Leita í fréttum mbl.is

"Einangrunin" loksins rofin á orkupakkafundi [u]

***

ÓHEILLINDI

Hið rétta nafn er einkavæðingarpakkar ESB (d. liberalisering/privatisering). Orkupakkar er rangnefni. Enginn í Brussel ætlar að framleiða neina orku. Þetta eru einkavæðingarpakkar, aðeins: Sjá athugasemdir. Hugtakið orkupakki er hvergi notað í Danmörku yfir þetta mál

****

LOKSINS

Jæja. Sjá viðtengda frétt Morgunblaðsins neðst. Loksins kom að því að "einangrunin" var rifin af alþjóðakaplinum, sem samkvæmt ritstjóra Fréttablaðsins umlykur sem einangrunarhyggja okkur þá Sjálfstæðismenn sem segjum nei við orkupakka3. Og sjá: öll meint einangrun okkar var því skyndilega rofin. Hún bara hætti, þökk sé einum fundi í gær. Mundar ritstjórinn penna sinn sérstaklega á þá Sjálfstæðismenn á borð við Styrmir Gunnarsson, sem voru stofnaðilar að NATO, sem gengur út á að einangra okkur frá óvinum. Já þarna kom Lord Voldemort-orðið fyrir aftur: EINANGRUN!

Með NATO var einangrun lögð umhverfis (nei nei, ekki þannig umhverfis) okkur, og sem einangrar okkur frá óvininum. Rússlandi var þannig haldið úti úr Evrópu, en Bandaríkjamönnum inni og Þjóðverjum á jörðu niðri. Þetta er sjálfur stofntilgangur NATO. Hann er ekki flóknari en þetta

En er þetta þá ekki hin skelfilega og prinsippfasta einangrunarstefna sem ritstjórinn lýðskrumast umhverfður út í í skrifum sínum? Jú jú. Þetta er hún. En það var að sjálfsögðu allt allt öðruvísi mál með Alþjóða kommúnismann. Hann var nefnilega svo góður að hann einangraði allar þjóðir jaðrar frá ríkidæmi þeirra. Einangraði alla frá auði til fátæktar og var því ekki manndrápsorð, heldur gæluorð góða fólksins

KALT STRÍÐ

Hér heima hefur einangrun húsa einnig verið framkvæmd, gagnvart kulda. Kuldinn er læstur úti og því ekki hleypt inn. Þannig er okkar eilífa kalda stríð hér í landi. Okkar eigið kalda stríð sem við alveg ein og sjálf höfum háð og farið með sigur af hólmi í. Það gengur út á að halda í okkur lífinu. Annars staðar gengur einangrunin út á að halda hitanum úti, svo að fólk deyi ekki úr hita inni í híbýlum sínum

Varla vill ritstjóri Fréttablaðursins rífa alla þessa einangrun af eins og gerðist á opnum fundi Sjálfstæðisflokksins í gær. Þar héldu orkupakkamenn að þeir væru í skjóli og einangraðir frá alþjóðlegum skríl, sem hæglega gæti verið alþjóðlegir hryðjuverkamenn, undir vernd fábjána á launum frá skattgreiðendum, án þess að stjórnvöld sem engu stjórna viti neitt sérstakt af eða á um það. Íslenskum skattgreiðendum er gert að halda þessu gerpitrýniliði uppi svo að stjórnmálamenn okkar þurfi nú ekki að selja aflátsbréfin sín. En það eru þau bréf sem ganga kaupum og sölum á hinu alþjóðlega pólitíska kauphallargólfi, þar sem formaður Sjálfstæðisflokksins er kominn í viss vandræði vegna spilafíknar

FUNDURINN MIKLI

En á þennan svo kallaða "orkupakkafund" komu Þórdís Kolbrún iðnaðarráðherra og Guðlaugur Þór utanríkisráðherra, íklædd sjálfsmorðssprengjubeltum alþjóðlegrar hryðjuverkahreyfingar glóbalista og ætluðu að sýna fundargestum hvernig sprengja mætti einangrunina utan af raforkukerfi Íslands, þannig að útleiðsla gæti hafist. Orkupakkar 1+2 gengu nefnilega útá innanríkismál, en ekki milliríkjamál eins og orkupakki-3 gerir. En það er vegna orkupakka 1+2 að raforkuverð hefur ekki enn lækkað í kjölfar stærstu fjárfestinga Íslandssögunnar, eins og það átti að gera, því stærstu útgjöld Landsvirkjunar eru vaxtagreiðslur, vegna fjárfestinga í raforku okkur til handa, og sem er bein afleiða stórrekstrar og risavaxinna fjárfestinga í orkufrekri vinnslu hráefna, til verðmæts útflutnings frá Íslandi. Milljón tonn á ári, takk! Orkuverð átti að lækka í kjölfar þessara framkvæmda, en gerði það auðvitað ekki, heldur hækkaði það vegna orkupakka 1+2. Það kostar nefnilega að búa til bákn sem eyðileggur í stað þess að gera gagn og varðveita einfaldleikann og möguleika til hagræðingar í okkar þágu, en ekki í þágu annarra. Það er það sem orkupakkar 1+2 gengu útá: þeir eru í þágu annarra. Ekki okkar. Við höfum ekkert með þá að gera. Þeir eru Brusselskór til að pissa í

FALL-HLÍF

Einhverra hluta vegna hefur formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, haldið sig í mikilli fjarlægð frá þessum tveimur burðardýrum orkupakka-3. Hann veit nefnilega hvað er í þessum orkupökkum Evrópusambandsins, og sagði meira að segja óvart? frá því á sjálfu Alþingi okkar Íslendinga, sem er æðsta stofnun íslenska lýðveldisins. Sjáið hann segja það hér. Sumir segja að sú stofnun, Alþingi, sé jafnvel æðri alþjóðlegum skríl og DDRÚV, sem er burðardýr Richards Attenborough, alveg eins og páfar höfðu líka sín burðardýr á öldum áður, og voru bornir um hinn þá þekkta heim í hásætum sínum, hvert sem þeim til hugar kom að veifa annarri hendinni. Þannig er veldi lofthitasinna orðið. Það er orðið nýtt páfaveldi. Og allir hneigja sig þegar nýPáfinn lætur svo lítið að lenda flugvélum sínum til að tala til lýðsins ofan af fjallinu. Al Gore var bara amatör. Hann var ekkert miðað við BBC

Efast ég þó um að Alþingi sé æðst miðað við þyngdina á sjálfsmorðssprengjubeltum Þórdísar og Guðlaugs. Þau belti virðast öllum málum æðri og breyttust því auðvitað í heilt svitabelti þarna á fundinum. En þegar xD-flokkurinn okkar springur í loft upp þeirra og formannsins vegna, þá ætlar formaðurinn þó að hafa sína fallhlíf á þurrum stað, einangraða frá áhrifamætti pakkans

HANN HEFST

En sjá. Já sjá: Á hinn opna og óeinangraða fund komu líka afurðir hinnar "alþjóðlegu samvinnu" um mannlegt óeðli. Þarna voru sem sé komnir landflótta Íslendingar sem misst höfðu aleiguna í síðasta hruni til að biðja um orðið. Hmm, var það ekki. Nei það var víst ekki þannig, því þeir haga sér ekki svona í þeim löndum sem þeir flúðu til

Nei, það voru sannarlega ekki þeir, því hér var nefnilega kominn sjálfur Glóböllur Alþjóðason, hvorki meira né minna, og friðlýstur alþýðlegur "fjárfestir" og sem var gjaldkeri Samfylkingarinnar í ESB, sem sagaði af sér og er nú hugarburðarsérfræðingur. Hann sér væntanlega stór tækifæri í því þegar að Landsvirkjun og allt raforkukerfi Íslands verður bútað niður í bita og "selt" vegna meira og minna þvingaðrar einkavæðingar frá hallarsölum Brussels, á burðarstóli. Já allt selt þeim sem kalla sig erlenda fjárfesta, sem er sérstök yfirtegund af Glóbelli Alþjóðasyni, þar sem orðið "erlendur" er notað til að undirstrika alvarleika og gæði málsins. Þið þekkið jú bankapakka-1. Erlendur erlendur

"SIT DOWN" SYNDA-RÓM

Á fundinn var sem sagt kominn bæði innlendur og erlendur fjárbrestur. Fundurinn varð því vegna tveggja til þriggja alþjóðlegra skrílsmanna að sjálfsögðu að fara fram á ensku, vegna þess að fundarstjórinn hrökk á sjálfskiptingunni í enska postulínið, sem alþjóðahlandkoppurinn á stofuborðinu er gerður úr. "Sit down, sit down, sit down" slagorðið var því hrópað fundinn út og inn. Er þetta ekki yndislegt? Við erum loksins komin með. Húrra! Litla Ísland okkar er loksins orðið aðili að elítusamfélagi öreiganna. Hinn alþjóðlegi postulínshlandkoppur sem Matthías ritstjóri hataði svo heitt, er kominn upp á sófaborðið og meira að segja í hásætið, því hann er nebbnilega frá útlöndum. Gefum þeim virkjanir þjóðarinnar! Gefum þeim orkuna okkar! Gefum þeim undirstöður Íslands! Gerumst leiguliðar í okkar eigin landi! Það er langsamlega best. Burt með auðvald okkar yfir eigin málum. Burt með auðvald okkar yfir því sem er okkar, en ekki þeirra. Og svo eru það allar hitaveiturnar maður, sem breytt verður í kuldaveitur

SAMA OG SÍÐAST

Hvað betra getur verið til í þessum heimi en að húka sem óeinangraður leiguliði í óeinangruðum kumbalda í köldu landi sem forfeður okkar byggðu upp, en ekki niður. Upp með braggana og niður með einangrunina. Brjótum alla múrana sem múrarar okkar byggðu. Já okkar múrarar. Opnum landamærin. Hleypum Glóbelli inn og burt með þjóðfélagið. Í askana með allt vit. Kæru landsmenn: vinnið vinsamlegast við akkúrat ekki neitt fyrir rafmagnsreikningnum. Sprengið beltin!

Og sjá: Upphlaup á fundi Sjálfstæðisflokksins (sit-down)

Til þeirra Sjálfstæðismanna sem voru á fundinum með Guðlaugi Þór og Þórdísi Kolbrúnu í Valhöll, sem og annars staðar, segi ég eftirfarandi: Þetta eru nákvæmlega eins fundir og Benedikt Jóhannesson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir héldu. Þar sem landsalan á Íslandi var messuð yfir saklausum Sjálfstæðismönnum. Það er ekkert að marka það sem þau tvö sögðu, að minnsta kosti ekki fyrir okkur Sjálfstæðismenn, né neina aðra. Trúið ekki orðum þeirra

GRUNNUR ALLS [uppfært]

Strategísk og hugmyndafræðileg stjórnmálafærslu-forysta Sjálfstæðisflokksins, sé hún til, og sem sést alls ekki að sé til, verður að gera sér grein fyrir því að í 20 stærstu ríkjum Evrópusambandsins hefur stjórnmálaflokkum á þingi fjölgað úr 160 árið 2008, og upp í 173 flokka árið 2012. Og þaðan upp í 186 flokka árið 2017, og fjölgar enn, mjög hratt. Þrúgur reiðinnar vaxa þar svona hratt. Pólitísk áhætta í Evrópu er orðin svo mikil að þar vill helst enginn þurfa að vera, sem kemst af án þess að vera þar. Og við kæmumst vel af án ESS-samnings sé út í það farið, vegna þess að við erum fullvalda og sjálfstætt ríki

Það eru þessi 20 ríki sem ég tel þarna hins vegar ekki. Þau eru ófullvalda og ósjálfstæð svört framtíð fyrir einum of margt fyrir okkar smekk, og Bandaríkjanna líka, sem óttast að þurfa að verja það sem er að verða algjörlega óverjanleg og stjórnlaus stappa ósjálfstæðra ríkja, þar sem reiðin dafnar og stigmagnast. EES-samningurinn átti aldrei að verða þessi gildra sem þið eruð að kynna og reyna að troða ofan í okkur. Hann er orðinn of dýr aðgöngumiði að mjög svo versnandi mörkuðum og farinn að líkjast gildru. Slíkt kæruleysi getum við ekki leyft okkur. Við verðum að halda möguleikum okkar opnum, en ekki lokuðum inni í skáp í Brussel. Út með orkupakka3. Við höfum ekkert með hann að gera. Nákvæmlega ekkert, og það vitið þið vel

BINDISKYLDA HUGANS

En það sem þið hins vegar virðist ekki vita er það að þið í Valhöll eruð að orðin það sem á ensku heitir vested interests. Og þær eru alltaf plágur fyrir allar framfarir. Þær hrópa sit down á frjálsa menn. Evrópusambandið er ekki að hugsa um Ísland, en það eru þið sem eruð með Evrópu á heilanum. Evrópa getur um ekkert hugsað annað en sjálfa sig, því hún er svo illa stödd og í svo mikilli hættu. Þar bíða lönd í næstum heilt ár eftir því að ríkisstjórn í stærsta landi sambandsins bara fæðist. Þetta stjórnleysi mun bara versna og versna og það mun koma að uppgjöri. Og Bretland er bless, fyrir þá, en ekki okkur

AÐVÖRUN

Þið verðið að vita að geopólitískar staðreyndir heimsálfunnar Evrópu og þar með Evrópusambandsins líka, eru bæði í andstöðu og mótsögn við tilvist frjálsra lýðræðisríkja í þeirri álfu. Þetta hefur aðeins marist og rétt svo hafst með aðstoð Bandaríkjanna fram til þessa. Evrópa, en ekki Ísland, stendur á krossgötum. Það erum ekki við, heldur þeir. Við erum allt annað en meginland Evrópu. Allt annað, eins og Matthías sagði líka. Og staðreyndir eru þrjóskar

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

O3: Það er þetta sem Bjarni Ben þarf að gera; taka stjórnina!


mbl.is Upphlaup á fundi Sjálfstæðisflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Góður núna Gunnar flott grein. Ég heyrði ekkert hljóð á þessu myndskeyði sem þú vísaðir í mbl. Þeir hafa kannski sleppt því.

Valdimar Samúelsson, 28.4.2019 kl. 08:57

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega Valdimar.

Þú þarft að smella á hátalarann í neðra hægra horni myndflatarins.

Myndskeiðið er still með hljóðið á núll í upphafsstöðu þess, af tillitssemi við þá sem eru að horfa þá það í návist annarra. Þú þarf með öðrum orðum að skrúfa frá hljóðinu á sjálfu myndskeiðinu. Fara með bendilinn, fingur eða mús, yfir myndflötinn og hækka.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 28.4.2019 kl. 09:06

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þakka Gunnar. Þetta er alveg ótrúleg frekja hjá þessu liði enda vita þeir alveg hvað þeir eru að gera og eru 100% VERNDAÐIR. Verst að fá ekki að heyra meir hvernig fundurinn var en kannski kemur það.

Valdimar Samúelsson, 28.4.2019 kl. 14:21

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hér er smá brotabrot eða bara flís úr toppinum af borgarísjakanum sem þetta mál allt saman er:

Hér er bara smá brot af þeim múr af áhyggjum sem einkavæðingin í kjölfar orkupakka ESB hefur haft í för með sér fyrir Danmörku. Þar vita allir hvernig orkuverðið hefur stigið upp í gróteksar hæðir eftir okurpakka 1+2+3. Þær hækkanir eru svo svæsnar að það er hreint ótrúlegt.

1 =================

En nú eru Danir einnig að vakna upp við þann vonda draum að þar er orkuvinnslan og dreifingin að enda á erlendum höndum: Svo seint sem í desember var þetta mál á dagskrá hjá danska dagblaðinu Information:

I over 100 år har sjællænderne haft kontrol med elforsyningen. Den kan de nu miste

I disse dage skal potentielle købere af elnetselskabet Radius, der har en million kunder på Sjælland, melde sig. Salget har skabt frygt for stigende elpriser, og at vigtig dansk infrastruktur ender på udenlandske hænder

Salget af elnetfirmaet Radius rammer den samme flossede nerve, som salget af Dong ramte for få år siden.

Processen frem mod et salg af Radius har skabt bekymring for, at kritisk infrastruktur kan havne på udenlandske hænder – med stigende elpriser og faldende kvalitet i elforsyningen til følge. Uden at forbrugerne kan gøre noget ved det.

»Man bør interessere sig for, hvem der ejer den infrastruktur, man er afhængig af,« siger Brian Vad Mathiesen, der er professor i energiforsyning ved Aalborg Universitet.

»Det vil være et brud på den tradition, vi har på forsyningsområdet og de naturlige monopoler, hvis man får en dansk eller international ejer ind, der selvfølgelig har en naturlig interesse i en langsigtet investering, men som har en primær interesse i at skaffe afkast hjem. Om det så er til aktionærer eller pensionskassemedlemmer,« siger Brian Vad Mathiesen.

2 =================

Lykilorðið í Danmörku í þessum málum heitir: Einkavæðing raforkumarkaðsins (liberalisering af elmarkedet) - eins og blað danskra verkfræðinga notar hér í grein Ingeniøren frá 2010): Forbrugerne betaler prisen for liberalisering af elmarkedet (Neytendur borga fyrir einkavæðingu raforkumarkaðarins)

3 =================

Danska hugveitan Ny Agenda, sem er ekki lengur starfandi, gaf út skýrslu um orkupakkamál ESB fyrir Danmörku árið 2007. Þar segir:

Meget tyder på, at det tidligere danske system med samfundsplanlægning, forbrugereje og det såkaldte ”hvile i sig selv princip” resulterede i større effektivitet og lavere forbrugerpriser end i markedssystemet. Derfor burde det tidligere danske system aldrig have været afskaffet.Desuden har liberaliseringen givet anledning til en række alvorlige samfundsproblemer,

som burde have været analyseret, inden man vedtog et EU-direktiv på området. Det berører især forsyningssikkerheden og skabelsen af en bæredygtig energiudvikling.

På baggrund af liberaliseringens mange problemer er det rapportens konklusion, at EU’s direktiv fra 1996 er en direkte fejltagelse. Rapporten fremlægger en konkret skitse til et alternativt direktiv til fremme af en bæredygtig energiudvikling.

Rapporten er udarbejdet af professorerne Frede Hvelplund og Niels I. Meyer, som begge har haft energi og miljø som deres forskningsområde siden begyndelsen af 1970’erne. Tænketanken NyAgenda

Hér má sjá þetta á vefsafni Veraldarvefsins og hér má nálgast skýrslu hugveitunnar á PDF-formi: Problematisk liberalisering af elektricitetsmarkedet i EU

4 =================

Það er ekki eitt orð að marka það sem forysta Sjálfstæðisflokkksins og ríkisstjórn segja um þetta mál. Ekki eitt orð.

Gunnar Rögnvaldsson, 29.4.2019 kl. 00:24

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Danmörk

"Elliberalisering er en fiasko"

Berlingske Tidende 20. janúar 2006

De senere års liberalisering af elmarkedet har ikke som forventet ført til lavere elpriser for danske industrivirksomheder.

Stik imod de politiske hensigtserklæringer er elregningen vokset kraftigt. Det viser en opgørelse foretaget af EU statistikbureau, Eurostat.

Eurostats opgørelse viser, at Dansk Industri i dag må betale 25 pct. mere pr. kilowattime, end da elmarkedet blev liberaliseret i 2000. Den stigningstakt er blandt de allerhøjeste inden for de 15 gamle EU-medlemsstater, hvor industrien har oplevet en gennemsnitlig prisstigning på 15 pct.......

Orkupakkar 1+2

Gunnar Rögnvaldsson, 29.4.2019 kl. 01:03

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Danmörk: ESB-orkupakkar 1+2:

Febrúar 2011:

Verð á rafmagni til danskra heimila var árið 1995 ca. 33% hærra en til iðnaðarfyrirtækja (á föstu verðlagi, þ.e. verðbólga hreinsuðu út) og án gjalda og skatta.

En eftir að ESB-orkupakkar 1+2 hafa spilað sig út á markaðnum þá var staðan svona árið 2008/2009: Þá hafði rafmangsverð hækkað mikið en samt miklu meira fyrir dönsk heimili en iðnaðinn, sem þá þurftu að borga 70% prósent hærra verð en iðnaðarfyrirtækin.

Þarna er hlutur danskra heimila í neyslu landsframleiðslunnar færður sem gjöf til fyrirtækja (duldar niðurgreiðslur). Kostnaði er hent í haus heimila þannig að neysla þeirra á landsframleiðslunni minnkar og sparnaðarhlutfall þeirra af ráðstöfunartekjum er þvingað upp. Sá sparnaður er svo færður sem gjöf til fyrirtækja í gegnum bankakerfið, þar sem innistæðuvextir eru jafnvel neikvæðir, sökum viðvarandi evrukreppu og massífu atvinnuleysi á evrusvæðinu. Danska hagkerfið visnar því eftirspurn heimila minnkar, og reiða þarf sig á útflutning eingöngu, sem svo kallar á síendurteknar yfirfærslur á borð við þessa, yfir til fyrirtækja (lönd verða eins og kína Evrópu er: þ.e. Þýskaland, þar sem heimilin hafa ekki lengur efni á að búa í eigin landi og einkaneysla er dauð).

Þessi rannsókn Ea Energianalyse a/s á PDF-sniði er hér:

Gunnar Rögnvaldsson, 29.4.2019 kl. 01:37

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Danmörk: ESB-orkupakkar 1+2+3

Nóvember 2018:

Hitaveitureikningurinn frá orkuverinu í Tårs hækkaði um 63 prósent vegna þess að samkvæmt orkupökkum ESB varð danska ríkið að hætta stuðningi við raforkuframleiðslu orkuversins sem einnig framleiðir hita. Það gat því aðeins sent þann reikning til þeirra heimila sem kaupa af því hitann. 

TV2 Norður

Gunnar Rögnvaldsson, 29.4.2019 kl. 02:08

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Danmörk, orkupakkar 1+2+3

Mars 2018

Júní 2014

ACER þvingar fram kæru til lögreglu á hendur dönskum orkufyrirtækjum.

Energitilsynet (hér og hér)

Gunnar Rögnvaldsson, 29.4.2019 kl. 02:27

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Danmörku, orkupakkar 1+2+3:

Júní 2010

ACER

Hvað er ACER: Í ágúst 2009 var þriðji einkavæðingarpakki ESB (orkupakki 3) meðtekinn. ACER á að sjá um að honum sé framfylgt og hefur eftirlit með því að honum sé framfylgt.

ACER er í höndum Evrópusambandsins í Brussel og ræður ríkjum þar sem Evrópudómstóllinn hefur lögsögu (á Íslandi sem sagt líka, vegna EES).

ACER hefur einnig vald til að þvinga í gegn ákvarðanir sem varða raforkumál á milli landa.

Þá vitið þið það af því að Dönsk yfirvöld segja það.

Energitilsynet

Gunnar Rögnvaldsson, 29.4.2019 kl. 02:47

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

ACER

Alþingi mun ekki geta stöðvað neitt hér. Ekki frekar en með kjöt og ekki frekar en Írland gat komið í veg fyrir að ECB-aukaseðlabanki Þýskalands legði hagkerfi Írlands í rúst þegar evrukreppan skall á. Þá urðu Írland og fleiri smærri lönd evrusvæðis algerlega varnarlaus. Annað hvort hentu þau skuldum einkageirans (bankanna) yfir á herðar skattgreiðenda, eða þá að allt fjármagn í landinu yrði flutt til annarra landa, sem yfirbuðu þau í fjölda skattgreiðenda og valdaáhrifamætti innan kerfisins (voru með ESB í rassvösunum). Allar reglur Maastricht-sáttmálans voru brotnar á innan við viku. 

Ríkisstjórn Íslands hyggst gera Ísland varnarlaust í öllum orkumálum okkar: Rafmagni og hita.

Það eina sem ESB ræður þá ekki yfir er olíumarkaðurinn.

Það eina sem getur stöðvað þetta er að segja alfarið nei við ESB-einkavæðingarpakka-3 (orkupakka 3)

Ríkisstjórn Íslands verður að standa í lappirnar.

Þetta er alger hryllingur. MARTRÖÐ!

Gunnar Rögnvaldsson, 29.4.2019 kl. 03:04

11 Smámynd: Haukur Árnason

Takk Gunnar.

Haukur Árnason, 29.4.2019 kl. 09:47

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér sömuleiðis Haukur.

Hreiður fálkans í Valhöll að tæmast en eftir liggja fúlegg sjálfstæðisbaráttunnar

Elinóra Inga Sigurðardóttir, forstjóri Elás ehf og í atvinnumálefnanefnd Sjálfstæðisflokksins (sjávar­útvegs­­mál, land­búnaðar­­­mál, iðnaðar- og orku­mál, nýsköpun og tækni­­þróun, atvinnu­mál almennt og einnig nýtingu auðlinda á grundvelli rannsókna og ráðgjafar) er skiljanlega reið út í (ó)forystu xD, og sendir þessa umsögn um ESB-einkavæðingarpakka3 (orkupakki3) til Alþingis.

Tek heils hugar undir með henni. Flokksrán er að eiga sér stað. Hvorki meira né minna.

Gunnar Rögnvaldsson, 29.4.2019 kl. 14:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband