Mánudagur, 10. febrúar 2020
Bandaríkjamenn næstum ofsaánægðir með efnahaginn undir Trump - AKK segir af sér [u]
Upptaka frá síðasta fimmtudegi: Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna þakkar starfsliði og þingmönnum fyrir vel unnið starf við að verjast og sigra gerræðislegar pólitískar ofsa-ofsóknir á hendur honum sem forseta Bandaríkjanna, dulbúnar sem stjórnmál, en sem reyndust einungis vera samsæri trylltra stjórnmálamanna, rotinna embættismanna og fjölmiðla
****
1) Rússar, Rússar, Rússar undir hverju rúmi! 2) Mueller, Mueller, Mueller "rannsóknin" á Rússaruglinu og 3) Úkraína, Úkraína, Úkraína bla bla var hin fullkomna þvæla Demókrataflokksins sem Barack Obama eyðilagði með því að enginn maður með fullu viti gat samsvarað sér með þeim flokki lengur, nema hann sjálfur og 35-ára löng Clinton samsteypa fjármála- og bankamanna. Elítuklíka sem hendir pappírum um loftin blá á milli landa og byggir lönd sín niður en ekki upp. Þrjú og hálft ár af ofsóknum á hendur Donald J. Trump eru nú liðin. Og þar með líka gegn kjósendum hans sem Obama-Clinton-FBI-gengið sagði á bankamannafundi með Wall Street að væru fyrirlitlegt fólk
Þessar ofsóknir sýna að Demókratar eru of heimskir til að vera í stjórnmálum lengur, þökk sé þvælustjórnmálum Obama sem Trump hefur að miklu leyti rúllað til baka. Spyrjir þú Bandaríkjamann að því í dag hvað hann sé, þá segir hann fyrst að hann sé Bandaríkjamaður, en ekki kyn, kynþáttur, hommi, lesbía eða prófessional fórnarlamb sjálfs síns. Slíkt auðkennarugl kemur í síðasta sætið ef það þá yfir höfuð er til lengur. Það var þetta metoo-auðkennarugl sem Obama og Clintonkonan stögluðust á og opnuðu þar með landamærin inn í helvíti til að hengja sig í. Donald J. Trump er nú að loka þeim landamærum. Hvort að Demókratar lokist inni í sínu eigin helvíti, er orðið frekar líklegt, sé horft til galematís frambjóðenda hans, sem eru einn olígarki, nokkrir marxískir kjánar (hraðfara vinstrimenn) og einn líberalisti (hægfara vinstrimenn, kallaðir frjálslyndir eða jafnaðarmenn)
Mynd: Gallup
Aldrei áður hefur ánægja Bandaríkjamanna með efnahag sinn mælst eins mikil og núna. Tæplega 60 prósent þeirra segjast hafa það efnahagslega betra en fyrir ári síðan. Aðeins 20 prósent segja hið gagnstæða. Þessi mæling Gallup var framkvæmd á tímabilinu 2. til 15. janúar 2020
Mynd: Gallup
Um það bil 75 prósent Bandaríkjamanna vænta þess að efnahagur þeirra á þessu ári verði enn betri. Þessar mælingar Gallup hófust árið 1977. Aldrei áður frá upphafi þeirra hafa Bandaríkjamenn verið eins bjartsýnir á efnahag sinn. Aðeins 12 prósent gera ráð fyrir að staða þeirra versni
uppfært mánudagur, 10. febrúar 2020 kl. 18:41:48
AKK SEGIR AF SÉR Á MEGINLANDI TAPARANNA
Á meginlandi taparanna í Evrópu sagði frú skynlaus Annegret Kramp-Karrenbauer arftakaafkvæmi Merkels af sér sem (ókjörinn) erfingi hennar sem kanslaraefni CDU-flokksins í komandi kosningum í Þýskalandi. Fyrir tilstilli Angelu Merkels varð AKK gerð komandi arftaki hennar er Merkel í fyrra tilkynnti að hún myndi ekki gefa kost á sér á ný. Útbreitt óskynbragð á stjórnmál, kjark,- getu,- og hæfileikaleysi ásamt málinu í Thuringia í síðustu viku, eru helstu orsakavaldar ákvörðunar AKK. Það eina sem AKK hafði til brunns að bera var að kunna tilskipunina Segðu sjibbólet!
En með tilskipun (diktati) Merkels í Thuringia í síðustu viku, þar sem réttkjörinn og AfD-studdur forseti þess sambandsríkis sagði fyrir hennar tilstilli af sér eftir aðeins einn dag í embættinu, opnaði Merkel nýja braut fyrir þýska SPD-sósíaldemókrata, og fyrir stórflótta hægrimanna úr flokki hennar sjálfrar yfir í AfD. Og sjá; opnaðist þar líkkista þýskra græningja líka
Vikublaðið og vefútgáfan Junge Freiheit, þar sem rithöfundurinn Frederick Forsyth stingur stundum niður penna, er ekki hrifið og enn síður er Alexander Mitsch þingmaður CDU ánægður með "Linkskurs" DDR-vinstripólitískt daður Merkels. Greinin "Kurs in den Untergang" um CDU-flokks-brunarústir Merkels er einnig fróðleg lesning
Þarna í Thuringia urðu kaflaskil í þýskum stjórnmálum og Angela Merkel hlaut sama örlagadóm og AKK; sem frú clueless. Það er því afar passandi að AKK vilji samt halda áfram sem varnarleysismálaráðherra Þýskalands á meginlandi taparanna
Fyrri færsla
Pólitískar ofsóknir góða fólksins og drepsóttir kommúnismans
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 8. febrúar 2020
Pólitískar ofsóknir góða fólksins og drepsóttir kommúnismans
Á sama tíma og pólitísku ofsóknirnar á hendur Donald J. Trump fyrir að vera Trump og tala eins og Trump náðu hámarki, eru af sama "góða fólki" engar spurningar settar við það, að erfiðara er að fá réttar og gagnlegar upplýsingar um krónískar útflutningsdrepsóttir Kína, en það var að fá réttar upplýsingar um bráðdrepandi hungursneyðar hins sama alblóðuga kommúnisma í Sovétríkjunum og hjálendum þeirra á sínum tíma
Enginn þorði að setja fingur á Kína, nema Donald J. Trump. En nú eru allir menn með heila sammála honum þar - og í Miðausturlöndum líka þar sem Vesturbakkinn og sendiráð í Jerúsalem reyndust á engan hátt mikilvæg atriði fyrir friðsamlegri sambúð þjóðanna þar. Sleggja í óhlutfallslegri stærð bíður Írans haldi það sér ekki á mottunni, og það veit Íran núna. Hið sama gildir um Evrópu sem áður en Trump kom, sá og sagði heimtaði að Bandaríkin hefðu meiri og dýpri frumskyldum að gegna þar, en Evrópa hefði gagnvart sjálfri sér. Þar reif hann í eyru manna, öskraði þetta er bullshit í þau, og allir eru sammála um að þess var fyllilega þörf
Það kostar mikið að vera hugrakkur eins og Trump. Þess vegna eru svo fáir sem eru það. Borgaralegt hugleysi er því næstum allsráðandi. Huglaust fólk ofsækir þá hugrökku fyrir það eitt að vera hugrakkir
Lögmálið um hugleysi er þannig að fólk sem er huglaust þolir ekki fólk sem er hugrakkt, því að hugrakkir menn fá hugleysi þess sjálfs til að skera sig úr í augum þess sjálfs, og annarra. Þannig fólk virðist enn fremur hafa tilhneigingu til að verða auðveldara háð andúð og jafnvel hatri á hugrökkum mönnum en það verður háð eiturlyfjum
Það mun aldrei renna af þannig fólki varðandi Donald J. Trump, ekki frekar en það rann aldrei af mönnum hér heima varðandi Davíð Oddsson. Þeir menn eru fullir og tapaðir enn
Fyrri færsla
Á meðan ESB leysist upp, styrkist stjórnarfar Engilsaxa [u]
![]() |
Læknirinn sem varaði við kórónuveirunni er látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 6. febrúar 2020
Á meðan ESB leysist upp, styrkist stjórnarfar Engilsaxa [u]
Þjóðaríhaldsmaðurinn: Hefur gert það sem hann lofaði kjósendum
****
BANDARÍKIN
Styrkustu og þar með virkustu ríkisstjórnir Vesturlanda er nú að finna í Bandaríkjunum og Bretlandi. Í gær lýsti stjórnarfar Bandaríkjanna heiminn upp með því að pakka meinfýsi og geðbilun úr-sér-brædds og afbakaðs fólks á þingi niður í pappakassa, sem sendir voru á ruslahauga sögunnar. Firrt ákæra þeirra sem árið 2008 ætluðu sér að umbylta Bandaríkjunum með kjöri Obama, á hendur þess forseta sem rúllað hefur auðkenna- og skriðdýrs-stjórnarfari hans til baka, var á öskuhauga varpað með niðurstöðu öldungadeildar Bandaríkjanna, þar sem atkvæðin féllu þannig, að 2/3 meiri hluti var hvergi nándar nærri fyrir því að forngrískur múgsúgur hins einfalda meirihluta í geggjunarástandi næði að ákæra og fjarlægja réttkjörinn forseta landsins úr embætti
Sérhönnuð sér-sjálfsmorðsbelti forsetaframbjóðenda Demókrataflokksins munu nú sjá um að sprengja þann flokk svo í harðlínutætlur að innan, að Bernie Sanders insider þungaviktarmaður í 30-ára pólitískri þaulsetu á kostnað skattgreiðenda, og þriggja húsa kapítalisti með rauðan auðkennismiða limosínu-sósíalista á skallanum, til að líta vel út í augum góða fólksins, er eina von þeirra kjósenda flokksins sem enn hafa ekki kastað upp og varpað voninni sömu leið fyrir borð. Tímabili Demókrataflokksins sem hófst árið 1933 með Franklin D. Roosevelt lauk árið 2016 með kjöri Donalds J. Trump, sem sameinað hefur flokk Repúblikana á ný undir upphaflegum gildum hans
Bandaríkin eru ekki að fara neitt. Stjórnarfarið þar er svo öruggt og sterkt að öll ríkisstjórnin virkaði á öllum stigum alltaf, þrátt fyrir geðsýkisástandið hjá einföldum bonk-gonk ding-dong meirihlutans á þingi. Donald J. Trump forseti var sýknaður af upplognum áskökunum ding-dong fólksins sem aldrei hefur þolað hann, og ófært er um að virða niðurstöðu kosninga sem óhjákvæmilega fóru á þann veg, að Obamalandi framskriðinnar limósínu-vinstrimennsku skyldi rúllað til baka, og á öskuhaugana sett. Til hamingju með þetta Bandaríki Norður Ameríku. Til hamingju landið sem aldrei ætlar að endurtaka dragúldið stjórnarfar meginlands Evrópu, þar sem allar pólitískar drepsóttir Vesturlanda hafa átt uppruna sinn
BRETLAND
Svipað er að að segja frá Bretlandi. Þar var óvinum lýðræðisins og áhangendum ESB-einræðis pakkað saman með tröllauknum kosningasigri þjóðaríhaldsmannsins Borisar Johnsons, sem um leið hreinsaði flokk sinn út af þannig svikahröppum sem þingmönnum
ÞÝSKALAND
Á meðan þetta gerist í landi hinna frjálsu og hugrökku, var ný ríkisstjórn í landi Thuringia í sambandsríki Þýskalands sett saman fyrir tilstilli AfD-flokksins í gær. Stjórnmálaflokks sem var sigurvegari kosninganna þar, þann 27. október 2019. Hún er fyrsta ríkisstjórnin í enduruppsettu og á ný enduruppsettu Þýskalandi, sem sett er saman fyrir tilstilli þess flokks. Forseti Thuringia verður þó ekki frá neinum þeim flokki sem sigraði í kosningunum, heldur verður hann frá þeim sem töpuðu þeim og fengu fimm prósent atkvæða. Það verður því FDP-flokkur svo kallaðra "frjálsra demókrata", þ.e. gufutegund, sem leiða mun sambandsríkið með fjarstýringu annarra - eins og í Berlín
Ríkisstjórnun í Þýskalandi er þar með orðin sjö-flokka-kerfi, þar sem stjórnleysið er að verða ofan á sem stjórnarform krúnk-samsteypustjórna, þar sem fimm prósentin eru handhafar fis-valdajafnvægis sem er að steypa Þýskalandi í enn eina glötunina og sem framkalla mun ákallið um næsta "sterka leiðtogann". Leiðtoga sem taka mun landið úr úr Weimar 2.0 og bakka því inn í pólitíska pendúl-brjálæði þess lands á 80 ára sveiflufresti. Fimm prósent stjórnarfari hefur hér með verið komið fyrir sem fyrirmynd á tröppum kanslerísins í Berlín, þar sem endalausrar samsteypustjórnir pólitískra andstæðinga án snefils af pólitísku umboði, sitja sem samansúrraðar sovéskar Zíl-limósínur á kostnað almennings og lýðræðis í landinu
Stjórnarfarið og pólitíska ástandið í Þýskalandi er meira að segja orðið svo þrúgandi slæmt, að limósínufirrt verkalýðshreyfingin hefur nú boðist til að leggja sig sem rauðan dregil í götuna sem samsteyptir stjórnmálamenn landsins aka Zíl sínum eftir. IG-Metall hefur nefnilega hvatt til þess að engar launahækkanir verði í landinu og þannig snúist tvöfalt gegn sjálfri sér, og þeim launþegum sem hreyfingin þykist tala fyrir. Þar með verður Hartz-þrælastefna þýskra SPD-sósíaldemókrata fest enn frekar í sessi í Þýskalandi og sennilega tvöfölduð, og sem dý-fleyta mun evrusvæðis-viðrininu áfram til heljar, með því að stækka þýska svartholið í miðju þess enn frekar. Því að sjálfsögðu er þýska landið á barmi efnahagshruns eftir þrælabúðahagkerfi Gerhards Schröders, sem nú er innsti ventill í gasbúri Pútíns. Engar framfarir verða í svona löndum hins pólitíska samsæris limósína. Við þjóðaríhaldsmenn Íslands ættum því að hugsa okkur tvisvar um áður en við fordæmum íslensku verkalýðshreyfinguna fyrir virkni hennar, áræðni og þor
Uppfært 6. febrúar 2020 kl. 18:58:45
Leiðtogi FDP, Thomas Kemmerich, sem valinn var landsforseti Thuringen í gær, hefur eftir einn dag í embættinu sagt af sér eftir að Angela Merkel kanslari í Berlín sagði að myndun landsstjórnar með og fyrir tilstilli AfD út frá kjördómi kjósenda þar í landi, séu "ófyrirgefanleg mistök". Hún á þar með við að kjósendur AfD í Thuringen séu óhreint fólk með engan rétt til pólitískra áhrifa á lífið í landi þess. Kannski verður það næsta, að hún neitar að þiggja skattgreiðslur þess. Hvað haldið þið, kæru lesendur
Toto 1988: "Land hinna hugrökku" af plötunni The Seventh One
"Who sings the song of the people
You dont hear it anymore
I heard it late last summer
To the beat of a different drummer
It never sounded quite like this before"
Fyrri færsla
Beinlaus Áslaug Arna fésbókhaldari
Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.2.2020 kl. 03:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Þriðjudagur, 4. febrúar 2020
Beinlaus Áslaug Arna fésbókhaldari
Dómsmálaráðherra án vits. Dómsmálaráðherra án laga
Metoo-drottningin af Orkupakka-Valhöll tekin sem gísl á erlendu Inc. spjallborði á Nasdaq og pakkað saman sem sitjandi viðrini í stöðu dómsmálaráðherra íslenska lýðveldisins
Hún þurfti ekki langan tíma til að afsanna til fulls nafn flokksins. Hugtakið "sjálfstæði" er orðið háðsheiti um flokkinn sem hún þykist vera fulltrúi fyrir, en er það ekki, nema að nafninu til. Eins og flest annað sem á borð flokksins kom eftir að hann rann á hendur hinna fótalausu
Hvað með undirskriftir okkar flokksmanna og annarra Íslendinga vegna Orkupakka þrjú? þar sem krafist var þess að farið væri að lögum og forsendum um hið nú hlálega, niðurnídda og algerlega óþarfa EES-bákn
Áslaug Arna sér-popúlisti er ekki fulltrúi íslenska lýðveldisins. Hún er fyrst og fremst fulltrúi erlends valds og áhrifa. Hún skapar fordæmi sem koma munu sér afar illa fyrir landið okkar Ísland
Réttarríki spjallborðs á klíkumiðli sér-popúlista er næsti bær við sharíalagabálk og metoo skrílræðið
Fyrri færsla
Kínverska drepsóttin: Hvar er Trump? spyrja Kínverjar
![]() |
Gagnrýnivert að breyta reglum undir þrýstingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Sunnudagur, 2. febrúar 2020
Kínverska drepsóttin: Hvar er Trump? spyrja Kínverjar
Hlaðvarp: Hvar er Trump?
****
Á bak við múra ritskoðunar og internetlögreglu, kúgunar, heilaþvotta-gúlaga, banvænna útflutnings-smitsjúkdóma, fastfrosinna leðurblökumiðalda kommúnismans og allsherjar fátæktar nær allra nema þeirra sem tilheyra kommúnistaflokkselítunni, spyrja Kínverjar á ritskoðuðum félagsmiðlum, sem 60 prósent af landsbyggðinni með ekkert internet getur ekki séð, hvar Donald Trump sé. Hvar er Trump? Hvar er Trump? er síðasta setningin í póstum fólksins á ritskoðuðum "félagsmiðlum" landsins, á bak við múrana gegn hinum frjálsa hluta heimsins. Í þessum lokaða og örfoka villimannaheimi kommúnismans, þá þýðir þessi spurning; Hvar er Xi Jinping forseti fátæktarheimsveldis okkar í Kína? Hvar er forsetinn okkar!
Svar: Hann er í felum. Og þær góða-fólks-atvinnugungur í örvitabúðum græntáninga Vesturlanda, með burðargetu nýfallins snjókorns, sem hugleysis þeirra vegna ráðast viðstöðulaust á Vesturlönd sjálf, sökum þess að þar er þeim ekki svarað í sömu mynt, já þær gungur spyrja einskis um Kína, né neins staðar til 100-ára viðurstyggðar Tjernobyl-stjórnarfars kommúnismans. En ef að Trump, Johnson, Macron eða Merkel væru í felum á meðan drepsótt með svipaða dánartíðni og Spænsku veikinnar geisaði í landi þeirra, þá væru dagar þeirra taldir og gott betur en það
Í Kínakolakjallara Valhallar er sérstök raðbjánadeild þeirra sem hentu Íslandi inn í AIIB-"fjárfestingarbanka" Kínverska kommúnistaflokksins, og sitja meira að segja rotaðir í banka(ó)ráði þar. Það pólitískt vanvita fólk með burðargetu tóms pappakassa, hafði ekki bara snefils vit á því sem það var að gera þá. Það fór bara eftir því sem úr gúlagi kommúnismans kom. Sóma stjórnmálamanna-stéttarinnar vegna, ætti það fólk að sjá sóma sinn í því að losa Ísland undan þeirri firru. Út með þá firru strax! Nema að það fólk vilji áfram vera abstratktion í augum kjósenda, eins og forsetinn af Kína sannarlega er. Hann er abstraktion
Kjósendur á vesturlöndum eru ekki mikið fyrir stjórnmálamenn sem eru abstraktion. Það sást greinilega í Bretlandi og Bandaríkjunum 2016! Á Kínakolakjallara Sjálfstæðisflokksins sést, að sá flokkur er því miður orðin abstraktion sem kjósendur í smitsnertingu við veruleikann hafa "afbókað". Greinilegt er að abstrakt ráðherra flokksins þarf ekki sjálf að vinna við að afgreiða kínverska ferðamenn
Fyrri færsla
Hátíð: Breskir þingmenn yfirgáfu gúmmíþingið í Brussel og Stóra-Bretland Evrópusambandið. Skál!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 31. janúar 2020
Hátíð: Breskir þingmenn yfirgáfu gúmmíþingið í Brussel og Stóra-Bretland Evrópusambandið. Skál!
Í dag er stóri dagurinn. Breskir þingmenn yfirgáfu gúmmístimpilsþing Evrópusambandsins í síðasta sinn í dag. Frelsið og sjálfstæðið blasir við. Klukkan 23:00 í kvöld verður Bretland frjálst land á ný, því þá yfirgefur það Evrópusambandið fyrir fullt og allt. Þá yfirgefur það eina verstu hugmynd eftirstríðsáranna og samtímans - og versta efnahagssvæði hins þróaða hluta heimsins
Fjórfalt húrra fyrir Bretum!
Beina útsendingu Daily Telegraph, í för með Nigel Farage og Jacob Rees-Mogg, frá Lundúnum, má horfa á hér (nýr gluggi)
Og beina útsendingu Daily Telegraph, þar sem myndavélinni er beint að Downingstræti 10
Föstudagur, 31. janúar 2020 kl. 23:01:12
Stóra-Bretland hefur yfirgefið Evrópusambandið og er á ný fullvalda og sjálfstætt ríki
Boris Johnson forsætisráðherra ávarpaði þjóðina
Hversu stórt er það Stóra-Bretland sem var að yfirgefa Evrópusambandið?
Jú það er svona stórt
1. Nú þegar Bretland fór, þá svaraði það til þess að allur mannfjöldi rúmlega þessara 15 landa Evrópusambandsins yfirgæfu sambandið á einu bretti:
Malta
Lúxemborg
Kýpur
Eistland
Lettland
Slóvenía
Litháen
Króatía
Írland
Slóvakía
Finnland
Danmörk
Búlgaría
Austurríki
Ungverjaland
Plús einn þriðji hluti Svía
2. Þegar Bretland fór, þá svaraði það til þess að öll hagkerfi þessara 19 landa Evrópusambandsins yfirgæfu sambandið á einu bretti:
Malta
Kýpur
Eistland
Lettland
Litháen
Slóvenía
Króatía
Búlgaría
Lúxemborg
Slóvakía
Ungverjaland
Grikkland
Rúmenía
Tékkland
Portúgal
Finnland
Danmörk
Írland
Austurríki
Fyrri færsla
Götubardagar á evrusvæðinu halda áfram
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.2.2020 kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 30. janúar 2020
Götubardagar á evrusvæðinu halda áfram
Myndskeið: Það boðar varla neitt gott þegar lögreglulið og slökkvilið berast á banaspjótum á hástrætum evrusvæðisins í París
****
STJÓRNMÁLAFLOKKAR HEILABILUNAR
Skilyrðið fyrir frjálsu lýðræði í löndum, er sjálfsákvörðunarréttur þjóða; þ.e. þjóðarstefnan. Hann er frumforsendan fyrir því að frjálst lýðræði og einstaklingsfrelsi geti skapað þær aðstæður sem halda ríkisvaldinu og þar með sérstaklega yfirríkisvaldi í skefjum. Með öðrum orðum; hverfi eða lamist sjálfsákvörðunarréttur þjóða, þá verður það hið ótakmarkaða ríkisvald sem beita þarf sífellt meira og meira. Það þýðir að svæsnara og svæsnara ofríki ríkisvaldsins verður að stjórnarfari sem á endanum verður að ofbeldi ríkisvaldsins og eina valdatækið sem hægt er að nota til halda friðinn í þjóðfélaginu og löndum saman sem ríkjum. Þetta er fyrsti og eini bókstafurinn í stafrófi þjóða; sjálfsákvörðunarrétturinn
Viðrini Viðreisnar, þ.e. vitsmunaskortsvartan sem óx yfir í æxli við altari yfirríkisdaðursins í ees-höll Sjálfstæðisflokksins, berst nú fyrir hinu ótakmarkaða ríkisvaldi sem Evrópusambandið er. Það samband tortímir sjálfsákvörðunarrétti þjóða til að koma sjálfu sér að sem ótakmörkuðu yfirríkisvaldi, sem síðan drepur frjálst lýðræði og þar með einstaklingsfrelsið og hagsældina sem af því leiðir. Viðreisn er því eins og Samfylkingin stjórnmálaflokkur heilabilunar, sem alls ófær er um að skilja sjálfan sig, því flokkurinn talar fyrir því sem Evrópusambandið stendur fyrir; þ.e. dauða hins frjálsa lýðræðis með því að tortíma sjálfsákvörðunarrétti íslensku þjóðarinnar. Eftirstandandi altari yfirríkisdaðursins í ees-höll Sjálfstæðisflokksins hefur hins vegar breyst í fallöxi fyrir þann ees-pakkaflokk
Hér á myndbandinu fyrir ofan sést franska lögregluliðið og franska slökkviliðið berast á banaspjótum úti á hástrætum evrusvæðisins í París á þriðjudaginn. Slík er esb-hamingjan þar. Slökkviliðsmenn berjast við lögregluna sem handhefja á lögin sem eyðileggja líf þeirra svo mikið að franskir vinstriflokkar eru að bindast böndum með stjórnmálaflokki Marine Le Pen, um að skola Evrópusambandinu og málaliðum þess í Frakklandi af höndum frönsku þjóðarinnar. Sennilega hefur aldrei eins hataður maður og Emmanuel Macron setið sem forseti Frakklands. Hatrið meðal Frakka á honum er við það að sjóða upp úr. En Macron ræður auðvitað litlu sem engu um það sem hægt er að gera í landinu, því sjálfsákvörðunarréttur Frakklands er farinn úr landi. Hið ótakmarkaða yfirríkisvald ræður för og æ styttra er því yfir í allsherjarofbeldið
Hvort það verður Frakkland, Pólland eða Ítalía sem næst brjótast út úr yfirofríkisvaldi Evrópusambandsins á eftir Bretlandi, sem fer þaðan út klukkan 23:00 annað kvöld, skal látið ósagt. En pólska ríkisstjórnin kynnti hins vegar í nóvember áætlun sína um að endur-pólska hagkerfið, því Pólland hefur ekki hugsað sér að vera láglauna-vinnuskúr fyrir Þýskaland lengur. Pólland hafði og hefur enn alls engar fyrirætlanir um að fara úr einu sovétríkinu yfir í annað
Fyrri færsla
Svínastía kommúnismans drepur Kínverja og smitar aðra
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Þriðjudagur, 28. janúar 2020
Svínastía kommúnismans drepur Kínverja og smitar aðra
HIN KÍNVERSKA "MILLISTÉTT" GUÐLAUGS ÞÓRS
Yfirvöld kommúnistaflokksins í Kína hafa nú tilkynnt um 2700 smit og 82 dauðsföll vegna kórónaveirunnar. En sérfræðingar búast við hundruð þúsunda tilfella sem flokksyfirvöld eiga eftir að tilkynna og breiðast munu út til annarra landa. Einu sinni enn staðfestist að Kína er enn miðaldaríki þar sem miðaldastaðlar eru látnir duga fólkinu sem ekki býr í nágrenni við flokkshallir hins sótsvarta kommúnisma. Manngerður sjúkdómurinn breiðist því algerlega stjórnlaust út á meðan góða fólkið á vesturlöndum (allt glóbal-kommar og glóbal-sossar) heimtar að neyðarástandi sé lýst yfir vegna hugarburðar þess með ímyndað veðurfar út í geim. Miðaldir eru hafnar á ný
Súpersmit hríslast um svo kallaðar kínverskar "heilbrigðistofnanir", þar sem einn smitaður nær að smita 14 lækna og hjúkrunarfólk á svo kölluðu sjúkrahúsi í Wuhan. Þeir læknar og starfsfólk verða síðan súpersmitarar sem með myndugleika fylla líkkistur af látnum mönnum. Það er kannski þess vegna sem að staðfest smit hafa tífaldast á síðustu sjö dögum. En eins líklegt er að þeim hafi bara verið haldið leyndum, því pólitísk átætta fylgir því að tilkynna um sjúkdóma í hinu helsjúka Kína kommúnistaflokksins - þar sem millistétt Guðlaugs Þórs er gangstéttin sem flokkselítan gengur á til gúlagasmíða
Aðalstöðvar kommúnistaflokksins í Peking hafa sent 1230 sérfræðinga til borgarinnar Wuhan og kínverski herinn einkalífvörður kommúnistaflokksins gegn fólkinu í landinu hefur sent 450 slíka þar sem reyna á að breyta tólf svo kölluðum almennum sjúkrahúsum á 20 milljón manna stað í einangrunarbúðir og bæta sex þúsund sjúkrarúmum við þau í lok mánaðarins. Aðalstöðvar kommúnistaflokksins í Peking hafa þess utan slegið lokuðum hring utan um 50 milljónir manna í bæjum og borgum þar sem smit eru mikil
Sé til eitthvað í Kína sem kalla má heilbrigðiskerfi, þá er það í rúst því ekkert gengur að hemja síendurtekin tilfelli af mannskæðum smitsjúkdómum á borð við þennan, sem líklega á rætur sínar að rekja til heildsölumarkaðar fyrir sjávarfang í Wuhan - í nóvember 2019. Reikna nú þeir sem vita mest með því að meðgöngutíminn (d. inkubationstid) sé heilar tvær vikur áður en fólk veikist. Svipaður og meðgöngutíminn með veiru Svarta dauða er talinn hafa verið á 14. öld og sem útskýrði harða útbreiðslu hans, sem talinn er hafa verið um 30 km. á dag; með fólki í farartækum þeirra tíma
Einu tilfellin af svo kölluðu "heilbrigðskerfi" í landinu er að finna í nálægð við aðalstöðvar kommúnistaflokksins í Peking og við stofnsetur hans í Shanghai. Berklatilfelli hafa að vísu helmingast á síðustu 20 árum, en þau eru enn þrisvar sinnum algengari en í Mexíkó, sem er með 20 prósent fleiri lækna á hvern íbúa en Kína kommúnistaflokksins. Kína er þess utan með 70 prósent færri lækna á hvern íbúa en Alþjóða-heilbrigðisstofnunin mælir með, og 96 prósentur þeirra eru "sérfræðingar" því almenn læknastörf borga sig ekki sökum lágra launa
Svo kölluð "sjúkrahús" eru yfirfull og fólk í dreifbýli verður að stóla á miðaldalæknastofur. Læknar í nálægum borgum við Wuhan notast við sjöl í stað sóttvarnarbúninga í glímunni við þetta nýja kóróna-misfóstur kommúnistaflokksins. Þörfin fyrir sóttvarnarbúninga í Hubeihéraði einu og sér er 100 þúsund stykki á dag á meðan allt landið framleiðir aðeins 30 þúsund stykki, og almennar andlitsgrímur eru skammtaðar
Þetta er svona vegna þess að aðalsstöð kommúnistaflokksins í Peking leggur allar áherslur á "lífsvísindagarða", "erfðameðferðir", "krabbameinsrannsóknir" og "læknagræjur" til að vinna sér inn athygli erlendis - til dæmis hjá plebbum á borð við þá sem nú hanga til þerris í kratahjallinum Valhöll og liggja sem innlögð skreið í ríkisstjórn Svandísar sovéts. "Líftækni" er burðarstólpinn í "Made in China 2025" áætlunum kommúnistaflokksins, sem eiga að "ráða yfir heimsmarkaðnum" á því sviði þá. Þetta er geggjun mannvonskunnar eins og allt sem frá kommúnistaflokki kemur. Gangstéttin stóra þar sem ferð flokkselítunnar hófst á einu fjöldamorði sem leiddi til hinna
Á meðan grassera lífshættulegir smitsjúkdómar eins og þessi. Og á síðasta ári grasseraði kommúnistaflokksgerður sjúkdómur sem drap helming svínastofnsins í landinu. Honum hefði verið hægt að komast hjá ef brugðist hefði verið rétt við og bændur ekki neyddir til að selja sjúk svín og breiða sjúkdóminn þannig út. Það borgaði sig fjórum sinnum betur en að taka við því sem flokkurinn ætlaði að verja til bóta - á sama tíma og kommúnistaflokkurinn bannar innflutning landbúnaðarvara frá Bandaríkjunum - af "heilbrigðisástæðum"
Þegar Kína hóstar þá drepst fólk í heiminum. Þetta Potem-Kim skrímsli kommúnistaflokks Kína og útibús þess í Norður-Kóreu verður að hemja og stöðva. Ekkert land og fólk á svona stjórnarfar skilið
Leiðari Wall Street Journal í dag: A Made-in-China Contagion (smit framleidd í Kína)
Fyrri færsla
Evrópusambandið er orðið stærsti olíu-innflytjandi veraldar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 27. janúar 2020
Evrópusambandið er orðið stærsti olíu-innflytjandi veraldar
Mynd Wikipedia: "Halló, er einhver heima?" Kíkt ofan í gamla Evrópusambandið. Grand Slam RAF-borverk Barnes Wallis hjá Vickers. Aðeins fjórir dagar eru eftir af dvöl Stóra-Bretland í ESB-holunni. Rekja má margt til snilligáfna Barnes Wallis
****
Ráðalaus yfirvöld í því sem kallað er "Evrópusambandið" í dag, leita nú með logandi en leyndum ljósum að olíu og jarðgasi til innflutnings, á sama tíma og skiltagerðadeildir útópíu þess hanna grænu pólitísku rétttrúnaðarskiltin sem rekin eru framan í alla þá sem spyrja til ástands orkumála þar á þrotabæ, en þó alveg sérstaklega framan í þá sem spyrja til dæmis spurningar eins þessarar; hvers vegna eru Evrópulöndin orðin stærsti innflytjandi olíu og jarðgass í heimi
Á sama tíma eru Bandaríkin orðin stærsti olíu- og jarðgasframleiðandi veraldar og eina land heimsins sem með herafla sínum (les. NATO) verndað getur innflutningsleiðir fyrir annarra landa olíu inn í lönd Evrópusambandsins. Bandaríkin eru þess utan einnig eina þjóðríki veraldar sem verndað getur sjóleiðirnar fyrir útflutning frá meginlandi Evrópu, til neytenda í öðrum löndum, og þar með til annarra-landa eftirspurnar. Meginland Evrópu er orðið algerlega háð og þar með í vösum Rússlands, Miðausturlanda og Norður-Afríku í orkumálum
Í ljósi þessa ber að skoða skortinn á utanríkisstefnu Evrópusambandslanda gagnvart Rússlandi, Íran og flóðbylgjunni frá Norður-Afríku. Og í ljósi þessa ber því að skoða ofsahræðslu landa Evrópusambandsins við heildar-utanríkisstefnu Bandaríkjanna; sem bera uppi það eina sem haldið getur ljósunum áfram logandi í Evrópu. Þar er ég að tala um Bandaríska herinn sem ber uppi nær alla hernaðargetu NATO - og alla getu til varnaraðgerða á heimsvísu
Evrópa fer af límingunum ef að Bandaríkin svo mikið sem anda á Miðausturlönd, svo ekki sé talað um að flytja bara eitt lítið sendiráð milli borga í einu litlu landi þar. Evrópa hefur nefnilega enga stjórn á örlögum sínum. Enga! Og það mun hún ekki hafa svo lengi sem Evrópusambandið er við lýði. Frá Rússlandi koma 30 prósentur af allri olíu sem lönd sambandsins nota, og enn stærra hlutfall af jarðgasi. Og einnig þar nötrar, skelfur og hristist Evrópusambandið við hvert bandarískt fótmál gagnvart Rússlandi
Evrópa getur hvorki séð sjálfri sér fyrir orku né varið innflutning hennar. Hún er algerlega í vösum annarra
Þessa stöðu má einnig sjá á brennandi logunum í sótsvörtum gluggum Valhallar, sem nýlega úthýsti hluta af fullveldi Íslands í orkumálum til einmitt evrópskra ólanda. Ekkert land og enginn stjórnmálaflokkur með fullu viti úthýsir fullveldi sínu til annarra landa og lifir slíkt af. Um EES-leiðsluna inn í Sjálfstæðisflokkinn flýtur því sjálfstortímingargasið, svo lengi sem flokkurinn með "fullum vilja dópistans" gerir sig háða henni; bæði andlega og líkamlega. Ég mæli því með afvötnun fyrir vonleysislið Sjálfstæðisflokksins í Valhöll. Allsgáð pólitískt líf er eina lífið sem vert er að lifa. En á meðan stórgungustétt esb-krataklúðursins er þar við völd, sem fyrsta, eina og fullkomlega ónýta slík í sögunni, þá gasast sá flokkur bara áfram í hel
Næst stærsti olíu-innflytjandi veraldar, á eftir Evrópusambandinu, er hins vegar Kína. Og á það land hins risavaxna kommúnistaflokks mega Bandaríkin því heldur ekki svo mikið sem anda, því sá andi kemur Evrópusambandinu auðvitað afar illa, því það er svo háð Kína. Með þeim augum ber að líta á utanríkisgervistefnu Evrópusambandsins og því einnig brunarústa xD gagnvart Kína. En það sem enn verra er fyrir Evrópu, er það, að Miðausturlöndum og Norður-Arfríku líkar enn verr við Kína en þeim líkaði við Sovétríkin og kommúnistaflokk þeirra
Staðan er því sú að Bandaríkin hafa engan áhuga á Miðausturlöndum, en Miðausturlönd hafa hins vegar ákaflega mikinn Trotský-áhuga á Bandaríkjunum. En hvers vegna ættu Bandaríkin að gæta siglingarleiða fyrir olíu frá Miðausturlöndum til Kína? Það munu þau auðvitað ekki gera mikið lengur
"Hæ hæ Miðausturlönd, við erum með miljónir múslíma í gúlagi heima í Kína og við erum komnir til að gæta skipaferða með olíu, svo halda megi gúlaginu gangandi" - Xi Jinping kommúnisti (með Lenínvindil)
Evrópusambandið og Kína eru stærstu kúnnar Miðausturlanda, en með bara alls alls enga getu til að gæta hagsmuna sinna þar. Hvað gerist næst? Jú Stóra-Bretland yfirgefur Evrópusambandið eftir fjóra daga - og svo koll af kolli
Fyrri færsla
Gæti Brexit sært VC10-drottningu háloftanna fram á ný?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 19. janúar 2020
Gæti Brexit sært VC10-drottningu háloftanna fram á ný?
Vickers VC10
****
Hún var allt í senn. Falleg, harðskreið, hljóðlát fyrir farþegana, glæsileg og örugg. Breska Vickers VC10 farþegaþotan var hönnuð og byggð af Vickers-Armstrongs einkafyrirtækinu, og á þessi farþegaflugvél enn hraðametið yfir Atlantshafið. Aðeins Concorde flaug harðar. Boeing 707 var enn að bagsa á flugbrautinni þegar VC10 var komin í þúsund feta hæð, legðu þær af stað samtímis. Svo stutta flugbraut þurfti hún miðað við 707. Vélin var hönnuð fyrir flugleiðir breska samveldisins, að beiðni BOAC, sem síðar varð British Airways. Hönnuð til flugtaks og lendingar á lélegum flugvöllum í miklum lofthita og mikilli hæð yfir sjávarmáli og krafðist ekki háþrýstings í hjólbörðum. Og þar sem fjórir Rolls Royce Conway hreyflar hennar sátu á stélinu, var hún afar hljóðlát og það líkaði farþegunum sérlega vel. Og nóg var plássið um borð bæði fyrir þá og flugþjónana
BOAC snérist síðan gegn VC10-afkvæmi sínu og öfugsnúnir breskir pólitíkusar tóku þetta verkfræðilega afrek Breta af lífi, með alkunnri skammsýni smákaupmannsins. Þjóðnýtingaráráttan frá stríðslokum tók smám saman stóran hluta breska flugvéla- og bílaiðnaðarins af lífi. Og eins og allir sannir þjóðaríhaldsmenn vita þá vantaði því miður vissa kafla í hana Margréti barónessu Thatcher og lávarð hennar Tebbit eins og nýlega látinn Sir Roger Scruton heimspekingur og þjóðaríhaldsmaður sagði í afar áhugaverðu 2017-viðtali við Peter Robinson hér. Margrét var góð, en ekki gallalaus, eins og við öll auðvitað erum fædd. VC10 var samt uppáhalds flugvélin hennar
Flugtak
Í hlutverki eldsneytisgjafa fyrir orrustuþotur Konunglega breska flughersins. Síðasta flug þessara glæsilegu flugvéla var flogið í september 2013. Þá höfðu þær þjónað breska flughernum í 51 ár. Og sem eldsneytisvélar gátu þær einnig tæmt sig yfir í hvor aðrar, þannig að til dæmis þrjár slíkar þyrftu ekki að hanga með slatta í sér í loftinu yfir Miðausturlöndum, heldur gátu tvær snúið til bækistöðva, fyllt sig og mætt fullhlaðnar af eldsneyti til leiks á ný
****
Í dag eru flughafnir með fullvissu orðnar ömurlegustu og leiðinlegustu staðir jarðar. En enn verra er þó að vera um borð í síldartunnu-strætisvögnunum sem fara næstum fetið um háloftin í dag. Það liggur við að SRT-8 bílferð mín í flughálku í dag hafi verið ánægjulegri en þær sem hefjast og enda á alþjóðlegum flugvöllum þessi árin
Hér má sjá kynningarmynd BOAC um VC10 frá 1964: hluti-1 og hluti-2
Fyrri færsla
Lóðabraskarar jósku Samfylkingar-heiðanna auglýsa
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.1.2020 kl. 06:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Nýjustu færslur
- Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km ...
- Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]
- Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.8.): 21
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 196
- Frá upphafi: 1407177
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 116
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008