Leita í fréttum mbl.is

Bandaríkjamenn næstum ofsaánægðir með efnahaginn undir Trump - AKK segir af sér [u]

Upptaka frá síðasta fimmtudegi: Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna þakkar starfsliði og þingmönnum fyrir vel unnið starf við að verjast og sigra gerræðislegar pólitískar ofsa-ofsóknir á hendur honum sem forseta Bandaríkjanna, dulbúnar sem stjórnmál, en sem reyndust einungis vera samsæri trylltra stjórnmálamanna, rotinna embættismanna og fjölmiðla

****

1) Rússar, Rússar, Rússar undir hverju rúmi! 2) Mueller, Mueller, Mueller "rannsóknin" á Rússaruglinu og 3) Úkraína, Úkraína, Úkraína bla bla – var hin fullkomna þvæla Demókrataflokksins sem Barack Obama eyðilagði með því að enginn maður með fullu viti gat samsvarað sér með þeim flokki lengur, nema hann sjálfur og 35-ára löng Clinton samsteypa fjármála- og bankamanna. Elítuklíka sem hendir pappírum um loftin blá á milli landa og byggir lönd sín niður en ekki upp. Þrjú og hálft ár af ofsóknum á hendur Donald J. Trump eru nú liðin. Og þar með líka gegn kjósendum hans sem Obama-Clinton-FBI-gengið sagði á bankamannafundi með Wall Street að væru fyrirlitlegt fólk

Þessar ofsóknir sýna að Demókratar eru of heimskir til að vera í stjórnmálum lengur, þökk sé þvælustjórnmálum Obama sem Trump hefur að miklu leyti rúllað til baka. Spyrjir þú Bandaríkjamann að því í dag hvað hann sé, þá segir hann fyrst að hann sé Bandaríkjamaður, en ekki kyn, kynþáttur, hommi, lesbía eða prófessional fórnarlamb sjálfs síns. Slíkt auðkennarugl kemur í síðasta sætið ef það þá yfir höfuð er til lengur. Það var þetta metoo-auðkennarugl sem Obama og Clintonkonan stögluðust á og opnuðu þar með landamærin inn í helvíti til að hengja sig í. Donald J. Trump er nú að loka þeim landamærum. Hvort að Demókratar lokist inni í sínu eigin helvíti, er orðið frekar líklegt, sé horft til galematís frambjóðenda hans, sem eru einn olígarki, nokkrir marxískir kjánar (hraðfara vinstrimenn) og einn líberalisti (hægfara vinstrimenn, kallaðir frjálslyndir eða jafnaðarmenn)

Gallup - Annual Mood of the Nation survey - 2 til15 jan 2020

Mynd: Gallup

Aldrei áður hefur ánægja Bandaríkjamanna með efnahag sinn mælst eins mikil og núna. Tæplega 60 prósent þeirra segjast hafa það efnahagslega betra en fyrir ári síðan. Aðeins 20 prósent segja hið gagnstæða. Þessi mæling Gallup var framkvæmd á tímabilinu 2. til 15. janúar 2020

Gallup - jan 2020 - Record-High Level of Optimism About Financial Future

Mynd: Gallup

Um það bil 75 prósent Bandaríkjamanna vænta þess að efnahagur þeirra á þessu ári verði enn betri. Þessar mælingar Gallup hófust árið 1977. Aldrei áður frá upphafi þeirra hafa Bandaríkjamenn verið eins bjartsýnir á efnahag sinn. Aðeins 12 prósent gera ráð fyrir að staða þeirra versni

uppfært mánudagur, 10. febrúar 2020 kl. 18:41:48

AKK SEGIR AF SÉR Á MEGINLANDI TAPARANNA

Á meginlandi taparanna í Evrópu sagði frú skynlaus Annegret Kramp-Karrenbauer arftakaafkvæmi Merkels af sér sem (ókjörinn) erfingi hennar sem kanslaraefni CDU-flokksins í komandi kosningum í Þýskalandi. Fyrir tilstilli Angelu Merkels varð AKK gerð komandi arftaki hennar er Merkel í fyrra tilkynnti að hún myndi ekki gefa kost á sér á ný. Útbreitt óskynbragð á stjórnmál, kjark,- getu,- og hæfileikaleysi ásamt málinu í Thuringia í síðustu viku, eru helstu orsakavaldar ákvörðunar AKK. Það eina sem AKK hafði til brunns að bera var að kunna tilskipunina Segðu sjibbólet!

En með tilskipun (diktati) Merkels í Thuringia í síðustu viku, þar sem réttkjörinn og AfD-studdur forseti þess sambandsríkis sagði fyrir hennar tilstilli af sér eftir aðeins einn dag í embættinu, opnaði Merkel nýja braut fyrir þýska SPD-sósíaldemókrata, og fyrir stórflótta hægrimanna úr flokki hennar sjálfrar yfir í AfD. Og sjá; opnaðist þar líkkista þýskra græningja líka

Vikublaðið og vefútgáfan Junge Freiheit, þar sem rithöfundurinn Frederick Forsyth stingur stundum niður penna, er ekki hrifið og enn síður er Alexander Mitsch þingmaður CDU ánægður með "Linkskurs" DDR-vinstripólitískt daður Merkels. Greinin "Kurs in den Untergang" um CDU-flokks-brunarústir Merkels er einnig fróðleg lesning

Þarna í Thuringia urðu kaflaskil í þýskum stjórnmálum og Angela Merkel hlaut sama örlagadóm og AKK; sem frú clueless. Það er því afar passandi að AKK vilji samt halda áfram sem varnarleysismálaráðherra Þýskalands á meginlandi taparanna

Fyrri færsla

Pólitískar ofsóknir góða fólksins og drepsóttir kommúnismans 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Meira um AKK-sparkið og ófarir CDU í Thuringen

Vikublaðið og vefútgáfan Junge Freiheit, þar sem rithöfundurinn Frederick Forsyth stingur stundum niður penna, er ekki hrifið og enn síður er Alexander Mitsch þingmaður CDU ánægður með "Linkskurs" og DDR-vinstripólitískt daður Merkels. Greinin Kurs in den Untergang um flokks-brunarústir Merkels er einnig fróðleg lesning.

Gunnar Rögnvaldsson, 10.2.2020 kl. 23:13

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Í greininni Kurs in den Untergang er sagt að þráseta Merkels við eldinn frá hennar eigin flokksbrunarústum sé að taka á sig mynd "Der Untergang" (dómsdags). Sagt er að afskipti hennar af málum sjálfstæðs sambandsríkis Thuringen, hafi verið gerð frá stjórnarfari í sunnanverðri Afríku, þaðan sem Merkel brást við, því þar var hún í heimsókn. Og sagt er að aðeins sjálfspyntingar- og sjálfsmorðskandídatar vilji koma nálægt stöðu nýs leiðtoga CDU svo lengi sem hún er þar innanborðs með sinn undirgang.

Gunnar Rögnvaldsson, 11.2.2020 kl. 00:01

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Á meðan Þýskaland sekkur enn dýpra í hinum gamla og kaflaskipta "untergang" þess í gömlu bókinni um meginland taparanna í Evrópu, var Donald J. Trump með fylgismannasamkomu í Manchester í New Hampshirefylki fyrr í kvöld. Hana má sjá hér

Þarna má sjá allt fólkið sem Hillary Clinton sagði að væri fyrirlitlegt, þ.e. þann helming þjóðar hennar sem enginn af kalíberi "góða fólksins" veit að er til.

Gunnar Rögnvaldsson, 11.2.2020 kl. 01:28

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það er athyglisvert að fylgjast með veiruherjandi tjernóbyl kommúnistaflokksins í Kína, sem nærist á krónísku miðaldaástandi landsins, og sem klekur út mannskæðum sjúkdómum á færibandi. Hin mannskæða Kóróna framleidd-í-Kína-farsótt, gæti hæglega orðið tjernóbyltan fyrir Kína eins og fyrir Sovétríkin á sínum tíma.

Þeir sem hafa agíterað hve mest og ákafast fyrir svo kölluðum "hnattrænum" eða "glóbal afhendingarkeðjum" hafa þarna fengið bæði keðju og sveðju til að kyrkja og fella fyrirtæki sín með, því að færibönd til dæmis bílaframleiðenda í Suður-Kóreu og Japan hefur kínverska veirukeðjan sú stöðvað.

Lítið heyrist frá Bjarna Benediktssyni bankaráðsmanni í AIIB banka kínverska kommúnistaflokksins. En þar situr hann í bankaráði samhliða því að sitja með Þjóðviljanum frá DDR í ríkisstjórn á Íslandi.

Gunnar Rögnvaldsson, 11.2.2020 kl. 06:28

5 Smámynd: Óskar Kristinsson

Gott hjá þér Gunnar!

þessu ger.. er forsætistrúðurinn okkar að samsama sig með. Nánar meina merkel.

Er ekki hreinar línur að það var valdarán framið á 3 op málinu??? Merkel frekjaðist með vanvitana okkar? lét þá drulla á sig fyrir framan þjóðina.

Kv

Óskar Kristinsson, 11.2.2020 kl. 16:01

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Óskar.

Monika Schirdewahn eini bæjarráðsfulltrúi CDU í bæjarráði Frankenstein (í kjördæminu Kaiserslautern) var rekinn úr CDU flokki Merkels í haust (nú AKK-mini-Merkel) fyrir það að mynda bandalag með eina bæjarráðsfulltrúa AfD í því bæjarráði, og sem þess utan er giftur Moniku. Hvað á maður að segja.

Mér sýnist að stjórnarfyrirkomulag vinstrisinnaðs alræðis sé að ná yfirhöndinni í Þýskalandi. Að þar sé það að verða stjórnarskrárbundið að vinstra-lýðræði sé nýja trúin þar. Vinstra-lýðræði sem þar með er auðvitað ekki neitt lýðræði.

Þetta fer ekki vel, enda minna þýskir stjórnarhættir mann á stjórnarhætti Evrópusambandsins, þar sem aðeins já er tekið gilt sem niðurstaða kosninga.

Já, þú sást orkupakkastjórnarfar Evrópusambandsins aka með þingmenn Sjálfstæðisflokksins á ruslahauganna. Þeir eru seldir. En hver vill kaupa þá? Ekki ég. Ekki lengur.

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 11.2.2020 kl. 17:01

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það fer að verða augljóst hvert fólk sem sættir sig ekki við svona samsærislýðræði fer í Þýskalandi. Og það gildir ekki bara um CDU-brunarúst Merkels. Það gildir um fleiri flokka. Það fer annað, sérstaklega yfir í AfD.

Og þar með opnast ný leið fyrir SPD-sósíaldemókrata því þeir geta þá bent á að Merkel sé gróðurhús þeirra jurta sem sem þeir sósíalistarnir voru sjálfir (Nationalsozialistische Deutsche Arbeiterpartei).

Og verði það, þá munu græningjar missa allt sitt því þeir hafa þrifist á samsæri SPD með Merkel.

Flokkur þýskra græningja er nefnilega fyrst og fremst proxý-flokkur fyrir óánægða sósíaldemókrata.

Gunnar Rögnvaldsson, 11.2.2020 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband