Leita í fréttum mbl.is

Bandaríkin: bæði þak, gluggar og garður Evrópu - sólin líka

G7 Kanada 2018: Wall Street Journal 8. júlí 2018

Mynd Wall Street Journal 8. júlí 2018: Billjón dalir segirðu?

****

NATO og Þýskaland

"Angela, þú skuldar mér eina billjón dala", var það fyrsta sem Donald Trump sagði við Angelu Merkel kanslara Þýskalands, er hún sótti hann heim í Hvíta húsið í kjölfar kosningasigurs hans. Þetta kemur fram í grein Wall Street Journal í gær. Já í kjölfar kosningasigurs sem andstæðingar forsetans eru að tapa vitinu vegna. Þrumulosts sigurs sem nú er að senda þá á bak við lás og slá, því það sem þeir aðhöfðust í krafti sigurvissu sinnar var svo gróft að sigur Trumps virkaði eins og sprengjulost á því augnabliki sem hann varð óhagganleg staðreynd. Þá gerðu andstæðingarnir sér ljóst að þeir myndu líklega fara í steininn og sumir þeirra örugglega

Angela Merkel hefur vissulega ekki búið í Þýskalandi allt sitt líf. En lífið sem hún komandi úr austri fékk þegar múrinn féll, var fjármagnað og gert mögulegt af Bandaríkjunum. Þau voru þakið á Þýskalandi og gluggar þess áratugum saman. Og Bandaríkin voru garður Evrópu, þangað sem hún gat flutt sólstóla sína út í. Sólin var líka fjármögnuð af Bandaríkjunum og hún skein á Evrópu, því Bandaríkin vernduðu hana með því að vera sólfaktor hennar númer allt. Bandaríkin vernduðu iðnaðarfyrirtæki Þýskalands gegn erlendri samkeppni til að forða landinu frá því að verða gjaldþrota. Þetta bitnaði hart á Bretlandi, sem neyddist því síðar til að skríða inn í ESB. En nú er sólin búin, þak Evrópu er að fjúka af og glerið í gluggunum sprungið

Mamma hvað á ég að gera, segir Þýskaland. Gerðu sjálfur segir mamma. Það eina sem þú þarft að gera er að vera eðlilegt land. Ekki neitt annað. Heldurðu að þú getir það? Nei mamma, það get ég ekki því ég er auli. Þú gerðir mig að aula, segir Þýskaland. Þess þurfti nú ekki segja Bandaríkin, því allar götur frá fæðingu 1871, hefur þú hagað þér eins og sannur auli. Geturðu ekki reynt að vera bara eðlilegt land meðal annarra landa. Þú ert ekki neitt sérstakt. Það eina sem við förum fram á er að þú hagir þér eðlilega meðal annarra þjóða. Nei mamma, það get ég ekki. Ég kýs því að fara í nýtt kast. Það geri ég frekar en að vera eðlilegt land. Þetta er það eina sem við kunnum. Að fara í kast

Sem sagt. Af því að Þýskaland gat ekki hegðað sér sem venjulegt land -það eina sem um var beiðið- þá er mismunurinn á þeim tveimur prósentum sem Þýskaland skrifaði undir í NATO, og þess sem það hefur innt af hendi hin síðustu 14 ár, já, orðinn billjón dalir

Vertu eðlilegt land Þýskaland. Ekki fara í það eina sem þú kannt: nýtt kast. En það get ég ekki segir Þýskaland, því ég er auli og ófær um að hvíla í sjálfu mér, því stofnun mín, fæðingin 1871, var misheppnuð og ég fæddist því sem gallakast

Hvað með að byrja til dæmis á því að mála þakið sem við gáfum þér og þrífa gluggana sem við settum í húsið þitt. Geturðu það ekki? Nei ég get það ekki. Enginn í þessu landi kann að halda uppi þaki og því síður gluggunum föstum við húsið. Við erum að hugsa um að leita annað, til dæmis austur

Jæja þá tökum við burt þá vernd sem við höfum skaffað ykkur gegn slæmum öflum í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. Þau munu þá flæða upp Evrópu og setjast á þakið þitt og anda á glugga þína. Viltu það? Við Bandaríkin erum búin að heyja þá baráttu einsömul í samfellt 16 ár. Ég minnist ekki enn á hættuna fyrir austan ykkur. En það erum við sem höldum henni í skák. Látið okkur vita hvort verður: nýtt kast, eða bara smá vottur af manndómi. Hvað segirðu, eruð þið orðin geld? Ja hérna

Fyrri færsla

Kína reynir að þjappa fólkinu að baki einræðisherrans - og Merkel lýgur áfram


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gunnar skemmtileg lesning og í anda Trumps að segja þetta við Angelu Merkel.

Valdimar Samúelsson, 9.7.2018 kl. 12:25

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Valdimar.

Reynt er nú að toga NATO í hinar ýmsu áttir. Slíkt gat ekki gerst þegar hlutverk þess var með lasergeisla skorið út í stál.

Bandaríkin hafa ekki skipt um skoðun á NATO. Fyrir þeim er NATO hernaðarbandalag. Og hernaðarbandalög þurfa öflugan her og ekkert múður með það.

Viðhorfið í Evrópu er annað. Þar er fer hlutverk NATO saman með því að spara útgjöld til varnarmála og láta bandaríska skattgreiðendur um að verja sig. Það er gert vegna þess að Evrópuríkin hafa komist upp með það.

Bandaríkin eru því enn að velta því fyrir sér hvenær Evrópa ætlar að ganga í NATO. Því stærstur hluti hennar er ekki í NATO nema að nafninu til. Og Evrópa mun ekki ganga í NATO fyrr en Bandaríkjamenn loka kassanum sem Evrópa sýgur varnir sínar úr.

Ísland hefur til dæmis enga, bara alls enga, afsökun fyrir því að geta ekki sjálft löggað loftrými okkar með orrustuþotum. Sú afsökun er ekki til, því við erum fossríkt land. Þetta er tandurhreinn aumingjaskapur og hugleysi sem engan veginn er hægt að afsaka. Fyrir eina Hörpu hefði mátt gera mikið og miklu meira en Harpa hefur gert gott fyrir land okkar.

Svo það eina sem þýðir fyrir Bandaríkin er að loka kassanum, leggja niður NATO og hreiðra um sig í Austur-Evrópu með því hreiðri sem er nú í Vestur-Þýskalandi, á röngum stað.

Ég er ekki bjartsýnn á framtíð NATO eftir alla þessa misnotkun Evrópu á því.

Er ansi hræddur um að Trump segi: the buck stops here. Og það er mjög svo skiljanlegt. Við hefðum sjálf ekki liðið neinum að níðast svona á okkur. En við níðumst á Bandaríkjunum að þessu leyti. Hroðalega mikið, en samt ekki alveg.

Gunnar Rögnvaldsson, 9.7.2018 kl. 16:29

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

gunnar það er alveg víst að Trump mun standa við það sem hann er búinn að segja og hver veit nema hann stuðli að stofnun North Atlantic Contries sem einhver kom með hugmynd að hér um daginn og ég var búinn að benda á fyrir mörgum árum. þá Noreg, Færeyjar, Bretland og Ísland svo kannski Nýfundnaland og Grænland. Þá eru EJúar búnir. :-)

Valdimar Samúelsson, 9.7.2018 kl. 18:07

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gunnar ef ég má, ert þú fljótamaður.

Valdimar Samúelsson, 9.7.2018 kl. 19:33

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Nei nei, ég er ekki úr Fljótum, Valdimar, en samt nálægt.

Föðurætt mín er úr Efrinúpssókn, Fremri Torfustaðahreppi Miðfirði, faðir minn Rögnvaldur, sonur Rögnvaldar Hjartarsonar Líndal - og móðurætt mín er frá Snæfjallahreppi við Ísafjarðardjúp og þar um kring. En sjálfur er ég fæddur og uppalinn fram til 12 ára aldurs á Siglufirði, því þagnað fluttu afi og amma að vestan. Þannig að ég er Siglfirðingur. En ég var í sveit sem unglingur á Bjarnargili í Fljótum, eftir að hafa fyrst sem krakki verið mörg sumur í sveit á Syðri-Reykjum í Miðfirði, þar sem Gunnar Jónasson fóstri pabba míns var bóndi.

Hvaðan ert þú Valdimar, ef ég má?

Gunnar Rögnvaldsson, 9.7.2018 kl. 20:29

6 Smámynd: Borgþór Jónsson

Það væri betur að þessi andsk. hrófatildur sem menn kalla NATO hryndi til grunna sem fyrst.

Hörmungarnar sem hafa hlotist af þessum óskapnaði undanfarin 30 ár eru slíkar að það þegar þessu afstyrmi verður loksins eytt er ekkert sem lyggur fyrir annað en gálginn fyrir þetta lið sem hefur haldið þessu uppi.

Hernaðarbandalög eru alltaf af hinu illa,sérstaklega bandalög sem eru jafn fast njörfuð saman og NATO.

.

Evrópa skuldar Bandaríkjunum ekki neitt,enda hafa Evrópuríkin virkað aðallega sem ábekingar fyrir stríðsglæpi Bandaríkjanna um allann heim ,auk þess að skaffa Bandaríkjunum aðstöðu fyrir her sem sífellt ógnar Rússum og öðrum ríkjum sem sýna einhverja tilburði til sjálfstæðis.

Ef ekki kæmi til afskifti Bandaríkjamanna ríkti sennilega alger friður og velmegun í Evrópu.

Einu ríkin sem láta ófriðlega í Evrópu núna eru Póllannd og Úkraina,en í báðum þessum ríkjum hafa Bandaríkjamenn verið að kynda undir öfga þjóðernissinnum og í tilfelli Úkrainu hreinræktuðum Nasistum.

.

Einnig koma ókostir svona hernaðarbandlagas í ljós í máli eins og Skripal málinu,þar sem Theresa May lét eitra fyrir tveimur Rússum til að reyna að beina vaxandi reiði almennings að einhverju öðru en henni sjálfri.

Af þessu hlutust svo allskonar vandræði og samskifti Evrópuríkja og Rússa voru í molum í einhvern tíma.

Allir heilvita menn vissu að Theresa var að ljúga,en af því að þjóðirnar voru í þessu bandalagi fannst þeim ekki annað hægt en að sýna samstöðu. Af þessu hlaust svo óþarfa spenna milli ríkja ,sem er alltaf hættulegt.

Ef ekki hefði verið fyrir NATO hefðu flestir stjórnmálamenn sagt Theresu að stinga þessari lygi upp í afturendann á sér, eða sem er sennilegra, að Theresa hefði aldrei lagt út í þennan leiðangur.

Svona getur hálfbrenglaður stjórnmálamaður í smáríki komið illu til leiðar í skjóli samstöðu NATO. 

Borgþór Jónsson, 10.7.2018 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband