Leita í fréttum mbl.is

Umferð tekin að þyngjast frá Valhöll

Þetta er að gerast af því að íslenska þjóðin álítur að um Titanic sé þar að ræða. Og þjóðin veit að þeir sem láta sig vera fyrstu ættar farrýmisfarþega um borð í því skipi, velja ávallt að lýsa yfir vantrausti á ísjökum, sérstaklega borgarísjökum

Það eru þó enn 20 prósentur eftir af skipinu og þeim ber því að stúta sem fyrst, svo að frændi 1B verði glaður. Þetta segir 3B-maðurinn í brúnni að sé leiðin til leiðarenda. Að lýsa yfir vantrausti á borgarísjökum. Þá hverfa þeir, eins og það breska Texas sem er að yfirgefa ESB, eins og lávarðurinn Black af Massey Ferguson bendir á. En meðan á stími stendur, segir 2B að þjóðin eigi að borða kökur

Íslenska þjóðin, sem flokkurinn í tvígang á tíu árum hefur lýst vantrausti á, veit nú með óbilandi öryggi að hún á að forða sér frá borði. Þess vegna er umferð tekin að þyngjast frá Valhöll

Öll ríkisstjórnin hefur einnig lýst yfir vantrausti á þjóðinni og landi hennar; lýðveldinu Íslandi. Það er óþolandi, og verður ekki liðið

Fyrri færsla

Minnsta fylgi Sjálfstæðisflokksins síðan 2008 !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Gunnar.

Væri ekki öllu nær að vísa
til MV Wilhelm Gustloff sem sökkt var
30. jan 1945?

Með RMS Titanic fórust 1.500 en með MV Gustloff
ekki færri en 9.400 og miklu sennilegra að
um 11.000 hafi farist með skipi þessu.

MV Wilhelm Gustloff lagði upp frá Köningsberg.

Það gerðu fleiri því talið er að Rauði herinn hafi
ekki tekið færri en 2 milljónir manna í Köningsberg og
í nágrannahéruðum og haft á braut með sér í þrælkunarbúðir
í Sovétrikjunum.

Í þessum mannskæðu áföllum Þjóðverja þá var
samúðin á því stigi að fáir vita yfirleitt nokkuð
af þessari sögu og fer nú sem jafnan áður að
það eru sigurvegarnir sem skrifa hana; þeir verja hana
með kjafti og klóm og vei þeim sagnfræðingi sem lætur
sér detta í hug að andmæla viðteknum skoðunum.

Enginn ágreingur er um að MV Wilhelm Gustloff
er mesta sjóslys sögunnar.
(það sem kemur næst er þegar ferja frá Filippseyjum sökk,
Doña Paz, 4.386 fórust eða meira en helmingi færri
en fórust með MV Wilhelm Gustloff sem þó fæstir hafa nokkru
sinni heyrt nefnt fyrri)

Svo segja menn að dauðinn fari ekki í manngreinarálit!

Hvers vegna þýzka nornin velur að halda
þessum staðreyndum leyndum öllu og öllum er mér hulin ráðgáta.
 

Húsari. (IP-tala skráð) 3.8.2019 kl. 11:50

2 identicon

Allt frá atkvæðagreiðslunni á þingi um Icesave III

hefur öllum mátt vera það augljóst að Bjarni Junior og Steingrímur Joð hafa verið í ESBísku samtryggingarbandalagi.  Atkvæði greitt D er atkvæði greitt V, kommabúrakrateríi embættismannahyskisins.  Bákn þess telur nú rétt um 40.000 manns á launaskrá 300.000 manna þjóðar, sem er skattpínd til að halda þessu sívaxandi bákni uppi.  Það sér það hver heilvita maður að þetta helvíti getur ekki gengið mikið lengur.

Að Guðlaugur Þór stæri sig nú af því, að "innleiðungarhalli" að færa tilskipanir ESB í íslensk lög hafi aldrei verið lægri, segir allt um það hvers lags ESB kommakraterís flokkur Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn.

Það er því engin furða að sjálfstætt fólk flýi þetta hripleka ESB fley sem Valhallar fleyið er orðið.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 3.8.2019 kl. 12:31

3 identicon

Hvað veldur því eiginlega að forysta Sjálfstæðisflokksins, þingmenn og djúpríkið, hneigist svo mjög til þess, að Ísland verði undir yfirráðum Þýskalands?  Nánast sem leppríki Þýskalands.

Það voru Bandaríkin sem studdu okkur til sjálfstæðis 1944.

Það voru Bandaríkin sem studdu okkur til útfærslu landhelginnar.

Af hverju er forysta Sjálfstæðisflokksins og djúpríki kommakraterís hinna 40.000 gegn okkur hinum, nú alfarið sem skækja Þýskalands?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 3.8.2019 kl. 13:46

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Húsari.

Húsari, það er vegna þess að eingöngu um borð í Titanic er hægt að finna hálfbaunaveldi fyrsta frarrýmisfarþega sem birta raðdómgreindarskert þvaður um tunglferðaneytendaverndarorkustefnu Evrópusambandsins í loftslaginu sem er ekki á Mars, séð með uppgjafaraugum landssölumanna í Icesave gúmmíbuxum í Plebbahöll.

Já, Don Thieme hjá flotaakademíu Bandaríkjanna minntist á Wilhelm Gustloff sem mesta sjóslyss sögunnar, þegar hann skrifaði um Varsjáryfirlýsingu Donalds J. Trump, sem forsetinn flutti er hann heimsótti Pólland sumarið 2017 - og takið eftir - á undan Þýskalandi!

En þessa dagana minnast Pólverjar þess að 75 ár eru liðin frá uppreisninni í Varsjá, þar sem meira en 200 þúsund Pólverjar voru drepnir af Þjóðverjum á 63 dögum og borgin lögð í rúst. Uppreisn Pólverja var stærsta andspyrnuviðnám nokkurrar hersetinnar þjóðar í allri styrjöldinni. Sú allra mesta.

Hið sama glataða og steingelda Þýskaland hefur nú þegar hlussað sér sem nýslegin og krónísk ófreskja yfir allt meginland Evrópu á ný. Og þar á það nú þegar í útistöðum við flesta nágranna sína. Þjóðverjar þjarma að Pólverjum og Austur-Evrópu úr vestri, plokka af þeim nýfengið fullveldið með þeim skömmtum sem Valhöll vill svíða og brenna Ísland niður með, og þeir kúga Suður-Evrópu allt hvað þeir geta og flá af þeim hagkerfin með aðstoð rotinna stofnana ESB, sem Þýskaland er með í rassvösunum. Og Þýskaland gerir allt sem það getur til að þjarma svo að bresku þjóðinni að hún bíði sem allra mestan skaða af því að hafa dirfst að heimta fullveldi sitt á ný. Á sama tíma gera Þjóðverjar einnig allt sem þeir geta til að eyðileggja NATO innanfrá, og vísa þannig með sínu ömurlega fordæmi öðrum þjóðum meginlandsins, á fastri og læstri sporbraut um það, veginn til nýrra hörmunga.

Ballið er byrjað aftur. Og það mun aldrei enda. Aldrei. Og ef eitthvað er, þá flýtir tilvist Evrópusambandsins mjög svo fyrir því, eins og allir þeir sjá sem augu hafa, og vilja hafa opin. 

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 3.8.2019 kl. 13:48

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Símon Pétur.

Amen!

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 3.8.2019 kl. 13:49

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Lýðveldið Ísland þarf að koma sér upp vopnuðu þjóðvarðliði, svo að þjóðin geti varist ríkisstjórninni í framtíðinni.

Gunnar Rögnvaldsson, 3.8.2019 kl. 13:51

7 identicon

Rétt Gunnar, og það væri í anda Thomas Jefferson, að við hefðum réttinn til að verjast sívaxandi ofríki og valdaofbeldi íslenskra leppa hinnar drottnunargjörnu þýsku hlussu sem lagst hefur sem mara yfir meginland Evrópuskagans, botnlanga Asíu.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 3.8.2019 kl. 14:29

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Rétt í þessi barst ritsímaskeyti frá Sviss:

I. Ríkisstjórn og forseti segja að engar horfur séu á því að Sviss semji á fjórfrelsis-EES-kjörum um neina samninga við Evrópusambandið um samskipti og viðskipti milli svissnesku þjóðarinnar og umboðs- og þjóðlausra stofnana ESB. Engar horfur. Ekkert verði samið um sem er ekki þágu hagsmuna Sviss. Og allra síst um orkupakka ESB. | Reuters

II. ESB felldi um daginn niður kauphallargagnkvæmni við Sviss til að hræða Bretland. Sviss svarði með því að hóta að gera alla svissneska pappíra í eigu fólks og fyrirtækja í lögsögu ESB verðlausa, utan Sviss. Aðeins með því að eiga viðskipti með þá í svissneskum kauphöllum og í svissneskri lögsögu væri hægt að varðveita verðlögmæti þeirra. Veltan í kauphöllum Sviss hefur því þotið upp um 45 prósent. | Reuters

FULLT STOPP

Gunnar Rögnvaldsson, 3.8.2019 kl. 14:46

9 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Umferð þyngist enn meir frá Valhöll, með degi hverjum. Það kemur þó ekki að sök, því engin umferð er til Valhallar, meðan niðurrifsöflin ríða þar röftum. Fráfarandi umferð hefur því um ýmsar leiðir að velja.

 Góðar stundir, mð kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 4.8.2019 kl. 00:36

10 identicon

Vér skulum nú minnast þeirrar háðungar sem varð á 90 ára afmælishátíð Sjálfstæðisflokksins sem fram fór í einu vesælu partítjaldi á bílaplani Valhallar.

Þar voru fáir, enginn var þar Davíð, en tvær puntudúkkur nefndar þar sem heiðursgestir

Kola-Kata formaður Vinstri græna kolabandalagsins og Heiða varaformaður Icesave og ESB Samfylkingarinnar.  Þar voru og þær tvær, bimbógellur Junior Bjarna, Áslaug sérfræðingur í engu nema hvítvíni og humri og Þórdís Kolbrún Reykás.  Fátt var þar fleira, en þó ættarvitarnir Björn Bjarnason og Halldór Blöndal.

Sumsagt:  Junior minna hot, en þó með tvær puntudúkkur og aðrar tvær heiðurs puntudúkkur og svo tvo ættarvita, auk einhvers slæðings sem ranglaði stefnulaust um í litla partítjaldinu á Valhallar bílaplaninu. 

Fremur var það klént á að horfa og angaði af nísku og smámennsku vesalings afmælisbarnsins og hversu hörmulega er komið fyrir hræinu.

Stór ESB fáni blakti þar yfir.   

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 4.8.2019 kl. 14:24

11 identicon

Afsakið, mér láðist að geta sérfræðikunnáttu ÞKRG, sú er engin.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 4.8.2019 kl. 15:00

12 identicon

Sæll Gunnar.

Þakka svarið!

Ætla mætti að íslensk stjórnvöld
standi í sporum dauðadæmds manns,
þar sem orkupakki 3 er annars vegar,
sem spurður er þeirrar spurningar
hvort heldur vilji hann vera skotinn,
hengdur eða steiktur í rafmagnsstól. (
gerðist nokkrum sinnum bókstaflega,
gleymst að bleyta svamp og annað smávegis)
Svörin jafn fátækleg og áður og reyndar alls engin;
hefur þegar verið gengist við þessu og ekki aftur snúið?

Húsari. (IP-tala skráð) 4.8.2019 kl. 18:22

13 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hér er aldeilis fjörið!

En fróðlegt þetta alvarlega mál frá Húsara, um MV Wilhelm Gustloff.

Kapteinninn Marinesko á sovézka kafbátnum S-13, sem sökkti skipinu, fekk ekki útnefningu sem hetja Sovétríkjanna, var jafnvel lækkaður í tign, en seinna hækkaður á ný í kapteinstign, en merkilegt er þetta í Wikipediugrein um endalok Gustloffs:

Marinesko was posthumously named a Hero of the Soviet Union by Mikhail Gorbachev in 1990.[29]

Já, einmitt, af honum!!!

Jón Valur Jensson, 5.8.2019 kl. 00:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband