Leita í fréttum mbl.is

Ungir hvítir bandarískir karlmenn flytja sig til Donalds Trump

Ulysses S. Grant

Mynd. Repúblikaninn Ulysses S. Grant, hermaður (106 mín.) og 18. forseti Bandaríkjanna. Ég óska ykkur til hamingju með fullveldið og sjálfstæðið, þjóðhátíðardaginn 4. júlí, Bandaríkjamenn

****

Flokkadrættir bandarískra ungra júlí 2018

Bandaríkin

Hinn 72 ára Donald J. Trump hefur nú því sem næst einhent gerbylt Repúblikanaflokknum þannig að hvítir karlmenn á aldrinum 18-34 ára, svo kallaðir "millennials" eða þeir sem komu út úr skólum í kringum árþúsundskiptin, hafa flutt sig frá Demókrataflokki og yfir til Repúblikanaflokks

Árið 2016 var nær helmingur (50%) þessa hóps Demókratar, en aðeins 36 prósent Repúblikanar. Tveimur árum síðar er þetta næstum öfugt: Hvítir karlmenn í þessum aldurshópi eru nú 46 prósent Repúblikanar og aðeins 37 prósent Demókratar. Donald J. Trump er að gerbylta Bandaríkjunum (sjá frétt). Svipuð var niðurstaða könnunar sem birtis WSJ í apríl, en fór ekki hátt

Þýskaland

Ljóst er nú að Angela Merkel mætti múr 160 þingmanna í flokksbandalagi CDU/CSU á mánudag, þar sem henni var stillt upp við vegg og sagt að samþykkti hún ekki tillögur Bæjaralands, þá myndu þeir þvinga fram afsögn hennar. Hún ræður því litlu í Þýskalandi lengur og ríkisstjórn hennar enn minna

Samkomulag Merkels og Seehofers er nú að springa út sem farsi í ESB. Austurríki sagði að ekkert samráð hafi verið haft við sig, en landamæri þess liggja upp að Bæjaralandi. Það hótar nú að loka Brennerskarðinu. Því fagnar Ítalía því þá kemur lýður Merkels ekki að þeim úr norðri. Angela Merkel er að springa út í allri álfunni, sem eitt allsherjar getuleysi og klúður

Virkar

Það er afskaplega ánægjulegt að Donald Trump sé eini stjórnmálamaðurinn sem það borgar sig að horfa á - og hlusta vel og vandlega á það sem hann segir. Fox var með viðtal við hann um helgina. Ég horfði á það á YouTube. Þegar fréttamaðurinn spurði hann hvort að tollar á innflutta bíla væru ekki bara auka-skattur á neytendur, þá sagði hann. "Það verða engir tollar. Þeir verða allir framleiddir hér í Bandaríkjunum". Í gær sagði forstjóri Porsche á þá leið að þetta væri ekkert vandamál (no brainer) fyrir þá. "Það tók okkur tvær sekúndur að ákveða að best er byggja verksmiðju í Bandaríkjunum".

Sem sagt tollar Trumps á bíla eru ekki upp til samningaviðræðna, heldur verða menn að flytja verksmiðjur sínar til Bandaríkjanna. Þá er um enga tolla að ræða. Einfalt mál. Messuhald Trumps yfir ESB-ríkjum í NATO hefst svo í næstu viku. Búist er við miklum átökum og jafnvel aftökum, því til dæmis Þýskaland lýgur þar um sjálft sig fyrirfram, og heldur enn að það komist upp með slíkt

Fyrri færsla

Hýrnar yfir AfD í Þýskalandi. Kína að lokast inni - og Merkel úti


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Góð Grein en Trump kallinn er alveg með þetta á hreinu og sama hvað Merkel segir. 'eg hef reyndar aldrei skilið hvernig hún komst upp á pallborðið hjá Þýskum.

Var það ekki Grant sem Jón Ólafsson vingaðist við og fékk Alaska með það fyrir augum að stofna Íslenska nýlendu fyrir Íslendinga c 1867 en þeir sem biðu sprungu á limminu og fóru eða voru plataðir norður í Winnepeg. Jón var afi Halldórs okkar Jónson.

Valdimar Samúelsson, 4.7.2018 kl. 12:36

3 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Af hverju kemur komman í eignarfalls essinu, s, alltaf sem tölustafir, hjá mér?

Jónas Gunnlaugsson, 4.7.2018 kl. 12:53

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir drengir góðir.

Já Jónas. Það er líklega gamla iso-8859-1 stafasettið í bloggkerfinu sem gerir þetta með að sum tákn birtast ekki eins og skrifarar vija að þau eigi að birtast.  Mér finnst vera kominn tími á Unicode UTF-8 stafasettið fyrir þetta góða kerfi blog.is

Þetta með U.S. Grant og Jón Ólafsson veist þú miklu betur en ég Valdimar.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 4.7.2018 kl. 13:23

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég mæli með þessum góða og stórmerkilega 106 mínútna þætti um U.S. GrantUlysses S. Grant Warrior and President.

Það eru ekki margir forsetar sem þurft hafa að standa á götuhorni og selja eldivið til að eiga í matinn fyrir fjölskylduna. Það er þó reynsla sem ég mæli með.

Sjálfsævisaga hans fæst ókeypis í íslensku iTunes bókhlöðunni hjá Apple.

Gunnar Rögnvaldsson, 4.7.2018 kl. 13:31

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Viss sagnfræðileg öfl höfðu sérstakan áhuga á því að breiða út óhróður um U.S. Grant og að skrifa hann niður sem bæði hermann og forseta. Til dæmis þeim áróðri að hann hefði drukkið stíft. En það er bara ekki rétt, segir einn virtasti sagnfræðingur Norður-Ameríku, Jean Edward Smith, í bók sinni um Grant og arfleið hans. Hér má horfa á það sem Smith hefur að segja um Grant, þ.e. að hann hafði verið einn besti og merkilegasti maður og forseti sem Bandaríkin hafa átt. Hvorki meira né minna.

Gunnar Rögnvaldsson, 4.7.2018 kl. 13:47

7 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Það var eitthvað líkt með Nixon, elítan var ekki sátt með hann.

slóð

Við þurfum að muna að Nixon var rekinn af Big Pharma, af því að hann vildi búa til Norræn sjúkrasamlög, ég gef því það nafn. Nixon var einn besti forseti Bandaríkjanna.

Egilsstaðir, 04.07.2018  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 4.7.2018 kl. 15:24

8 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þakka Gunnar. Ætla að kíkja á þessar slóðir sem þú gefir okkur.

Valdimar Samúelsson, 4.7.2018 kl. 15:26

9 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þetta Grant myndband var fróðlegt og einmitt það sem mér vantaði en var búinn að lesa margar dagbækur Norðanríkjamanna en þar kemur fram að svertingjarnir hjálpuðu flóttamönnum á leið norður. 

Grant hefir verið svipaður og Trump sem lætur hlutina ganga. 

Valdimar Samúelsson, 4.7.2018 kl. 19:37

10 identicon

Jón fékk nú ekki Alaska þótt hann mæltist víst til þess, enda fékk hann ekki stuðning í þessu máli. Og ekki getur það hafa verið 1867, því þá var hann enn skólapiltur í lærða skólanum (MR).

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 4.7.2018 kl. 22:37

11 Smámynd: Hrossabrestur

Er ekki eðlilegt að bílaframleiðsla fyrir Ameríkumarkað flytist til Amreíku? þar er nóg innlent vinnuafl öfugt við td. Þýskaland sem þarf að reiða sig á innflutt vinnunafl, hvað síðan gerist í Evrópu þegar þeir hætta að geta selt til Ameríku og atvinnuleysið fer að fara upp úr öllu valdi þar?

Hrossabrestur, 4.7.2018 kl. 23:28

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur Ingibjörg og Hrossó.

Gott að krækjan gagnaðist þér Valdimar. Þetta var einmitt það sem sonur minn sagði þegar hann fékk leynilögreglu-sett með handjárnum og öllu í jólagjöf þegar hann var fjögurra ára: "Einmitt það sem mig vantaði" sagði hann og ljómaði. Mér finnst þessi þáttur um Grant svakalega áhugaverður og góður. Einmitt það sem mig vantaði, að minnsta kosti.

Jú Hrossabrestur, rétt hjá þér, það er í hæsta máta eðlilegt að þeir bílar sem neytt er í Bandaríkjunum séu framleiddir í Bandaríkjunum. Og jú hárrétt hjá þér; Þýskaland er útflutningsháðasta ríki heimsins og orðið svo skakkt og afbakað í flesta staði að það flytur út helming landsframleiðslu sinnar. Slíkt er hroðaleg afbökun hjá einu meiriháttar hagkerfi heimsins. Bandaríkin flytja út um 12 prósent af landsframleiðslu sinni, en geta lifað góðu lífi án útflutnings, ef út í það er farið. Svo þessu stríði geta Bandaríkin ekki tapað því þau hafa hreinlega engu að tapa, en allt að vinna.

Export-wunder Þýskalands er að lenda á veggjum út um allt. Óveðursskýin hrannast upp yfir þýska hagkerfinu. Vonandi fara þeir ekki út í það að kreista alveg síðustu dropana út úr hinum ESB-ríkjunum, og evruríkjunum, sem eru í handjárnuðu gengisfyrirkomulagi við það, því þau þola ekki meira Þýskaland, sem virkar eins og svarthol sem sogar allt til sín. Það er ekki hægt að byggja upp efnahagslega tilveru í kringum svarthol. Gengisfölsun Þýskalands með evru er að hefna sín.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 5.7.2018 kl. 00:47

13 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þakka Gunnar. Ingibjörg auðvita hefir þú rétt fyrir þér en febrúar 1875 skrifar hann formála í ritinu ...Stofnun Íslenzkrar Nýlendu...og þakkar ýmsum og þar á meðal Forseta bandaríkjanna sem er líka yfirmaður sjóhersins. Ekkert nafn Það var farið með hann og tvo aðra norður til Alaska á Kodiak eyju. Hann fór til baka en þá hafði fólkið gefist upp að bíða. Ég held að það hafi verið Grant frekar en Adams. fletti því upp í dag.

Valdimar Samúelsson, 5.7.2018 kl. 09:20

14 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Mikið var ég ánægður en U Grant var Forseti Bandaríkjanna og þá var hann vinur Jóns Ólafs Alaskafara. .Sjá: President of the United States (1869–77) Grant led the Republicans in their efforts to remove the vestiges of Confederate nationalism and slavery during Reconstruction. 

https://en.wikipedia.org/wiki/Ulysses_S._Grant

Akkúrat 100 árum síðar eða apríl 1969 til ágúst 1977 bjó ég í Alaska en fékk bakteríuna 10 ára gamall þegar Afi minn gaf mér Alaska bæklinginn frá Jóni Ólafsson en Jón var kennari hans.US government printing office gaf þennan bækling út 1875 svo það hefir verið hraði á þessum ákvörðunum hjá Grant og Jóni. Passar það ekki við sögu Grants. Snöggur að taka ákvarðanir.  

Tilviljun eða fyrirfram ákveðið lífs prógram hjá mér ?. :-)  

Valdimar Samúelsson, 5.7.2018 kl. 11:07

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Valdimar.

Skoðaðu þetta skjáskot

og

Hér má lesa textann (að minnsta kosti að hluta til): The Papers of Ulysses S. Grant: 1874 - blaðsíða 175-176 (Endorsement)

Alasca-málið (með C)

Gunnar Rögnvaldsson, 5.7.2018 kl. 14:10

16 Smámynd: Valdimar Samúelsson

 Þakka Gunnar og aftur komu upplýsingar sem mig vantaði og það með hraði. Ég var nefnilega að lesa rit Jóna um nýlendu í Alaska en þar einmitt segjast þeir vera að bíða eftir svari frá Grant en þingið gat ekki afgreitt en hefir gert síðar eins og kemur fram í upplýsingum frá þér. Þakka aftur.

Valdimar Samúelsson, 5.7.2018 kl. 15:53

17 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hah! Mér finnst það nú ansi merkilegt að Jón skuli hafa verið afi Halldórs okkars Jónssonar! Takk fyrir þetta Valdimar. Mér sást þarna yfir hjá þér. Þetta útskýrir kannski hið ramma afl Halldórs.

Gunnar Rögnvaldsson, 6.7.2018 kl. 19:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband