Leita í fréttum mbl.is

Heilasködduð íslensk yfirvöld og kínverska Wuhan-veiran

ALLT MEGINLAND EVRÓPU ER HÆTTUSVÆÐI

Að því er virðist heilabiluð íslensk yfirvöld halda enn að eitthvað sé að marka þær upplýsingar sem þau fá frá löndum Evrópuvírussambandsins. Þær er ekkert að marka. Þar eru menn algerlega úti að synda í sýrunni og aðhafast ekkert. Ekkert! Málið er ekki einu sinni efst á blöðum fjölmiðla og 76 prósent Þjóðverja halda enn að þeir fái bara alls ekki veiruna og 66 prósent halda að ríkisstjórnin sem búin er að brenna sum lönd Evrópusambandsins til ösku á síðustu 13 árum, hafi "fulla stjórn" á málunum. Fyrir þá sem ekki vita það þá er Schengen,- og EES,- beintenging Íslands við fornöld, og þriðjastigs hættubæli, þar sem næstum 800 ný Wuhan-tilfelli sprungu út á Ítalíu á síðustu 24 tímum og tilfellum í Frakklandi fjölgaði um 53 prósentur í 577, fyrir utan öll hin ómældu tilfellin sem flögra fjórfrelsuð um útópískt Schengen inn í landið, og um það, dag og nótt: Heimsborgarinn sjálfur með vegabréf frá Útópíu

The German government, too, announced a stimulus. The financial journalist André Kühnlenz managed to calculate the impact on GDP: 0.008%. We normally don’t report numbers to the third decimal figure, but German economic policy leaves us with no other choice.

We note an almost total lack of urgency in the German media. The main news in Tagesschau this morning is Turkey, understandably, followed by the CDU leadership contest and Elisabeth Warren’s withdrawal from the US presidential race. The main Covid-19 news is much further down. A survey says that the Germans are extremely relaxed about the virus. While we would agree that people should not panic, we believe that the survey results reflect a delusional state of complacency. 66% of the respondents believe the German government has the virus under control. And an astonishingly high 76% believe that they will not get infected, either for sure or with a high probability.HÉR

Ísland verður að grípa til sinna ráða og setja bremsuklossana á frekari innflutning smita með því að banna allar komur erlendra ferðamanna inn í landið og hætta að halda að mögulegt sé að hafa stjórn á fólki í sjálfs-sóttkví. Svo segir það sig sjálft að þeir sem voru að fara í þessar skíðaferðir svona seint, vel vitandi hvað var að gerast á Ítalíu, eru mestu kæruleysingjar landsins. Af hverju ætti að vera hægt að teysta þeim til að vera í sjálfs-sóttkví? Fólk er fólk og fífl eru fífl

Það sáu Ísraelsmenn er hátt í hundrað þúsund manns voru komnir í sóttkví og verið var að nappa hina og þessa úti í búð, en sem áttu að vera í sóttkví. Í morgun kl. 06:00 var því lokað á allt innflæði erlendra ferðamanna inn í fullvalda Ísrael. Í Bretlandi er ekki tekið á þessum máli með sama fífla- og ábyrgðarleysishætti og gert er á meginlandi Evrópusambandsins. Það skyldi því ekki undra neinn að Pútín forseti Rússlands ásaki Ítalíu um að breiða út drepsótt. Og hann hefur rétt fyrir sér. Smitandi ítalskir ferðamenn eru nú teknir úr umferð í hinum og þessum löndum, fimmtán á Indlandi í fyrradag. Sama mun gilda um Íslendinga haldi þetta kæruleysislega hálfkák áfram hér heima

Haldi þetta svona áfram mun þetta enda með útgöngubanni allra hér á Íslandi eins og gert hefur verið á Hokkaidoeyju í Japan, nema að heimurinn loki á okkur til að bjarga okkur frá algerlega óhæfum íslenskum yfirvöldum sem haldin eru Schengen- og EES-trúarlegum sótthita í þessu máli, sem og flestum öðrum. Stöðvið þetta kák! Setjið dýralæknir í þetta og leggið ábyrgðarlausa ríkisstjórnina inn á Klepp. Þar yrði þá sannarlega um hámarksnyt á þeirri byggingu að ræða. Það er hneisa að eyþjóð eins og við séum að missa svona tökin á þessu

Hvar er annars ríkisstjórn Íslands. Er hún kannski enn í stikkfríi á Ítalíu, étandi beina gúrkustaura í Schengensósu? Ef svo er, ekki hleypa henni inn í landið aftur

Fyrri færsla

Kínverska drepsóttin: Ísrael lokar á sýkt og hættuleg lönd Evrópusambandsins 


mbl.is Fyrstu innlendu smitin - lýsa yfir neyðarstigi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 6. mars 2020 kl. 19:19:22

Madríd lokar elliheimili af, til að vernda eldra fólk

WHO: Fölsk von að halda að kínverska Wuhan-veiran hverfi í sumar. (Há, og þess utan er Kína með óendanlega margar nýjar í smíðum. Hafa komist yfir vestræna tækni, sem nú er því komin í hendur alræðisríkis)

Larry Kudlow fjármálaráðherra Bandaríkjanna ráðleggur Bandaríkjamönnum að kaupa hlutabréf

Greindum Wuhan-veirutilfellum í Bandaríkjunum hefur fjölgað í 245 eða í 201 ef frá eru talinn þau sem sótt voru um borð Prinsessu skipið við strendur Japans

Um 4550 smitandi Wuhan-veirutilfelli hafa verið greind á Ítalíu

Gunnar Rögnvaldsson, 6.3.2020 kl. 19:22

2 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar! Takk fyrir síðustu snilld:

Misjafnt hafast nú vitru mennirnir að, hérna var farið með fólk sem þurfti sótthví á HRAFNISTU.

Mann talaði eg við í dag sem hafði verið á fundi með vitringum úr sjórn almannavarna,eg spurði hann hvort honum findist vera unnið rétt að þessum málum hér,ja biddu fyrir þér sagði hann, við erum að gera miklu meira í varnaraðgerðum en öll norðurlöndin enginn að gera neitt nema við.

Óskar Kristinsson, 6.3.2020 kl. 19:59

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 6. mars 2020 kl. 20:00:09

Hráolíuverð er fallið um rúmlega 10 prósentur í dag og stendur WTI-fatið í 41,2 dölum núna á s.st.

Eignarhlutur í stærstu bönkum á meginlandi Evrópu hefur hrunið í verði um 20-30 prósentur á síðustu 10 dögum og hjá helstu flugfélögum er hrunið um 24-42 prósentur á sama tímabili

Wall Street Journal er með forsíðugreinina; "Hvernig byrjaði þetta allt saman"

"How It All Started: China-s Early Coronavirus Missteps. China-s errors, dating back to the very first patients, were compounded by political leaders who dragged their feet to inform the public of the risks and to take decisive control measuresHér

 

 

Gunnar Rögnvaldsson, 6.3.2020 kl. 20:02

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Óskar

Já, eins og í bunker-stemmingunni á árinu fyrir bankahrun. Allt í þessu fína lagi.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 6.3.2020 kl. 20:05

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Gert meira hér, eða hitt þó heldur. Kanntu annan. Við erum enn að dæla erlendum smitum inn í landið

Tveimur dögum eftir að Donald J. Tump forseti Bandaríkjanna, þann 31. janúar, setti algert landgöngubann á þá erlendu ríkisborgara sem höfðu verið í Kína á síðustu 14 dögum, þá hafði Þórdís Kolbrún ráðherra Sjálfstæðisflokksins mestar áhyggjur af því að kínverskir ferðamenn myndu afbóka ferðir til Íslands. Enda er hún í sérflokki á annarri plánetu sem sést ekki lengur nema að notuð sé innrauð ratsjá. Þarna gerði hún EKKERT nema allt öfugt!

Nú neyðast sum bandarísk stórfyrirtæki að senda matarpakka til innlyksa starfsmanna sinna í Kína, svo að þeir lendi ekki í kræsingum á borð við þetta.

Við erum ekki að nota þau verkfæri sem standa þjóðinni til boða og sem nota á í stöðu sem þessari. Það er stjórnmálamönnum okkar að kenna.

Gunnar Rögnvaldsson, 6.3.2020 kl. 20:27

6 identicon

Mikið vona ég að þú sért ekki að horfa á DDRÚV núna Gunnar minn.  Þar er landlæknir að reyna að vera fyndin undir skræku uppklappi Gísla Marteins.  Þau eru að ræða um "skemmtilega" grímuballa Covid búninga.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 6.3.2020 kl. 21:31

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Símon Pétur.

Ég horfi aldrei á DDRÚV nema að ég sé þvingaður til þess vegna annarra. Mér leiðast afturgöngur sovétkynstofnsins.

En ég er hins vegar þvingaður til að borga fyrir það, eins og í Sovétríkjunum og DDR.

Þér að segja hef ég aldrei horft á þátt með homo sósíalsovét-erectus DDRRÚV-viðrininu sem þú nefnir. Ég reyndi það einu sinni, en það gekk ekki upp.

En ég trúi þér samt, því ég finn gulgrænu áruna frá sogskálamiðju þess alla leið hingað.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 6.3.2020 kl. 23:22

8 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ætli kórónuvírusinn leggist á heilabúið í einhverju fólki kannski?

Þorsteinn Siglaugsson, 7.3.2020 kl. 00:21

9 identicon

Sæll Gunnar.

NITWIT-19 vírusinn?

Húsari. (IP-tala skráð) 7.3.2020 kl. 00:30

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir Þorsteinn og Húsari.

Já Þorsteinn, það mætti halda það.

Ég hef ákveðið að reyna að halda mig við þann upprunamerkimiða veirunnar sem Mike Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna undirstrikaði í dag að væri sú eina rétta, og jafnframt sú sem musteri kínverska kommúnistaveiruflokksins notaði fyrst um hana. Hún er þessi: Wuhan-veiran.

En vegna þess að Xi Jinping eiræðisherra Kína er sérstakur vinur forstöðumanns Alþjóða-heilbrigðisstofnunarinnar, og aðstoðaði drjúgt við að koma þeim vonlausa manni í embættið, þá er reynt að breiða yfir þá staðreynd núna með því að sá maður gaf út fjarvistarsannandi nýtt nafn á hana, til þess eins að reyna að breiða yfir það sem satt og rétt er í málinu.

En þín tillaga Húsari er samt ansi passandi á það sem er að gerast hér núna.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 7.3.2020 kl. 00:52

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

laugardagur, 7. mars 2020 kl. 02:32:30

Ég setti krækju á forsíðugrein Wall Street Journal um tilurð kínverska Wuhan-veirumálsins hér fyrir ofan. Hún var birt í gær þann 6. mars 2020. En hér hef ég stolist til að soga út úr henni lista yfir atburðarrásina sem lýst er í þessari ýtarlegu grein hins dugmikla dagblaðs Bandaríkjanna.

Hún sannar að Kínverski Kommúnistaflokkurinn og hin fársjúka valdaelíta hans ber ábyrgð á þeim hryllingi sem gerst hefur, með því að aðhafast ekkert á meðan það var svo auðveldlega hægt, og síðan að reyna að þagga málið niður og refsa fólki.

Þessu landi er ekki treystandi í neinum málum. Það er hryllileg tilhugsun að það hafi komist yfir öflugustu tækni Vesturlanda, með aðstoð Vesturlanda, og sem Vesturlönd geta aðeins haft eftirlit með á meðan hún er á okkar höndum hér á Vesturlöndum, en ekki í Kína. Þessa verður hefnt á komandi árum. Stjórnmálaflokkum og ríkisstjórnum verður sópað burt.

Flawed response to growing evidence

Gunnar Rögnvaldsson, 7.3.2020 kl. 02:34

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

laugardagur, 7. mars 2020 kl. 02:56:25

Rannsaka þyrfti tengsl íslenskra stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka við Kínverska Kommúnistaflokkinn og kortleggja þau. Það er ills viti að raðdómgreindarskertur Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins skuli sitja í bankaráði AIIB, sem er verkfæri kommúnistaflokksins fyrir svæsinn kínverskan imperíalisma, og sem óneitanlega minnir á veiru sem breiðist út.

Og kannski ber að skoða ýtrast óábyrga hegðun Þórdísar Kolbrúnar ráðherra Sjálfstæðisflokksins í þessu máli í því ljósi. Um það skal ég ekki segja. En hún hafði akkúrat ekkert "á hreinu" í þessu máli og hefur ekki enn, og mun aldrei hafa, fyrst að hún hafði það ekki þarna. Þar var allt á óhreinu, sérstaklega í ljósi þess að tveimur dögum áður höfðu hvorki meira né minna en sjálf Bandaríkin sett landgöngubann á þá erlendu ríkisborgara sem höfðu verið í Kína á síðustu 14 dögum.

Gunnar Rögnvaldsson, 7.3.2020 kl. 02:58

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

laugardagur, 7. mars 2020 kl. 03:17:06

Ég hvet alla til að horfa á viðtalið við Dr. Richard Hatchett sem Viljinn birti og skrifaði um í gær.

Mesta heimsógn frá spænsku veikinni: Kórónaveiran gæti smitað 50-75% mannkyns

-

Gunnar Rögnvaldsson, 7.3.2020 kl. 03:18

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

laugardagur, 7. mars 2020 kl. 03:39:17

Þýska dagblaðið Die Welt skrifar um stjórnleysi í þessu máli í Þýskalandi, þar sem tæki og tól til að greina Wuhan-veiruna eru að sögn blaðsins oft ófáanleg og fólk getur ekki fengið greiningu

Das Chaos mit dem Coronavirus-Test

Gunnar Rögnvaldsson, 7.3.2020 kl. 03:40

15 Smámynd: Ómar Geirsson

Góður Gunnar, alltaf góður.

Og þú ert kominn með hlutverk sem Jón Valur heitinn hafði í ICEsave baráttunni, að miðla upplýsingum.

Honum var aldrei nógu þakkað, því það var ekki hægt, svo mikilvægt var það, og miklar fórnir að baki.

Þér ekki heldur, en ég ætla samt að byrja í dag.

Takk.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 7.3.2020 kl. 10:38

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ómar sömuleiðis.

Ég vona að sem flestir lesi Reykjavíkurbréf dagsins. Þar er mikið af vísdómi að finna og góð og lífsholl ráð um frumforsendur árangurs gefin.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 7.3.2020 kl. 14:41

17 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

það var valla hægt að segja að Usa sé með einhverskonar ,, EINKALEYFI ,, á imperialisma. Stumdum að þá er eins og manni finnist fólk halda það að USA sé með skráð einkaleyfi á heimsvalda stefnu. Einhver talaði um Russneska heimsvalda stefnu þegar að Russar innlimuðu Krím skagan ,, sem betur fer ,, en sá virtsit ekki hafa áttað sig á þvi að Usa er með 142 virkar herstöðvar af 194 ríkjum innan gæasalappa samanlagt, en RUSSAR MEÐ EINA ! Sú var í syrlandi. þetta er nú öll heimsvalds stefna Kínverjar og Russa. 

Ég segi nú bara ekki annað en ,, ÁFRAM KÍNA og Rússland og megi Yuanið og Rubblan sem gjaldmiðlar verða okkur hér sem góður stuðningur og reyndar okkur vel sem að erum að vinna hérna í FLOKKNUM !!!

WASHINGTON DC er Vatikanið. 

Hefur ekkert með Usa að gera og forseti Bandaríkjanna, ræður engu í washington Dc, þar sem að washington dc TILHEYRIR EKKI BANDA RÆIKJUNUM. Hann er ekki forseti þar , heldur PAFIN !!

WASHNGTON DC er aðal bækistöð Kaþolikkanna í USA og Vatikansis fyrir Norður, mið og suður Afriku. 

Saga Vatikansins er ógeðfeld og fólk ætti að lesa Jesuita eiðin sem að allir æðsltu menn vatikansin þurfa að fara með við innlimun. það passar allt þar við VÍRUSANA, Zika vírusin í Brsiliu og Ebola í Afirku og þá sérstaklega seinasta tilfelli, þegar að virusin breyddist út. 

Heldur fólk að þeir sem AÐ NAUÐGA BÖRNUM, seú í einhverjum vandræðu með önnur hroðaverk. 

Kv

LIG

AFRAM KÍNA !!!

Virusin var árás á Kína og Iran !!!!

það er slæmt þegar að menn taka oðr Pmmpeos, eins og þar sem að einhver Guð sem talar, enda er hann í vinnu hjá Vatikaninu og allt sem að þaðan kemur er örugglega ekki til þess að þjóna öðrum en Vatikaninu sjálfur. 

Afram Russland !!!

Lárus Ingi Guðmundsson, 7.3.2020 kl. 15:49

18 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Lárus.

Ég vona þín vegna að þessi kínverska veira sem geisar í höfði þínu sé ekki sú sama og geisar í höfðum ríkisstjórnarinnar og læknatækna hennar.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 7.3.2020 kl. 20:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband