Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Evrópumál

Stakkels ríkisstjórnin fær Marshallaðstoð

Donald J Trump

Donald J. Trump: Eini hugrakki stjórnmálaleiðtogi Vesturlanda. Fyrstur allra lokaði hann á Kína 31. janúar og var af villta vinstrinu vændur um "rasisma" fyrir vikið. Nú kennir sama raðbilaða glóbal-grísa-marteins fólkið honum um allt. Í þrjú ár hefur það ásakað hann um að vera einræðisherra, en heimtaði þó fyrst allra að hann lýsti yfir neyðarástandi sem myndi færa honum aukin völd í glímunni við kínversku Whuhan-veiruna – og að hann lokaði landamærunum!

****

Ríkisstjórn Íslands fær loksins Marshallaðstoð sína, í fljótandi formi. Og þingsalur þjóðarinnar er alveg við það að verða tómur og mannlaus fyrir framhalds-myndatökur. Þar verður hin "kínverska millistétt" Guðlaugs Þórs mynduð með rafeindasmásjá, vegna þess að kínverskar Wuhan-millistéttarveirur sjást ekki lengur með berum augum. Sú deyjandi kínverska "stétt" hefur þess utan verið logsoðin föst inn í búrum sínum í Kína, þar sem hún er að enda míkóskópískt-stutt líf sitt núna. Verður henni sennilega hent á ruslahaugana þegar hálftóm 5-ára-áætlana blokkar-monster kommúnistaflokksins verða rifin niður af heilbrigðisástæðum, því svo gott sem allt reyndist vera fake news í því landi

Allir vita núna að ekkert var –og er ekki enn– að marka neinar tölur frá upplýsingasótthreinsuðu fréttagúlagi Kína um Wuhan-veiruna og afðleiðingar hennar, þar sem bannað er með stolinni vestrænni nútímatækni að deila upplýsingum og varnaðarorðum um hana meðal borgaranna í póst-sovésku truntukúgunarríki af sömu gömlu helvítiskommasort og síðast. Ítalía er með hundrað sinnum betra heilbrigðskerfi og hraustari og velhaldnari þjóð en Kína. Þar misstu 627 manns lífið af völdum kínversku Wuhan-veirunnar á síðustu 24 tímum. Mannfallið á Ítalíu er orðið mun meira en falsaðar tölur Kínverska kommúnistaflokksins segja um ástandið í Kína

Skyldi Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins fá að koma inn í Bandaríkin þegar þessu eru lokið? Það er ekki víst, því hann situr í Wuhan-veirubankaráði AIIB –sem er silkivegarspunavél kínverska imperíalismans– og hann er maðurinn sem tók Ísland þar inn, þrátt fyrir miklar aðvaranir besta, dýpsta og eina raunverulega bandamanns Íslands, Bandaríkja Norður-Ameríku. Reiðin á Vesturlöndum á eftir að vaxa á veldisvísu vegna þessa máls, þegar fram líður

Öll Plebbahallar-strategía Sjálfstæðisflokksins liggur nú sem herfis-tættur tuddaskítur úti á túni. Flokkurinn hefur læst Ísland inni í EES-tómum orkupökkum og landamæralausri Schengen-veirusúpu, ásamt klikk-hausaðri tálsýn raðbilaðra bjána um "millistéttir" í sovétríkjum. Og nú býr ESB-gígurinn sig undir næsta evrugos. Óvíst er um lífslíkur, í annað sinn á aðeins 10 árum

Eina ástæðan fyrir því að ég hef kosið Sjálfstæðisflokkinn er Ólafur Thors og Davíð Oddsson. Hið sama gildir um alla mína. Sú staðreynd er runnin upp fyrir okkur öllum núna

Sem betur fer er glóbal-fjóshaugatímabili forheimskustu furðuvera í sögu Vesturlanda hér með að ljúka. Rétti tíminn til að reka sendiherra Evrópusambandsins og Kínverska kommúnistaflokksins burt af okkar landi, í flugvél sem hvergi fær að lenda nema hvergi, er einmitt núna

****

- HLAÐVARPIÐ -

Með bóndanum og sagnfræðingnum Victor Davis Hanson

Amen

- Gunnar er þjóðaríhaldsmaður 

Fyrri færslur

Búið að fylla; Evrópusambandið lokar landamærunum

Ný skordýrategund fædd á jörðinni: erlendir ferðamenn


Ný skordýrategund fædd á jörðinni: erlendir ferðamenn

NÝ TEGUND?

Öllum eyjum Norður-Þýskalands hefur nú verið lokað. Engir ferðamenn fá að koma þangað lengur. Þar má til dæmis nefna frísísku eyjarnar. Hér

Vitiborið fólk í heiminum mun sennilega frá og með nú álykta og segja –og það með miklum sanni og réttu– að ný og hættuleg skordýrategund sé fædd á jörðinni, og sennilega gefa henni nafnið; Erlendir ferðamenn

Það er aldrei að vita nema að það verði einmitt þannig - um langan ókominn tíma 

REIKNINGUR NÚMER TVÖ Á AÐEINS 12 ÁRUM

Á rétt rúmum áratug er komið að því að skattgreiðendur þurfa á ný að setja bök sín undir "alþjóðavæðingu" og "esb-samrunavæðingu" í heiminum. Lítil er uppskera hins venjulega manns að verða, nema þá helst einn stór og stækkandi mínus. Fyrst var það banka- og fjármálabólan sem EES-samningurinn kom af stað, en nú er það "alþjóðavæðingin" sem breyst hefur í alþjóðavædda drepsótt með burðaraðstoð Schengen í Evrópu, sem nú hefur snúið svo gott sem alla álfu Evrópusambandsins í gólfið, þökk sé meðal annars tilvist Evrópusambandsins sjálfs og Schengen

Þeir sem halda enn að þetta sé framtíðin á Vesturöndum, eiga sennilega eftir að verða fyrir verulegum vonbrigðum með svo kallaða "strategíska stefnumótun" sína. Það verður reikningur sem nú þarf að borga, og aðstoð við að bera hann verður háð nýjum og verulega hertum skilyrðum. Það má gera ráð fyrir að það verði einmitt þannig

Og ef bankakerfi Vesturlanda hanga uppi og þola áföll kínversku Wuhan-veiru drepsóttarinnar, þá er það fyrst og fremst því að þakka að menn lærðu árið 2009 að alþjóðavæðing banka- og fjármálakerfa Vesturlanda voru skelfileg mistök. Lærðu að alþjóðavædd banka- og fjármálakerfi gátu reynst banvænt fyrirbæri fyrir þjóðir heimsins

Velkomin í samkomubann Schengen-drepsóttar á Íslandi

Fyrri færsla

Tveggja millimetra veruleika-sjónauki utanríkisráðherrans


Tveggja millimetra veruleika-sjónauki utanríkisráðherrans

Boris Johnson puts industry on war footing - Telegraph 14 mars 2020

Mynd: Forsíðufyrirsögn hins breska Telegraph í gær: "Boris Johnson setur bresk iðnaðarfyrirtæki á styrjaldarviðbragðsstig". Rolls Royce og fleiri bresk fyrirtæki skuldbinda sig til að framleiða græjur fyrir breska heilbrigðiskerfið, sem nú eru ófáanlegar víða um heim. Ætla má að ný bresk lyfjafyrirtæki spretti einnig upp. Bretland gerir ráð fyrir allt að sex prósentu hruni í landsframleiðslunni á næstu mánuðum. Það yrði verra en var í fjármálakreppunni 2009 og er Bretland þó alls ekki tilvistarlega háð útflutningi eins og Þýskaland. Það hefur þess utan sína eigin mynt. Bjartsýnt er þó að mínu mati að reikna aðeins með nokkrum mánuðum. Þetta mun taka ár eða meira | Telegraph

****

AFNEITUNAR-LINSUR

Þið munið sennilega öll eftir því þegar esb-alvöruþrútin fréttastöð DDRÚV birti seríos-fréttir ríkisstöðvarinnar um hið komandi vesalings aumingja-stakkels voðalega hræðilega ástand Bretlands, skyldi það nú voga sér að ganga burt af lögsögu Evrópusambandsins. Seríos-fréttir DDRÚV um niðursuðudósa-hamstrandi sérútvalda Corbyn-sovét-Breta sem valdir voru af frú Pravda-pólít-sovét-fréttaböðli DDRÚV í Londinium –í Rómarveldi ESB– voru sendar út með svo þrunginni sovétssósualvöru að engin súrefniseind komast hálfa leið upp í heilabú þeirra áhorfenda sem urðu fyrir moldviðri hennar. Allt var, og á átti eftir, að farast þar. Allt Stóra-Bretland myndi fara til heitasta makkarónulausa helvítis hinna esbguðlausu

Íslandi blæðir vegna Schengen: Europe Daily Bulletin No. 12435: 27/02/2020 (Agence Europe) – A group of experts from EU governments agreed that reintroducing controls at the EU’s internal borders to stop the Covid-19 outbreak would be counterproductive, a European source confirmed on Thursday (27 February), but said this position should be reviewed weekly. She believes that it is better to quarantine individuals who show suspicious symptoms. Moreover, according to the Schengen Borders Code, health grounds can only come into play at the external borders..

En allt öðru máli gegnir núna, þegar heimsfaraldur Schengen-innfluttrar Wuhan-veiru frá Kína geislar stjórnlaust um Ísland og hinn vestræna heim, þökk sé ábyrgðarleysi yfirvalda Evrópusambandsins sem höfnuðu alfarið að gera neitt í málunum á Ítalíu, sem ofsasmitaði síðan yfir 30 önnur lönd, algerlega óheft, óáreitt og með þvílíkum glans, að hingað inn sturtuðust Wuhan-veirurnar undir kvakkór heilalausra esbhólista, um að "veiran virðir ekki landamæri". Grasansar og þurrkögglar sungu

Kanínu-önd Kuhn-stökkbreytinga í hugsun manna

Mynd: Önd-kanína Kuhn-stökkbreytinga í hugsun manna:
Paradigm shift = Grænt þýðir frá og með nú mygla, bakteríur og heimsfaraldur Wuhan-veiru. Aukin eftirspurn eftir hálfvitapólitískum strokleðrum mun geisa, þar sem sá fær sem strokar þvælu síðustu 30 ára út fyrstur. Þvottavélar verða stilltar á 90 gráður á ný, til að forða þeim og þér frá grænum veiru-skemmdum og smitum

****

Öllum takmörkunum á ferðum til og frá Ítalíu var algerlega hafnað af sömu ráðamönnum í Evrópusambandinu, á fundi þeirra þann 25. febrúar síðastliðinn; hér og hér og hér og hér. Húla-búla-stöð DDRÚV leggur því allsherjar áherslur sínar í dag á að ekkert sé að óttast núna, þveröfugt við Brexit bálförina, því Vinstri helgrænir séu við völd ásamt hamflettum aulabráðum Sjálfstæðisflokksins - og Framsóknar, sem enginn man lengur eftir að er í ríkisstjórn líka, undir leiðsögn Sigurðar skoðandi Ingamann. Þá er nefnilega allt í þessu fína frá Kína og allir hafa stjórn á öllu og enginn þarf á neinum niðursuðudósum að halda. Hamstur í matarbúri passar ekki við lengur, því þetta er jú ekki Brexit maður! Aðeins er um heimsfalaldur að ræða. Guði sé lof!

But, once Italians reemerge from their homes and count their dead: "Her comments even managed to shake Italy’s president Sergio Mattarella. It is very unusual for the Italian president to issue a statement that effectively accuses Lagarde of counter-acting the country’s effort at a time of crisis. Italians, once again, feel abandoned by the EU. The country has other priorities right now. But, once Italians reemerge from their homes and count their dead, they will remember that a French president tried to stop the delivery of face masks, and that a French [ECB] central bank president took away the bond guarantee." – Eurointelligence 13. mars 2020

Í millitíðinni, eða fram að þeim degi er Guðlaugur Þór –með 2veggja millimetra útkíkkslinsu utanríkismála– "pantaði" nú þegar aflýstan símafund og annan, er þessi listi hér fyrir neðan orðinn sístækkandi staðreynd. Á þetta mun Bjarni orkupakka-öryrki Benediktsson síðan taka reiðiköst, hvert land fyrir sig, og Svandís-sovét halda áfram að leggja hinn einkarekna hluta heilbrigðiskerfisins í rúst, því við höfum jú svo yfrið og aukalega ofsamikið að því sovéska. Ekki er því lengur hægt að aflýsa "óþarfa aðgerðum", því það hefur hún þegar gert á undanförnum árum, og hyggst því senda sjúklingana með sovéskum kafbát inn í hvellsprungin heilbrigðiskerfi Múrmansk-útlanda á Kólaskaga Evrópu. Engum aðgerðum er lengur hægt að aflýsa, sökum pólitísks ofstækis á hendur einkaframtakinu, og heldur ekki flugi, nema ef vera skyldi næstu kosningum, sem sópa munu þessu clueless baunagrasliði samrunnins esb-sósíalisma og sovétpesta burt af yfirborði jarðar

SÍMAFUNDA- OG REIÐIKASTALISTINN

Þau lönd sem þegar hafa bannað breskum ferðamönnum landgöngu eru þessi. Listinn á þá væntanlega einnig við um Ísland. Lengist hann nú dag hvern

Italy
Spain
United States
Malta
Croatia
Denmark
New Zealand
Ukraine
Czech Republic
Latvia
Iran
Bhutan
Vietnam
China
South Korea
The Maldives
India
Israel
Saudi Arabia
Oman
Kiribati
Solomon Islands
Papua New Guinea
North Korea
Benin
Comoros
Marshall Islands
Gabon
Uganda

Listinn yfir þau lönd sem nú þegar banna komur fólks frá Ítalíu –sem Bretar gera ráð fyrir að vera orðnir sjálfir eftir tvær vikur– og sem þar með banna munu komur Breta, og Íslendinga sennilega líka, er þessi. Hann lengist daglega:

Antigua
Bahamas
El Salvador
Fiji
Guatemala
Haiti
Indonesia
Iraq
Jamaica
Jordan
Kazakhstan
Lebanon
Madagascar
Malaysia
Mauritius
Mongolia
Nauru
Qatar
Romania
Russia
Samoa
Serbia
Seychelles
Singapore
Sri Lanka
St Lucia
Tajikistan
Thailand
Turkey
Uganda

Hvert hyggst ríkisstjórn Íslands sigla afneitunarkafbáti sínum næst. Hvert? Hún kemst ekki einu sinni til Norður-Kóreu lengur

Fyrri færlsa

Wuhan-veiran: Að hræða vit í fólkið. Danir loka landamærum. Heimtar Guðlaugur Þór símafund. Hverjum reiðist Bjarni núna [u]


Wuhan-veiran: Að hræða vit í fólkið. Danir loka landamærum. Heimtar Guðlaugur Þór símafund. Hverjum reiðist Bjarni núna [u]

Uppfært föstudagur, 13. mars 2020 kl. 20:48:39

Danir loka landamærum Danmerkur. Aðeins danskir ríkisborgarar og fastbúandi fá að koma inn. Hvað gerir Guðlaugur Þór: heimtar hann símafund. Og hverjum reiðist Bjarni Ben núna. Sjá athugasemdir..

VÍSDÓMUR

Ég las í gær skrif ungrar breskrar stúlku í Telegraph um Wuhan-veiruna. Hún er með sykursýki og hræðist sljó viðbrögð svo kallaðra yfirvalda, og er því búin að grípa til sinna eigin ráða, með því að forðast annað fólk alveg. Hún sagði að það þyrfti að hræða vit í fólkið. Því er ég sammála. Hún öfundar Ítalíu af því að þar logar þó að minnsta kosti annað bremsuljósið af tveimur núna. En brýnast er þó að hræða vitið í það sem sumir kalla yfirvöld landsins. Þar á ég við Land- og Sóttvarnarlæknisembættin og ríkisstjórnina alla, eins og hún leggur sig

STUÐIÐ

Í gær var ríkisstjórn Íslands stungið í samband við veruleikann. Leiðsluna og rafmagnsstólinn sjálfan skaffaði maður nokkur langt fyrir vestan ábyrgðarlaust Evrópusambandið, sem er ekki í sambandi við neitt

Ég vona að þeir sem síðustu 30 ár hafa sagt að Bandaríkin skipti ekki lengur máli í heiminum, hafi fengið smávegis jarðsamband við plánetuna sína í gær. Ef ekki, þá er því fólki varla viðbjargandi úr þessu. Versti dagur í sögu DAX, CAC-40 og MIB, ásamt annarra evrópskra vísitala segir sína sögu

