Leita í fréttum mbl.is

Er Trump að svæla Biden upp úr kjallaranum?

Truman-Dewey-polls-1948

Veggur skoðanakannana: Dewey - "Til hvers yfir höfuð að halda þessar kosningar í nóvember?

Vert er að minnast bandarísku forsetakosninganna 1948 þar sem repúblikaninn Thomas Dewey var í könnunum viðstöðulaust langt fyrir ofan Harry Truman næstum alla daga kosningaársins, þar til talið var upp úr kjörkössunum og hann sendur í kjallarann. Truman vann öruggan sigur, öfugt við hróp og köll kannana

Demókratar binda vonir sínar við kínversku Wuhan-veiruna. Þeir binda vonir sínar við að með henni takist þeim að fela forkalkaðan Biden í byrgi sínu, þar sem hann heldur bunker-stemmingunni uppi með því að elliæra sjálfan sig og geta þannig ekki svarað fyrirfram innsendum spurningum, sem hann var búinn að fara yfir

Daily New Cases in the United States 2020-08-25

Bandaríkin - ný tilfelli

En nú virðist vont fyrir Biden en gott fyrir þjóðina vera á leiðinni. Nýjum Wuhan-veiru tilfellum fækkar í Bandaríkjunum og dánartölurnar hafa ekki náð að rísa, því læknar vita meira núna en þeir vissu þegar Biden gekk í björg í mars. Og síðan eru kúrfurnar þannig vaxnar núna, í þeim ríkjum sem ófréttamenn segja að séu í nýrri sveiflu, að þær benda til þess að sveiflan sú sé sú fyrsta og eina þar

Daily New Deaths in the United States 2020-08-25

Bandaríkin - ný dauðsföll

Ástandið er enn mun verra í heildina í stjórnlausri Belgíu, Spáni, Bretlandi, Svíþjóð og Ítalíu en það er í Bandaríkjunum, þ.e. fleiri dauðsföll á hverja milljón íbúa. Og sennilegt er að Frakkland sé að gjósa á ný núna þegar kúrfan þar af nýjum tilfellum er að mynda svipaða kryppu og snemma í vor. Nýtt uppsving kúrfunnar er að mynda hið strategíska bros Wuhan-veirunnar á milli nú tveggja kryppa þar - og víðar í Evrópu, Þýskalandi líka

Daily New Cases in France 2020-08-25

Frakkland - ný kryppa af nýjum tilfellum að myndast

Gildir það um mörg önnur ríki Evrópuskagans sem stingst út úr móðir-Rússlandi. Dánarhlutfallið í Frakklandi er 26 prósent núna (e. mortality rate). Það er að segja að 26 af hverjum hundrað manns sem greinast með veiruna deyja. Sú tala bendir til að Frakkar séu aðeins að greina brot vandans eins og Svíar, sem aldrei hafa viðurkennt hann

Daily New Cases in California 2020-08-25

Kalifornía - ný tilfelli

Bandaríkin hafa nú skimað 77 milljón manns eða 230 þúsund íbúa af hverri milljón, Frakkar aðeins 91 þúsund á hverja milljón og Svíar einungis 100 þúsund af hverjum milljón íbúum þess lands. Svíþjóð er hætt að gefa upp hversu margir ná sé af veirunni, sem þeir segja að 87 þúsund Svíar hafi fengið og 5800 látið lifið af. Þar er dánarhlutfallið hreint út sagt skuggalegt

Daily New Cases in Texas 2020-08-25

Texas - ný tilfelli

Takist Trump að ná veirunni nægilega niður þá verður Biden að sýna sig og opna munninn - og þá tapar Biden. Slík er blekkingariðja flokksins

Nú er afar líklegt að atvinnuleysi í Bandaríkjunum verði komið niður sex prósent á kjördag og það mun hjálpa kjósendum svo um munar. Biden fær enga þökk þar, því kom hann þar hvergi nærri. Og þá tapar Biden

Plús það að Demókratar minntust ekki á nein stefnumál á flokkssýndarráðstefnunni í síðustu viku og láta þar með Repúblikönum eftir að kynna þau fyrir bandarísku þjóðinni. Ákafinn í að ná sér niðri á einum manni er slíkur að Trump fjarstýrir nú stefnulausum Demókrataflokknum með iPhone-tísti sínu og tungu

Veiran niður => Trump sigrar
Atvinnuleysi niður í 6 prósent => Trump sigrar
Meiri skrílslæti úr herbúðum Demókrata => Trump sigrar

HLAÐVARPIÐ: LIÐIN ERU 75 ÁR SÍÐAN ÞÁ

Aukaútsending með Victor Davis Hanson sagnfræðingi og bónda: Þetta er einkum fyrir vinstri-manntegund kertafleytara og Þýskalands-fetista í tilefni þess að 75 ár eru liðin frá lokum Síðari heimsstyrjaldarinnar

Fyrri færsla

Trump er sá sem litlir menn vilja taka niður


Trump er sá sem litlir menn vilja taka niður

Ég kann ákaflega vel við byggingarmógúlinn Donald J. Trump sem þekktur er fyrir að afhenda verk sín á réttum tíma og í tipp-topp standi eins og lofað - og jafnvel undir fjárhagsáætlun. En ég kann þó enn betur við stjórnmálamann sem efnir og stendur við það sem hann lofar kjósendum. Það er það sem flestir andstæðingar Trumps þola ekki við hann. Þeir þola ekki hversu öflugur hann er, því það gerir þá sjálfa svo litla. En best kann ég þó við hugrakka menn sem standa uppi í hárinu á klúbbum fráránleikans á borð við Parísarsamkomulagasmiðina. Hugsið ykkur hugrekkið sem þarf til að vera einn á móti klúbbi fáránleikans, og þar að auki að lesa þá menn eins og opna keilusláttarbók lýðskrumara. Þetta eru góð gildi sem aðrir mættu reyna að tileinka sér

Þarna sést vel hver er besti maðurinn í bransanum. En það er sá sem allir vilja taka niður og helst skófla inn fé á. Og það getur ekki gengið nógu hratt fyrir sig því tíminn vinnur ekki með þeim. Eftir endurkjör er sá gluggi lokaður og læstur. Og endurkjörinn verður hann

Kosturinn við Trump er líka sá að honum er alveg sama um hvað pólitíska elítan í landinu hugsar og segir um hann. Hann þekkir þá ekki og hefur aldrei gert. Hann er ekki einn af þeim. Hann á ekkert undir þeim komið. Þar hefur hann engu að tapa og getur því verið Trump á meðan þeir sjálfir geta ekki verið neitt, nema það sem þeir halda að pólitíska elítan, bankarnir, fjölmiðlastappa vinstrisins og alþjóðaelítan samþykki

"Trump er hinn ófullkomni maður sem passar fullkomlega í starfið", eins og fullorðin kona sem kaus hann sagði. Þess vegna var hann kosinn. Þjóðin var búin að fá upp í háls af pappírsmönnum og pantaði sér því jarðýtustjórann sem byggir. Mann orða sinna. Manninn sem efnir loforð sín og er hættulegur, þ.e. manninn sem hefur fælnimáttinn í sér

Meinlausir menn ríma við beinlausa menn

Fyrri færsla

Hvítarússland: Varlega! [u]


mbl.is Systir Trump kallar hann grimman lygara án gilda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvítarússland: Varlega! [u]

Stratfor: Landfræðilegar aðstæður Hvítarússlands (tvær mínútur)

****

Þið munið öll eftir meðferðinni á sjálfstæðismönnum Katalóníu og ofbeldissveitum Madrídar er þangað voru sendar, og síðan fangelsun katalónskra sjálfstæðisismanna, næstum því án dóms og laga. Þá heyrðist ekki múkk úr bandormabjörgum Brussels - sem einnig þagði þægt um árásir framkvæmdavaldsins á Francois Fillon, pólitískan andstæðing framboðs Macrons í París

En nú þykjast bandormarnir undir því fargi allt í einu geta, eftir að hafa í svitabaði strokað orðið Kína út úr öllum pappírum Evrópusambandsins og víðar um kínversku Wuhanveiruna

HVÍTARÚSSLAND

Hvítarússland er rúmlega 200 þúsund ferkílómetra sjálfstætt ríki milli Rússlands og Póllands. Á nyrðri kanti þess liggja þrjú NATO-ríki Eystrasalts. Að sunnanverðu er það Úkraína sem rammar landið inn. Þjóð landsins er um níu og hálf milljón manns. Landið stingst djúpt inn í Rússland að austanverðu og inn í NATO í vestri

Úkraínu var snúið á grillinu yfir á hálfa vesturlensku hlið hennar og ætíð síðan hafa verið læti. Úkraína er stuðpúðasvæði Rússlands. En hún er einnig stuðpúðasvæði Evrópu. En þessi stuðpúði virkar hins vegar ekki fyrir neinn í raunheimum, sé landið ekki hlutlaust

Óformlegt og þegjandi samkomulag milli Moskvu og Washington er það sem heldur Úkraínu enn fastri á jörðinni og ekkert annað. Litlu þar innanborðs er að treysta - og það er hið króníska og eilífa vandmál stuðpúðasvæða. Þau virka aðeins svo lengi sem stjórnvöld innan þeirra eru stöðug. Annars losnar fjandinn og fer laus

Hið sama gildir um Hvítarússland. Lukashenko hinum föðurlausa syni mjaltakonu hefur með lagni og herkjum tekist að halda Hvítarússlandi hlutlausu og oft hefur hann slegið á fingur Kremlar. Honum hefur þar með að mestu tekist að halda Hvítarússlandi sem hlutlausu stuðpúðasvæði, því forsetinn veit að takist honum það ekki, þá er úti um sjálfstæði Hvítarússlands

Rússland getur nefnilega aldrei í þessu né neinu öðru lífi þolað að Hvítarússland verði að vesturlensku áhrifasvæði, því þá myndi Smolensk um leið verða að landamærabæ gagnvart Vesturlöndum. Þar með þyrfti vesturlenskur her aðeins og rúlla örstutta leið til að rífa Moskvu-hjartað úr Rússlandi. Staðan er nógu slæm fyrir, því NATO er aðeins 150 kílómetra frá Pétursborg

Útópíumenn Evrópusambandsins sem þekktir eru fyrir að haga sér eins og ráfandi rónar um stræti landa sem þeir eiga ekkert í, en látandi aðra um að gæta lífs þeirra, eru hér til alls vísir. Þeir enda auðvitað á því að kveikja í Evrópu eins og síðast

Þýskaland kastaði í gær fyrstu eldspýtunni á taparabálköstinn sem það er búið að hrúga upp úr innréttingum sem voru innviðir áður fullvalda ríkja Evrópu. Þýski kanslarinn þakkaði nefnilega Litháen en ekki Póllandi fyrir að hafa aðstoðað mótmælendur í Hvítarússlandi. Fáar fréttastöðvar hafa hins vegar minnst á þær mómælagöngur sem gengnar hafa verið til stuðnings ríkisstjórn landsins

Með því að þakka Litháen en ekki Póllandi, hefur Þýskaland snúist gegn grundvallarhagsmunum Rússlands. Það mun ekki enda vel, og alls óvíst er hvort að blessun sé lögð yfir þann verknað í Hvítu húsi og á þinghúsahæðum Washingtonborgar

Rússland þolir ekki að missa Hvítarússland. Ekki vegna þess að Moskva álíti að innrás vestanfrá sé þar með yfirvofandi, heldur vegna þess að enginn hélt að Þýskaland myndi verða neitt annað en áframhaldandi gjaldþrota rúst tapara eftir bæði 1918 og 1945. Rússland þekkir skiptandi aðstæður, langanir og hugarfar ríkja of vel af eigin reynslu, vegna þess að það sjálft hafði engar áætlanir um að halda kyrru fyrir í Evrópu frá og með 1945, en gerði það samt. Tímar og ríkisstjórnir breytast. Það gerir landafræðin hins vegar ekki. Hún mun áfram kalla á geopólitísk viðbrögð - og þau munu koma

NatCon  

Uppfært fimmtudagur, 20. ágúst 2020 kl. 11:33

Borist hafa fregnir þess efnis að mötuneyti diplómata Evrópusambandsins sé svo skilvirkt í framleiðslu afglapa, að Angela Merkel kanslari Þýskalands hafi borðað þar yfir sig af þeim eina rétti sambandsins. Og svo sadda að forrétturinn varð að mjólkurhristingi í maga hennar. Hélt hún að steik myndugleikans þar væri ekki skósólinn Thierry Breton í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. En hann matreiddi nefnilega þann yndislega rétt ofan í kanslarann að Hvítarússland væri ekki í Evrópu og Rússland enn síður. Hélt þýski kanslarinn því þar með væri henni væri óhætt að segja eitthvað. Forseti Hvítarússlands tók því að sjálfsögðu ekki símann er þýski kanslarinn í annarri heimsálfu reyndi að hringja í hann. Á meðan töluðu Pútín og Lukashenko fjórum sinnum saman og hlógu sig máttlausa. Bíbb bíbb bíbb sagði sími Merkels og Langley skellti upp úr, vestan Atlantsála

Munnvatnið frá Brussel virðist þannig vera að falla í sama farveg og jólagjöf Vestur-Þýskalands til Póllands féll, veturinn 1981-1982, fyrir tilstuðlan klodsmajora vestur-þýsku ríkisstjórnarinnar í Bonn. Í pakkanum voru herlög Jaruzelskis

Fyrri færsla

Jæja. Wuhan-veiran leikur marga grátt


Jæja. Wuhan-veiran leikur marga grátt

Fyrrum Obama-forsetafrúin lýsir því þarna yfir að núverandi forseti Bandaríkjanna sé rangur forseti fyrir landið. Það er ekki að spyrja að því. Svipað gerði fyrrum forsetafrú úr sama flokki er hún sagði að sá hluti bandarísku þjóðarinnar sem styddi Donald J. Trump, væru undirmanneskjur og hennar kjósendur þar með yfirmanneskjur. Svo talar þetta sama fólk um rasisma! Þarna hefur ekkert breyst og ekkert verið lært. Demókratar sem frá byrjun sáu að þeir gátu ekki komið í veg fyrir kjör Trumps í kosningum nema með því að eyðileggja hann á milli kosninga, halda áfram á þeirri braut sinni beint til heljar núna

Það versta sem Trump gerði þeim og því ríkisbubba-embættismannaliði, sem í yfirgnæfandi mæli aðhyllist demókrata, er það að hann lýsti því yfir að hann þyrfti ekki á því liði þeirra að halda. Það væri gagnslaust og ofborgaður óþarfi sem enginn þyrfti á að halda. Og við það hefur hann staðið. Hann hlustar ekki á þetta fólk og fer sínar eign leiðir. Það þola ríkisbubbarnir og kerfishershöfðingjarnir ekki og heldur ekki hugveiturnar og allar "stofnanirnar", sem allt eru að sliga með naggrísa-nagi sínu á skattgreiðendum. Hefur það lið hrúgað til sín réttindum og launum áratugum saman

Ég-get-sjálfur-aðferð Trumps hefur virkað afskaplega vel. Átta arfavitlausum árum Obama hefur verið sturtað á öskuhauga sögunnar, efnahagurinn tók því að blómstra og einkafórnarlömb aumingjavæðingar Demókrata fengu vinnu og gátu þar með sannað að þeir gerðu gagn í þjóðfélaginu og væru ekki upp á ölmusur Demókrata komnir. Algjör hryllingur fyrir Demókrata

Utanríkispólitík Trumps hefur einnig virkað vel. Stofnanavætt vesalingaveldi ESB-sukksins á meginlandi Evrópu þorði ekki öðru en að kaupa vasahnífa á kústsköft herja sinna og hætta að taka því sem gefnu að Bandaríkin myndu verja það fyrir sjálfu sér og eyðileggingarmætti Evrópusambandsins. Enginn nennir lengur að vera blásari í þokulúðrasveitum Miðausturlanda-sírenusveita vinstrisins á Vesturlöndum, og sögulegar sættir Araba og Ísraela fara nú fram og vinskapssambönd þar á milli er verið að formfesta einmitt núna, þökk sé Trump

Fimm ára styrjöld Demókrata á hendur Trump hefur því farið heldur betur illa fyrir Demókrata sjálfa. Sumir toppar þeirra eru á leið í fangelsi og margir þeirra hafa verið reknir úr opinberum störfum með skömmina eina í skilnaðargjöf. Moldvörpustarfsemi, drottinsvik, misnotkun og þjóðníð var það sem þeir reyndu að nota gegn Trump forseta bandarísku þjóðarinnar

Nýjasta vopn demókrata á Trump er hins vegar kínverska Wuhanveiran ásamt nýjum aukaflokki rasista innan Demókrataflokksins, sem kallar sig Svört líf skipta máli. Sú hreyfing er ekki nýnasistahreyfing eins og MeToo var. Hún gekk nefnilega út á að ræna störfum og lífsviðurværi frá öðru fólki sem annars hefði ekki verið hægt, og alls ekki fyrir rétti í réttarríki. Um eins konar Iittala-kristalnótt hinna löngu kristalvasahnífa góða fólksins var bara að ræða og sem stöðvaðist um leið og hún náði til Hollywood og demókratans Joe Biden. Hreyfingin Svört líf skipta máli er hins vegar hrein rasistahreyfing með mottóið "við erum æðri, þið eruð rusl og sek um allt milli himins og jarðar" (svipað og sagt var um Gyðinga)

Á þennan vagn ofurheimskunnar sem virðist hafa það sérstaklega gott á tímum heimsku-símanna, hoppa nú bjánar út um allt. Þar er tungumálið "já, nei, æði, líkar, þú skilur" eða með öðrum orðum eins konar háhraða-rafeindasuð nýbjána á borð við þá sem klesstu hlutabréfamarkaðnum þegar þeir tóku í notkun háhraðaviðskipti með hlutabréf í tölvum

Þarna klessa nýbjánar og barnafullorðnir sér næstum daglega núna og birta um leið myndir af hruni sínu í beinni. Möguleikarnir á að gera sig að fífli þarna eru svo gott sem endalausir, fyrir nýbjána. Kannski hófst þessi sjálfsklessuferð á félagshrunsmiðlum á því að vesalingar fengu borgað fyrir að koma fram í sjónvarpi og útstilla sér þar sem til dæmis óhæfir uppalendur barna (einræðisherrabörn sem þetta fólk hafði búið til var sýnt) eða til dæmis fólk sem bjó á fjóshaug sem það sjálft hafði skapað með leti sinni, subbu- og aumingjaskap. Þetta varð því miður vinsælt sjónvarpsefni

Nú geta hins vegar hverjir sem er, ráðherrar líka, sent sjálfa sig beint út sem vesalinga og raðdómgreindarskerta fávita

Er þetta ekki æðislegt. Jú jú, endilega meira af þessu!

Fyrri færsla

Kínaveiran: Þingflokksvindur nú (ó)Sjálfstæðisflokksins


mbl.is „Donald Trump er rangur forseti fyrir land okkar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kínaveiran: Þingflokksvindur nú (ó)Sjálfstæðisflokksins

"Nú get ég"

ÍSLAND

Það er harla stórfurðulegt að sjá til dæmis þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra sama flokks tala um "einstaklingsfrelsið" sem ferðaþjónusturáðherrann í ding-dong kína-hennar varð sér til skammar fyrir um helgina

Ef við viljum varðveita það þjóðfrelsi okkar Íslendinga sem ávallt er grundvöllur og frumforsenda einstaklingsfrelsis okkar, þá er erfitt að sjá að orkupakka- og landsölumenn Sjálfstæðisflokksins geti yfir höfuð komið nálægt umræðu um einstaklingsfrelsið, því þeir hafa barist svo hart fyrir afnámi þess með því að grafa undan þjóðfrelsi okkar Íslendinga í eigin landi. Þetta er auðvitað meira en stórfurðulegt þegar það mál á prent er sett, miðað við að því er virðist uppnefni flokksins

Mér sýnist á grein xD-orkupakka þingvaktarformanns niðurlagningaverksmiðju fullveldisins í Sjálfstæðisflokknum í Mogganum í dag, að hann ætli að smíða skip eða flugvél sem tekur hann til útlanda. Gott hjá honum. Vindurinn blæs og hann er frjáls. Orkupakkamaðurinn sá hefur frelsið til að byggja skip og sigla sér burt á því. Hvar hann lendir fleyi sínu er ekki mitt mál, heldur mál lögsögu annarra ríkja. Hann gæti til dæmis lent á Bretlandseyjum, á Kólaskaga, þar sem kókberin vaxa (ekki satt), jafnvel á Grænlandi, eða enn betra, - í Færeyjum, fái hann yfir höfuð landgönguleyfi!

Ef við viljum varðveita það þjóðfrelsi Íslendinga og sem ávallt er frumforsenda einstaklingsfrelsis okkar í eigin landi (Ísland er eina landið sem við eigum og stjórnum), þá er erfitt að sjá að orkupakka- og landsölumenn Sjálfstæðisflokksins (einnig sitjandi í AIIB-bankaráði Kínverska kommúnistaflokksins) geti yfir höfuð komið nálægt umræðu um einstaklingsfrelsi, því þeir hafa barist svo hart fyrir afnámi þess með því að grafa undan þjóðfrelsi okkar Íslendinga í eigin landi. Orkupakki ánauðarinnar sér fyrir því, ásamt Schengenstöppu hins sama umboðslausa illfyglis plús EES

Jafnvel James Onedin þurfti að fara í sóttkví eða láta vera að sigla, þrátt fyrir það frelsi sem vindurinn veitti honum. Hann þurfti iðulega að fara í sóttkví til þess að eyðileggja ekki þjóð- og einstaklingsfrelsi landa sinna. Það fékk hann nefnilega ekki. Heldur ekki í öðrum ríkjum

Ísland er ekki lokað land svo lengi sem skip okkar sigla. En hve lengi þau fá það, er því miður á valdi annarra ríkja, því kaupskip okkar eru skráð þar - í útópíuríki líberalista. Þau eru skráð utan íslenskrar lögsögu. Kannski kemst hinn dæmigerði þingsitjandi orkupakkamaður xD ekki úr landi, þrátt nú-get-ég-frjálsan vind, sökum eigin aulaháttar og sjálfskipaðrar ánauðar. Lögheimili hans og "þingflokks" hans virðist því miður hafa verið flutt til Útópíu, þar sem ferðaþjónustan ein ræður ríki (hamborgaraþjónustan)

Tengt: Hvað er Íhaldsstefna?

- Gunnar er þjóðaríhaldsmaður (Nat-Con) í Sjálfstæðisflokknum 

****

MINNI SAMDRÁTTUR Í DANMÖRKU EN Í SVÍÞJÓÐ

DANMÖRK

Landsframleiðsla Danmerkur dróst saman um 7,4 prósentustig á öðrum fjórðungi ársins miðað við þann fyrsta, samkvæmt tölum dönsku hagstofunnar. Þetta er mesti samdráttur sem mælst hefur í Danmörku frá því að fjórðungsuppgjör voru tekin upp í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar

Þetta er þó mun betri árangur en náðst hefur í stjórnlaust meðvirkri Svíþjóð, þar sem tæplega sex þúsund manns eru látnir úr kínversku Wuhan-veirunni, miðað við rúmlega sex hundruð í Danmörku. Þannig dróst landsframleiðsla Svíþjóðar saman um 8,6 prósentur á sama tímabili. Og heilum fimm sinnum fleiri á hvern íbúa féllu fyrir hendi kínversku veirunnar

Árangur Dana í stríðinu við veiruna er meira en fimm sinnum betri í landi þeirra Danmörku á hvern íbúa, miðað við Svíþjóð. Almannaöryggi og rekstraröryggi er meira í Danmörku, bæði fyrir fólk og fyrirtæki, og danska þjóðin skelfur því ekki eins og embættismannaskelfd Svíþjóð. Danir kóast og kúgast heldur ekki með hálfsovésku yfirvaldi með prófgráðu, eins og skattpíndir Svíar gera í hæstu sköttum veraldar í sextíu ár

FINNLAND

Finnska hagstofan: "Seasonally adjusted GDP is estimated to have fallen by around 3.2 per cent from the previous quarter."

En samt er það Finnland sem hefur vinninginn, að minnsta kosti þar til norska og síðan íslenska hagstofan koma með tölur sínar í enda mánaðarins

Þannig var samdrátturinn í Finnlandi ekki nema 3,2 prósentur á þessu sama tímabili og Wuhan-veiru dauðsföllin eru rúmlega tólf sinnum færri á hvern íbúa en í Svíþjóð

Að mörgu leyti er þessi hlutfallslega litli samdráttur litlar fréttir fyrir Finna, því Finnland hefur aldrei beiðið þess bætur að ganga í ESB og taka upp evru. Landsframleiðsla Finnlands er nefnilega næstum því sú sama og hún var árið 2008, á föstu verðlagi. Enginn vöxtur hefur verið síðustu tólf árin. Evran drap Finnland og er því mun erfiðara fyrir kínversku Wuhan-veiruna að drepa enn frekar það sem þegar dautt er

Samdrátturinn árið 2009 varð sá versti í Finnlandi allar götur frá 1918, eða um það bil 9 prósentur og útflutningur hrundi um 24 prósentur. Allt þetta –plús enginn hagvöxtur í 12 ár– er vegna þeirrar þýsku myntar sem landið notar; þ.e. stálfátæktarevru (verri en sýklahernaður)

Fyrri færsla

DDRÚV og aldarafmæli svikamyllu Ponzy


Minni samdráttur í Danmörku en í Svíþjóð

DANMÖRK

Landsframleiðsla Danmerkur dróst saman um 7,4 prósentustig á öðrum fjórðungi ársins miðað við þann fyrsta, samkvæmt tölum dönsku hagstofunnar. Þetta er mesti samdráttur sem mælst hefur í Danmörku frá því að fjórðungsuppgjör voru tekin upp í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar

Þetta er þó mun betri árangur en náðst hefur í stjórnlaust meðvirkri Svíþjóð, þar sem tæplega sex þúsund manns eru látnir úr kínversku Wuhan-veirunni, miðað við rúmlega sex hundruð í Danmörku. Þannig dróst landsframleiðsla Svíþjóðar saman um 8,6 prósentur á sama tímabili. Og heilum fimm sinnum fleiri á hvern íbúa féllu fyrir hendi kínversku veirunnar

Árangur Dana í stríðinu við veiruna er meira en fimm sinnum betri í landi þeirra Danmörku á hvern íbúa, miðað við Svíþjóð. Almannaöryggi og rekstraröryggi er meira í Danmörku, bæði fyrir fólk og fyrirtæki, og danska þjóðin skelfur því ekki eins og embættismannaskelfd Svíþjóð. Danir kóast og kúgast heldur ekki með hálfsovésku yfirvaldi með prófgráðu, eins og skattpíndir Svíar gera í hæstu sköttum veraldar í sextíu ár

FINNLAND

Finnska hagstofan: "Seasonally adjusted GDP is estimated to have fallen by around 3.2 per cent from the previous quarter."

En samt er það Finnland sem hefur vinninginn, að minnsta kosti þar til norska og síðan íslenska hagstofan koma með tölur sínar í enda mánaðarins

Þannig var samdrátturinn í Finnlandi ekki nema 3,2 prósentur á þessu sama tímabili og Wuhan-veiru dauðsföllin eru rúmlega tólf sinnum færri á hvern íbúa en í Svíþjóð

Að mörgu leyti er þessi hlutfallslega litli samdráttur litlar fréttir fyrir Finna, því Finnland hefur aldrei beiðið þess bætur að ganga í ESB og taka upp evru. Landsframleiðsla Finnlands er nefnilega næstum því sú sama og hún var árið 2008, á föstu verðlagi. Enginn vöxtur hefur verið síðustu tólf árin. Evran drap Finnland og er því mun erfiðara fyrir kínversku Wuhan-veiruna að drepa enn frekar það sem þegar dautt er

Samdrátturinn árið 2009 varð sá versti í Finnlandi allar götur frá 1918, eða um það bil 9 prósentur og útflutningur hrundi um 24 prósentur. Allt þetta –plús enginn hagvöxtur í 12 ár– er vegna þeirrar þýsku myntar sem landið notar; þ.e. stálfátæktarevru (verri en sýklahernaður)

Fyrri færsla

DDRÚV og aldarafmæli svikamyllu Ponzy


DDRÚV og aldarafmæli svikamyllu Ponzy

Í gær árið 1920 var Charles Ponzi handtekinn fyrir fjármálamisferli í Boston. Hann hafði svikið sex milljónir dala út úr fjárfestum sem hann hafði afvegaleitt

En Ponzi borgaði þó fjárfestum sínum peningana til baka 90 dögum síðar, með því að taka fé frá nýjum fjárfestum, eða eins og dómarinn orðaði það; "þú rændir Pál til að geta greitt Pétri". Síðan þá hafa slík píramídaspil verið kölluð "Ponzy svikamylla" - eða á ensku "Ponzi scheme"

Það gæti verið þarna sem hugmyndin að nefskatti til uppihalds vinstrimanna DDRÚV fæddist: Pétur er rukkaður til að Páll-DDRÚV geti greitt laun vinstrisinnaðra starfsmanna hans

Pétur bað hins vegar ekki um neitt frá DDRÚV, notar ekkert frá því og fær því ekkert frá DDRÚV, nema það að hann fær þukla á reikningnum sem hann er píndur til að borga

Segið svo að DDRÚV-einkahlutafélag vinstrimanna á Ponzy-forminu "opinbert hlutafélag" (vinstrimanna) kunni ekki sitt fag

Ef ég réði þá myndi ég banna DDRÚV, þó ekki væri nema siðferðisins vegna. Því miður get ég ekki bannað mínum að nota það, en það myndi ég gera ef ég gæti. Sjálfur nota ég það aldrei og fyrirlít það

Það jaðrar satt að segja við sturlun að ætla að fara byggja heilt nýtt fjölmiðla-sovétríki í kringum þessa svikamyllu vinstrimanna, með þeim rökum einum að hún sé til. Hvað er að fólki?

Leyfum þeim að borga fyrir og halda DDRÚV uppi sem vilja nota það. En þegar það verður lagt niður vegna þess að vinstrimenn vilja ekki borga nógu mikið til að halda því uppi, þá er hægt að bjóða þeim ókeypis áskrift að Lögbirtingarblaðinu, því þar fræðast þeir meira um hagi landsmanna og um íslenska landafræði en þeir fá út úr fimmföldu DDRÚV

Við fáum aldrei frambærilegan, ábatasaman og skilvirkan fjölmiðlamarkað með verðugri og spennandi samkeppni, svo lengi sem DDRÚV-svikamyllan er á lífi

Tilvist DDRÚV drepur einkaframtakið, sköpunarviljann og sjálfsbjargarviðleitnina. Ekkert borgar sig svo lengi sem sovétríkið DDRÚV lifir. Það er reynslan úr öllum sovétríkjum veraldar

Fyrri færsla

Samherji svarar loksins fyrir sig 


Samherji svarar loksins fyrir sig

Svar Samherja: "Skýrslan sem aldrei var gerð"

****

Eftir næstum fullan áratug af aðdróttunum og Bad-Cop mafíulegum aðförum að starfsfólki og eigendum Samherja H/F, ásamt daglegri neikvæðni í garð íslensks sjávarútvegs almennt, er loksins komið að því að við fáum að sjá sýnishorn af sannleikanum um DDRÚV-samsteypuna og að því er virðist tengdra aðila á ríkisjötunni

Loksins fáum við að sjá brotabrot af sannleikanum um DDRÚV-ríkisbubbabáknið sem gúffar í sig skattfé almennings og fyrirtækja í landinu, virðir fjárhagslegan aga að vettugi og er með heilt net af hugmyndafræðilega tengdum aðilum og að því er virðist ættarveldum innan- sem utanborðs sísoltinnar vinstrivambar þess, sem aldrei fær nóg

Í nærri þrjá áratugi hefur þetta skrímsli vinstrimanna hampað fyrst banka-, stofu-, og útrásargeira Samfylkingarsamsteypunnar í 10 ár, síðan Evrópusambandsbilun sömu pólitísku samsteypu næstu 10 árin þar á eftir, og nú hin síðustu mörgu ár ráðist gegn flestu því sem gerir það að verkum að Ísland geti áfram verið fullvalda og sjálfstætt þjóðríki okkar Íslendinga

DDRÚV matreiðir nær daglega þá skoðun að íslensk fyrirtæki séu að mestu og ávallt glæpavirki er sjálfkrafa og ávallt beri að hafa stöðu hins grunaða og eigi því sjálfvirkt heima á DDRÚV-sjálfsfróunar-sakamannabekk vinstrisins, á meðan það sjálft er svo rotið að innan að lækurinn af hlutdrægni með aðferð vinstrimanna um hvað er frétt og hvað er ekki frétt, fossar út um allar Corbyn-sprungur DDRÚV-báknsins, sem engir, nema fáir, hér á landi vilja, en eru píndir til að borga undir og halda uppi. Lítið nema hörmungar er upp úr DDRÚV-bákninu að hafa

The Corbyn crack-up - The Spectator

Mynd: MÍR-múrinn að Austur-Berlínarleiti Reykjavíkurborgar

****

Af hverju erum við þrælar DDRÚV látnir halda þessari stalínísku truntubikkju vinstrimanna uppi? Ég spyr

Ef við öll lifðum, hugsuðum og hegðuðum okkur eins og DDRÚV, þá væri lýðveldið Ísland gegnheilt og gjaldþrota sovétríki í dag

Fyrri færsla

Rangt: Trump ekki fluttur í Bidenholu


Rangt: Trump ekki fluttur í Bidenholu [u]

Mbl-rifnar-gallabuxur-on-line skrifar: "Leyniþjón­usta Banda­ríkj­anna hef­ur skotið vopnaðan mann utan við Hvíta húsið í Washingt­on. Blaðamanna­fundi for­set­ans var slitið í snatri og for­set­inn færður í byrgi sitt."

Rangt. Hér fyrir ofan er umræddur blaðamannafundur og á fyrstu mínútu þessarar upptöku af honum kemur fram að forsetinn fór bara örskotsstund inn á skrifstofu sína (smella á upphafsreit upptökunnar). Engin hnattræn blaðamannahlýnun þarna

Prent-Mogginn er ekki svona. Rólega.. rólega.. er mitt ráð

"Take it easy, take it easy. Don-t let the sound of your own wheels drive you crazy"

Uppfært: 11. ágúst 2020 kl. 23:59:28

Frétt Mbl hefur nú verið leiðrétt og uppfærð. Fínt mál. Þakkir

Fyrri færsla

Kuldamet slegið í Ástralíu


mbl.is Maður skotinn við Hvíta húsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kuldamet slegið í Ástralíu

Það snjóar og er svo kalt í Suður-Ástralíu að þrjátíu ára kuldamet var slegið á Tasmaníu. Telja veðurfræðingar að um allsherjar kuldamet sé jafnvel að ræða. Nær fimmtán stiga frost hefur verið

Og eins og kuldafréttirnar séu ekki nóg, þá hefur stofn Keisaramörgæsanna vaxið svo að hann er nú 10 prósentum stærri á Suðurskautinu en hann var fyrir 12 árum, þvert á spár svo kallaðra "vísindamanna"

En það er meira. Nú hafa menn frestað útdauða ísbjarna til næstu aldamóta. Samkvæmt algóritma-herrasetursmönnum Sílikonalheimsins áttu þeir að vera útdauðir 2014. En eru það sem sagt ekki. Hvernig skyldi standa á því?

Og nú er komið í ljós að skítugasta orkan (ef svo furðulega mætti kalla orku) er sú sem notuð er til að knýja svo kallaða rafbíla. Það má lesa út úr rannsókn S.þ.

Sennilega er niðurgreiðsla rafbíla versta misnotkun á almannafé sem sögur fara af. Þar eru grunnhyggnir stjórnmálamenn heldur betur búnir að gera í nær-buxur sínar. Aðeins eyðilegging þess sem virkar vel og hefur verið þróað í 150 ár er það sem stjórnmálamenn hafa upp úr því atkvæðakrafsi. Allir vita hvernig þannig sovétvísinda-skollaleikur endar

Fyrri færsla

Kaldasti júlímánuður í 22 ár


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband