Leita í fréttum mbl.is

Er Trump að svæla Biden upp úr kjallaranum?

Truman-Dewey-polls-1948

Veggur skoðanakannana: Dewey - "Til hvers yfir höfuð að halda þessar kosningar í nóvember?

Vert er að minnast bandarísku forsetakosninganna 1948 þar sem repúblikaninn Thomas Dewey var í könnunum viðstöðulaust langt fyrir ofan Harry Truman næstum alla daga kosningaársins, þar til talið var upp úr kjörkössunum og hann sendur í kjallarann. Truman vann öruggan sigur, öfugt við hróp og köll kannana

Demókratar binda vonir sínar við kínversku Wuhan-veiruna. Þeir binda vonir sínar við að með henni takist þeim að fela forkalkaðan Biden í byrgi sínu, þar sem hann heldur bunker-stemmingunni uppi með því að elliæra sjálfan sig og geta þannig ekki svarað fyrirfram innsendum spurningum, sem hann var búinn að fara yfir

Daily New Cases in the United States 2020-08-25

Bandaríkin - ný tilfelli

En nú virðist vont fyrir Biden en gott fyrir þjóðina vera á leiðinni. Nýjum Wuhan-veiru tilfellum fækkar í Bandaríkjunum og dánartölurnar hafa ekki náð að rísa, því læknar vita meira núna en þeir vissu þegar Biden gekk í björg í mars. Og síðan eru kúrfurnar þannig vaxnar núna, í þeim ríkjum sem ófréttamenn segja að séu í nýrri sveiflu, að þær benda til þess að sveiflan sú sé sú fyrsta og eina þar

Daily New Deaths in the United States 2020-08-25

Bandaríkin - ný dauðsföll

Ástandið er enn mun verra í heildina í stjórnlausri Belgíu, Spáni, Bretlandi, Svíþjóð og Ítalíu en það er í Bandaríkjunum, þ.e. fleiri dauðsföll á hverja milljón íbúa. Og sennilegt er að Frakkland sé að gjósa á ný núna þegar kúrfan þar af nýjum tilfellum er að mynda svipaða kryppu og snemma í vor. Nýtt uppsving kúrfunnar er að mynda hið strategíska bros Wuhan-veirunnar á milli nú tveggja kryppa þar - og víðar í Evrópu, Þýskalandi líka

Daily New Cases in France 2020-08-25

Frakkland - ný kryppa af nýjum tilfellum að myndast

Gildir það um mörg önnur ríki Evrópuskagans sem stingst út úr móðir-Rússlandi. Dánarhlutfallið í Frakklandi er 26 prósent núna (e. mortality rate). Það er að segja að 26 af hverjum hundrað manns sem greinast með veiruna deyja. Sú tala bendir til að Frakkar séu aðeins að greina brot vandans eins og Svíar, sem aldrei hafa viðurkennt hann

Daily New Cases in California 2020-08-25

Kalifornía - ný tilfelli

Bandaríkin hafa nú skimað 77 milljón manns eða 230 þúsund íbúa af hverri milljón, Frakkar aðeins 91 þúsund á hverja milljón og Svíar einungis 100 þúsund af hverjum milljón íbúum þess lands. Svíþjóð er hætt að gefa upp hversu margir ná sé af veirunni, sem þeir segja að 87 þúsund Svíar hafi fengið og 5800 látið lifið af. Þar er dánarhlutfallið hreint út sagt skuggalegt

Daily New Cases in Texas 2020-08-25

Texas - ný tilfelli

Takist Trump að ná veirunni nægilega niður þá verður Biden að sýna sig og opna munninn - og þá tapar Biden. Slík er blekkingariðja flokksins

Nú er afar líklegt að atvinnuleysi í Bandaríkjunum verði komið niður sex prósent á kjördag og það mun hjálpa kjósendum svo um munar. Biden fær enga þökk þar, því kom hann þar hvergi nærri. Og þá tapar Biden

Plús það að Demókratar minntust ekki á nein stefnumál á flokkssýndarráðstefnunni í síðustu viku og láta þar með Repúblikönum eftir að kynna þau fyrir bandarísku þjóðinni. Ákafinn í að ná sér niðri á einum manni er slíkur að Trump fjarstýrir nú stefnulausum Demókrataflokknum með iPhone-tísti sínu og tungu

Veiran niður => Trump sigrar
Atvinnuleysi niður í 6 prósent => Trump sigrar
Meiri skrílslæti úr herbúðum Demókrata => Trump sigrar

HLAÐVARPIÐ: LIÐIN ERU 75 ÁR SÍÐAN ÞÁ

Aukaútsending með Victor Davis Hanson sagnfræðingi og bónda: Þetta er einkum fyrir vinstri-manntegund kertafleytara og Þýskalands-fetista í tilefni þess að 75 ár eru liðin frá lokum Síðari heimsstyrjaldarinnar

Fyrri færsla

Trump er sá sem litlir menn vilja taka niður


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Ég horfði á opnunarræðu Biden.

Hann sagðist vera með plan til að stöðva veiruna en mér skildist á honum að enginn muni fá að vita hvernig það plan lítur út fyrr en hann er kominn í Hvíta húsið.

Grímur Kjartansson, 25.8.2020 kl. 15:42

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Grímur.

Já. Demókratar lifa í voninni um að geta kynnt undir öllu sem kemur sér illa fyrir þjóðina, gagnist það við að skola þeim sjálfum inn í Hvíta húsið.

Ég hef aðeins einu sinni áður á ævi minni séð jafn siðferðilega brostna og úrkynjaða stjórnarandstöðu og Demókrata núna, en það var stjórnarandstaða danskra sósíaldemókrata undir stjórn Svend Auken og firrtra félaga frá 1987-1992.

Hinn gamli Demókrataflokkur þrælahaldaranna er samur við sig. Styrkur og hugrekki Trumps kallar allt það versta fram í þeim. Hann afhjúpar þá alveg.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 25.8.2020 kl. 20:01

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Það er rétt að Dewey var alla kosningabaráttuna ofar en Truman, en einhvers staðar sá ég það, man að vísu ekki hvar, að eins og er væri munurinn meiri á Biden og Trump en hann var á Dewey og Truman hér um árið.  

Ómar Ragnarsson, 25.8.2020 kl. 23:39

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þriðjudagur, 25. ágúst 2020 kl. 23:44:04

Jæja þá kom norska hagstofan með uppgjör landsframleiðslunnar á öðrum fjórðungi þessa árs í dag.

Allt norska hagkerfið dróst saman um 5,1 prósentur miðað við fyrsta fjórðung ársins. Þarna er olíuhagkerfið meðtalið. En sé hins vegar norska fastlands-hagkerfið gert upp eitt og sér, eins og Norðmenn samkvæmt venju gera, þá var samdrátturinn 6,3 prósentur. Það er sú tala sem Norðmenn máta sjálfa sig við.

Þetta er mesti samdráttur sem mælst hefur í Noregi og þeir mega teljast heppnir að olíuhagkerfið dró þá ekki enn lengra niður ofan í samdráttinn sem varð svona svæsinn vegna kínversku Wuhan-veirunnar. En það gæti samt enn náð að gerast.

Finnland hefur því enn sem komið er vinninginn með aðeins 3,2 prósentu samdrátt á sama tímabili.

Þá er þetta svona á Norðurlöndunum, þar til Hagstofa Íslands kemur með sínar tölur næstkomandi mánudag, þann 31 ágúst.

Finnland: -3,2%

Noregur: -6,3%

Danmörk: -7,4%

Svíþjóð: -8,6%

Gunnar Rögnvaldsson, 25.8.2020 kl. 23:45

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk Ómar.

Það má vel vera.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.8.2020 kl. 23:46

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Miðvikudagur, 26. ágúst 2020 kl. 02:30:16

Þýska hagstofan birti í gær, þriðjudag, endurskoðaðar tölur yfir landsframleiðsluna á öðrum fjórðungi ársins. Samdrátturinn er 9,7% en ekki 10,1% eins og áætlað var um daginn. Þetta er mesti samdráttur frá því að mælingar hófust (50 ár). Einkaneysla dróst saman um 10,9%, fjárfestingar kryppluðust niður um 19,6% og útflutningur um 20,3%. Það eina sem hélt hendinni undir þýska hagkerfinu var eyðsla ríkisins.

Minna en ekkert gagn reyndist vera í hvorki evrunni, Evrópusambandinu, Sjúkdóma og sóttvarnarmiðstöð ESB í Stokkhólmi, Schengen, né hálfgjaldþrota þýskum heimilum dinglandi evrusnörunni. Öll E-efnin brugðust. Það eina sem brást ekki var peningabetlið sunnan Alpafjalla.

Gunnar Rögnvaldsson, 26.8.2020 kl. 02:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband