Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2020
Föstudagur, 31. janúar 2020
Hátíð: Breskir þingmenn yfirgáfu gúmmíþingið í Brussel og Stóra-Bretland Evrópusambandið. Skál!
Í dag er stóri dagurinn. Breskir þingmenn yfirgáfu gúmmístimpilsþing Evrópusambandsins í síðasta sinn í dag. Frelsið og sjálfstæðið blasir við. Klukkan 23:00 í kvöld verður Bretland frjálst land á ný, því þá yfirgefur það Evrópusambandið fyrir fullt og allt. Þá yfirgefur það eina verstu hugmynd eftirstríðsáranna og samtímans - og versta efnahagssvæði hins þróaða hluta heimsins
Fjórfalt húrra fyrir Bretum!
Beina útsendingu Daily Telegraph, í för með Nigel Farage og Jacob Rees-Mogg, frá Lundúnum, má horfa á hér (nýr gluggi)
Og beina útsendingu Daily Telegraph, þar sem myndavélinni er beint að Downingstræti 10
Föstudagur, 31. janúar 2020 kl. 23:01:12
Stóra-Bretland hefur yfirgefið Evrópusambandið og er á ný fullvalda og sjálfstætt ríki
Boris Johnson forsætisráðherra ávarpaði þjóðina
Hversu stórt er það Stóra-Bretland sem var að yfirgefa Evrópusambandið?
Jú það er svona stórt
1. Nú þegar Bretland fór, þá svaraði það til þess að allur mannfjöldi rúmlega þessara 15 landa Evrópusambandsins yfirgæfu sambandið á einu bretti:
Malta
Lúxemborg
Kýpur
Eistland
Lettland
Slóvenía
Litháen
Króatía
Írland
Slóvakía
Finnland
Danmörk
Búlgaría
Austurríki
Ungverjaland
Plús einn þriðji hluti Svía
2. Þegar Bretland fór, þá svaraði það til þess að öll hagkerfi þessara 19 landa Evrópusambandsins yfirgæfu sambandið á einu bretti:
Malta
Kýpur
Eistland
Lettland
Litháen
Slóvenía
Króatía
Búlgaría
Lúxemborg
Slóvakía
Ungverjaland
Grikkland
Rúmenía
Tékkland
Portúgal
Finnland
Danmörk
Írland
Austurríki
Fyrri færsla
Götubardagar á evrusvæðinu halda áfram
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.2.2020 kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 30. janúar 2020
Götubardagar á evrusvæðinu halda áfram
Myndskeið: Það boðar varla neitt gott þegar lögreglulið og slökkvilið berast á banaspjótum á hástrætum evrusvæðisins í París
****
STJÓRNMÁLAFLOKKAR HEILABILUNAR
Skilyrðið fyrir frjálsu lýðræði í löndum, er sjálfsákvörðunarréttur þjóða; þ.e. þjóðarstefnan. Hann er frumforsendan fyrir því að frjálst lýðræði og einstaklingsfrelsi geti skapað þær aðstæður sem halda ríkisvaldinu og þar með sérstaklega yfirríkisvaldi í skefjum. Með öðrum orðum; hverfi eða lamist sjálfsákvörðunarréttur þjóða, þá verður það hið ótakmarkaða ríkisvald sem beita þarf sífellt meira og meira. Það þýðir að svæsnara og svæsnara ofríki ríkisvaldsins verður að stjórnarfari sem á endanum verður að ofbeldi ríkisvaldsins og eina valdatækið sem hægt er að nota til halda friðinn í þjóðfélaginu og löndum saman sem ríkjum. Þetta er fyrsti og eini bókstafurinn í stafrófi þjóða; sjálfsákvörðunarrétturinn
Viðrini Viðreisnar, þ.e. vitsmunaskortsvartan sem óx yfir í æxli við altari yfirríkisdaðursins í ees-höll Sjálfstæðisflokksins, berst nú fyrir hinu ótakmarkaða ríkisvaldi sem Evrópusambandið er. Það samband tortímir sjálfsákvörðunarrétti þjóða til að koma sjálfu sér að sem ótakmörkuðu yfirríkisvaldi, sem síðan drepur frjálst lýðræði og þar með einstaklingsfrelsið og hagsældina sem af því leiðir. Viðreisn er því eins og Samfylkingin stjórnmálaflokkur heilabilunar, sem alls ófær er um að skilja sjálfan sig, því flokkurinn talar fyrir því sem Evrópusambandið stendur fyrir; þ.e. dauða hins frjálsa lýðræðis með því að tortíma sjálfsákvörðunarrétti íslensku þjóðarinnar. Eftirstandandi altari yfirríkisdaðursins í ees-höll Sjálfstæðisflokksins hefur hins vegar breyst í fallöxi fyrir þann ees-pakkaflokk
Hér á myndbandinu fyrir ofan sést franska lögregluliðið og franska slökkviliðið berast á banaspjótum úti á hástrætum evrusvæðisins í París á þriðjudaginn. Slík er esb-hamingjan þar. Slökkviliðsmenn berjast við lögregluna sem handhefja á lögin sem eyðileggja líf þeirra svo mikið að franskir vinstriflokkar eru að bindast böndum með stjórnmálaflokki Marine Le Pen, um að skola Evrópusambandinu og málaliðum þess í Frakklandi af höndum frönsku þjóðarinnar. Sennilega hefur aldrei eins hataður maður og Emmanuel Macron setið sem forseti Frakklands. Hatrið meðal Frakka á honum er við það að sjóða upp úr. En Macron ræður auðvitað litlu sem engu um það sem hægt er að gera í landinu, því sjálfsákvörðunarréttur Frakklands er farinn úr landi. Hið ótakmarkaða yfirríkisvald ræður för og æ styttra er því yfir í allsherjarofbeldið
Hvort það verður Frakkland, Pólland eða Ítalía sem næst brjótast út úr yfirofríkisvaldi Evrópusambandsins á eftir Bretlandi, sem fer þaðan út klukkan 23:00 annað kvöld, skal látið ósagt. En pólska ríkisstjórnin kynnti hins vegar í nóvember áætlun sína um að endur-pólska hagkerfið, því Pólland hefur ekki hugsað sér að vera láglauna-vinnuskúr fyrir Þýskaland lengur. Pólland hafði og hefur enn alls engar fyrirætlanir um að fara úr einu sovétríkinu yfir í annað
Fyrri færsla
Svínastía kommúnismans drepur Kínverja og smitar aðra
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Þriðjudagur, 28. janúar 2020
Svínastía kommúnismans drepur Kínverja og smitar aðra
HIN KÍNVERSKA "MILLISTÉTT" GUÐLAUGS ÞÓRS
Yfirvöld kommúnistaflokksins í Kína hafa nú tilkynnt um 2700 smit og 82 dauðsföll vegna kórónaveirunnar. En sérfræðingar búast við hundruð þúsunda tilfella sem flokksyfirvöld eiga eftir að tilkynna og breiðast munu út til annarra landa. Einu sinni enn staðfestist að Kína er enn miðaldaríki þar sem miðaldastaðlar eru látnir duga fólkinu sem ekki býr í nágrenni við flokkshallir hins sótsvarta kommúnisma. Manngerður sjúkdómurinn breiðist því algerlega stjórnlaust út á meðan góða fólkið á vesturlöndum (allt glóbal-kommar og glóbal-sossar) heimtar að neyðarástandi sé lýst yfir vegna hugarburðar þess með ímyndað veðurfar út í geim. Miðaldir eru hafnar á ný
Súpersmit hríslast um svo kallaðar kínverskar "heilbrigðistofnanir", þar sem einn smitaður nær að smita 14 lækna og hjúkrunarfólk á svo kölluðu sjúkrahúsi í Wuhan. Þeir læknar og starfsfólk verða síðan súpersmitarar sem með myndugleika fylla líkkistur af látnum mönnum. Það er kannski þess vegna sem að staðfest smit hafa tífaldast á síðustu sjö dögum. En eins líklegt er að þeim hafi bara verið haldið leyndum, því pólitísk átætta fylgir því að tilkynna um sjúkdóma í hinu helsjúka Kína kommúnistaflokksins - þar sem millistétt Guðlaugs Þórs er gangstéttin sem flokkselítan gengur á til gúlagasmíða
Aðalstöðvar kommúnistaflokksins í Peking hafa sent 1230 sérfræðinga til borgarinnar Wuhan og kínverski herinn einkalífvörður kommúnistaflokksins gegn fólkinu í landinu hefur sent 450 slíka þar sem reyna á að breyta tólf svo kölluðum almennum sjúkrahúsum á 20 milljón manna stað í einangrunarbúðir og bæta sex þúsund sjúkrarúmum við þau í lok mánaðarins. Aðalstöðvar kommúnistaflokksins í Peking hafa þess utan slegið lokuðum hring utan um 50 milljónir manna í bæjum og borgum þar sem smit eru mikil
Sé til eitthvað í Kína sem kalla má heilbrigðiskerfi, þá er það í rúst því ekkert gengur að hemja síendurtekin tilfelli af mannskæðum smitsjúkdómum á borð við þennan, sem líklega á rætur sínar að rekja til heildsölumarkaðar fyrir sjávarfang í Wuhan - í nóvember 2019. Reikna nú þeir sem vita mest með því að meðgöngutíminn (d. inkubationstid) sé heilar tvær vikur áður en fólk veikist. Svipaður og meðgöngutíminn með veiru Svarta dauða er talinn hafa verið á 14. öld og sem útskýrði harða útbreiðslu hans, sem talinn er hafa verið um 30 km. á dag; með fólki í farartækum þeirra tíma
Einu tilfellin af svo kölluðu "heilbrigðskerfi" í landinu er að finna í nálægð við aðalstöðvar kommúnistaflokksins í Peking og við stofnsetur hans í Shanghai. Berklatilfelli hafa að vísu helmingast á síðustu 20 árum, en þau eru enn þrisvar sinnum algengari en í Mexíkó, sem er með 20 prósent fleiri lækna á hvern íbúa en Kína kommúnistaflokksins. Kína er þess utan með 70 prósent færri lækna á hvern íbúa en Alþjóða-heilbrigðisstofnunin mælir með, og 96 prósentur þeirra eru "sérfræðingar" því almenn læknastörf borga sig ekki sökum lágra launa
Svo kölluð "sjúkrahús" eru yfirfull og fólk í dreifbýli verður að stóla á miðaldalæknastofur. Læknar í nálægum borgum við Wuhan notast við sjöl í stað sóttvarnarbúninga í glímunni við þetta nýja kóróna-misfóstur kommúnistaflokksins. Þörfin fyrir sóttvarnarbúninga í Hubeihéraði einu og sér er 100 þúsund stykki á dag á meðan allt landið framleiðir aðeins 30 þúsund stykki, og almennar andlitsgrímur eru skammtaðar
Þetta er svona vegna þess að aðalsstöð kommúnistaflokksins í Peking leggur allar áherslur á "lífsvísindagarða", "erfðameðferðir", "krabbameinsrannsóknir" og "læknagræjur" til að vinna sér inn athygli erlendis - til dæmis hjá plebbum á borð við þá sem nú hanga til þerris í kratahjallinum Valhöll og liggja sem innlögð skreið í ríkisstjórn Svandísar sovéts. "Líftækni" er burðarstólpinn í "Made in China 2025" áætlunum kommúnistaflokksins, sem eiga að "ráða yfir heimsmarkaðnum" á því sviði þá. Þetta er geggjun mannvonskunnar eins og allt sem frá kommúnistaflokki kemur. Gangstéttin stóra þar sem ferð flokkselítunnar hófst á einu fjöldamorði sem leiddi til hinna
Á meðan grassera lífshættulegir smitsjúkdómar eins og þessi. Og á síðasta ári grasseraði kommúnistaflokksgerður sjúkdómur sem drap helming svínastofnsins í landinu. Honum hefði verið hægt að komast hjá ef brugðist hefði verið rétt við og bændur ekki neyddir til að selja sjúk svín og breiða sjúkdóminn þannig út. Það borgaði sig fjórum sinnum betur en að taka við því sem flokkurinn ætlaði að verja til bóta - á sama tíma og kommúnistaflokkurinn bannar innflutning landbúnaðarvara frá Bandaríkjunum - af "heilbrigðisástæðum"
Þegar Kína hóstar þá drepst fólk í heiminum. Þetta Potem-Kim skrímsli kommúnistaflokks Kína og útibús þess í Norður-Kóreu verður að hemja og stöðva. Ekkert land og fólk á svona stjórnarfar skilið
Leiðari Wall Street Journal í dag: A Made-in-China Contagion (smit framleidd í Kína)
Fyrri færsla
Evrópusambandið er orðið stærsti olíu-innflytjandi veraldar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 27. janúar 2020
Evrópusambandið er orðið stærsti olíu-innflytjandi veraldar
Mynd Wikipedia: "Halló, er einhver heima?" Kíkt ofan í gamla Evrópusambandið. Grand Slam RAF-borverk Barnes Wallis hjá Vickers. Aðeins fjórir dagar eru eftir af dvöl Stóra-Bretland í ESB-holunni. Rekja má margt til snilligáfna Barnes Wallis
****
Ráðalaus yfirvöld í því sem kallað er "Evrópusambandið" í dag, leita nú með logandi en leyndum ljósum að olíu og jarðgasi til innflutnings, á sama tíma og skiltagerðadeildir útópíu þess hanna grænu pólitísku rétttrúnaðarskiltin sem rekin eru framan í alla þá sem spyrja til ástands orkumála þar á þrotabæ, en þó alveg sérstaklega framan í þá sem spyrja til dæmis spurningar eins þessarar; hvers vegna eru Evrópulöndin orðin stærsti innflytjandi olíu og jarðgass í heimi
Á sama tíma eru Bandaríkin orðin stærsti olíu- og jarðgasframleiðandi veraldar og eina land heimsins sem með herafla sínum (les. NATO) verndað getur innflutningsleiðir fyrir annarra landa olíu inn í lönd Evrópusambandsins. Bandaríkin eru þess utan einnig eina þjóðríki veraldar sem verndað getur sjóleiðirnar fyrir útflutning frá meginlandi Evrópu, til neytenda í öðrum löndum, og þar með til annarra-landa eftirspurnar. Meginland Evrópu er orðið algerlega háð og þar með í vösum Rússlands, Miðausturlanda og Norður-Afríku í orkumálum
Í ljósi þessa ber að skoða skortinn á utanríkisstefnu Evrópusambandslanda gagnvart Rússlandi, Íran og flóðbylgjunni frá Norður-Afríku. Og í ljósi þessa ber því að skoða ofsahræðslu landa Evrópusambandsins við heildar-utanríkisstefnu Bandaríkjanna; sem bera uppi það eina sem haldið getur ljósunum áfram logandi í Evrópu. Þar er ég að tala um Bandaríska herinn sem ber uppi nær alla hernaðargetu NATO - og alla getu til varnaraðgerða á heimsvísu
Evrópa fer af límingunum ef að Bandaríkin svo mikið sem anda á Miðausturlönd, svo ekki sé talað um að flytja bara eitt lítið sendiráð milli borga í einu litlu landi þar. Evrópa hefur nefnilega enga stjórn á örlögum sínum. Enga! Og það mun hún ekki hafa svo lengi sem Evrópusambandið er við lýði. Frá Rússlandi koma 30 prósentur af allri olíu sem lönd sambandsins nota, og enn stærra hlutfall af jarðgasi. Og einnig þar nötrar, skelfur og hristist Evrópusambandið við hvert bandarískt fótmál gagnvart Rússlandi
Evrópa getur hvorki séð sjálfri sér fyrir orku né varið innflutning hennar. Hún er algerlega í vösum annarra
Þessa stöðu má einnig sjá á brennandi logunum í sótsvörtum gluggum Valhallar, sem nýlega úthýsti hluta af fullveldi Íslands í orkumálum til einmitt evrópskra ólanda. Ekkert land og enginn stjórnmálaflokkur með fullu viti úthýsir fullveldi sínu til annarra landa og lifir slíkt af. Um EES-leiðsluna inn í Sjálfstæðisflokkinn flýtur því sjálfstortímingargasið, svo lengi sem flokkurinn með "fullum vilja dópistans" gerir sig háða henni; bæði andlega og líkamlega. Ég mæli því með afvötnun fyrir vonleysislið Sjálfstæðisflokksins í Valhöll. Allsgáð pólitískt líf er eina lífið sem vert er að lifa. En á meðan stórgungustétt esb-krataklúðursins er þar við völd, sem fyrsta, eina og fullkomlega ónýta slík í sögunni, þá gasast sá flokkur bara áfram í hel
Næst stærsti olíu-innflytjandi veraldar, á eftir Evrópusambandinu, er hins vegar Kína. Og á það land hins risavaxna kommúnistaflokks mega Bandaríkin því heldur ekki svo mikið sem anda, því sá andi kemur Evrópusambandinu auðvitað afar illa, því það er svo háð Kína. Með þeim augum ber að líta á utanríkisgervistefnu Evrópusambandsins og því einnig brunarústa xD gagnvart Kína. En það sem enn verra er fyrir Evrópu, er það, að Miðausturlöndum og Norður-Arfríku líkar enn verr við Kína en þeim líkaði við Sovétríkin og kommúnistaflokk þeirra
Staðan er því sú að Bandaríkin hafa engan áhuga á Miðausturlöndum, en Miðausturlönd hafa hins vegar ákaflega mikinn Trotský-áhuga á Bandaríkjunum. En hvers vegna ættu Bandaríkin að gæta siglingarleiða fyrir olíu frá Miðausturlöndum til Kína? Það munu þau auðvitað ekki gera mikið lengur
"Hæ hæ Miðausturlönd, við erum með miljónir múslíma í gúlagi heima í Kína og við erum komnir til að gæta skipaferða með olíu, svo halda megi gúlaginu gangandi" - Xi Jinping kommúnisti (með Lenínvindil)
Evrópusambandið og Kína eru stærstu kúnnar Miðausturlanda, en með bara alls alls enga getu til að gæta hagsmuna sinna þar. Hvað gerist næst? Jú Stóra-Bretland yfirgefur Evrópusambandið eftir fjóra daga - og svo koll af kolli
Fyrri færsla
Gæti Brexit sært VC10-drottningu háloftanna fram á ný?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 19. janúar 2020
Gæti Brexit sært VC10-drottningu háloftanna fram á ný?
Vickers VC10
****
Hún var allt í senn. Falleg, harðskreið, hljóðlát fyrir farþegana, glæsileg og örugg. Breska Vickers VC10 farþegaþotan var hönnuð og byggð af Vickers-Armstrongs einkafyrirtækinu, og á þessi farþegaflugvél enn hraðametið yfir Atlantshafið. Aðeins Concorde flaug harðar. Boeing 707 var enn að bagsa á flugbrautinni þegar VC10 var komin í þúsund feta hæð, legðu þær af stað samtímis. Svo stutta flugbraut þurfti hún miðað við 707. Vélin var hönnuð fyrir flugleiðir breska samveldisins, að beiðni BOAC, sem síðar varð British Airways. Hönnuð til flugtaks og lendingar á lélegum flugvöllum í miklum lofthita og mikilli hæð yfir sjávarmáli og krafðist ekki háþrýstings í hjólbörðum. Og þar sem fjórir Rolls Royce Conway hreyflar hennar sátu á stélinu, var hún afar hljóðlát og það líkaði farþegunum sérlega vel. Og nóg var plássið um borð bæði fyrir þá og flugþjónana
BOAC snérist síðan gegn VC10-afkvæmi sínu og öfugsnúnir breskir pólitíkusar tóku þetta verkfræðilega afrek Breta af lífi, með alkunnri skammsýni smákaupmannsins. Þjóðnýtingaráráttan frá stríðslokum tók smám saman stóran hluta breska flugvéla- og bílaiðnaðarins af lífi. Og eins og allir sannir þjóðaríhaldsmenn vita þá vantaði því miður vissa kafla í hana Margréti barónessu Thatcher og lávarð hennar Tebbit eins og nýlega látinn Sir Roger Scruton heimspekingur og þjóðaríhaldsmaður sagði í afar áhugaverðu 2017-viðtali við Peter Robinson hér. Margrét var góð, en ekki gallalaus, eins og við öll auðvitað erum fædd. VC10 var samt uppáhalds flugvélin hennar
Flugtak
Í hlutverki eldsneytisgjafa fyrir orrustuþotur Konunglega breska flughersins. Síðasta flug þessara glæsilegu flugvéla var flogið í september 2013. Þá höfðu þær þjónað breska flughernum í 51 ár. Og sem eldsneytisvélar gátu þær einnig tæmt sig yfir í hvor aðrar, þannig að til dæmis þrjár slíkar þyrftu ekki að hanga með slatta í sér í loftinu yfir Miðausturlöndum, heldur gátu tvær snúið til bækistöðva, fyllt sig og mætt fullhlaðnar af eldsneyti til leiks á ný
****
Í dag eru flughafnir með fullvissu orðnar ömurlegustu og leiðinlegustu staðir jarðar. En enn verra er þó að vera um borð í síldartunnu-strætisvögnunum sem fara næstum fetið um háloftin í dag. Það liggur við að SRT-8 bílferð mín í flughálku í dag hafi verið ánægjulegri en þær sem hefjast og enda á alþjóðlegum flugvöllum þessi árin
Hér má sjá kynningarmynd BOAC um VC10 frá 1964: hluti-1 og hluti-2
Fyrri færsla
Lóðabraskarar jósku Samfylkingar-heiðanna auglýsa
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.1.2020 kl. 06:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Laugardagur, 18. janúar 2020
Lóðabraskarar jósku Samfylkingar-heiðanna auglýsa
Vegna snjóflóða á Flateyri hafa enn á ný birtst auglýsingar úr Samfylkingarbönkum Íslands um lausar og ódýrar lóðir á jósku heiðunum. Uppgjafarmiðstöðvar þessar opna alltaf útibú sín þegar eitthvað bjátar á hér í okkar eigin landi. Opna þær þá undir slagorðum eins og "Já Ísland" eða "Við erum sammála" (les. Ónýta Ísland og Niður með Ísland)
Hvergi væri byggð á Íslandi réði þetta fasteignafélag einhverju hér á landi. Það verður að segjast eins og er
Ég vona að Flateyringar hlusti ekki á þennan aftansöng úr bakhluta uppgjafarmiðstöðvarinnar, sem er eini hlutinn sem öll sú miðstöð gerð er úr. Öll hennar skip liggja því enn sem fúnar fjalir á sjávarbotni við norskar strendur. Þau komust aldrei úr kafinu
Áfram Flateyri!
Fyrri færsla
Verður þetta Skotland sjálfstætt?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.4.2020 kl. 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 15. janúar 2020
Verður þetta Skotland sjálfstætt?
Mynd, Wikipedia: niðurstaðan úr síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu Skotlands um sjálfstæði, sem fór fram undir þeim formerkjum árið 2014 að engin önnur slík kæmi á dögum núlifandi kynslóða. Niðurstaðan varð nei. Myndin sýnir niðurstöðuna á myndrænan hátt eftir umdæmum. "Við viljum ekki", sögðu Skotar um allt land, nema náttúrlega hin nýlega grænmálaða bréfalúga-101 í Glasgow
****
Eins og myndin hér að ofan sýnir, er það aðeins 101-paprikufélag menntamanna í Glasgow sem heimtar að fá umráðarétt yfir öllu Skotlandi, svo að viðurstyggðarfélag það geti hent því inn í þrotabú Evrópusambandsins og framið endalegt sjálfsmorð á landinu sínu Skotlandi. Um er að ræða geopólitískan skollaleik, sem Evrópusambandið hottar áfram og ýtir undir
Nú er öllum að verða ljóst stærsta fjármálamiðstöð veraldar, sú breska, mun ekki sækjast eftir neinu nema í mesta lagi minniháttar viðskiptasamkomulagi við Evrópusambandið, því að bæði stjórnvöldum landsins og sjálfum fjármálageiranum er ljóst, að víðtækur viðskiptasamningar við Evrópusambandið myndi drepa þann geira og ræna frá honum hinu allra-heilagasta; þ.e. sjálfstæðinu (eins og gerðist í EES), sbr. nýleg ummæli Englandsbankastjóra
Öllum er orðið ljóst að sá mikilvægi geiri mun ekki lifa það af að úthýsa laga- og regluverki sínu til sköpunar- og ákvarðanatöku í útlöndum, eins og Sjálfstæðisflokkurinn sá um að fremja hér heima á raforkukerfi- og gagna- og persónuupplýsingavörnum Íslendinga, sem er hið fullkomna misfóstur í dag, enda um sovéskt fyrirkomulag að ræða
Sjálfstæðisflokkurinn er því sennilega búinn að grafa sína eigin gröf, og reynir að taka allt Ísland með sér í fallinu. Það var þetta sem drap íslenska bankakerfið; þ.e. að laga og regluverki þess var úthýst til bjánaveldis í skeinispappírslandi Brussels
Boris Johnson hefur það um bröltið í 101-Glasgow að segja, að Bretar samþykktu á sínum tíma að Skotland yrði hluti af Bretlandi. En þar sem enginn Skoti nema paprikuelítan í Glasgow vill fara, þá mun Skotland ekki verða sjálfstætt ríki. En fari það hins vegar, þá verður Skotland áfram ósjálfstætt ríki því borgararnir vilja ekki fara. Sjálfstæði þjóða snýst ekki um það hvort að einhver gefi því grænt ljós eða ekki. Þjóðir taka sér sjálfstæði og berjast oftast fyrir því með vopnum, sé þjóðarsamstaðan bjargið sem byggja á sjálfstæði landsins á. Enginn Skoti mun vígbúast, nema þá helst gegn 101-paprikunum í Glasgow. Þannig mun landið liggja um alla framtíð fari Skotland út Bretlandi; það verður nýtt Norður-Írland, þar sem hryðjuverk verða stærsta útflutningsvara paprikufélagsins í Glasgow
Samkvæmt hugmyndafræði paprikufélagsins í Glasgow, þá gætu Hjaltlandseyjar og Orkneyjar sagt sig úr Skotlandi og lýst yfir sjálfstæði og síðan gengið í Ísland, og þar með búið til særstu landhelgi jarðar. Svona svipað og Tyrkland og systurklofningurinn í Líbýu eru að gera í dag. Þetta yrði auðvitað uppskriftin að hinum "eilífa friði" hins heilsteypta skrifborðspáfaveldis, alveg eins og í ESB, ekki satt. Svo kæmi út ný evra, undir nafninu lirfa
En kannski er besta hugmyndin sú að Glasgow-elítan mæti á borgarstjórnarfund hjá gorgonsólaveldi Samfylkingarinnar í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar, því þar á borðum liggur uppdrátturinn að sjálfu Borgríki Reykjavíkur hvorki meira né minna og sem ræddur hefur verið á fundum þar. Loftbrúin til Vestur-Berlínar 1948 gekk nefnilega svo vel
Fyrri færsla
Kommaklúbburinn vill miðstýrt Ísland
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 13. janúar 2020
Kommaklúbburinn vill miðstýrt Ísland
Áköll kommaklúbbsins í Reykjavík um "einfaldara Ísland" er ákall um einn einfaldan miðstýrðan EsbSovét út í glórulausa útópíu, sem ágætlega kom fram í viðtalinu við Árna Bergmann í Mogganum um helgina. Meira að segja það viðtal var ekki einn einfaldur, því það var á þremur blaðsíðum
Viðtalið við Árna opinberaði hvers vegna pólitísk átök hér heima snérust um baráttuna við vindmyllur. Friður er nefnilega innansviga fyrirbæri í mannkynssögunni eins og Plató benti á. Stríð er hið eðlilega ástand mála og sá háttur sem ríki jarðar hafa notað í allri sögu mannkyns til að stilla og aðlaga sig sjálf og önnur ríki jarðar að staðreyndum lífsins. Þess vegna varð Ísland að hafa her í landinu frá og með Síðari heimsstyrjöld. Og eðli kommúnismans samkvæmt, þá kom sovéski herinn ekki til greina og heldur ekki systurher hans í Þriðja esb-ríki Hitlers-sósíalismans, undir stjórn herra miðstýrðs. Þess vegna voru breski og bandaríski herinn með fasta og verndandi viðurvist hér á Íslandi. Íslendingar vildu einfaldlega ekki miðstjórn alræðisins, nema náttúrlega hinn aldarvissi litli klúbbur kjána frá Örófi alda
Auðvitað vildu allir vera lausir við stjórnmálamenn, en þannig virkar heimurinn bara ekki í praxís. Her er pólitísk eining og þjóð er hin grunnpólitíska eining (e. unit) í veraldarhafinu
Þessu afneita útópíusinnar Íslands áfram eins og sést á ESB-sovésku miðstjórnarákalli þeirra á gorgonsólavappinu um götur Reykjavíkur; á max 10 km vernduðum ógnarhraða, sem er 5 km meiri hraði en ljósið ferðast á í klúbbnum sem barðist við vindmyllur, og enn er að, eins og sést
En nú erum við orðin nógu stór, fjölmenn og rík til að stofna íslenskt varnarlið sem haldið gæti stöðunni og stuggað burt eitruðum flygildum úr lofthelgi okkar Íslendinga, þar til aðstoð Bandaríkjanna berst. Það er þetta sem kommaklúbbur miðstjórnarmanna í Reykjavík á að einbeita sér að
Með þessu áframhaldi mun miðstjórnarklúbburinn í Reykjavík koma að sjálfri Landnámu innan skamms, og heimta að það kvótakerfi yfir jarðnæði á Íslandi verði leyst upp og Ísland gert að einni miðstýrðri jörð, sem fá mun heitið Samyrkjubúið mikla. Þar mun hver kommamaðurinn um annan veltast um á því sem áður voru jarðir annarra, þar sem heitasta ósk allra verður sú að aldrei finnist eitt einasta bláber á hinni sameiginlegu jörð komma
Takið ykkur vinsamlegast saman. Enginn nema gorgonsóli á götum Rykkjavíkur hefur áhuga á að láta ykkur né ykkar líka um hvorki sveitir landsins né jarðirnar á fiskimiðunum (kvótana). Það besta sem þið gætuð hins vegar gert er að leysa kommaklúbbinn ykkar upp og taka þátt í Íslandi sjálfstæðra manna
- Gunnar er þjóðaríhaldsmaður frá Siglufirði
Fyrri færsla
Aðeins tímamunur á ISIS og klerkaveldi Írans
Segir kvótakerfið brot gegn íslensku samfélagi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Laugardagur, 11. janúar 2020
Aðeins tímamunur á ISIS og klerkaveldi Írans
Klerkaveldi Írans er aðeins ef yfir höfuð nokkru hænufeti frá því að samsama sér með ISIS, eða Ríki íslams. Klerkaveldi Írans hefst við í ríki sem nýtur réttinda samkomulagsins um fullveldi ríkja, sem kennt er við Vestfalíufriðinn 1648. En á sama tíma vinnur það að því að tortíma því fyrirkomulagi fullvalda ríkja heimsins
Það rekur ekki bara ríkisher eða landvarnarlið, heldur rekur það líka sérstakan byltingarherafla sem starfar við að flytja út byltinguna sem leggja á fyrirkomulagið um fullvalda ríki frá 1648 í rúst. Ekkert hefur lýður landsins um neitt að segja í þessu hryllingsbæli. Hann er miskunnarlaust tekinn af lífi í sínu eigin ríki af byltingarvarðliðinu sem viðhalda- og flytja á út tortímingu Vesturlanda
Að vitsmunalega örkumlaðir vinstrimenn á Vesturlöndum skuli halda andlegum verndarvæng yfir þessu skrímsli, sem gert er sérstaklega út til að tortíma því sjálfu, er ekki bara inngróin heimska úr grútmygluðu forðabúri kommúnismans, heldur vitsmunaleg örkumlun sem aðeins líberalistavængur sósíalismans er fær um að koma heilabúum manna í. Aðeins þannig leppalúðar taka þetta ríki sem góða og gilda vöru
Það fór því vel á því að Bandaríkin skyldu taka úr umferð útflutningsstjóra tortímingar á fyrirkomulagið frá 1648. Hann var réttdræpur hryðjuverkamaður sem herjaði á önnur ríki og sitt eigið fólk, og drap það í bunkum, eins og aðeins vígamenn Ríkis íslam gera. Hann var útflutningsstjórinn sjálfur og hafði ekkert með sjálfsvarnarlið eða her Írana að gera
Ef að betri menn hefðu ekki ráðið niðurlögum ISIS, þá væru stórir hlutar Íraks og Sýrlands á valdi manna eins og hans; í nýju morðríki, sem síðan krefðist viðurkenningar hjá því fólki sem ég nefni á nafn hér fyrir ofan
Eini munurinn á klerkaveldi Írans og ISIS er sá að Klerkaveldið kom á undan og lifði lengur en það. Því miður
Fyrri færsla
Tapsgefandi "nýjungar": er verið að skrúfa fyrir heita vatnið?
Segjast hafa skotið vélina óvart niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 10. janúar 2020
Tapsgefandi "nýjungar": er verið að skrúfa fyrir heita vatnið?
Mynd af ísöld: "Dow Jones Industrial Average" vísitalan - sögulegar tölur áranna frá 1965 til 1986. Myndin verður enn verri, eða hin fullkomna hryllingsmynd, sé tillit tekið til verðbólgunnar á þessu tímabili, sem var mikil. Ekkert gerist fyrr en að fyrstu persónulegu-tölvunar-fyrirtækin sem byggja allt sitt á örgjörvanum, eru í þann mund að koma á markað í kringum 1980-1982. Þarna dó 50-ára hagsveifla bílaiðnaðarins og verður aldrei endurtekin. Bílar urðu "old-tech"
****
Um þessar mundir er hlutfall tapsgefandi nýrra fyrirtækja á hlutabréfamarkaði það sama og það var á hátindi ný-þvælunnar sem fékk nafnið dot.com bólan eða internet-fyrirtækja-bólan frá 1997-2002. Í mars 2000 hrundi þessi bóla og hélt áfram að hrynja fram í október 2002. Talið er að þar hafi brunnið næst mesta misstæða fé í sögu mannkyns, næst á eftir sjónhverfingum evrunnar frá 2001-2008. Svo kallað fólk með "fullu viti" henti sér þá án björgunarhrings í ískaldan sjóinn; til þess eins að komast hjá því að líta út sem gamaldags imbar í augum vina, kollega og "almenningsálitsins". Þannig eru allar bólur; þær snúast um að girða sig af gegn heimsku; á ensku; "hedging against stupidity"; að verja sig gegn því að líta út sem bjáni í augum annarra
Hlutfall tapsefandi nýrra fyrirtækja í hlutafjárútboðum er hvorki meira né minna en 80 prósent í dag. Eða eins og það var á hátindi dot.com bólunnar. Þetta þýðir að átta af hverjum tíu nýjum fyrirtækjum sem sækjast eftir hlutafé á mörkuðum eru rekin með tapi, er þau sækjast eftir fjármunum annarra. Þeir sem þekkja tímana fyrir "hvað er þetta maður, fæ ég ekki fjármögnun", þ.e. tímana þegar maður mætti með að minnsta kosti break/even í bankann til að frá rekstrarlán, vita hvað svona tapsgefandi latína þýðir
En í sjálfu sér þarf slíkt ekki að vera sjálfkrafa "óeðlilegt", því að ný fyrirtæki þurfa kapítal til að geta vaxið upp í arðbæran rekstur. En þannig spilaði úrverkið hins vegar ekki þegar öld persónulegrar tölvunar hófst í kjölfar algerrar stöðnunar við endalok 50-ára hagsveiflu bílaiðnaðarins. Endalok 50-ára bílahagsveiflunnar þýddi 20-ára ísöld á hlutabréfamörkuðum; frá 1965 til 1989. Þau nýju fyrirtæki sem þá lögðu grunninn að persónulegri tölvun, voru ekki eins og þau fyrirtæki sem nú er um að ræða. Þau voru sannarlega brautryðjandi tæknifyrirtæki. Það eru flest nýju fyrirtækin í þessum geira í dag hins vegar ekki. Þau eru old-tech
Vöxtur í framleiðni er að mestu horfinn síðustu mörg mörg árin og það eitt og sér gæti þýtt að 50-ára hagsveifla örgjörvans sé að enda. Heimurinn hefur átt þrjár 50-ára hagsveiflur: Eitt; þegar rafmangið kom. Tvö; þegar bílaiðnaður varð til. Og þrjú; þegar örgjörvinn (tölvun) varð til
Þegar dot.com bólan sprakk, þá man ég aðeins eftir einum hagfræðingi á Norðurlöndum sem trúði ekki á "nýja hagkerfið". Það var Daninn Torben M. Andersen. Restin af sérfræðinga-söfnuðinum söng með og fraus náttúrlega í hel, án þess þó að viðurkenna það. En kannski voru þeir fleiri sem sáu þetta, en þorðu bara ekki að segja frá því, stöðu sinnar vegna. Eflaust
Þá er það næsta stóra spurning; Er 5G, þ.e. fimmta kynslóð þráðlausra víðáttuneta (WAN), jafn mikil þvæla og hin hljóðfráa Concorde farþegaflugvél var? Sú flugvél var fullkomið efnahagslegt fíaskó og flýgur því ekki lengur. Frá því að setja vægni á bíl og betrumbæta "bílasveiflu-hugmyndina" næstu mörgu áratugina og aldrei að detta neitt nýtt í hug á meðan er mjög svo sennilega það sem er að gerast með rafbílana og tapsgefandi félagskap svo kallaðra "græningja". Þeir verða sennilega "ný Concorde" á hjólum ásamt 5G-concorde eftir nokkur ár. Og fleira má nefna sem bara tapar og tapar fé í dag; allt byggt á þráðlausum tengingum og þar með á örgjörvum
Þetta er ekki spá, heldur aðeins vangaveltur, með harðfisk og heimagerða kindakæfu í munni. Það er hins vegar fyrir mig traustvekjandi að sjá að nýr Ásgeir seðlabankastjóri Íslands er að minnsta kosti með fullu viti þegar hann segir að hagvöxtur á Íslandi geti ekki byggst á lélegasta, leiðnilegasta og verst launaða atvinnugeira veraldar; þ.e. á steikingu erlendra ferðamanna. Það er nefnilega hárrétt hjá honum og hefði þurft að segjast fyrr. Miklu fyrr
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 119
- Frá upphafi: 1387402
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 81
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008