Leita í fréttum mbl.is

Rangt: Tapast ekki

Þetta er beinlínis rangt. Engar gjaldeyristekjur tapast. Það kostar gjaldeyrisforðann ekkert að missa af komum erlendra ferðamanna

Og ef ferðanjálgur Íslendinga sjálfra til útlanda er dreginn frá, þá missum við sennilega ekki af miklu hér, eins og staðan er núna. Íslendingar þurfa ekki lengur að flýja sitt eigið land vegna erlendra ferðamanna hér heima

Þetta er eins og að segja að fyrst að ríkisbáknið hafi ekki lagaheimild til að hrifsa til sín öll laun launþega í landinu, að þá hafi ríkið tapað því fé. Það er ekki hægt að tapa því sem ekki var

Ég er ekki einu sinni viss um að nettójöfnuður gjaldeyrisviðskipta með ferðaþjónustu sé svo mikið síðri án hennar þegar að allt sem tengist framleiðslugetu hennar er reiknað með. Flugvélakaup og flugvélaleiga fara fram í erlendri mynt og kosta foss af erlendum gjaldeyri - og heimsendingar hins innflutta erlenda þrælavinnuafls greinarinnar af gjaldeyri (e. remittance) er stór hluti af útflæði gjaldeyris. Og markaðsfærslan erlendis kostar líka, plús slit á innviðum í landinu

Ferðaþjónustan er þess fyrir utan einn lélegasti skattgreiðandinn í hagkerfinu því henni hefur aldrei græðst fé. Hún er fyrst og fremst tapsgefandi veltugrein með ekkert eigið fé og sem leggur hald á vinnuafl til tapreksturs. Það er nú ekki beint til þess sem skattgreiðendur lýðveldisins fjármagna framhalds- og háskóla: til að útskrifa fólk til starfa í tap- og núllrekstri

Þess utan er ferðaþjónustan að mestu komin niður í undanrennuna erlendis, þannig að hver erlendur ferðamaður núna gefur lítið af sér miðað við þá sem komu á árunum áður en geirinn bólugróf sig með aðstoð misvitra stjórnmálamanna

Á mektarárum Nokia í Finnlandi, GSM-símar, varð viðskiptajöfnuður vegna framleiðslugetu þess neikvæður, því flytja þurfti íhlutina inn og framleiðsluapparatið líka. Álverið í Straumsvík er til dæmis þjóðhagslega mikilvægara fyrir okkur en Nokia var fyrir Finnland

Engir erlendir ferðamenn vaxa í íslenskri langhelgi. Og þeir vaxa ei heldur neins staðar úr íslenskri mold. Það verður að flytja þá alla inn. Hvernig væri nú að læra loksins að gera út á Íslendinga sjálfa - og leyfa hinu innflutta að grasrótarspretta af sjálfu sér og að halda þessari atvinnugrein eins og hún var hugsuð, sem fyrst og fremst aukabúrgrein sem allir geta verið án ef út í það er farið. Þetta verður hvort sem er ávallt láglaunabæli og taprekstrargeiri með lítið sem ekkert eigið fé

Sjálfum líst mér betur á að beita milljón eða tveimur af sauðfé á landið og vera með hátæknivæddan ullar og tískuullariðnað og alþjóðlegar tískusýningar og stefnur á íslenskri ullarframleiðslu, hönnun og litum. Þetta gæti orðið sérgrein sem til dæmis Marel tæki tæknilegan þátt í. Sauðkindin græðir landið og betra er að veita ríkisstyrk í góðar girðingar en í salernispappírsrúlluvöxt af asparkyni út í loftið

Fyrri færsla

Ríkisstjórnin að smíða fallöxi á restina af ferðaþjónustunni?


mbl.is 1,5 milljarðar tapast á hverjum degi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hér talar svo sannarlega þjóðlegur íhaldsmaður.

Og það, eðli máls samkæmt, af mikilli skynsemi.

Mikið sem ég er sammála greiningu þinni Gunnar.

Við yrðum Nýja Sjáland norðursins, bara enn betri.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.5.2020 kl. 17:20

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Símon Pétur.

Við þetta hér fyrir ofan má síðan bæta enn frekari hallærislegheitum um annan en tengdan bransa, sem einnig er í svo bágborinni fjárhagsstöðu að flytja verður inn kóla-drykkina ofan í erlendu ferðamennina frá öðrum löndum.

Þeir-erlendu fá innflutt sódavatn á veitingahúsum og hótelum þar sem jafnvel enginn talar íslensku. Senda þarf vatn með skipum í ílátum til Íslands, svo ég minnist nú ekki á þá þýsku öreiga evruríkisins sem koma með matinn með sér og sofa um borð í ferju. Þarna eru menn svo sannarlega komnir í enn þynnra efni en undanrennuna sjálfa. Og þetta mun ekki batna neitt úr þessu. Svona virka engisprettufaraldrar.

Stofna þyrfti alíslenska Ís-Kóla verksmiðju á Íslandi, fyrst að útlensku kóka-kóla-vesalingarnir sem komust með puttana í Vífilfell eru búnir að gefast upp og flytja framleiðsluna til útlanda.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 20.5.2020 kl. 19:41

3 identicon

Rétt Gunnar, forheimskunin hefur hingað til þótt mikil þegar menn bera vatnið yfir lækinn.

En þegar menn flytja það inn til landsins þá fyrst er forheimskunin algjör.

Annars hef ég núna mestar áhyggjur af því að Bjarni Ben, bankaráðsmaður í AIIB Beltis og brautar muni sjá svo um að kínverska ríkið (lesist: nómenklatúra kínverska kommúnistaflokksins) kaupi ráðandi hlut í Icelandair.

Markaðsvirði Icelandair er nú aðeins 12-14 milljarðar, svo 29 milljarðarnir sem stjóri Icelandair segir vanta upp á, yrði allsráðandi hlutur.

Vonum að ég sé of svartsýnn, en kaup kínverska ríkisins í Norwegian segja samt sína ótrúlegu sögu.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.5.2020 kl. 20:20

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir.

Ótrúlegt er að heyra að hið nýja Sovétríki jarðar með enn stærri kommúnistaflokk við dauðadómsvöld en hið síðasta, sé með aðstoð norska ríkisins orðið helsti hluthafinn í Norwegian. Norskir skattgreiðendur eru hafðir að fílfum hér, með því að láta þá vera skylduburðardýr í svartnættisstjórnmálum Noregs. Kommúnistaríkisrekið flugfélag í Evrópu. Þarna er allt á leið til heljar.

Ekkert aula- og lúsarblésalegt um forherta discount forystu Sjálfstæðisflokksins kæmi mér á óvart skyldi svipað koma í ljós. Enginn nema ekta fæðingarplebbi tekur Ísland inn í fyrirbæri á borð við AIIB. Við skulum ekki minnast á orkupakka þrjú að þessu sinni. Traustið til forystunnar er ekkert. Bara alls ekki neitt. Núll!

Gunnar Rögnvaldsson, 20.5.2020 kl. 21:25

5 identicon

Forysta flokksins hefur nú þegar gengið miklu lengra en blautustu draumar Samfylkingar Ingibjargar Sólrúnar og Jóhönnu Sig. voru.

Flokkurinn er búinn að leyfa erlendum manni (Ratcliffe í stað Huang Nubo) að kaupa upp Grímsstaði á Fjöllum auk 40 annarra jarða á Norurlandi-Eystra.

Flokkurinn er búinn að innleiða fleiri reglugerður ESB en nokkur annar flokkur.

Flokkurinn er leppur verstu afla Noregs í gegnum EES innleiðingarferli beggja landa inn í ESB.

Flokkurinn hæðir og spottar Bandaríkjin, kínverska kommúnistaflokknum til mikillar gleði að vita að hér á landi sé helsti leppflokkur þeirra með aðsetur í Valhöll.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.5.2020 kl. 23:21

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Taívan-Bandaríkin

Tsai Ing-wen forseti Taívan átti símtal við Mike Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna í gær. Þar óskaði hann henni til hamingju með kosningasigurinn og ávarpaði hana sem forseta Kínverska lýðveldisins (sem hún er).

Froðufellandi Peking sendi hún fingurinn á hæðnislegu rósamáli og benti á að Taívan væri löndum heimsins fyrirmynd í því hvernig berjast ætti við Wuhan-veiru kínverska kommúnistaflokksins.

En veiruna sendi kommúnistaflokkurinn út yfir heiminn, sennilega af yfirlögðu ráði, til þess að standa ekki einn og sér með heimasmíðað sjálfskaparvítið.

Ástralía-Kína

Daginn áður hvatti Xi forseti þjófagengis kommúnistaflokksins, sem stal völdum á meginlandinu, til "alþjóðlegrar samvinnu" (þýðing: samsæris) á skjá WHO á sama tíma og hann skellti 80 prósent tollum á bygg frá Ástralíu ásamt kjöti, vegna þess að Ástralía krefst rannsóknar á því hvernig Wuhan-veiran varð til og flæddi stjórnlaust frá Kína út yfir heimsbyggðina, löngu eftir að kínversku kommúnistarnir vissu um hvers konar drápsplágu var að ræða.

Plebbahöll xD

Í vösum þessa gengis er WHO, og í AIIB-bankaráði kínverska kommúnistaflokksins situr formaður Sjálfstæðisflokksins. Hvílíkur plebbaháttur og ólögmæti á borð við gangster-element stjórnmála. Hoppað er á allt.

Gunnar Rögnvaldsson, 21.5.2020 kl. 03:21

7 identicon

Fari svo að kínverski kommúnistaflokkurinn 

kaupi hlut í Icelandair, sem hann gerði

í  Norwegian,

þá verður öllum augljóst að Keflavíkurflugvöllur

mun lenda undir kínverskum yfirráðum.

Undarlegt að það hafi nú þegar gerst með Norwegian

á tíma Samfylkingar Jens Stoltenberg

sem framkvæmdastjóra NATO.

Hvur djöfullinn er eiginlega í gangi?

Af hverju notar Sjálfstæðisflokkurinn VG sem skjöld til að fela ill áform sín gegn Bandaríkjunum á Miðnesheiði og Helguvík?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 21.5.2020 kl. 11:27

8 identicon

Vitað er um Finnafjarðar verkefni Steingríms J.

Vitað er um fjandskap Bjarna og Gulla

í garð Bandaríkjanna.

Það er fjandskapur að ganga þvert gegn því litla

sem bandarísk stjórnvöld hafa beðið okkur um:

- Að vera ekki í Belti og braut AIIB

- Að tengjast ekki kínverska fjarskiptakerfinu.

Það er auk þess fjandskapur

að hafna vinarbeiðni bandarískra stjórnvalda

að leggja til 12-18 milljarða til uppbyggingar

á vegum NATO í Helguvík.

Er undarlegt að maður spyrji, vegna þessa,

Hverra erinda gengur "Sjálfstæðisflokkurinn"?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 21.5.2020 kl. 12:13

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Símon Pétur.

Heilinn í mörgum elítumönnum virðist vera utanáliggjandi, þannig að nóg er að stíga á hann með litlutá og hann leggur sig sjálfur niður.

Merkilegt: Á sama tíma og Slippurinn á Akureyri öskrar á járniðnaðarmenn til starfa á góðum launum, þá virðast heilir fjórir árgangar af háskólafólki vera í einhverskonar ofsanámi um "ofbeldi". Það er að gerast á sama tíma og allir árgangar og kennarar þessara menntastofnana hamast við að segja að Kína sé ekki hættulegt þjóðum. Þetta háskólafólk fer að minna mann á buff- og lúbarða húsmóðir sem þorir ekki að opna munninn, sama hvað er í boði. Enda fá margir háskólar veraldar fé hjá Kommúnistaflokknum (illa fengið fé).

Nú er bara að bíða eftir því að S.Þ. gerpitrýnið lýsi því yfir að rigning sé ofbeldi (ekki Lýsi H/F).

Gunnar Rögnvaldsson, 21.5.2020 kl. 12:25

10 identicon

Rétt Gunnar, algjörlega hárrétt.

Það er skelfilegt hversu innrætingarfullir

háskólarnir eru orðnir.

Og þetta hefur gerst á einum aldarfjórðungi

að forheimskunin hafi þar náð öllum völdum.

Þar er nemendum ekki lengur kennt að stunda gagnrýna og greinandi hugsun.

Eins er með róbótavæðingu iðnmenntunar í dag.

Blessunarlega finnst þó enn ungt og efnilegt fólk sem getur og vill hugsa sjálfstætt.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 21.5.2020 kl. 12:59

11 identicon

Mig undrar ræfildómur óbreyttra flokksmanna

að líða forystu flokksins allt það sem við höfum hér tæpt á, og er það þó einungis rétt það helsta.

Eða ber að túlka þann ræfildóm sem þeir lúffi 

og muni fylgja forystunni

niðurlútir sem barðir rakkar í leit að mylsnu?

Til hvers var barist til sjálfstæðis og fullveldis

ef þeir ganga nú í takt "menningarbyltingar"

Valhallar kommatittanna?

Enn og aftur minni ég á að það voru Bandaríkin

sem voru fyrst til að viðurkenna okkur sem sjálfstætt ríki.

Án velvildar þeirra værum við ófrjáls hjálenda.

Engir hafa eins mikið unnið til þess að við verðum

enn á ný ófrjáls hjálenda og forysta "Sjálfstæðisflokksins", það er hin ömurlega staðreynd.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 21.5.2020 kl. 15:48

12 identicon

Það er gaman að sjá nýjasta pistil Pall Vill:

"Sigmundur Davíð þorði, aðrir voru huglausir"

sem eru orð að sönnu!

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 21.5.2020 kl. 16:46

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já góð áminning hjá Páli.

Þarf greinilega að lesa bók Sigurðar.

Gunnar Rögnvaldsson, 21.5.2020 kl. 18:42

14 identicon

Heill og sæll Gunnar

sé að skrifað stendur að athugasemdir okkar séu 13.  Það finnst mér ótækt og bæti því þessari 14. við, um leið og ég tek undir með þér að bók Sigurðar Más verður maður að lesa, um

Sigmund Davíð og Icesave baráttuna, I, II og III og skuldaleiðréttingu hans, í þágu heimila landsins, hag þess og þjóðar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.5.2020 kl. 11:07

15 identicon

Það er ætíð þakkarvert þegar maður rekst, fyrir tilviljun, á bloggpistil þar sem ritað er af heilbrigðri skynsemi.  Kærar þakkir Gunnar.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 22.5.2020 kl. 12:27

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir innlit og góðar kveðjur Pétur Örn.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 22.5.2020 kl. 23:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband