Leita í fréttum mbl.is

General Motors kreistir hagnað út úr heimsfaraldri

Mér líst betur og betur á pallbílinn. Kannski verður það þetta sem tekur við af gamla SRT8 Jeep mínum

****

Hagnaður GM á fyrsta fjórðungi 2020 var 292 milljón dalir og er fyrirtækið eini bílaframleiðandinn sem skilar hagnaði á tímabilinu

"GM was the only Detroit auto maker to report a quarterly profit, while it, Ford and Fiat Chrysler seek to manage cash crunch and plunging demand." WSJ

Eins og Apple sem tókst hið ómögulega á fimmtudaginn í síðustu viku, þá tókst bílaframleiðandanum General Motors í Detroit í Michiganríki að að kreista framgang og hagnað úr úr fyrsta fjórðungi núverandi pestar-helvítis-árs, þökk sé góðri sölu á pallbílum sem hægt er að nota til bæði raunverulegra hluta og í neyðarástandi. Betra að vera um borð í pallbílnum sínum en að vera læstur inni í tveggja herbergja íbúð á 31. hæð með tvö börn í stórborg. Þarna kom pallbíllinn sér vel þegar flýja þurfti pestarvíti stórborganna og koma sér burt, því öll þekkingin sem átti að vera svo mikil þar, reyndist aðeins vera hlutfallsleg heimska. Íbúðarháhýsi með garð og sundlaug á þakinu í ofurþéttum heilabyggðum stórborga og þeirra borgar-stjóra sem þar sarga úr sér vitið, varð skyndilega það allra versta sem nokkur lifandi frjáls maður gat hugsað sér. Pestin lokaði túllanum á háskólunum sem ekkert höfðu fram að færa í faraldrinum, nema þras og fjas. Hinir fyrirlitlegu e. deplorables sem kusu Trump héldu í þeim lífinu með því að skaffa matinn á borðið og sem þeir hlóðu verslanir fullar af á nóttunni, beint frá heildsölum, trukkum, bændum og afurðarstöðvum. Sjómenn sáu um fiskinn

Mér líst betur og betur á þetta fyrirbæri, þ.e. ameríska pallbílinn. Kannski mun hann koma í stað flugvéla á næstu árum. Hver veit?

En það er þannig með hana blessaða Ameríku, að allt sem þeir taka til sín þar og sem Evrópa frussar við næstu tíu árin, tekur gamla Evrópa til sín á endanum og kennir Ameríku um - og súrmúlast yfir því, þar til það næsta nýjasta nýja kemur að vestan

Gott hjá ykkur hjá GM. Svona á að fara að því!

En fyrir nokkrum árum ákvað fyrirtækið að draga sig að mestu út úr framleiðslu á litlum fólksbifreiðum, því þar er samkeppnin öll um lægsta sameiginlega nefnarann –vörusvik og pretti– og því eitt stórt blóðrautt haf. GM ákvað að loka miklu af þessu niður, draga sig út úr gjaldþrota Evrópu og einbeita sér í staðinn að því sem allir Ameríkanar elska; þ.e. að stórum og dýrari bílum með mikið notagildi þar sem pláss er til að komast að með verkfærin í bílskúrnum. Allir Ameríkanar kunna að skipta um þetta og hitt í svona tækjum og gera við stóra bíla, skriðdreka líka. Sú kunnátta er þeim í blóð borin. Þetta vissi GM og þetta veit bandaríski herinn. Hver þýskur Tiger skriðdreki þurfti 7-10 tíma viðhaldsvinnu miðstýrðs sérfræðiteymis fyrir hverja klukkustund sem hann var í notkun

Er þetta ekki frábært?: Nú hafa Íslendingar nefnilega lært að panta vörur og í matinn á netinu, og þurfa því aldrei aftur að koma niður í þéttibyggð Reykjavíkur, þar sem aðeins veirur hafa það best. Nú er bara að panta pallbílinn, stækka bílskúrinn og stofna fyrirtæki með pallbílinn sem stjórnarformann - og hefja bílskúrskapítalismann til vegs og virðingar á ný, því þetta með háskólana gengur ekki upp. Enga háskólamenntun þarf til

Fyrri færsla

Wuhan-veiran: hvað er að frétta?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

GMC eru alvöru bílar.  Var að kíkja á síðu þeirra en erfitt að átta sig þar hvert verð þeirra væri.

Og hvað skyldu þeir kosta hingað komnir?

Gengi krónunnar er ekki upp á marga fiska núna,

alla vega ekki fyrir hinn óbreytta almenning.

Nú virðist allt standa galopið fyrir kínverska G5 dreifingu og það af Póst- og fjarskiptastofnun, þvert á það sem bandarískra stjórnvalda, en ríkisvald Sjálfstæðisflokksins getur ekki einu sinni gert alminlegan viðskiptasamning við USA, m.a. svo við fengjum alvöru bíla að vestan, á betra verði. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.5.2020 kl. 00:12

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Símon Pétur.

1. Stóra-Bretland og Bandaríki Norður-Ameríku hófu í fyrradag samningaviðræður um nýtt viðskiptafyrirkomulag landanna á milli. Hvor um sig er samninganefnd landanna tveggja um 100 manns og hófust viðræðurnar sem fjarfundur, með aðstoð fjarskiptatækni (ekki kínverskri). Breski forsætisráðherrann segir að ekki komi til greina að framlengja aðlögunartímabili lands síns út úr Evrópusambandinu. Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu viðræðnanna. 

2. Trump Bandaríkjaforseti hótar nú að annúllera viðskiptasamkomulaginu sem hann nýlega gerði við Kína, standi kínverska kommúnistastjórnin ekki við fyrsta hluta þess, sem er að kaupa vörur af Bandaríkjunum að andvirði 200 milljarða dala. Lítil von er til að kommúnistastjórnin geti staðið við þann hluta samkomulagsins þar sem vörumerkið Kína er nú ónýtt um næstum allan heim, og í sjálfu Kína líka, og kommúnistastjórnin hefur þess utan notað heimsfaraldurinn, sem hún stóð fyrir, til að berja enn frekar á Hong Kong, stækka gúlag-fanabúðakerfi kommúnistaaflokksins í Xinjiang upp í sennilega 1,5 milljón fanga, og ganga í skrokk á nágrannaríkjunum við Suður-Kínahaf.

3. Bandaríska þingið ræðir nú að banna Lockheed Martin F-35 Lightning orrustuþotum Bandaríkjahers að koma nálægt þeim ríkjum (líka innan NATO) sem taka í notkun 5G fjarskiptainnviði frá kínverska Huawei-fyrirtækinu. En F-35 Lightning prógrammið er fjórum sinnum dýrara en allt Apollo tunglferðaprógrammið kostaði á núvirði. Þróun svona véla er ofboðslega dýr, sbr. þróun Boeing B-29 Superfortressunnar sem kostaði jafn mikið og allt Manhattan prógrammið, enda voru 40 þúsund hlutir bara í stjórnklefanum einum og sér.

4. Bandaríkin er nú í aukinni viðbragðsstöðu og á stórauknu varðbergi víða um heim, þar sem þau gera ráð fyrir að tap-tap staðan sem myndast hefur í faraldrinum innan hryllingsríkjanna þriggja; Kína, Norður-Kóreu og Rússlands, hafi þau áhrif að runnið sé upp fyrir íbúum þeirra hverskonar getulaust hryllingsfyrirbæri ríkisstjórnir þeirra allra eru. Sú verðskuldaða staða mun fá ríkisstjórnir þeirra til að reyna að ganga í augun á lýðnum heima með því að hnykla vöðvana út á við, gagnvart öðrum ríkjum, sérstaklega nágrannaríkjunum. Þannig sigldu til dæmis -í fyrsta sinn frá því ca. 1985- þrír bandarískir stýriflauga-tundurspillar úr 6. flotanum og bresk freigáta með tilheyrandi birgðaskipum og kafbátum inn á Barentshaf fyrir þremur dögum síðan, til að sýna fælnimátt í verki og reyna að koma í veg fyrir að nýja hálf-sovéska stjórnin í Kreml fái slæmar hugmyndir. Hugmynd Kremlar um "stýranlegt lýðræði" (e. manageable democracy) í Rússlandi verkur ekki meira traust út á við en þetta.

5. Í fyrradag flugu einnig fjórar hljóðfráar og torsýnilegar B-1B Lancer sprengjuflugvélar til Guam. En Japanir eru mjög svo uggandi vegna hamfara-stöðunnar innan Kína og Norður-Kóreu.

Ekkert ríki jarðar nema Bandaríki Norður-Ameríku og pallbíla er fært um að gera þetta og viðhafa slíka varðstöðu ásamt því að tryggja siglingafrelsi og lög og rétt á heimshöfunum.

Góðar kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 7.5.2020 kl. 03:21

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Á grein hans sjálfs og í frétt um íslenska utanríkisráðherrann í Morgunblaðinu í dag, fimmtudaginn 7. maí, segir sá stórfurðulegi og lélega innréttaði fóstureyðingafrömuður heiðniflokksins xD að:

"Guðlaugur Þór segir utanríkisþjónustuna hafa komið að flutningi búnaðar vegna veirunnar, m.a. frá Kína."

Já segi ég, þetta er sennilega búnaðurinn sem Ítalía gaf Kína áður en Ítalía sjálf var lögð af velli og sem Kína seldi síðan Ítölum í sárustu vandræðum, og lét taka af því endalaust margar fréttamyndir með sjálft sig í hlutverki engils, eftir að Kína hafði ryksugað heimsmarkaðinn af þannig vörum og þénað á þeim þegar það sjálft hafði breitt veiruna út í heiminum, sennilega af ásetningi eftir að kommúnistastjórninni varð ljós að hún sjálf hafði rústað sínu eigin landi og tók því Vesturlönd með sér í fallinu til að verða ekki eina ríkið sem færi á kaf.

Síðan segir í sömu frétt Morgunblaðsins:

"Hann [Guðlaugur Þór] hafi beðið sendiráð Íslands í Peking að kanna óformlega möguleika til samstarfs við Kínastjórn í ferðaþjónustu. Sú vinna sé nýhafin og því sé ótímabært að ræða dag- setningar í þessu efni."

Annað hvort er maðurinn genginn af vitinu eða þá að hann hefur aldrei haft neitt slíkt. Þetta minnir mig og mína á þörfina á því að segja okkur úr flokknum og kjósa hann aldrei aftur svo lengi sem þetta lélega fólk sem þar ríður húsum núna er enn við sama EBS- og kommabælið.

Hvílík niðurlæging fyrir Sjálfstæðisflokkinn okkar að hafa á svona ömurlegu örfoka setuliði að skipa, að jafnvel það versta annars staðar er betra en þetta ömurlega fólk. Þessi maður hljómar eins og heróínsali í mínum eyrum.

Þessi viðrini í xD leggja það sem ríkisstjórn kommúnista-alræðisríkis segir, að jöfnu við það sem lýðæðislega kjörnar ríkisstjórnir á Vesturlöndum segja. Hvílíkir fæðingarbjálfar.

Og í bankaráði með kommúnistaflokknum í AIIB situr Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og plebbi.

Hvað gerðist eiginlega með þennan Sjálfstæðisflokk okkar eftir að Davíð Oddsson fór?

Ég æli sennilega ef ég sé enn eina skallagreinina efir Óla Björn þingmann og taðskrifara flokksins á prenti einhversstaðar. Allt sem hann og hitt liðið í Valhöll kemur nálægt virðist kafna og deyja.

Gunnar Rögnvaldsson, 7.5.2020 kl. 05:04

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Og nú virðist svo að með sleggju þýska stjórnarskrárdómstólsins á Evrópusambandið og stofnanir þess, og þar á meðal á ECB, í fyrradag, sé komið í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn hefur kastað fullveldi Íslands í orkumálum á borð fyrir svín og lögleysingja, með engum hugsanlegum haldbærum rökum og allra síst þeim grútargraut af aulaskap á veldisvísu sem hugleysingjalið flokksins í Valhöll og andlegir uppgjafarpakkar hans báru á borð fyrir Alþingi Íslands með útúrsnúningapressujárni því sem flokkurinn straujaði yfir stjórnarskrá Íslands með. Þetta skal þessu liði verða dýrkeypt.

Og ef að Guðlaugur barskari Þór, með hvað sem er, í braskbásnum með Bjarna plebba Ben, ásamt Þórdísi kolvitlausu og humar-metoo, halda að því verði tekið þegjandi og hljóðalaust að innrás kínverskra ferðamanna og þjófa úr glæpagengis-elítukistum kommúnistaflokksins sé það sem bera eigi nú þegar óþolandi íslenska trúhestaþjónustu uppi, þá mun það verða þannig að þar með eignast Íslendingar sér þá einu heitu ósk að öll sú grein algerlega til fjandans fari eins og hún leggur sig.

Þolinmæði þjóðarinnar gagnvart þessari ömurlegu og tapsgefandi atvinnugrein hangir nú þegar á bláþræði. Og það er stórkostlegur misskilningur að halda það að ferðaþjónustan hafi kosningarétt og hafði ein og sér kosið þennan furðuflokk til valda og inn í ríkisstjórn.

Íslensku þjóðinni líkar það mjög illa að þessi atvinnugrein, sem byggist mest á innfluttum láglauna þrælum, sé eitthvað sem einhver flokkur hér á landi skuli verja með harðari klóm en allt það annað sem íslensku þjóðinni kært er og heilagt.

Guðlaugur Þór hefði alveg eins getað sent íslensku sendiráðin til skrafs og ráðagerða við ítölsku mafíuna eins og að þau séu til viðtals gagnvart Kínahelvíti kommúnistaflokksins.

Gunnar Rögnvaldsson, 7.5.2020 kl. 08:01

5 identicon

Frá sjónarhól bandarískra yfirvalda séð

virðist eftirfarandi augljóst:

Ísland hefur hallað sér að ESB og Kína.

Því er betra að stóla á Grænland en Ísland.

Það er ekkert á Ísland að treysta.

En auðvitað vildum við helst hafa Ísland með.

En þeir þverskallast við því litla

sem við höfum beðið þá um;

- ekki að leggja til fé í Innnviðabanka kínverska

kommúnistaflokksins

- ekki að taka upp fjarskiptakerfi þeirra.

Meira höfum við ekki beðið íslensk stjórnvöld að gera, en þau þverskallast við því öllu.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.5.2020 kl. 13:06

6 identicon

Ég held, að allir almennir félagar í Sjálfstæðisflokknum muni fyrr en síðar átta sig á að móðurflokkur íslensks sjálfstæðis og fullveldis hafi svikið allt það sem sá flokkur var upphaflega stofnaður til.

Það er illt að svo skuli komið, að öllum landvættum íslenska lýðveldisins hafi nú verið fórnað af öllum Valhallar leppum kínverska kommúnistaflokksins. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.5.2020 kl. 13:38

7 identicon

Hafðu í huga Gunnar, að Gulli og kellingin hans eiga stóran hlut í Bláa lóninu.  Og hafa fengið nokkur hundruð milljónir sem arð út úr því.

Og nú vill hann breyta bláa lóninu í Rauða lónið fyrir sig og félaga í nómenklatúru íslensk-kínverska kommúnistaflokksins. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.5.2020 kl. 13:50

8 identicon

Styrmir Gunnarsson ritar nú pistil hér á blogginu, Pólitíkin og kórónaveiran, þar sem hann beinir, eðlilega, spjótum sínum að Bjarna og Gulla og viðleitni þeirra til að koma Íslandi undir kínverskt áhrifasvæði.  Það er engum blöðum um það að fletta við hverja hann á þegar hann segir svo:

"Í sumum tilvikum er þessi viðleitni svo augljós, að hún er nánast hlægileg."

Í mínum huga er hún reyndar ekki aðeins hlægileg, hún er beinlínis aðför að sjálfstæði og fullveldi lands okkar og þjóðar.

Styrmir segir svo að það verði þeim ekki til framgangs að virka hlægilegir á kjósendur í aðdraganda kosninga.

Styrmir hefði reyndar mátt bæta því við, að enn erum við lýðræðisríki, þó Bjarni og Gulli telji sig nú þegar sitja í alræðis miðstjórn kínverska kommúnistaflokksins.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.5.2020 kl. 14:18

9 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

þeir kumpánar B.G.,mega ganga sinn breiða veg,en vonlaust fyrir þá að reyna hér aftur.- Sem stendur fylgja þeir Kínakommum; Hvert sem er,já til tunglsins eða hvert sem er,en vitað er að Kína ætlar að byggja á tunglinu og ég næ ekki að sjá kallana é tunglinu.

Helga Kristjánsdóttir, 7.5.2020 kl. 16:24

10 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæll Gunnar! Gott að sjá þina pistla aftur en ég var svo (Ó)heppinn að fá heimsókn meðan ég átti eftir eina setningu rubbaði henni af svona eins og tourtte. bestu kveðjur til ykkar. 

Helga Kristjánsdóttir, 7.5.2020 kl. 16:44

11 identicon

Rétt Helga, fyrst gengu þeir hinn breiða veg júrókratanna sem leiddi þá síðan beinustu leið til kínakommanna.

Þeir trúa ekki á land okkar og þjóð.

Þeir forsmá rætur sínar.

Veglausir munu þeir verða sem forsmá eigin þjóð.

Þeir munu verða fyrirlitnir, allar þjóðir fyrirlíta þá sem forsmá eigin þjóð.

Veglausir munu þeir verða.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.5.2020 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband