Leita í fréttum mbl.is

Fjölmiðlaveðurfar endist illa

Theresa May - gettu hvað

Nóbb

****

Sjá "fréttaþvælu" að neðan: , og svo ef að "fjöllin eru að hrynja" (nýjasta netþvælan) þá myndi yfirborð jarðar breytast og sjórinn fossa yfir landmassa jarðar og Kevin Costner einn verða eftir í "vatnslandi" sínu, sem floppaði svo glæsilega í kvikmyndahúsum sömu plánetu

Svo eru menn að setja út á að Biblíusögur séu kenndar í skólum á meðan öpum er fært pennavald í dag. "Til baka til Biblíunnar" get ég hins vegar mælt með. Hún er það sem gerði okkur að því sem menn keppast nú við að rústa; að Vesturlöndum: þ.e. þjóðir, landamæri, þjóðríki, aðgreining valds, þ.e. takmarkað ríkisvald í stað alræðis úrkynjaðra imperíal-heimsvelda á borð við Sovétríki, Evrópusamband, Egyptaland hið forna og Rómarveldi sem rústaði þjóðríkjum

ÖRBYLGJUR

Engin hitabylgja hefur verið í Evrópu, nema í sjónvarpinu. Það komu nokkrir heitir dagar, en engin hitabylgja. Fremur kalt er í Evrópu núna (þ.e. aðeins 12 til 27 gráður, og 35 í Sahara og 67 stiga frost á suðurskautinu), þ.e.a.s fólki finnst kalt eftir nokkra heita daga. Ég bjó þarna í 30 ár og þekki þá menn ágætlega þegar hitabylgjur geisa, því þá fellur fólk í þúsundum, aðallega fólk sem mjög veikt er fyrir, eins og fólk fellur úr kuldum þegar frostavetrar herja. Þá fá franskir stjórnmálamenn venjulega skellinn fyrir það hversu illa er komið fyrir fimmta franska lýðveldi líberalista á fimmtándu ónýtu stjórnarskrá þeirra. Þetta tekst auðvitað aldrei hjá þeim, því það er ólæknandi þversögn í sjálfu tilvistarplaggi líberalismans. Skattar og meiri skattar kalla á meiri og svæsnari byltingar

Síðustu frostavetrar hafa verið notaðir til að útskýra það viðvarandi vaxtarfall sem er í landsframleiðslu evrulanda. Og núna í sumar hafa stærstu prammarnir ekki getað siglt og flutt vörur um þau fáu siglanlegu fljót sem meginlandi Evrópu hefur, og nýtast því vel til að útskýra króníska evrusjúkdóma þeirra hagkerfa sem neyðast til að nota evru sem mynt. Þarna er allt esb-ónýtt, en veðrinu (loftslags"málum") er hins vegar kennt um

MÆLINGAR

Mælaborð fólks og "stofnana" þess (þ.e. heiðnikirkjuveldi háskólanna) yfir næstum hvað sem er, er nú orðið svo stórt að heimurinn, líkaminn, sálin og næstum hvað sem er, hlýtur að vera að farast hvern einasta dag. Maðurinn hefur nefnilega "fundið upp" eldinn á ný

En það er hins vegar eitt sem ég skil ekki. Þeir sem segjast ekki vilja eignast börn vegna umhverfismála og sjónvarpshlýnunar; Af hverju drepa þeir þá ekki sjálfa sig strax fyrst að þeir álíta að heimurinn sé að farast af mannavöldum og að lausnin sé að fólk hætti að vera til. Það skil ég ekki

Við erum því miður með fjölmiðlastórstétt menntaðra on-linebjána í rifnum gallabuxum sem hannar veruleika bæði stjórnarfars, stjórnmála og veðurfars. Næst fáum við því sennilega það sem menn fengu á hippatímabilinu; sjálfsmorðstrúarhópana

Bankatímabilið virkar nú ljósár af samskonar vitleysu í burtu

a) 2003: Allir biðji: bankar okkar frelsa heiminn

b) 2019: Allir biðji: frelsaðu heiminn með því að hætta að vera til. Gakktu í sýndargöfugmennskuflokkinn og fáðu englavængi (e. virtue signaling)

UNDRALÖND

Þar á undan var það dot com bólan sem átti að frelsa heiminn og gera alla ríka. Og Sovétríkin sem liðu undir lok áttu að fá bandaríska Harward-deild í Moskvu, en fengu bara Rússland. Sá "Rússagaldur" var svo flókinn að það tók menntamenn 24 ár að fatta hann; Rússland var bara Rússland. Verslun við Laugaveg á Íslandi átti að geta orðið stórveldi í Japan, þökk sé netinu, en varð það bara ekki. Það undraland, Japan, hrundi árið 1989 svo hrikalega sem undrahagkerfi af asískri útflutningstegund (frá því að segjast vera 16 prósent af heimshagkerfinu niður í 6 prósent í dag), að hrun þess komst jafnvel á forsíður vestrænna dagblaða þremur árum síðar. Kína gæti verið samskonar-hrunið nú þegar. Og ef svo er, þá kemst það ekki í fréttir hér fyrr en fimm árum síðar, vegna fréttrænna trúarbragða

Náttúrbólan sem hýsir ferðamannabóluna er að springa líka. Þá verður aftur gott að vera á togara eða keyra strætó

UPPGJÖR

Í vikunnu kynnti Amazon fjórðungsuppgjör sitt er segir að vöxturinn sem hefur verið og sem tilkominn var með því að sýna helst aldrei neinn hagnað, sé loks að þrotum kominn og hallandi niður verði brautin úr þessu

Það sem fer upp kemur niður. Loftslagsdellan líka. Gréta Thunberg miðill af Blavatskykyni ku nú vera komin í stellingar við Alpafjöll. Hún segist sjá frumeindir með berum augum. Þar mun hún stara Alpafjöllin niður. Hvað kemur næst, er ekki gott að segja. Loftsteinn gæti fallið í höfuð hennar. Hann er að minnsta kosti náskyldur fjölmiðlum okkar í dag; .. hmm já loftsteinn.. ekki svo slæm hugmynd úr þeim sama heila mannsins sem byggði sér bambuskofa til að verjast síðustu ísöld er entist í 200 þúsund ár

KALT STRÍÐ II

Á meðan loftslagsmiðlar koma ekta fjölmiðlum eins og Séð og Heyrt á hausinn, þá er það Hið síðara kalda stríð (Kalt stríð II (KSII)) sem upptekur huga minn mest, næst á eftir orkupakkaþvælu Sjálfstæðisflokksins sem var. Stríð eru nefnilega spennandi, bæði köld og heit. Þau eru hið eðlilega ástand mannsins. Allir ættu því að endurskoða fjárfestingar sínar með þeim augum að þær verði strategískt KSII-þéttar og arðvænlegar. Sem sagt: Kalt stríð milli Kína og Bandaríkjanna og svo þess non-U.S-alignment svarta-péturssvæðis sem menn vita ekki enn hvert er né hvernig verður. Þarna munu líklega verða til nýjar viðskiptablokkir veraldar

ÍSLAND

Þeir sem hafa ekki lesið einstaklega góða og kristal-skýra grein Arnars Þórs Jónssonar dómara í Morgunblaðinu í dag um orkupakkamál-3, ættu að gera það. Hana má finna hér; Fullveldið skiptir máli

Fyrri færsla

Hófu sig yfir lög og rétt, lugu og ljúga enn


mbl.is Óttast áhrif hitabylgju á Grænlandsjökul
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mæltu heilastur Gunnar.

Þetta er dúndrandi góður pistill.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 27.7.2019 kl. 21:04

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér og bukta mig Símon Pétur.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 27.7.2019 kl. 23:12

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Um pisilinn; Símon Pétur þú segir það allra best:)

     kærar kveðjur til ykkar.

Helga Kristjánsdóttir, 28.7.2019 kl. 01:31

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Helga.

Eina loftslagsváin sem er, ríkir á ritstjórnarskrifstofum beggja megin Atlantsála, þar sem vinstrisinnaðir fjölmiðlamenn og ritstjórar eru bókstaflega að kafna úr svekkelsi yfir því að hafa ekki tekist að bola Donald J. Trump forseta frá með tvöfaldri Muellervitnaleiðslu sem (því miður að þeirra mati) reyndist bara vera leiðsla yfir í loftbelginn þá sjálfa. Þetta var þá vestanmegin.

Og svo austanmegin eru þeir að farast úr svekkelsi yfir því að hafa ekki tekist að koma í veg fyrir að Boris Johnson kæmist inn í hús númer 10 í Downingstræti. Þess vegna djöflast þeir svona núna að veðrið í fjölmiðlum er að bræða fjölmiðlana sjálfa.

Þeir sem líta upp og út um gluggann sjá hins vegar bara það sama og síðustu 10 þúsund ár.

Annars hefðu fjölmiðlar beggja megin ála verið fullir af þið vitið hverju. Örvænting þeirra er orðin svona svakalag að heimurinn er sagður vera að farast. En það eru hins vegar bara þeir sjálfir sem eru að farast úr sjálfum sér.

Og ekki bætti úr skák að hæstiréttur Bandaríkjanna gaf Trump rétt á föstudaginn, fimm einróma íhaldsmenn Repúblikana á móti þremur líberalistum Demókrata. Trump má byggja múrinn í suðri með neyðarráðstöfunarfé. Það þýðir að hver nýr kafli sem hann byggir verður kynntur í fjölmiðlum á sex vikna fresti fram að kosningum í nóvember á næsta ári. Stórar og fallegar myndir (big and beautiful) af forsetanum við hlið hvers nýs áfanga munu virka eins og heilt slökkvilið á áhyggjur bandarísks almennings, með fastri áfyllingu um staðfestu hans á sex vikna fresti.

Á sama tímabili mun Barr dómsmálaráðherra tína fram og ákæra einn nýjan Demókrata í hverri viku sem reyndi að blekkja almenning ásamt bandarískum fjölmiðlum sem blekktu hann líka.

Mánuð fyrir kosningar er múrinn svo kominn og engar myndir munu lengur birtast í geðbiluðum fjölmiðlum Demókrata af grenjandi börnum við landamærin, sem Demókratar hafa notað í fjögur ár til að fróa sér og pólitík þeirra á. Það eina sem mun þá sjást er kyrrð, ró og öryggi, og slíkt selur glataðan líberalisma Demókrataflokksins ekki vel.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 28.7.2019 kl. 03:31

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Og hér eru svo nýjar ófréttir frá gjörspilltu Schengen-gatasigtakerfi Evrópusambandsins sem virkar eins og ryksuga á öll verstu element jarðar og gott betur en það. Allt sem þar kemur inn flæðir einnig stjórnlaust hingað upp til Íslands á einn eða annan hátt, þökk sé algjörlega ábyrgðarlausum embættisstjórnmálamönnum Íslands, sem létu land okkar taka þátt í Schengen-blekkingakerfinu:

25. júlí 2019:  The Turkish Foreign Minister Mevlut Cavusoglu has threatened that Turkey will suspend the migrant deal reached with the EU in 2016, until the latter decides to grant Turkish passport holders with visa-free access to the Schengen countries.

During an interview with a Turkish medium earlier this week, Minister Cavusoglu said that the migration agreement would be suspended, only to come into effect again when a visa liberalization agreement is reached with the EU.

"We will not wait at the EUs door. The readmission agreement and visa-free deal will be put into effect at the same time," he said.

The EU signed the readmission deal on migration with Turkey in 2016 as a solution to the number of migrants that flooded Europe at the time, using Turkey as their main route. Aside from roughly six billion euros that the EU allocated to Turkey, the block also agreed to lessen visa restrictions for Turkish citizens.

Þetta er hefnd og fjárkúgun Tyrklands fyrir því að fá ekki að bora eins og þeim sýnist eftir olíu í lögsögu Kýpur. ESB-úrkynjunarveldið er þegar búið að greiða Tyrklandi sex milljarða evra úr vösum skattgreiðenda til að múta því til að halda aftur af fólki sem annars hefði flætt upp varnarlaust, hálfgjaldþrota og algjörlega getulaust meginland taparanna í Evrópu: Fréttatilkynningin öll er hér

Hmpf!

Gunnar Rögnvaldsson, 28.7.2019 kl. 08:12

6 identicon

Og ég sem hélt að það væri hægt að mæla og reikna.

Spyrjum að leikslokum....

Jón Logi (IP-tala skráð) 28.7.2019 kl. 10:17

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Jón Logi.

Já já. Það er alveg hægt að reikna. 

Til dæmis settist formaður Sjálfstæðisflokksins niður og reiknaði ískaldur og ískalt út að Ísland yrði að borga skuldir óreiðumanna. Svona eru flestir útreikningar hans, sérstaklega þeir sem ætlað er að hljóma ábúðar- og ábyrgðarmiklir í augum sakleysingja. Þeir enda alltaf illa og standast ekki. Enda er flokkur hans að hverfa.

Veðurstofan reiknar allan sólarhringinn og tekst með 50/50 nálvæmni að spá fyrir um hluta veðurs og loftslags 36 tíma inn í framtíðina á smábletti á jörðinni og næstum aldrei í Borgarfirði í sumar.

Reiknivélar eru þakklát tæki. Þær sjúga til sín það sem í þær er sett og spýta niðurstöðum út. Þvæla inn, þvæla út. 

Isac Newton reyndi fyrir sér í kauphöllinni en yfirgaf hana sem niðurbrotinn maður. Hann sagði að þó svo að hann með fullkomnu öryggi gæti reiknað út gang himintungla hundrað þúsund ár inn í framtíðina, þá gæti hann engan vegin reiknað út hvað menn gerðu í kauphöllinni á næstu þremur mínútunum.

Það er ekkert veður í geimnum, og að spá fyrir um hvað milljarður hausa talandi og hugsandi á 400 á tungumálum geri á næstu mínútum í kauphöllinni, er barnaleikur miðað við það að reyna að reikna út veður- og loftslag smábletts á jörðinni, lengra en fimm daga inn í framtíðina. Lengra nær þessi þvæla um breytingar loftslagmála 0,04 prósenta gufuhvolfsins ekki. Hún er fullkomin þvæla af allra verstu sort. Rusl inn og rusl út.

Aðeins fólk með hengilmænuheila hlustar á þvælu vísindamanna -sem allir vilja halda vinnu sinni og fá laun- um loftslagsmál. Þau mál er ekki hægt að vita.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 28.7.2019 kl. 13:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband