Bloggfærslur mánaðarins, september 2019
Mánudagur, 30. september 2019
Farsinn um "Úkraínu-samtalið" [u]
Passandi er að hlusta á Don Edwards á meðan restin af Demókrataflokknum sprengir sig enn dýpra austur í villta vinstrið - á meðan Trump ríður vestur og inn í sólina, þar sem hver nýr dagur er vestur af gærdeginum
Þegar samtal Donalds Trump við Volodymyr Zelensky forseta Úkraínu er skoðað á nú fimm útgefnum blaðsíðum, þá jaðrar það við eitthvað enn alvarlegra en geðbilun að segja að bandaríski forsetinn hafi verið að sækja sér liðsafla frá útlöndum til að klekkja á pólitískum andstæðingum heima fyrir, eins og Sjálfstæðisflokkurinn sótti sér vernd erlends yfirríkis sem er enn spilltara en Úkraína til að berja fullveldið í orkumálum úr höndum íslensku þjóðarinnar. Samtalið sem átti sér stað í júlí fyrir mörgum vikum síðan gekk svona fyrir sig;
Forsetinn hringir og samtalið snýst um að óska forseta Úkraínu til hamingju með sigurinn í úkraínska þinginu. Síðan kemur þessi venjulega rulla sem verður að viðhafa til að minna viðtakanda aðstoðar á að hann er viðtakandi aðstoðar, og í þessu tilfelli aðstoðar á mjög marga vegu. Trump kvartar einnig yfir því að "Evrópa" leggi ekki sitt að mörkum í málefnum Úkraínu. Hvergi er svo mikið sem ýjað að því að Bandaríkin dragi aðstoð sína til baka. Síðan biður hann Zelensky um þann "greiða" að Úkraína skoði íhlutun í forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 2016. "Ég myndi vilja að þú finnir út úr hvað gerðist með þetta Úkraínumál þar sem þeir segja að Crowdstrike"... segir hann, og á þar við fyrirtækið sem rannsakaði tölvuinnbrot inn í landsstjórn Demókrataflokksins. Trump gefur þar næst lítið fyrir sérstaka saksóknarann Mueller, og ætti það ekki að koma neinum á óvart, og segir "þeir segja að mikið af þessu hafi byrjað með Úkraínu". Trump er greinilega enn sár yfir því að lið Hillary Clintons, Obama og Demókrataflokksins hafi reynt að grafa upp óhróður um hann erlendis, en það er ekkert rangt við það að biðja pólitískt höfuð annars ríkis um að rannsaka íhlutun í kosningar sínar
Það er aðeins að loknum þessum kafla í samtalinu að forseti Úkraínu minnist á persónulegan lögfræðing Trumps, Rudy Giuliani, sem hvatt hefur Úkraínu til að rannsaka gjörðir Joe Biden og sonar hans Hunter í Úkraínu. Zelensky forseti segist vona mjög mikið að hinn fyrrverandi borgarstjóri New York (Giuliani) komi til Úkraínu. Hann lofar að allar rannsóknir verði opnar og heiðarlegar. Vert er að geta þess að Zelensky sigraði forsetakosningarnar út á loforð um að uppræta spillingu í landinu. Þá segir Trump, "gott vegna þess að ég hef heyrt að þú hafðir saksóknara sem var mjög góður en að það hafi verið lokað á hann og það er virkilega ósanngjarnt". Þar næst hrósar Trump Rudy Giuliani og bætir við.. "það er mikið talað um son Biden, að Biden hafi (sem varaforseti) stöðvað rannsóknina" á spillingu í Úkraínu. Síðan segir Trump að hann hafi í hyggju að fá Giuliani og William Barr dómsmálaráðherra til að hringja í hann, og biður þar næst Zelensky um að vinna með þeim
Þetta er allt og sumt. Tilvísun í Biden-feðgana er vegna baráttu Zelensky við spillingu og alls ekki sem forsenda fyrir áframhaldandi aðstoð Bandaríkjanna við Úkraínu. Kannski var óheppilegt að minnast á Biden, en tóninn í samtalinu var gangkvæm ánægja (congenial). Þetta var lausleg þýðing á því sem leiðari Wall Street Journal sagði um útskriftina af samtalinu. Blaðið gefur málinu heitið "fizzle" eða veikburða kokhljóð - sennilega hrygla
****
Það er merkilegt að heyra forstöðumann bandaríska Demókrataflokksins á þingi setja út á að forsetinn Trump, sem nú hefur sætt rannsókn í meira en þrjú ár, nefni það við nýkjörinn þjóðarleiðtoga Úkraínu sem vegna innri klofnings er útibú Rússlands, hvort sem landinu líkar það eða ekki að hann sem kosinn var til að reyna að uppræta spillingu í Úkraínu sé þiggjandi mikilla peninga frá bandarískum skattgreiðendum. Það er sjúkt að setja út á það. Og það er enn merkilegra að heyra forstöðumann Demókrata á þingi setja út á að forsetinn Trump segi Zelensky líka að Demókratar hafi ásakað land hans um að hafa í samfloti með Rússum reynt að blanda sér í kjör hans í Bandaríkjunum, þar sem Obama og Demókratar reyndu með erlendri aðstoð að setja saman skítabombu úr óhróðri af erlendum uppruna til að berja á Trump. Og að forsetinn nefni því árið 2016, þar sem Demókratar voru við völd sem þeir notuðu meðal annars til að ná sér niðri á forsetaframbjóðandanum Trump, og einnig eftir að hann var kjörinn
Þetta þýðir að Demókratar hafa hent öllu frá sér sem hafði með "Rússa" og "Mueller rannsókn" að gera. Því er öllu hent í ruslið, enda var það rusl, því Nancy Pelosi leiðtogi Demókrata í fulltrúadeild þingsins tilkynnti þinginu áður en það sá hvað í samtalinu var, að það myndi hefja nýja rannsókn á Trump sem ógilda muni kjör hans og hann fjarlægður úr embætti. Þetta þýðir með öðrum orðum að Pelosi hyggst ganga frá Joe Biden sem framjóðanda dauðum og þar með Demókrataflokknum öllum, nú þegar hún gefur sjálfri sér og villta vinstrinu í honum lausan tauminn. Nú á allt, einu sinni enn, að velta á "nýrri rannsókn" og gott ef ekki á að troða Hillary Clinton inn í stað Biden. Hver veit hvað þessu geggjaða vinstraliði glóbalista með djúpríkið í vösunum dettur í hug næst
Pólitíska ólgan heldur áfram og magnast
Uppfært kl. 19:30
LISTINN
Listinn fer að verða ansi langur yfir það sem embættismenn (djúpríkið) hafa lagt á sig til árása á réttkjörinn forseta Bandaríkjanna í viðleitni þeirra til að bola honum frá völdum með lygum, óhróðri, svikum og valdníðslu. Þar má nefna:
Tuttugu og tvo mánuði af "rannsókn" Roberts Muellers sérstaks saksóknara sem kostaði bandaríska skattgreiðendur 22 milljónir dala á mánuði og sem út í gegn var þokukennt blaður um þokubakka, sem jafnvel saksóknarinn sjálfur vissi frá byrjun að var bakki fullur af þoku og þvaðri. Þjóðkjörinn Trump hafði ekkert aðhafst sem réttlætti þessa rannsókn. Ekkert. Enda kom ekkert út úr henni, nema ekkert
"Hvíslarinn" sem fékk New York Times til að birta "andspyrnubréfið" 2018, þar sem einhver ónafngreindur átti að vera haldinn "æðri tryggð" við réttlætið. Reyndist bull og þvaður
Skátadrengurinn Andy McCabe sem "bara neyddist" til að setja af stað bókstaflegt valdarán og njósnaherferð gagnvart þjóðkjörnum forsetanum í nafni "réttlætis". Þvaður
John Brennan (CIA), James Clapper (NSA) og Bruce Ohr (dómsmálaráðuneytinu) sem stigu fram sem handhafar "æðra réttlætis" með upplýsingar sem áttu að koma forsetanum frá völdum. Þvaður og tilraun til valdaráns
Starfsmenn Demókrataflokksins og embættismenn alríkisstjórnarinnar sem með aðstoð Fusion GPS fjármagnað var úr kosningasjóði Hillary Clinton sem láku alls kyns tulbúnum óhróðri um Trump með aðstoð New York Times, Washington Post og NPR og sem skýrð var "töfrakúlan" sem átti að taka út réttkjörinn forseta Bandaríkjanna sem þeir lýstu sem ófreskju. Þvaður
Svo kom aðförin að Brett Kavanaugh dómara sem Demókrataflokkurinn setti af stað og reyndist bara vera Moskvurétturinn frá Sovéttímanum og MeToo. Útgáfa tvö var meira að segja reynd í þar síðustu viku
Frægt fólk í kvikmyndabransanum sem afhjúpað hefur sig sem verstu óþokkar og fælt flesta saklausa aðdáendur sína svo frá að þeir geta ekki lengur hugsað sér að kaupa miða á bíósýningu með þeim. Hollywood er því hrunin og enginn nennir að horfa á Óskarsverðlaunaafhendingu lengur, miðað við áður
Svo eru allir þeir sem hafa verið reknir eða fluttir til í störfum vegna aðfarar þeirra að forsetanum eða sagt af sér, eða bíða þess að vera saksóttir og stungið inn:
James Comey forstjóri FBI
Andrew McCabe aðstoðarforstjóri FBI
Peter Strzok gagnnjósnadeild FBI
Lisa Page lögfræðingur FBI
James Rybicki starfsmannastjóri FBI
James Baker yfirlögfræðingur FBI
Mike Kortan aðstoðarupplýsingastjóri FBI
Josh Campbell sérstakur aðstoðarmaður James Comey
James Turgal aðstoðarframkvæmdastjóri BFI
Greg Bower forstjóri þingmálaskrifstofu FBI
Michael Steinbach aðstoðarframkvæmdastjóri í FBI
John Giacalone aðstoðarframkvæmdastjóri í FBI
Og nú síðast er það "Úkraínumálið" sem þegar er orðið farsi í höndum Adam Schiff formanns upplýsingaþjónustunefndar þingsins
Ekkert annað ríki veraldar en Bandaríkin væri starfhæft með svona aðfarir leikandi lausum hala innanborðs og í valdamiðju þess. Stjórnárskrá þeirra, gerð og uppbygging hennar sér fyrir því. Bandaríkin virka á öllum sviðum þó svo að stór hluti stjórnmálamanna, embættismanna og fjölmiðla virki ekki. Enda vissu stofnendur Bandaríkjanna vel frá slæmri reynslu sinni af Evrópu hversu rotin þessi fyrirbæri geta verið. Þeir byggðu því samkvæmt því, og lofuðu engu, nema því að allir hefðu jöfn tækifæri til að leita hamingjunnar
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.10.2019 kl. 01:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Föstudagur, 27. september 2019
Af hverju er pólitísk ólga?
Styrmir Gunnarsson skrifar að pólitísk ólga sé í tveimur löndum engilsaxneskra. Lönd þau sem engilsaxneskir numdu og eru því engilsaxnesk, eru Bretland, Bandaríkin, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland. Þau eru stundum kölluð Augun fimm (e. Five Eyes) því þau vinna þétt saman á sviði öryggis-, varnar-, og upplýsingamála, án þess að kasta fullveldi sínu fyrir svín eins og til dæmis Evrópusambandið
Lönd engilsaxneskra þola afar illa að fullveldi þeirra sé útvatnað. Það er að segja, þjóðir þessara landa þola ekki að sjálfsákvörðunarréttur þeirra sé skertur með til dæmis hnattvæðingu (glóbalisma) og fjölþjóðaisma (multilateralism), sem nátengdir eru heimsveldafyrirkomulagi, þ.e. imperíalisma á borð við Evrópusambandið, vegna þess að þannig fyrirkomulög grafa ávallt undan lýðræðinu, eins og sést í ESB og á Íslandi, þar sem til dæmis forysta Sjálfstæðisflokksins treður nýlendukúgun og imperíalisma ESB ofan í íslensku þjóðina án þess að hún sé spurð álits. Þetta þola lönd engilsaxa mjög illa, það er að segja, þau þola ekki að missa sjálfsstjórn fólksins yfir þjóðríkjum sínum. Augun fimm vinna því vel og ákaft saman án þess að til greina komi að skorið sé eitt hár af fullveldi þeirra og sjálfstæði. Og þau stunda ekki leiguliðakapítalisma eins og meginland Evrópu gerir, þar sem borgararnir eru mjólkaðir af þríhyrndum aðli, sem á flest, og eiga því ekki neitt, eins og til dæmis í Þýskalandi. Slíkan kapítalisma líða sjálfstæðir menn á borð við engilsaxa ekki. Þeir vilja eiga sjálfir og ráða yfir sínu sjálfir
Það er því yfir 50 ára ólga í Bretlandi vegna Evrópusambandsaðildar þess. Í Bandaríkjunum er ólga vegna 25 ára glóbalisma, þar sem 60 þúsund verksmiðjur voru fluttar til láglaunalanda og fólkið sem starfaði í þeim var skilið eitt eftir á fjóshaug alþjóðavæðingarinnar. Hrikalegur viðskiptahalli vegna ESB og Kína hefur einnig sest að í þjóðarbúi Bandaríkjanna, sem fjármagnar viðskiptahagnað þeirra. Íslendingar eru meira engilsaxneskir en þeir eru leiguliða-evrópskir. Er því pólitísk ólga á Íslandi einnig á leið með að sjóða yfir og slátra flokkum
Þegar greinandi eins og Björn Bjarnason segir að "stjórnmálaharka" hafi aukist í þessum tveimur ríkjum engilsaxa, þá þarf að hafa í huga að það er ekki harka að vilja viðhalda fullveldi og sjálfstæðinu, og þar með lýðræði í löndum sínum. Það er hins vegar harka að ætla að taka hvoru tveggja frá þjóðum, með til dæmis því að samþykkja orkupakka heimsveldis á borð við Evrópusambandið. Það er heldur ekki harka að fara fram á að úrslit þjóðaratkvæðis og forsetakosninga séu virt. Esb-kratar hafa fyrir löngu heilaþvegið sjálfa sig með meginlandsdíalektík til að passa í keng ofan í þankagang eins konar nýlendukúgunar-fyrirkomulags ókjörinna embættismanna, sem eru hin eiginlega og varanlega pólitíska stétt heimsvelda - og sem ekki er hægt að kjósa burt. Þetta er meginlands-fyrirkomulagið í Evrópu
Styrmir Gunnarsson, tekur annan og engilsaxneskan pól í hæðina. Póll Styrmis byggir á pólitískri hefð engilsaxneskra á meðan pólstjarna Björns er þýsk og díalektísk. Þetta er sá klofningur sem er að drepa Sjálfstæðisflokkinn, því hann getur ekki verið Sjálfstæðisflokkur nema að pólstjarna Styrmis sé leiðarljós hans. Þetta er vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn visnar og deyr fái hann ekki að vera Sjálfstæðisflokkur. Og það getur hann ekki verið, frekar en Bretland gat ekki verið engilsaxneskt Bretland á meðan það var í Evrópusambandinu
Sjálfstæðisbarátta Katalóníumanna hefur nú færst upp á annað og alvarlegra stig en áður. Spænska lögreglan hefur handtekið Katalóníumenn sem grunaðir eru um að hafa verið að smíða sprengur og prófa þær. Það er nýtt á þeim vígstöðvum. Kannski stigmögnun
Fyrri færsla
Kjósendur henta ekki Sjálfstæðisflokknum. Trump og Johnson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Miðvikudagur, 25. september 2019
Kjósendur henta ekki Sjálfstæðisflokknum. Trump og Johnson
HÉR HEIMA
Leynifélag forystu og þingmanna Sjálfstæðisflokksins hefur slegið því föstu síðastliðin 10 ár að þeir sem hafa verið kjósendur flokksins á því tímabili, henti ekki leynifélaginu. Félagið hefur því náð 18,3 prósentu fylgi Alþýðubandalagsins 1974 núna
Það var mikið glapræði að velja bankamann bakaradreng sem formann flokksins í kjölfar bankahruns. Versta týpan af öllum til þeirra starfa sem biðu. Hann var og er ekki leiðtogi flokksins. Flokkurinn hefur því engan leiðtoga haft nema bókhaldara í 10 ár. Og eins og kunnugt er sitja bókhaldarar í (reykfylltum?) bakherbergjum og telja og reikna það sem aðrir hafa skapað. En svo þegar það sem aðrir hafa skapað er búið, þá er kjörkassinn tómur, eins og núna. Þannig er það að vera ópoppúlisti. Þeim líkar illa við kjósendur. Það sjáum best á ESB og öllu sem tengist ESB. Því imperíal-fyrirbæri og útfararstofnun lýðræðis líkar auðvitað ekki við fyrirbærið kjósendur. Það er leynifélag
Síðasti formaður flokksins sem var leiðtogi hans var Davíð Oddsson. Ef að Davíð hefði ekki stútað Þorsteini Pálssyni hefði flokkurinn verið þrisvar sinnum minni en hann er í dag. Þorsteinn, eins og Bjarni, var og er nefnilega ekki sjálfstæðismaður
Geir Hallgrímsson var heldur ekki leiðtogi. Hann var vænn hjálparlaus bókari bakaradrengur. Síðasti leiðtogi Sjálfstæðisflokksins á undan Davíð Oddssyni var Ólafur Thors. Án leiðtogs Ólafs og Davíðs hefði Bjarni bókari Ben ekki haft neinn Sjálfstæðisflokk til að hýsa leynifélag sitt í í dag
Þannig er nú það
VESTAN VIÐ VESTUR OG VESTAN MEGINLANDS TAPARANNA
Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna og leiðtogi hins vestræna heims hélt ræðu sína í hinni bandarísku samkundubyggingu Sameinuðu þjóðanna í Bandaríkjunum. Enginn myndi taka hið minnsta mark á þeirri stofnun væri hún staðsett í Evrópusambandinu, Kína, Rússlandi eða Afríku. Þar lagði hann á ný áherslu á að allt gott í þessum heimi hefst með fullveldi og sjálfstæði ríkja heima hjá þeim sjálfum. Og þar sem stofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki og getur ekkert heimili haft til að virka í, nema í Bandaríkjunum, þá er sú stofnun enn á lífi í dag. Annars væri hún lík í götu við Genfarvatn. Þannig eru þessi svo kölluðu "alþjóðasamfélög". Þau eru ekki til í alvörunni. Evrópa kom svo skríðandi til Trumps síðustu sólarhringana til að játa sig sigraða og hjálparlausa í Íranmálinu, um kjarnorkuvopnin sem útópísk hún ætlaði að líða því að fá
Demókratar sáu til þess í gær að kosningabaráttan næstu 14 mánuðina muni snúast um áframhaldandi ofsóknir þeirra á hendur forsetaefni Repúblikanaflokksins, þannig að þeirra eigin skilaboð til kjósenda munu ekki komast í gegn. Enda hafa þeir engin skilaboð önnur en stjórnleysi, orkupakk og vesaldóm, þar sem baráttan snýst um það hvort að þeir sjálfir lifi yfirhöfuð átökin við sjálfa sig af. En þau snúast um vinstrið gegn villta skríls-vinstrinu í því sundurtætta rifrildi sem eftir er af flokknum
Boris Johnson hefur bresku þjóðina með sér en þingið á móti sér, öfugt við stöðu Sjálfstæðisflokksins í höndum bókara hér heima, sem hefur þingið með sér, en ekki kjósendur. Og eins og flestir vita þá er það sem upp úr kjörkössunum kemur og sem bókhaldarar telja, það sem öllu máli skiptir. Ekki sjálf talningin, heldur það sem talið er. Evrópusambandið má og getur ekki samið við þjóðþing landa. Það getur einungis samið við ríkisstjórnir. Og þar hefur Boris tekist að gera ríkisstjórnina óvirka þannig að enginn stjórn er til staðar til að semja við. Það tókst. Bretland yfirgefur því líklega Evrópusambandið þann 31. október, eins og lög landsins gera ráð fyrir. Þarna gengur allt samkvæmt áætlun útgönguteymis Johnsons, sem trónir sem turn í könnunum meðal kjósenda
Förum vestur. Þar er líf. Evrópa er dauð. Hún er komin í gamla afturgöngugírinn á ný. Leynifélag Evrópusambandsins sá fyrir því
Ræða Donalds J. Trump í gær
Fyrri færsla
xD: Að skemmdaraðgerðum loknum
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 23. september 2019
xD: Að skemmdaraðgerðum loknum
Nú þegar forysta og þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lokið sér af í skemmdaraðgerðum í bili og tætt fullveldið af íslenska lýðveldinu í orkumálum, þá er komið að uppskerunni sem mælist 18,3 prósentur. En það þýðir að 81,7 prósent kjósenda geta ekki hugsað sér að kjósa flokk með vitfirrtu, ósjálfbjarga og huglausu fólki við stjórnvölinn
Geðhjálp hlýtur að gera Valhöll tilboð um að hún fái magnafslátt á geðklofanum sem borinn er gratís á öll borð í Titanic-bunker forystunnar, sem er af aðalsættum. Kannski að ísjaki láti sjá sig, því hver veit hvar næstu tækifæri bíða til enn frekari skemmdaraðgerða. Bóka má að á þau öll mun hin huglausa og raðbilaða Plebbahöll hoppa
Fyrri færsla
Björn Bjarna ekki í lagi - ræðst á landvarnirnar
Fylgi Sjálfstæðisflokksins 18,3% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 22. september 2019
Björn Bjarna ekki í lagi - ræðst á landvarnirnar
EINKENNIN
Það sem einkennir sanna esb-krata og heimsveldissinna Evrópusambandsins er það, að hjá þeim er það ávallt frumskylduverkefni að ráðast að þeim sem verja land sitt, þjóðina og frelsi hennar, og hafa afl, réttvísi og burði til að verja dýrmætt þjóðfrelsið. Og það sem meira er, það sem einkennir tímana núna og síðastliðin 25 ár er það, að ráðist ER viðstöðulaust á þau ríki sem verja vilja hagsmuni sína, viðhalda fullveldinu og hlúa að sjálfsákvörðunarrétti þjóðar
Finnst virkilega einhverjum sjálfstæðismanni þetta sniðugt; þ.e. að ráðist sé þannig viðstöðulaust að fullveldi og þjóðfrelsinu? Finnst þeim sniðugt að viðstöðulaust sé verið að reyna að hafa fullveldið og sjálfsákvörðunarréttinn af þjóðum, og nú síðast hér heima með orkusambandspökkum Evrópusambandsins. Finnist þeim það, þá geta þeir að minnsta kosti ekki kallað sig sjálfstæðismenn. Aðeins ees-ofsakrötum og esb-elítum finnst þetta sniðugt mál. Þeir eru auðvitað ekki í lagi
Davíð Oddsson er hins vegar í lagi og hefur alltaf með yfirburðum verið í mjög svo góðu lagi. Hann er hárréttu megin í stuttu lífi réttlætis og þjóðfrelsis á Vesturlöndum, þegar horft er til nær tveggja árþúsunda ofríkis heimsvelda mannkynssögunnar yfir sama stað, enda einn mikilhæfasti, dáðasti og öflugasti stjórnmálamaður Íslandssögunnar. ESB-kratar eru hins vegar röngu megin við rétt. Væl gærdagsins fer Birni Bjarna því ekki vel. Allir sem til þekkja vita að ekkert hefur komið út úr hinum svo kallaða "innri markaði" Evrópusambandsins [stuðpúðasvæði hins ofurútflutningsháða Þýskalands, e. buffer-zone] fram yfir það að vera ekki með í honum. Og í mörgum tilfellum hefur aðildin að honum haft neikvæð áhrif. Af hverju ætti þá að trúa EES-krata fyrir sjálfsrannsókn á honum. Sú spurning á mjög svo rétt á sér. Einhver sem man eftir Theresu May, röngu manneskjunni til rangra verka. Það fór ekki vel
TIL HÖFUÐS ÞJÓÐFRELSI ÞJÓÐRÍKJA
Evrópusambandið er ofboðslega slæm hugmynd fyrir Evrópu, eins og sést mjög svo vel í dag. Það hefur hent álfunni úr því jafnvægi sem dýru verði var keypt. Og það sem meira er, það hefur hent löndum álfunnar úr jafnvægi að innan, og innbyrðis við hvort annað. Með öðrum orðum, þá hefur Evrópusambands-hugmyndinni tekist að ríða álfunni meira en hálfa leið til heljar á ný. Enn ein útópía álfunnar er komin á fætur og kappklædd. Heldur virkilega einhver ees-krati að þetta geti gengið svona mikið lengur. Það gerir það auðvitað ekki, nema með skelfilegum afleiðingum. Verð þessarar mjög svo slæmu hugmyndar er þegar orðið allt allt of hátt fyrir okkur sjálf og flestar þjóðir Evrópu
Það er frumskylda hinna þjóðkjörnu að verja þjóðfrelsið og sjálfsákvörðunarrétt íslensku þjóðarinnar. Frændur Björns, Bjarni og Benedikt létu hjá líða að verja Ísland, þjóðina, þjóðfrelsið og sjálfsákvörðunarrétt hennar, sem barist var hart fyrir öldum saman. Það hafa þeir látið hjá líða í meira en áratug, enda hugsa þeir fyrst og fremst um að halda Íslandi föstu í ánauð ees-samnings og meira að segja einnig að þyngja ánauðarok Evrópusambandsins yfir Íslandi sem allra mest. Það ok stækkar bara og þyngist með dyggri aðstoð þeirra. Benedikt er ekki sjálfstæðismaður og Bjarni frændi er það ekki heldur hafa sennilega aldrei verið það og Björn varla lengur. Eiga þeir því best heima í leynifélagi, og hið sama gildir um fleiri, sem hverfa vilja á vit afturhaldsaflanna sem Jón Sigurðsson barðist gegn áratugum saman; á vit nýlendu- og imperíal- heimsvelda
Þorsteinn Pálsson: ekki sjálfstæðismaður
Þorgerður Katrín: ekki sjálfstæðismaður
Benedikt Jóhannesson: ekki sjálfstæðismaður
Bjarni Benediktsson: ekki sjálfstæðismaður
Björn Bjarnason: ees-krati
Fleiri leynifélagsmenn.. plús hálft bé Blöndal
Heldur kannski einhver að flokkur með þessu fólki í sé á réttri leið. Ég bara spyr. Nei að sjálfsögðu ekki. Þeir eru komnir hálfa leið í ruslið, enda stjórnað af þessu fólki
Pólverjum og Ungverjum skal af ESB refsað fyrir að vilja verja þjóðir sínar og lönd. Grikkjum skal af ESB refsað fyrir að vilja verja sig og sína þjóð. Ítölum skal refsað af ESB fyrir að reyna að sinna frumskyldum sínum við kjósendur. Bretlandi skal refsað hart af ESB fyrir að vilja huga að sínum eigin þjóðarhag og fyrir að hafa kosið að verja sjálfstæði landsins. Og refsa átti Íslandi af ESB fyrir að verjast ees-knúnu bankahruni. Þar naut Evrópusambandið stuðnings Bjarna og Benedikts. Og viti menn, þrjú bé klúbburinn veifaði sama gamla ESB-refsivendinum á ný í orkupakkamálinu, enda í góðri æfingu og kannski það eina sem þeir kunna úr þessu
ÞÁ SKIPTIR ÞJÓÐERNIÐ ALLT Í EINU ÖLLU MÁLI
Þegar að áföllum kemur í hinum nú hálf-svo sovéska þjóðníðingaklúbbi Evrópusambandsins, þá er reglan sú að byrðum áfalla skal skellt á herðar þeirra þjóða sem heita vissum röngum nöfnum. Þær sem heita hins vegar réttum nöfnum, þær skulu vera Yfir-Evrópubúar sem nota axlir annarra til að halda sér á floti. Ekkert hefur breyst, enda er þetta sjálfur stofntilgangur Evrópusambandsins. Að viðhalda veldi þeirra sem réttilega höfðu tapað því og ættu aldrei nokkru sinni að komast yfir það aftur
Allir sem halda vilja sjálfsákvörðunarrétti þjóða á lofti eru óvinir Evrópusambands sem elítur allra landa styðja og dýrka eins og sést hér heima, nú síðast í orkupakkamálinu, þar sem Bjarni, Björn og Benedikt runnu saman í eitt og brenndu fullveldi Íslands í orkumálum niður. Þeir gerðu árás á fullveldi Íslands, hvorki meira né minna
Allir vissu hverju ICEsave-menn vildu henda á herðar íslensku þjóðarinnar; þ.e. þjóðsvikum. Þar voru Bjarni og Benedikt að verki. Sama gildir um þriðja orkupakkann, sem Björn, Bjarni og Benedikt eru allir með ást sína á, algerlega röngu megin við rétt
- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður
Fyrri færsla
Loftárás klerkaveldis Írans á orku - Hong Kong
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Miðvikudagur, 18. september 2019
Loftárás klerkaveldis Írans á orku - Hong Kong
ÍRAN OG ORKAN
Evrópa sem á mikið undir olíu frá Miðausturlöndum komið, er að sjálfsögðu að undirbúa svar við loftárásum Írans á olíuverk Sádi-Arabíu. Eða heldur kannski einhver strákústkjaftandi esb-kratinn það? Nei, Evrópa er háð velvilja Bandaríkjanna í þeim efnum
Rússneski Pútín-kommizarinn sem rétt í þessu kominn er með sitt eigið litla Tjernóbyl á sínar eigin hendur, nuddar nú lófunum saman vegna tilvonandi verðhækkana á olíu, en sem hins vegar munu ekki koma. Bandaríkin, sem orðin eru yfirþyrmandi stærsti olíuframleiðandi heimsins, hafa fyllt allar allar þær holur sem OPEC-ríkin og Rússland hafa reynt að mynda með kartel-samráði sínu til að halda verðinu uppi. Og það sem meira er; það fall í framleiðslu sem verður vegna árásarinnar um helgina, kemur einungis í stað þeirrar takmörkunar sem OPEC-ríkin með Rússland í bandi höfðu á prjónunum
Vestur-Texas Premian-menn höfðu rétt í þessu sökkt fjögur þúsund brunnum ofan í sökkul svæðisins þar vestra. Aðeins var beðið eftir startskotinu og það kom um helgina. Og nú þarf ekki lengur að bíða og markaðsbúa við flöskuhálsa á leið þeirrar olíu á markað, því þeir innviðir eru nú þegar komnir í gagnið. WTI og Brent verðin munu því fylgjast að. Flöskuhálsaverðmunurinn kemur ekki aftur. Þessi staðreynd hefur nú þegar rifið tennurnar úr þeirri 20 prósent árásar-verðhækkun sem varð um helgina og á mánudag. Hún er komin niður í 4-5 dali. Og olíuverð núna er því að nálgast það lægsta sem verið hefur í sögu mannkyns, miðað við kaupmátt. Aðeins árið 1998, þar sem norski forsætisráðherrann var lagður-inn með taugaáfall, er á svipuðu róli, eða um það bil 1,6 til 1,8 prósent af ráðstöfunartekjum bandarískra heimila, sem eru ekki skattpínd til helvítis af hinu opinbera sogröri sósíalismans ofan í næstum hvað sem er, eins og hér heima hjá EES-krataflokki xD og komma. Það þarf 110 dala verð á tunnuna til éta upp þrjú prósent af ráðstöfunartekjum bandarískra heimila. Verið á skrifandi stund er 58,9 dalir fatið, miðað við 54,8 fyrir helgi
Land hinna frjálsu í vestri mun aldrei ganga í EvrAsíu-knúið verð-kartel. Heimilin ættu því að hneigja sig í vestur og fara með MAGA-bæn fyrir þjóðfrelsinu. Mín skoðun er sú að lítið verði aðhafst, eins og er, til að svara árás klerkaveldis Írans, sem er sú þriðja í röðinni síðan í maí, nema þá kannski í Líbanon, þar sem hægt væri að þurrka Hezbollah þeirra út núna. Hafnbann á Íran er of flókið á þessum stað og huga verður að því eldfima ástandi sem nú ríkir milli tveggja helstu hreyfinga hins íslamíska heims, þar sem tvö bandalög hafa myndast gegn hvort öðru. Þar sem Sunnimúslímar óttast Íran meira en allt annað og eru í óformlegu bandalagi með Ísraelsmönnum og Bandaríkjunum, gegn Íran og gervihnöttum þess í Miðausturlöndum. Lengra en á síður fölnandi fjölmiðla nær meint andúð meðal múslíma á Ísraelsríki ekki. Loftárásin sýnir glöggt örvæntingu klerkaveldis Írans, og að efnahagsaðgerðir Bandaríkjanna bíta vel
Skyldi eitthvert viðskiptaútópískt viðrini í forystu og þingflokki Sjálfstæðisflokksins halda að einhvern tíma í sögu mannkyns muni ríkja frjáls verðmyndun í lífsnauðsynlegum orkugeira jarðar, þá get ég upplýst viðkomandi um að hann standi uppréttur í dag vegna þess að svo er ekki. Þar eru það aðrir kraftar en klofsjúkir markaðs-kratar á borð við þá sjálfa sem ráða ferðinni. Kraftar sem þú annað hvort stendur með eða á móti. Sért þú með, en ekki á móti, þeim kröftum sem tryggja þér frelsi í þeim efnum, þá kýst þú ekki orkusjálfstæðið undan þjóð þinni. Svo einfalt er það. Sama lögmál gildir núna og á 700 ára tímabili nýlendukúgunar erlends valds yfir Íslendingum, með aðstoð innlendra þjóðsvikara. Annað hvort stendur þú með Íslandi eða ekki. Allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, nema einn, kusu að standa ekki með nýstofnuðu lýðveldi okkar Íslendinga. Þeir eiga hina mestu fyrirlitningu þjóðarinnar verðskuldaða. Þriðja hönd alræðisaflanna hefur á þeim hreðjatak
HONG KONG
Kínverski Kommúnistaflokkurinn sem Heiðar Már tengdasonur Björns Bjarnasonar treystir svo vel, hefur skipað fyrirtækjum sínum að auka við sig hlutdeild og koma sér valdasterkara fyrir í fyrirtækjum Hong Kong til þess þannig að ná alræðisvöldum yfir sjálfsstjórnarhéraðinu. Fara á þriðju-handar fyrirtækjaleiðina til að stúta freslinu. Það sama gildir kannski um fyrirtæki Heiðars sem starfar út frá Sviss. Hefðu Bandaríkin ekki bannað sölu fyrirtækja Bandamanna til Sovétríkjanna, þá hefðu þau sennilega ekki fallið. Forhertur skógur af gervikapítalistum á Vesturlöndum hefði haldið þeim á lífi og í söðlinum sem allsherjar kúgara af mafíusort. En það er það sem Kína er: illkynja mafíusort valdaklíku í öllu sínu versta veldi
Og ég sem hélt að fábjánaskapur Heiðars olíuleitarmanns úti í 130 dala break-even ballarhafi með beint útsýni yfir komandi hrun olíuverðs, væri næg sönnun þess að ekkert, ekki einu sinni eitt orð, er að marka sem þessi maður segir, þegar hann eins og aðrir íslenskir óligarkar lendir hér heima til að mjólka landann. Það leiðinlega við marga íslenska auðmenn er að þeir, einhverra hluta vegna, breytast of oft í stórkallalega hrossabresti af oligarkakyni, landi sínu til ógagns og óþurftar
Hið opinbera stendur nú í því að leggja mjaltakerfi í formi ljósleiðara um landið til handa þessum ósjálfbjarga ólígörkum, svo að getulausir þeir geti án eigin áhættutöku mjólkað landann. Pilsfaldakapítalismi af óligarakyni er hér á ferðinni, einu sinni enn
Fyrri færsla
Hringurinn þrengist um Valhöll
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 16. september 2019
Hringurinn þrengist um Valhöll
Sérstakir viðskiptaútópískir uppgjafarpólitíkusar Sjálfstæðisflokksins hafa undirgengist tvö yfirríki á síðustu 10 árum:
1. Hreyfingu nýlendusinna Evrópusambandsins og
2. Hreyfingu sovétskömmtunarstjórnar lofthjúpsmanna
Báðar hreyfingar hafa alræðislegt stjórnarfar sem efsta og eina atriði á málefnalistanum. Hreyfing númer eitt er þegar búin að leggja undir sig stóran hluta fullveldis og sjálfstæðs Evrópuríkja, og berst gegn því að nokkurt þeirra komst lifandi úr gúlaginu. Þar dúsa þau og bíða þess að verða sótt sem nytsamt byssufóður Brusselveldisins þegar því hentar, og langar til dæmis í orkukerfi þeirra, náttúruauðlindir, seðlabanka, löggjöf, fiskimið, stjórnarskrár og stjórnarráð
Óendanlegir nýsovéskir- og nýnasistískir möguleikar hreyfingar númer tvö eru að renna upp fyrir vinstrimönnum þessa dagana. Helst ber þar að nefna útrýmingu kapítalisma, öndunarmælar, mannakjötsát, nasísk-kínversk stjórnun fæðinga með aðstoð barna- og fósturdrápa. Reiðhjólaveldi Kristjaníu Reykjavíkurborgar er þegar orðin maóísk stjórnstöð þessa fólks. Hvað annað. Gamla gleðigangan til helvítis vinstrimanna hefst að sjálfsögðu þaðan, og hún liggur ekki til Tipperary, því þá hæfist hún héðan
Hégómaritaraklúbbi hins tannlausa Sjálfstæðisflokks þykir hins vegar að sér standi mest ógn af Miðflokksmönnum þjóðfrelsisins, því bara tilvist þess flokks, ein og sér, afhjúpar Sjálfstæðisflokkinn sem ósjálfbjarga og ómálga fyrirbæri skríðandi um í þeirri Litlu-kró sem nýlendusinnar allra annarra flokka hafa búið honum. Sjáðu mamma, þessir menn ganga ekki með hækjur. Get ég ekki orðið svona? Nei væna mín þú verður kjurr hér, segir alræðismóðir allra annarra flokka, og klappar hégilju Valhallar á sköllóttan kollinn, kitlar báða hégóma hennar, til að kalla fram ískalt bros, og sjálfgreiðir sér því næst enn hærri laun úr ríkiskassanum, sem amma bjó til og lagði afrakstur fullveldisins inn. Þú verður kjurr hér
Og þar er sú höll og verður. Engum til gagns - nema nýlendusinnum og sovétskömmtunarstjórn lofthjúpsmanna, sem mata hana á málefnum
Fyrri færsla
Segir fylgi Sjálfstæðisflokksins óásættanlegt [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Laugardagur, 14. september 2019
Segir fylgi Sjálfstæðisflokksins óásættanlegt [u]
Það eruð þið þingmenn flokksins sem eruð búnir að gera Sjálfstæðisflokkinn að óásættanlegum stjórnmálaflokki. Það er það eina sem er óásættanlegt. Þið þurfið öll, nema eitt, að fara frá ef flokkurinn á ekki að liðast í sundur undan ykkur
Þetta er hins vegar mjög svo ásættanlegt fyrir pólitíska andstæðinga flokksins. Enda var það sannarlega ætlun ykkar, að hafa okkur kjósendur flokksins að fíflum
Ef að ástandið eins og það er í þeim hópi stuðningsmanna flokksins sem ég þekki er svipað um allt land, þá hafið þið sannarlega uppskorið eins og þið hafið sáð. Þið sáðuð eitri. Eitur og fyrirlitningu munið þið því uppskera
Nú þegar þagnarbindindi ykkar er rofið eftir samsæri ykkar gegn okkur kjósendum flokksins það eina sem virðist sameina krafta ykkar þá eru þessi ummæli um ástand flokksins meðal kjósenda, eins og að hlusta á fullorðið fólk sem gengið er í andlegan barndóm. Þess utan er 180-gráðu-firrtur ættarformaðurinn nýbúinn að segja að fylgi flokksins skipti hann ekki máli. Hér má hlusta á 180-gráðu ræðu hans á Alþingi fyrir stuttu (sjúkt)
Uppfært kl. 12
Nú bíða flokksmenn og íslenska þjóðin spennt eftir því að þingmenn Sjálfstæðisflokksins og þar með svo kölluð "forysta flokksins" takið eftir að hér geri ég ráð fyrir að hún sé enn sem komið er þjóðkjörin birti og sýni þjóðinni loksins EES-hræðslugrýlukertin sem ollu því að fullveldi Íslands í raforkumálum var varpað fyrir róða og hent sem innágreiðslum inn í skápana í Brussel: þ.e. að EES-samningurinn hefði fallið saman væri hann notaður eins og til var ætlast
Við bíðum öll spennt eftir þessum sönnunargögnum. Það ætti að vera lítið mál fyrir "forystuna" að reiða þau opinberlega fram, þannig að þjóðin sjái við hvaða ofurefli forysta Sjálfstæðisflokksins svokallaða var að glíma. Nema kannski að þau bráðni vegna eðlislægs óþols þeirra gagnvart dagsljósi
Við bíðum spennt..
Fyrri færsla
Veðurfræðingar: nýtt framhald af seðlabönkum?
Segir fylgi Sjálfstæðisflokksins óásættanlegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.9.2019 kl. 15:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Föstudagur, 13. september 2019
Veðurfræðingar: nýtt framhald af seðlabönkum?
Mynd, Wall Street Journal: Engar spár ECB-sogrörsseðlabanka Þýskalands um eðlilega hlýnun verðlags hafa staðist í meira en átta ár. Bara alls engar. Svört lína er hitastig verðbreytinga. Grænar línur eru spár ECB. Rauð lína er nýjasta spá þessa stórfurðulega seðlabanka. Og eins og ESB-menn eiga að vita, átti þessi ECB-seðlabanki og myntin hans evra, að vera "reglubyggð mynt" í "reglubyggðu hagkerfi" e. "rule based currency in a rule based economy" => þ.e. alþjóðasamfélagið (ekki til). Subbuskap hins lýðræðislega stjórnarfars og hins óreglulega kapítalisma hagkerfa Engilsaxneskra, skyldi loksins sparkað út úr Evrópu fyrir fullt og allt. Þannig hljómaði stofnsáttmálinn um evruna
****
Til eru ágætis seðlabankamenn og til eru ágætis veðurfræðingar og sumir miklu betri en aðrir. Þeir (flestir) eiga það þó sameiginlegt að hafa lært fræði sín í háskólum þeim sem byggja á grunni "guðlegra radda opinberunar". Svo merkilegt sem það kann að hljóma eiga margir stofnfeður heimspekinnar og frumspeki vísindanna það sameignlegt að hafa heyrt "vísindi" sín koma af himnum ofan sem opinberun. Þannig sagðist forfaðir þess sem menn Upplýsingarinnar dýrka meira en allt annað, hafa heyrt kenningar sínar koma sem opinberun af himnum ofan. Það var gríski heimspekingurinn Parmenídes, sem talinn er forfaðir frumspeki og það sama gerði landi hans Sókrates. En sökum illvilja út í Biblíuna og sérstaklega Gamla testamentið tóku menn Upplýsingarinnar hinar guðlegu raddir heimspekinnar og kölluðu hana rökhyggju til þess að gera lítið úr því sem spámenn á borð við Jeremía Hilkíason höfðu heyrt koma af sínum himnum ofan. Upplýsingin átti þess vegna afar erfitt með að þola Gamla testamentið og Kant sagði að það mætti þurrka það út úr sögunni, ásamt öllu því sem Hebreska heimspekin stóð fyrir. Hvorki meira né minna; þurrka út sjálfa hornsteina Vesturlanda. Menntamálaráðherra Prússlands, Wilhelm von Humboldt, var á sömu skoðun eins og sést á skrifum hans, þar sem "..the study of Greek history is not as it is with the history of other peoples.. og bang, æðri kynstofn ofurmenna er fæddur, eða að minnsta kosti þungaður:
"Knowledge of the Greeks is not simply pleasing, useful, and necessary to us--it is only in them that we find the ideal which we ourselves would like to be and to bring forth. Although every other period of history enriches us with human wisdom and human experience, we acquire from the contemplation of the Greeks something more than the earthly, something even almost divine." - leturbreyting GR
Arfleið Prússans Humboldts varð svo þeir háskólar sem mennta seðlabankastjóra og veðurfræðinga í dag. En eins og við vitum þá voru það einmitt menntamenn á borð við hann sem stuttu síðar á 19. öld gátu af sér nasismann, sem viss herr Adolf Hitler tók til sín og framkvæmdi með glans í byrjun næstu aldar. Og þar sem mannakjötsát sem (endanleg?) lausn er þegar orðið hluti af nýnasistahreyfingu umhverfis- og lofthitunarsinna, þá þarf ekki einu sinni forfaðir marxismans, Hegel -sem var sömu skoðunar og bæði Kant (forfaðir ESB) og Humboldt- til að geta sér til um framhaldið
Hinir Engilsaxnesku eru hins vegar öðruvísi þegar að toppstykkinu the Top Gun á herðum mannslíkamans kemur. Þeir hentu aldrei Gamla testamentinu út, eins og sést. Sem betur fer. Hjá þeim eru Gyðingar nauðsyn ef menn vilja lifa pólitískar plágur Evrópu af, og þar með talin eru geggjunarfræði loftslags- og umhverfismála-nasisma nútímans, - hrærð út í gamla góða sovétið. Hitler var nefnilega fyrst og fremst sósíalisti. Hann þjóðnýtti stjórnmálin og fólkið, það varð einkaeign hugsjóna, þar sem hugsjónin átti fólkið. Það sama gildir um ESB í dag. Mikið óskaplega lítilfjörlegt og máttlaust er stórveldi Kaþólsku kirkjunnar á miðöldum orðið miðað við Heiðnikirkjuveldi háskólanna í dag
Liggja því "the honourable member for the 18th century" á borð við Jacob Rees-Mogg ekki á lausu í dag
Fyrri færsla
Valkvæð túlkun á orðum mínum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 11. september 2019
Styrkur Asíu
1. Hong Kong. Er að springa í loft upp, og hvers líf er í höndum Bandaríkjanna, efnahagslega og tilvistarlega, og peningamálalega alveg
2. Kína. Einræðisherradæmið Kína er með þúsund milljón fátælinga í örbyrgð og sem geta ekki beðið eftir því að kála hinum sem hafa það tvöfalt betra en hryllilegt. Hálfnuð bylting kommúnista sem aldrei ætlar að ljúka. Fullkomlega misheppnaður pólitískur atburður í mannkynssögunni eins og í sovét. Pólitísk framtíð landsins kolsvört. Er krónískt háð útflutningi. Yfirþyrmandi stærsti viðskipavinur þess eru Bandaríkin. Kína er háð innflutningi á olíu. Vinnuafl þess er við það að byrja að minnka hratt. Enginn vil flytja til Kína. Enginn, bara alls enginn. Raun-efnahasstærð Kína er um einn þriðji af því sem sagt er, þegar froðunni verður sópað burt af efnahagslíkhúsum einræðisherradæmisins. Þarna gengur allt svo ofboðslega vel að það þurfti að fjórfalda einræðisherravöld forsetans í einum grænum hvelli. Fjórfalda þau. Vestrænir (fjöl)miðlar túlka það sem stórt merki um velgengni. Þeir muna nefnilega eftir herra Hitler, hann komst til valda vegna þess að það gekk svo rosalega vel í Þýskalandi, ekki satt
3. Taívan. Meiri útflutningur. Líf landsins algjörlega háð velvilja Bandaríkjanna
4. Japan. Átti samkvæmt herra Öllum að taka fram úr Bandaríkjunum og var 16 prósent af heimshagkerfinu 1987. En er í dag aðeins sex prósent. Annað eins hrun hefur ekki sést nema í stórstyrjöld. Lifir á útflutningi, einkum til Bandaríkjanna, sem einnig sjá um varnir þess að mestu
5. Indónesía. Já einmitt það. Er sennilega á leið í útflutning til Úranusar
6. Víetnam. Eins og restin af Asíu. Á leið inn í útflutningsmódel fátækra Asíuríkja. Hvað annað
7. Suður Kórea. Ókei, já ríkt, en samt algerlega útflutningsháð
8. Norður-Kórea. Ja hérna. Kannski endar það undir vernd Bandaríkjanna. Hver veit. Þá geta þeir byrjað að "flytja út" - til Úranusar
Enginn á Vesturlöndum hlustar á svo mikið sem einn tón af tónlist álfunnar. Jú tvo, ding dong í dyrabjöllum
En hver veit nema þetta takist á meðan Ísland og Evrópa berjast við að minnka lofttegund sem er 0,04 prósent af gufuhvolfinu, um eitthvað eitthvað. Við erum líka með okkar Kína. Það heitir Þýskaland
En kannski að Indland gæti orðið spennandi með sínar hundrað ríkisstjórnir og tvö hundruð tungumál. Haldið þið það ekki
How about it frú.. kva.. ja hérna.. verð að fletta þessu upp.. hvað heitir hún nú aftur.. arftaki Merkels.. jú hérna kemur það.. já hérna er það, hún heitir Annegret Kramp Karrenbauer! Hvernig líst þér á þetta, frú AKK? Má bjóða þér að lesa Mein Kína-export-kampf
Sovétríkin voru hættulegust á meðan þau voru að hrynja fyrir fullt og allt. Árið 1983 var sennilega eldfimast
Fyrri færsla
Frjálsir markaðir aðeins í þjóðfresli þjóðríkja
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.9.2019 kl. 00:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 13
- Sl. sólarhring: 71
- Sl. viku: 429
- Frá upphafi: 1389049
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 245
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008