Leita í fréttum mbl.is

Samherji svarar loksins fyrir sig

Svar Samherja: "Skýrslan sem aldrei var gerð"

****

Eftir næstum fullan áratug af aðdróttunum og Bad-Cop mafíulegum aðförum að starfsfólki og eigendum Samherja H/F, ásamt daglegri neikvæðni í garð íslensks sjávarútvegs almennt, er loksins komið að því að við fáum að sjá sýnishorn af sannleikanum um DDRÚV-samsteypuna og að því er virðist tengdra aðila á ríkisjötunni

Loksins fáum við að sjá brotabrot af sannleikanum um DDRÚV-ríkisbubbabáknið sem gúffar í sig skattfé almennings og fyrirtækja í landinu, virðir fjárhagslegan aga að vettugi og er með heilt net af hugmyndafræðilega tengdum aðilum og að því er virðist ættarveldum innan- sem utanborðs sísoltinnar vinstrivambar þess, sem aldrei fær nóg

Í nærri þrjá áratugi hefur þetta skrímsli vinstrimanna hampað fyrst banka-, stofu-, og útrásargeira Samfylkingarsamsteypunnar í 10 ár, síðan Evrópusambandsbilun sömu pólitísku samsteypu næstu 10 árin þar á eftir, og nú hin síðustu mörgu ár ráðist gegn flestu því sem gerir það að verkum að Ísland geti áfram verið fullvalda og sjálfstætt þjóðríki okkar Íslendinga

DDRÚV matreiðir nær daglega þá skoðun að íslensk fyrirtæki séu að mestu og ávallt glæpavirki er sjálfkrafa og ávallt beri að hafa stöðu hins grunaða og eigi því sjálfvirkt heima á DDRÚV-sjálfsfróunar-sakamannabekk vinstrisins, á meðan það sjálft er svo rotið að innan að lækurinn af hlutdrægni með aðferð vinstrimanna um hvað er frétt og hvað er ekki frétt, fossar út um allar Corbyn-sprungur DDRÚV-báknsins, sem engir, nema fáir, hér á landi vilja, en eru píndir til að borga undir og halda uppi. Lítið nema hörmungar er upp úr DDRÚV-bákninu að hafa

The Corbyn crack-up - The Spectator

Mynd: MÍR-múrinn að Austur-Berlínarleiti Reykjavíkurborgar

****

Af hverju erum við þrælar DDRÚV látnir halda þessari stalínísku truntubikkju vinstrimanna uppi? Ég spyr

Ef við öll lifðum, hugsuðum og hegðuðum okkur eins og DDRÚV, þá væri lýðveldið Ísland gegnheilt og gjaldþrota sovétríki í dag

Fyrri færsla

Rangt: Trump ekki fluttur í Bidenholu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Bjarnason

Gunnar, hver er mesti kommúnisti á Íslandi?

Kristinn Bjarnason, 12.8.2020 kl. 06:16

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Nú verður þú að hjálpa mér Kristinn, því ég er hreinlega hættur að sjá trén fyrir hraðvaxtar-skóginum. Hann hefur vaxið svo hratt hin síðustu 20 ár en sérstaklega frá og með 2008.

En ég held ekki að um neinn einn mann sé að ræða, því kommar viðurkenna helst ekki að vera einstaklingar, og eru því eins konar óáþreifanleg marglytta á borð við hugmyndagloríu ESB, sem stökkbreyttist úr EEC-ístruklúbbi áttavilltra íhaldsmanna yfir í ESB-yfirríkið (glóbalismi) og sem vinstrimenn stukku þá á, yfirtóku og gúffuðu í sig. Í þann graut eru þeir svo byrjaðir að hella grænu melónunni, sem auðvitað er rauð að innan.

En um eitthvað grænt er þó með vissu að ræða, því það er ávallt rautt að innan.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 12.8.2020 kl. 08:50

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ef að ríkisstjórninni tekst ekki að koma böndum á veirumálin hér innanlands og skapa öryggi, þá mun hún skafa spikið af sjálfri sér með því að skafa rekstrargrundvöllinn undan þeim þjónustufyrirtækjum sem þjóna hagkerfi Íslendinga á Íslandi, og það mun síðan skafa virðisaukaþátt banka- og fjárfestingargeirans út úr landsframleiðslunni, og kommúnismi mun aukast.

Ríkisstjórnin verður að leggja af alla þá orku sem farið hefur í það að að reyna að pumpa upp þjónustu fyrirtækja við erlenda ferðamenn, sem er bara tíndur títuprjónn í helvíti miðað við þá líkkistu sem hún er að smíða úr þeim þjónustugreinum sem þjónusta Íslendinga í sínu eigin landi og fyrirtæki þeirra.

Ísland-fyrst verður að vera móttó stjórnmálamanna okkar gegn kínversku Wuhan-veirunni.

Gunnar Rögnvaldsson, 12.8.2020 kl. 09:22

4 identicon

Ég veit að þetta er erfið spurning því möguleikarnir eru miklir.

Svarið er ÞKG. Það hefur engum öðrum tekist að fá harða hægri menn til að styðja vinstri áróður í skilduáskrift.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 12.8.2020 kl. 10:43

5 identicon

Mér finnst upplagt tækifæri núna að selja rúv til samherja.

Þá er þetta mál leyst og við laus við rúv.

emil (IP-tala skráð) 12.8.2020 kl. 12:11

6 Smámynd: Haukur Árnason

Þarfur pistill og sannur. Takk Gunnar.

Haukur Árnason, 12.8.2020 kl. 13:00

7 Smámynd: Haukur Árnason

Hreinn Guðvarðarson er alveg með þetta.

Helgi Seljan og skýrslan.

Athygli manna ég vekja vil

á verðugu fyrirbæri.

Að eiga við skýrslu sem ekki er til

er ekki á hvers manns færi.

Haukur Árnason, 12.8.2020 kl. 13:11

8 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Mjög ánægður með þessi útspil Samherjamanna. Það sáu margir að Namibíumálið var árás kryptókommúnismans og snérist aldrei um Namibíu eða mútur. Einnig var áhugavert hversu fáir gátu eða þorðu að svara því málefnalega.

Guðjón E. Hreinberg, 12.8.2020 kl. 13:46

9 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Gleymdi að koma með smá hól: Sísoltin vinstrivömp! :D

Guðjón E. Hreinberg, 12.8.2020 kl. 13:48

10 identicon

Já þetta eru aumu piltarnir. Ekki nóg með að þessi skýrsla var aldrei til heldur var líka átt við hana.frown

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 12.8.2020 kl. 19:23

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlitið.

Nú fáum við væntanlega að sjá DDRÚV sem pressað grafískt útprent af töflureiknisskjali færast hægt yfir sjónvarpsskjái landsmanna, þar sem einn óhæfur ríkisbubbi vinstrimanna-batterísins liggur sem fórnarlamb hins vonda-vonda einkafyrirtækis í hverri sellu, á meðan sorgarmars Sovétríkjanna er spilaður undir á stef-kostnað skattgreiðenda sem eru að deyja út.

Það er frekar paþetískt að fylgjast með viðbrögðum DDRÚV og svo kallaðra samtaka "fréttamanna". Hvílík samsuða af fórnarlambakássu.

Já Kristinn þú segir nokkuð. Vinstri ESB-helferð umrædds ÞKG í evruhagstjórn Benedikts á svitabolnum í ESB-klaustrinu, er ekki beint fögur sjón.

Tómar persónutóftir þessa fólks í EES- og Schengenhöll orkupakkamanna xD hafa nú verið fylltar af nýjum en álíka rétttrúnaðarbjálfum. Evrópu-Altarið stendur enn á sama stað þar.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 12.8.2020 kl. 22:50

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Aldarafmæli:

Á þessum degi árið 1920 var Charles Ponzi handtekinn fyrir fjármálamisferli í Boston. Hann hafði tekið við 6 milljón dölum frá afvegaleiddum fjárfestum.

En Ponzi borgaði þeim hins vegar 90 dögum síðar peningana til baka, með því að taka fé frá nýjum fjárfestum, eða eins og dómarinn orðaði það; "þú rændir Pál til að geta greitt Pétri". Síðan þá hafa slík píramídaspil verið kölluð "Ponzy svikamylla"

Gunnar Rögnvaldsson, 12.8.2020 kl. 23:47

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það gæti verið þarna sem hugmyndin að nefskatti til uppihalds DDRÚV fæddist: Pétur er rukkaður til að Páll-DDRÚV geti greitt laun starfsmanna.

Pétur bað hins vegar ekki um neitt, notar ekki neitt og fær ekki neitt í staðinn frá DDRÚV, nema það að hann fær þukla á reikningnum.

Gunnar Rögnvaldsson, 13.8.2020 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband