Leita í fréttum mbl.is

Aska Sjálfstæðisflokksins fýkur fyrir björg. Sumarhúsasala Björns Bjarnasonar

BJÁNASETTIÐ OG LÍKAMSLEIFAR ÍSLENDINGA

Sú atkvæða-fuglahræða sem forysta Sjálfstæðisflokksins hefur verið fyrir flokkinn hin síðustu tíu ár, fékk nýjan krunk-byr undir atkvæðafælu sína í gær, þegar frelsinu til að eyðileggja var ruglað saman við frelsið til mega vera laus við plágur. Frelsinu til hafa leyfi til að skapa plágur er ruglað sama við frelsi manna frá til dæmis síðasta heimsendi vegna heiðni. Þannig voru orð Franklíns D. Roosevelt er hann ávarpaði bandaríska þjóðþingið 1942:

Frelsi FRÁ ágirnd og frelsi FRÁ ótta: "Our own objectives are clear; the objective of smashing the militarism imposed by war lords upon their enslaved peoples the objective of liberating the subjugated Nations—the objective of establishing and securing freedom of speech, freedom of religion, freedom from want, and freedom from fear everywhere in the world." [..] "They know that victory for us means victory for religion. And they could not tolerate that. The world is too small to provide adequate "living room" for both Hitler and God. In proof of that, the Nazis have now announced their plan for enforcing their new German, pagan religion all over the world--a plan by which the Holy Bible and the Cross of Mercy would be displaced by Mein Kampf and the swastika and the naked sword"

Take that Brussel! Hófu svo Bandaríkin krossferð sína gegn heiðni og höfðu sigur. Franklin D. Roosevelt hafði aldrei lesið Hayek, heldur las hann Biblíuna eins og Lincoln og Patton sem gerði það "hvern einasta helvítis dag", og Bandaríkin frelsuðu því heiminn frá heiðingjum á borð við Brussel, sem endurhannað hefur nú myntbandalags-teikningar Þriðja ríkisins frá 1941, þar sem aðildarlönd svæðisins (R-mark zone) yrðu frá byrjun fyrst og fremst Þýskaland (hér undir innlimuð Austurríki, Bohemia og Moravia) og svo Holland, Belgía (og þar undir Lúxemborg sem hafði verið í myntbandalagi við Belgíu frá 1926), Danmörk, Noregur, Svíþjóð, Slóvakía, Rúmenía, Búlgaría, og Ungverjaland. Hin öxulveldin, Ítalía og Japan, myndu hins vegar stjórna sínum eigin útibúum af stórefnahagssvæðum með Spán, Grikkland og Tyrkland undir Ítalíu. Breska pundið var sem sagt af þessum glóbalistum talið af, eins og í dag

Nýr Bank of Europe (Seðlabanki Evrópu) yrði stofnaður. En af "stjórnmálalegum ástæðum" taldi ríkisstjórn Hitlers að það myndi skaða leifarnar af sjálfstrausti hinna hernumdu ríkja ef að sameiginleg mynt yrði látin útrýma eigin mynt landanna frá byrjun. Það yrði því um vissan aðlögunartíma að ræða. En í staðinn yrðu hin hernumdu lönd að samþykkja óafturkallanlegt fastgengi við German Reichsmark. Heimsókn Henri Ardant aðalbankastjóra Société Générale til herra Hitlers, næstum samstundis eftir hernám hins síðar nefnda á Frakklandi, snérist um að undirstrika áhuga franskra föðurlandssvikara á aðild Frakklands að komandi tollabandalagi og upptöku sameignlegrar myntar

Nasismi (Nationalsozialismus) er sósíalismi þar sem fólkið er þjóðnýtt í þágu pólitísks málstaðar. Það þótti hagkvæmara og gefa betri árangur en að þjóðnýta atvinnutækin eins og gert var í Sovétríkjunum. Bæði nasistar og kommúnistar hötuðu þjóðríkið sem manngæskuberandi stofnun, eins og Brussel gerir líka og sem hefur því þegar þjóðnýtt stjórnmálin í álfunni; þau mega aðeins snúast um og lúta að pólitísku hugmyndinni um Evrópusamruna. Öll önnur stjórnmál eru bönnuð sbr. Brexit

ESB-sinnar eru að bakka ríkjum Evrópu út úr þjóðríkjum sínum og inn í imperíal heimsveldi, eins og Hitler bakkaði Þýskalandi út úr Weimarlýðveldi og aftur inn í heimsveldið. Sherman, afsakið, Pershing hershöfðingi hafði rétt fyrir sér: Bandaríkin, Bretland og Frakkland hefðu átt að fara alla leið til Berlínar 1917, hernema allt Þýskaland, láta það undirrita skilyrðislausa uppgjöf að hætti Grants hershöfðingja og síðar forseta Bandaríkjanna, og standa síðan með byssuhlaupið upp að pólitísku höfði þess næstu 75 árin, og láta það éta Weimarlýðveldi með sleif hvern einasta helvítis Pattons-dag. Því miður var ekki á hann hlustað og það kostaði 70 milljónir manna lífið

Í dag óttast Íslendingar að bakk-forysta Sjálfstæðisflokksins selji fullveldi landsins, taki líkamsleifar þeirra og varpi þeim í suðupotta bjána á alþingi, selji landið okkar til útlendinga og sigi innrásarherjum geimvera á okkur, á meðan þeir hafa læst Vestur-Íslendinga úti með því að vilja loka landið okkar inni í nýju esb-sovétríki í smíðum í Brussel; og sem nýlenduforysta Sjálfstæðisflokksins ólm vill framselja land okkar og náttúruauðlindir undir; með orkupökkum endurfæddra nýlendusinna austan Atlantsála. Austrið skal það vera; Ísland nýlenda á ný, ó hvenær kemur esb þú

SUMARHÚSASALA BJÖRNS BJARNASONAR

Í dag skrifar Björn Bjarnason enn eina esb-pottagaldursgreinina um málefni sem honum virðast kær: landssöluna, sem er forsenda orkupakkaveldis Sjálfstæðisflokksins. Dregin er upp frétt af vef DDRDK, sem er systurstofnun DDRÚV og sem Björn var með til að viðhalda sem ráðherra, en sem hann skylduvælir yfir úr öruggri fjarlægð núna. Þar segir hann frá því að frá árinu 1959 hafi Danmörk veitt "útlendingum" undanþágu til að kaupa á sumarhúsi í Danmörku og þar af 2238 undanþágur veitt frá 2007 til 2018

Allan þennan tíma frá 1959 hefur Danmörk ekki heimilað að danskir ríkisborgarar haldi ríkisborgararétti sínum flytji þeir úr landi og neyðist til að taka upp ríkifang þess lands sem þeir hafa til dæmis gift sig inn í. Tvöfaldur ríkisborgararéttur hefur þannig ekki verið heimill fyrir danska ríkisborgara nær allan hluta þess tímabils sem reglurnar hafa gilt: þ.e. frá 1959 til 2018, eða í 59 ár. Fimm prósentur þeirra undanþága veittar voru frá 2007 til 2018 eru þess utan frá núverandi dönskum ríkisborgurum sem hafa lögheimili erlendis og eru ekki búsettir í Danmörku samkvæmt þjóðskrá, d. udlandsdanskere

Undanþágurnar 2238 samanstanda nær allar af þessu fólki (fyrrum og núverandi Dönum) og Norðmönnum sem eru nýríkir, því Noregur er ekki lengur nýlenda Danmerkur. En hann var það, og þess vegna hafa Norðmenn fjölskyldutengsl

Árið 2007 voru veittar 54 undanþágur en í fyrra voru þær 374. Í Danmörku eru um það bil 230 þúsund sumarhús og fjöldi kaupsamninga árið 2016 var 7778. Árið áður, þ.e. 2015, voru veittar 286 undanþágur, þar af voru flestar til Norðmanna. Árið 2013 sóttu 239 Norðmenn um undanþágu, 154 fengu hana en 85 var hafnað. Frumforsenda undanþága er dönsk fjölskyldutengsl og svo hjálpar fyrri nýlendukúgun Dana á vissum þjóðum, og að umsækjendur tali dönsku, séu danskmenningar-kunnandi, hafi leigt sama sumarhúsið mörgum sinnum, og haldið sumarfrí 25 sinnum í Danmörku á síðustu 25 árum

Forsenda Dana fyrir samþykkt Maastricht-sáttmálans var að reglurnar um kaup útlendinga á sumarhúsum væru sérstaklega skráðar þar inn og að Danmörk hefði allan þann rétt sinn óskertan um aldur og ævi. Hún gildir um allar eignir sem ekki er búið í með fastri búsetu allt árið; heilsársheimili

Til stóð að ný hægri ríkisstjórn Venstre með stuðningi Dansk Folkeparti myndi taka þetta mál til endurskoðunar og setja á (0-20 stk) kvóta yfir hversu margar undanþágur -ef yfir höfuð nokkrar- ætti að veita á hverju ári. Málið er farið að hitna það mikið undir dönskum stjórnvöldum. En þeir töpuðu hins vegar kosningunum eins og Sjálfstæðisflokkur er að tapa öllu og selur peningavillimönnum -sem þess vegna geta keypt hér allt upp á vegum Kína- heilu landshluta þess lands sem aðeins við Íslendingar eigum einir. Bálför Sjálfstæðisflokksins heldur því áfram. Öskufallið er næst

Heimildir: ekki DDRDK

Fyrri færsla

Viðskiptastríð: Börnin æðisleg. Kynlíf samt synd


Viðskiptastríð: Börnin æðisleg. Kynlíf samt synd

Mættur á staðinn: febrúar 2017. Bandaríska þjóðin pantaði jarðýtu. Og hún fékk jarðýtu. Og þegar jarðýtan Trump mætir á staðinn, þá hristist plánetan og blómavasar líberalista skjálfa eins og þeir sjálfir skjálfa við stássborðin, og heimsmyndir glóbalista glamra á veggjunum. Jarðýta er jarðýta. Það er galdurinn við þær: þær virka. Jimmy-Stewart-týpur stjórnmálamanna geta hins vegar ekki verið jarðýtur. Þeir hafa það ekki í sér. Þess vegna pantaði bandaríska þjóðin Trump

****

Það var, að ég held, bara einn hagfræðingur sem var með allar tölur yfir það sem er að gerast í dag réttar árið 2010, og það var Michael Pettis. Hann er eini hagfræðingurinn sem ég veit um sem skilur alþjóðleg viðskipti rétt. Skilur milliríkjaviðskipti rétt. "Alþjóðleg viðskipti" eru þó yfirleitt rangnefni. Þau heita milliríkjaviðskipti og þau þurfa alls ekki að vera "alþjóðleg". Alþjóðleg viðskipti eru venjulega böl, en milliríkjaviðskipti geta verið blessun og eru oft blessun. Þau eru þó ekki "réttindi", heldur forréttindi

Árið 2010 sagði Pettis að viðskiptastríð væri óhjákvæmilegt. En hvers vegna sagði hann það? Jú, heilabú glóbalista er þýsk-kínversk sovétframleiðsla, þar sem viðskiptahalli er álitinn synd, en viðskiptahagnaður er álitinn dyggð

Þetta svarar til þess að þýsk-kínverska spilaborgin segi að kynlíf sé synd, en að börnin sem koma út úr því séu blessun. Og spilaborg þessi vill bara fá börnin, en ekki svitapolla kynlífsins

Viðskiptahallalöndin skaffa eftirspurn, á meðan viðskiptahagnaðarlöndin uppskera eftirspurn

En það er komið babb í bátinn; Ekkert kynlíf = engin börn = engin eftirspurn. Þeir sem búa til börnin hafa ákveðið að hætta að afhenda þau til Þýskalands og Kína

Trump skilur þetta og sagði í kosningabaráttu sinni að hann myndi taka á málinu. Hann er eini stjórnmálamaðurinn sem þorir að segja það sem hann hugsar og gera eitthvað í málunum. Og nú eru allir sammála Trump og bandaríska þingið mest

Forsenda alls þessa er að milliríkjaviðskipti séu í jafnvægi. Og þess vegna heitir hitamælir þeirra viðskiptajöfnuður. Forsenda "alþjóðlegra viðskipta" hefur ávallt verði sú að þau séu í jafnvægi. Og það eru þau ekki. Þau eru því að eyðileggja þann heim og stofnanir hans sem Bandaríkin byggðu upp frá og með 1945, er þau reistu heiminn við úr rústum síðustu glóbalista

Ég sagði að alþjóðleg viðskipti væru slæm. En hvers vegna segi ég það, fyrst að ég segi að milliríkjaviðskipti séu oft blessun? Jú vegna þess að alþjóðleg viðskipti (og reyndar öll alþjóðleg "samvinna") byggir ávallt á forsendum lægsta sameiginlega nefnara þeirra. Dæmi: krypplingurinn Þýskaland, sem ófært er um að stunda kynlíf (skapa eftirspurn), skilgreinir allt Evrópusambandið, allt evrusvæðið og allt orkubandalag ESB. Krypplingur ræður för. Það sama gildir um Sameinuðu þjóðirnar, þar sem stór hluti þjóðanna þar eru einræðisherraríki og krypplingar

Aðgerðir Trumps í gær, þess efnis að stimpla Kína sem gengis- og gjaldmiðilsfúskara -samkvæmt skilgreiningu þeirri sem Obama fékk samþykkta á þingi Bandaríkjanna en þorði ekki að nota- eiga mun betur við um Þýskaland, ESB og evruna, en um Kína. Evrusvæðið hefur notað 36 prósent gengisfall evrunnar ásamt neikvæðum vöxtum til að reyna að líma og klístra evrusvæðið svo saman að það myndi ekki leysast upp í kjölfar efahags,- ríkisskulda,- og fjármálakreppunnar sem skall á 2008, og varir að miklu leyti enn á evrusvæðinu. Þetta gerði Þýskaland til þess að geta haldið áfram að vera krypplingur á framfærslu annarra. Þýskaland er því með stærsta viðskiptahagnað nokkurs lands í heiminum og hann er illa til kominn. Allt ESB og evrusvæðið er með krónískan viðskiptahagnað við útlönd. Bandaríkin og Suður-Evrópa borga og bera þyngstu kynlífsbyrðarnar

En þar sem Kína fylgja einnig strategísk og geopólitísk vandamál, þá ákvað Trump að slá fyrst til þar, en ekki í Evrópu. Hún er því næst í röðinni

Það verður ánægjulegt þegar Trump tekur Þýskaland á beinið og skrúfar evruna undan því þannig að gengi þýska marksins yrði eðlilegt á ný; þ.e. 80 prósent hærra en falsað gengi þýsku evrunnar, sem ríður um heiminn á bökum fárveikra hagkerfa evrusvæðis. Þá getur Þýskaland ekki lengur notað ESB sem sogrör ofan í stjórn,- valda,- og varnarlaus lönd evrusvæðis sem föst eru í handjárnuðu gengisfyrirkomulagi við það með evru og alræðisstofninum hennar

Michael Pettis sem rak punkbar í Kína, en sem ríkisstjórnin auðvitað lokaði, kenndi og kennir kannski enn við háskóla þar. Fyrirlestur hans um Kína á hinum gamla vinnustað Alberts Einstein, má sjá hér. Og hlaðvarp þar sem hann segir sannleikann um Kína, ESB og heiminn í sívaxandi alþjóðavæðingu, með tilliti til áhrifa umframsparnaðar landa (nýtt fyrirbæri í sögunni), má hlusta á hér:

1. Michael Pettis on the mechanics and politics of trade (framework)

2. Michael Pettis on the Chinese economy (um "fríverlsun")

Ef Pettis fær ekki Nóbelsverðlaunin í hagfræði á næstu árum, þá eru sú verðlaun varla til mikils gagns fyrir veröldina

Fyrri færsla

Ósiðareglur Sjálfstæðisflokksins


Ósiðareglur Sjálfstæðisflokksins

Af vinunum skaltu þekkja þá

Enginn munur er orðinn á fiskisögufélagi Sjálfstæðisflokksins og fiskisögufélagi Samfylkingarflokkanna um ESB

Samfylkingarflokkarnir reyndu að selja Íslendingum þá hugmynd að ekkert mál væri að ganga í ESB því það væri ekkert mál að ganga úr því aftur. Og að allt í lagi væri að taka upp evru, því gæfist hún illa mætti alltaf skila henni til baka. Þetta væri ekkert mál. Og svo hélt fjóshaugur þessara flokka því fram að hægt væri að "semja um" aðild að sambandinu. Ekkert af þessu var né er rétt. Þetta voru allt hreinar og óskornar lygar, sérstaklega gerðar til að blekkja, stunda þjóðsvik og ræna frá þjóðinni sjálfsákvörðunarréttindum hins nýfenga íslenska lýðveldis hennar. Þetta eru nýlendusinnar

Fiskisögufélag Sjálfstæðisflokksins um Orkubandalagspakka Evrópusambandsins er alveg nákvæmlega eins. Þetta er í reynd orðið eitt og sama félagið um lýsa yfir krónísku vantrausti á getu og hæfni íslensku þjóðarinnar til að lifa, búa og þrífast í sínu eigin landi, því nú klappar það allt saman í einum og sama taktinum. Hinar ótrúlegustu lygar um eðli Orkubandalags ESB eru bornar á borð fyrir þjóðina á sama tíma og ESB-lönd úti í Evrópu eru dregin fyrir ESB-réttinn fyrir að hlýða ekki í einu og öllu þeim yfirríkislögum sem orkupakkinn heilsteyptur er út í gegn. Nú síðast er það Belgía, sem dregin er fyrir ESB-rannsóknarréttinn og verður þar sek fundin, dæmd og refsað, svo að hálfdautt esb-ríki borgarnanna þar megi ekkert um raforkumálin í landi sínu hafa að segja. Enda ekki nema von, því fiskisögulygar stjórnmálamanna þar um ESB á sínum tíma, voru bara lygar. Engir belgískir stýrivextir né belgískir hagsmunir í raforkumálum eru lengur til. Litið er á slíkt sem "sérhagsmunapot" í Orkubandalagi ESB. Nýjar reglur eru enn fremur á leiðinni sem beinlínis taka fyrir "sérhagsmunpot" landanna í orkumálum. Myntbandalag ESB er fyrirmyndin að Orkubandalagi ESB, sem yfirríkisleg alræðisstofnun. Pakkar þess eru ERM-I og ERM-II og lokaskrefið er ERM-III, sem er sjálf alræðisevra ESB

"Belgium did not correctly transpose certain rules on the powers of the national regulator. In particular, the Belgian regulator has not been given the powers to take decisions that are binding on electricity and gas undertakings, and can only make proposals to the government to take such decisions. Likewise, the conditions for connection to the electricity and gas networks are set by the government rather than by the regulator, as required by EU law. Finally, Belgian law does not ensure that transmission system operators actually control the whole of the electricity or gas network for which they are responsible, so they may not be in a position to fully ensure non-discriminatory access of electricity or gas suppliers to the grid:" Lögsóknin

Til að bíta enn fastar og sökkva tannlausu toppstykkinu í höfuð raðbilunarveldis Sjálfstæðisflokksins, þá segja lýðskrumarar þess ískalda flokks, og reyndar ríkisstjórnarinnar allrar, að allt í lagi sé að gangast undir Orkubandlag ESB og taka upp einskonar raforkuevrur þess, því að (já hér kemur það) "þjóðaratkvæðagreiðsla" hafi verið haldin um að yfirríkislöggjöfin sem fylgir bandalaginu eins og nótt fylgir degi, gildi ekki á Íslandi. Selfoss hefur nefnilega haldið þjóðaratkvæðagreiðslu um að íslensk umferðarlög gildi ekki í bænum; vinstriréttur gildi því þar áfram. Þegar svona Bjarna-Illugalegur málflutningur er stundaður af til dæmis Haraldi Benediktssyni lýðskrumsþingmanni Sjálfstæðisflokksins, þá opnast allir gluggar í Brussel eins og lúgur á B-52, og hlátur hinna umboðslausu embættismanna þess dritast yfir álfuna, Íslandi til ævarandi minnkunar og skammar

Sama gildir um hugsanlegt stjórnarskrárbrot norsku ríkisstjórnarinnar í orkubandalagsmálinu. "Það kemur okkur ekki við" segja menn í Brussel. Þing ykkar hefur skuldbundið Noreg með því að skrifa undir. Stingið bara ríkisstjórn ykkar inn, ef ykkur sýnist svo kæru Norðmenn. Það kemur okkur ekki við. ESB-lögin gilda. Þau eru æðri ykkar lögum

ESB-fiskisögufélag Sjálfstæðisflokksins er einnig orðið félag nýlendusinna sem flytur inn erlenda ESB-dómsforseta til að messa yfir lýðnum, á sama tíma og það með dylgjum og rógi reynir að ræna frá íslenskum ríkisborgurum stjórnarskrárbundnu málfrelsinu. Félag þetta gerir þar með þarfir sínar yfir stjórnarskrá lýðveldisins. Gullfótgöngulið DDRÚV-ríkisins í ríkinu þrammar svo í takt við fiskisögufélag Sjálfstæðisflokksins, eins og það þrammaði ávallt ESB-taktinn með fiskisögufélagi Samfylkingarflokkanna. Ekkert af þessu fólki hafði minnstu hugmynd um hvað það var að gera, og það hefur heldur ekki minnstu hugmynd um það í dag. Pólitískir óreiðumenn vita slíkt aldrei. Íslenska þjóðin á ekki að borga pólitískar skuldir óreiðumanna

Lýðveldið Ísland þarf að koma sér upp vopnuðu þjóðvarðliði, svo að þjóðin geti varist ríkisstjórninni í framtíðinni

Fyrri færsla

Umferð tekin að þyngjast frá Valhöll


Umferð tekin að þyngjast frá Valhöll

Þetta er að gerast af því að íslenska þjóðin álítur að um Titanic sé þar að ræða. Og þjóðin veit að þeir sem láta sig vera fyrstu ættar farrýmisfarþega um borð í því skipi, velja ávallt að lýsa yfir vantrausti á ísjökum, sérstaklega borgarísjökum

Það eru þó enn 20 prósentur eftir af skipinu og þeim ber því að stúta sem fyrst, svo að frændi 1B verði glaður. Þetta segir 3B-maðurinn í brúnni að sé leiðin til leiðarenda. Að lýsa yfir vantrausti á borgarísjökum. Þá hverfa þeir, eins og það breska Texas sem er að yfirgefa ESB, eins og lávarðurinn Black af Massey Ferguson bendir á. En meðan á stími stendur, segir 2B að þjóðin eigi að borða kökur

Íslenska þjóðin, sem flokkurinn í tvígang á tíu árum hefur lýst vantrausti á, veit nú með óbilandi öryggi að hún á að forða sér frá borði. Þess vegna er umferð tekin að þyngjast frá Valhöll

Öll ríkisstjórnin hefur einnig lýst yfir vantrausti á þjóðinni og landi hennar; lýðveldinu Íslandi. Það er óþolandi, og verður ekki liðið

Fyrri færsla

Minnsta fylgi Sjálfstæðisflokksins síðan 2008 !


Minnsta fylgi Sjálfstæðisflokksins síðan 2008 !

Munurinn á fylgi Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins 30 júlí 2019 lrt

Mynd: Munurinn á fylgi Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins; skv. Gallup. Síðasta mæling 27. júní til 30. júlí 2019: 9,5 prósentur

****

Já það er víst þannig. Enda ekki nema von þar sem forysta þess er einu sinni var alíslenskur stjórnmálaflokkur, og öll tromp hafði á sínum höndum, hefur afsalað flokknum öllum pólitískum frama með því að raðbrjóta alla þá mikilvægustu stólpa, stuðla og fætur sem hugsast gat undan Sjálfstæðisflokknum, í höndum eins konar sjálfspyntingarforystu frá og með mars mánuði 2009. Í því ljósi séð er um eðlilega og skilvirka ofanafvindu fylgismála Sjálfstæðisflokksins að ræða. Bjarna Benediktssyni tekst þetta; að eyðileggja flokkinn með humar-hummi og metoo-gaggi í höll þeirra sem kalla sig "þingflokk" flokksins. Nýlenda skal Ísland helst verða á ný, virðist vera mottó þeirra sem gert hafa sig að raðdómgreindarskertum flokki í flokknum

Miðflokkurinn étur upp fylgi Sjálfstæðisflokksins eins og að um umhirðulaust poppkorn á borði ofdekraðra en fullvaxinna smábarna á miðjum aldri sé að ræða. Frá því að Miðflokkurinn bauð sig fram hefur munurinn á fylgi hans og Sjálfstæðisflokksins aldrei verið minni en mælist nú; eða aðeins 9,5 prósentur. Bilið samkvæmt Gallup mældist mest í september 2017, er Miðflokkurinn komst fyrst á mæliblað: þá var hann 20,8 prósentur. Og fyrir hálfu ári síðan, í febrúar á þessu ári, var munurinn 18,3 prósentur. Í dag er hann 9,5 prósentur og fer hratt minnkandi. Miðflokkurinn gæti orðið stærsta og öflugasta stjórnmálaafl íslensks almúga, sem elítan fyrirlítur

Orkupakkaþingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur nú þegar óskað eftir því að eldra fólk en í orkupakkaþingflokknum getur verið, yfirgefi og hætti að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, aldurs síns vegna. Þar losna töluvert margar prósentur. Og svo eru það þeir hallærislegu sem standa fast í vegi fyrir þeim hamförum sem orkupakkaþingflokkurinn kallar framfarir. Þar losna nokkrar prósentur í viðbót. Orkupakkaflokkur ESB í xD þarf ekki nema fimm prósentu losun yfir í Miðflokkinn til að hann sé stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Og það verður hann

Og þetta er svona þrátt fyrir tvennar aðfarir fjölmiðla og annarra að baráttumanninum Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Það borgar sig að heita Davíð, þó svo að það kosti. En þeir hafa aldrei vílað fyrir sér persónulegan kostnað í baráttu sinni fyrir Íslandi sem pólitískri hugmynd íslensku þjóðarinnar í sínu eigin landi. Sú hugmynd er orðin ansi fjarlæg orkupakkaþingflokknum í (ó)Sjálfstæðisflokknum. Hann á því orðið skilið að deyja. Tími hans er greinilega liðinn. Stjórnmálaflokkar þola ekki fjandsamlegar yfirtökur innherja

Þetta er mikill frændsemisgreiði við gorkúlus Benedikt evrusvitabols-frænda Bjarna Ben í Viðreisn, sem áður messaði ESB-fagnaðarerindið í Valhöll. En þar sem esb-altari Benedikts stóð í Valhöll, stendur nú Þriðji Orkupakkapáfi Evrópusambandsins, uppreistur og klár til að rústa þeim rústum sem Bjarni Ben er svo sérfróður í að fullkomna fyrir fullt og allt. Þorgerði kjötfjall þarf víst ekki að minnast á í þessu samhengi. Það fjall sjá allir og muna með því að líta upp og til austurs þessa dagana. Hvert annað? Sannarlega ekki til vesturs, þar sem birtan býr. Myrkrið úr austri skal það því vera. Alltaf austur

Ótíðindi þriðja orkupakka Evrópusambandsins fyrir Ísland kalla til allra Íslendinga: Upp með Fánann! Upp með Fánann!

Nú er að duga eða láta flokkshollustuna drepa Ísland og gera okkur hægfara að nýlendu á ný. En það er greinilega orðið allra efst á óskalista orkupakkaflokksins í xD flokknum, eins og allir sjá sem sjá vilja

Niður með orkupakkaflokk Evrópusambandsins. Upp með Fánann!

Fyrri færsla

Naktar staðreyndir á jörðu niðri

****

AUKABLAÐ UTANRÍKISMÁL

HLAÐVARP MEÐ VICTOR DAVIS HANSON = UM ÍRAN


mbl.is Minnsta fylgi Sjálfstæðisflokksins síðan 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Naktar staðreyndir á jörðu niðri

Af hverju er Evrópusambandinu leyft að hegða sér ólíkt öllu því stjórnarfyrirkomulagi er kennir sig við lýðræðislegt stjórnarfar, þar sem málamiðalnir einkenna stjórnmálin?

Svar: Af því að enginn og ekkert land vill óþvingað láta neitt það af hendi sem Evrópusambandið krefst til þess að vera Evrópusamband. Evrópusambandið byggir því á einræði á jörðu niðri, þó svo að annað sé sagt uppi í hallarsölum þess og við almenning á tyllidögum. Aðeins einræðisleg fyrirbæri hafa Acquis sem stjórntæki, þar sem engar málamiðalnir er hægt að viðhafa (Acquis (bls.9) = ég ræð öllu, þú ræður engu = sigurvegarinn tekur allt). Þetta stjórnarfar verður að deyja. Orkupakka þrjú má Ísland undir ENGUM kringumstæðum samþykkja. Aldrei!

Af hverju er Kína ekki með í málum Miðausturlanda? Svar: Af því að það kemst ekki þangað. Það hefur ekki getu til að komast þangað. Þess vegna

Af hverju er Kína ekki búið að taka Taívan? Svar: Af því að það getur það ekki. Það kemst ekki þangað. Bandaríkin vernda Taívan og aðeins Bandaríkin geta verndað Taívan

Af hverju er Suður-Kórea ríkt, öflugt og fullt hús matar? Svar: Af því að Bandaríkin drógu sig ekki út úr beinum hernaðaraðgerðum gegn kommúnistum Norður-Kóreu, Kína og Sovétríkjanna, heldur stóðu fast og hörfuðu ekki. Þess vegna er Suðrið ríkt og öruggt fullt hús matar í dag, en Norðrið er hins vegar innvortis heimsveldi ánauðar, fátæktar, hungurs og fjöldamorða

Af hverju var staðan svipuð svart/hvít á milli Austur og Vestur-Þýskalands á sínum tíma? Svar: Vegna Bandaríkjanna. Þau byggðu Vestur-Þýskaland upp úr rústum, vernduðu það gegn Sovétríkjunum og alþjóðlegri samkeppni, og gerðu það ríkt fullt hús matar

Af hverju er Þýskaland ekki í Póllandi að vernda Pólland, Rúmeníu og Búlgaríu gegn Rússlandi? Svar: Af því að það getur það ekki. Það kemst ekki þangað og enginn í Póllandi myndi treysta því. Einungis Bandaríkin geta tryggt fullveldi Póllands og Austur-Evrópu allrar

Af hverju vill Þýskaland ekki vernda siglingar þeirra olíuskipa sem þurfa að fara framhjá Íran og sem Þýskaland þarf olíu úr. Svar: Af því að það hefur ekki getu til þess. Það kemst ekki þangað

Af hverju er Þýskaland eða Kína ekki leiðtogi heimsins? Svar: Af því að þau geta það ekki. Þess vegna leiða Bandaríkin heiminn

Bandaríkin vernda Japan. Þau vernda Suður-Kóreu og Taívan. Þau eru að mynda fjórbandalag með Indlandi, Japan og Ástralíu til að gera þeim auðveldara að verjast Kína. Ekkert Evrópuríki kemur þar nálægt vegna getuleysis. Ísland ætti að bjóða Taívan í opinbera heimsókn hingað til Íslands í stað þess að leika raðbilaðan fábjána og Kínaróna á Filippseyjum á vegum Sjálfstæðisflokksins, sem er ekki sjálfstæðisflokkur lengur

Bandaríkin eru með flota sinn undan Miðausturlöndum og þau hafa verndað siglingarleiðir þar í 55 ár, hvern einasta dag ársins, og í 70 ár á Kyrrahafi og Atlantshafi. Þau geta sent flota sinn til allra horna heimsins ef með þarf, fyrirvaralaust. Ekkert annað ríki jaðrar getur slíkt

Bandaríkin ábyrgast einnig þjóðaröryggi Íslands vegna þess að hagsmunir Íslands og Bandaríkjanna eru órjúfanlega samþættir, ólíkt hagsmunum Íslands og meginlands Evrópu, sem fara ekki saman. Við höfum engra sameiginlegra tilvistarhagsmuna að gæta með meginlandi Evrópu. Engra, nema blómaskreytinga, sem þess utan fást annars staðar fyrir mun minna og án kúgunarveldis ESB

Bandaríkin vernda Austur-Evrópu. Það gerir NATO ekki lengur vegna þess að þau lönd sem Bandaríkin björguðu í tveimur heimsstyrjöldum og í Kalda stríðinu, eru orðin andsnúin Bandaríkjunum vegna öfundar, eigin getuleysis og algerlega óraunhæfra og blautra draumfara um Evrópusambandið

Þýskaland er ekki enn þann dag í dag meira sameinað en svo Austur-Þjóðverjum líkar vistin það illa í Evrópusambandinu, að 72 prósent þeirra vilja tengjast Rússlandi á ný. Í Vestur-Þýskalandi segja 54 prósent það sama, segir þýska Tagesspiegel. Þetta þýðir ekkert gott fyrir Pólland og Austur-Evrópu og þess vegna eru Bandaríkin allsherjar guð þeirra og verða Gamla testamentis guðspjall þeirra um ókomna framtíð

Næst þegar þú heyrir hámenntað fólk segja að Bandaríkin séu að "draga sig til baka" frá heiminum, þá skaltu fræða það fólk um þetta, og segja því að það sé hættulega fáfrótt. Og þú skalt einnig segja því að; sé það ekki ánægt með leiðtog Bandaríkjanna, þá geti það sjálft reynt að leiða heiminn, því hann er frjáls

Þess vegna leiða Bandaríkin heiminn; af því að þau ein eru þess megnug og engir aðrir

Heitar bandarískar staðsetningar í dag:

Suður-Kórea
Japan og Taívan
Indland og Ástralía
Austur-Evrópa
Miðausturlönd
Atlantshaf (bara volgt)
Miðjarðarhaf
Kyrrahaf

Og hvar skyldi Evrópa vera, af öllum þessum stöðum töldum? Svar: Hvergi. Evrópa er hvergi því hún er ekkert og kemst ekkert

Öll þessi lönd og heimshlutar þurfa á Bandaríkjunum að halda. Þau þurfa öll á Bandaríkjadal að halda, því Bandaríkin eru eini frjálsi kapítalmakaður heimsins, og þau þurfa öll á því að halda að Bandaríkin verndi það viðskiptafyrirkomulag sem þau byggðu upp og komu á í heiminum eftir Síðari heimsstyrjöldina, en sem Kína, ESB og Rússland eru að reyna að eyðileggja í dag

Bandaríkin eru að verja það fyrirkomulag sem reisti heiminn úr ösku frá og með 1945. Þau eru að verja þetta kerfi. Þau eru ekki í viðskiptastríði við Kína, heldur herjar Kína á þetta kerfi með það fyrir augum að misnota það, eyðileggja það og taka það yfir innanfrá. Hið sama gildir um ESB að miklu leyti, en aðeins að hluta til um Rússland

Tollar eru ávallt fyrstu varnarvopnin í þessu kerfi, því þeir eru friðsamleg vopn. En Bandaríkin munu ekki hika við að ganga lengra gerist þess þörf, eða að búa til nýtt kerfi ef svo ber undir, því þau ætla sér ekki að búa í ófrjálsum heimi. Og sú stund nálgast, því Kína og ESB geta ekki gefið eftir nema með því að hrynja. Þau eru föst í vösum kúnna sinna því þau eru svo útflutningsháð, því heimamarkaður þeirra er dauður úr vonlausu komma- og ESB-geldu stjórnarfari. Það eru Bandaríkin hins vegar ekki. Aðeins eitt prósent af landsframleiðslu Bandaríkjaanna má rekja beint til útflutnings til þessara staða

Ísland steig í hörmulegt spínat með því að hlussa eitruðum EES-samningi yfir sig, algerlega að óþörfu og án þess að að ráðfæra sig við þjóðina. En þá datt fáum eða jafnvel engum í hug að ESB-og-EES myndi verða sú skaðræðis tortímingar-ófreskja sem það er orðið í dag. Þessu skrímsli verður Ísland að kasta af sér áður en það er of seint

Þess vegna!

Einstaklega góða og kristalskýra grein Arnars Þórs Jónssonar dómara í Morgunblaðinu um orkupakkamál-3, ættu allir Íslendingar að lesa. Hana má finna hér: Fullveldið skiptir máli

Fyrri færsla

Fjölmiðlaveðurfar endist illa


Fjölmiðlaveðurfar endist illa

Theresa May - gettu hvað

Nóbb

****

Sjá "fréttaþvælu" að neðan: , og svo ef að "fjöllin eru að hrynja" (nýjasta netþvælan) þá myndi yfirborð jarðar breytast og sjórinn fossa yfir landmassa jarðar og Kevin Costner einn verða eftir í "vatnslandi" sínu, sem floppaði svo glæsilega í kvikmyndahúsum sömu plánetu

Svo eru menn að setja út á að Biblíusögur séu kenndar í skólum á meðan öpum er fært pennavald í dag. "Til baka til Biblíunnar" get ég hins vegar mælt með. Hún er það sem gerði okkur að því sem menn keppast nú við að rústa; að Vesturlöndum: þ.e. þjóðir, landamæri, þjóðríki, aðgreining valds, þ.e. takmarkað ríkisvald í stað alræðis úrkynjaðra imperíal-heimsvelda á borð við Sovétríki, Evrópusamband, Egyptaland hið forna og Rómarveldi sem rústaði þjóðríkjum

ÖRBYLGJUR

Engin hitabylgja hefur verið í Evrópu, nema í sjónvarpinu. Það komu nokkrir heitir dagar, en engin hitabylgja. Fremur kalt er í Evrópu núna (þ.e. aðeins 12 til 27 gráður, og 35 í Sahara og 67 stiga frost á suðurskautinu), þ.e.a.s fólki finnst kalt eftir nokkra heita daga. Ég bjó þarna í 30 ár og þekki þá menn ágætlega þegar hitabylgjur geisa, því þá fellur fólk í þúsundum, aðallega fólk sem mjög veikt er fyrir, eins og fólk fellur úr kuldum þegar frostavetrar herja. Þá fá franskir stjórnmálamenn venjulega skellinn fyrir það hversu illa er komið fyrir fimmta franska lýðveldi líberalista á fimmtándu ónýtu stjórnarskrá þeirra. Þetta tekst auðvitað aldrei hjá þeim, því það er ólæknandi þversögn í sjálfu tilvistarplaggi líberalismans. Skattar og meiri skattar kalla á meiri og svæsnari byltingar

Síðustu frostavetrar hafa verið notaðir til að útskýra það viðvarandi vaxtarfall sem er í landsframleiðslu evrulanda. Og núna í sumar hafa stærstu prammarnir ekki getað siglt og flutt vörur um þau fáu siglanlegu fljót sem meginlandi Evrópu hefur, og nýtast því vel til að útskýra króníska evrusjúkdóma þeirra hagkerfa sem neyðast til að nota evru sem mynt. Þarna er allt esb-ónýtt, en veðrinu (loftslags"málum") er hins vegar kennt um

MÆLINGAR

Mælaborð fólks og "stofnana" þess (þ.e. heiðnikirkjuveldi háskólanna) yfir næstum hvað sem er, er nú orðið svo stórt að heimurinn, líkaminn, sálin og næstum hvað sem er, hlýtur að vera að farast hvern einasta dag. Maðurinn hefur nefnilega "fundið upp" eldinn á ný

En það er hins vegar eitt sem ég skil ekki. Þeir sem segjast ekki vilja eignast börn vegna umhverfismála og sjónvarpshlýnunar; Af hverju drepa þeir þá ekki sjálfa sig strax fyrst að þeir álíta að heimurinn sé að farast af mannavöldum og að lausnin sé að fólk hætti að vera til. Það skil ég ekki

Við erum því miður með fjölmiðlastórstétt menntaðra on-linebjána í rifnum gallabuxum sem hannar veruleika bæði stjórnarfars, stjórnmála og veðurfars. Næst fáum við því sennilega það sem menn fengu á hippatímabilinu; sjálfsmorðstrúarhópana

Bankatímabilið virkar nú ljósár af samskonar vitleysu í burtu

a) 2003: Allir biðji: bankar okkar frelsa heiminn

b) 2019: Allir biðji: frelsaðu heiminn með því að hætta að vera til. Gakktu í sýndargöfugmennskuflokkinn og fáðu englavængi (e. virtue signaling)

UNDRALÖND

Þar á undan var það dot com bólan sem átti að frelsa heiminn og gera alla ríka. Og Sovétríkin sem liðu undir lok áttu að fá bandaríska Harward-deild í Moskvu, en fengu bara Rússland. Sá "Rússagaldur" var svo flókinn að það tók menntamenn 24 ár að fatta hann; Rússland var bara Rússland. Verslun við Laugaveg á Íslandi átti að geta orðið stórveldi í Japan, þökk sé netinu, en varð það bara ekki. Það undraland, Japan, hrundi árið 1989 svo hrikalega sem undrahagkerfi af asískri útflutningstegund (frá því að segjast vera 16 prósent af heimshagkerfinu niður í 6 prósent í dag), að hrun þess komst jafnvel á forsíður vestrænna dagblaða þremur árum síðar. Kína gæti verið samskonar-hrunið nú þegar. Og ef svo er, þá kemst það ekki í fréttir hér fyrr en fimm árum síðar, vegna fréttrænna trúarbragða

Náttúrbólan sem hýsir ferðamannabóluna er að springa líka. Þá verður aftur gott að vera á togara eða keyra strætó

UPPGJÖR

Í vikunnu kynnti Amazon fjórðungsuppgjör sitt er segir að vöxturinn sem hefur verið og sem tilkominn var með því að sýna helst aldrei neinn hagnað, sé loks að þrotum kominn og hallandi niður verði brautin úr þessu

Það sem fer upp kemur niður. Loftslagsdellan líka. Gréta Thunberg miðill af Blavatskykyni ku nú vera komin í stellingar við Alpafjöll. Hún segist sjá frumeindir með berum augum. Þar mun hún stara Alpafjöllin niður. Hvað kemur næst, er ekki gott að segja. Loftsteinn gæti fallið í höfuð hennar. Hann er að minnsta kosti náskyldur fjölmiðlum okkar í dag; .. hmm já loftsteinn.. ekki svo slæm hugmynd úr þeim sama heila mannsins sem byggði sér bambuskofa til að verjast síðustu ísöld er entist í 200 þúsund ár

KALT STRÍÐ II

Á meðan loftslagsmiðlar koma ekta fjölmiðlum eins og Séð og Heyrt á hausinn, þá er það Hið síðara kalda stríð (Kalt stríð II (KSII)) sem upptekur huga minn mest, næst á eftir orkupakkaþvælu Sjálfstæðisflokksins sem var. Stríð eru nefnilega spennandi, bæði köld og heit. Þau eru hið eðlilega ástand mannsins. Allir ættu því að endurskoða fjárfestingar sínar með þeim augum að þær verði strategískt KSII-þéttar og arðvænlegar. Sem sagt: Kalt stríð milli Kína og Bandaríkjanna og svo þess non-U.S-alignment svarta-péturssvæðis sem menn vita ekki enn hvert er né hvernig verður. Þarna munu líklega verða til nýjar viðskiptablokkir veraldar

ÍSLAND

Þeir sem hafa ekki lesið einstaklega góða og kristal-skýra grein Arnars Þórs Jónssonar dómara í Morgunblaðinu í dag um orkupakkamál-3, ættu að gera það. Hana má finna hér; Fullveldið skiptir máli

Fyrri færsla

Hófu sig yfir lög og rétt, lugu og ljúga enn


mbl.is Óttast áhrif hitabylgju á Grænlandsjökul
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hófu sig yfir lög og rétt, lugu og ljúga enn


Viðbrögð Donalds J. Trump forseta Bandaríkjanna við yfirheyrslum upplýsingaþjónustunefndar fulltrúadeilar Bandaríkjaþings á Robert Mueller, sérstökum saksóknara. Textun má finna hér

****

Ekki hefur enn tekist að hreinsa mig af því að vera saklaus. Og ekki hefur enn tekist að hreinsa mig af því að finnast hálft í hvoru að Orkupakkaflokkur Sjálfstæðisflokksins á Íslandi sé systurflokkur hins bannaða Kommúnistaflokks Bandaríkjanna. Það hefur ekki tekist enn. Og það mun ekki takast svo lengi sem orkupakkaflokkur þess flokks er enn að reyna að koma fullveldi Íslands í orkumálum fyrir kattarnef. Er það skilið?

Stutt er síðan að Harward ætlaði að opna deild í Moskvu. En samt virðist eitthvað svo langt síðan þá. Heimurinn endaði ekki með falli múrs Sovétríkjanna, eins og allt of margir sprenggáfaðir menn sögðu þá. Rússland hélt áfram að vera Rússland og ESB hélt áfram að vera dulbúningur gamalla heimsvelda sem langar til að komast að á ný til að drottna yfir öðrum

Saddam hélt áfram að lifa í heimi sem endaði ekki með falli múrsins og Noriega gerði hið sama, Erdogan líka ásamt Íran og Norður-Kóreu. Heimur þeirra breyttist ekkert og allra síst breyttist hann í Kína, sem enn trúir því að það eitt sé í þennan heim fætt til að drottna yfir öllu sem undir himni hans er; tianxia

En velti menn því fyrir sér hvort að Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna hafi sætt pólitískum ofsóknum af hendi Demókrataflokksins og Obama-sitjandi forseta þess flokks og embættismannaveldis hans, bæði fyrir og eftir kjör Trumps, þá er hér listi yfir þá yfirmenn í FBI bandarísku Alríkislögreglunni (sem sjálfur Robert Mueller, sérstakur saksóknari, var forstjóri fyrir í 10 ár) er reyndu að koma í veg fyrir kjör Donalds J. Trump. Eða sem reyndu að koma honum frá embætti eftir kjör hans, og sem til þessa hefur annað hvort verið vikið úr starfi, lækkaðir í tign, sendir heim, sendir til annarra staða eða sagt af sér. Ákæra, dómur og fangelsisvist bíður sennilega fjölda opinberra starfsmanna Obama og Hillary-gengisins, hvenær sem er úr þessu:

James Comey forstjóri FBI
Andrew McCabe aðstoðarforstjóri FBI
Peter Strzok gagnnjósnadeild FBI
Lisa Page lögfræðingur FBI
James Rybicki starfsmannastjóri FBI
James Baker yfirlögfræðingur FBI
Mike Kortan aðstoðarupplýsingastjóri FBI
Josh Campbell sérstakur aðstoðarmaður James Comey
James Turgal aðstoðarframkvæmdastjóri BFI
Greg Bower forstjóri þingmálaskrifstofu FBI
Michael Steinbach aðstoðarframkvæmdastjóri í FBI
John Giacalone aðstoðarframkvæmdastjóri í FBI

Viðbrögð þingleiðtoga Repúblikana á blaðamannafundi sem haldinn var eftir yfirheyrsluna

****

Alla yfirheyrsluna má horfa á þarna

****

Meira að segja stórgrautarhaus Demókrata, Michael Moore, varð fyrir miklum vonbrigðum með yfirheyrsluna og er afar óánægður með þennan "gamla mann" saksóknara sinn, eins og sést hér (þarna kom það aftur; aldurs-orkupakkarökin úr Valhöll). Moore hefði sennilega frekar óskað sér stálsleginn Stalín eða DDRÚV í hinu sérstaka hlutverki saksóknara í stað Róberts Muellers. Allt væri betra en sannleikurinn, eins og hjá DDRÚV

CUMMINGS + BANNON = DJÖFULLINN

Nú hlýtur, já bara hlýtur, DDRÚV í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar að sýna Þjóðviljaprentsvartan þátt um Dominic Cummings sem verður ráðgjafi og strategískur hússtjórnandi í Downingstræti númer tíu hjá Boris Johnson forsætisráðherra, eins og sú helstofnun vinstrimanna á ríkisjötunni sýndi sérstaklega um Steve Bannon, ráðgjafa Donalds Trump, á meðan dagskrárdeild þess skipulagði fimmtu endurhersýninguna á því hversu sá almenningur sem kaus Brexit vissi auðvitað ekkert hvað hann var að gera. Vissi það auðvitað ekki frekar en í Icesave-svartnætti DDRÚV hér heima. Af hverju þurfum við að búa við vinstrikrónískan myrkvunar-ríkisfjölmiðil. Hvað er að? Og svo eru það auðvitað -omg svitna hér- "glóbal afhendingar-keðjurnar" í VB-samfylkingarviðskiptablaði Krugmans í sömu óborg sem enginn Íslendingur nennir lengur að búa í

Fyrri færsla

Mér líkar þetta (like)


Mér líkar þetta (like)

Study - Chinese Investment in US Has Fallen 88 Percent Since Trump Took Office

like

****

Fjárfestingar Kína í Bandaríkjunum hafa fallið um 88 prósent frá því að Donald J. Trump tók stjórnartauma Hvíta Hússins í sínar hendur, segir RSS-efnisveitan í NetNewsWire forritinu mér. National Review vitnar í grein New York Times sem ég hef ekki nennt að lesa, enda varla hægt að lesa það óblað lengur

En það væri að bera í bakkafullan lækinn að kalla uppkaup Kína í Bandaríkjunum fyrir "fjárfestingar". Bandarísk fyrirtæki eru sjálf að kafna í peningum og allir vita hvernig kínverskir peningar eru til komnir. Bandaríkin eru eini algerlega frjálsi kapítalmakaður heimsins og þangað henda lönd umfram-peningum sínum til annað hvort að koma þeim í skjól fyrir yfirvöldum heima fyrir, eins og í tilfelli Kína sem er með hörð höft á útflæði, eða þá vegna þess að ekkert fæst fyrir að festa fé sitt heima fyrir í sínu eigin landi

Í Bandaríkjunum festa fyrirtæki ekki fé nema að þau þurfi þess og sjái arðsemi í því. Þeim myndi til dæmis aldrei detta í hug, hvorki fyrirtækjum né ríkisstjórn landsins, að leggja hraðbrautir (Hitler) eða byggja harðlestir (Mussolini) til að flytja milljónir tómra hausa undir kúgunarveldi hins opinbera (Sovét/Kína) sem hraðast frá A til B. Allt þannig fer á hausinn því það borgar sig ekki og er ekki til neins. Það sem einkennir oft einræðisríki eru "of góðir" (mont)innviðir, engum til gagns. Sem dæmi þá er til hraðbrautarstubbur í Norður-Kóreu sem notaður er til að blekkja erlenda fréttamenn, sem ekið er með þá um á leið í "stórverslun", sem er eins og sovéskt samyrkjubú. Hún opnar bara þegar vestrænir fréttamenn og afglapar í leit að nýjum pólitískum guði eru á ferð

Nýjasta nýtt frá Frakklandi er það að Emmanuel Macron hefur sett á þrjú prósent stafrænan skatt á bandarísk tölvunar- og internetfyrirtæki í Frakklandi. Eiginlega er um eignaupptöku að ræða, vegna þess að "skatturinn" er óháður því hvort að fyrirtækin eru rekin með hagnaði eða tapi. Og hann er skrúfaður þannig saman að hann bitnar bara á bandarískum fyrirtækjum en ekki frönskum. Mörkin um veltustærð og alþjóðlega markaðshlutdeild í nýju frönsku skattareglunum sjá fyrir því. Á sama tíma eru frönsk fyrirtæki með 17 milljarða evra þjónustusölu til Bandaríkjanna og sleppa við nýja skattinn stærðar sinnar vegna. Og svo eru frönsk útibú í Bandaríkjunum með 280 milljarða dala sölu á ári þar, en segja sjálf á framtali sínu að þau séu aðeins með fjögur prósent hagnað og borga því næstum enga skatta í Bandaríkjunum, sagði leiðari WSJ í síðustu viku. Og allir vita hvers vegna

Staðreyndin er auðvitað sú að Frakkland er búið með skattagrundvöll franska ríkisins í Frakklandi. Þeir komast ekki hærra með skattana þar, því þá koma bara gul vesti út á torg og stræti. Þess vegna eru það erlend fyrirtæki sem látin eru sæta svona eignaupptöku eins og hér er lýst. Þetta mun líka ganga yfir íslensk fyrirtæki á meginlandi Evrópu í þeirri kolsvörtu framtíð sem þar bíður allra. Það er því ekki seinna vænna en að segja upp EES og forða sér frá Evrópu, því heimurinn er að skiptast upp í viðskiptablokkir: 1) Þeir sem verða handan járntjalds hins gamla heims og 2) þeir sem verða þar ekki. Meginland Evrópu er að renna á bak við nýtt járntjald. Það gerist auðvitað ekki alveg í einum grænum hvelli, en gerist samt hvern einasta dag ársins á hverju ári og hefur gert það lengi í smáskrefum

Nú tekur Boris við á morgun miðvikudag í Bretlandi og þarf bara að taka í útrétta hönd Trumps og standa með honum í Íranmálinu. Þar með myndi sverð Borisar falla eins og smjörhnífur ofan í miðjan valdaöxulinn Lotharingia, og sökkva sér töluvert niður þar

Sá Íslendingur sem sagt hefði árið 2000 að ESB ætli að taka sér fullt vald yfir nýtingu orkuauðlinda íslensku þjóðarinnar, hefði verið sendur í böndum inn á Klepp á þeim tíma. En þar býr hins vegar öll ríkisstjórn Íslands núna anno 2019. Lokuð og læst þar inni og segist vera í skoðun: "skoða þarf þetta", já "þetta þarf að skoða", eða "við munum skoða þetta í vetur". Af hverju fer Sigurður Ingi ekki bara í læknisskoðun hjá Svandísi-sovét strax. Hæg eru heimatökin því þar er Bjarni kominn í spennitreyju að "skoða" sjálfan sig en finnur ekkert, frekar en fyrri icesavedaginn; varanlega raðdómgreindarskertur

Fyrri færsla

Valhöll orðin klakmiðstöð seigfljótandi imperíalisma


Valhöll orðin klakmiðstöð seigfljótandi imperíalisma

EFTIR-KALDA STRÍÐIÐ (e. POST-COLD WAR)

Valhöll er núna orðin klakmiðstöð seigfljótandi imperíalisma Evrópusambandsins - eins og öll þannig veldi óhjákvæmilega verða

Formaðurinn Bjarni er e. "post-national" þ.e. eftirþjóðlegur eftirsjálfstæðismaður og nýnýlendusinni. Allt liðið í kringum hann er alveg eins, þ.e. eitt stórt tómarúm af eftirkyni. Og ekki nóg með það þá er þetta lið orðið imperíalistar sem reynir að installera hér nýju veldi hins nýja nýlenduveldis imperíal-ESB, sem þykist vita allt best og hvernig við og allar aðrar þjóðir eigum að haga okkar eigin málum, nota rafmagn eða ekki nota það, framleiða það, dreifa því og innrétta þjóðfélag okkar eða kaupa gúrkur. Alla samkeppni milli þjóða skal banna á meðan það er talið imperíal-guðlast að vilja leggja á tolla til að koma óheiðarlegum viðskiptaháttum stórra klessu- og esbkommalanda fyrir kattarnef. Heilög sé gervisamkeppni á milli fyrirtækja af óligarkakyni, en bölvuð og harðbönnuð sé samkeppni milli landa og hugmynda sem stangast á við nýnýlenduisma þessa fólks. Alla laga- og skattasamkeppni milli landa skal banna og allir skulu búa í sovét, því við í Valhöll (plebbahöll) erum nýaularnir í Eftirhöll. Allt tal þessa fólks um "fjölbreytni" er eins og varalitur á steinbít

Utan um þennan ískalda svellbunka úr aulaskap af eftirkyni syndir svo imperíalistinn Guðlaugur Þór sem er á fullu að kenna fólki hinumegin á plánetunni hvernig það á að haga sér í sínu eigin landi. Hann er með imperíal ESB+SÞ reglustrikuna á lofti og veit hvernig þetta og allt annað fólk á að stjórna sér, eða ekki stjórna sér. Boðskapurinn er að fólk/þjóðir geti ekki stjórnað sér sjálft. Það þarf Guðlaug Þór til að geta vitað það. Hann einn er með reglurnar á hreinu og alheimslögmálin fyrir alla menn á plánetunni og loftslag þeirra líka, því heima situr Bjarni Ben á bráðnandi ísjaka sem hin barngóða eftirkristna KommaKata gaf honum í afmælisgjöf

Þetta er nýja nýnýlendulið sem mótað hefur Sjálfstæðisflokkinn þannig hin síðustu 10 ár að enginn góður maður mun geta hugsað sér að koma nálægt honum nema þá kannski til að drepa hann. Framhald hans er því orðið eftirhald. Þetta lið hefur sagt ekta eldri Sjálfstæðismönnum að éta skít og það hefur gefið í skyn að þeir sem eru ekki sammála nýnýlenduhugsjónum þess séu hallærislegir og úr sér gengnir að innan sem utan. Þess vegna tala ég í athugasemd við fyrri færslu um fullnustugalla sem sennilega er ekki hægt að lækna, því nýlenduveldi eru alltaf ólæknandi á meðan þau eru

Þetta er alveg þveröfugt við allt sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson boðar, trúir á, segir og gerir. Upp fer því hann, en Spilahöllin norður og niður. SDG er nefnilega ekki e. "post" - og allra síst þarf hann að vera fullkominn. Hann þarf einungis að vera betri en valkosturinn. Og það fer hann létt með

Fyrri færsla

Samvinna er langt því frá af hinu góða


mbl.is Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei minna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband