Leita í fréttum mbl.is

Viðskiptastríð: Börnin æðisleg. Kynlíf samt synd

Mættur á staðinn: febrúar 2017. Bandaríska þjóðin pantaði jarðýtu. Og hún fékk jarðýtu. Og þegar jarðýtan Trump mætir á staðinn, þá hristist plánetan og blómavasar líberalista skjálfa eins og þeir sjálfir skjálfa við stássborðin, og heimsmyndir glóbalista glamra á veggjunum. Jarðýta er jarðýta. Það er galdurinn við þær: þær virka. Jimmy-Stewart-týpur stjórnmálamanna geta hins vegar ekki verið jarðýtur. Þeir hafa það ekki í sér. Þess vegna pantaði bandaríska þjóðin Trump

****

Það var, að ég held, bara einn hagfræðingur sem var með allar tölur yfir það sem er að gerast í dag réttar árið 2010, og það var Michael Pettis. Hann er eini hagfræðingurinn sem ég veit um sem skilur alþjóðleg viðskipti rétt. Skilur milliríkjaviðskipti rétt. "Alþjóðleg viðskipti" eru þó yfirleitt rangnefni. Þau heita milliríkjaviðskipti og þau þurfa alls ekki að vera "alþjóðleg". Alþjóðleg viðskipti eru venjulega böl, en milliríkjaviðskipti geta verið blessun og eru oft blessun. Þau eru þó ekki "réttindi", heldur forréttindi

Árið 2010 sagði Pettis að viðskiptastríð væri óhjákvæmilegt. En hvers vegna sagði hann það? Jú, heilabú glóbalista er þýsk-kínversk sovétframleiðsla, þar sem viðskiptahalli er álitinn synd, en viðskiptahagnaður er álitinn dyggð

Þetta svarar til þess að þýsk-kínverska spilaborgin segi að kynlíf sé synd, en að börnin sem koma út úr því séu blessun. Og spilaborg þessi vill bara fá börnin, en ekki svitapolla kynlífsins

Viðskiptahallalöndin skaffa eftirspurn, á meðan viðskiptahagnaðarlöndin uppskera eftirspurn

En það er komið babb í bátinn; Ekkert kynlíf = engin börn = engin eftirspurn. Þeir sem búa til börnin hafa ákveðið að hætta að afhenda þau til Þýskalands og Kína

Trump skilur þetta og sagði í kosningabaráttu sinni að hann myndi taka á málinu. Hann er eini stjórnmálamaðurinn sem þorir að segja það sem hann hugsar og gera eitthvað í málunum. Og nú eru allir sammála Trump og bandaríska þingið mest

Forsenda alls þessa er að milliríkjaviðskipti séu í jafnvægi. Og þess vegna heitir hitamælir þeirra viðskiptajöfnuður. Forsenda "alþjóðlegra viðskipta" hefur ávallt verði sú að þau séu í jafnvægi. Og það eru þau ekki. Þau eru því að eyðileggja þann heim og stofnanir hans sem Bandaríkin byggðu upp frá og með 1945, er þau reistu heiminn við úr rústum síðustu glóbalista

Ég sagði að alþjóðleg viðskipti væru slæm. En hvers vegna segi ég það, fyrst að ég segi að milliríkjaviðskipti séu oft blessun? Jú vegna þess að alþjóðleg viðskipti (og reyndar öll alþjóðleg "samvinna") byggir ávallt á forsendum lægsta sameiginlega nefnara þeirra. Dæmi: krypplingurinn Þýskaland, sem ófært er um að stunda kynlíf (skapa eftirspurn), skilgreinir allt Evrópusambandið, allt evrusvæðið og allt orkubandalag ESB. Krypplingur ræður för. Það sama gildir um Sameinuðu þjóðirnar, þar sem stór hluti þjóðanna þar eru einræðisherraríki og krypplingar

Aðgerðir Trumps í gær, þess efnis að stimpla Kína sem gengis- og gjaldmiðilsfúskara -samkvæmt skilgreiningu þeirri sem Obama fékk samþykkta á þingi Bandaríkjanna en þorði ekki að nota- eiga mun betur við um Þýskaland, ESB og evruna, en um Kína. Evrusvæðið hefur notað 36 prósent gengisfall evrunnar ásamt neikvæðum vöxtum til að reyna að líma og klístra evrusvæðið svo saman að það myndi ekki leysast upp í kjölfar efahags,- ríkisskulda,- og fjármálakreppunnar sem skall á 2008, og varir að miklu leyti enn á evrusvæðinu. Þetta gerði Þýskaland til þess að geta haldið áfram að vera krypplingur á framfærslu annarra. Þýskaland er því með stærsta viðskiptahagnað nokkurs lands í heiminum og hann er illa til kominn. Allt ESB og evrusvæðið er með krónískan viðskiptahagnað við útlönd. Bandaríkin og Suður-Evrópa borga og bera þyngstu kynlífsbyrðarnar

En þar sem Kína fylgja einnig strategísk og geopólitísk vandamál, þá ákvað Trump að slá fyrst til þar, en ekki í Evrópu. Hún er því næst í röðinni

Það verður ánægjulegt þegar Trump tekur Þýskaland á beinið og skrúfar evruna undan því þannig að gengi þýska marksins yrði eðlilegt á ný; þ.e. 80 prósent hærra en falsað gengi þýsku evrunnar, sem ríður um heiminn á bökum fárveikra hagkerfa evrusvæðis. Þá getur Þýskaland ekki lengur notað ESB sem sogrör ofan í stjórn,- valda,- og varnarlaus lönd evrusvæðis sem föst eru í handjárnuðu gengisfyrirkomulagi við það með evru og alræðisstofninum hennar

Michael Pettis sem rak punkbar í Kína, en sem ríkisstjórnin auðvitað lokaði, kenndi og kennir kannski enn við háskóla þar. Fyrirlestur hans um Kína á hinum gamla vinnustað Alberts Einstein, má sjá hér. Og hlaðvarp þar sem hann segir sannleikann um Kína, ESB og heiminn í sívaxandi alþjóðavæðingu, með tilliti til áhrifa umframsparnaðar landa (nýtt fyrirbæri í sögunni), má hlusta á hér:

1. Michael Pettis on the mechanics and politics of trade (framework)

2. Michael Pettis on the Chinese economy (um "fríverlsun")

Ef Pettis fær ekki Nóbelsverðlaunin í hagfræði á næstu árum, þá eru sú verðlaun varla til mikils gagns fyrir veröldina

Fyrri færsla

Ósiðareglur Sjálfstæðisflokksins


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir þennan athyglisverða og upplýsandi pistil Gunnar.

Ekki hvað síst finnst mér sláandi eftirtektarvert það sem segir um Þýskaland sem "sogrör."

Hvernig þjóðríkjum, einkum suður evrópskum og einnig austur evrópskum, datt í hug að samþykkja að leyfa Þjóðverjum að soga allt til sín, er með algjörum ólíkindum, svona svipað og þegar ríkasti maður Bretlands fær að kaupa hér upp jarðir svo tugum skiptir.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 6.8.2019 kl. 20:50

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Símon Pétur

Auðvelt svar er til við því Símon: löndin höfðu álpast til að skrifa undir ESB-pakkana.

Þú manst hvernig IceHot1-menn hugsa. Þeir halda alltaf að þeir séu að missa af einhverju. Þegar þannig menn sjá lönd sem ganga um með hækjur, sökum þess að ESB-aðildin hefur mölbrotið þau, þá hlaupa þannig menn heim og segja: mamma mamma!, allir eru með hækjur í ESB, ég verð að frá hækjur líka!

"Það gerðist bara á nokkrum sólarhringum, þegar átti að fara að loka stofnskránni og mikill fjöldi annarra(!) bandamanna okkar en Bandaríkjamenn ákvað að vera með, að við ákváðum að vera með,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í í samtali við Morgunblaðið, 1. júlí 2015

Þetta var annað dæmið um IceHot1 raðbilun af verstu sort.

Austur-Evrópa hefði gengið í hvað sem var þegar Sovétríkin féllu og Berlínarmúrinn féll frá austri til vesturs og myndaði sovétpakkann frá Maastricht: Maastricht-sáttmálann 1992.

En þá lifnaði nú heldur betur yfir sósíalistum Evrópu, því þar sáu þeir strax yfirríkis-möguleikana á myndun nýs sovétríkis sem þeir myndu stjórna löndum og sem ekki voru til staðar þegar EB var bara gamaldags ístruklúbbur áttavilltra hægrimanna með vindil, og bara venjulegt hlussulegt tollabanalag.

Glóbalistar trúa því að þeir verði étnir síðast, eða svo lengi sem þeir hafi útlimi annarra til að fórna fyrir málstað sinn, sem bæði er glataður og tapaður.

Heimurinn endaði ekki með falli múrsins. Gömlu reglur Gamla testamentisins gilda því enn.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 6.8.2019 kl. 21:32

3 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Usa græddi liklegast hv mest a fyrri og seinni heimsstyroldinni og hafi þ reist heiminn ur rustum eftir 1945 að þa voru þ rustir sem þeir sjalfir asamt Nasistum enda lystu þeir sig hlutlausa a meðan usa grædi a ta og fingri a hormungum Nasista enda sjalfir að Stærstum hluta ÞJOÐVERJAR. 

USA v a kafi i þessu sjalfir og studdu við N asista hreyfingu Hitlers m raðum og dað svo lengi sem þ græddu a astaniunu. 

Af hverju v 70 prosent af gullf heimsins kominn undir stjorn USA eftir að seinni heymstyroldinni lauk ??

Hvaðan kom það gull. ?

Hver utv Nasistunum olouna og sa til þess að þ vantaði hvergi dropa !

I skiptum fyrir hvað ??

Astor hotel fundurinn.. Fundur Nastista hreyfingarinnar i Usa.

Hver mætti þar ?

Svar .. FORSJORI ,, TEXACO ,  OLIU FYRIRTÆJISINS.

Kv

Lig

Lárus Ingi Guðmundsson, 6.8.2019 kl. 22:01

4 identicon

Takk fyrir snilldarsvar Gunnar

Hló mjög, einkum þessu um mamma, mamma

allir eru með hækjur í ESB  

Bjarni Benediktsson Junior er ESB asni.

Veit ekkert hvert hann er að fara,

samt eltir öll ESB þingmanna tossahjörðin hann.

Haltir elta þar blindan

og þeir heyra ekkert, svara engu.

Dauðir til allra skilningsvita os skynfæra.

Tossahjörðin er á leið að stórri gjá

... úpps þar hrundi hún, hangandi í hala BB Jr.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 6.8.2019 kl. 22:02

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Lárus.

Þér finnst kannski að Þýskaland, Ítalía, Japan og öxul-bandamenn þeirra hefðu átt að "græða" á því að leggja heiminn í rúst og standa fyrir 70 prósentum af því mannfalli sem varð í styrjöldinni, sem kostaði um það bil 70 milljónir manna lífið. 

Ríkisskuldir Bandaríkjanna jukust frá 42 prósentum árið 1941 og upp í 120 prósent 1945 og frá og með þá þurftu þau að sætta sig við að eyða 5-15 prósent af landsframleiðslu sinni ár hvert til að koma í veg fyrir að Sovétríkin hámuðu restina af hinum sæmilega frjálsa heimi í sig, sérstaklega Vestur-Evrópu. 

Athugaðu vinsamlegast að erfitt er að átta sig á því sem þú ert að reyna að segja vegna þess að þú virðist ekki kunna að skrifa. Þú gætir reynt að vanda þig betur.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 6.8.2019 kl. 22:14

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Símon.

Bjarni er bara venjulegur hummari, sem segir humm og aftur humm, eins og útrásarvíkingar voru þekktir fyrir. Flestir, en þó ekki allir, héldu þess vegna að þeir væru yfirnáttúrlegum hæfileikum gæddir, vegna þess að þeir sögðu aldrei neitt nema humm.

Gunnar Rögnvaldsson, 6.8.2019 kl. 22:18

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Formaður og þingmenn Sjálfstæðisflokksins virka eins og öflugt fuglahræðukerfi á kjósendur. Aldrei hefur jafn öflug atkvæða-fæla staðið fyrir flokknum og núna.

Á öllum fundum með flokknum brennur sú spurning heitast á flokksmönnum hvort að forystu Sjálfstæðisflokksins sé orðið svona illa við það sem forfeður okkar afhentu henni sem sjálfstæðu og fullvalda lýðveldi Íslendinga.

Mikið hlýtur þessi kratíska og alþjóðlega Valhallar-pest að fyrirlíta land okkar og þjóð.

Gunnar Rögnvaldsson, 6.8.2019 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband