Leita í fréttum mbl.is

Óvissuferð endar: Nýja Sjáland pantar fjórar bandarískar kafbátaleitarvélar

Nýja Sjáland

Nýja Sjáland er að vakna upp við vondan kínverskan draum. Síðasti vondi draumur þess voru kommafriðarhreyfingar Vesturlanda sem KGB hannaði. Friðurinn sá hreyfðist í lokuðu kommaglasi og varð til þess að Nýja Sjáland bannaði bandarískum herskipum að koma í höfn nema að skipherrar þeirra staðfestu að þau væru kjarnorkuvopnalaus, og helst varnarlaus. Sú saga öll er nú skyndilega búin og bandarísk herskip fá að koma í nýsjálenska höfn án þess að staðfesta af né á um slík vopn, sem þau eðli málsins samkvæmt hvergi gera

En það er meira. Nýja Sjáland hefur ákveðið að festa kaup á fjórum nýjum Boeing P-8 Poseidon kafbátaleitarvélum. Flugher landsins mun sjá um leitina og reksturinn, eins og hann hefur séð um rekstur sex P-3 Orionvéla. Þetta eru nokkuð stórar fréttir frá þessu litla landi, sem telur tæplega fimm milljón manns. Kosta nýju vélarnar 1,5 milljarð Bandaríkjadala eða sem svarar til 160 milljarða króna. Nýsjálenski flugherinn var stofnaður 1913 og hefur fimm flugstöðvar í landinu

Óvissuferð Íslendinga hefst (eftir-kosninga-ferðin)

Forsætisráðherra Íslands sagðist vera að fara í óvissuferð í gær. Hún væri nefnilega að fara á NATO-fund. Skelfilegt að þurfa að líða svona sem pólitískt höfuð Íslands. Hreint skelfilegt. Fyrir bandaríska kjósendur hefur Donald J. Trump ekki verið nein óvissuferð. Hann gerir allt sem hann lofaði þeim og tístir hvernig það gengur og hvað hann ætlar að gera og segja næst og hvenær. Í gær kallaði hann bandaríska lyfjaframleiðendur á teppið, og þeim fundi í Hvíta húsinu lauk með því að fyrirhugaðar verðhækkanir á lyfjum koma ekki til framkvæmda í bráð. Mikið hefði ég viljað vera flugan á veggnum þar

WSJ: Pfizer to Roll Back Price Increases After Trump Criticism

Á meðan segja íslensk stjórnvöld kjósendum sínum að þau séu algerlega getulaus, þvert á það sem sagt var fyrir kosningar, og geti því hvorki varið landið fyrir ásókn útlendinga né neinna annarra. Skelfur nú Katrín mikla á NATO-fundi í Brussel því kommar hafa í hálft hundrað ár sagt að Bandaríkin skipti ekki lengur máli. Og Bjarni steinsofandi Benediktsson virðist ætla að leggjast héradauður og bake-off (afbakaður) í jötuna í Brussel, þvert á það sem hann sagði á Hvanneyri, fyrir kosningar. Íslendingar skulu píndir samkvæmt öllum umboðslausum reglum ESB. Má kannski bjóða þér í sanna óvissuferð í næstu kosningum, Bjarni?

Fyrri færsla

Útsala á Íslandi í hendur takmarkaðrar ábyrgðar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Saell Gunnar.

Vid erum thvi midur buin ad vera i ovissuferd

fra hruni og enn eykst ovissan.

Thetta er mitt iskalda mat og vafnignalaust

tho eg se ekki Icehot.

Sigurður Kristján Hjaltested, 11.7.2018 kl. 06:40

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Það er styttra í næsta hrun, en margan grunar. Allt í boði BB, SJF, Kötu kátu og annars fylgifés. Gott ef framsókn hangir ekki inni eins og gleðikona, sem sífellt er til í að lækka prísinn, ef einhver fæst til atlota. ód´rasta mella á horninu.  

Halldór Egill Guðnason, 11.7.2018 kl. 07:20

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur.

Vissuferð Donalds J. Trump til aðalstöðva NATOs í Brussel er farin að kvisast út. En hvernig stendur á því að hann er næstum einn um að fara í vissuferðir um heiminn, á meðan allir hinir hætta löndum sínum og kjósendum út í óvissuferðalög. Angela Merkel þorði ekki að mæta fyrr en eftir gos. En þar sem um óvissuferð er að ræða hjá henni, þá getur allt ennþá gerst.

Og svo er það 30 milljóna sauðfjárbústofn Nýja Sjálands sem fær mig til að segja að heyrst hefur að Framsóknarflokkurinn sé ásamt Sjálfstæðisflokknum og Vinstri grænum og öllum hinum orðinn kaffishúsaflokkur.

Það eina sem haldið hefur Íslandi edrú frá landnámi, eru bændur, því þeir einir vita að engin ríkisstjórn getur stjórnað veðrinu. Nema náttúrlega þessi sem nú situr í kökuboði Vinstri grænna, þykist geta. Slík er firran orðin uppi höfðum sérfræðinganna sem flokkarnir lifa á vitna í.

--------- Heyrst hefur ---------

Heyrst hefur... að Nýja-Sjáland, land sem íslenskir stjórnmálamenn bera innlenda framleiðslu oft saman við, styrki landbúnað með óbeinum ríkisfjárlögum svo sem til rannsóknarstarfa.

Heyrst hefur... að Nýja-Sjáland sé með strangar innflutningshömlur á ferska matvöru.

Heyrst hefur því tengt... að minnsta brot þar að lútandi á Nýja-Sjálandi varði háum fjársektum.

Heyrst hefur... að Nýja-Sjáland sé með afkastameiri löndum í útflutningi á landbúnaðarafurðum þrátt fyrir þessar innflutningshömlur.

Í lokin skal þess getið að ekkert ofantalið er sögusagnir, heldur eru þetta staðreyndir.

---------

- segir í grein Sigríðar Ólafsdóttur í Morgunblaðinu 26. apríl 2018 - sem skoða má hér skjáskot af

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 11.7.2018 kl. 13:47

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gunnar. Góð grein. Heyrst hefir líka að bandaríkjamenn ætli að auga orustu flugvéla flotan í Alaska og stækka Eielsson base sem er rétt hjá Fairbanks. Góð grein hjá Sigríði Ólafsdóttur og einmitt málið.

Ég er farin að sjá betur og betur hve Elítan stendur saman að eyðileggja land og þjóð. Það er alveg opið landið fyrir öllum sem vilja s.s. Filipseyjingar hrannast í marga ættliði til Íslands og píramídalögmálið er virkilega í gangi svo hvert eiga Íslendingar að fara. Grænland eða Alaska. Það væri gaman að finna leifið sem US Grant gaf út fyrir íslenskri nýlendu í Alaska.   

Valdimar Samúelsson, 12.7.2018 kl. 09:37

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Já og heyrst hefir að Trump láti byggja jarðgas leiðslu frá Baufort haf olíusvæðunum suður til Valdez þar sem Alaska pipeline endar. Þar er enn ógrynni að olíu.

Þessar fréttir eru frá frænda sem býr þar en hann segir að allt byrjar á rumor en undirbúningsvinnan er byrjuð og þá er ekki nema leggja saman 2 og 2. 

Valdimar Samúelsson, 12.7.2018 kl. 09:45

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Skrifin hjá ykkur blessuðu Íslandsvinir (má kalla þjóðernissinna?)
Það er kominn tími til að herða á mótmælum,það þarf að efla upplýsingar og gera út(eða styrkja ljósvakamiðil og færa fólki réttar upplýsingar)-

Helga Kristjánsdóttir, 13.7.2018 kl. 05:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband