Leita í fréttum mbl.is

Aska Sjálfstæðisflokksins fýkur fyrir björg. Sumarhúsasala Björns Bjarnasonar

BJÁNASETTIÐ OG LÍKAMSLEIFAR ÍSLENDINGA

Sú atkvæða-fuglahræða sem forysta Sjálfstæðisflokksins hefur verið fyrir flokkinn hin síðustu tíu ár, fékk nýjan krunk-byr undir atkvæðafælu sína í gær, þegar frelsinu til að eyðileggja var ruglað saman við frelsið til mega vera laus við plágur. Frelsinu til hafa leyfi til að skapa plágur er ruglað sama við frelsi manna frá til dæmis síðasta heimsendi vegna heiðni. Þannig voru orð Franklíns D. Roosevelt er hann ávarpaði bandaríska þjóðþingið 1942:

Frelsi FRÁ ágirnd og frelsi FRÁ ótta: "Our own objectives are clear; the objective of smashing the militarism imposed by war lords upon their enslaved peoples the objective of liberating the subjugated Nations—the objective of establishing and securing freedom of speech, freedom of religion, freedom from want, and freedom from fear everywhere in the world." [..] "They know that victory for us means victory for religion. And they could not tolerate that. The world is too small to provide adequate "living room" for both Hitler and God. In proof of that, the Nazis have now announced their plan for enforcing their new German, pagan religion all over the world--a plan by which the Holy Bible and the Cross of Mercy would be displaced by Mein Kampf and the swastika and the naked sword"

Take that Brussel! Hófu svo Bandaríkin krossferð sína gegn heiðni og höfðu sigur. Franklin D. Roosevelt hafði aldrei lesið Hayek, heldur las hann Biblíuna eins og Lincoln og Patton sem gerði það "hvern einasta helvítis dag", og Bandaríkin frelsuðu því heiminn frá heiðingjum á borð við Brussel, sem endurhannað hefur nú myntbandalags-teikningar Þriðja ríkisins frá 1941, þar sem aðildarlönd svæðisins (R-mark zone) yrðu frá byrjun fyrst og fremst Þýskaland (hér undir innlimuð Austurríki, Bohemia og Moravia) og svo Holland, Belgía (og þar undir Lúxemborg sem hafði verið í myntbandalagi við Belgíu frá 1926), Danmörk, Noregur, Svíþjóð, Slóvakía, Rúmenía, Búlgaría, og Ungverjaland. Hin öxulveldin, Ítalía og Japan, myndu hins vegar stjórna sínum eigin útibúum af stórefnahagssvæðum með Spán, Grikkland og Tyrkland undir Ítalíu. Breska pundið var sem sagt af þessum glóbalistum talið af, eins og í dag

Nýr Bank of Europe (Seðlabanki Evrópu) yrði stofnaður. En af "stjórnmálalegum ástæðum" taldi ríkisstjórn Hitlers að það myndi skaða leifarnar af sjálfstrausti hinna hernumdu ríkja ef að sameiginleg mynt yrði látin útrýma eigin mynt landanna frá byrjun. Það yrði því um vissan aðlögunartíma að ræða. En í staðinn yrðu hin hernumdu lönd að samþykkja óafturkallanlegt fastgengi við German Reichsmark. Heimsókn Henri Ardant aðalbankastjóra Société Générale til herra Hitlers, næstum samstundis eftir hernám hins síðar nefnda á Frakklandi, snérist um að undirstrika áhuga franskra föðurlandssvikara á aðild Frakklands að komandi tollabandalagi og upptöku sameignlegrar myntar

Nasismi (Nationalsozialismus) er sósíalismi þar sem fólkið er þjóðnýtt í þágu pólitísks málstaðar. Það þótti hagkvæmara og gefa betri árangur en að þjóðnýta atvinnutækin eins og gert var í Sovétríkjunum. Bæði nasistar og kommúnistar hötuðu þjóðríkið sem manngæskuberandi stofnun, eins og Brussel gerir líka og sem hefur því þegar þjóðnýtt stjórnmálin í álfunni; þau mega aðeins snúast um og lúta að pólitísku hugmyndinni um Evrópusamruna. Öll önnur stjórnmál eru bönnuð sbr. Brexit

ESB-sinnar eru að bakka ríkjum Evrópu út úr þjóðríkjum sínum og inn í imperíal heimsveldi, eins og Hitler bakkaði Þýskalandi út úr Weimarlýðveldi og aftur inn í heimsveldið. Sherman, afsakið, Pershing hershöfðingi hafði rétt fyrir sér: Bandaríkin, Bretland og Frakkland hefðu átt að fara alla leið til Berlínar 1917, hernema allt Þýskaland, láta það undirrita skilyrðislausa uppgjöf að hætti Grants hershöfðingja og síðar forseta Bandaríkjanna, og standa síðan með byssuhlaupið upp að pólitísku höfði þess næstu 75 árin, og láta það éta Weimarlýðveldi með sleif hvern einasta helvítis Pattons-dag. Því miður var ekki á hann hlustað og það kostaði 70 milljónir manna lífið

Í dag óttast Íslendingar að bakk-forysta Sjálfstæðisflokksins selji fullveldi landsins, taki líkamsleifar þeirra og varpi þeim í suðupotta bjána á alþingi, selji landið okkar til útlendinga og sigi innrásarherjum geimvera á okkur, á meðan þeir hafa læst Vestur-Íslendinga úti með því að vilja loka landið okkar inni í nýju esb-sovétríki í smíðum í Brussel; og sem nýlenduforysta Sjálfstæðisflokksins ólm vill framselja land okkar og náttúruauðlindir undir; með orkupökkum endurfæddra nýlendusinna austan Atlantsála. Austrið skal það vera; Ísland nýlenda á ný, ó hvenær kemur esb þú

SUMARHÚSASALA BJÖRNS BJARNASONAR

Í dag skrifar Björn Bjarnason enn eina esb-pottagaldursgreinina um málefni sem honum virðast kær: landssöluna, sem er forsenda orkupakkaveldis Sjálfstæðisflokksins. Dregin er upp frétt af vef DDRDK, sem er systurstofnun DDRÚV og sem Björn var með til að viðhalda sem ráðherra, en sem hann skylduvælir yfir úr öruggri fjarlægð núna. Þar segir hann frá því að frá árinu 1959 hafi Danmörk veitt "útlendingum" undanþágu til að kaupa á sumarhúsi í Danmörku og þar af 2238 undanþágur veitt frá 2007 til 2018

Allan þennan tíma frá 1959 hefur Danmörk ekki heimilað að danskir ríkisborgarar haldi ríkisborgararétti sínum flytji þeir úr landi og neyðist til að taka upp ríkifang þess lands sem þeir hafa til dæmis gift sig inn í. Tvöfaldur ríkisborgararéttur hefur þannig ekki verið heimill fyrir danska ríkisborgara nær allan hluta þess tímabils sem reglurnar hafa gilt: þ.e. frá 1959 til 2018, eða í 59 ár. Fimm prósentur þeirra undanþága veittar voru frá 2007 til 2018 eru þess utan frá núverandi dönskum ríkisborgurum sem hafa lögheimili erlendis og eru ekki búsettir í Danmörku samkvæmt þjóðskrá, d. udlandsdanskere

Undanþágurnar 2238 samanstanda nær allar af þessu fólki (fyrrum og núverandi Dönum) og Norðmönnum sem eru nýríkir, því Noregur er ekki lengur nýlenda Danmerkur. En hann var það, og þess vegna hafa Norðmenn fjölskyldutengsl

Árið 2007 voru veittar 54 undanþágur en í fyrra voru þær 374. Í Danmörku eru um það bil 230 þúsund sumarhús og fjöldi kaupsamninga árið 2016 var 7778. Árið áður, þ.e. 2015, voru veittar 286 undanþágur, þar af voru flestar til Norðmanna. Árið 2013 sóttu 239 Norðmenn um undanþágu, 154 fengu hana en 85 var hafnað. Frumforsenda undanþága er dönsk fjölskyldutengsl og svo hjálpar fyrri nýlendukúgun Dana á vissum þjóðum, og að umsækjendur tali dönsku, séu danskmenningar-kunnandi, hafi leigt sama sumarhúsið mörgum sinnum, og haldið sumarfrí 25 sinnum í Danmörku á síðustu 25 árum

Forsenda Dana fyrir samþykkt Maastricht-sáttmálans var að reglurnar um kaup útlendinga á sumarhúsum væru sérstaklega skráðar þar inn og að Danmörk hefði allan þann rétt sinn óskertan um aldur og ævi. Hún gildir um allar eignir sem ekki er búið í með fastri búsetu allt árið; heilsársheimili

Til stóð að ný hægri ríkisstjórn Venstre með stuðningi Dansk Folkeparti myndi taka þetta mál til endurskoðunar og setja á (0-20 stk) kvóta yfir hversu margar undanþágur -ef yfir höfuð nokkrar- ætti að veita á hverju ári. Málið er farið að hitna það mikið undir dönskum stjórnvöldum. En þeir töpuðu hins vegar kosningunum eins og Sjálfstæðisflokkur er að tapa öllu og selur peningavillimönnum -sem þess vegna geta keypt hér allt upp á vegum Kína- heilu landshluta þess lands sem aðeins við Íslendingar eigum einir. Bálför Sjálfstæðisflokksins heldur því áfram. Öskufallið er næst

Heimildir: ekki DDRDK

Fyrri færsla

Viðskiptastríð: Börnin æðisleg. Kynlíf samt synd


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað á maður að segja Gunnar?

Hjá Sjálfstæðisflokknum er allt falt.

Ergo sum: 

Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn að hóru.

Landið og landsins gæði seld undan fótum þjóðarinnar.  

Sjálfstæðið og fullveldið er einnig falt hæstbjóðanda. 

Hvernig þessi fyrrum glæsti flokkur týndi gildum sínum og hugsjónum er sorglegt.

"Þetta er allt ógeðslegt.  Engar hugsjónir, ekkert, bara blóðug græðgi" sagði Styrmir.

Það eru orð að sönnu.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.8.2019 kl. 17:38

2 identicon

Á sama tíma og USA og UK ætla að efla sín bönd,

þá ætla Engeyjafíflin að tengjast Berlín.

Það er óboðlegt íslenskri þjóð að gerast handbendi þýsku yfirgangseminnar.

Við eigum að horfa til vesturs, en ekki kommakrata hirðarinnar í austri.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.8.2019 kl. 18:12

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ættarvitinn, Símon Pétur.

Ættarvitinn maður.

Kveðja og takk fyrir 

Gunnar Rögnvaldsson, 7.8.2019 kl. 18:20

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Mjög góð grein Gunnar eins og Halldór segir Gunnar Borgfirðingur.

Ég hef engan að spyrja þar sem ég er gestur hér :-) hvar fara kosningar/nafnasöfnun fram hjá Sjálfstæðisflokknum. Held samt að ég treysti betur á Sigmund Davíð.

Kveðja Valdimar.

Valdimar Samúelsson, 7.8.2019 kl. 20:25

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér innlit og góðar kveðjur Valdimar.

Hér er krækjan á undirskriftasöfnun Sjálfstæðismanna:

https://www.xd5000.is

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 7.8.2019 kl. 20:33

6 identicon

Svo skrifaði Björn Bjarnason á síðu sinni 2011,

nú má skipta út nafni Nubo og setja inn Ratcliffe

rétt eins og skipta má út Samfylkingu og setja inn 

Sjálfstæðisflokk ættarvitanna:

Valmynd

Sunnudagur 4. desember 2011

Samfylkingin veitir Huang Nubo þjónustu

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sem ákvað 25. nóvember að veita Kínverjanum Huang Nubo ekki heimild til að kaupa Grímsstaði á Fjöllum sagði í hádegisfréttum RÚV sunnudaginn 4. desember:

„Ég á svolítið erfitt með að átta mig á því hvað verið er að tala um þegar sagt er að leiðbeina eigi í gegnum íslenskt lagaumhverfi. Að sjálfsögðu þarf að fara að íslenskum lögum og anda laganna.“

Ráðherrann vísar þarna til þess sem Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra boðaði í fréttum RÚV laugardaginn 3. desember þegar hún sagði að embættismenn á hennar vegum hefðu verið í sambandi við Huang Nubo og ætlan sín væri að þeir leiðbeindu honum „í gegnum íslenskt lagaumhverfi“ svo að hann gæti fjárfest hér á landi í ferðaþjónustu.

Ögmundur  lýsti undrun á ummælum Katrínar og benti á að ætlaði Huang Nubo sér að leigja Grímsstaði á Fjöllum gildu um það skýr lög. Leigusamningurinn mætti ekki vera lengri en til þriggja ára eða hann væri uppsegjanlegur með minna en árs fyrirvara. Að öðrum kosti þyrfti undanþágu frá innanríkisráðuneytinu.

Þá sagði Ögmundur:

„ Og við verðum náttúrulega að gæta okkur á því að fara ekki að leiðbeina mönnum framhjá íslenskum lögum eins og því miður virðist hafa verið gert í Magma málinu hér fyrir nokkrum misserum þar sem einstaklingur utan hins evrópska efnahagssvæðis lagði sig ofan í sænska skúffu, bjó til skúffufyrirtæki og komst þannig yfir auðlindir á Reykjanesinu. Ég er ekki með neinar getgátur um að menn ætli að fara þessar leiðir en ég vara náttúrulega við slíku.“


Vinstri grænir lutu í lægra haldi í Magma-málinu innan ríkisstjórnarinnar án þess að það hefði áhrif á samstarf þeirra við Samfylkinguna í ríkisstjórn. Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og öðrum forystumönnum er þetta ljóst en þeir hafa allir lýst áhuga á því að Huang Nubo láti að sér kveða í íslensku atvinnulífi.

Margir samfylkingarmenn í trúnaðarstöðum eru nánir vinir Huang Nubos, þeirra á meðal er Tryggvi Harðarson, sveitarstjóri í Þingeyjarsveit, sem sagði í grein í Fréttblaðinu 29. nóvember sl.:

„Umræðan um minn gamla kæra vin Huang Nubo hefur verið með þeim hætti að ég get ekki orða bundist. Fjöldi fólks hefur rægt hann og ætlað honum illar hvatir án þess að þekkja nokkuð til hans eða hafa fyrir því hin minnstu rök. Ég sé mig því knúinn til að andmæla íslenskum mannorðsmorðingjum. Huang er einstaklega ljúfur og traustur einstaklingur, kraftmikill og skemmtilegur. Um það getum við sem höfum kynnst honum náið staðfest. Ég ræddi við Huang góða stund um áform hans þegar ég hitti hann í haust. Hann var mjög spenntur fyrir verkefninu en sagðist jafnframt ekki nenna að standa í neinu orðaskaki við stjórnvöld á Íslandi ef hann væri ekki velkominn til landsins.

Rétt er að geta þess að Huang litli, eins og ég kallaði hann í skóla, er í engri fýlu og eflaust tilbúinn að standa við áform sín ef stjórnvöld sýna til þess einhvern vilja."

Af lokaorðunum má ráða að Tryggvi hefur rætt við Huang eftir að Ögmundur neitaði honum um undanþáguna. Að segja Huang í „engri fýlu“ kemur illa heim og saman við það sem kínverskir fjölmiðlar höfðu eftir honum á fyrsta sólarhringnum eftir að honum barst fréttin um neitun Ögmundar. Huang fór mikinn í samtölum við þessa fjölmiðla, hann var ekki aðeins fúll í garð Íslendinga heldur allan hinn vestræna heim sem hann sakaði um tvöfeldni og rangindi í garð Kínverja.

Tryggva og öðru samfylkingarfólki úr vinahópi kínverska auðmannsins hefur greinilega tekist að sleikja úr Huang fýluna og nú ætlar Katrín Júlíusdóttir að sjá til þess að hann verði leiddur á leiðarenda svo að hann nái áformum sínum. Fullyrða má að einsdæmi sé að íslenskur ráðherra gangi fram með þessum hætti gagnvart erlendum fjárfesti.

Á sínum tíma sameinaði stuðningur við Baugsmenn Samfylkinguna. Allir vita hvernig það fór allt saman. Þá varð Evrópusambandið og evran til þess að sameina Samfylkinguna. Allir sjá hvernig það er allt að fara. Nú er það hins vegar Huang Nubo sem er sameiningartákn Samfylkingarinnar. Þeim er ljúft að nota hann til að berja á Ögmundi Jónassyni og vinstri grænum.

Það er helsta helgarskemmtun innan ráðherraliðs Samfylkingarinnar að ögra vinstri grænum. Sunnudaginn 27. nóvember toppaði Jóhanna skemmtunina með árásum á Jón Bjarnason eftir að hún hafði fjargviðrast út í Ögmund. Nú tekur Katrín Júlíusdóttir sig til og leggur flokkssystkinum sínum til skemmtiefnið.

Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, lætur vel af þessari framgöngu forystumanna flokks síns og segir í bloggi á dv.is sunnudaginn 4. desember:

„Stjórnarandstæðingur í þinginu sem oft á góða spretti kvartaði undan þessu [að athygli hefði beinst frá árásum Jóhönnu á Ögmund á árásir hennar á Jón Bjarnason] á mánudag.  Rökin voru efnislega þessi: Alltaf þegar þið lendið í almennilegum skandal, þá komið þið með annan skandal ofan í þann fyrri sem gerir það að verkum að við þurfum að velja hvorn við setjum í forgang.  Það dreifir athyglinni hjá okkur og minnkar slagkraftinn í okkar viðbrögðum!  Athyglisvert viðhorf og aldrei að vita nema þessi taktík endi í handbókum um pólitíska herfræðilist– tveggja bombu kenningin – sem við gætum líka kallað öfuga smjörklípu.  Stjórnarandstaða við þessar aðstæður veslast upp því hún fær enga athygli frá stjórnarmeirihlutanum sem er of upptekin við æsispennandi atburðarás í sínum eigin röðum.“

Af því að samfylkingarfólk getur aldrei unnt Davíð Oddssyni neins býr Skúli Helgason til eitthvað sem hann kallar „öfuga smjörklípu“. Davíð Oddsson lýsti smjörklípunni í sjónvarpsviðtali við Evu Maríu Jónsdóttur 3. september 2006 og sagði: „Þegar kötturinn hennar ömmu var grimmur og úrillur og vildi ráðast á fugla og veiða mýs, klíndi hún smjörklípu á rófu hans. Þá fór kötturinn að sleikja klípuna, og amma fékk frið.“

Síðan þetta var sagt hafa menn notað orðið „smjörklípu“ um það þegar einhverju er kastað fram til að leiða athyglina frá öðru. Með því að tala um „öfuga smjörklípu“ er Skúli Helgason að draga athygli frá því að Jóhanna Sigurðardóttir beitti einmitt smjörklípuaðferðinni.

Jóhönnu var bent á að hún ætti ekki að beina sérstakri athygli að neitun Ögmundar gagnvart Huang Nubo. Samfylkingin væri með plan B og það kynni að spilla framkvæmd þess ef þrengt yrði um of að Ögmundi. Þá greip Jóhanna til þess ráðs að veitast að Jóni Bjarnasyni með þeim fráleitu rökum að hann hefði kynnt ömurlegar hugmyndir í vinnuskjali nefndar um fiskveiðistjórnun.  Síðar breytti Jóhanna um árásarefni og sagði Jón vinna alltof hægt að endurskoðun fiskveiðistjórnunarlaganna. Við svo búið tók Steingrímur J. að sér að losa Jóhönnu við Jón úr ríkisstjórninni.

Þegar umræðurnar um Jón og stöðu hans voru orðnar óþægilegar fyrir Jóhönnu og ríkisstjórnina var því lekið að það stæðí kannski fyrir dyrum að reka Árna Pál Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, úr ríkisstjórninni.  Það yrði auðveldara að losna við tvo í staðinn fyrir einn eins og þegar Ragna Árnadóttir var rekin í september 2010 af því að Jóhanna vildi losna við Gylfa Magnússon.

Enn skal lýst undrun yfir því að enginn fjölmiðill brjóti til mergjar tengsl Samfylkingarinnar við Huang Nubo. Í erlendum fjölmiðlum efast sérfróðir menn ekki um tengsl Huangs Nubos við kínversk stjórnvöld og þar er litið á fjárfestingarbrölt hans hér á landi sem lið Kínverja í því að koma ár sinni fyrir borð til að styrkja stöðu sína á norðurslóðum.

Einn þátturinn í þessari viðleitni er að sjálfsögðu að eiga greiðan aðgang að valda- og áhrifamönnum í viðkomandi landi. Enginn þarf lengur að efast um að Huang Nubo á greiðan aðgang að forystumönnum Samfylkingarinnar. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur lýst ánægju með áform hans, sérstakur fulltrúi utanríkisráðuneytisins fór með Huang um  landið til að kanna hvar hann ætti helst að láta að sér kveða. Ragnar Baldursson, starfsmaður sendiráðs Íslands í Kína, lét ekki við það eitt sitja heldur gekk með Huang á norðurpólinn. Kristín Árnadóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, núverandi sendiherra Íslands í Kína, tók þátt í blaðamannafundi með Huang Nubo í Peking í byrjun september til að staðfesta ánægju utanríkisráðuneytisins með kaup Huangs á Grímsstöðum á Fjöllum. Þann blaðamannafund sat Lúðvík Bergvinsson lögfræðilegur ráðunautur Huangs, fyrrverandi formaður þingflokks Samfylkingarinnar. Hér að ofan er viðmóti Tryggva Harðarsonar, sveitarstjóra í Þingeyjarsveit, lýst.

Þegar til þessa er litið og þess þrýstings sem beitt hefur verið á vettvangi ríkisstjórnarinnar til að skapa jákvæða afstöðu til Huangs Nubos, til dæmis með minnisblaði frá Árna Páli Árnasyni dags. 9. nóvember, er ekki að undra þótt Ögmundur Jónasson verði hugsi þegar hann heyrir Katrínu Júlíusdóttur lýsa áformum sínum með Huang Nubo.

Kínverjar ætla að láta reyna á það til þrautar hve langt þeir komast innan íslenska stjórnkerfisins að tilstuðlan Samfylkingarinnar. Þeir telja sig eiga hauk í horni að Bessastöðum þar sem Ólafur Ragnar situr en hann réðst á Evrópusambandsríki og Bandaríkin í þágu Kínverja og Indverja í fyrstu viku september sl. þegar honum þótti fjölmiðlar á Bretlandi ýta um of undir tortryggni í garð Huangs.

Nýjustu sviptingar í samskiptum Samfylkingarinnar við Huang sýna að að hálfu Kínverjans hefur snúist um annað en að eignast Grímsstaði á Fjöllum. Kjarni þess er að kanna hve langt Samfylkingin er tilbúin að ganga til að þóknast þeim sem gæta kínverskra hagsmuna.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.8.2019 kl. 21:17

7 identicon

Kannski það sé ættarfylgja engeysku ættarvotanna að sjá aldrei bjálkana í eigin augum?

Kannski það sé þeirra kínverski innviðabanki og belti og braut um alla tíð að hringsnúast sem fífl og mæta ævinlega sjálfum sér í hverjum hálfhring og í mótsögn við sjálfa sig?  

Kannski er það bara þeirra veikleiki, en þeir væru þá menn að meiri að viðurkenna að þeir eru aular.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.8.2019 kl. 21:42

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Símon Pétur, þetta mál lítur ekki vel út í dag og sérstaklega ekki eftir að tímaþynnirinn hefur þynnt forystu Sjálfstæðisflokksins glæra.

Merkilegt að ekkert komi fram þarna um neytendavernd Kínverska kommúnistaflokksins og um áhrif norskra vélabragða á málið.

Áherslur í landssölustríði allra Samfylkinga virðast falla saman. Sönnunarbyrði naflastrengs til Brussels lá greinilega um Kína.

Það hálfa í öllu þessu væri nóg!

Gunnar Rögnvaldsson, 7.8.2019 kl. 22:08

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég sé orðinn lítinn mun á því gamla málaliði sem vann hér heima með síðustu nýlenduherrum yfir Íslandi, og svo hins vegar á núverandi forystu Sjálfstæðisflokksins og þingflokki hans. Við það lið þurfti Jón Sigurðsson að slást alla daga öll árin.

Á sama tíma og þetta forystulið xD og málaliðar þess kemur með klám sitt um neytendavernd pakkað inn í umhverfis-pornó, er kjósendavernd flokksmanna komin í hendur ACER, sem krefst þess að flokkurinn opni fyrir sölu Íslands yfir í Samfylkingarflokkana.

Þetta dettur manni í hug þegar lesið er um nýjustu völdin sem ACER hefur fengið yfir löndum og þjóðum þeirra.

Þetta skal þetta skemmdarverkalið fá borgað fyrir!

Gunnar Rögnvaldsson, 7.8.2019 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband