Leita í fréttum mbl.is

Þýskaland orðið nánara Kína en Rússlandi

Upptaka: Hvað segir Douglas Macgregor ofursti um hernaðaraðgerð Rússlands í Úkraínu? Macgregor háði mestu skriðdrekaorrustu sem háð hefur verið síðan 1945. Trump skipaði hann næstæðsta mann í Bandaríska varnarmálaráðuneytinu síðast á kjörtímabilinu, eftir að Jim Mattis hafði reyndist Trump sem DoDeska Den sandmaður. Bloggsíða Macgregors er hér

****

Í þýskum stjórnmálum birtist hatrið á Bandaríkjunum í sífellt þróaðri mynd og í takt við að staða Þýskalands í heiminum og í gjaldþrota Evrópusambandinu þrengist

Okkur hefur verið talin trú um að samband hins neo-merkantílistíska Þýskalands við rússnesk stjórnvöld hafi verið náin og að það útskýri viðbrögð Þýskalands við því sem gerst hefur í Úkraínu

Vestrið –nú sextánkynja að grænkafna í eigin þvælu– reynir að framleiða þá mynd af Þýskalandi að það sé á rúmlega hálfum mála hjá Moskvu og að það eyði því aðeins hinum strategíska pínku-pons afgangi landsins í NATO

Hið rétta er að Þýskaland veðjar á tvo hesta gegn Bandaríkjunum, sem enn hersetur Þýskaland sem stökkpall klerkaveldis glóbalista inn í Rússland. Báðir þeir hestar eru þess eðlis að reiðartúrinn á þeim mun að lokum kollvarpa NATO-aðild Þýskalands og þar með ógna sjálfri tilvist varnarbandalagsins, sem nú þegar er á heljarþröm og í djúpstæðri tilvistarkreppu

Staðan er sú að Þýskaland er fyrir löngu orðið miklu nánara Kína en það er náið Rússlandi. Ný flugferð er nú við það að hefjast frá þýskum flugvelli. Leiðin liggur til Peking og er flugvélin full af reiðum fulltrúum þýskra stóriðnaðarfyrirtækja og fjármála. Í farangri þeirra er sjálfur kanslari Þýskalands, Olaf Scholz, og látið er líta svo út að hann hafi skipulagt ferðina, en ekki þeir, því þetta er fyrsta ferð Ólafs Scholz til mömmu-Peking

Töskumaðurinn Scholz, eins og púðurdósin Merkel, veit að þetta mun ergja Bandaríkin töluvert, en sívaxandi. En þau sjálf geta hins vegar lítið sagt, því hver var það sem seldi heiminum þá hugmynd að Kína yrði brátt eins og þriðja-heims landið Kalifornía varð óvart sem hliðarverkun af þeirri söluherferð

Þýskaland mun nú gera allt sem það getur til að koma kínverskri kjarnatækni afhendingarkeðju-einræðis í umferð í Evrópu og þar með ógna enn frekar þeirri nýju pólitísku dagskrá sem aðeins einn maður í Bandaríkjunum hafði hugrekki til að leggja á borð og fá samþykkta í öllum flokkum þar vestra. Sá maður var auðvitað hinn eini sanni hugrekkismaður Donald J. Trump

Tilgangur Þýskalands er að byggja upp eins mikla innvortis öryggisógn í Evrópu með kínverskri tækni, afhendingarkeðjum og áhrifum, að hún ýti að lokum Bandaríkjunum út í Atlantsála

Og þar sem búið er að reita Rússa það mikið til reiði með hinum þýska stökkpalli NATO-á-sterum inn í Rússland, já þá fækkar þeim bandamönnum sem völ verður á þegar kviknar í kamarfötunni og hún reynist þá þegar alelda. Verðmiðinn á björgunarþjónustu frá Moskvu mun þá liggja hærra en norðurljósin - og sannarlega segi ég þér, fyrir ofan heiðhvolfið

LSD-reiðtúr hinna heilabiluðu í Washington inn í Rússland er að senda meginland Evrópu til fjandans. Síðast var það Barbarossaáætlun Hitlers en nú eru það ofskynjanir NATO sem segja að Rússar séu óæðri kynstofn sem kunni hvorki að lesa né skrifa

Fyrri færsla

Bandaríski herinn að verða þurrausinn?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í þessu samhengi má spyrja:

Hver er stefna íslenskra stjórnvalda í utanríkismálum?

Er það ekki aðallega stefna Ólafs Ragnars sem dásamar rit og þ.m.t. hugmyndafræði aðalritara kínverska kommúnistaflokksins?

Er nokkur önnur stefna?

Og því sama stefna og kanslarans þýska?

Og hver er aftur bankaráðsmaður í kínverska innviðabankanum?  Er það ekki formaður Sjálfatæðisflokksins?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 15.10.2022 kl. 09:32

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Símon Pétur.

Stefna Íslands í LSD-utanríkismálum er að halda Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni frá völdum og að skipta um þjóð í landinu.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 15.10.2022 kl. 09:54

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Í löndum þar sem póstmódernisminn er orðinn svo framskriðinn að hann hefur kálað nær öllu verðleikaræði (e. meritocracy) þá munum við að sjálfsögðu fá utanríkisráðherra og stjórnmálamenn sem hafa LSD-hugmyndir um sjálfan sig, og undan þeim mun þá að sjálfsögðu aðeins renna afkvæmi á borð við LSD-stefnu í bæði utan- og innanríkismálum. Ég er 25 ára og veit og get allt.

Næsta skerf er síðan að gera hross að ráðgjöfum sínum.

Til fjandans með 80 prósentur póstmódernismans.

Þetta mun ekki reddast.

Hmpf!

Gunnar Rögnvaldsson, 16.10.2022 kl. 13:27

4 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Þetta er mjög áhugaverð grein hjá þér sem setur margt í nýtt ljós. Eitt af því sem er áhugavert að spyrja sig er þetta: Hvernig fer þá með samskipti Rússlands og Þýzkalands? Kínverjar telja hag sínum betur borgið með því að vera ekki meðvirk Vesturlöndum í Rússahatri þeirra, heldur leika sáttasemjara og að vinna jafnvel talsvert með Rússum. 

Það sem þú fjallar um hér í þessum merkilega pistli er aldrei fjallað um í RÚV, því þar er heimsmyndin alveg svarthvít, Rússar óvinurinn, og samstaða talin algjör innan Vesturlanda sem eins og þú fjallaðir um í öðrum pistli eru sett í hlutverk Bandamanna í seinni heimsstyrjöldinni. Sú líking er þó mjög vafasöm. Eiginlega er hatrið á Pútín fráhvarfsáhrif hatursvímufjölmiðla Vesturveldanna sem sakna þess svo mjög að hafa ekki bjargvættinn Donald Trump til að hatast útí lengur, því miður. Vesturlöndin eru talin ein heild. Þó er svo alls ekki. Þín grein hér minnir á það og kemur með marga merkilega hluti í dagsljósið.

Eins og þú hefur einnig fjallað um eru stjórnmálin úti á túni víða, bæði ráðgjafarnir gagnslausir og ráðherrarnir, (ráðfrúrnar), og hagstjórnin í molum. 

Ég ber mikla virðingu fyrir vitsmunum þýzku þjóðarinnar þrátt fyrir að þeir hafi alls ekki verið áberandi núna um mjög langt skeið. Fólk lætur bara bjóða sér allan fjandann á meðan sæmileg velmegun ríkir, og Þýzkaland hefur búið við nokkuð góð kjör, en nú gæti orðið breyting þar á. 

Evrópusambandið byggist á að eiginlega allir þegi sem eitthvað hafa til málanna að leggja. Undir niðri eru nú brestirnir orðnir svo stórir og margir í ESB að eitthvað hlýtur að breytast og það í náinni framtíð.

Ef Þýzkaland varpar af sér ESB hlekkjunum verður erfitt fyrir aðrar þjóðir að trúa á þá. Þetta eru spennandi tímar.

Leiðin sem liggur til Peking hlýtur að ergja marga í Þýzkalandi. Eftir lestur greinar þinnar virðist manni sem upplausn sé yfirvofandi í Þýzkalandi og ESB öllu.

Ingólfur Sigurðsson, 17.10.2022 kl. 01:33

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ingólfur fyrir áhugaverða athugasemd.

Samskiptum Þýskalands við Rússland á fyrri helmingi ársins er best lýst með orðum Tass. Þau námu 44,7 milljón tonnum af vöruinnflutningi til Þýskalands frá Rússlandi.

Þýskaland er neo-merkantílistísk ríki og tekur þátt í öllum verstu svindlnúmerum veraldar og tekur upp samskipti við hvaða ríki jarðar sem er svo framarlega sem hinn eini mælikvarði Þjóðverja á allt er í plús: viðskiptajöfnuðurinn.

Þess vegna er stuðpúðasvæði Þýskalands, evrusvæðið og Evrópusambandið að springa í loft upp í dag. Þýskaland mjólkar stuðpúðasvæði sín í stað þess að skapa eftirspurn heima hjá sér til handa þeim, alveg þveröfugt við Rússland, sem sendir fjármagns út í stuðpúða sína. Þetta þeytivinduafl Þýskalands í hvaða samstarfi sem er, sprengir þau alltaf í loft upp á endanum. Afleiðingarnar verða síðan þýsk rassaköst í Evrópu á 80 ára fresti, þegar þetta spil landsins gengur ekki upp lengur. Þýskaland er Kína Evrópu og svarar sú staðreynd athugasemd þinni um Kína.

Rússar eru ekki nándar nærri verstu óvinir landa Austur-Evrópu. Flest þau ríki vilja miklu frekar sitja hersetin undir Rússum en þau vilja sitja hersetin undir þeirri mynd sem við sjáum af sérstaklega Bandaríkjunum og einnig af póstmódern vesturlöndum í dag. Rússland fer nefnilega miklu betur með menningu þeirra. Það er myndin af hinum "hræðilega Ameríkana" eins og VDH orðar það svo vel í grein sinni "Joe Biden Plays the Old Ugly American", sem vekur ugg í brjóstum landa Austur-Evrópu - og víðast hvar í Þýskalandi líka.

Þeir sem áður tilheyrðu Úkraínu en tilheyra nú Rússlandi munu geta notað menntun sína þar margfalt betur en þeir geta vestar í póstmódern Evrópu, því Rússland er ekki pósmódern-járnbrautarslys. Möguleikar þeirra í Rússlandi eru miklu meiri en á vesturlöndum. Rússland framleiðir til dæmis tvisvar sinnum fleiri vísindamenn, verkfræðinga, tæknimenn og stærðfræðinga (STEM) en Bandaríkin útskrifa á hverju ári, af því að landið skapar og framleiðir hluti og vörur sem krefjast þeirra og sem síðan skapa störf. Rússneskir eldflaugaverkfræðingar eru til dæmis það sem Bandaríkjamönnum vantar sárlega í dag og þeir gera allt til að ná í þá.

Það er mikið rétt hjá þér að vesturlönd eru ekki ein heild, þó svo að stundum sé reynt að látaláta þannig.

Að reyna að afiðnvæða Þýskaland er þvæla sem aldrei mun ganga upp. Þjóðverjar verða alltaf Þjóðverjar.

Já Þýskaland er nú þegar búið að sprengja Evrópusambandið í tætlur og leitar að næsta rétti. Helst vildu þýsk stjórnvöld komast undir kjarnorkuvopnaregnhlíf Rússlands til að ná sér niðri á Bandaríkjunum, en nú er sú stefna Berlínar komin út á hliðarspor í bili. En Þjóðverjar þiggja þriðjaheimslega vanþróunaraðstoð í varnarmálum frá Bandaríkjunum og hafa þegið hana frá lokum Kalda stríðsins. Og segja það meira að segja sjálfir. Þýskaland er herlaust land í dag miðað við þá.

Allir sem augu hafa og vilja sjá, sjá upplausnina á Vesturlöndum í dag.

Góðar kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.10.2022 kl. 08:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband