Leita í fréttum mbl.is

Engin haldbær rök gegn Guðlaugi Þór og enn færri með Bjarna. Stríðið í austri (og vestri)

FORMANNSSLAGUR Í xD

Þetta er kostulegt. Það eina sem maður fær að heyra um Guðlaug Þór núna er annað hvort það að hann sé svo vitlaus eða ósvífinn að hann gangi ekki á öllum, eða þá að tími hans sé ekki réttur. Sem sagt Guðlaugur Þór næst æðsti maður úr kjarna Sjálfstæðisflokksins á allt í einu að vera svo vitlaus að hann gangi ekki upp og sé því óhæfur sem næsti formaður xD. Hin rökin eru þau að Guðlaugur Þór kunni ekki á skeiðklukku og sé því kominn út á skeiðvöllinn án leyfis þeirra sem lagt hafa skeiðvöll Sjálfstæðisflokksins í rúst á síðustu 12 árum, samfellt. Lagt hann svo í rúst og grafið sig niður í svo djúpar holur að eina leiðin sé að halda áfram að grafa þar til komið sé út í bláa loftið í Kína

Hins vegar heyrast engin rök með Bjarna Benediktssyni. Jú einu rökin sem heyrast með honum eru þau að hann sé eins og austur-þýska myndastyttan af Merkel; sem sitji á stól í miðju herbergi og leiki sér svo hljóðlátlega með dúkku að enginn taki eftir honum. Að enginn fatti að um myndastyttu né hvað þá formann Sjálfstæðisflokksins sé að ræða. Og allir sem sjá vita líka hvaða aðrar Metoo-dúkkur eru í dótakassa Bjarna. Þarna getur lélegt bara orðið enn verra

Er Guðlaugur Þór eina sönnunin fyrir því að lífsmark sé enn í Sjálfstæðisflokknum? Ég spyr

STRÍÐIÐ Í AUSTRI (og vestri)

Í samfellt átta mánuði höfum við einróma fengið að heyra að Úkraína sé að vinna stríð við Rússneska herinn. Það hefur versta og óhæfasta fjölmiðlastappa mannkynssögunnar frætt okkur um í samfellt átta mánuði. En það er bara eitt vandamál. Rússneski herinn hefur á þessum átta mánuðum stútað sem svarar til einu stykki af Bandaríska landhernum (U.S. Army), því um það bil 100 þúsund Úkraínumönnum hafa NATO-ríkin með Bandaríkin, ESB og Bretland í fararbroddi kastað á spjótin og þar með fórnað í þessum hildarleik þeirra sem snýst um að ná til Rússlands með því að láta Úkraínu um dauðsföllin af völdum brjálsemisstefnu þeirra. Og um það bil 400 þúsund af bestu mönnum landsins liggja særðir og koma ekki aftur til orrustu. Þetta er um hálf milljón manns og stærð Bandaríska landhersins er einmitt hálf milljón manns. Ergo: Rússneski herinn sem ekkert átti að geta hefur lagt sem svarar til US Army að velli. Samt hefur liðsafli Rússa verið aðeins helmingur þessarar stærðar

Hefur Rússneski flugherinn nú flogið 70 þúsund ferðir (e. sorties) á þessum átta mánuðum. Það svarar til þess sem flugherir Bandaríkjanna og Breta og bandamanna þeirra flugu í Persaflóastríðinu 1991, þegar þeir rústuðu van- og illa búnum herjum Saddams Husseins og lögðu borgaralega inniviði í rúst. Flognar voru um það bil 100 þúsund ferðir gegn Saddam og 90 þúsund tonnum af sprengjum var varpað á hernaðar- og borgaralega innviði. Hefur hinn takmarkaði liðsafli Rússa nú tæmt skotfærageymslur allra NATO-ríkjanna það mikið að eftirstandandi birgðir nægja aðeins til nauðþurfta

Vopnafóður ríkisstjórnar Jósefs Bidens, Evrópusambandsins og Bretlands er einnig byrjað að lenda í höndum glæpagengja Evrópusambandslanda því vopnafóðrinu sem átti að blæða Rússlandi út (hin brjálæðislega hugmynd krónískra Rússahatara NATO-landa) hefur bara verið sturtað ofan í leppstjórn NATO í Kænugarði án nokkurs eftirlits í átta mánuði. Segir finnska lögreglan að þau vopn sjáist nú þegar í höndum glæpalýðs í Finnlandi, Svíþjóð og Hollandi, segir í frétt Yle.fi þann 30. október

Rússneski flugherinn hefur undanfarna daga framkvæmt sérstaka skurðaðgerð á raforkuinnviðum Úkraínu með því að stúta spennum og spennistöðvum en ekki sjálfri orkuframleiðslunni í landinu. Hæg eru heimatökin því Sovétið byggði raforkukerfi Úkraínu upp, því það var fastur hluti af sovéska raforkukerfinu og var Zaporozhye Transformer Plant sett niður í því sem sumir kalla Úkraínu í dag, en hefur verið Rússland frá því á 17. öld. Allir spennar eru sérsniðin rússnesk hönnun og sem hvergi fást nema hjá Rússum í Rússlandi og Úkraínu. Reyndar byggðu Rússar Úkraínu upp því hún hafði aldrei áður verið til sem iðnvætt hérað né hvað þá ríki, nema sem hluti af Rússlandi. Rússar eru því með teikningarnar af svo gott sem allri Úkraínu. Það eina sem þeir hafa ekki teikningar af er heilabú þeirra sem nú gista LSD-ofskynjunarstöðvar NATO í Kænugarði, sem er forstofa Rússlands

Upptaka: Átakanalegt hlaðvarp um inn- og útvortis stöðuna í kjarnaríkjum NATO: Hvað segir Douglas Macgregor ofursti þar um hernaðaraðgerð Rússlands í Úkraínu? Macgregor háði mestu skriðdrekaorrustu sem háð hefur verið síðan 1945. Trump skipaði hann næstæðsta mann í Bandaríska varnarmálaráðuneytinu síðast á kjörtímabilinu, eftir að Jim Mattis hafði reyndist Trump sem DoDeska Den sandmaður. Bloggsíða Macgregors er hér

****

Já vel á minnst. Í síðustu viku seldi kanslari Þýskalands keisaranum í Kína 1/4 af höfninni í Hamborg. Ertu að segja satt Gunnar? Já því miður. Þannig liggur nú hið Austur-Þýska DDR-myndastyttuland Merkels og kumpána þar

- Gunnar er enn sem komið er þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Þýskaland orðið nánara Kína en Rússlandi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Það er gott að vita að þú lætur ekki sviptivindana þyrla þér til Kína eins og gerist með svo marga nú til dags, Gunnar. 

Annars vil ég spyrja þig hvort þú hafir lesið um það eins og ég að fleiri lönd en Bretland eigi í efnahagsörðugleikum. Mig minnir að ég hafi lesið það í sumar eða haust að Kína ætti í efnahagsörðugleikum vegna gríðarlegra lokana út af Covid-19, og að hið mikla Kínaveldi rambaði á barmi gjaldþrots. Auk þess var talað um mikla þenslu vegna lánastarfsemi til að fjárfesta erlendis og svo stórborgir sem Kínverjar hefður reist og stæðu auðar, því enginn byggi í þeim, þetta hefðu þeir bara gert til að fjárfesta í einhverju fyrir ofurgróðann af gríðarlegum hagvexti undanfarinn áratug, sem nú væri ekki til staðar.

Það virðist mér að þú sért einn af fáum sem fjallar um vandamál sem aðrir sópa undir teppið og láta sem séu ekki til staðar, vegna pólitísks þrýstings. 

Allavega kom nú jafnvel í RÚV í kvöld loksins frétt um það að Þýzkaland og Evrópa öll væri komin í kreppu, og ekki bara Bretland. Ekki var þó verið að tengja það við efnahagsstríðið við Rússland, sem er greinilega að gera þeim mikinn óleik, eða þeirra eigin heimska í ESB kannski öllu frekar.

Pistlar þínir standa uppúr og eru betri en flestra, Gunnar, finnst mér. Meiri þöggun er nú í þjóðfélaginu en þegar Trump var við völd. Þessi þöggun minnir á árin fyrir kreppuna, 2008 sérstaklega, þegar ráðherrarnir kölluðu það ímyndarkreppu, þegar bent var á þensluna í bankakerfinu sem myndi enda með kreppu, sem varð raunin.

Evrópa er ekki vel stödd. Langflestir þegja um það.

Ingólfur Sigurðsson, 4.11.2022 kl. 00:20

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Ingólfur.

Ég hef svarað þér hér: Ingólfi svarað

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 4.11.2022 kl. 08:58

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þú ert glöggur greinandi Gunnar á stöðuna innan Sjálfstæðisflokksins, en ég hef smá efasemdir. Guðlaugur Þór er hörkuduglegir. Það sýndi hann strax þegar hann var í borgarstjórn en hvort hann er þjóðhollir veit ég ekki. Hann lét í upphafi eins og hann væri andsnúin 3ja orkupakkanum en vann svo ötullega að samþykkt hans. 

En jú, það er altjént lífsmark með hinum.

Ragnhildur Kolka, 4.11.2022 kl. 11:27

4 Smámynd: Theódór Norðkvist

Hvaðan hefurðu þessar tölur um 100 þús. fallna hermenn Úkraínuhers? Samkvæmt Wikipedia (sjá tengil neðar) eru fallnir hermenn 10 þús. og MIA (missing in action) 7.200.

Jafnvel þó við tökum rússneskar tölur (maður ætti ekki að vitna í heimildir frá Rússlandi, nema til að grínast) þá eru fallnir hermenn rúmlega 61 þúsund.

Þannig að þú trompar rússneska miðla, sem hafa ekki verið þekktir fyrir að eiga mikið sameiginlegt með raunveruleikanum.

Þannig að ég óska eftir tilvitnunum í einhverjar heimildir. Að gefnu tilefni skal tekið fram að rússneskir fjölmiðlar, eða sjálfskipaðir blaðafulltrúar hryðjuverkasamtakanna i Kreml, eru ekki heimildir.

https://en.wikipedia.org/wiki/Casualties_of_the_Russo-Ukrainian_War

Theódór Norðkvist, 5.11.2022 kl. 17:26

5 Smámynd: Theódór Norðkvist

Misheppnaðist að setja inn réttan tengil, hér kemur hann vonandi réttur. Ef ekki, er hægt að afrita slóðina að neðan og klístra inn.

https://en.wikipedia.org/wiki/Casualties_of_the_Russo-Ukrainian_War

Theódór Norðkvist, 5.11.2022 kl. 17:28

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Ranghildur.

Við þekkjum ekki og getum ekki þekkt innstu hugsanir stjórnmálamanna okkar hvað öll málefni varðar. Ég þekki Guðlaug Þór ekki en mér líst þó betur á hann en Bjarna. Það er það örugga eina sem ég get sagt um málið. Staða xD yrði að minnsta kosti ekki verri undir handleiðslu Guðlaugs Þórs en undir handleiðslu Bjarna, það held ég að sé öruggt. Það er nóg fyrir mig. Ég gegn út frá því að Guðlaugur Þór sé ekki minna þjóðhollur en Bjarni. Fínt að fá frá þér þetta með að Guðlaugur sé duglegur að þínu mati og geti verið jarðýta. Það passar nokkuð vel við það álit sem ég hef á honum, án þess þó að hafa neitt fyrir því annað en mínar eigin tilfinningar.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 5.11.2022 kl. 23:23

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Theódór.

Heimildir mínar eru til dæmis Douglas Macgregor ofursti úr Bandaríkjaher sem var næst æðsti maður í bandaríska varnarmálaráðuneytinu eftir að Jim Mattis hætti. Douglas Macgregor var bjartasta stjarna  Bandaríska hersins árum saman og þótti efnilegasti maður Bandaríkjanna til að endurskipulagningar hans, sem er akút mál. Árum saman þar á undan var hann kallaður fremsti bardagamaður hersins. Bloggsíðu hans getur þú skoðað hér  Síðan eru ýmsar aðrar heimildir eins og til dæmis viðtöl við hermenn í Úkraínuhernum sem óvart og fyrir slysni birtust ófullritskoðuð á síðum New York Times og Washintgon Post, þar sem þeir segja að mannfall þeirra sé 10-12 sinnum meira en mannfall Rússa.

Síðan þarf maður ekki annað en að geta hugsað sjálfur. Í stríði þurfa allir að gerast hálfgerðar leyniþjónustur og púsla saman því sem þeir sjá og sjá ekki, því lítið er að marka fjölmiðlana, einkum á síðustu mörgum árum. 

Frá degi-1 hafa vestrænir fréttamiðlar lapið upp áróðurs- og sálfræðihernaðinn sem vellur upp úr Pentagon, Hvíta húsinu og Lundúnum. Frá 1. degi hefur okkur verið sagt að Úkraína sé að vinna stríð við Rússneska herinn. Úkraína er að vinna, Úkraína er að vinna, Úkraína er að vinna og Rússar eru að verða búnir og uppiskroppa með allt á milli himins og jarðar, en þó einkum skotfæri. En það hefur bara ekki passað við neitt, heldur eru það skotafærageymslur NATO-ríkjanna sem orðnar eru það tómar að varla er hægt að halda þar uppi heræfingum og verja sig. Dag fyrir dag hefur her Úkraínumanna, sem í febrúar var næst stærsti standandi landher í Evrópu á eftir Tyrklandi, tapað og gefið eftir það miklu af landsvæðum að flatlend á stærð við Ísland og rúmlega það er komið á rússneskar hendur og eru fjögur héruð þéttbýlasta landshluta Úkraínu orðin hluti af Rússlandi með samtals 8-10 milljónum íbúa. Samt er okkur sagt að Úkraína sé að vinna. 

Þeir sem trúa því að Bandaríski herinn myndi tapa stríði í Mexíkó munu sjálfsagt einnig trúa því að Rússar tapi stríði í Úkraínu. Að landið (Rússland) sem hýsti og byggði upp mesta herveldi mannkynssögunar tapi stríði í Úkraínu. Að landið sem lagði herveldi Nasista að velli með því að kála 3 af hverjum 4 hermönnum sem Öxulveldin í Evrópu misstu, tapi stríði í Úkraínu. Það voru Rússar sem unnu stríðið í Evrópu fyrir okkur. Þeir framleiddu helming allra stórskotaliðsvopna sem Bandamenn framleiddu til samans og helming allra skriðdreka þeirra. Þeir afvopnuðu heimsveldi Nasista. Bretar og Bandaríkjamenn nörtuðu í kantana á því stríði. Ég er ekki að gera lítið úr þeim, en þannig fór stríðið í Evrópu. Rússar lögðu Þriðja ríkið að velli.

Heldur þú að Bandaríkjamenn myndu í stríði við Mexíkó (og sem þá væri til dæmis í vösum kínversks hernaðarbandalags) geta tekið iðnaðarfyrirtæki sín niður og flutt þau til Alaska og mætt síðan til leiks með nýjar græjur innan næstu 12 mánaða? En það var það sem Rússar gerðu. Rússar misstu meira en 30 milljón manns í Síðari heimsstyrjöldinni og þeir þola ekki endurnýjaða innrásarógn, nú NATO-ríkjanna, við landamæri sín. Þola það bara ekki.

Staðan er í raun og veru sú að sameinað NATO myndi ekki geta unnið Rússneska herinn í hvorki land- né loftstríði í túnfæti Rússlands. Lagaleg atriði hafa fram til þessa komið í veg fyrir að Rússland geti beitt hinu standandi og reglulega fótgönguliði landsins í deilunni í Úkraínu. Það hefur lagalega ekki mátt stíga fæti á erlenda grund. En með herútkallinu mun lagaleg staða þess breytast. Með herútkalli Rússa á 300.000 mönnum virkja þeir brotabrot af nú þegar þjálfuðu varaafli Rússlands, sem samanstendur af 24 milljón manns sem hlotið hafa herþjálfun. Rauði herinn hafði til dæmis 14 milljón manna varaafl með tveggja ára fulla þjálfun til að draga á í Síðari heimsstyrjöldinni.

Úkraína er búin að framkvæma þrjú aukaherútköll og er í gangi með það fjórða þessa dagana. Það vantar akút 100 þúsund manns í viðbót og sem verið er að kalla út núna. Meira en helmingur herafla þeirra er horfinn. Afar eru kallaðir til herþjónustu. Og nú segir Joe Biden að til dæmis Lockheed vopnaframleiðandi Úkraínu í Bandaríkjunum hafi skort örgjörva, hann glopraði þessu út úr sér. Þú getur fundið um þetta á heimasíðu Hvíta hússins.

Wikipedia veit ekki neitt um þetta mál fyrr en eftir á. Það vefsetur tekur bara það sem gengur í bylgjum í vestrænum fjölmiðlum, sem orðnir eru enn verri en rússneskir, og síðan mun vefsetrið breyta tölunum í takt við að sannleikurinn kemur í ljós. Svona svipað og þegar Wikipedia hélt því fram að Ísland væri umsóknarríki í ESB langa löngu eftir að það var ekki tilfellið. Ég benti ritstjórninni á þetta og benti þeim á heimildir og þá var þessu breytt. En þær heimildir þurftu sinn tíma til að koma í ljós. Ef ég hefði ekki skrifað um þetta þá stæði sá þvættingur sennilega enn á vefsetri Wikipedia. Enginn á vesturlöndum þorir að opna munninn um neitt sem máli skiptir lengur, því við búum ekki í frjálsum löndum lengur. Og Rússum í Bandaríkjunum er farið að líða eins og í Sovétríkjunum sálugu. 

Stríð samanstanda yfirleitt af fjórum til fimm vígstöðvum:

1) Fyrst og fremst af þinginu og stjórnmálum landa, og þegar þau nægja ekki ein og sér, þá klæðast stjórnmálin einkennisbúningum og nota vopn í stað talsmáta. Stríð eru því framhald hefðbundinna stjórnmála og þar eru oftast fjórar vígstöðvar: 

1) Vígvöllurinn eða hernaður

2) Diplómatía eða stjórnmálaerindrekar

3) Hinn efnahagslegi vígvöllur

4) Áróðursvígstöðvarnar

Þar af leiðir:

1) Rússneski herinn er með yfirþyrmandi og óendalega sterka stöðu en fyrst og fremst óendanlega góða aðstöðu og bakland.

2) Diplómatía Moskvu virkar vel á meira en helming jarðarbúa.

3) Evrópa er að verða einangruð frá Rússlandi og því að falla saman í einu allsherjar heimatilbúnu sjálfskaparvíti. Rússland hefur haldið orku-lífinu í Evrópu í 30 ár. En án rússneskrar orku getur Evrópa ekki verið til sem Evrópusamband.

4) Áróðursvígstöðvarnar standa Rússum í hag því jafnvel áróður þarf að styðjast við visst magn af sannleika, og hann hafa NATO-ríkin ekki í sínum fórum. Og á vígvellinum getur NATO ekki unnið Rússa.

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 5.11.2022 kl. 23:25

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Síðan þarf einnig að benda á það að frétt í blaði eða fjölmiðli á vesturlöndum er í fæstum tilfellum heimild fyrir neinu. Þar er nær alltaf vitnað í "opinbera aðila", eða "háttsetta" hina eða þessa ótilgreindu persónuna, eða þá "að sögn" einhvers ónafngreinds þá á þetta eða hitt að hafa gerst. 

Heimild er hins vegar fullt nafn, mynd og staða á að minnsta kosti tveimur persónum ásamt staðfestingum frá annarri persónu sem raunverulega er til og þá einnig með fullu nafni, stöðu og helst einhverjum fleiri atriðum sem hægt er að kalla staðreyndir.

Ekkert af þessu er til staðar í fréttastraumnum sem haldið er að almenningi á vesturlöndum. Hver lygin á fætur annarri hefur rekið fréttalestir vestrænna fjölmiðla um þetta stríð eins og önnur. En í þessu stríði hefur hins vegar LSD-verið bætt út í grautinn sem borinn er á borð fyrir almenning þannig að um hreinar ofskynjanir er orðið að ræða.

"Ekki eina tommu austur" var Rússlandi lofað að NATO myndi ekki fara þegar Varsjárbandalagið  dró sig til baka frá Austur-Evrópu og Austur-Þýskalandi.

Ekki eina tommu

Hvers vegna er NATO-búið að vopna Úkraínu upp í að vera næst stærsti landher Evrópu í höndum brjálæðinga inni í sjálfri forstofu Rússlands?

Gunnar Rögnvaldsson, 6.11.2022 kl. 00:07

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Síðan má benda á það að enginn svokallaðra fréttamiðla vesturlanda hafa hundsvit á stríðsrekstri, hernaðarstrategíu né hvað þá varnar- og hernaðar-doktrinum.

Enginn þeirra hefur lesið varnarmálastefnu og afleidda löggjöf Rússlands í þeim málum (defence doctrine), því hefðu þeir gert það þá myndu þeir ekki æla út úr sér þvættingnum um notkun kjarnorkuvopna, ásamt þvælunni um meintan styrkleika Bandaríkjahers, sem ekki hefur háð alvöru landstríð við alvöru landher síðan í bandarísku borgarastyrjöldinni 1865.

Enginn hér á Íslandi, þar með talinn ég sjálfur, hefur alvöru vit á varnar- og hernaðarmálum - né hvað þá á hernaðarvísindum.

Samt ættu fjölmiðlarnir allir að geta hugsað, en það gera þeir ekki því það kostar tíma og erfiði. Við búum því öll í bergmálshelli imbahala.

Gunnar Rögnvaldsson, 6.11.2022 kl. 01:20

10 Smámynd: Theódór Norðkvist

Þetta eru sérstakar söguskoðanir hjá þér, Gunnar og ég hef ekki tíma til að fara í öll þessi mörgu atriði sem þú dreypir á. Vil ekki heldur dreifa athyglinni frá meginefni pistils þíns, sem er fomannsslagurinn í Sjálfstæðisflokknum.

Ég viðurkenni að þú virðist samt hafa kynnt þér málin vel og býrð yfir mikilli þekkingu, þó ég sé ósammála þér í mörgu.

Læt duga að benda á þennan tengil frá Harvard (sem er eflaust einn af þessum ónýtu fjölmiðlum Vesturlanda, að þínu mati.) Svona rétt til umhugsunar.

Vil hafa orðrétt eftir þessar tvær setningar, en hvet alla til að lesa þessa grein. Hún rekur vel stríðsglæpi Stalíns, sem Pútín er núna að reyna að halda áfram með:

Another myth is that the Soviet Unions role in the Second World War began on 22 June 1941, when the Wehrmacht attacked the USSR. In reality, the Soviet Union was a leading participant from the very start, colluding for nearly two years with Nazi Germany.

The Soviet Role in World War II: Realities and Myths

Theódór Norðkvist, 6.11.2022 kl. 14:59

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Theódór.

Það eina sem Bandamenn áttu sameiginlegt, þ.e. Bretland, Bandaríkin og Sovétríkin, var að á þau var ráðist.

Hollt er að muna að án tilstuðlan Rússa hefði heimsveldi Nasista ekki verið kveðið í kútinn. Íhlutun Bandaríkjanna í stríðinu í Evrópu var til þess gerð að koma í veg fyrir að Sovétríkin réðu öllu meginlandi Evrópu eftir stríð, því Rússar hefðu hvort sem er unnið stríðið við heimsveldi nasista án þátttöku Breta og Bandaríkjanna. Það hefði einungis tekið þá lengri tíma, kannski 12-16 mánuði í viðbót. En út í Atlantshaf hefðu þeir þrýst nasistum hvað sem öllu öðru liður.

Það er alveg rétt þetta með griðasáttmála Sovétmanna við Nasista, en hann stóð þó ekki lengi eins og samvinna Svía og Hitlers. En eftir að ráðist var á Sovétríkin þá reyndust sovétmenn trúir bandalagsmönnum sínum fram til stríðsloka.

En allt þetta breytir þó ekki því að það voru fyrst og fremst Rússar sem réðu niðurlögum heimsveldis Nasista.

Rússland í dag er ekki Sovétríkin, þó svo að Svíþjóð virðist enn vera Svíþjóð.

Gunnar Rögnvaldsson, 6.11.2022 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband