Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Getur ekki passað

PASSAR EKKI (sjá frétt)

Eruð þið blaðamenn vesturlanda ekki að villast á flugeldum og skotflaugum? Þið eruð í níu mánuði búnir að segja okkur öllum, reyndar þylja það, að Rússland sé alveg við það að vera algjörlega búið með öll skotfæri og að Rússneski herinn geti ekki neitt og ráfi nánast stjórnlaus um slétturnar og að Úkraína sé búin að vera að vinna þetta stríð hennar við Rússneska herinn með aðstoð sameinaðs NATO, og sem búið er að sturta sem svarar öllum varnarmálaútgjöldum Frakklands ofan í leppstjórnina í Kænugarði (tekur sig ekki að minnast á þau þýsku)

Já, þið hafið þulið að Úkraína sé að vinna stríð við herinn sem gekk frá heimsveldi Nasista. Að Úkraína sé í níu mánuði búin að vera vinna stríð sem Rússar kalla enn hernaðaraðgerð, en ekki eiginlegt stríð

Þið hljótið að vera villast á flugeldasýningunni sem efnt verður til vegna sigurs leppstjórnar NATO í Kænugarði í dag. Sigurgangan verður síðan gengin strax á eftir, ekki satt, við undirleik þokulúðrasveitar Evrópusambandsins

En hvað skyldi nú Brusselbeljan ESB gera ef þetta reynist ekki vera flugeldasýning? Sturta sjálfri sér niður með evrunni - eða tísta áfram við hitann frá rússnesku gasi?

Þar af leiðandi mun Mexíkó auðvitað vinna stríð við Bandaríska herinn í Mexíkó þegar landið gengur í kínverskt "varnarbandalag" sem opnar þá herstöðvar í túnfæti Bandaríkjanna - svona eins og NATO í Úkraínu. Þið hljótið að skilja að fyrir því myndi ríkisstjórnin í Washington skála í kampavíni og hrópa hundraðfalt húrra, ekki satt, - og bjóða Kínverjana margfalt velkomna

Eða þá að eftir ósætti við ríkisstjórnina í Ottawa, sem engum þyrfti að koma á óvart, að Nýfundnaland segði sig úr Kanada og yrði fullvalda á ný og byði Rússum herstöðvaraðstöðu. Þá yrðu nú Washingtonmenn hrifir, eða hitt þó heldur, því loftlínan frá Nýfundnalandi til Washingtonborgar er ekki nema 1600 kílómetrar. Það er 300 km. lengra en skotflaugar NATO á sterum þurfa að þeysast frá Rúmeníu beint á Moskvu og sem geta með smá breytingum borið kjarnorkuvopn

Fífl

Fyrri færsla

Kæri Pútín


mbl.is Búa sig undir stórfellda árás Rússa í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kæri Pútín

Kæri Vladímír Vladímírovich Pútín forseti Rússlands

Ég skrifa þér af ýtrustu nauðsyn því eftir níu mánaða hernaðaraðgerðir í Úkraínu, þó ekki eiginlegt stríð enn sem komið er, þá virðast vestrænar staðreyndir ekki enn hafa runnið upp fyrir þér sem þjóðarleiðtoga Rússlands. Til að byrja með þá vil ég upplýsa þig um að þú og allt Rússland voruð búin með öll skotfæri, bæði fyrir stórskotalið og allar skotflaugar, í apríl á þessu ári. Þetta þarft þú að vita. Einnig verður þú að vita að samkvæmt vestrænum fjölmiðlum ertu að nota örgjörva úr þvottavélum í hernaðarskyni. Þú þarft líka að vita að dagar þínir sem þjóðarleiðtogi voru þegar taldir í mars á þessu ári. Síðan þarftu að vita að þú hefur legið á einskonar dánarbeði í meira en tvö ár. Tony Blair hefur sagt okkur frá því að þú hafir beðið vestrænt skipbrot eins og Boris Johnson og Elizaveta Trasova, bæði útsendarar Leníns, vegna Kínaveirunnar og félagslegrar einangrunar [sic] sökum hennar. Þess vegna hefur þú verið ófær um að sinna störfum, skyldir þú ekki vita það

Mér er einnig ljóst að þriðji og fjórði burðarásinn í NATO, þ.e. Frakkland og Þýskaland, eiga það miklar birgðir af þeim skotfærum sem ég nefni hér fyrir ofan, að frönsku birgðirnar myndu til dæmis endast rússneska hernum í fjóra daga, þær þýsku í minna en einn dag, og hjá næstöflugasta burðarási NATO þ.e Stóra-Bretlandi, myndu birgðir þess lands sennilega duga þér í fimm daga. Bandaríkin eru því miður þurrausin og ætla því að flytja inn inn skotfæri frá Suður-Kóreu, þannig að þar er eftir engu að koma. En þessu greindi vestræna fréttastöðin CNN frá um daginn. Magnið sem Bandaríkin ætla að kaupa í Suður-Kóreu er 100 þúsund stykki af 155 mm skotum fyrir stórskotalið. Það magn myndi endast rússneska hernum í fimm daga og svarar því til rúmlega þess sem Frakkland hefur sjálfu sér til varnar. En eins og ég greini frá hér fyrir ofan, var Rússneski herinn með vestrænu öryggi búinn með skotfæri sín í apríl. Um það verður ekki deilt því sannleikurinn (r. pravda) um þetta stendur í öllum fjölmiðlum okkar hér á vesturlöndum. Hverjum einasta þeirra

Einnig vil ég láta þig vita af því að vestrænir fjölmiðlar segja að efnahagur Rússlands sé hruninn. Og það sem meira er, hann er búinn að vera hruninn síðan í maí á þessu ári. Þessu þarftu að átta þig á. Þú verður því að grípa til þeirra ráða að reka allt forsætisráðuneyti Rússlands því það sagði í fyrradag að rússneska landsframleiðslan hefði dregist saman um minna en þrjú prósent það sem af er ársins og að á næsta ári muni jafnvel verða hagvöxtur í Rússlandi, eða þá samdráttur sem yrði minni en eitt prósent. Þú verður að minnsta kosti fyrir alla muni að setja Andrey Klepach yfirhagfræðing hjá VEB.RF á stól forsætisráðherra strax, því hann sagði að samdrátturinn á þessu ári yrði 3,1 prósent og er það meira en þeir hjá forsætisráðuneytinu segja. Við hér á Íslandi höfum reynslu af svona málum því hér var slíkur hagfræðimaður settur á valdastól því hann sagði að við yrðum Kúba norðursins. Það gekk auðvitað frekar illa ofan í Norðurslóðana, því þeir menn hafa haft fyrir því að hringborðs-koma saman í bráðum 30 ár til að fagna vorkomu Nýju-Sovétríkjanna - og hafa meira að segja næstum árlega drukkið kaffi í Kredithörpunni frá því að hún var opnuð og sem rekin er með alveg sérstöku og stórkostlegu tapi frá fyrsta degi. Þarna sitja þeir og bíða og hafa gert í 30 ár en ekkert gerist, nema það að sérfræðingar Rússlands í íshafsmálum segja að ekkert muni breytast m.t.t. íss í Norðurhöfum næstu 30 árin. Engin þýða og jafnvel enn meiri hafís næstu 30 árin er langur tími fyrir þessa fundarmenn

Við erum einnig komin með þá fjölmiðla sem forverar þínir buðu Rússum upp á frá 1918 til 1990. Við erum því með öfluga og ramma sovéska fjölmiðla og þeim verður þú einfaldlega að hlýða, því allt sem þar stendur er ríkisrekinn sannleikur og er spil þitt því búið samkvæmt þeim. Þið í Rússlandi ættuð því ekki skemmta ykkur um of yfir þeim, og ekki segja að til dæmis Gréta Thunberg sé næsti Lenín

Það hefði nú verið gaman að hafa mannþekkjarann Maksím Gorkíj til að skrifa um sovétríki vesturlanda í dag. En hann las ég á unglinsárum mínum, í snilldarþýðingu Kjartans Ólafssonar, áður en ég þroskaðist eins við báðir höfum greinilega gert

Þetta var nú það sem ég vildi segja þér í fullum trúnaði, minn kæri Vladímír Vladímírovich Pútín forseti Rússlands

Virðingarfyllst og með góðum kveðjum 
Gunnar Rögnvaldsson þjóðaríhaldsmaður, Íslandi 

PS: Ég bið þig þess að sökkva ekki öllum flugmóðurskipum Bandaríkjanna á fyrsta degi ef til stríðs kemur, því áfallið yrði svo mikið fyrir bandarísk stjórnvöld að þau myndu í hjálparleysi, örvæntingu og bræði sinni grípa til kjarnorkuvopna. Skildu því tvö skip eftir, að hætti Kutuzov, og leyfðu þeim að buslast á næstu 24 mánuðum yfir Atlantshafið eins og síðast. En þá tók það Bandaríkin –nú burðarásinn í NATO– tvö ár að komast sjóleiðina til Evrópu, vegna kafbáta þú veist hverra. Þú getur auðveldlega fylgst með skipunum í öllum gervihnöttunum ykkar. Hvaða stjórnmálaflokk finnst þér að ég ætti að kjósa næst? Ég spyr því ég veit það ekki sjálfur. Hér keppist nefnilega hver stjórnmálaflokkurinn við annan um að eyðileggja landið mitt þannig að mig langar mest til að kasta upp yfir kjörseðilinn minn

Fyrri færsla

Rússneski seðlabankastjórinn segir frá


Rússneski seðlabankastjórinn segir frá

Upptaka frá matvöruverslun í Rússlandi

****

RÚSSNESKI SEÐLABANKASTJÓRINN SEGIR FRÁ

Elvira Nabiullina seðlabankastjóri Rússlands kom fyrir neðri deild þingsins í morgun og gerði þingmönnum og ríkisstjórn grein fyrir stöðu rússneska hagkerfisins. Hún sagði litlar hindranir fyrir því að aflétta enn frekar þeim gjaldeyrishöftum sem sett voru á sem vörn gegn mestu refsiaðgerðum gagnvart einu ríki sem sögur fara af hér á jörð

Rússneska hagkerfið er að taka miklum grunnleggjandi hagkerfislægum breytingum sagði hún (e. structural transformation). Þetta eru breytingar sem voru nauðsynlegar, sagði Nabiullina, og þær munu taka tíma. Þó nokkuð veltur á að ekki verði heimskreppa, en hvað sem öllu líður er um flókið breytingaferli að ræða og breytingarnar eru margvíslegar og mismunandi allt eftir því um hvaða geira hagkerfisins er að ræða. Sumir geirar sem gera út á erlenda markaði þurfa að finna nýja, eða aðra valkosti við fyrri birgja eða snúna sér að innanlandsmarkaði og aukinni fullvinnslu innanlands. Allt saman mjög flókið mál en við munum taka tillit til þess í stefnu okkar, bæði hvað varðar hina ýmsu geira og landshluta. Það er mat okkar að þessar hagkerfislægu breytingar haldi áfram allt næsta ár og nokkur ár í viðbót. Útkoman fyrir hvern geira fyrir sig er háð mörgum breytum, og heimskreppa mun ekki auðvelda þetta mál, en því miður vísar nálin meira og meira í þá átt erlendis, sagði Elvira Nabiullina

En það er nauðsynlegt að hraða sem mest þessum breytingum á rússneska hagkerfinu og eftir engu er að bíða, allra síst útlöndum. Hraðinn er málið og það er skoðun okkar að ekki sé hægt að stóla alfarið á bankakerfið þegar um langtíma fjármögnunarþarfir eins og þessar er að ræða. Bankar geta og ættu ekki að vera eina uppspretta langtímakapítals því slíkt myndi einungis leiða til fjármálakreppu. Þetta sagði rússneski seðlabankastjórinn - sem klerkaveldi gólbalista hélt um tíma að það hefði í vösum sínum í vestri

EFTIRMÁL

Þegar ég skoðaði nýjustu heimshagspá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem kom út í síðasta mánuði, voru einu jákvæðu tölurnar í þeirri spá miklu minni kreppa í Rússlandi en AGS hafði gert ráð fyrir. Miklu minni. Ég efast um að samdrátturinn í Rússlandi verði meiri en þar sem hann verður verstur á vesturlöndum

Verst að IKEA mun ekki lengur geta notað ódýra rússneska orku og timbur við einnota kvalarlosta-framleiðslu sína, og sem áður fyrr notaði ódýrt Austur-þýskt vinnuafl kommúnismans ásamt pólitískum föngum, en stólar nú á svo kölluð þjónustuhagkerfi vesturlanda sem hafa hvorki efni á þjónustu né gæðum, hvað þá fermetraplássi

Stærstu snyrtivörufyrirtæki vesturlanda geta greinilega ekki án Rússlands verið lengur því þau eru að snúa til baka til landsins því innflutningur af ilmvötnum og snyrtivörum til Rússlands nam 257 þúsund tonnum 2019. En þá verður það líklega að sumu leyti of seint, því ný rússnesk vörumerki á því sviði hafa tekið við sér og inn í landið streyma einnig vörumerki frá þeim hlutum heimsins sem ekki hafa lokað á Rússland, þannig að Rússar hafa úr ýmsu að velja. Það er sennilega þess vegna sem evrópsku fyrirtækin Lancome, Yves Saint Laurent og Giorgio Armani snúa aftur, því ekki er orðið beint rafmagnsbjart við þýsku verslunargöturnar - og komandi núlljólin í Evrópu verða sennilega engu lík með fyrst og fremst orkureikninga og vindmyllubarning í jólagjöf

Við skulum ekki minnast á rússneska hugbúnaðargeirann, því hjá honum eru dýrðardagar í Rússlandi. Hamast er allan sólarhringinn við að koma innbrotatryggða fákeppnisdraslinu að vestan sem fjaraði út fyrir kattarnef. Það reyndist ekki til að stóla á

Af öllu þessu missa íslensk fyrirtæki fyrir minna en ekki neitt. Svona innilega heimsk og í svona langan tíma hafa íslensk stjórnvöld aldrei áður verið. Um Íslandsmet er að ræða

Fyrri færsla

Ingólfi svarað


mbl.is Biðin eftir IKEA gæti skipt máli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingólfi svarað

Ingólfur Sigurðsson varpaði fram spurningum í athugasemd við þar síðustu færslu og sem ég svara hér

Þakka þér fyrir Ingólfur - og ég þakka þér einnig fyrir pistlana þína, sem ég les og kann að meta. Einkum kann ég vel að meta dýpt þína

Það er erfitt að átta sig á stöðunni í Stóra-Bretlandi. Það gengur illa að finna rétta pólitíska landsliðið sem unnið getur af viti úr Brexit. Heimskingjar veltast eins og síld í tunnu um borð í báðum flokkum þar. Íhaldsflokkurinn er á alveg hroðalegum stað núna, bæði undir túrbanmanninum Sunak og konu hans sem búið hafa sérskattalega í Bretlandi með það fyrir augum að búa þar ekki áfram, Maríu Elísabet Truss og einnig Boris Johnson. Mér líst einkar illa á stöðuna í þeim flokki. En þar sem Bretland er með sinn eigin gjaldmiðil þá mun það ekki fara eins illa út úr málunum og meginland Evrópu og Evrópusambandið

Ljóst er nú að Rússland hélt meginlandi Evrópusambandsins ásamt Bretlandi að miklu leyti á floti síðustu 30 árin. Vel getur hugsast að Rússlandi gangi betur að blæða Evrópu og Bandaríkjunum út á næstu árum en þeim að blæða því út. Það kostar vesturríkin til dæmis 5 milljarða dala á mánuði í beinum yfirfærslum og lánum að halda ríkisstjórn Úkraínu á floti. Enginn veit þó enn hvað verður um fjármunina sem vesturlenskir stjórnmálamenn eru að taka frá sínum almenningi og senda til leppstjórnarinnar í Kænugarði

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að enginn viti né geti fengið staðfest hvað um peningana verður og í hvað þeir fara. Um 35 milljarða dala svarthol í Úkraínu er því nú þegar um að ræða. Síðasta skýrsla sjóðsins um málið er ekki beint glæsileg lesning. En frá 2014 til 2021 voru 15 þúsund manns þegar látnir af völdum árása Kænugarðsmanna á sitt eigið fólk í austurhlutum landsins og 1,5 milljón manns þaðan flúðu til Rússlands og Hvítarússlands á því tímabili. Þá þegar braut Kænugarðsstjórnin reglur AGS sem segja að sjóðurinn megi ekki koma nálægt löndum sem eiga í borgarastyrjöld

Já Kína er miðju vaði sem vel getur farið á sama veg og Japanska kraftaverkið fór frá og með 1989 (komst fyrst á forsíður vestrænna fjölmiðla 1991) og hefur hrun þess varla jafnað sig enn. En þar sem Japanir eru samheldin þjóð og heil að innan, með svo gott sem engar innfluttar geimverur um borð í þjóðarskútunni, þá hafa þeir haldið saman og tekist á við vandann á samheldinn hátt. Þessu er ekki þannig farið með Kína, sem er samsteypa fólks sem býr ekki á sömu plánetunni, heldur á mörgum og eru þær ekki einu sinni á sporbraut um sömu sólina. Um gríðarlegt innvortis pólitískt vandamál er þar að ræða. Efnahagsvandamálin blikna í samanburði við pólitíska vandamálið í landinu, en þau er hægt að leysa á pólitískan hátt, en lausnin krefst hins vegar pólitískrar byltingar. Auðveldasta leiðin fyrir Kommúnistaflokkinn er að herða einræðið til að halda landinu saman og er það sú leið sem farin verður og vont gert verra

Öll lönd sem fallið hafa fyrir hinu græna pólitíska eitri á vesturlöndum munu fara illa út úr næsta áratug. Það kostar að hlusta á og taka mark á hinum hrikalega græna og eitraða þvættingi vinstrimanna. Og hefur alltaf gert. Rússar skemmta sér því konunglega núna (Google þýðing)

Fyrri færslur

Byrjar ekki vel

Engin haldbær rök gegn Guðlaugi Þór og enn færri með Bjarna. Stríðið í austri (og vestri)


Byrjar ekki vel

Hvers vegna í ósköpunum þurfa svo kallaðir fréttamenn að byrja nær öll viðtöl við stjórnmálamenn á því að stilla þeim upp sem eins konar sakborningum á sakamannabekk. Það er ekki til neins orðið að hlusta á nein viðtöl við fulltrúa okkar fólksins í landinu því að klessukeyrð stétt fréttamanna sem ekkert sérstakt umboð hefur frá neinum, nema stjórnarskránni sem við öll höfum, hafa gert þau svo annarleg að ekkert er á þeim að græða nema grillsósuslettur upp um veggi. Takið ykkur vinsamlegast saman. Enginn nennir að hlusta á ykkur lengur

Ég vona að restin af viðtalinu sé betri en þetta. Betri en grunsemdarfærslur um af hverju stjórnmálamenn skuli tala saman. Bjarni og Guðlaugur mega tala saman eins og þeim sýnist. Ég efast samt um að ég nenni að horfa á restina

Hvað mig sjálfan varðar þá stendur hugur munn til þessara tveggja frambjóðenda til formennsku í Sjálfstæðisflokknum þannig:

Bjarni Benediktsson: Hann er fyrst og fremst tæknikrati á borð við til dæmis Lars Løkke Rasmussen í Danmörku. Góður í hvaða seðlabanka sem er. Situr við mælaborð og stillir mæla kerfisins. Það er hans ást og það eina sem hann hefur meðfæddan áhuga á og hugur hans stendur til

Guðlaugur Þór Þórðarson: Hann er að eðlisfari óþekkur, og finnst að aðrir eigi að sitja við mælaborðið, því hann sjálfur ætlar út á miðin að ná í fisk. Því hann veit sem er að sé enginn fiskur í trollinu að þá er ekkert mælaborð, því þá er ekkert sem þarf að mæla og skammta því ekkert er til skiptanna

Fyrir mína parta bind ég vonir við óþekktarorminn og skaffarann. Þetta er ekki last á Bjarna. Svona er þetta bara. Ég vil flokkinn minn öflugan á ný því annars fá hinir aflann og ég get ekki borgað á gjalddögum og fer í þrot þegar talið er upp úr kössunum

Fyrri færsla

Engin haldbær rök gegn Guðlaugi Þór og enn færri með Bjarna. Stríðið í austri (og vestri)


mbl.is Hik á Bjarna um fund hans og Guðlaugs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin haldbær rök gegn Guðlaugi Þór og enn færri með Bjarna. Stríðið í austri (og vestri)

FORMANNSSLAGUR Í xD

Þetta er kostulegt. Það eina sem maður fær að heyra um Guðlaug Þór núna er annað hvort það að hann sé svo vitlaus eða ósvífinn að hann gangi ekki á öllum, eða þá að tími hans sé ekki réttur. Sem sagt Guðlaugur Þór næst æðsti maður úr kjarna Sjálfstæðisflokksins á allt í einu að vera svo vitlaus að hann gangi ekki upp og sé því óhæfur sem næsti formaður xD. Hin rökin eru þau að Guðlaugur Þór kunni ekki á skeiðklukku og sé því kominn út á skeiðvöllinn án leyfis þeirra sem lagt hafa skeiðvöll Sjálfstæðisflokksins í rúst á síðustu 12 árum, samfellt. Lagt hann svo í rúst og grafið sig niður í svo djúpar holur að eina leiðin sé að halda áfram að grafa þar til komið sé út í bláa loftið í Kína

Hins vegar heyrast engin rök með Bjarna Benediktssyni. Jú einu rökin sem heyrast með honum eru þau að hann sé eins og austur-þýska myndastyttan af Merkel; sem sitji á stól í miðju herbergi og leiki sér svo hljóðlátlega með dúkku að enginn taki eftir honum. Að enginn fatti að um myndastyttu né hvað þá formann Sjálfstæðisflokksins sé að ræða. Og allir sem sjá vita líka hvaða aðrar Metoo-dúkkur eru í dótakassa Bjarna. Þarna getur lélegt bara orðið enn verra

Er Guðlaugur Þór eina sönnunin fyrir því að lífsmark sé enn í Sjálfstæðisflokknum? Ég spyr

STRÍÐIÐ Í AUSTRI (og vestri)

Í samfellt átta mánuði höfum við einróma fengið að heyra að Úkraína sé að vinna stríð við Rússneska herinn. Það hefur versta og óhæfasta fjölmiðlastappa mannkynssögunnar frætt okkur um í samfellt átta mánuði. En það er bara eitt vandamál. Rússneski herinn hefur á þessum átta mánuðum stútað sem svarar til einu stykki af Bandaríska landhernum (U.S. Army), því um það bil 100 þúsund Úkraínumönnum hafa NATO-ríkin með Bandaríkin, ESB og Bretland í fararbroddi kastað á spjótin og þar með fórnað í þessum hildarleik þeirra sem snýst um að ná til Rússlands með því að láta Úkraínu um dauðsföllin af völdum brjálsemisstefnu þeirra. Og um það bil 400 þúsund af bestu mönnum landsins liggja særðir og koma ekki aftur til orrustu. Þetta er um hálf milljón manns og stærð Bandaríska landhersins er einmitt hálf milljón manns. Ergo: Rússneski herinn sem ekkert átti að geta hefur lagt sem svarar til US Army að velli. Samt hefur liðsafli Rússa verið aðeins helmingur þessarar stærðar

Hefur Rússneski flugherinn nú flogið 70 þúsund ferðir (e. sorties) á þessum átta mánuðum. Það svarar til þess sem flugherir Bandaríkjanna og Breta og bandamanna þeirra flugu í Persaflóastríðinu 1991, þegar þeir rústuðu van- og illa búnum herjum Saddams Husseins og lögðu borgaralega inniviði í rúst. Flognar voru um það bil 100 þúsund ferðir gegn Saddam og 90 þúsund tonnum af sprengjum var varpað á hernaðar- og borgaralega innviði. Hefur hinn takmarkaði liðsafli Rússa nú tæmt skotfærageymslur allra NATO-ríkjanna það mikið að eftirstandandi birgðir nægja aðeins til nauðþurfta

Vopnafóður ríkisstjórnar Jósefs Bidens, Evrópusambandsins og Bretlands er einnig byrjað að lenda í höndum glæpagengja Evrópusambandslanda því vopnafóðrinu sem átti að blæða Rússlandi út (hin brjálæðislega hugmynd krónískra Rússahatara NATO-landa) hefur bara verið sturtað ofan í leppstjórn NATO í Kænugarði án nokkurs eftirlits í átta mánuði. Segir finnska lögreglan að þau vopn sjáist nú þegar í höndum glæpalýðs í Finnlandi, Svíþjóð og Hollandi, segir í frétt Yle.fi þann 30. október

Rússneski flugherinn hefur undanfarna daga framkvæmt sérstaka skurðaðgerð á raforkuinnviðum Úkraínu með því að stúta spennum og spennistöðvum en ekki sjálfri orkuframleiðslunni í landinu. Hæg eru heimatökin því Sovétið byggði raforkukerfi Úkraínu upp, því það var fastur hluti af sovéska raforkukerfinu og var Zaporozhye Transformer Plant sett niður í því sem sumir kalla Úkraínu í dag, en hefur verið Rússland frá því á 17. öld. Allir spennar eru sérsniðin rússnesk hönnun og sem hvergi fást nema hjá Rússum í Rússlandi og Úkraínu. Reyndar byggðu Rússar Úkraínu upp því hún hafði aldrei áður verið til sem iðnvætt hérað né hvað þá ríki, nema sem hluti af Rússlandi. Rússar eru því með teikningarnar af svo gott sem allri Úkraínu. Það eina sem þeir hafa ekki teikningar af er heilabú þeirra sem nú gista LSD-ofskynjunarstöðvar NATO í Kænugarði, sem er forstofa Rússlands

Upptaka: Átakanalegt hlaðvarp um inn- og útvortis stöðuna í kjarnaríkjum NATO: Hvað segir Douglas Macgregor ofursti þar um hernaðaraðgerð Rússlands í Úkraínu? Macgregor háði mestu skriðdrekaorrustu sem háð hefur verið síðan 1945. Trump skipaði hann næstæðsta mann í Bandaríska varnarmálaráðuneytinu síðast á kjörtímabilinu, eftir að Jim Mattis hafði reyndist Trump sem DoDeska Den sandmaður. Bloggsíða Macgregors er hér

****

Já vel á minnst. Í síðustu viku seldi kanslari Þýskalands keisaranum í Kína 1/4 af höfninni í Hamborg. Ertu að segja satt Gunnar? Já því miður. Þannig liggur nú hið Austur-Þýska DDR-myndastyttuland Merkels og kumpána þar

- Gunnar er enn sem komið er þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Þýskaland orðið nánara Kína en Rússlandi


Þýskaland orðið nánara Kína en Rússlandi

Upptaka: Hvað segir Douglas Macgregor ofursti um hernaðaraðgerð Rússlands í Úkraínu? Macgregor háði mestu skriðdrekaorrustu sem háð hefur verið síðan 1945. Trump skipaði hann næstæðsta mann í Bandaríska varnarmálaráðuneytinu síðast á kjörtímabilinu, eftir að Jim Mattis hafði reyndist Trump sem DoDeska Den sandmaður. Bloggsíða Macgregors er hér

****

Í þýskum stjórnmálum birtist hatrið á Bandaríkjunum í sífellt þróaðri mynd og í takt við að staða Þýskalands í heiminum og í gjaldþrota Evrópusambandinu þrengist

Okkur hefur verið talin trú um að samband hins neo-merkantílistíska Þýskalands við rússnesk stjórnvöld hafi verið náin og að það útskýri viðbrögð Þýskalands við því sem gerst hefur í Úkraínu

Vestrið –nú sextánkynja að grænkafna í eigin þvælu– reynir að framleiða þá mynd af Þýskalandi að það sé á rúmlega hálfum mála hjá Moskvu og að það eyði því aðeins hinum strategíska pínku-pons afgangi landsins í NATO

Hið rétta er að Þýskaland veðjar á tvo hesta gegn Bandaríkjunum, sem enn hersetur Þýskaland sem stökkpall klerkaveldis glóbalista inn í Rússland. Báðir þeir hestar eru þess eðlis að reiðartúrinn á þeim mun að lokum kollvarpa NATO-aðild Þýskalands og þar með ógna sjálfri tilvist varnarbandalagsins, sem nú þegar er á heljarþröm og í djúpstæðri tilvistarkreppu

Staðan er sú að Þýskaland er fyrir löngu orðið miklu nánara Kína en það er náið Rússlandi. Ný flugferð er nú við það að hefjast frá þýskum flugvelli. Leiðin liggur til Peking og er flugvélin full af reiðum fulltrúum þýskra stóriðnaðarfyrirtækja og fjármála. Í farangri þeirra er sjálfur kanslari Þýskalands, Olaf Scholz, og látið er líta svo út að hann hafi skipulagt ferðina, en ekki þeir, því þetta er fyrsta ferð Ólafs Scholz til mömmu-Peking

Töskumaðurinn Scholz, eins og púðurdósin Merkel, veit að þetta mun ergja Bandaríkin töluvert, en sívaxandi. En þau sjálf geta hins vegar lítið sagt, því hver var það sem seldi heiminum þá hugmynd að Kína yrði brátt eins og þriðja-heims landið Kalifornía varð óvart sem hliðarverkun af þeirri söluherferð

Þýskaland mun nú gera allt sem það getur til að koma kínverskri kjarnatækni afhendingarkeðju-einræðis í umferð í Evrópu og þar með ógna enn frekar þeirri nýju pólitísku dagskrá sem aðeins einn maður í Bandaríkjunum hafði hugrekki til að leggja á borð og fá samþykkta í öllum flokkum þar vestra. Sá maður var auðvitað hinn eini sanni hugrekkismaður Donald J. Trump

Tilgangur Þýskalands er að byggja upp eins mikla innvortis öryggisógn í Evrópu með kínverskri tækni, afhendingarkeðjum og áhrifum, að hún ýti að lokum Bandaríkjunum út í Atlantsála

Og þar sem búið er að reita Rússa það mikið til reiði með hinum þýska stökkpalli NATO-á-sterum inn í Rússland, já þá fækkar þeim bandamönnum sem völ verður á þegar kviknar í kamarfötunni og hún reynist þá þegar alelda. Verðmiðinn á björgunarþjónustu frá Moskvu mun þá liggja hærra en norðurljósin - og sannarlega segi ég þér, fyrir ofan heiðhvolfið

LSD-reiðtúr hinna heilabiluðu í Washington inn í Rússland er að senda meginland Evrópu til fjandans. Síðast var það Barbarossaáætlun Hitlers en nú eru það ofskynjanir NATO sem segja að Rússar séu óæðri kynstofn sem kunni hvorki að lesa né skrifa

Fyrri færsla

Bandaríski herinn að verða þurrausinn?


Bandaríski herinn að verða þurrausinn?

ER EVRÓPUSTRÍÐIÐ SEM STOPPAÐI 1945 HAFIÐ Á NÝ?

Upptaka: Verkfræðideild Wagner-hergrúppu Rússlands grefur skotgrafir og leggur hindranir, segir í textanum við þessa upptöku. Ég hef ekki hugmynd um hvort að þetta sé rétt sem stendur við upptökuna eða ekki. En ég skil þó stærðir og víddir þegar ég sé þær

****

Samkvæmt þessum fréttum hafa Bandaríkin til þessa sent 800 þúsund stykki af stöðluðum 155 millimetra NATO-stórskotaliðssprengjum til Úkraínu. Hafa þær allar verið notaðar til að skjóta á Rússa og íbúana í Donbass. Þetta magn nemur 75 prósentum af öllum slíkum skotfærum sem öll NATO-löndin í heild hafa sent leppstjórn sinni í Kænugarði. Kvöldverðadeild NATO í Evrópu sá þá væntanlega um síðustu 25 prósentin

Fréttin segir að Bandaríkin þoli ekki að missa meira af þessum skotfærum án þess að sjálf standa varnarlaus í þessum efnum og ófær um að stunda herþjálfun. Ársframleiðsla Bandaríkjanna er 170 þúsund stykki eða 14 þúsund á mánuði. Það mun taka þau mörg ár að safna birgðum á ný. Svipuð saga er með stýriflaugar. Samt er enn sem komið er einungis um "sérstaka hernaðaraðgerð" en ekki stríð að ræða að hálfu Rússlands

En bíddu nú hægur. Hvað þá með þessar stanslausu fréttir í samfellt sjö mánuði um að Rússar séu að verða uppiskroppa með skotfæri. Voru þær þá bara uppþornuð prentsverta úr Þriðja ríkinu? Eða kannski því Fjórða?

Víglína Rauða hersins náði hámarkslengd 1942. Var hún þá 3058 kílómetrar að lengd. Svarar það til vegalengdarinnar frá Keflavík til Bergen í Noregi - og til baka heim aftur, eða til 4-5 tíma þotu!flugs. Í dag er víglínan hins vegar þúsund kílómetrar

Þanþol er fastnegld innrétting í varnarmálastefnu Rússlands. Þeir sem halda enn að Rússneski herinn sé þyrlupallur á þaki sendiráðs í Saigon, tja já, lesi þeir bara vesturlensku teblöðin sín áfram. Þau vaxa ekki á trjám og kosta því ekki neitt

Ég mæli með

The Soviet-German War - Glantz

Sækja PDF

****

Tengt: Byggt að hluta til á verkum David M. Glantz: Hvernig Rauði herinn lagði Þriðja ríkið að velli (upptaka: fyrirlestur dr. Jonathan House)

Fyrri færsla

Bíddu voru ekki Rússar búnir með skotfærin? [u]


mbl.is Úkraína vill meiri loftvarnir frá Vesturlöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíddu voru ekki Rússar búnir með skotfærin? [u]

Í bráðum átta mánuði höfum við fengið þær fréttir úr heilaþvegnum fjölmiðlaræksnum Vesturlanda, að Rússland sé búið með skotfærin - og að leppgengið í Kænugarði á vegum NATO sé að vinna stríð við Rússneska herinn. Ja hérna

NATO Warplanes Jolt Yugoslav Power Grid

Mynd: Washington Post; kannski stolt af eyðileggingu Washingtons á raforkukerfi Júgóslavíu árið 1999 - eins og í Írak... og svo framvegis

****

En þar á þinghúshæðabæ standa menn enn í þeirri meiningu að stríð snúist um að henda sprengjum úr flugvélum á ónýta heri og varnarlaust fólk og þar að auki að tapa þeim "stríðum" nær undantekningarlaust

Uppfært:

Uppgjör rússneska varnarmálaráðuneytisins á hernaðaraðgerðunum þann 10. október má lesa hér

Rússneskur almenningur segir í háði að ekki komi til greina að Rússland hafi sent þessar stýriflaugar á alla þessa staði í Úkraínu, hvað þá á einum og sama deginum, því hann sé nefnilega búinn að lesa sér til um það í 136 þúsund vestrænum fjölmiðlum að Rússland sé fyrir langa löngu búið með allar sínar birgðir af slíkum tólum - og yfirleitt búið með allar birgðir af hvers kyns skotfærum og hergögnum og jafnvel hugmyndum. Í leiðinni má geta þess hér að sumir telja líklegt að Rússneski landherinn hafi tekið í notkun Tirada-2 kerfið sumstaðar við 1000 kílómetra langar vígstöðvarnar í Úkraínu. Tirada-2 hemlar eða lokar á rafeindasamskipti gervihnatta við jarðstöðvar og lokar fyrir rafeindasamskipti farsímakerfa

Sameinað NATO myndi aldrei hafa Rússneska herinn á og við þennan heimavöll hans, því Úkraína hefur verið rússneskt land síðan á 17. öld - eða í tæplega 400 ár, eins og Morgunblaðið greindi réttilega frá sunnudaginn þann 8. desember 1991 á blaðsíðu fjögur. Katrín mikla Rússakeisari stofnaði til dæmis borgirnar Odessa, Dnípro, Kherson, Mykolajív og Sevastopol. Þar á undan var landsvæðið fiskimið Tatara sem veiddu þar fólk og settu til sölu sem þræla fyrir Tyrkjaveldi

Úkraína verður aldrei eins og hvert annað "útland" fyrir Rússlandi. En tímabilið frá því í desember 1991 er eina forsaga Úkraínu sem sjálfstæðrar ríkiseiningar, og er það tímabil þess utan frekar illa til komið því þann 20. janúar sama ár kusu 94 prósentur Krímbúa að ganga sem sjálfstjórnarsvæði í Rússland. Þá hugðust stjórnvöld í Kænugarði undir stjórn Leoníd Kravtsjúk gera Úkraínu að kjarnorkuvopnalausu landi og skila Rússum kjarnorkuvopnunum. En því var nú ekki aldeilis að heilsa, því "sterkir menn" í Kænugarði neituðu og vildu halda kjarnorkuvopnunum fyrir sig því þau myndu koma að gagni sem söluvarningur í framtíðarsamningum við alþjóðasmáfélagið. Kröfðust þeir því 2,8 milljarða dala greiðslu fyrir þann auð sem fallið hafði þeim í skaut frá mömmu Rússlandi. En sem betur fór enduðu vopnin í vörslu Moskvu

Henry Kissingar um Úkraínu

Mynd: Skjáskot af útsendingu Hooverstofnunarinnar

****

Hér fyrir neðan: Sýnishorn úr verstu fjölmiðlastöppu allra tíma: Þetta rusl þeirra er svo yfirþyrmandi lélegt, fávíst og heiladautt að það dugar ekki einu sinni sem áróður, þó svo að stór hluti þess komi úr ranni Pentagons, CIA og Mi6. En sú einu sinni ágæta stofnun CIA var eyðilögð með því að leggja greiningar- og aðgerðadeildir hennar saman í eina stöppu. Er ferill og gildi þeirrar stofnunar því orðinn harla lítils virði í dag. Menn kannast við slík frá bóluárunum fjármálastofnana og nú síðast frá grænbóluárum Grétutímabilsins

==========================

a) The Guardian fyrir stríð: "Welcome to Ukraine, the most corrupt nation in Europe" (6. febrúar 2015)

b) The Guardian eftir að stríðið hófst: "The fight for Ukraine is a fight for liberal ideals" (27. febrúar 2022)

==========================
Putin is running out of options
newstatesman.com 3. mars 2022
==========================
Russia running out of precision munitions in Ukraine war - Pentagon official
Reuters 25. mars 2022
==========================
Russia is running out of troops
express.co.uk 8. mars 2022
==========================
The Russian army is running out of options
spectator.com.au 9. apríl 2022
==========================
These simple mathematical models tell us why Russia is running out of time
medium.com 16. mars 2022
==========================
The Russian Army Is Running Out Of Tanks
Forbes.com 25. maí 2022
==========================
Russia is running out of precision-guided munitions and may...
Yahoo.com 9. maí 2022
==========================
Vladimir Putin is running out of options to avoid defeat in Ukraine
AtlanticCouncil.org 17. maí 2022
==========================
Russia is running out of precision guided munitions and it is more likely to..
Guardian 24. mars 2022
==========================
Russian Army Days Away From Running Out of Resources
Newsweek 15. mars 2022
==========================
Putin is Running Out of Ideas on What to do Next
Bloomberg 9. maí 2022
==========================
Russia is running out of oil customers
Economic Times 4. mars 2022
==========================
Russia Is Running Out Of Cloud Storage!
Fossbytes 16. mars 2022
==========================
Russia is running out of sugar and grain ...
Twitter bla bla 14. mars 2022
==========================
Russia Running Out of Precision Munitions
usanews.com 24. mars 2022
==========================
Russia Is Using Chips From Dishwashers
PcMag 13. maí 2022
==========================
Russia imminent default will have harsh ripple effects ...
Washingtonpost.com 9 mars 2022
==========================
Russia has just one week left to conquer Ukraine ...
Dalystar.co.uk 19. mars 2022
==========================
Russia is running out of its own stocks (af skotfærum) as fast or faster
ForeignPolicy.com 4. maí 2022
==========================
Russia running out of weapons
DailyTrust.com 9. maí 2022
==========================
Exact date Putins forces will run out of ammunition in Ukraine, according to expert
mirror.co.uk 30. maí 2022
==========================

Fyrri færsla

Hvað sagði Pútín?


mbl.is Rússar hafi skotið 75 flugskeytum að Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað sagði Pútín?

Upptaka: Forseti Rússlands ávarpaði þjóðina þann 22. september 2022 þar sem tilkynnt var herútkall fyrir 300 þúsund hermenn (lesa ávarpið)

****

HVAR ER HÓTUNIN?

Undanfarna daga höfum við séð vestrænar leifar af því sem einu sinni var kallað "fjölmiðlar", halda því statt og stöðugt fram að Vladímír Pútín forseti Rússlands hefði í ávarpi sínu til þjóðarinnar hótað að grípa til kjarnorkuvopna. Nú hef ég bæði lesið ræðu forsetans og horft á hana og það oftar en einu sinni. Ég sé hins vegar ekkert slíkt. Ég sé enga hótun

Forsetinn nefnir hins vegar það í ávarpi sínu að í Washington hafa menn rætt um að nota taktísk kjarnorkuvopn gegn Rússlandi í þeirri deilu sem nú stendur um Úkraínu, ásamt því að stunda árásir á kjarnorkuver, sem forsetinn kallar "kjarnorkufjárkúgun"

Ég þori að veðja hatti mínum á að sárafáar ritstjórnir vestrænna afganga svo kallaðra fjölmiðla, hafa lesið og horft á ræðu Rússlandsforseta, og heldur ekki á það sem varnarmálaráðherra Rússlands sagði í viðtali sama dag

Upptaka: Sama dag var viðtal við Sergei Shoigu varnarmálaráðherra Rússlands. Shoigu er sagður tala reiðbrennandi átta tungumál, fyrir utan rússneksu

****

HEYRA BARA Í SJÁLFUM SÉR

Best gæti ég trúað að þeir, leifar fjölmiðla, hlusti áfram á það sem nánast viðstöðulaust kemur upp úr ótrúlegustu mönnum í bandaríska varnarmálaráðuneytinu, sem undir ríkisstjórn Joe Bidens svo sannarlega er ekki í hers höndum, heldur í höndum eins konar nútíma fáráðlinga. Þar hafa menn sett fram þær kenningar á ný að hægt sé að vinna kjarnorkustríð með því að nota lítil kjarnorkuvopn og að nú sé mögulegt að nota þau á Rússland í jöðrum átakasvæða. Hér áður fyrr voru slíkir menn í Pentagon dæmdir geðbilaðir og teknir úr umferð af eigin mönnum (Douglas Macgregor ofursti hjá Tucker Carlson 23. september). En í dag er hins vegar hlustað á þá í fúlustu alvöru. Spil þessara manna hefur náð þeim hæðum að forseti Úkraínu fékk óáreittur að ganga um gólfin á öryggisráðstefnunni í München tilkynnandi öllum þar að hann ætti að fá og myndi fá kjarnorkuvopn til umráða. Enginn gerði hina minnstu tilraun til að þagga niður í manninum. Þvert á móti var tekið undir

| Heimasíða og blogsíða Douglas Macgregors ofursta |

Þetta er það sem Rússland hefur ávallt hræðst, því þeir vita að Bandaríkin hafa notað kjarnorkuvopn gegn andstæðingi til að hlífa hermönnum sínum við bardaga. Þetta vita Rússar vel og óttast því Bandaríkin. Og í dag verða menn að viðurkenna að sá ótti Rússa er á vel gildum rökum reistur. Taka verður þjóðaröryggisáhyggjur Rússa alvarlega

Að minnsta kosti verður að taka áhyggjur þeirra jafnalvarlega og Bandaríkin myndu taka aðild Mexíkó að kínversku varnarbandalagi það alvarlega að þau myndu ekki hika við að leggja Mexíkó undir sig og hersetja það eins lengi og þeim sýndist

RAUNHÆFT?

Hins vegar efast ég um að Bandaríkjamenn væru færir um að taka iðnaðarfyrirtæki sín niður, pakka þeim saman og flytja þau til Alaska og koma síðan með nýjar græjur og ofurefli til baka innan 12 mánaða. Slíkt held ég ekki að Bandaríkin séu fær um. En þau myndu að minnsta kosti bomba Mexíkó sundur og saman eins lengi og skotfærabirgðir þeirra entust, sem er ekki sérlega lengi miðað við hálftæmdar skotfærageymslur NATO-ríkjanna í dag. Reyndar efast ég um að NATO-myndi hafa nokkuð í Rússneska herinn í dag. Þetta segi ég ekki léttilega

Í þeirri deilu við Kína og kínverskar herstöðvar í Mexíkó myndi ég hafa mikla og djúpa samúð með Bandaríkjunum og álykta að ekkert ríki geti án alvarlegra afleiðinga reynt að auka þjóðaröryggi sitt á kostnað þjóðaröryggis annars ríkis og sérstaklega ekki á kostnað nágranna sinna. Washington er því hollast að sýna bæði Kanada og Mexíkó það mikla virðingu að ekki þurfi að koma til slíks

Þessi röksemdafærsla á meira en tvöfalt við um NATO-bröltið í Úkraínu. Rússar hafa mjög svo lögmætar áhyggjur af NATO-væðingu Úkraínu. Þeir vita sem er að evrópska brjálæðið sem þeir fengu að kenna á í Síðari heimsstyrjöldinni er við það að taka sig upp aftur, því ríkisstjórnir Evrópu hafa í svo marga áratugi brugðist þjóðum sínum algjörlega. Rússar vita vel að öll lönd eru aðeins þremur máltíðum frá innvortis upplausn, eins og Lenín benti á. Sá nakti sannleikur kostaði Rússland langa borgarastyrjöld og sem enn var ekki að fullu yfirstaðin þegar Nasistar réðust inn í Rússland og hittu Rauða herinn fyrir á miðju endurskipulagningarvaði. Að því leytinu hefðu Nasistar ekki getað fundið heppilegri tímapunkt til að ráðast á Rússland

STAÐREYNDIR ÞARF AÐ TAKA ALVARLEGA

Fyrir Rússum voru afleiðingarnar af Síðari heimsstyrjöldinni á borð við afleiðingarnar af kjarnorkustyrjöld. Rússar misstu 35 milljónir manna og segja má að þeir hafi að 75-85% leyti unnið stríðið í Evrópu fyrir okkur á vesturlöndum. Rússar voru bandamenn okkar, og mönnum ber að sýna þeim sem slíkum viðeigandi virðingu í stað þess stofnanavædda Rússahaturs sem í dag fer að nálgast hatur svo margra manna á Gyðingum og á Ísraelsríki síðustu þrjá áratugina. Rússland var þess utan einna fyrst ríkja heimsins til að viðurkenna sjálfstæði Íslands árið 1944. Takk fyrir það

Allir leiðtogar Sovétríkjanna sögðu að fyrir Rússland voru afleiðingarnar af Síðari heimsstyrjöldinni á borð við afleiðingarnar af kjarnorkustyrjöld

Vesturlönd hafa svikist um að viðurkenna árangur Rússlands gegn Nasistum og Rússahatarar vesturlanda virðast hafa tekið sérstöku og jafnframt einkennilegu ástfóstri við fyrrum nasista og fasista ásamt DDR-myndastyttu frá Austur-Þýskalandi. Og þau hafa svikist um að viðurkenna lögmæti þjóðaröryggishagsmuna Rússa og áhyggjur Rússa af þróuninni á vesturlöndum, sem varla er hægt að kalla öðru nafni en vanþróun - jafnvel inn og útvortis sjálfsmorðskast. Vesturlönd eru því í hættulegu ásigkomulagi og til alls vís, hugsa Rússar

AÐVÖRUN

Eins og forseti Rússlands nefnir í ávarpi sínu: þeir sem beita kjarnorkuvopnum verða að átta sig á því að vindurinn með geislavirku úrfelli getur snúist gegn þeim sjálfum og því rignt niður í þá sjálfa

Í ávarpi Rússlandsforseta er tilkynnt að 300 þúsund af þeim 25 milljónum manna sem eru með herþjálfun í Rússlandi séu kallaðir til herþjónustu. Þeir hermenn verða settir í upprifjun og frekari endurþjálfun og settir í stað annarra víðsvegar um Rússland. Aðeins þeir sem standa nálægt hernum eru kallaðir inn

Rauði herinn hafði á sínum tíma á 14 milljón manna varaliði með tveggja ára þjálfun að skipa. Ber að skoða það varaafl Rússlands þá í ljósi þess að á þinghúshæðum Bandaríkjanna vannst atkvæðagreiðslan um innleiðingu herskyldu með aðeins einu atkvæði sumarið 1941. Engin ríkisstjórn á vesturlöndum myndi fá innleiðingu herskyldu í gegn í dag og allt það 300 þúsund manna varalið sem Jens Stoltenberg aðalhagfræðingur NATO sagði frá, er ekki til herþjónustu búið núna frekar en áður. Aðeins er um pappírsráðstöfun að ræða. Jens Stoltenberg hefur álíka mikið vit á hernaði og hagfræðingur hefur vit á efnahagsmálum

Fyrri færsla

Hverning gengur stríðið í Úkraínu? [2U]


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband