Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2017
Þriðjudagur, 14. febrúar 2017
Evrópusambandið verður að tryggja að Bretland skaddist
Evrópusambandið verður að tryggja að Bretland sé verr sett þegar það yfirgefur sambandið, allt annað er uppgjafaryfirlýsing að hálfu Evrópusambandsins
"EU må sikre, at Storbritannien er i en dårligere situation, når landet forlader unionen, ellers ville det være en falliterklæring, siger Østrigs kansler"
Þetta sagði kanslari Austurríkis, Christian Kern, við blaðamenn í Brussel í gær. Meðlimir í klúbb eiga að hafa það betra en þeir sem eru ekki meðlimir í honum. Bretland verður að gera sér grein fyrir því að ekkert annað en þetta getur komið út úr brottför landsins úr Evrópusambandinu, sagði kanslarinn
Þá vitum við það. Þá vitum við hver hinn sameiginlegi nefnari er sem skilgreinir Evrópusambandið. Sá lægsti. Þeir sem yfirgefa fangabúðirnar lifandi, þá verður að limlesta. ESB er sem sagt gúlag
Krækjur: Berlingske - Independent - Bloomberg, þar má einnig horfa á Dombrovskis trúð ESB-gúlagsins blaðra á gúlögsku. Að þetta ESB stóð skuli líðast enn, er til marks um það sem í vændum er fyrir Evrópu. Óveðursskýin hrannast upp yfir meginlandi álfunnar
- Berlingske 14. febrúar 2017 -
Østrigs kansler: EU må sikre, at Storbritannien bliver dårligere stillet af Brexit:
EU må sikre, at Storbritannien er i en dårligere situation, når landet forlader unionen, ellers ville det være en "falliterklæring", siger Østrigs kansler. Medlemmer af en klub skal have bedre vilkår end dem, der ikke er medlem af klubben - vores britiske venner skal være opmærksomme på, at der ikke kan komme andet udfald af disse forhandlinger, sagde Christian Kern til reportere i Bruxelles mandag. "Alt andet ville være en falliterklæring af Europa."
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 11. febrúar 2017
Eitt-Kína - eða hvað?
Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Xi Jinping aðalritari kínverska kommúnistaflokksins og forseti alþýðulýðveldis Kína, ræddu saman í síma að kvöldi fimmtudags. Í fréttatilkynningu frá Hvíta húsinu segir að Trump hafi að beiðni kínverska forsetans samþykkt að viðurkenna hans Kína sem hið eina rétta Kína. En Taívan er ef til vill lýðræðislega séð enn hið eina rétta Kína. Það fer eftir því hvernig menn líta á það mál (með "alternative facts") að rétt niðurstaða fengist fyrir kviðdómi. Ákefð kínverska einræðisherrans var því mikil að fá diplómatískt rétta staðfestingu á að Kínastefna Nixons stæði enn
En hvað um það. Donald J. Trump minntist hins vegar ekkert á það við kínverska aðalritarann að í fyrsta skiptið í sögunni eru hergagnamál og varnarmál Taívan komin á fjárlög í bandaríska þinginu, þ.e. á þau fjárlög sem ákveða fjármál bandaríska varnarmálaráðuneytisins 2017
Í Hvíta húsinu eru menn ekki sammála um stefnuna gagnvart Kína. Forsetinn Trump, þjóðaröryggismálaráðgjafi hans Michael T. Flynn og varnarmálaráðherrann James Mattis, hafa þrjár skoðanir á málinu og hafa sennilega talið best að hafa það svo, fyrst um sinn. Á meðan er Eitt-Kína stefnan látin standa en Mattis látinn um að vinna sitt þögla bolverk við að byggja upp gerræðislega yfirþyrmandi hernaðarmátt og bandalög í túnfæti Kína, og slíkt tekur sinn tíma. Sá máttur verður svo látinn tala sínu þögla máli gagnvart Kína, Norður-Kóreu og öðrum hvorum valdapól sterks íslam, ásamt til hughreystingar áhyggjufullum bandamönnum Bandaríkjanna í Asíu, þegar ein rétt skoðun Hvíta hússins á Kína og íslam undir Donald J. Trump, kemur til framkvæmda
Látið er líta svo út að símtal Trumps við forsætisráðherra Ástralíu hafi farið í vaskinn. En það er alls ekki víst að svo sé, því ástralski forsætisráðherrann var stuðningsmaður Trumps í kosningabaráttunni og fékk bágt fyrir það heima. Ekki er því útilokað að um heimabrúksendir símtals hafi verið að ræða. Eitt símtal mun ekki breyta tryggu bandalagi þessara ríkja
Donald J. Trump hefur nú ort sitt frumkvæði og kveðskapur hans endurómar um alla veröld. Frumkvæðið orti hann frá 16. júní 2015 til og með 9. nóvember 2016. Þetta frumkvæði er nú allt í hans höndum og engra annarra um alla veröld. Og það verður ekki kveðið aftur. Kosturinn við frumkvæði er að það getur bara verið á einum stað í einu, af því að það er bara til í einu eintaki. Handhafi þess hefur því frumkvæðið. Allir aðrir í heiminum, já, þeir hafa ekki frumkvæðið, eins og sést á uppnámi þeirra
Fyrri færsla
Merkilegt hve allt þýðir ekki neitt
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 9. febrúar 2017
Merkilegt hve allt þýðir ekki neitt
Merkilegt að síðustu 25 ár hafi allt í einu ekkert flutt sig frá Vesturlöndum -fyrst með viðkomu í Suður-Evrópu og síðan Austur-Evrópu- til Kína og slíkra ríkja
Þegar maður segir frá því að til dæmis Bandaríkin hafi misst 1/3 af iðnaðargrunni sínum úr landi síðan 1997, þá er manni bara sagt að aldrei hafi framleiðslan verið meiri í þeim löndum sem misstu frá sér það sem flutti burt. Þessi fyrirtæki voru sem sagt ekkert að gera neins staðar nema ekkert. Þau fóru bara svona sér til skemmtunar. Ekkert sem skiptir máli
Merkilegt hvað manni er líka sagt að innflytjendur í dag séu eitthvað annað en þrælar nútímans
Merkilegt hve margir í sínu landi álíta að það sé gott fyrir önnur lönd að missa fólkið sitt úr landi. Að það sé bara gott að því sé rænt frá sínum löndum með yfirboðum eða undirboðum. Alveg furðulegt
Merkilegt hversu afrískir þrælar sem fluttir voru frá heimalöndum sínum hafa aðlagast svo ofboðslega vel að þeir eru ennþá svartir. Og að margt sé því enn þann dag í dag á öðrum endanum útaf því. Það innflytjendamál gekk nú ekki sérstaklega vel, er það. Halda menn að þetta gangi eitthvað betur í dag. Það mun það svo sannarlega ekki gera. Af hverju skyldi ganga eitthvað betur með það fólk sem er þrælar nútímans
Hvenær ætlar fólk að hætta að stinga hausnum í 300 ára gamlan sand fullan af slæmri reynslu
Ef þjóðir nenna ekki að eignast sín eigin börn, þá ættu þær bara að segja það strax og kála sér í stað þess að heimta þræla til að hugsa um sig á meðan þær eru að deyja út
Einu sinni fóru menn sjálfir til tunglsins. Í dag komast þeir í mesta lagi á klósettið. Þetta eru kallaðar framfarir. Það er búið að úthýsa þessu. Aðrir munu sjá um þetta
Sears var stærsta smásöluverslun veraldar árið 1920 og hafði fyrirtækið þó enga verslun. Og svo kalla menn Amazon fyrir nýsköpun! Ekkert nýtt er þar skapað - þvert á móti, það var hægt að skoða gömlu katalógana við kertaljós og póstþjónustan var betri. Hér má ef til vill tala um þróun eða jafnvel vanþróun, en ekki um nýsköpun
Já á meðan ég man: heil 92 prósent af vinstrisinnuðum "aðgerðarsinnum" fram að þrítugu, búa heima hjá pabba og mömmu. Þá vantar meiningu með lífinu og grípa því til þessara "aðgerða"
Mikið er nú þetta gott og miklar framfarir. Fáum því fleiri þræla!
Doanld Trump og Co eru farnir að minna mig óþyrmilega á það sem einu sinni var kallað "abolitionism" - út með þrælaveldið!
Hvað skyldi Abe segja við þessu?
Fyrri færsla
Donald J. Trump gengur vel og samkvæmt áætlun
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 8. febrúar 2017
Donald J. Trump gengur vel og samkvæmt áætlun
Kosningabarátta hans snérist að miklu leyti um að alþjóða-(universal-imperíalista)-kerfið væri orðið rammskakkt, öfugsnúið, illa meinandi og illa þjónandi fyrir þjóðríki á borð við Bandaríkin, og það sett þannig upp, að það ynni gegn hagsmunum kjósenda bandaríska þjóðríkisins. Punktur
Donald Trump er greinilega að ná miklum árangri hér með því að setja þetta kerfi allt í uppnám. En uppnám er forsenda þess að breytingar geti orðið. Hann setur alla alþjóða-(universal-imperíalista)-elítuna algerlega úr jafnvægi með því að gera einmitt það sem hann sagðist ætla að gera. En það má ekki samkvæmt kokkabókum alþjóðavitringa. Elítan stendur og skelfur og getur bara alls ekki ímyndað sér hvað Donald J. Trump muni gera næst, því hún kann hvorki að lesa né hlusta
Kína skelfur á brauðfótum Kommúnistaflokksins, sem flokkurinn hélt að væru komnir til að vera. Flokkurinn skelfur af ótta við að verða lokaður inni í eigin búri með útflutningsfíklinum sjálfum sér. Alveg hroðaleg staða að þurfa kannski að fara framleiða eitthvað ofna í 1,3 milljarða fátæklingaveldi landsins. Það gæti endað með velmegun sem kollvarpar kúgunarkerfi flokksins. Alveg skelfilega tilhugsun. Og svo eru þeir logandi hræddir við að lenda í því að þurfa að beita einu beinagrindinni að eina flugmóðurskipi landsins áður en það verður sjóklárt og bardagahæft árið 2023, og jafnvel að beita einnig hluta af sjálfum kínverska hernum sem flokkurinn má ekki missa úr hlutverki sínu sem innvortis einkalífvarðarherafli flokksins gegn fólkinu. Tíu bandarísk flugmóðurskip með ótakmarkaða drægni og sem þurfa ekki að leita hafnar nema á 25 ára fresti og þeirra ellefu ballett-dansandi hersveitir á heimshöfunum (carrier strike groups) standa andspænis hinni einu beinagrind kommúnistaflokksins, í höndum fávita, ásamt strategískum sprengjuflugsveitum Bandaríkjanna á Diego Garcia og Guam, svo ég tali nú ekki um flotastöð þeirra í Japan. Þessu getur Trump siglt af stað og lokað Kína inni í sjálfu sér án þess að þeir fái neitt við ráðið
Þýskaland er einnig í einu allsherjar uppnámi og heldur skjálfandi um peningapoka landsins sem fylltur hefur verið upp með gengisfölsun. Stærsti poki í heimunum. Stærri en svindlpoki Kína. Fallbyssurnar hans Péturs Navarro, viðskiptavaktstjóra Trumps, eru nefnilega að undirbúa ósamhverft 360 gráðu fallbyssuskot á poka Þýskalands, því landið uppfyllir með 100 prósent öryggi þrjú af þeim fjórum skilyrðum sem ríkisstjórn Óbama setti, en þorði ekki að gera neitt í, til að hægt sé að finna og stimpla heil ríki sem gengisfalsara. Fjórða skilyrðið mun Trump sjá um að opinbera sem fúpp og fídus Þýskalands (þ,e. dagsgengi evru eða raungengið).
Þegar Þýskaland brasar saman og þarf að fara í útflutningsafvötnun og búa til innlenda neytendur, sem á fagmáli kallast börn eða afkvæmi, þá detta þýsku og kínversku gengisfalsararnir í gagnkvæma depurð, ESB lognast útaf og verksmiðjur beggja landa í Mexíkó fara á hausinn, samtímis
Andspænis alþjóða-(universal-imperíalista)-kerfinu stendur Donald Trump, tundurspillirinn sjálfur, sem enginn veit hvað gerir næst. Þetta er strategísk staða sem enginn annar forseti Bandaríkjanna hefur getað skapað til að nýta sér, síðan að Richard Nixon sat í Hvíta húsinu. Og eins og það sé ekki nóg, þá nýtur Donald Trump einnig gæfu sama fávitastimpils og Ronald Reagan naut næstum öll sín átta ár í sama embætti. Að hann hefði ekki vit til setu í þessu Hvíta húsi kjósenda Bandaríkjanna
Donald J. Trump gengur sem sagt vel og samkvæmt áætlun
Fyrri færsla
"Kostir" fjölmenningar: Sýrland brennur
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 7. febrúar 2017
"Kostir" fjölmenningar: Sýrland brennur
Mynd: Sýrland og Líbanon 1935; trúarlegt þjóðarbrota-yfirlit á fjölmenningarkorti
Að ekki skuli settur réttur stimpill á það sem er að gerast þarna, er alveg furðulegt. Þarna er fjölmenningarsamfélagið á hátindi sínum án þess að nokkur hirði um að nefna að þetta er hin stóra lokaútgáfa hennar; tortíming
Í Evrópu hefur Evrópusambandið í óþökk þjóðanna unnið hörðum höndum að því að leysa ríki Evrópu sem mest upp svo að þar geti myndast tómarúm (vakúm) fyrir áætlanir sambandsins til að flæða inn í og taka yfir sem flest og byggja þar nýtt imperíal-ríki. Þetta hefur hins vegar farið á annan veg eins og alltaf gerist þegar leysa á þjóðir passlega upp til að auka varnarleysi þeirra gegn því sem að ofan og utan kemur og á að troða upp í þær
Stóra ESB-planið er farið í vaskinn og inn í hið stóra vakúm varnar- og stjórnlítilla og laskaðra þjóða Evrópusambandsins, hefur kanslari Þýskalands nú hleypt inn hesti sem tekur á sig ömurlegan lit þess sem gefið afhent var ólögmætt vald yfir fjórða hluta jarðarinnar. Fimmtán milljón manns eru því á leið einmitt þangað sem girðingin hennar er lægst. Og svo er Evrópa orðin svo veikburða vegna Evrópusambandsins, að hún getur ekki lyft litla fingri til að koma á lögum og reglu í Sýrland, frekar en hún gat það er suð-austurhluti hennar logaði. Þetta mun því allt brenna til ösku. Evrópa er á síðasta snúningi, vegna þeirra sem sóttust eftir "valdi yfir fjórða hluta jarðarinnar"
Þegar lambið lauk upp fjórða innsiglinu, heyrði ég rödd fjórðu verunnar, er sagði: "Kom!" Og ég sá, og sjá: Bleikur hestur, og sá er á honum sat, hann hét Dauði, og Hel var í för með honum. Þeim var gefið vald yfir fjórða hluta jarðarinnar, til þess að deyða með sverði, með hungri og drepsótt og láta menn farast fyrir villidýrum jarðarinnar.
Þetta er líklega það sem koma skal í Evrópu. En Evrópuútgáfan verður að sjálfsögðu önnur, því sagan endurtekur sig aldrei eins. En koma skal hún, fjölmenningin
Fyrri færsla
Brjéf til: Hæstvirtrar Janet L. Yellen formanns seðlabanka
Aftökur í leynifangelsum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Sunnudagur, 5. febrúar 2017
Brjéf til: Hæstvirtrar Janet L. Yellen formanns seðlabanka
Mynd; Brjéfið
31. janúar 2017
Kæri stjórnarformaður Yellen:
Ég skrifa þér vegna ítrekaðrar þátttöku seðlabanka Bandaríkjanna, Federal Reserve, í alþjóðlegum samkundum um reglugerðir fyrir fjármálastarfsemi. Þrátt fyrir að Donald Trump forseti hafi sent skýr skilaboð um að hagsmunir Bandaríkjanna í alþjóðlegum samningaviðræðum hafi forgang, þá virðist seðlabankinn halda áfram að semja um reglur fyrir fjármálastarfsemi við alþjóðlega skriffinna í fjarlægum löndum, án gagnsæis, ábyrgðarskyldu og heimildar til að gera svo.
Þetta er óásættanlegt.
Áframhaldandi þátttaka í alþjóðlegum samkundum eins og Ráðgjafarnefndar um fjármálastöðugleika (FSB), Baselnefndinnni um bankastarfsemi og eftirlits þess (BCBS) og svo í Alþjóðasamtökum vátryggingaeftirlita (IAIS) grundavallast á því að ná fram markmiðum hinnar nýju ríkisstjórnar. Hún mun líklega krefjast yfirgripsmikillar endurskoðunar á þegar gerðum samkomulögum sem á ósanngjarnan hátt refsa bandaríska fjármálakerfinu á sviðum eins og kröfum til eiginfjár, tryggingum, afleiðum, kerfislegri áhættu og eignastýringu.
Hina leynilegu skipan þessara alþjóðlegu samkunda verður einnig að endurmeta. Samkomulag eins og Basel III samkomulagið um fjármagn var gert og samþykkt af seðlabanka Bandaríkjanna með lítilli vitneskju bandarísks almennings og þær voru niðurstöður ógagnsæs ákvarðanatökuferlis. Alþjóðlegu stöðlunum var síðan snúið yfir í innlenda reglugerð sem þvingaði bandarísk fyrirtæki af ýmsum stærðum til að hækka verulega eiginfjárþarfir sem leiddi til lakari hagvaxtar hér í Bandaríkjunum.
Það er skylda og ábyrgð allra eftirlitsstofnana að styðja við bandaríska hagkerfið, og að gegnumlýsa og rannsaka alþjóðleg samkomulög sem eru að drepa bandarísk störf. Þar af leiðandi verður bandaríski seðlabankinn að stöðva allar tilraunir til að semja um bindandi staðla sem íþyngja bandarísku atvinnulífi þar til að Trump forseti hefur haft tækifæri til að útnefna embættismenn sem veita bestu hagsmunum Bandaríkjanna forgang.
Einlæglega
Patrick McHenry
Varaformaður
Fjármálaþjónustunefndar bandaríska þingsins
****
Já það er nú það. Er þetta kannski upphafið á endinum fyrir svo kallað "sjálfstæði seðlabanka"? Þetta er að minnsta kosti ekki upphafið á "sjálfstæði herafla", þar sem hershöfðingjar eru algerlega látnir einir um herinn með þeim rökum að fulltrúum fólksins sé ekki treystandi til að hafa vit á hermálum og að þeir skaði "trúverðugleika" hersins. Ef að menn eru hræddir um svo kallaðan "trúverðugleika seðlabanka" í höndum fulltrúa fólksins, þá er hægt að leysa það mál með því að skipa tölvu sem seðlabankastjóra, því eins og allir vita, þá hafa tölvur óendanlegan trúverðugleika, ekki satt. Náttúrlega algerlega galið
Verður "sjálfstæði seðlabanka" átlitin samskonar firra eftir 20 ár? Já það getur bara vel verið. Það getur bara vel hugsast
Seðlabanki Bandaríkjanna er peningakerfis- og greiðslustofnun sem þingið bjó til og sem á sig sjálf án þessa að eiga sig sjálf og hún skal skila rekstrarhagnaði, en ekki rekstrartapi. Seðlabanki Bandaríkjanna starfar í umboði bandarísku þjóðarinnar. Enginn á seðlabanka bandaríkjanna en þjóðin á umboð og hlutverk hans og hann starfar í þágu hennar
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.2.2017 kl. 09:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 4. febrúar 2017
Trump kominn í Obama-stöðu
Árið 2015 stöðvaði alríkisdómari á vegum 26 fylkja bandaríkjanna tilskipun Obama forseta um að veita milljónum ólöglegra innflytjenda lagalega stöðu í Bandaríkjunum
DDRÚV, góða fólkið og þvagræstimennin sem þá stefndu á þing hér á landi, ásamt stjórnlaga-óráðsmönnum, kúrðu sig þá sætt og hefðu eflaust dásamað lögleysuna ef þeir hefðu yfirhöfuð tekið eftir henni. En þar sem um vonda fólkið var að ræða árið 2015, þá var haldið aftur af sér á þingi og uppsafnaður vökvinn í góðra manna blöðrunni í staðinn látinn gossa yfir æðstu stofnun lýðveldis okkar í þessari viku
Málið fór að sjálfsögðu fyrir hæstarétt og þar endaði það, því sá réttur komst ekki að annarri niðurstöðu en jafnteflis, og var því dómur alríkisdómarans látinn standa og stendur hann enn. Obama reyndi að brjóta lögin en komst ekki upp með það, því Bandaríkin eru réttarríki. Það verða þau svo lengi sem menn komast ekki upp með að reyna að fylla þau upp af milljónum lögleysu-eininga á borð við þá sem Obama reyndi að dæla inn í landið. Öllum ber að fara eftir lögum landsins. Ólöglegir innflytjendur eru tímasprengja undir réttarríkinu og bandarískri menningu. Takast þarf á við þessa sprengju og er það stefna hins nýkjörna forseta að gera einmitt það. Kjósi menn að drekkja sínu eigin landi í vandamálum annarra, þá hafa þeir á endanum ekkert gott að bjóða umheiminum, þegar upp er staðið
Ég tel hins vegar að Trump forseti muni vinna þetta mál núna, komi það fyrir hæstarétt, sem er sú eina stofnun bandaríska lýðveldisins sem getur ógilt tilskipanir forsetaembættisins
Fyrri færsla
Ísland herðir hengingarólina um háls lýðveldis síns
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Föstudagur, 3. febrúar 2017
Ísland herðir hengingarólina um háls lýðveldis síns
Hvert eitt skref til viðbótar í þá röngu óvestlægu átt sem leitt hefur heiminn inn í þá stöðu sem hann er að verða kominn í, er nú um daga tekið án þess að hugsa sig um. Síðustu tvö þeirra skrefa hér á landi voru tekin með allt bundið fyrir augun inn í AIIB fjárfestingabanka fyrir Asíu, og með þvagláti þingmanna á Alþingi Íslendinga, svo fátt eitt vont sé nefnt
Í fimm þúsund ár var litli maðurinn lokaður inni í búri elíta. Í 300 ár hefur hann verið nokkuð frjáls og óhlekkjaður, þökk sé Gamla testamentinu, kristnum þjóðkirkjum og bresku iðnbyltignunni
Það var sturlun að stofna Evrópusambandið. Það var sannarlega sturlun. Og það var sturlun að stofna til alþjóðavæðingar sem vann ekki fyrir litla manninn, heldur sem vann gegn honum. Alþjóðavæðingin er öfug bresk iðnbylting og Tóma testamentið. Hún er gerræðislega skaðleg litla manninum. Hún er steypustöð ömurleikans eins og hún er
Og það var svo sannarlega sturlun að standa í ræðustól lýðveldisins og kasta þar af sér þvagi yfir "the last best hope of earth"
Ég hef ekki rjúkandi sönnunargögnin enn. En þetta hefur alla burði til að fara afar illa. Já, afar illa
Fyrri færsla
Sáttmálaörkinni frá 1941 svarinn eiður í Hvíta húsinu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Fimmtudagur, 2. febrúar 2017
Sáttmálaörkinni frá 1941 svarinn eiður í Hvíta húsinu
Rétt í þessu: Sjálfsákvörðunarrétti þjóða svarinn eiður í Hvíta húsinu - bein krækja
Tilvitnun: Donald J. Trump 1. febrúar 2017; .."It is time to bring a clear-eyed focus to foreign affairs, to take a fresh look at the world around us, and to seek new solutions grounded in very ancient truths. These truths include the fact that nations have a right to protect their interests, that all people have a right to freely pursue their own destiny, and that all of us are better off when we act in concert and not in conflict".. - tilvitnun lýkur, og Andrew Jackson, frá mynd á vegg, horfir á
Beint fyrir framan augu okkar eru sögulegir atburðir að gerast. Donald J. Trump er að marka kaflaskipti í sögu mannkyns. Hann er að dusta rykið af og taka aftur í notkun gömlu Atlantshafssáttmálaörk (e. Atlantic Charter) Roosevelts og Churchills, frá árinu 1941, sem um borð í skipi á flóa við Nýfundnaland, meitluð var þar í þeirra daga steintöflur, sem staðfesting á Gamla testamentinu um þjóðfrelsið. Hófst þar með samstillt barátta bandalags frjálsra fullvalda þjóðríkja gegn heimsveldi (imperíal-ríkis-hönnun) Adolfs Hitlers kanslara Þýskalands, sem var uber-imperíalisti og ætlaði sér að ráða yfir mörgum öðrum ríkum, leysa útflæðandi upp sín eigin landamæri og þeirra, flæða út yfir heiminn og vera konungur yfir mörgum þjóðum, og hneppa þær í þrældóm með ofbeldi og 1942-áætlun um sameiginlega mynt, og allsherjar ráðuneyti yfir þeim öllum í Mittelpunkt Europas
.."the right of all peoples to choose the form of government under which they will live" - sáttmálaörkin frá 1941
Rétt í þessu var Rex Tillerson svarinn í embætti utanríkisráðherra Bandaríkjanna eftir að Öldungadeildin samþykkti tilnefningu Trumps á honum í embættið. Donald J. Trump vatt sér immed í innsetninguna eins og hans er venja, þ.e. að framkvæma og framkvæma og framkvæma strax, og hélt stutta en afar merkilega ræðu sem hlýða má á í myndskeiðinu. Hún segir það sem hér fyrir ofan stendur og að neðan:
Donald J. Trump er að taka steintöflurnar aftur í notkun, eftir áratuga rykfellingar, og hann er að endurreisa 1648 niðurstöður og forsendur Vestfalíu friðarins. Sjálfsákvörðunarrétti þjóða úr Gamla testamentinu var þarna svarinn eiður á ný. Já Gamla testamentið er heilög ritning Vesturlanda. Bara og einungis Vesturlönd hafa og höfðu Gamla testamentið og þess vegna eru þau einmitt Vesturlönd; það er ekkert Rómarríki í því og engin Aþena. En í þeim eru hins vegar landamærin, til að halda sér á mottunni innan þeirra, þjóðin og þjóðríkið, aðskilnaður valds og að maður má bara vera konungur yfir sínu eigin fólki, en ekki yfir öðru fólki, og sjálfsákvörðunarréttur þjóða og þjóðfrelsið. Þegar Bretar lásu þetta fyrst á sínu eigin tungumáli í Hinum heilögu ritningum, undir þeirra daga svartnætti, þá vonuðu þeir að Bretland gæti orðið nýtt Ísrael: þ.e. fengið þjóðfrelsi þjóðríkisins sem vörn fyrir litla manninn gegn þeirra daga alþjóðavæðingu al-alsins sem belgdi sig út fyrir landamæri sín og inn í þeirra land
Ég vona að DDRÚV framhalds-trompist eins og vera ber og fari með kommúnistaávarpið af einkatalnabandi sínu, einu sinni enn,- og aftur einu sinni, enn og aftur
**********
Það sem ég hef séð til og lært hingað til um þessa nýju stjórn í Hvíta húsinu, já það er farið að minna mig ansi mikið á þegar að berfættur og brútalt hnífskarpur Steve Jobs kom aftur inn í Apple og framkvæmdi einn stærsta viðsnúning í fyrirtækjasögu mannkyns. Þetta hjá Trump gæti orðið einn stærsti þjóðríkis-viðsnúningur í sögu Vesturlanda. En þetta verður auðvitað mögrum mögrum sinnum erfiðara verk. Og það verður mikið vol og væl hjá mörgum í kringum þetta og fólk mun koma fljúgandi út um gluggana, enda er það eðli breytinga á borð við þessa: að um þær standi gífurlegur styr, gluggaopnanir og hurðaskellir og andstaða allan daginn í langan tíma
Svo virðist sem að viðurkennt samþykki (e. consensus) um "núllvaxtar stöðnun" (e. secular stagnation) í markaðshagkerfi Bandaríkjanna og víðar sé að byrja að leysast upp meðal aðila hins kapítalistíska markaðar. Margir eru farnir að hugsa dæmið upp á nýtt, eftir bara eina viku Donalds J. Trump í embætti. Farnir að sjá hlutina í nýju ljósi
Þetta voru mínir fimm aurar, takk
Fyrri færsla
Flóttaleið úr Evrópusambandinu opnast
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 1. febrúar 2017
Flóttaleið úr Evrópusambandinu opnast
Fyrst er það hið leiðinlega og skammarlega; Það er runnið upp fyrir mér að utanríkisráðherra Íslands er bara fésbókhaldari. Og að forsætisráðherrann okkar hefur ekki stjórn á því sem hann á að hafa stjórn á. Þetta er leiðinlegt og skammarlegt. Ég skammast mín fyrir hönd Íslands og ríkisstjórnarinnar. Til hvers var ég að kjósa ykkur? Það skil ég lítið í þessa dagana. Út vellur ruglið og inn veltur dópið og lögleysan um hafnir landsins, og hver veit hvað vellur inn um EES-svartholið frá Evrópu. Traust mitt til ykkar hefur minnkað. Það versta er að þetta virðist ekki vera undantekningarástand eins og það sem varir enn í Frakklandi, heldur bara venjuleg skrílslæti á æðstu stöðum lýðveldis okkar, sem Bandaríkjamenn viðurkenndu fyrstir allra. Takið ykkur vinsamlegast á ef við eigum að þola og halda ykkur uppi
En svo er það hið góða; Á minna en viku hefur forseta Bandaríkjanna tekist að reka fleyg niður um kokið og til botns Evrópusambandsins. Á botni þess voru illvirkjar að semja áætlanir fyrir útgöngustyrjöld ESB gegn Stóra Bretlandi. Donald J. Trump hefur á minna en viku séð til þess að Evrópusambandið þorir ekki að snerta hár á höfði Bretlands. Og hann hefur í leiðinni rekið fleyginn svo rækilega niður í elítusvað Evrópusambandsins, að þau lönd sem eru komin með krónískt ofnæmi fyrir þýskri Evrópu, eins og frú Thatcher varaði við, já þau eygja nú von sem þau höfðu ekki áður. Að mögulegt sé ef til vill með vernd Bandaríkjanna að losna úr ESB-hryllingnum. Að gamall vinur sé þrátt fyrir allt ennþá til
Þetta var ein vika. Haldið þið þarna á þingi að þið getið ef til vill hagað ykkur sæmilega í eina viku? Og látið nú dómarann í friði
Fyrri færsla
Gengur Donald J. Trump í skrokk á Þýskalandi?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 27
- Sl. sólarhring: 59
- Sl. viku: 443
- Frá upphafi: 1389063
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 252
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008