Ég vona líka að sem flestir lesi leiðara Morgunblaðsins í dag, föstudaginn 13. mars 2020 e. Kr. Þar er meira stuð fyrir þá sem þurfa tvístart til að koma sér í gang. Hvar værum við stödd án Morgunblaðsins. Jú, sennilega í Útópíu

BANVÆNT

Það er ekki gott fyrir Ísland að hafa öndunarfæri sín utanáliggjandi á meginlandi Evrópu, þegar að tilvistarlegum málum lands okkar kemur. Ei heldur í neinum öðrum málum. Því á þau verður stigið og trampað af óviðkomandi "aðilum" sem leið eiga hjá. Við það kafnar Ísland þegar á reynir. Það sést einkar vel núna á blámanum í andlitum ríkisstjórnarinnar. En það færðist þó örlítill skammtur af rauðu blóði í andlit hennar í gær. Stuðið að vestan sá fyrir því. Því miður þoldi leiðsluhaldari Lýðveldisins vestur ekki álagið og missti sennilega vitið

SKYLDULESNING

Ég ráðlegg öllum sem lesið geta ensku að lesa greiningu Eurointelligence á dánartölum í Þýskalandi vegna kínversku Wuhan-veirunnar. Hún hetir: "The cause of Germany’s low Covid-19 mortality is potentially disturbing" (pr. 12. mars 2020). Hún er gott plagg, en krækjan á þessa greiningu sem Wolfgang ritstjóri vísar í, segir þó flest það sem segja þarf fagfólki og leikmönnum um eðli veirumálsins og ferli þess. Lancet-greinina sem hann vísar í hef ég þó ekki enn haft tíma til að lesa

BOÐORÐIN TVÖ

Hér er síðan stuttur listi til umhugsunar fyrir Ríkisstjórn Íslands ásamt spurningunni um hversu miklum skaða kæruleysingjar og hugmyndafræðilegir einfeldningar hafa valdið Íslandi með ESB-brölti og skrölti og innstungum inn í ekkert sem lifa mun af

- Bandaríkin skipta Ísland mestu máli
- Bandaríkin skipta Ísland tilvistarlega öllu máli
- Evrópa skiptir Ísland litlu máli
- Kína skipir engu máli
- Japan skiptir meira máli
- Indland mun skipta óendanlega meira máli en Kína

AEMN

Fyrri færsla

Trump lokar á Evrópusambandið og Schengensvæðið. Loka ber Íslandi [u]


Trump lokar á Evrópusambandið og Schengensvæðið. Loka ber Íslandi [u]

uppfært fimmtudagur, 12. mars 2020 kl. 02:15:01

Útsending: Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna og leiðtogi hins frjálsa og siðmenntaða hluta veraldar, ávarpar bandarísku þjóðina og tilkynnir ferðabann á meginland Evrópu til Bandaríkjanna

****

TRUMP LÝSIR YFIR FERÐABANNI FRÁ EVRÓPUSAMBANDINU OG SCHENGEN

Jæja, þar kom að því: Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna er loksins búinn að fá nóg af meginlandi taparanna í Evrópu og Schengensvæðinu. Hann lokar á það allt, frá og með föstudag næstkomandi, vegna þess að það er orðið versta pestarbæli jarðar, fyrir utan Kína. Ferðabannið mun í fyrstu gilda næstu 30 daga, en nær þó ekki enn sem komið er yfir vörur. Flest öll Wuhan-veirusmit í Bandaríkjunum má rekja til Evrópusambandsins. Það eina sem vantar upp á er að Trump lýsi því yfir að allt meginland Evrópu sé helvítishola (e. hell hole). En það er jú því miður það sem hægt að segja um Evrópusambandið og Schengensvæðið. Dánarhlutfallið á Ítalíu fór upp fyrir 6,6 prósentur í gær. Nýjum staðfestum Wuhan-veirusmitum fjölgaði um 2313 í landinu, á aðeins 24 tímum. Í gær misstu því 196 Ítalir lífið vegna kínversku Wuhan-veirunnar í sínu eigin landi. Svona hefði þetta bara alls ekki þurft að fara, hefðu stjórnmálamenn sýnt ábyrgð og varið þjóðir sínar eins og frumskyldur þeirra skipa fyrir um. En svikist var um allt og eru því sóttvarnir í steik í Evrópu, eina ferðina enn. Beint ofan í áfallið 2009 sem varir enn, og varð til vegna smita í fjármálakerfum evrunnar

"For­set­inn sagði Evr­ópu hafa séð fleiri til­felli vegna þess að rík­is­stjórn­um hefðu mistek­ist að stöðva ferðir frá Kína, þar sem far­ald­ur­inn hófst. Hann tók einnig fram að bannið gilti ekki um ferðir frá Bretlandi til Banda­ríkj­anna." Mbl

Greinilegt er að bandarískir sérfæðingar og ríkisstjórnin öll hafa litla trú á getu Evrópusambandsins og ríkjum þess til að glíma við áföll og hefta útflæði þeirra, hvort sem að um kínversk Wuhan-veirusmit eða smit í fjármálakerfum er að ræða. Bandaríkjamenn og Ísraelar þekkja manna best getu- og ábyrgðarleysi stjórnmálamanna á meginlandi Evrópu og grípa því til varna. Getan til að glíma við áföll er hvergi til staðar og verður það aldrei á svo gott sem stjórnlausu meginlandi Evrópu, sundurskotnu af tilvist Evrópusambandsins. Þar er því allt á leiðinni til heljar eina ferðina enn. Það eina sem forseti Bandaríkjanna undanskilur frá banninu er Stóra-Bretland

The restriction applies to foreign nationals who have been in the Schengen Area, 26 countries in Europe with open borders agreements, in the last 14 days. - segir Hvíta húsið. Þ.e. ferðabannið nær til þeirra erlendu ríkisborgara sem hafa verið á hinu landamæra-opna Schengensvæði 26 landa á síðustu 14 dögum. Ragnar Arnalds gerði á sínum tíma athugasemdir við sóttvarnarleysi Schengensvæðisins, á Alþingi

Segja má með góðum og gildum rökum að þetta sé yfirlýsing Bandaríkjanna um að Landlæknir,- Sóttvarnarlæknir og ríkisstjórn Íslands séu eins konar Wuhan-veirur, sem hætta lýðheilsu þjóðar sinnar fyrir pólitískt pervert trúarbrögð iðkuð á altari EES- og Schengentrúar. Hvílík vanræksla og vesaldómur!

Nú neyðast Bandaríkin sennilega að fara að huga að því að hnoða saman í nýja Marshallaðstoð handa meginlandi taparana. Ítalía verður líklega efst á neyðarlistanum þar vegna ríkisskuldabombu sem varð til vegna evrueyðni, nema að rústin verði svo stór á meginlandi Evrópu að það taki sig ekki að snerta á henni; með Þýskaland að hálfu hrunið saman, því það er útflutningsháðasta hagkerfi veraldar. Um hver 30 prósent sem útflutningur þess hrynur, fellur landsframleiðslan um 15 prósentur

"While Italy is in lockdown, Germany allows football matches" - skrifaði Wolfgang Münchau á Eurointelligence í gær. Þýðing: á meðan Rómarsáttmálinn brennur er skálað í bunker í Berlín

ESB og EES er orðið firrusvæði með hross fyrir keisara: 1) Angela Merkel sagði í gær að 60-70 prósentur í landi hennar geti smitast og 2) Berlín heldur risastóran fótboltasmitleik á sama degi og 3) Ítalía fær 2313 ný tilfelli og 196 manns missa lífið. 4) Nokkrum klukkustundum síðar lokar Trump á 26 lönd Evrópusambandsins, og á Schengensvæðið allt, og 5) þar með á Ísland líka. Maður sér næstum fyrir sér flugvélarnar stoppa í loftinu yfir miðju Atlantshafinu og fara í þrot, á meðan kjaftakvörnin í ESB-bunkernum lepur í sig Schengensúpuna og lætur sem ekkert sé. Endar þetta kannski með því að Bandaríkin verða að senda sínar eigin flugvélar eftir ríkisborgurum sínum á meginlandi Evrópu? eins og þeir gerðu í Kína? Fólk hefur fram til miðnættis á föstudag til að koma sér heim. Ekkert flugfélag getur gert út á að fljúga bara strönduðum bandarískum ríkisborgurum til baka til Bandaríkjanna?? Íslandi er komið fyrr í sömu vírussúpuskál og Kína og Íran, allt vegna EES og Schengenþvælu bjána og sérfræðiliðs sem er ekki sérfræðingar frekar en var í banka- og fjármálageiranum, heldur kæruleysingjar sem láta tækifærin til að gera hið rétta renna sér úr greipum. Og fyrir hvað? Jú fyrir nokkrar fyrirfram steindauðar hamborgaraétandi túrhestahænur með ferðanjálg. Öllu hætt fyrir ekkert. Allir með heila áttu að vita að að þessu kæmi, fyrst að ekkert var gert varðandi Ítalíu og þar á undan Kína. Markvissar fallítaðgerðir er réttnefni á þetta ESB- og Schengenlið

LOKA BER Á ALMENNT FLUG TIL ÍSLANDS - STRAX

Það er rétt hjá Merkel að 70 prósent geti smitast (sjá frétt Mbl neðst). Þýska dagblaðið Die Welt er því komið með fyrirsögnina:

"Slæmt að vera hræddur, en enn verra er að vera það ekki"

Í dag er það kærulausa fólkið sem tekur þetta mál ekki alvarlega, sem er hve hættulegast lýðheilsu okkar Íslendinga. Í þeim hópi viðrist ríkisstjórn Íslands vera ásamt Landlæknis- og Sóttvarnarlæknisembættunum. Þau áttu að vera búin að leggja til lokun landsins fyrir löngu

Vonandi hlustar enginn á Angelu Merkel í þeim efnum að ekki skuli loka landamærum landa, því þar er hún með leynda dagskrá. Þýska stjórnarskráin bannar henni að loka Þýskalandi. Það eru aðeins sambandsríkin sjálf (ländern) í Þýskalandi sem hafa vald til þess. Og þau stara öll hvort annað í hnakkann og þora ekki að gera neitt af ótta við að eitthvað verði flutt frá þeim yfir í annað sambandsríkið. Þannig neitaði Berlín í gær að banna stóran fótboltaleik og samkomur af ótta við að skipuleggjendur myndu flytja hann og aðra viðburði yfir til nágrannaríkis Brandenburg. Sambandsríkisstjórnin í Berlín og heilbrigðisráðherra Þýskalands leika aðeins samþættingar (e. coordinator) hlutverkið í svona málum. Þýskaland er því svo gott sem stjórn- og varnarlaust í þessu máli, svipað og allt Evrópusambandið-, EES-, og Schengen hefur sýnt sig vera. Okkur hér á Íslandi blæðir fyrir það. Okkur blæðir vegna EES og Schengen

Það er athyglivert að skoða samhengið á milli talna í gagnagrunninum sem allir eru að stara á og sem landakort Wuhan-veirunnar er búið til úr. Til dæmis það að fyrsta dauðsfallið á Ítalíu var ekki skráð fyrr en 21. febrúar. En fyrsta skráða tilfellið af kínversku Wuhan-veirunni á Ítalíu var skráð 31. janúar. Það er ekki fyrr en eftir 21 dag (21. febrúar) að fyrsti sjúklingurinn deyr á Ítalíu og 7-8 dögum síðar byrja dauðsföllin að hrannast upp í þeim hluta Ítalíu sem hefur hinn allra besta hluta heilbrigðiskerfisins, en sem nú þegar er komið á hliðina

Fyrsta skráða tilfellið á Íslandi er 28. febrúar. Fólk mun því sennilega ekki byrja að deyja á Íslandi fyrr en eftir ca. 12-14 daga, frá og með nú. Það tekur tíma að veikjast (incubation) og ganga einkennalaus með veiruna og smita aðra, síðan tekur tíma að liggja veikur, og svo tekur tíma að deyja. Síðan mun áhlaup af stjórnlaust innfluttum Schengen-smitum skella á heilbrigðiskerfinu og leggja það á hliðina. En við það styttist legutíminn, því leguplássið gufar þá því sem næst samstundis upp, og miklu hraðar en hægt er að bæta úr. Við það styttist tíminn milli smits og dauða - og önnur dauðsföll vegna annarra sjúkdóma sem þá er ekki hægt að meðhöndla, byrja að bætast við

Fyrsta tilfellið í Frakklandi er skráð 24. janúar en fyrsta dauðsfallið verður svo þann 15. febrúar, sem bendir til að veiran hafi verið í landinu í að minnsta kosti mánuð. Þetta útskýrir þann mismun sem er á dauðsföllum í Þýskalandi og Frakklandi núna. Frakkland er nokkrum dögum á undan Þýskalandi á tímaásnum. En Ítalía er fyrst á tímaásnum, og náði vegna ESB/EES og Schengen að dreifa veirunni stjórnlaust út til að minnsta kosti 30 annarra landa í Evrópu, þar á meðal til okkar hér á Íslandi

Þeim sem annt er um líf sitt og heilsu –og embætti sín– ættu að lesa það sem Wolfgang Münchau á Eurointelligence skrifaði um Wuhan-veirumálið í Evrópu í gær: Virus math. Og sérstaklega ættu allir að lesa það sem læknirinn Jason Van Schoor í Bretlandi er að koma á framfæri sem neyðarópi og varnaðarorðum frá lækni í Lombardy á Ítalíu. Smellið því á Jason Van Schoor-krækjuna í greinargerð Münchau og lesið hana

Þeir sem eyða allri sinni starfsorku í að vita ekkert og að aðhafast ekkert, ættu ekki að láta leggja sig inn vegna ofþreytu, því ekkert legupláss er til fyrir þá lengur. Bendi ég því fólki á ganga í nýja Veit-ekkert flokkinn (Know-Nothing party)

Fyrri færsla

Wuhan-veiran: Stýrir Evrópusambandið sóttvörnum á Íslandi? Olíuverð hrunið


mbl.is Segir 70% Þjóðverja geta smitast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wuhan-veiran: Stýrir Evrópusambandið sóttvörnum á Íslandi? Olíuverð hrunið

Wuhan-veiru-strategía ESB - Telegraph 6 mars 2020

Mynd Telegraph: "The actual strategy we are following comes from the European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC), the EU’s main public health body" (sem nú er ein og samfelld rjúkandi rúst)

****

Á vefsíðum hins breska dagblaðs Telegraph, var á föstudaginn frétt þess efnis að öll lönd Evrópusambandsins, og EES-lönd líka, væru að fylgja stefnu og áætlunum ókjörinna embættismanna í Brussel í baráttunni við kínversku Wuhan-veiruna. Birt var mynd með íslenska þjóðfánanum í hrærigraut með öðrum ESB-löndum, sem annað hvort eru mjög sýkt af kínversku Wuhan-veirunni, eða eru að sýkjast af henni á ógnarhraða, og svo Ítalíu sem af sama fólki hefur verið sturtað inn í hið fullkomna stjórnleysi og allt að því upplausn. Blaðið segir að öll þessi lönd séu að fylgja áætlun og vinnuteikningum Evrópusambandsins í málinu, sem varðar lýðheilsu okkar Íslendinga allra, og efnahag landsins. Ítalía hefur verið að fylgja þessum vinnuteikningum og er því á barmi upplausnar núna, þar sem enginn veit lengur hver stjórnar landinu, eða hvort að því sé yfirhöfuð stjórnað, eða jafnvel hvort að það sé enn stjórnhæft eftir að hafa næstum liðast í sundur undir evru- og esb-aðild undanfarin 30 ár og sem grafið hefur svo undan heilbrigðskerfi landsins að það má alls ekki við neinum áföllum

Eurointelligence 26. febrúar 2020: "EU health ministers yesterday decided against border closures or even milder forms of travel restrictions on the grounds that they considered such measures disproportionate. One of those was Jens Spahn, the German minister, who claimed his country was well prepared for a crisis outbreak. The complacency of policymakers reminds us of the early phase of the eurozone crisis. That was based on backward-looking economic analysis at the time, and a lack of understanding how a financial crisis can spread across borders. We are seeing the same complacency at work again. [...] In view of the complacency of health ministers it is far from clear that we are better placed to deal with the disease than the Chinese. The Chinese initially allowed the disease to fester and spread unchecked, but have since taken draconian measures to control it."

Þann 25. febrúar síðastliðinn héldu heilbrigðisráðherrar Evrópusambandlanda fund um löngu lenta Wuhan-veiruna á Ítalíu og höfnuðu því að landamærum væri lokað. Þeir höfnuðu einnig öllum takmörkunum á ferðum manna, jafnvel þeim allra mildustu. Þar hélt þýski ráðherrann Jens Spahn því fram að Þýskaland væri "mjög vel í stakk búið" að takast á við veiruna. Komið er í ljós að svo var alls ekki. Þetta skrifaði Wolfgang Munchau þann 26. febrúar úr greiningarfyrirtæki sínu eurointelligence.com sem daglega greinir stöðu mála í Evrópusambandinu, en hefur nú flutt sig um set yfir til Bretlands. Munchau var áður ritstóri þýsku útgáfu Financial Times, sem lokað var vegna áhugaleysis Þjóðverja á umheiminum

GÁFU SÍÐAN ÚT GÚMMÍTÉKK KL. 05:00 Í DAG

Í Þýskalandi –samkvæmt frétt Bloomberg áðan– gefa hinir sömu ráðamenn út þann óútfyllta víxil í dag að "ekkert þýskt fyrirtæki megi verða gjaldþrota vegna Wuhan-veirunnar". Þetta er líklega stærsti óútfyllti víxill sögunar sagði fréttamaður stöðvarinnar. Fyrir nokkrum dögum síðan átti ekkert að vera að neins staðar í öllu Evrópusambandinu og allra síst í Þýskalandi. Svipað sagði sænska ríkisstjórnin er seðlabanki Svíþjóðar hækkaði stýrivexti í 500 prósentur til að verja einhliða EMS-bindingu sænsku krónunnar við musteri ERM-pyntingarklefa ESB 1992, en gafst svo auðvitað upp nokkrum dögum síðar. Aldrei að vanmeta heimsku, ábyrgðarleysi, vangetu og hroka embættis- og stjórnmálamanna

ÞOKULÚÐRASVEIT OG ÞOKUBAKKAR ESB

"Waiting for the brain fog to lift"
"Eurozone finance ministers reiterate that nothing is more urgent than waiting."

Þann 5. mars skrifaði Munchau einnig að beðið sé eftir að heilaþokunni létti hvað varðar ECB-seðlabankaling evru þegar að hans hlutverki kemur í þessu stórkostlega afneitunarmáli allra í Evrópusambandinu. Nokkrum dögum áður hafði bandaríski Federal Reserve seðlabankinn gripið til harkalegra mótvægisaðgerða til að létta Bandaríkjunum baráttuna gegn hinum efnahagslegum áhrifum Wuhan-veirunnar, með því að lækka vexti og tryggja aðgengi bankakerfisins að lausafé. ECB-seðlabankinn er enn að glíma við evru-hrunið-2009 og getur ekki lækkað vexti því þeir eru þegar núll. Engri þoku hefur þar létt. Hún er meira að segja borin á borð evru-landa á þökubökkum alla daga ársins, ár eftir ár

Fyrir mér hljómar sóttvarnarstefna- og aðgerðafærði embætta Landlæknis, Sóttvarnarlæknis, heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnar eins og að þeir myndu senda Vestmannaeyingum þær nýju leiðbeiningar að aldrei aftur mættu þeir reyna að stöðva hraunflæði, sökum þess að slíkt gæti skaðað eldgos annars staðar á jörðinni. Ég bara skil ekki svona ESB/EES og Schengen-hálfkák og sýrusósur. Enginn dýralæknir myndi fara svona að í sóttvörnum, með því að innflutningi á sýkingum skuli hvað sem það kostar haldið áfram, í þeirri trú að hægt sé að hafa stjórn á þeim innan girðingar. Hvað er að gerast hér? Hefur fullveldi þjóðarinnar í þessum málum, sem og mörgum öðrum, verið kastað fyrir róða? Þetta mun kosta íslensku þjóðina ofboðslega. Þessi vanræksla mun kosta okkur ofboðslega

Á sama tíma hvetur Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands alla til að gera eins og gert var í Egyptalandinu (nú ESB) sem Ísraelar (nú Bretar) gengu út af; þ.e. að hlýða faraó og gagnrýna engan nokkru sinni fyrir að hafa breytt Íslandi í pestarbæli með því að hlusta áfram á þá sem breytt hafa 30 löndum í Evrópu í stjórnlausa ruslahrúgu ábyrgðarlausra embættismanna, sem hvorki getur skilgreinst sem réttaríki né siðmenntað fyrirbæri. Í gamla daga voru Ítalir fremstir í sóttvörnum. Þeir lærðu það í Svarta dauða, sem talinn er hafa komið í land um ítalskar hafnir á Suður-Ítalíu frá Asíu

LEVEL-4

Það er svona sem útbreiðsla Rússlands í Evrópu myndi ganga fyrir sig, væru Bandaríkin ekki þar. Hún myndi ganga jafnvel enn betur en útbreiðsla kínversku Wuhan-veirunnar. Þýskaland og Evrópusambandið viðhafa nákvæmlega sömu stefnu þar. Bjóða veirunni inn og taka upp löggjöf hennar og gera sig háða henni. Og enginn nema örfáir virðast setja spurningarmerki við að eina LEVEL-4 rannsóknarstofa Kína í veirurannsóknum, er staðsett rétt við Wuhan í Wuhan Institute of Virology of the Chinese Academy of Sciences, þar sem magn dýra er notað til rannsókna í því hvernig vopngera megi veirur, eða þróa bóluefni við þeim. Hvað nú ef fégráðugir svo kallaðir "kínverskir kommúnistar" seldu sýkt dýr á útimarkaðinum sem veiran er sögð hafa komist í umferð. Á þessum markaði er næstum hvað sem er lifandi selt sem mannamatur. Og enginn spyr heldur að því hvers vegna Ítalía og Íran, af öllum stöðum á jörðinni, eru nú orðin aðal-dreifingarmiðstöðvar fyrir kínversku Wuhan-veiruna í heiminum, fyrir utan Kína. Sumir vita kannski að Íran er náið samstarfsland Kína og Norður-Kóreu, og að Kína er einn stærsti viðskiptavinur Írans þegar að olíu kemur. Nánar um viðbrögð heimsins við Wuhan-veirunni má lesa í grein Victors Davis Hansonar sagnfræðings í klassískri sögu og hernaði; hér. Og atburðarrásar-greiningu Wall Street Journal á upptökunum að veirugosi kínverska kommúnistaflokksins yfir heiminn, má lesa hér. Það er sennilega af þeim flokki sem Evrópusambandið hefur lært að gjósa veirum yfir íbúa sambandsins, með því að aðhafast ekkert og afneita vandamálinu þar til allt logar stafnanna á milli

VAR EKKI Á "HÆTTUSVÆÐI"

Á gjörgæsludeild Landspítalans ættu þeir að vera sem skipulagt hafa þessa ruslahrúgu Evrópusambandsins,- EES-ríkja,- og Schengensósunnar. En í staðinn voru þar að störfum opinberir starfsmenn heilbrigðiskerfis okkar, ný komnir af Wuhan-veirusvæði kínverska kommúnistaflokksins í Evrópu og Evrópusambandsins á Ítalíu, þar sem þeir voru í fríi á veirusvæði sem heilbrigðisyfirvöld þar, og hér, og í 30 löndum Evrópu sögu að væri ekki veirusvæði, vegna þess að hvaða annar heiladordingull Evrópusambandsins sem er, sagði þeim að þar væru engar hættur samkvæmt ferða-lagaverki Evrópusambandsins

Screen Shot 2020-03-09 at 04.45.40

Mynd úr kerfi WSJ: WTI á Nymex og Brent

NÆST MESTA HRUN OLÍUVERÐS

"What makes this price war especially dangerous and historic is it breaks out simultaneously with a massive demand shock…from the coronavirus" said Robert McNally, president of Rapidan Energy Group, a Washington, D.C.-based energy-market consulting firm. [..] "We have not seen that toxic combination since the early 1930s when [Texas] monster Black Giant field started up in the teeth of the Depression, sending crude oil prices down to pennies on the barrel." | WSJ

Næstmesta innan-dags hrun olíuverðs í sögunni varð í nótt, þegar það fréttist að samstaðan i export-karteli OPEC og Rússlands hefði rofnað. Á skrifandi stund er það rúmlega 32 prósent og virðist færast í aukna, en gæti þó rétt úr kútnum síðar í dag. Hver veit. Miklar og þungar hreyfingar hafa sést á gjaldeyrismökuðum heimsins

Screen Shot 2020-03-09 at 05.14.54

Mynd: Af forsíðu Telegraph

ESB-ÍTALSKUR FARSI BREIÐIR ÚR SÉR

"We thought we’d find the army here, but there have been absolutely no checks," said Ali Anir, who was changing trains in Milan with his girlfriend on their way to their home in Verona. There was no immediate disruption to air travel, either, with scheduled flights still departing and landing in Milan. A sign at Milan’s Linate airport assured passengers that regular service was continuing. WSJ

Lítið hefur gerst við það að ítölsk stjórnvöld sögðust hafa lokað fjórðung þjóðarinnar inni í hvað-sem-það-kostar galopnu Schengen-pestarbæli Evrópusambandsins á Norður-Ítalíu. Engin flug frá Mílanó út í heim hafa stöðvast og lestir ganga áfram. Það eina sem virðist hafa gerst er að DDRÚV trúði á fréttir frá svo kölluðum ófullvalda yfirvöldum einhversstaðar á Ítalíu. Meira að segja var það sérstaklega tekið fram á vefsíðu alþjóðaflugvallar Mílanó að allt sé eins og venjulega og öll flug enn á lofti, þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda. Þetta er farsi segja menn í Bretlandi. Og allt að því sprenghlægilegt er að lesa grein Wall Street Journal um "ítölsku sóttkvína"

Fyrri færsla

ESB-sovétríkið: Kári fær ekki að skima fyrir kórónuveiru


ESB-sovétríkið: Kári fær ekki að skima fyrir kórónuveiru

KÁRI LENTUR INNAN HINS NÝJA JÁRNTJALDS ESB

Gagna- og persónuverndarlöggjöf Evrópusambandsins kemur í veg fyrir tækniframfarir á Íslandi og lokar á að íslensk fyrirtæki geti tekið þátt í hinum stafræna tækniheimi veraldar. Kommúnistaveiran frá Evrópusambandinu hefur náð að sýkja öll höfuð hins hauslausa hers þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sem nú tekur þátt í því að reyna að stjórna því sem ekki er mögulegt að stjórna

Flokkurinn virðist hafa afneitað veruleikanum. Aldrei hefur eins vonlaust fólk staðið í stafni þess flokks og skríður þar fyrir ESB núna. Íslensk fyrirtæki eru frá og með samþykkt Persónuverndarlöggjafar eða GDPR Evrópusambandsins, höfnuð innan landamæra hinna nýju sovétríkja Gamla heimsins. Enda ekki skrýtið þar sem um nomenklattúruklessur á háum opinberum launum er hér að ræða. Hugtakið vonlaust fólk hefur fengið nýja merkingu

Þú hefur alla mína samúð Kári. Eina leiðin er sennilega að flytja fyrirtækið út úr EES-lögsögu Evrópusambandsins og fara með það yfir í the Anglosphere. Það er styttra til fullvalda Bretlands en marga grunar. Þess vegna er Google að flytja öll gögn bresku þjóðarinnar þangað yfir, og til Bandaríkjanna líka. Burt af lögsögu sovétríkis ESB

Og eftir styttri tíma en flesta grunar, munu allir þeir iPhones Apple Inc. sem seldir verða í Evrópu, verða framleiddir í Stóra-Bretlandi, svipað og þeir sem seldir eru á Indlandi eru Made in India, designed in Californina, og það gildir einnig um hönnun CPU og GPU þessarar ofurlófatölvu - og öll gögn hennar. Bara það eitt að kveikja á henni býr til göng sem útópískt ESB ætlar að stjórna

Bless bjánar, ég kýs ykkur skríðandi fólk í stafni aldrei aftur. Aldrei! Þið hafið eyðilagt flokkinn minn. Þið eruð aumingjar

Haldið endilega áfram að steikja hamborgara ofan í engisprettu-spastíska erlenda ferðamenn með ferðalús og auralekanda, til þess höfum við jú byggt háskólana

Fyrri færsla

Heilasködduð íslensk yfirvöld og kínverska Wuhan-veiran


mbl.is Kári fær ekki að skima fyrir kórónuveiru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilasködduð íslensk yfirvöld og kínverska Wuhan-veiran

ALLT MEGINLAND EVRÓPU ER HÆTTUSVÆÐI

Að því er virðist heilabiluð íslensk yfirvöld halda enn að eitthvað sé að marka þær upplýsingar sem þau fá frá löndum Evrópuvírussambandsins. Þær er ekkert að marka. Þar eru menn algerlega úti að synda í sýrunni og aðhafast ekkert. Ekkert! Málið er ekki einu sinni efst á blöðum fjölmiðla og 76 prósent Þjóðverja halda enn að þeir fái bara alls ekki veiruna og 66 prósent halda að ríkisstjórnin sem búin er að brenna sum lönd Evrópusambandsins til ösku á síðustu 13 árum, hafi "fulla stjórn" á málunum. Fyrir þá sem ekki vita það þá er Schengen,- og EES,- beintenging Íslands við fornöld, og þriðjastigs hættubæli, þar sem næstum 800 ný Wuhan-tilfelli sprungu út á Ítalíu á síðustu 24 tímum og tilfellum í Frakklandi fjölgaði um 53 prósentur í 577, fyrir utan öll hin ómældu tilfellin sem flögra fjórfrelsuð um útópískt Schengen inn í landið, og um það, dag og nótt: Heimsborgarinn sjálfur með vegabréf frá Útópíu

The German government, too, announced a stimulus. The financial journalist André Kühnlenz managed to calculate the impact on GDP: 0.008%. We normally don’t report numbers to the third decimal figure, but German economic policy leaves us with no other choice.

We note an almost total lack of urgency in the German media. The main news in Tagesschau this morning is Turkey, understandably, followed by the CDU leadership contest and Elisabeth Warren’s withdrawal from the US presidential race. The main Covid-19 news is much further down. A survey says that the Germans are extremely relaxed about the virus. While we would agree that people should not panic, we believe that the survey results reflect a delusional state of complacency. 66% of the respondents believe the German government has the virus under control. And an astonishingly high 76% believe that they will not get infected, either for sure or with a high probability.HÉR

Ísland verður að grípa til sinna ráða og setja bremsuklossana á frekari innflutning smita með því að banna allar komur erlendra ferðamanna inn í landið og hætta að halda að mögulegt sé að hafa stjórn á fólki í sjálfs-sóttkví. Svo segir það sig sjálft að þeir sem voru að fara í þessar skíðaferðir svona seint, vel vitandi hvað var að gerast á Ítalíu, eru mestu kæruleysingjar landsins. Af hverju ætti að vera hægt að teysta þeim til að vera í sjálfs-sóttkví? Fólk er fólk og fífl eru fífl

Það sáu Ísraelsmenn er hátt í hundrað þúsund manns voru komnir í sóttkví og verið var að nappa hina og þessa úti í búð, en sem áttu að vera í sóttkví. Í morgun kl. 06:00 var því lokað á allt innflæði erlendra ferðamanna inn í fullvalda Ísrael. Í Bretlandi er ekki tekið á þessum máli með sama fífla- og ábyrgðarleysishætti og gert er á meginlandi Evrópusambandsins. Það skyldi því ekki undra neinn að Pútín forseti Rússlands ásaki Ítalíu um að breiða út drepsótt. Og hann hefur rétt fyrir sér. Smitandi ítalskir ferðamenn eru nú teknir úr umferð í hinum og þessum löndum, fimmtán á Indlandi í fyrradag. Sama mun gilda um Íslendinga haldi þetta kæruleysislega hálfkák áfram hér heima

Haldi þetta svona áfram mun þetta enda með útgöngubanni allra hér á Íslandi eins og gert hefur verið á Hokkaidoeyju í Japan, nema að heimurinn loki á okkur til að bjarga okkur frá algerlega óhæfum íslenskum yfirvöldum sem haldin eru Schengen- og EES-trúarlegum sótthita í þessu máli, sem og flestum öðrum. Stöðvið þetta kák! Setjið dýralæknir í þetta og leggið ábyrgðarlausa ríkisstjórnina inn á Klepp. Þar yrði þá sannarlega um hámarksnyt á þeirri byggingu að ræða. Það er hneisa að eyþjóð eins og við séum að missa svona tökin á þessu

Hvar er annars ríkisstjórn Íslands. Er hún kannski enn í stikkfríi á Ítalíu, étandi beina gúrkustaura í Schengensósu? Ef svo er, ekki hleypa henni inn í landið aftur

Fyrri færsla

Kínverska drepsóttin: Ísrael lokar á sýkt og hættuleg lönd Evrópusambandsins 


mbl.is Fyrstu innlendu smitin - lýsa yfir neyðarstigi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kínverska drepsóttin: Ísrael lokar á sýkt og hættuleg lönd Evrópusambandsins

SÓTTVARNIR FULLVALDA ÍSRAELS

Ríkisstjórn Ísraels tilkynnti í gær að lokað væri frá og með nú á aðgang fólks frá Frakklandi, Þýskalandi, Spáni, Austurríki og Sviss, inn í Ísraelsríki, vegna bráðsmitandi útbreiðslu kínversku kórónaveirunnar þar í löndum. Fólk frá þessum löndum fær ekki lengur að koma inn í Ísrael nema að geta sannað að það hafi sjálft stað til að setja sig í sóttkví innan landamæra Ísraels

Síðar í gær gaf innanríkisráðuneytið einnig út þá fyrirskipun að engum ferðamönnum frá þessum löndum yrði hleypt inn í Ísrael frá og með klukkan 06:00 næstkomandi föstudag. Þeim ferðamönnum sem vilja komast til Ísraels áður en lokunin tekur gildi, verður þó ekki vísað frá

Um það bil sjö þúsund manns eru í einangrun vegna kínversku drepsóttarinnar í landinu og um 50 til 100 þúsund eru sóttkví, samkvæmt JP. Hafa nú greinst 15 tilfelli af henni í Ísrael

Þessi ákvörðun kemur í kjölfar sambærilegra skilyrða fyrir fólk og ferðamenn frá Kína, Hong Kong, Taílandi, Singapúr, Macau, Suður-Kóreu, Japan - og Ítalíu, þar sem yfir 1000 ný smitandi tilfelli af kínversku krónaveirunni greindust í mönnum á síðustu 48 tímum. Fimmtán smitandi Ítalir voru teknir úr umferð sem ferðamenn á Indlandi í gær

Samhliða þessu bannaði ríkisstjórn Ísraels allar samkomur manna yfir 100 manns, hafi einhver þeirra verið erlendis á síðustu 14 dögum. Allar samkomur fleiri en 5000 manna eru bannaðar í landinu | AFP | Times of Israel

ÍSLAND

Greinilegt er að Ísrael er fullvalda og sjálfsætt ríki. Það hætti Ísland hins vegar að vera þegar það gerðist aðili að EES, Schengen og Orkubandalagi Evrópusambandsins. Annars værum við nú þegar búin að gera það sem fullvalda Ísrael gerir í sóttvarnarmálum, þjóð þess lands til varnar. Alla daga frá stofnun hins fullvalda Ísraelsríkis 1948, hafa allar ríkisstjórnir þess, án undantekninga, litið á það sem frumskyldur sínar að verja líf, limi og eigur þjóðarinnar sem kaus þær til valda

Að forsætisráðherra Íslands sé hugmyndafræðilega fremst í lífstortímandi fóstureyðingum fram að fæðingu barna, er þegar vitað. En er hún síðust í sóttvörnum sem varðveita líf. Ég spyr. Og hvað með Svandísi Sovét? Ég sleppi viljandi að minnast á Plebbahöllina að þessu sinni. Allir vita hvar hún er í Untergang-bunker flokksins, sem nú er úr sér gengið brak

Og hvað með það fyrirbæri sem stundum er kallað þjóðkjörin Ríkisstjórn Íslands. Hún samanstendur af fólki sem fær ofurlaun hjá okkur skattgreiðendum til að sinna fyrst og fremst þeim frumskyldum að verja líf, limi og eigur okkar sem erum þjóðin. Eruð þið kannski ekki í þjóðinni lengur? Ég spyr, því lítil merki um það sjást héðan, sé horft til ykkar frá sjónarhorni þjóðarinnar

Hver einasti nýr flugvélafarmur af erlendum ferðamönnum sem kemur til Íslands, togar nú efnahag landsins niður eins og trollhleri, og tap mannslífa er það eina sem verður í pokanum. Ábyrgðarleysið eitt og heimskan stendur stímið í brúnni við að draga vörumerkið Ísland eftir botni hennar

Af hverju heldur ríkisstjórn Íslands áfram að dæla kínverskri drepsótt inn í Ísland og yfir þjóðina. Af hverju? Auðvitað þarf ég ekki að spyrja, því hér er um enn eitt svartnættistilfellið af EES- og Schengen-ofsatrú að ræða. Beintenginguna við stjórnlaust og ábyrgðarlaust Evrópusambandið. Allt um það fyrirbæri vita Ísraelsmenn manna best. Þeir þekkja hið gamla og landlæga viðbjóðsbragð ábyrgðarleysisins frá Evrópu of vel til að búast við neinu nema meiru af hinu sama gamla þaðan. Enda er kínverska veiran þegar byrjuð að grassera í sjálfum byggingum aðalstöðva ábyrgðarleysisins í Brussel

BANDARÍKIN

Mike Pence varaforseti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að innan næstu 7 klst. yrðu allir farþegar sem koma með beinu flugi frá Ítalíu og Suður-Kóreu settir í veirugreiningu áður en þeir stíga upp í flugvél í heimalandi sínu og síðan aftur við komuna til Bandaríkjanna. Hann sagði að eftir 7 klst. væri skipunin komin í framkvæmd. Hún er því í framkvæmd núna. Landgöngubann inn í Bandaríkin hefur verið í gildi frá og með 31. janúar á þá erlendu ríkisborgara sem hafa verið í Kína á síðustu 14 dögum. Hið sama gildir um Íran, frá og með 26 febrúar. Eiginlegt ferðabann hefur verið sett á hluta Ítalíu, Lombardy og Veneto, og öll Ítalía hefur verið skilgreind sem þriðja stigs pestarbæli

TÍMAR ÞJÓÐLAUSRA "HEIMSBORGARA" ?

Því fólki sem fyrir bara þremur mánuðum síðan kallaði sig "borgarar heimsins" (e. citizens of the world), virðist ekki lengur líka vistin "þarna úti" án fósturjarðar. Það krefst meira segja forgangs inn í viss lönd fram yfir aðra "heimsborgara" veraldar. Það heimtar jafnvel beint jarðsamband við fósturjörðina. Hvernig skyldi standa á þessum snöggu hamskiptum, eða eigum við að kalla þetta glóbal transvestítisma

Nú standa heimsborgararnir bara á gömlu brókinni með stimpilinn bjáni þrykktan á ennið og heimta að fá að njóta þess sem gefið var skít í áður, og sagt var að skipti bara alls engu máli. Og þeir heimta jafnvel landamæri í eftirrétt, til að aðskilja það sjálft frá öllu hinu "þarna úti". Hvernig má það vera?

Allt í einu skiptir öllu máli hvaðan heimsborgararnir koma og hvar þeir eru ekki fæddir. Þeir virðast allt í einu hættir að vilja vera frá allsstaðar og hvergi

Eitt púff úr því sem Gamla testamentið varar við; og 30-ára-stór ruslahrúga af háskólaðri þvælu fýkur bara burt af borðinu. "Global supply chains" og 63-ára-langt imperíal pappírsæði Evrópusambandsins, evru og Schengen-Baal-trúarinnar virkaði ekki eins og Heiðnikirkjuveldi háskólanna boðaði af pappírsfjallinu. Ekkert var á því fjalli að byggja í neinum efnum, nema óefnum

ÞJÓÐLAUSUM BLÆÐIR ÚT

"When we become citizens of the world, that is, citizens of everyplace, then we end up citizens of utopia"

Sjöttu kynslóðar rúsínubóndinn í sama gamla Hanson-húsinu í Selma í Kaliforníu, og samhliða því starfi einnig prófessorinn við Stanford í klassískri sögu og hernaði, hefur skrifað afar góða og lýsandi grein. Gefum hinum sænskættaða Victor Davis Hanson bónda orðið: Globalization Bleeding

Fyrri færsla

Stjórnlaust Ísland fest í EES- og Schengen-drepsóttarfaraldri


Stjórnlaust Ísland fest í EES- og Schengen-drepsóttarfaraldri

ER ÍSLAND STJÓRNLAUST?

Hér á Íslandi eru orsakir drepsóttarhernaðar kínverskrar kórónaveiru á þjóðina fyrst og fremst pólitískar, og útbreiðsla veirunnar er knúin pólitísku dreifingarkerfi. Ljóst er að svo kölluð embætti Landlæknis og Sóttvarnarlæknis eru Potemkim leiktjöld Schengen- og EES aðildar Íslands. Annað kemur varla til greina, nema að þeir sem sitji í þessum tveimur embættum séu óhæfir kuklarar og því hættulegir lýðheilsu okkar Íslendinga, andstætt stofntilgangi beggja þessara embætta hins íslenska lýðveldis

Lesið er upp úr Schengen-sértrúarbiblíunni og hana hef ég heyrt áður. Ég hlustaði á uppgjafarþulur hennar er hinu gagnslausa grumsi Schengen var logið að dönsku þjóðinni þegar landamærin voru opnuð á sínum tíma, og Dönum sagt að öll ESB-veiran myndi nást og handtakast föst á bak við þeirra eigin landamæri. Öllu væri hleypt inn og í bál og brand, en sem síðan átti að slökkvast rétt innan við þau, en röngu megin við rimlana. Svona eins og að allar frumur mannslíkamans myndu leggja niður veggi sína gagnvart hvor annarri og verða ein fruma. Aðeins þyrfti þá eina vespustungu til að drepa allan líkamann

FJÓRFRELSI DREPSÓTTAR

Ég sé fyrir mér eftirfarandi dilemma eða klípu - og ég undirstrika að það eru fyrst og fremst ESB-pólitískar ástæður fyrir útbreiðslu kínversku kórónaveirunnar í Evrópusambandinu og á Íslandi:

1. Trump Bandaríkjaforseti er í þeirri stöðu að hann hikar enn við að lýsa yfir ferðabanni á alla þá erlendu ríkisborgara sem hafa verið á Ítalíu á síðustu 14 dögum, eins og hann gerði þegar varðandi Kína þann 31. janúar og Íran þann 26. febrúar. Smit í Bandaríkjunum eru því enn sem komið er hlutfallslega óendanlega færi en í Evrópu og hið sama gildir um dauðsföll - jafnvel þó svo að Bandaríkin séu bæði Atlantshafs- og Kyrrahafsríki og í miklum milljóna manna tengslum yfir bæði höfin hverja einustu viku ársins. Öll Ítalía hefur því verið sett á næsthæsta hættustig í Bandaríkjunum; LEVEL-3. En héruðin Lombardy og Veneto á hinum efnaða hluta Norður-Ítalíu, voru hins vegar sett á LEVEL-4 eða hæsta mögulega hættustig seint á laugardaginn 29. febrúar, það er færð upp á sama hættustig og Kína og Íran

2. Það er þungur þrýstingur á Trump í Bandaríkjunum að lýsa yfir LEVEL-4 hættustigi á alla Ítalíu. Gerist það, fá engir þeir erlendu ríkisborgarar sem verið hafa á Ítalíu síðustu 14 daga að koma inn í Bandaríkin. Eins og með Kína og Íran. En um leið og Trump gerir það þá er stóra steininum hins vegar kastað

3. En Trump forseti hikar vegna þess að um bandamann er að ræða. En ef hann vill láta kjósa sig í nóvember næstkomandi, þá verður hann að lýsa yfir ferðabanni á alla þá sem eiga ekki heima í Bandaríkjunum og hafa verið á Ítalíu á síðustu 14 dögum. Hann verður. En um leið og hann gerir það, þá getur Evrópusambandið ekki látið hjá liða að gera hið sama. Og þar sem Ísland er í EES og Schengen, þá gildir það sama um okkur, svo lengi sem Ísland þorir ekki að vera fyrst til að gera hið eina rétta. Við höfum allar heilsufarslegar ástæður til að gera það. Allar! og gott betur en það

STJÓRNLEYSIÐ

Hinn óhugnanlegi og hrollvekjandi sannleikur er því miður sá, að við værum nú þegar búin að gera þetta sjálf ef við værum ekki aðilar að EES og Schengen. Það þýðir að; værum við enn fullvalda ríki eins og Bandaríkin, þá værum við nú þegar búin að þessu, og hér væri sennilega ekkert einasta kínverskt kórónaveirusmit í öllu landinu, enn sem komið er. Þannig virkar sjálfsákvörðunarréttur þjóða. Til að verjast svona hryllings-ferli heimsvelda-fyrirbæra (e. Imperial-state hönnun) eins og Evrópusambandið, EES og Schengen eru –-í langri og blóðugri hryllingssögu mannkyns– þá var fundið upp fyrirbæri sem heitir þjóð-ríki (e. Nation-state) og sem hafa sjálfsákvörðunarrétt í eigin málum. Sú pólitíska uppfinning er komin úr Gamla testamentinu. Það eru sennilega mestu, bestu og þýðingarmestu framfarir sem orðið hafa hér á jörðinni. En þessa áratugina er eins og að unnið sé markvisst að því að þurrka þann lærdóm og þá blessun út, enn á ný. Þess vegna er ástandið svona núna, kæru Íslendingar. Það hefur verið svindlað á þjóðinni. Ekkert lyf er á tröppunum við þessari kínversku veiru, sama hvað hver segir, nema endurheimtur fulls sjálfsákvörðunarréttar þjóðar

4. Um leið og Trump ýtir á hnappinn þá hættir þetta frjálsa flæði frá Ítalíu og landamæri hennar lokast. Þau væru hins vegar nú þegar lokuð ef Jörg Haider væri þar. En sá maður er látinn og því ekki við. Kannski mætti með góðum rökum giska á að Trump forseti sé að gefa Evrópusambandinu tækifæri á að vera á undan. En hann getur ekki beðið öllu lengur. Hann er að bíða eftir Evrópusambandinu að gera hið eina rétta, en sem stjórnlaust og ábyrgðarlaust sambandið mun auðvitað ekki gera, vegna þess að hugmyndin um Evrópusambandið, evru og Schengen er hugmyndafræði sem nær þannig tökum á fólki, að það gengur ekki með hana, heldur gengur hugmyndin með fólkið, jafnvel í dauðann; þ.e. á endastöð pervertra pólitískra hugmynda - á borð við Evrópusambandið og Schengen. Slíkt hefur ekki sést frá því á dögum svartasta kommúnisma á borð við þann sem var í Sovétríkjunum og er núna við völd í Kína, og víðar í samskonar manngerðum helvítum á jörð. Í öllum þessum löndum fellur fólk ekki fyrir hugmyndinni, heldur fellur það af völdum hennar. Þess vegna er til dæmis Sjálfstæðisflokkurinn fallinn. Hann dó úr EES og Schengen. Hann er steindauður. Það sem við erum að horfa á núna er pólitískt mannfall af völdum ESB-veiru, þar sem fólk er notað sem fallbyssufóður stjórnmálamanna. Það er hinn nakti sannleikur málsins

MEGINLAND TAPRANNA

Það er lúalegt að stjórnmálamen okkar reyni skýla sér á bak við embættismenn í svona máli. Þarna á ég við Landlæknis- og Sóttvarnarlæknisembættið. Ef það er eitthvað eitt sem þjóðkjörnir stjórnmálamenn eru kosnir til að gera, ráða við og leysa, þá er það þetta drepsóttarmál. Stjórnmálamenn eru nefnilega fyrst og fremst kjörnir til að að verja líf, limi og eigur þjóðarinnar. Það er eina einstaka frumskyldan sem fyllilega getur réttlætt tilvist þeirra sjálfra og ríkisstjórnar landsins. Allt annað geta borgararnir séð um sjálfir og í félögum, sé út í það farið og gerist þess nauðsynlega þörf. Ég sé hins vegar engan stjórnmálamann í Evrópusambandinu né á Íslandi vera að gera slíkt, á meðan Trump forseti Bandaríkjanna og Pence varaforseti eru hins vegar á kafi að glíma við þetta mál vestan Atlantsála. Ef þeir gerðu það ekki, væru dagar þeirra sem stjórnmálamanna taldir. Og þannig á það að vera

OG NÚ ERU ÞAÐ SEÐLARNIR

Breska dagblaðið Telegraph sagði í gærkvöldi að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hafi varað við því að kínverska kóróna-drepsóttarveiran geti hangið í marga daga á peningaseðlum, og ráðleggur samkvæmt því

En þá spyr ég: Hvað um póstinn? Og hvað með hraðpóstinn? Fyrir mér hefur frumútbreiðsla kínversku drápsveirunnar í litlum og ríkum bæjum á Norður-Ítalíu alltaf hljómað afar grunsamlega. Kom hún til landsins með hraðpakkapósti, eða með efnuðum Ítölum með sambönd í Kína, sem lenda utan stærri flugvalla, eða með þeim Kínverjum sem búa á Ítalíu?

Fyrri færsla

Drepsóttin: Hið varanlega kreppufyrirkomulag Evrópusambandið


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband