sér við að byggja upp landið sitt eftir gereyðingu síðustu sósíalista Evrópu. Heimaland undirklassans verður því alltaf fátækt.
 
Fólkið var flutt hingað inn þegar það vantaði svo fólk sem kunni það sem við vorum of menntuð til að geta. Svo þegar atvinnan fer aftur þá fer þetta fólk á hérlendar atvinnuleysisbætur og er svo sett í skóla og fær vinnu við að bora í nefið á hinum sem hafa ekki neitt annað að gera en að kenna fólki að sækja um vinnu sem er ekki til. Svo kemur ný uppsveifla og þá vantar meira fólk því þá eru allir orðnir svo ofmenntaðir í nefborun að þeir geta ekki unnið. Þá þarf að flytja inn enn meira fólk. Og svona gengur þetta koll af kolli þangað til enginn framleiðir neitt nema eyðublöð, alveg eins og í Evrópu. Það er svona sem menn leggja hvatann að hagvexti framtíðarinnar, ekki satt? Með því að klippa hvert annað sama þó sköllótt séum. Aftur og aftur.    

Svo hækka skattarnir alveg eins og í Evrópusambandinu. Heilbrigðiskerfið fer að marra í krónísku kafi því skattatekjur frá hinni nýju eins strokka vél hagkerfisins eru krónískt of litlar til að halda uppi öllum eyðublöðunum og kústskaftaskólunum. Áður var þessi vél hagkerfisins V8 og gat allt. 

Svo er skattað enn meira og meira því atvinna verður alltaf minni og minni og svo endum við með því að velferðarsamsteypan sem samanstendur af opinberum starfsmönnum, ellilífeyrisþegum, atvinnuleysingjum, fólki á bótum og bóta bótum er orðin svo stór að hún telur 75 af hverjum 100 kjósendum. Þá er orðið úti um allar breytingar til hins betra því enginn getur keppt við dópsölu ríkisins á kosningadögum og sem sýgur tekjur sínar upp úr vösum þeirra fáu sem vinna og deilir þeim út til þeirra sem eru fastir á dópinu í velferðarsamsteypu hins opinbera.  

Þá er þetta allt loksins orðið alveg eins og í Evrópusambandinu. Eins og í himnaríkjum dópsölu sósíaldemókrata. Þá mun nú verða gaman.

Svo þarf bara að kála sjávarútveginum, landbúnaði og byggingabransa og þá erum við að fullu komin alveg inn í Evrópusambandið, hjá Kínverjum Evrópu, sem heita Þjóðverjar. Himnar helvíta sósíaldemókrata opnast þá öllum og menn æla ævilangt. En þá er allt orðið of seint. Ó ríkisgjaldþrot, hvar ertu? Og þetta er allt saman gratís. Enginn getur keppt við dópsölu stjórnmálamanna. Rúðubrot ríkisins. 

Suckers!
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Steingrímskan" gengur út á það, að aukin skattlagning opinberra starfsmanna geri kleyft að halda uppi norrænu velferðarkerfi á Íslandi.

Manstu ekki eftir myndinni hans StormP þar sem kallinn sníður rófuna af hundinum sínum til að seðja hungur hans?

halldorjonsson (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 16:12

2 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

góður pistill.

Guðrún Sæmundsdóttir, 1.3.2011 kl. 16:49

3 identicon

Þetta hlýtur að vera skelfilegt heilkenni að vera með ESB á heilanum og skrifa um það langlokur. Hvernig nennirðu að prédika svona yfir kórnum?

Magnús Bjarnason (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 18:08

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Og þessu hefur Samfylkingin beðið eftir með öndina í hálsinum.

Misjafnir eru draumar mannanna.

Ragnhildur Kolka, 1.3.2011 kl. 18:16

5 Smámynd: Gunnar Waage

tórkostlegur að vanda Nafni minn !!

Gunnar Waage, 2.3.2011 kl. 00:32

6 identicon

Frábær pistill.

Sigrún G. (IP-tala skráð) 2.3.2011 kl. 09:03

7 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Einn helst tæknikrati okkar íslendinga, Vihjálmur Þorsteisson skrifaði þennan  pistil á blogg sitt hér um daginn. Þar lýsir hann innilegri trú sinni á  rúðubrotavinnu í draumalandinu. Ég tek líka eftir því að hann er alltaf mjög vel klipptur.

Guðmundur Jónsson, 2.3.2011 kl. 11:21

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir 

Kratar eru hagvilltir og ráðvillt fólk. Krónísk (mér virðist svo) villa þeirra er sú að þeir snúa flestu á hvolf og skilja ekki orsakasamhengi hlutanna. Þeir sjálfir eru afleiða stórs opinbers geira sem lifir á pólitískri stýringu. En það sem gerði líf krata mögulegt var velmegun. En velmegun er allt annar hlutur en velferð. Þar skilur haf og himinn á milli. 

Kratar hafa aldrei búið til eða stuðlað að velmegun. Þeirra sérsvið er velferð; og hún er fjármögnuð með velmeguninni. Aðeins frjálsar tilfinningaverur geta búið til velmegun. Fullveldi hugans og um leiðar heillar þjóðar er forsenda frelsis og velmegunar. 

Allt hitt, velferðin, er bara að taka það sem aðrir hafa búið til og skapað og að deila því svo út til annarra. Þetta er sérsvið krata.

Og þetta, að snúa hlutunum á höfuðið, hefur verið reynt í t.d Danmörku þar sem fjármálaráðherrann fékk þá flugu í tómt höfuð sitt að stór opinber geiri gæti búið til eitthvað annað en kostnað. Hann hélt að velferðarsamfélagið gæti búið til velmegun. Þessi maður heitir Mogens Lykketoft og arfleið hans eru "Lykketoft mistökin". Þetta kostaði danska hagkerfið næstum lífið. 

Gunnar Rögnvaldsson, 2.3.2011 kl. 11:55

9 Smámynd: Ívar Pálsson

Hressandi skrif, Gunnar!

Ívar Pálsson, 2.3.2011 kl. 14:15

10 identicon

Ég heyrði þá kenningu að félagshyggju kapitalistar væru í raun miklu betri kapitalistar heldur en frjálshyggju kapitalistar. Því félagshyggju kapitalistin vildi að allir græddu. En frjálshyggju kapitalistinn hugsar bara um það að hann græði. 

Hvor nálgunin er eðlilegri og hvor er lífvænlegri til lengri tíma séð?

Magnús Bjarnason (IP-tala skráð) 3.3.2011 kl. 10:02

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir Ívar. 

Magnús: Ég hef aldrei á æfi minni heyrt um eins mikið af ismum, séð eins mörg hagsmunasamtök og heyrt um eins mikið af félögum af öllu tagi eins og hér á Íslandi. Það er greinilegt að hér búa of margir sem gengið hafa í einhvern félagsmálaskóla á háu eða lágu stigi. Þetta er orðið eins og vopnakapphlaup við að loka sig inni í ismum, félögum og hagsmunasamtökum og sennilega er kominn tími til að loka stórum hluta af háskólum hér á landi. Árangur þeirra er greinilega lítill nema kjaftæði á háu stigi. 

Þú þarft aðeins að veðra ríkur einu sinni. Það er pretty fundamental. Ef þú vilt gera nágranna þinn ríkan líka þá skal ég ekki banna þér það. Be my guest. En best er að gera það þannig að hann hafi vinnu og sé ekki fláður af hinu opinberaða í sköttum til þess eins að félagsmálamafían hafi alltaf nóg að gera við að bora í nefið á öllum öðrum en sjálfri sér.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 3.3.2011 kl. 11:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband