Leita í fréttum mbl.is

Wuhan-veiran: Schengensvæðið mun opna síðast í heiminum

Þýska FAZ hefur komist yfir 21-blaðsíðna skjal framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem lagt verður fram miðvikudaginn 13. maí 2020

Þar verður tilkynnt –úr abstrakt og fjarlægu miðstýrðu austri– að Schengensvæðið mun líklega opna síðast allra svæða í heiminum, sökum þess að innan þess eru ríki sem hvorki eru á sömu blaðsíðunni né heldur að lesa sömu bókina. Þau eru jafnvel ekki á sömu plánetunni þegar að Wuhan-veirufaraldrinum kemur. Það sama gilti að sjálfsögðu um fjármálakreppuna 2008, sem þess vegna þróaðist yfir í varanlega kreppu innan ytri landamæra Evrópusambandsins, og geisar hún þar því enn

Hvorki Evrópusambandið né Schengensvæðið eru klár til opnunar á ytri landamærum þeirra. ESB og Schengensvæðið munu ekki opna ytri landamærin fyrr en að öll landamæri landanna innan þeirra hafa verið opnuð og það mun taka marga mánuði. Og sú opnun mun ráðast af lægsta sameiginlega nefnaranum innan svæðisins, sem er mjög lágur því að um síversnandi gjaldþrotasvæði á hnjánum er að miklu leyti að ræða

Byrjað verður á því að opna aðeins örfá og sérstök landamærahlið þar sem til dæmis árstíðavissum farandverkamönnum í landbúnaði ásamt fólki sem vinnur utan heimalands síns verður heimilað að komast til og frá vinnu. Hið sama mun gilda um heilbrigðisstarfsmenn

Þarna er aðeins um að ræða brotabrot þeirrar umferðar sem var áður en heimurinn hóf Whuanveiru-hamskiptin, sem að miklu leyti eru komin til að vera. Lönd verða einfaldlega að koma sér upp veiruþolgóðum atvinnuvegum og hætta að gera þjóðarbú sín út á tapsgefandi engisprettufaraldra, með ekkert eigið fé og sem aðeins fáir vilja starfa við úr þessu

Eitt mikilvægt atriði sem horft verður til, er að hægt sé að fylgja eftir sóttvarnareftirliti með farþegum í lestum yfir landamæri; til dæmis að tryggja að þeir séu með andlitsgrímur alla leið frá upphafi til enda ferðar

Engin ákvörðun hefur verið tekin varðandi stærstu sumarfrísmánuðina ágúst og september. Enn fremur mun Schengensvæðið ekki heimila að fólk á ferð um svæðið sé látið undirgangast skimun eða sýnatökur á ferð þess um það, því lögin um Schengen banna að sóttvarnareftirlit sé viðhaft við innri landamærin

Þetta hefðu stjórnmálamenn átt að kynna sér áður en þeir gengu í Schengengildruna og lokuðu lönd sín af inni í því svartholi ESB-elíta

Allt þetta þýðir að Evrópusambandið og Schengen verða lokaður heimshluti lengur en flestir aðrir hlutar jarðar, því innan þess er óreiðan, getu- og stjórnleysið slíkt að þar hefur aldrei neitt virkað til eins né neins; ekki frekar en að hinn svo kallaði "innri markaður" ESB hefur virkað umfram það að vera alls ekki aðili að honum [hann er einungis kenning á blaði]. Hann er aðeins geðþótta- og kúgunartól þýsk-franskra elíta, sem veifa þurfa bara litla fingri og lokast þá markaðurinn allur þegar þeim einum sýnist svo eða ekki – enda er Stóra-Bretland að breyta hafnarinnviðum sínum á austurströndinni svo að hægt verði að skrúfa Dover-Calais hlekkinn sem liggur inn í sósíalisma Frakklands og hins hnignandi Þýskalands úr sambandi við hinn innri gervimarkað ESB, og þar með auka viðskiptaöryggi Bretlands gagnvart umheiminum öllum

Og flestir Íslendingar vita einnig allt of vel hversu ömurlegar bankageira-reglurnar voru og eru enn innan EES+ESB. Ekkert ríki með fullu viti getur lengur átt neitt mikilvægt undir Evrópusambandinu né Schengensvæðinu komið og sem Bandaríkin neyddust til að loka á vegna getuleysis beggja við að hefta útbreiðslu kínverskra Wuhanveira. Loka varð á það allt til að ná til nokkurra fárra landa sem náðu að smita meira en 50 önnur lönd

Allt þetta ófrelsi og meira til virðist forysta Sjálfstæðisflokksins ganga hve mest upp í af öllum hugsanlegum málum, á meðan hún buktar sig og kyssir afturendann á Kínverska kommúnistaflokknum. Ég skammast mín orðið fyrir flokkinn minn og það fólk sem afflutt hefur hann í kaf. Það hefur fórnað þjóðfrelsinu fyrir ekki neitt

Aðeins þjóðfrelsið gerir okkur Íslendingum kleift að lifa Wuhan-veirufríu lífi í okkar eigin landi, á meðan þjóðir sem litla eða jafnvel enga stjórn hafa í sínu eigin landi, falla vegna farsótta og pólitískra plága

INNRI PLÁGUR VESTURLANDA

Þegar forsætisráðherra vor kemst upp með að ávarpa þjóð sína og taka sér aldrei í munn orðið þjóðfélag hennar, en staglast hins vegar 13 sinnum á tísku- og gufuhugtakinu samfélag, þá veit maður að kommagrænmeikuð pólitísk tískudrós er við völd í landinu. Hún er að sjálfsögðu úr fóstureyðingarliðinu mikla er kvartar hve mest yfir Vesturlöndum, og heimtar í sífellu skilnað um leið og eitthvað bjátar á. Gefum VDH orðið:

UM GAGNRÝNENDUR VESTURLANDA

Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur segir frá

Hafi menn frekari áhuga, má horfa á bóndann frá Selma í Kaliforníu og prófessor í klassískum fræðum og hernaðarsögu útskýra hvers vegna heimsveldi glóbalista Rómar féll, eftir að það flæddi út fyrir hið upphaflega lýðveldi; fall Rómarveldis

Fyrri færsla

General Motors kreistir hagnað út úr heimsfaraldri


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Í gær 12. maí 2020 tilkynntu forsprakkar dýpri samvinnu um varnarmál innan Evrópusambandsins og á vegum þess, að áætlunum um meiri og sameiginlegri varnir á eigin forsendum sé aflýst, þar sem lönd Evrópusambandsins hafi ekki efni á slíku vegna þess hve djúp kreppan vegna kínversku Wuhan-veirunnar verður í öllum löndum sambandsins. Í Svíþjóð líka.

Áætlanir þessar voru sagðar marka "nýtt 21. aldar-upphaf" landa sambandsins í varnarmálum og áttu þær að bæta upp brottför Bretlands úr ESB sem var eina stórveldi sambandsins í varnarmálum. En hér með eru áætlanir þessar horfnar. Þetta gekk nú ansi fljótt yfir verður að segjast.

Líklegt er því að lönd Evrópusambandsins muni heldur ekki geta staðið við að reyna að standa við NATO-skuldbindingar þeirra. Þarna ber allt að sama brennda brunni hins yfirvofandi heimsveldis fátæktar. Ég mæli því áfram með þættinum um fall Rómar, sem ég bendi á hér beint fyrir ofan.

Segja má því með réttu að Evrópusambandið sé nú varnarlaust þriðja heims fyrirbæri sem aðeins lifir á varnarmætti Bandaríkjanna. Það er varnarlaust gegn nánast hverju sem er:

1. Kínverskum veiruhernaði

2. Rússlandi í austri

3. Íslam í suðri

4. Innri upplausnar og borgarastyrjalda

5. Þjóðargjaldþrotahættu myntlausra landa

Gunnar Rögnvaldsson, 13.5.2020 kl. 07:36

2 identicon

Sæll Gunnar

Kærar þakkir fyrir pistilinn.

Já, þetta er allt eftirtektarvert, rétt eins og "landamærabifreiðar" löggunnar hér á landi eeu merktar ESB fánanum. 

Einnig að engir löggubílar hér á landi eru lengur í íslensku fánalitunum, þeir eru nú allir skreyttir sænsk-ESB gulu og bláu litunum. 

Kannski dómsmála fjarlægi einnig

"með lögum skal land byggja"?

En vitaskuld kjósa gömlu sauðirnir áfram sinn "Sjálfstæðisflokk".  Móðurflokk ESB sinna hér á landi vesalinganna.  Kjósa sinn Gulla.  Kjósa sínar ESB sinnuðu puntudúkkur.  Kjósa sinn Bjarna og Styrmir jarmar um hvað þeir séu hugsjónalausir, hvað allt sé ógeðslegt, en þeir gömlu sauðirnir kjósa samt áfram sinn "Sjálfstæðisflokk"  Móðurflokk ESB og Kína sinna hér á landi.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.5.2020 kl. 13:16

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Símon Pétur.

Hreint ótrúlegar fréttir berast frá Svíþjóð í dag, þar sem píndustu skattgreiðendur veraldar búa og sem lítið annað hafa gert en að borga og borga hæstu skatta í heimi alla æfi.

Á síðasta sólarhring létust 147 Svíar af völdum kínversku Wuhan-veirunnar. Alls hafa 3460 Svíar misst lífið í faraldrinum og sú dánartala myndi svara til að 123 Íslendingar væru látnir af völdum veirunnar hér á landi, því Svíar hafa náð þeirri ótrúlegu tölu, sem svo kallað "norrænt velferðarríki" (fyrirmynd Jóhönnustjórnarinnar), að 343 Svíar af hverri milljón hafa nú látist í faraldrinum.

Þetta er fjórði versti dagurinn í Svíþjóð og lítið lát er á hamförunum.

Og ekki nóg með það þá spruttu fram 637 ný tilfelli á síðasta sólarhring í Svíþjóð og af þeim munu 40 prósent deyja í klóm heilbrigðiskerfisins á næstu vikum. Dánarhlutfallið er nefnilega 40 prósent. Aðeins 60 prósent "tilfella" ná heilsu á ný.

Kannski að fyrrum dómsmálaráðherra xD (flúin núna) vilji taka þessi sænsku þjóðsvik upp hér á landi undir merkjum "frelsis".

Þeir sem hafa borgað mest fá minnst og tína lífinu hraðast í sænsku frelsis-velferðinni. Sjá yfirlit yfir öll lönd hér.

Og ekki nóg með það þá eru hagvaxtarspárnar fyrir Svíþjóð enn verri en fyrir nágrannalöndin. Þetta sænska dæmi er farið að minna mann óþægilega á þetta málgagn sænskra sósíaldemókrata sem sýnt er hér. Eða á eins konar "úthreinsanir".

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 13.5.2020 kl. 15:02

4 identicon

Yfir 80% þeirra sem látist hafa í Svíþjóð er eldra fólk.  Slátrun í stíl rauðu khmeranna.

Og svo helteknir eru Svíar af sínum rétttrúnaðarheilagleika að þeim finnst það bara allt í fína lagi.  

Þegar skorið hefur verið á allt það sem þjóðlegt má nefna, þjóðlega siði og venjur

þá stíga böðlarnir fram í nafni rétttrúnaðarheilagleika hins hnattræna frelsis.

Það er í anda helferðarstjórnar Jóhönnu Sig. og Steingríms J. 

Og já Gunnar, það er ömurlegt að heyra frú Andersen taka undir hið hnattræna frelsisgól.

Að maður minnist nú ekki á sænsk-þýsk skreyttu löggubílana sem keyra nú um íslenska storð.

En gömlu sauðirnir kjósa samt áfram sinn "Sjálfstæðisflokk", móðurflokk ESB kratavæðinga og lesandi nú kínakommafræðin af mikilli hind.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.5.2020 kl. 16:22

5 identicon

Það er annars gaman að lesa háð Dabba

um Gulla vitleysing, mannréttindaráðherra

glóbalfíflanna og sauðanna í flokknum.

Minni á að Dabbi lét ekki sjá sig á krata og komma afmælisgrillhátíð flokksins á bílaplani Valhallar. 

Reisn flokksins en lin sem geldra glóbal sauða.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.5.2020 kl. 22:15

6 identicon

Reisn flokksins ER lin, sem geldra glóbal sauða.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.5.2020 kl. 23:18

7 identicon

Og þetta að lokum:

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar, (komma)

Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, (komma)

Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, (komma)

Þórdísar Reykáss Gylfadóttur, (komma)

Kristjáns Þórs Júlíussonar, (komma)

í samfloti með hinum kommunum

í ríkisstjórninni

hafa nú lagst flöt

undir kínakommana.

Öllu skal fórnað fyrir Belti og braut.

Bandaríkin og Nató vildu leggja til

tugi milljarða til mannvirkjagerðar á Suðurnesjum.

Kínakommar "Sjálfstæðisflokksins" 

nota Kola-Kötu og Þistilfjarðarfíflið

sem skjöld sinn 

til að fela raunverulega ásetning, (komma)

að koma Íslandi undir kínversk kommúnistayfirráð.

En auðvitað munu gömlu sauðirnir

kjósa áfram sinn "Sjálfstæðisflokk"

Þeir eru jú algjörir kínakommasauðir, (komma)

með Björn KíGong Bjarnason í broddi fylkingar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.5.2020 kl. 10:35

8 identicon

Og bara enn eitt og þar að auki:

WUHAN VEIRAN HEFUR ÞAR MEÐ YFIRTEKIÐ VALHÖLL

Mótstaðan reyndist þar engin.

Kínverski innviðabankinn fékk þar með sitt.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.5.2020 kl. 10:49

9 identicon

Veit að þú fyrirgefur mér Gunnar þó ég taki nú smiðshöggið á þetta og hamri því einu sinni enn

og nú með beinni vísan til orða þinna í athugasemd þinni hinni fyrstu um að rétt eins og ESB er nú varnarlaust gagnvart

1. Kínverskum veiruhernaði

2. Rússlandi í austri

3. Íslam í suðri

Þá gildir það nú augljóslega um Ísland

undir ríkisstjórn leppa kínversku kommanna

í Valhöll.

Spurning núna bara um lið 4. og 5. hvernig fer

sem ég umorða svo hvað ástandið hér varðar:

4. Innri upplausn flokksins og uppreisn

5. Eða endanlegt skipþrot

og græn komma skattaánauð undir Belti og braut.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.5.2020 kl. 11:20

10 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar! Og þakkir firir þinn mikilvæga pistil.Og Símon Pétur firir athugasemdirnar.

Allt eins og talað úr mínum fyrrum Sjálfstæðismunni.

Það eru bara alþjóðaglæpaklíkur að yfirtaka Ísland.

Kv

Óskar Kristinsson, 14.5.2020 kl. 15:35

11 identicon

Ef "Sjálfstæðisflokkurinn" fer ekki með málið

um uppbyggingu NATO fyrir þingið

þar sem það yrði samþykkt, að öllu eðlilegu,

með algjörum meirihluta atkvæða,

þá hefur "Sjálfstæðisflokkurinn" endanlega 

skitið í buxurnar.

Það er t.d. alveg morgunljóst

að allir þingmenn Framsóknar, Viðreisnar,

Samfylkingar og Miðflokks myndu

samþykkja uppbyggingu NATO í Helguvík.

Við erum í NATO.  Það vita allir

nema kínakommaráðherrar "Sjálfstæðisflokksins"

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.5.2020 kl. 16:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband