Leita í fréttum mbl.is

Viðskiptastríð ljósmæðra - og Bandaríkjanna

Áhöfnin á Halastjörnunni (hans Gylfa): Ég hvísla yfir hafið

****

Í reynd er enginn eðlislægur munur á viðskiptastríði ljósmæðra og viðskiptastríði landa. Ljósmæður eru hluti af þjóðinni sem heldur þeim uppi. Þær eignast börn, borga skatta og geta því orðið fyrir barðinu á sjálfum sér eins og gerist í viðskiptastríðum á milli landa. En sum stríð eru þó mikilvægari en önnur, sérstaklega þau þar sem viðskipti flestra liggja undir. Allir geta eignast börn án ljósmæðra. Þær eru ekki afhendingarkeðja sem allt byggist á. Eins er það með afhendingarkeðjur í hinum stóra heimi. Hægt er að setja upp nýjar keðjur eins og hendi sé veifað. Það er í reynd auðveldara en margir halda. Þannig að viðskiptahallalöndin eru oftast sigurvegarar í viðskiptastríðum

Ljósmæður eru ekki með krónískan viðskiptahalla. Því er ekki hægt að halda fram. Og börn munu halda áfram að fæðast, án þeirra. En viðskiptahalli Bandaríkjanna er hins vegar kerfislega mikilvægur fyrir öll Vesturlönd, því án Bandaríkjanna hætta Vesturlönd að vera Vesturlönd. Viðskiptahagnaðarlöndin munu tapa viðskiptastríði við Bandaríkin, það segir sagan langa. Það er því rangt þegar háskóaliðið segir að "allir tapi" í viðskiptastríðum. Það er ekki rétt, því annars myndi enginn há kjarabaráttu. Háskólar vorir eru að verða ansi lélegir. Í þá mun brátt ei borga sig að fara

Fyrri færsla

Aðeins flokkur skíthæla hafnar forseta danska þjóðþingsins


Aðeins flokkur skíthæla hafnar forseta danska þjóðþingsins

HÁTÍÐARFUNDUR ALÞINGIS ÍSLENDINGA Á ÞINGVÖLLUM 18. JÚLÍ

 

Frá fundi Alþingis á Þingvöllum í dag: Forseti danska þjóðþingsins, Pia Kjærsgaard, ávarpar Alþingi Íslendinga. Allan 82. fundinn á Þingvöllum má sjá hér

****

Frá og með nú veit danska þjóðin að hér á Íslandi býr sérstakur flokkur skíthæla sem er stjórnmálaklámflokkurinn Píratar. Gott er fyrir dönsku þjóðina að vita þetta, því þá getur hún varast það sem vont er. Dansk Folkeparti er næst stærsti stjórnmálaflokkur Danmerkur og úr þeim flokki hefur Pia Kjærsgaard oftar en einu sinni hent drullusokkaliði á borð við Pírata, öfugu út. Þar sem ég naut gestrisni Dana í 25 ár, þá þekki ég vel til þeirrar löngu og seigu baráttu sem Pia Kjærsgaard hefur staðið fyrir, til varðveislu þess sem Dönum er allra kærast; danska þjóðríkinu, sem stendur því miður í túnfæti þess sem alltaf þarf að óttast; frá suðurlandamærum Danmerkur og þar með til Norðurlanda allra. Það er ekki að ástæðulausu að hún er forseti danska þjóðþingsins í dag; Folketinget

Það drullusokkalið sem gat ekki unnt Alþingi Íslendinga þeirrar friðhelgi sem íslensk lög fyrirskipa, var sennilega á Þingvöllum í boði klámflokks Pírata og sundurtættra leifa Samfylkingar. Sorphaugar sögunnar breiða út faðma sína fyrir Pírötum, sem þá komast heim

Þakka ég Bjarna Benediktssyni fyrir að segja hlutina eins og þeir eru. Þakka ég einnig Steingrími J. Sigfússyni forseta Alþingis fyrir góða fundarstjórn og svo forseta þjóðþings Dana, Piu Kjærsgaard, fyrir heiðurinn. Píratar eru móðgun við dönsku þjóðina, lýðræði, mannasiði og Íslendinga

Takk fyrir mig - og takk fyrir fullveldi minnar þjóðar

Fyrri færsla

"Aðals-fjölmiðlar" Vesturlanda köfnuðu


mbl.is Dónaskapur að virða ekki embættið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Aðals-fjölmiðlar" Vesturlanda köfnuðu

"Blaðamannafundur" - ef svo má að orði komast

****

Fundur Trumps og Pútíns í Helsinki - og ríkisstjórnarinnar á Snæfellsnesi

Það eina sem vantaði -en kemur örugglega siðar- var að Trump hefði verið einn með Vladímír Pútín í fjóra tíma og að það hafi nægt til að doktor Pútín gerði á honum heilaskurðaðgerð, þar sem heila Trumps var skipt út með heilanum úr Pútín sjálfum, þannig að nú er Trump Pútín og Pútín er Trump. Svo geðveikisleg voru vinnubrögð þeirra sem kalla sig helstu fjölmiðla Vesturlanda, eftir fundinn

Á "blaðamanna"fundi eftir fund forsetanna gafst þeim tækifæri á að spyrja spurninga um það sem fundurinn snérist um; alþjóðamál. En nei, að engu var spurt nema innanríkismálum Demókrata (þ.e. heilabilun þeirra sjálfra vegna tapaðra kosninga). Og þar sem rússneskir fréttamenn búa ekki við fjölmiðlafrelsi, þá voru spurningar þeirra eftir því

Pútín viðurkenndi að Donald Trump stæði fast á því að innlimun Krím væri ólögleg. Forsetarnir voru sammála um að vera ósammála um það mál. Sama gildir um Úkraínu, þar krefst Trump að Rússland gíri sín mál niður

Trump fór fram á aðstoð Rússlands við að halda Íran á mottunni og þar með að minnka hættuna á átökum á milli útlendingaherdeila Írans, og annars vegar Ísraels. Hann fór einnig fram á að Rússland stuðlaði að kjarnorkuafvopnun Norður-Kóreu. Hreint voðalegt

Trump sagði Pútín að Bandaríkin hygðust veikja orkutök Rússlands á Evrópu, sem eru slæmar fréttir fyrir geopólitískar hugleiðingar Þýskalands

"I have great confidence in my intelligence people, but I will tell you that President Putin was extremely strong and powerful in his denial today"

- sagði Trump orðrétt og réðst því ekki á njósnastofnanir Bandaríkjanna eins og svo kallaðir fjölmiðlar Vesturlanda segja:

"Ég ber mikið traust til fólksins í njósnastofnunum mínum, en ég verð að segja ykkur að Pútín forseti afneitaði [afskiptum af kosningunum] hið kröftugasta og ítarlega"

Og þar sem fundurinn snérist um að reyna að skapa byrjun á trausti leiðtoganna á milli, þá sagði Trump að sjálfsögðu að hann bæri traust til rússneska forsetans. En það gerir hann að sjálfsögðu ekki enn, enda sagði Pútín það sjálfur, að auðvitað treystu löndin ekki hvort öðru

Ef þetta hefði verið Obama þarna í Helsinki, þá hefðu nóbelsverðlaunum rignt niður strax í gær. Það liggur við að hér sé um kynþáttahatur fjölmiðla á hvítu fólki að ræða. En þetta er ekki í fyrsta skiptið í sögunni sem sjálfsfyrirlitning kemur svona fram. Þannig að næsta skref fjölmiðlafólks Vesturlanda verður sennilega það, að taka sig sjálft af lífi í beinni útsendingu, til að mótmæla sinni eigin sjálfsköpuðu glötun. En hér var sem sagt enn eitt kosningaloforð Trumps efnt: að reyna að bæta samskipti Bandaríkjanna og Rússlands

Ríkisstjórnin og byggðamál

Af ríkisstjórnarfundi á Vesturlandi hafði DDRÚV lítið að segja í kvöldfréttum nema 101. Lítið var fjallað um hvað fundurinn snérist í raun um. Hann snérist um málefni íslenskra byggða og að þessu sinni um stór mál eins og samgöngumál á Vesturlandi. Öll sveitarfélög Vesturlands voru með menn á staðnum og ríkisstjórnin kynnti fyrir þeim það sem hún er með á prjónunum í byggðamálum. DDRÚV eyddi meira tíma í að sýna gamalt rusl sem í 200 ár hefur rekið hér á land og mun alltaf gera. Því var slegið upp sem eins konar nýsovésku heilaþvottadufti í Karl Marx-pökkum, merktum DDRÚV, og passar það einnig vel við hve hvíti maðurinn er vondur

En sennilega voru sovéskir fjölmiðlar ekki eins góðir áróðursmeistarar og DDRÚV, því Sovétríkin hrundu og voru bönnuð með lögum, en ekki DDRÚV. Í gamla sovét hlustaði enginn nema sannur kommi á svona heilaþvottastöð. Það var gott hjá Bjarna Benediktssyni að afneita meiri húsnæðissósíalisma, og kjósa frekar sterkt atvinnulíf sem elur af sér tekjur til fólks sem drepur sósíalisma með glans og byggir hús (en ekki "upp"). Við viljum hann ekki á Íslandi, því hann er rusl. Best er að halda honum föstum við sérsveitarfélagið Reykjavík-upp, því þar er jarðvegurinn svo frjór að ruslið vex þar sjálft-upp, en rekur ekki á fjörur, nema sem brúnn lífrænn úrgangur, heldur er það ruslið sem rekur fólkið burt úr borginni - burt úr sósíalismanum - og út á Ísland

Fyrri færsla

Trump hækkaði skyndilega þröskuldinn í fundarlok


Trump hækkaði skyndilega þröskuldinn í fundarlok

NATO var stofnað til að verja Evrópu gegn rússnesku stjórnarfari, sem undantekningalaust byggist á terror, innan sem utan landamæra þess, og hefur það á mismunandi hörkustigi gert svo alla tíð, með harða vinstriútgáfu þess sem þá verstu. Tilvist Rússlands hvílir á terror. Þýskaland, og stór hluti meginlandsins eru nú nær hálf í vösum Rússlands. Ættum við áfram að verja þá vasa Rússlands, spyr Donald Trump

1. Georgía þar (Anschluss)
2. Austur-Úkraína hér (Sudetenland)
3. og Krím bara sí svona (München)
4. Hvað gerist næst,
5. með Moskvu, sem fóðruð er á friðþægingu
6. Jú hún vex, eins og sögulega litlir menn með yfirvaraskegg

Það eruð þið, elíta-ESB, sem fóðrið hættuna sem þið ætlist til að Bandaríkjamenn verji ykkur gegn. Er það í lagi? Er gasleiðslan sem Þýskaland og Rússland eru að smíða saman -fyrir þann pening sem Þýskaland sparar með því að greiða ekki fyrir varnir sínar- það sem leggja mun endanlega niður NATO, spyrja Bandaríkin sig sjálf

"Ég mun fara mínar eigin leiðir" segir Trump. Já, það er mjög svo skiljanlegt, því Þýskaland er með þessu að byggja upp hernaðarmátt Rússlands. Það fóðrar Moskvu - og byggir upp ógnandi tilvistarhættu yfir höfðum Austur-Evrópu, samhliða því að reyna að lama hana sem mest úr vestri. Fimmtu deildar hegðun sem er á mörkum þess að vera þolanleg í NATO. Þetta er Ost-klukkspil Þýskalands með ESB í rassvasanum á Brandt og Schmidt sterum. Það lítur á Rússland sem næsta nágranna sinn í austri, en ekki Austur-Evrópu

Stór hluti meginlands NATO-Evrópu neitar að verja sig, en heimtar að Bandaríkin geri það. Þýskaland neitar að borga næstum því nokkuð sem helst, en mergsýgur hins vegar önnur ESB-lönd og veifar mórölskum fána framan í Suður-Evrópu, þangað sem ESB-þýskir þrýstidældu upptækt gerðu sparifé þýsks almennings, svo að Suðrið myndi á kredit spyrja eftir þýskum vörum úr norðri. Þýskaland var "hinn sjúki maður Evrópu" þegar þessi ESB-stefna landsins varð til. Móralski fáninn sem Þýskaland veifar í suðri, er og verður rammskakkur þriðji

Á NATO fundinum í síðustu viku fór Trump fram á að allir létu af hendi sinn samþykkta NATO-skerf til varnarmála, eins og menn, þ.e. tvær prósentur af þjóðarframleiðslu. En þegar Trump yfirgaf NATO-fundinn, var þolinmæði hans orðin þannig súr að hann tvöfaldaði og sagði að löndin yrðu að borga fjögur prósent til varnarmála í stað tveggja. Þá hlógu margir þeir sem illa kunna að hlægja síðast

Hvað er það sem fær Trump til að segja allt í einu fjögur prósent, en ekki bara tvö. Jú, hann er með áætlun í kollinum. Tollar verða innheimtir við kassa-eitt í Bandaríkjunum þar til viðskiptajöfnuður ESB við Bandaríkin verður ekki tvö prósent ESB í hag, eins og hann lengi hefur verið, heldur tvö prósent Bandaríkjunum í hag. Og ef þið drífið ykkur ekki múðurlaust upp í tvö prósentin og kyngið, þá loka ég líka á gasið frá Moskvu sem NATO á að verja ESB gegn. Nord-Stream2-fyrirtækin verða lokuð úti úr alþjóðaviðskiptakerfinu og Austur-Evrópa fær nýjar bandarískar herstöðvar, sem loka á gasið frá Moskvu. Þetta er ómenguð gasblanda af heilbrigðri skynsemi, sem ESB þar af leiðandi ekki skilur, en kafnar líklega í

Almenningsálitið skiptir hér engu um framvindu mála. Það er ekki mótandi afl í heiminum og hefur aldrei verið. Það er einungis blaut smókrúlletta fjölmiðla, með bara einn smók í sér

Ekkert bandarísk herskip í Persaflóa hefur nú orðið fyrir áreitni í heilt ár. En slíkt var algengt í forsetatíð Obama. Engum eldflaugum hefur Norður-Kórea þorað að hleypa á loft síðustu tæplega níu mánuði. Ástæðan er Donald J. Trump. Maðurinn í Hvíta húsinu

Það er ódýrara fyrir Trump að senda sjálfan sig út í heim, í stað þess að senda hermenn til sömu staða í kannski langdreginn dauðann. Donald J. Trump er ósérhlífinn diplómat Bandaríkjanna númer eitt. Og það er ekki bara ódýrara í mannslífum talið, heldur er sú stefna hans þess valdandi að enginn sem kaus hann, hefur skipt um skoðun á Donald Trump, en það eru hins vegar þeir sem kusu Hillary Clinton sem eru að skipta um skoðun - á Donald J. Trump. Ertu "aldrei Trump" maður? (e. never-Trump) er nú orðin spurning sem kjósendur Hillary svara oft neitandi og reiðast spyrjendum fyrir. Hún er að verða móðgun við geðheilbrigði kjósenda. Obama eyðilagði Demókrataflokkinn svo hroðalega að ekkert stendur eftir nema sviðin jörð. Kannski er Sjálfsstæðisflokkurinn að verða þannig jörð núna, mér er spurn, því öngvir fætur sjást þar enn

Fyrri færsla

Þýskir stinga áfram höfðum í nýsovéskan sand ESB


Þýskir stinga áfram höfðum í nýsovéskan sand ESB

NATO-fundurinn snérist að sjálfsögðu um Bandaríkin því þau halda NATO uppi sem hernaðarbandalagi á meðan stærstu ESB-löndin halda sér að mestu frá því að halda NATO sem hernaðarbandalagi, því stjórnmálin í þeim löndum snúast um að níða Bandaríkin niður og tala út og suður um hvað NATO eigi að snúast um, vegna eigin innri vangetu. Evrópa er orðin eins og fallandi alki sem reynir að útskýra akademískan óbata sinn með blaðri og dagdrykkju. Þýski kanslarinn er pólitískur yfirmaður í steingeldu hálf-sovésku landi sem mælist með hve mesta andúð á Bandaríkjunum, sem halda uppi NATO og þakinu yfir nýsovésku Þýskalandi. Í ríkisstjórn hennar eru vinstrimenn af hreinum stasískum trúbálki sem sjá helst að hernaðarmætti Bandaríkjanna sé skipt út fyrir hernaðarmátt Rússlands. Þýskaland mun um aldur og ævi verða til stórkostlegra vandræða fyrir meginland Evrópu og veröldina. Það hefur hingað til verið liðið, því Bandaríkin umbáru það vegna þess að þau þurftu á Þýskalandi að halda í glímunni við Rússland í full-sovésku stjórnarfari, sem nú er að endurtaka sig undir nýjum merkjum. Bandaríkin þurfa ekki lengur á Þýskalandi að halda og það gremst Þjóðverjum vegna þess að þá þurfa þeir að taka dálitla ábyrgð á sínu lífi. Það er afar erfitt, sérstaklega núna, þegar þau lönd sem báru Þýskaland efnahagslega uppi eru annað hvort sviðin jörð eða orðin andsnúin ESB-ryksugun Þýskalands

Evrópa kemur ekki nálægt neinum mikilvægum málum lengur því hún hefur enga, nada, núll getu til að leysa þau: hvorki Úkraínumálið, Krím né allt hið rotna beinagrindasafn hins afturgangandi sovéts í Vladímír Pútínlandi, ekki Mið-Austurlönd, ekki Kína, ekki Norður-Kóreu, ekki ISIS, ekki heimsviðskiptamál, ekki Ísrael-Palestína, ekki Íran né upprennandi Stór-Tyrkland. Evrópa er orðin gamalt hrúgald á öskuhaugum sögunnar. Hún er orðin ruslatunna sem Bandaríkin umbera, en ekkert umfram það. Þau sjá smá von í Austur-Evrópu sem bandamanni, en restin af meginlandinu er að verða nýtt stasi-ríki undir sovésku ESB

Ekkert merkilegt evrópskt fyrirtæki er lengur til og hinn stafræni hluti heimsins á engan veginn heima þar; núll. Allir bankar meginlandsins eru gangandi beinagrindur. Enginn góður háskóli er lengur til á meginlandinu, jú  einn, en hann er í Sviss. Enginn merkilegur stjórnmálamaður býr lengur á meginlandi Evrópu, frekar en var í Austur-Þýskalandi og Sovét. Þeir geta einfaldlega ekki orðið til. Jöfnuður! en ekki frelsi er orðið mottó og Evrópusambandið nálgast nú eins konar mafíuríki sem ekki er hægt að kjósa burt. Allt er orðið fyrrverandi og álfan er ekki fær um að verja sig lengur. Henni tekst með naumindum að kreista fram 1,4 prósent af ESBlanda-framleiðslunni í varnir. Satt að segja -veit Donald Trump- erum við að horfa á rústirnar af því sem einu sinni var. Evrópa er búin að vera fyrir fullt og allt. Hún er orðin hálf sovéskt betlandi fyrirbæri á leið til Rómar II. Evrópusambandið drap hana enda er það Stasi. En eigum við að leyfa því að drepa Ísland líka?

Fyrri færsla

Óvissuferð endar: Nýja Sjáland pantar fjórar bandarískar kafbátaleitarvélar


Óvissuferð endar: Nýja Sjáland pantar fjórar bandarískar kafbátaleitarvélar

Nýja Sjáland

Nýja Sjáland er að vakna upp við vondan kínverskan draum. Síðasti vondi draumur þess voru kommafriðarhreyfingar Vesturlanda sem KGB hannaði. Friðurinn sá hreyfðist í lokuðu kommaglasi og varð til þess að Nýja Sjáland bannaði bandarískum herskipum að koma í höfn nema að skipherrar þeirra staðfestu að þau væru kjarnorkuvopnalaus, og helst varnarlaus. Sú saga öll er nú skyndilega búin og bandarísk herskip fá að koma í nýsjálenska höfn án þess að staðfesta af né á um slík vopn, sem þau eðli málsins samkvæmt hvergi gera

En það er meira. Nýja Sjáland hefur ákveðið að festa kaup á fjórum nýjum Boeing P-8 Poseidon kafbátaleitarvélum. Flugher landsins mun sjá um leitina og reksturinn, eins og hann hefur séð um rekstur sex P-3 Orionvéla. Þetta eru nokkuð stórar fréttir frá þessu litla landi, sem telur tæplega fimm milljón manns. Kosta nýju vélarnar 1,5 milljarð Bandaríkjadala eða sem svarar til 160 milljarða króna. Nýsjálenski flugherinn var stofnaður 1913 og hefur fimm flugstöðvar í landinu

Óvissuferð Íslendinga hefst (eftir-kosninga-ferðin)

Forsætisráðherra Íslands sagðist vera að fara í óvissuferð í gær. Hún væri nefnilega að fara á NATO-fund. Skelfilegt að þurfa að líða svona sem pólitískt höfuð Íslands. Hreint skelfilegt. Fyrir bandaríska kjósendur hefur Donald J. Trump ekki verið nein óvissuferð. Hann gerir allt sem hann lofaði þeim og tístir hvernig það gengur og hvað hann ætlar að gera og segja næst og hvenær. Í gær kallaði hann bandaríska lyfjaframleiðendur á teppið, og þeim fundi í Hvíta húsinu lauk með því að fyrirhugaðar verðhækkanir á lyfjum koma ekki til framkvæmda í bráð. Mikið hefði ég viljað vera flugan á veggnum þar

WSJ: Pfizer to Roll Back Price Increases After Trump Criticism

Á meðan segja íslensk stjórnvöld kjósendum sínum að þau séu algerlega getulaus, þvert á það sem sagt var fyrir kosningar, og geti því hvorki varið landið fyrir ásókn útlendinga né neinna annarra. Skelfur nú Katrín mikla á NATO-fundi í Brussel því kommar hafa í hálft hundrað ár sagt að Bandaríkin skipti ekki lengur máli. Og Bjarni steinsofandi Benediktsson virðist ætla að leggjast héradauður og bake-off (afbakaður) í jötuna í Brussel, þvert á það sem hann sagði á Hvanneyri, fyrir kosningar. Íslendingar skulu píndir samkvæmt öllum umboðslausum reglum ESB. Má kannski bjóða þér í sanna óvissuferð í næstu kosningum, Bjarni?

Fyrri færsla

Útsala á Íslandi í hendur takmarkaðrar ábyrgðar


Útsala á Íslandi í hendur takmarkaðrar ábyrgðar

Ýmsar kenningar svífa nú um háloftin, langt fyrir ofan loftslög hins almenna kjósenda, um hvernig úrsagnar-niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu Breta úr Evrópusambandinu á að enda með því sem kom ekki út úr henni. Sú einfalda niðurstaða fyrirskipaði útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu

Flest fyrirtæki hafa ekki kosningarétt því það var lýðræðislegt stjórnarfar sem með lögum bjó til fyrirtæki með takmarkaða ábyrgð, og skapaði þar með kapítalismann. Þess vegna hafa fyrirtæki með takmarkaða ábyrgð engan kosningarétt. En samt ráða þau miklu um það hvernig málið á að komast til framkvæmda. Of miklu

Það er alger óþarfi að hlusta of mikið á það sem fyrirtæki með takmarkaða ábyrgð segja. Ábyrgð þeirra er takmörkuð, og þau þar með ábyrgðarlaus í þessu máli. En samt er það svo að öll lönd sem bara svo mikið sem snerta það mál sem heitir Evrópusambandið, eitrast og mygla að innan. Öll lönd sem koma nálægt þessu fyrirbæri verða pólitískir vígvellir hinna ábyrgðarlausu, því það sem ræður för eru fyrirtæki með takmarkaða ábyrgð

Hvernig væri að þeim sé nú hótað af þeim sem bera ábyrgð á ábyrgðarleysi þeirra. Verið er að selja hluta af Íslandi til hinna ábyrgðarlausu. Hluti af fullveldi Íslands hefur verið færður í vasa þeirra sem takmarkaða ábyrgð bera og jafnvel enga, og sem ekkert umboð frá neinum kjósendum hafa heldur. Sú stund nálgast að allir stjórnmálaflokkar verða gjaldþrota á vegum þeirra sem takmarkaða ábyrgð bera

Hver hefur gefið flokkunum leyfi til að veðsetja sig svona. Ekki kjósendur, svo mikið er víst. Þeir fara því úr flokkunum: flokks-útgangan heitir það

Fyrri færsla

Bandaríkin: bæði þak, gluggar og garður Evrópu - sólin líka


mbl.is 4.700 hektara jörð seld með hóteli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkin: bæði þak, gluggar og garður Evrópu - sólin líka

G7 Kanada 2018: Wall Street Journal 8. júlí 2018

Mynd Wall Street Journal 8. júlí 2018: Billjón dalir segirðu?

****

NATO og Þýskaland

"Angela, þú skuldar mér eina billjón dala", var það fyrsta sem Donald Trump sagði við Angelu Merkel kanslara Þýskalands, er hún sótti hann heim í Hvíta húsið í kjölfar kosningasigurs hans. Þetta kemur fram í grein Wall Street Journal í gær. Já í kjölfar kosningasigurs sem andstæðingar forsetans eru að tapa vitinu vegna. Þrumulosts sigurs sem nú er að senda þá á bak við lás og slá, því það sem þeir aðhöfðust í krafti sigurvissu sinnar var svo gróft að sigur Trumps virkaði eins og sprengjulost á því augnabliki sem hann varð óhagganleg staðreynd. Þá gerðu andstæðingarnir sér ljóst að þeir myndu líklega fara í steininn og sumir þeirra örugglega

Angela Merkel hefur vissulega ekki búið í Þýskalandi allt sitt líf. En lífið sem hún komandi úr austri fékk þegar múrinn féll, var fjármagnað og gert mögulegt af Bandaríkjunum. Þau voru þakið á Þýskalandi og gluggar þess áratugum saman. Og Bandaríkin voru garður Evrópu, þangað sem hún gat flutt sólstóla sína út í. Sólin var líka fjármögnuð af Bandaríkjunum og hún skein á Evrópu, því Bandaríkin vernduðu hana með því að vera sólfaktor hennar númer allt. Bandaríkin vernduðu iðnaðarfyrirtæki Þýskalands gegn erlendri samkeppni til að forða landinu frá því að verða gjaldþrota. Þetta bitnaði hart á Bretlandi, sem neyddist því síðar til að skríða inn í ESB. En nú er sólin búin, þak Evrópu er að fjúka af og glerið í gluggunum sprungið

Mamma hvað á ég að gera, segir Þýskaland. Gerðu sjálfur segir mamma. Það eina sem þú þarft að gera er að vera eðlilegt land. Ekki neitt annað. Heldurðu að þú getir það? Nei mamma, það get ég ekki því ég er auli. Þú gerðir mig að aula, segir Þýskaland. Þess þurfti nú ekki segja Bandaríkin, því allar götur frá fæðingu 1871, hefur þú hagað þér eins og sannur auli. Geturðu ekki reynt að vera bara eðlilegt land meðal annarra landa. Þú ert ekki neitt sérstakt. Það eina sem við förum fram á er að þú hagir þér eðlilega meðal annarra þjóða. Nei mamma, það get ég ekki. Ég kýs því að fara í nýtt kast. Það geri ég frekar en að vera eðlilegt land. Þetta er það eina sem við kunnum. Að fara í kast

Sem sagt. Af því að Þýskaland gat ekki hegðað sér sem venjulegt land -það eina sem um var beiðið- þá er mismunurinn á þeim tveimur prósentum sem Þýskaland skrifaði undir í NATO, og þess sem það hefur innt af hendi hin síðustu 14 ár, já, orðinn billjón dalir

Vertu eðlilegt land Þýskaland. Ekki fara í það eina sem þú kannt: nýtt kast. En það get ég ekki segir Þýskaland, því ég er auli og ófær um að hvíla í sjálfu mér, því stofnun mín, fæðingin 1871, var misheppnuð og ég fæddist því sem gallakast

Hvað með að byrja til dæmis á því að mála þakið sem við gáfum þér og þrífa gluggana sem við settum í húsið þitt. Geturðu það ekki? Nei ég get það ekki. Enginn í þessu landi kann að halda uppi þaki og því síður gluggunum föstum við húsið. Við erum að hugsa um að leita annað, til dæmis austur

Jæja þá tökum við burt þá vernd sem við höfum skaffað ykkur gegn slæmum öflum í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. Þau munu þá flæða upp Evrópu og setjast á þakið þitt og anda á glugga þína. Viltu það? Við Bandaríkin erum búin að heyja þá baráttu einsömul í samfellt 16 ár. Ég minnist ekki enn á hættuna fyrir austan ykkur. En það erum við sem höldum henni í skák. Látið okkur vita hvort verður: nýtt kast, eða bara smá vottur af manndómi. Hvað segirðu, eruð þið orðin geld? Ja hérna

Fyrri færsla

Kína reynir að þjappa fólkinu að baki einræðisherrans - og Merkel lýgur áfram


Kína reynir að þjappa fólkinu að baki einræðisherrans - og Merkel lýgur áfram

Hinn sænskættaði Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur um útboraða háskóla Vesturlanda - Kína-Norður-Kóreu bandalagið - Mið-Austurlönd og útópíuveldi vinstrisins

****

Kína

Í nýju plaggi sem þeir er fylgjast með ritskoðunarmálum í Kína komust yfir, kemur í ljós að einræðisherravaldið í Kína er í vaxandi örvæntingu að reyna að þjappa íbúum landsins að baki einræðisherra Xi Jinping. Kínverskum fjölmiðlum er nú bannað að birta neitt sem útskýrir afstöðu Bandaríkjanna varðandi það viðskiptastríð sem er í uppsiglingu. Bannað er að birta bandarísk gögn og tölur. Bannað er að minnast á sjónarmið Bandaríkjamanna. Bannað er að minnast lengur á "Framleitt í Kína 2025"- stefnu kínverskra stjórnvalda, sem byggja átti á stolinni tækni og tækni-tilþvingunum á bandarísk og evrópsk fyrirtæki. Vara einræðisherravöldin við afleiðingunum, brjóti fjölmiðlar þessar fyrirskipanir. Komandi viðskiptastríði er af einræðisherradæminu stillt upp sem aðför alls heimsins að Kína. Við erum ofsótt og allir aðrir eru vondir, við okkur. Kannski að þessi uppskrift sé sótt til rakettumannsins í Pyongyang, en þangað fer Xi-einræðisherrabatterí Kína í opinbera heimsókn í september. Heilastöppukássan í sjálfsfróunar-háskólum Vesturlanda, með Marxískt-þrungið Parísarloftslag í heilastað, verður hér léttilega auðveld bráð og endurnýtanlegur her nytsamra fábjána fyrir áróðursbatterí kínverska einræðisherraveldisins. Heilastöppukássan sú mun ekki bregðast einræðisherraveldinu

NATO

Angela Merkel hefur brugðist með lygum við bréfi Bandaríkjaforseta til þýsku ríkisstjórnarinnar, þar sem þýsk stjórnvöld eru hvött til að standa við sáttmálaskuldbindingar sínar í NATO. Sem svar við bréfinu lét Merkel senda bréf til Washington sem sagði að "í ljósi NATO-samkomulagsins, mun annað ákveðið skref þegar hafa verið tekið í átt að markmiðasvæði NATO". Þetta er lygi þar sem 2 prósent er ekki "markmiðasvæði" heldur tala, og fjárframlög Þýskalands eru fallandi og verða fallandi, en ekki hækkandi, eins og sósíaldemókratar hafa mótað stefnuna í sjálfri ríkisstjórn Angelu Merkels, og sem hún sjálf blessaði í fjárlögum í maí, þar sem hún laug þessu sama að bandaríska forsetanum. Fölsuð aðild Þýskalands að NATO er orðin að tilvistarvanda fyrir varnarbandalagið sjálft, Austur-Evrópu og þar með Þýskalands líka. Það sama gildir um NATO og ESB, þar sem Þýskaland lætur aðra um að borga en er sjálft svarhol fyrir framlög annarra

Fyrri færsla

Þýski bardaginn heldur áfram: Seehofer aðvarar Merkel og ESB


Þýski bardaginn heldur áfram: Seehofer aðvarar Merkel og ESB

Þýskaland, Bretland og NATO

Allt sem Horst Seehofer og Angela Merkel ákváðu í vikunni hefur nú verið útvatnað svo mikið í þýsku ríkisstjórninni að um burtflogna fiskiflugu er nú að ræða. AfD nuddar saman lófunum af eftirvæntingu. Þeirra tími nálgast, því tími hinna virðist liðinn

Og ekki nóg með það, þá hefur Horst Seehofer nú ritað bréf til framkvæmdastjórnar ESB þar sem hann segir að það sé frumskylda þeirra sem fara með völd, að vernda líf og limi borgaranna. Ef að Bretland fer úr ESB án samkomulags (hart Brexit) þá þýðir það að þjóðarleiðtogi Þýskalands, Angela Merkel, hefur brugðist borgurum landsins. Þannig brottför Bretlands ógnar öryggi þýskra borgara og grefur undan þjóðaröryggi Þýskalands. Hvorki meira né minna

Seehofer virðist vera eini maðurinn í Þýskalandi sem hugsar. Allir hinir halda að það gangi bara gott og blessað vel, þegar stærsti markaður fyrir þýska bíla vinkar þeim bless frá Bretlandi

Seehofer segist ekki spila níu manna morris, heldur skák. Merekl er því að verða mát. Stríðið í Þýskalandi heldur áfram og Donald J. Trump bíður svo Merkels á NATO fundi í Brussel eftir fimm daga. Í Bretlandi ræðir mesta herveldi Evrópu, og stærsti lifandi markaður þess, Brexit. Sá fundur hefst á Chequers sveitasetri breska forsætisráðherrans í dag

Kína

Kínversk yfirvöld í að minnsta kosti einni stórri borg landsins eru hætt að geta greitt opinberum starfsmönnum laun. Og berja þurfti niður mótmæli fyrrverandi hermanna kínverska hersins sem urðu er öryggisverðir réðust að þeim, fyrir það eitt að biðja um betri lífeyrir. Einræðisherra landsins, Xi, varð um daginn grípa til þess neyðarúrræðis að kalla alla þá sem koma nálægt utanríkismálum á teppið sitt, þar sem barið var inn í höfuð þeirra, einu sinni enn, að þeir yrðu að fylgja línu kommúnistaflokksins, þ.e. hans sjálfs. Aðeins sá sem á í vandræðum með að halda völdum, þarf að gera slíkt

Þegar Kína fellur saman eins og Sovétríkin og Japan, þá giska ég á að það komi undan komma-jöklinum sem verandi aðeins 1/3 af því sem það mælist erlendis og segist sjálft vera núna. Þá mun koma í ljós að stærð kínverska hagkerfisins er á pari við Japan, eða 1/6 af stærð bandaríska hagkerfisins. Sovét átti að vera 16 prósent af heimsframleiðslunni, en kom undan komma-jöklinum sem 6 prósent stærð árið 1989. Japan átti að vera 17 prósent stærð árið 1989, en kom sem 6 prósent stærð út úr hruni þess 1993. Það er aðeins sex prósent af heimshagkerfinu í dag. Styttist nú óðum í að væntingaverksmiðja kínverska kommúnistaflokksins komi þjótandi sem búmerang í höfuð flokksins, er almenningur gerir sér æ ljósara hve lítið bjó að baki því sem flokkurinn hefur haldið að honum, um staðreyndir lífsins í Kína

Ísland

Coca Cola á Íslandi virðist samkvæmt frétt í Morgunblaðinu í dag vera í svo djúpum starfs- og fjárhagserfiðleikum að það getur ekki lengur notað hreint íslensk vatn til framleiðslu á svaladrykk. Að geta ekki lengur boðið dyggum viðskiptavinum upp á lágmarksvörugæði með sóma, er til marks um fallandi stöðu fyrirtækisins. Það er ekki eins og að Coca Cola á Íslandi sé í verri stöðu en þegar Aage Schiöth var að framleiða íslenska svaladrykki í apótekinu á Siglufirði. Ég hélt satt að segja að svona alþjóðlegur vesalingsdómur, eins og ríkir hjá Coca Cola á Íslandi í dag, væri ekki lengur til. En mér skjátlast greinilega

Bjarni Benediksson formaður Sjálfstæðisflokksins er kannski við það að hefja lokaatrennuna gegn flokknum með því að framkvæma endanlegt pólitískt harakiri á Sjálfstæðisflokknum. En svo gæti farið ef lappirnar bregðast honum aftur, með þeim afleiðingum að vélknúin farartæki verða skattlögð út úr íslenska draumnum, sem þá breytist í enn verri ESB-martröð en orðið er. Enn svartari en þá martröð sem EES-samningurinn er að kalla yfir Ísland. Uggandi Sjálfstæðimenn eru að komast í svo slæmt skap vegna þessa máls, að þeir mega varla mæla. Miðflokkurinn bíður eftir enn einni léttu bráðinni, fljótandi í innfluttu vatni

Danmörk

Danske Bank er nú ásakaður um að vera stærsta peningaþvottastöð veraldar, því hann er sagður hafa hvítþvegið sjö milljarða evra fyrir rússneska aðila, sem meðal annars tengjast forseta Rússlands, Vladímír Pútín. Danska fjármálaeftirlitið er ásakað um vítavert gáleysi og vanrækslu. Sagt er að meðal annars sé um blóðpeninga að ræða, fyrir morð á pólitískum andstæðingi Pútíns. Berlingske hefur meðal annarra grafið atriði um þetta mál upp: Frétt EU-Observer í gær

Fyrri færsla

Ungir hvítir bandarískir karlmenn flytja sig til Donalds Trump


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband