Leita í fréttum mbl.is

Kínaveiran: Þingflokksvindur nú (ó)Sjálfstæðisflokksins

"Nú get ég"

ÍSLAND

Það er harla stórfurðulegt að sjá til dæmis þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra sama flokks tala um "einstaklingsfrelsið" sem ferðaþjónusturáðherrann í ding-dong kína-hennar varð sér til skammar fyrir um helgina

Ef við viljum varðveita það þjóðfrelsi okkar Íslendinga sem ávallt er grundvöllur og frumforsenda einstaklingsfrelsis okkar, þá er erfitt að sjá að orkupakka- og landsölumenn Sjálfstæðisflokksins geti yfir höfuð komið nálægt umræðu um einstaklingsfrelsið, því þeir hafa barist svo hart fyrir afnámi þess með því að grafa undan þjóðfrelsi okkar Íslendinga í eigin landi. Þetta er auðvitað meira en stórfurðulegt þegar það mál á prent er sett, miðað við að því er virðist uppnefni flokksins

Mér sýnist á grein xD-orkupakka þingvaktarformanns niðurlagningaverksmiðju fullveldisins í Sjálfstæðisflokknum í Mogganum í dag, að hann ætli að smíða skip eða flugvél sem tekur hann til útlanda. Gott hjá honum. Vindurinn blæs og hann er frjáls. Orkupakkamaðurinn sá hefur frelsið til að byggja skip og sigla sér burt á því. Hvar hann lendir fleyi sínu er ekki mitt mál, heldur mál lögsögu annarra ríkja. Hann gæti til dæmis lent á Bretlandseyjum, á Kólaskaga, þar sem kókberin vaxa (ekki satt), jafnvel á Grænlandi, eða enn betra, - í Færeyjum, fái hann yfir höfuð landgönguleyfi!

Ef við viljum varðveita það þjóðfrelsi Íslendinga og sem ávallt er frumforsenda einstaklingsfrelsis okkar í eigin landi (Ísland er eina landið sem við eigum og stjórnum), þá er erfitt að sjá að orkupakka- og landsölumenn Sjálfstæðisflokksins (einnig sitjandi í AIIB-bankaráði Kínverska kommúnistaflokksins) geti yfir höfuð komið nálægt umræðu um einstaklingsfrelsi, því þeir hafa barist svo hart fyrir afnámi þess með því að grafa undan þjóðfrelsi okkar Íslendinga í eigin landi. Orkupakki ánauðarinnar sér fyrir því, ásamt Schengenstöppu hins sama umboðslausa illfyglis plús EES

Jafnvel James Onedin þurfti að fara í sóttkví eða láta vera að sigla, þrátt fyrir það frelsi sem vindurinn veitti honum. Hann þurfti iðulega að fara í sóttkví til þess að eyðileggja ekki þjóð- og einstaklingsfrelsi landa sinna. Það fékk hann nefnilega ekki. Heldur ekki í öðrum ríkjum

Ísland er ekki lokað land svo lengi sem skip okkar sigla. En hve lengi þau fá það, er því miður á valdi annarra ríkja, því kaupskip okkar eru skráð þar - í útópíuríki líberalista. Þau eru skráð utan íslenskrar lögsögu. Kannski kemst hinn dæmigerði þingsitjandi orkupakkamaður xD ekki úr landi, þrátt nú-get-ég-frjálsan vind, sökum eigin aulaháttar og sjálfskipaðrar ánauðar. Lögheimili hans og "þingflokks" hans virðist því miður hafa verið flutt til Útópíu, þar sem ferðaþjónustan ein ræður ríki (hamborgaraþjónustan)

Tengt: Hvað er Íhaldsstefna?

- Gunnar er þjóðaríhaldsmaður (Nat-Con) í Sjálfstæðisflokknum 

****

MINNI SAMDRÁTTUR Í DANMÖRKU EN Í SVÍÞJÓÐ

DANMÖRK

Landsframleiðsla Danmerkur dróst saman um 7,4 prósentustig á öðrum fjórðungi ársins miðað við þann fyrsta, samkvæmt tölum dönsku hagstofunnar. Þetta er mesti samdráttur sem mælst hefur í Danmörku frá því að fjórðungsuppgjör voru tekin upp í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar

Þetta er þó mun betri árangur en náðst hefur í stjórnlaust meðvirkri Svíþjóð, þar sem tæplega sex þúsund manns eru látnir úr kínversku Wuhan-veirunni, miðað við rúmlega sex hundruð í Danmörku. Þannig dróst landsframleiðsla Svíþjóðar saman um 8,6 prósentur á sama tímabili. Og heilum fimm sinnum fleiri á hvern íbúa féllu fyrir hendi kínversku veirunnar

Árangur Dana í stríðinu við veiruna er meira en fimm sinnum betri í landi þeirra Danmörku á hvern íbúa, miðað við Svíþjóð. Almannaöryggi og rekstraröryggi er meira í Danmörku, bæði fyrir fólk og fyrirtæki, og danska þjóðin skelfur því ekki eins og embættismannaskelfd Svíþjóð. Danir kóast og kúgast heldur ekki með hálfsovésku yfirvaldi með prófgráðu, eins og skattpíndir Svíar gera í hæstu sköttum veraldar í sextíu ár

FINNLAND

Finnska hagstofan: "Seasonally adjusted GDP is estimated to have fallen by around 3.2 per cent from the previous quarter."

En samt er það Finnland sem hefur vinninginn, að minnsta kosti þar til norska og síðan íslenska hagstofan koma með tölur sínar í enda mánaðarins

Þannig var samdrátturinn í Finnlandi ekki nema 3,2 prósentur á þessu sama tímabili og Wuhan-veiru dauðsföllin eru rúmlega tólf sinnum færri á hvern íbúa en í Svíþjóð

Að mörgu leyti er þessi hlutfallslega litli samdráttur litlar fréttir fyrir Finna, því Finnland hefur aldrei beiðið þess bætur að ganga í ESB og taka upp evru. Landsframleiðsla Finnlands er nefnilega næstum því sú sama og hún var árið 2008, á föstu verðlagi. Enginn vöxtur hefur verið síðustu tólf árin. Evran drap Finnland og er því mun erfiðara fyrir kínversku Wuhan-veiruna að drepa enn frekar það sem þegar dautt er

Samdrátturinn árið 2009 varð sá versti í Finnlandi allar götur frá 1918, eða um það bil 9 prósentur og útflutningur hrundi um 24 prósentur. Allt þetta –plús enginn hagvöxtur í 12 ár– er vegna þeirrar þýsku myntar sem landið notar; þ.e. stálfátæktarevru (verri en sýklahernaður)

Fyrri færsla

DDRÚV og aldarafmæli svikamyllu Ponzy


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Bragi Benediktsson

Sæll, þú flytur mikilvægan boðskap, en skensið skemmir dálítið fyrir honum. viltu ekki láta taka þig alvarlega. T.d. er ofaukið Hvar hann lendir fleyi sínu er ekki mitt mál, heldur mál lögsögu annarra ríkja. Hann gæti til dæmis lent á Bretlandseyjum, á Kólaskaga, þar sem kókberin vaxa (ekki satt), jafnvel á Grænlandi,

Guðjón Bragi Benediktsson, 17.8.2020 kl. 11:00

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir innlitið og skrif Guðjón.

Nei, þetta er betra svona, því þá hef ég að minnsta kosti stjórn á sjálfum mér og tek sjálfan mig nógu alvarlega. Hvernig aðrir taka því sem ég segi hef ég enga stjórn á og mun aldrei hafa, eins og sést.

Þess utan, væri ég of alvarlegur, þá gæti þingflokksformaðurinn hoppað fyrir borð og drukknað (jafnvel í kókinu frá Kólaskaga), og það vil ég ekki.

Það er ekki auðvelt að skamma sín eigin flokkssystkini og ég er bara einn maður og þar með aðeins eitt atkvæði. Mér finnst betra að gera þetta svona en að taka Albaníu á aðra.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.8.2020 kl. 11:54

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Það er tvennt sem mér er efst í huga - utan þakkir fyrir góð skrif.

a) Á meðan Kommúnistar eru að rústa landinu okkar á grundvelli vafasamra vísinda, þá má spyrja sig hvort hafstofur vestrænna ríkja hafi verið jafn kyrfilega yfirtekin af þeim eins og sumar deildir læknisfræðinnar. Með öðrum orðum, hvort við vitum hvað er að gerast í efnahagslífi vesturlanda fyrr en gengið hefur verið stöðvað.

b) Ég las í fyrra "Uppruni Sjálfstæðisflokksins" eftir Hallgrím Guðmundsson, en á þeim tíma var ég sjálfur að skrifa um hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefði breyst í Sósíalistaflokk. Þar voru mjög áhugaverðar ábendingar um aldargömul skrif Jóns Þorlákssonar um hvað Íhaldsstefnan er, að mínu mati bestu útskýringar sem ég hef sé á Íslensku.

Afsakið hve löng athugasemdin er. Bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 17.8.2020 kl. 12:06

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

En hvað sem öllu líður þá hefur þingflokksformaðurinn stuðning þjóðarinnar við hertar veiru-aðgerðir og sem duga, á meðan hann hafði engan stuðning frá þjóðinni og allra síst frá kjósendum Sjálfstæðisflokksins í orkupakkamálinu. Þar gerði allur þingflokkurinn (nema einn maður) í buxurnar, og sem ekki hafa verið hreinsaðar síðan.

Það var og er grafalvarlegt mál, ekki bara fyrir þá, heldur mig líka og þjóðina alla og þjóðríki hennar. Lyktin af þeim óþverra á heldur betur eftir að blossa upp!

Gunnar Rögnvaldsson, 17.8.2020 kl. 12:06

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fína athugasemd Guðjón Hreinberg.

Það fer greinilega eftir formanninum hvaða flokkur Sjálfstæðisflokkurinn er. Helsta ástæðan fyrir því að ég er í honum er Davíð Oddsson og Ólafur Thors.

Já flokkurinn er óáþreifanlegur krataflokkur af marglyttutegund núna, eins og sést á lélegu fylgi hans hin síðustu 12 ár. Næstum allt er gert til að hann sé ekki flokkur sjálfstæðismanna.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.8.2020 kl. 12:13

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Afsakið Guðjón Hreinberg. Ég gleymdi að svara þér þessu með hagstofurnar.

Svar: Þær eru skásta lygin eða nálgunin sem hægt er að framleiða á því sviði, því að um liðna tíð er ávallt að ræða og sem aldrei kemur aftur sem samanburðarhæft sönnunargagn.

Þær eru ekki eins og kjörkassarnir sem skera úr um hvort að afurðir skoðanakannanaiðnaðarins séu réttar eða ekki. Talið er upp úr kjörkössum á fjögurra ára fresti.

Þannig tól hafa hagstofurnar ekki. Þær fást því við nálganir og þær eru viðstöðulaust að leiðrétta villur og skekkjur sínar, án þess þó sérstaklega að framleiða þær sjálfar.

Þeim má að mestu treysta í takt við stjórnarfarið í viðkomandi löndum (sbr. grísku hagstofuna), því hagstofur eru yfirleitt opinberar stofnanir. En þær geta þó aldrei fengið nálganir sínar staðfestar að fullu.

Gunnar Rögnvaldsson, 17.8.2020 kl. 13:21

7 identicon

Ísland er ekki fullvalda ríki.

Og því ekki sjálfstætt ríki.

Bæði fullveldinu og sjálfstæðinu var fórnað

þegar Viðeyjarstjórn Davíðs Oddssonar 

samþykkti að Ísland yrði norskt lén

með tilkomu EES samningsins.

Fyrr en þú og Davíð viðurkennið þessa staðreynd

er tómt mál að tala við ykkur um þessi mál.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 17.8.2020 kl. 13:26

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Símon Pétur.

Ef við segum skilið við hinn fullkomna heim fullkomnunarinnar, og skoðum staðreyndirnar á jörðu niðri, í heimi okkar ófullkomnu manna, þá er það þannig að bæði Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson, sem stóðu að gerð EES-samningsins, hafa sagt að varla hefði komið til greina að hvorki samþykkja né taka hann upp, ef vitað hefði verið hvernig menn eru farnir að misnota hann sökum þess að hann er þarna - og svo vegna þess hversu hinn aðilinn hafi tekið miklum og illkynja stökkbreytingum. Því hafa báðir þeir herramenn gert landslýðnum grein fyrir og undirstrikað. Samningnum er hægt að segja upp, og það ættum við að gera. 

Fullyrðing þín er í ætt við það að segja að allt sé ónýtt fyrst að það sé ekki fullkomið. En þannig er lífið ekki, nema uppi í útópískum höfðum vinstrimanna. Þeir sem biðja um fullkomnun fá yfirleitt ekkert. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.8.2020 kl. 13:53

9 identicon

Takk fyrir gott svar Gunnar.

Já, EES samningnum ber að segja upp.

Það ber brýna nauðsyn til.

Og gott að Davíð sé orðið það ljóst.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 17.8.2020 kl. 14:01

10 identicon

Eða telurðu það "útópíu" Gunnar,

að segja EES samningnum upp?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 17.8.2020 kl. 14:31

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég tel Evrópusambandið með réttu vera útópíu og að EES samningnum við það eigi að segja upp, eins og ég skrifa hér fyrir ofan. Engum fullvita manni er lengur stætt á að styðja tilvist EES-samningsins. 

Gunnar Rögnvaldsson, 17.8.2020 kl. 15:17

12 identicon

Takk fyrir enn betra svar Gunnar.

Gæti ekki orðað það betur en þú gerir í athugasemd þinni þann 17.8.2020 kl. 15:17.

Algjörlega sammála.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 17.8.2020 kl. 15:30

13 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Þetta kalla ég særingu af dýrari gerð, á tæru máli myndlíkinga sem gera orð þín svo sjónræn að unun er að.

Ekki skaðar síðan spjall þitt við Símon Pétur.

Tek þar undir hvert orð.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 17.8.2020 kl. 21:03

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ómar.

Kveðja að vestan

Gunnar Rögnvaldsson, 17.8.2020 kl. 21:48

15 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Auðvita á að segja þessum andskotans EES samningi upp með öllu við hangandi rusli og betra að fyrr hefði verið, því nú er þetta orku pakka mál að detta í hausinn á okkur.

Bjálvarnnr sem hún Jóhanna skildi eftir í stjórn lands virkjunar eru þar enn og dreymir um kapal til Evrópu.

Hörður lítur vonar augum til þess að honum takist að hrekja Straumsvíkur álverið á vergang til að fá straum á kapalinn og vind millu bjálfarnir hafa líka séð tækifæri þar.

Hrólfur Þ Hraundal, 17.8.2020 kl. 23:12

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Hrólfur.

Já og amen.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 17.8.2020 kl. 23:29

17 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hef opnað flesta mjúku pakka bloggsins í dag og vind mér í þann stærsta og núna mest spennandi.Fæ hugboð af fenginni reynslu að hingað streyma kraftar fullveldisins,í baráttu til bjargar landinu sínu og nálgunarbönn hefta þau ekki,það er lífsandinn sem blæs því hugrekki í brjóst.(hafði ég lesið þetta einhvers staðar?)bara gott er í fullu gildi,sama hver segir það.Herðum róðurinn þótt árarnar séu gamlar sleifar! M.Kv.       

Helga Kristjánsdóttir, 18.8.2020 kl. 04:00

18 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég þakka þér fyrir innlitið Helga.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 18.8.2020 kl. 09:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband