Leita í fréttum mbl.is

Kínverska drepsóttin: Ísrael lokar á sýkt og hættuleg lönd Evrópusambandsins

SÓTTVARNIR FULLVALDA ÍSRAELS

Ríkisstjórn Ísraels tilkynnti í gær að lokað væri frá og með nú á aðgang fólks frá Frakklandi, Þýskalandi, Spáni, Austurríki og Sviss, inn í Ísraelsríki, vegna bráðsmitandi útbreiðslu kínversku kórónaveirunnar þar í löndum. Fólk frá þessum löndum fær ekki lengur að koma inn í Ísrael nema að geta sannað að það hafi sjálft stað til að setja sig í sóttkví innan landamæra Ísraels

Síðar í gær gaf innanríkisráðuneytið einnig út þá fyrirskipun að engum ferðamönnum frá þessum löndum yrði hleypt inn í Ísrael frá og með klukkan 06:00 næstkomandi föstudag. Þeim ferðamönnum sem vilja komast til Ísraels áður en lokunin tekur gildi, verður þó ekki vísað frá

Um það bil sjö þúsund manns eru í einangrun vegna kínversku drepsóttarinnar í landinu og um 50 til 100 þúsund eru sóttkví, samkvæmt JP. Hafa nú greinst 15 tilfelli af henni í Ísrael

Þessi ákvörðun kemur í kjölfar sambærilegra skilyrða fyrir fólk og ferðamenn frá Kína, Hong Kong, Taílandi, Singapúr, Macau, Suður-Kóreu, Japan - og Ítalíu, þar sem yfir 1000 ný smitandi tilfelli af kínversku krónaveirunni greindust í mönnum á síðustu 48 tímum. Fimmtán smitandi Ítalir voru teknir úr umferð sem ferðamenn á Indlandi í gær

Samhliða þessu bannaði ríkisstjórn Ísraels allar samkomur manna yfir 100 manns, hafi einhver þeirra verið erlendis á síðustu 14 dögum. Allar samkomur fleiri en 5000 manna eru bannaðar í landinu | AFP | Times of Israel

ÍSLAND

Greinilegt er að Ísrael er fullvalda og sjálfsætt ríki. Það hætti Ísland hins vegar að vera þegar það gerðist aðili að EES, Schengen og Orkubandalagi Evrópusambandsins. Annars værum við nú þegar búin að gera það sem fullvalda Ísrael gerir í sóttvarnarmálum, þjóð þess lands til varnar. Alla daga frá stofnun hins fullvalda Ísraelsríkis 1948, hafa allar ríkisstjórnir þess, án undantekninga, litið á það sem frumskyldur sínar að verja líf, limi og eigur þjóðarinnar sem kaus þær til valda

Að forsætisráðherra Íslands sé hugmyndafræðilega fremst í lífstortímandi fóstureyðingum fram að fæðingu barna, er þegar vitað. En er hún síðust í sóttvörnum sem varðveita líf. Ég spyr. Og hvað með Svandísi Sovét? Ég sleppi viljandi að minnast á Plebbahöllina að þessu sinni. Allir vita hvar hún er í Untergang-bunker flokksins, sem nú er úr sér gengið brak

Og hvað með það fyrirbæri sem stundum er kallað þjóðkjörin Ríkisstjórn Íslands. Hún samanstendur af fólki sem fær ofurlaun hjá okkur skattgreiðendum til að sinna fyrst og fremst þeim frumskyldum að verja líf, limi og eigur okkar sem erum þjóðin. Eruð þið kannski ekki í þjóðinni lengur? Ég spyr, því lítil merki um það sjást héðan, sé horft til ykkar frá sjónarhorni þjóðarinnar

Hver einasti nýr flugvélafarmur af erlendum ferðamönnum sem kemur til Íslands, togar nú efnahag landsins niður eins og trollhleri, og tap mannslífa er það eina sem verður í pokanum. Ábyrgðarleysið eitt og heimskan stendur stímið í brúnni við að draga vörumerkið Ísland eftir botni hennar

Af hverju heldur ríkisstjórn Íslands áfram að dæla kínverskri drepsótt inn í Ísland og yfir þjóðina. Af hverju? Auðvitað þarf ég ekki að spyrja, því hér er um enn eitt svartnættistilfellið af EES- og Schengen-ofsatrú að ræða. Beintenginguna við stjórnlaust og ábyrgðarlaust Evrópusambandið. Allt um það fyrirbæri vita Ísraelsmenn manna best. Þeir þekkja hið gamla og landlæga viðbjóðsbragð ábyrgðarleysisins frá Evrópu of vel til að búast við neinu nema meiru af hinu sama gamla þaðan. Enda er kínverska veiran þegar byrjuð að grassera í sjálfum byggingum aðalstöðva ábyrgðarleysisins í Brussel

BANDARÍKIN

Mike Pence varaforseti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að innan næstu 7 klst. yrðu allir farþegar sem koma með beinu flugi frá Ítalíu og Suður-Kóreu settir í veirugreiningu áður en þeir stíga upp í flugvél í heimalandi sínu og síðan aftur við komuna til Bandaríkjanna. Hann sagði að eftir 7 klst. væri skipunin komin í framkvæmd. Hún er því í framkvæmd núna. Landgöngubann inn í Bandaríkin hefur verið í gildi frá og með 31. janúar á þá erlendu ríkisborgara sem hafa verið í Kína á síðustu 14 dögum. Hið sama gildir um Íran, frá og með 26 febrúar. Eiginlegt ferðabann hefur verið sett á hluta Ítalíu, Lombardy og Veneto, og öll Ítalía hefur verið skilgreind sem þriðja stigs pestarbæli

TÍMAR ÞJÓÐLAUSRA "HEIMSBORGARA" ?

Því fólki sem fyrir bara þremur mánuðum síðan kallaði sig "borgarar heimsins" (e. citizens of the world), virðist ekki lengur líka vistin "þarna úti" án fósturjarðar. Það krefst meira segja forgangs inn í viss lönd fram yfir aðra "heimsborgara" veraldar. Það heimtar jafnvel beint jarðsamband við fósturjörðina. Hvernig skyldi standa á þessum snöggu hamskiptum, eða eigum við að kalla þetta glóbal transvestítisma

Nú standa heimsborgararnir bara á gömlu brókinni með stimpilinn bjáni þrykktan á ennið og heimta að fá að njóta þess sem gefið var skít í áður, og sagt var að skipti bara alls engu máli. Og þeir heimta jafnvel landamæri í eftirrétt, til að aðskilja það sjálft frá öllu hinu "þarna úti". Hvernig má það vera?

Allt í einu skiptir öllu máli hvaðan heimsborgararnir koma og hvar þeir eru ekki fæddir. Þeir virðast allt í einu hættir að vilja vera frá allsstaðar og hvergi

Eitt púff úr því sem Gamla testamentið varar við; og 30-ára-stór ruslahrúga af háskólaðri þvælu fýkur bara burt af borðinu. "Global supply chains" og 63-ára-langt imperíal pappírsæði Evrópusambandsins, evru og Schengen-Baal-trúarinnar virkaði ekki eins og Heiðnikirkjuveldi háskólanna boðaði af pappírsfjallinu. Ekkert var á því fjalli að byggja í neinum efnum, nema óefnum

ÞJÓÐLAUSUM BLÆÐIR ÚT

"When we become citizens of the world, that is, citizens of everyplace, then we end up citizens of utopia"

Sjöttu kynslóðar rúsínubóndinn í sama gamla Hanson-húsinu í Selma í Kaliforníu, og samhliða því starfi einnig prófessorinn við Stanford í klassískri sögu og hernaði, hefur skrifað afar góða og lýsandi grein. Gefum hinum sænskættaða Victor Davis Hanson bónda orðið: Globalization Bleeding

Fyrri færsla

Stjórnlaust Ísland fest í EES- og Schengen-drepsóttarfaraldri


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Heimsins bestu borgarar myndu ekki una lengi við það fyrirkomulag að vera hér og þar og heimta af hinum og þessum og næsta víst að afgreiðsla bóna þeirra yrðu lítil sem engin. En þar sem þessi andstyggilegi vírus slapp út frá Kína,ætla ég að freista þess að ná í bloggvin sem sendi mér jólakveðju 2012 (frá Shanghai).Áður sendi hann mér myndir af veisluborðum Kínverja og eina sem ég fékk til að sýna klinkunni minni hvernig þeir nýttu húsakosti undir tannlæknastofur.En yndislegastar eru myndir frá Íslandi,sem hann tók úr flygindinu sínu sem eg man ekki hvað heitir. - -Ég hyggst heimsækja mömmu hans (vinkonu)við tækifæri hún er með skype og passar að mamman hringi og helst vildi ég vona að þessi óþverra vírus sé í rénun,eða hvað skal kalla það undanhaldi. Með bestu kveðju og takk fyrir sannfærandi sefandi skrifin þín.

Helga Kristjánsdóttir, 5.3.2020 kl. 06:56

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ísland verður fljótlega komið á þennan lista.

En það er auðvitað mesti misskilningur (vonandi er það bara misskilningur) að Ísland geti ekki lokað á ferðir frá sýktum svæðum vegna aðildar að EES. Það er vel hægt að gera það vegna sjónarmiða um almannaheill. Ástæðan fyrir því að þetta er ekki gert er vanhæfni og heimska þeirra sem hafa yfir þessum málum að segja. Kemur ESB ekkert við.

Þorsteinn Siglaugsson, 5.3.2020 kl. 09:37

3 identicon

Hin aukna vanhæfni og heimska, sem Þorsteinn minnist réttilega á (enda augljós öllu þokkalega vel gefnu fólki) hefur einmitt breiðst hingað frá ESB.  En aumingjaháttur, vanhæfni og heimska innlendra valdamanna er vissulega þeirra og þeim einum til minnkunar og skammar.

Horfið bara á forystu "Sjálfstæðisflokksins", þingmenn og ráðherra hans, sú er einmitt dæmi um hina vaxandi vanhæfni og heimsku, sem einmitt birtist okkur í flækjufótahætti hennar og algjörum skorti á að hugsa og akta sjálfstætt.

Enda er þar farið með vers úr lagabálkum og reglugerðum frá ESB á hverjum degi.  Og horft þá ætíð í áttina til Bruxelles. Slíkt eykur ekki sjálfstæði til orða og athafna, en eykur hins vegar forheimskunina og tossaháttinn. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 5.3.2020 kl. 10:54

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Smitin frá Brussel lýsa sér alltaf sem afneitun eins og við sjáum hjá Þorsteini núna. Trú hans á EES og Schengen er eins og trú Kínverja á kommúnistaflokkinn, sem hér með hefur brugðist og er nú fallinn af stalli. Fólk reiðist þegar guð á jörðu reynist ekki vera það sem hann var sagður.

Ástæðan fyrir því að ekki er búið að loka landamærum Ítalíu fyrir langa lögnu er ESB og Schengen. Og þegar Ítalía lokast þá lokast landamæri allra ESB-landa og munu ekki opna aftur í langa bráð. Þess vegna er ekki lokað á fjórfrelsi drepsóttarinnar, sem WHO sagði í gær að væri með 2,4 prósent dánartíðni á heimsvísu. Það er 50 sinnum hærri dánartíðni en í þeirri árstímabundu flensu sem gekk á þessu ári í Bandaríkjunum.

Landlæknir og Sóttvarnarlæknir eru að vinna samkvæmt vinnuteikningum um Schengen og EES. Öll ríkistjórn Íslands er í Schengen- og EES afneitun. Hún hefur ákveðið að nota ekki þau verkfæri sem fullvalda þjóðir  nota sér til varnar. Hún hefur ákveðið það. 

Hugmyndin um Evrópusambandið, evru, EES og Schengen er hugmyndafræði sem nær þannig tökum á fólki, að það gengur ekki með hana, heldur gengur hugmyndin með fólkið, jafnvel í dauðann; þ.e. á endastöð pervertra pólitískra hugmynda á borð við Evrópusambandið, evru og Schengen og kommúnistaflokka.

Ef veiran væri frá Bandaríkjunum þá væri líka búið að loka öllu hér fyrir löngu. Og ef hún væri lofttegund þá væru Vinstri grænir mættir með heittelskaðan Stalín sinn 100-faldan á vettvang.

Þetta er ESB-heilastappa ófullvalda þjóðar. Fólk deyr af hennar völdum, og fátækt mun aukast og velmegun er stútað. Ísrael er fullvalda og sjálfstætt ríki og það notar því þau verkfæri eða lyf sem gagnast. Þetta er ekki venjuleg flensa eins og til dæmis Björn Bjarnason hefur skrifað af Schengen-trúarlegum ástæðum.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 5.3.2020 kl. 13:18

5 identicon

Þetta er einmitt svona:

"Ef veiran væri frá Bandaríkjunum þá væri búið að loka öllu hér fyrir löngu"

Það er með ólíkindum að verða vitni að því hvernig "Sjálfstæðisflokkurinn" tilbiður ESB og Kína og þjónar þeim langt út fyrir alla heilbrigða skynsemi, en forsmáir Bandaríkin sem við eigum flest að þakka að hafa þó verið sjálfstæð þjóð og fullvalda ríki í nær 50 ár á síðustu öld.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 5.3.2020 kl. 13:25

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

WHO hefur þegar sagt stjórnvöldum landa að grípa til róttækra aðgerða. En það er ekki gert í Evrópu af ESB og Schengen-trúarlegum ástæðum.

Evrópa er því orðin versta pestarbæli veraldar á eftir Kína. Og það verður allt eins og Ítalía og svo mun það ástand versna enn meira.

Fyrir okkur er tvennt í stöðunni

1) Við getum ekki lokað á þá sem hér eiga heima. Við verðum að taka við þeim og setja þá í sóttkví. Það var ekki gert nógu snemma, eða þegar vitað var að Ítalía væri orðin þriðja-stigs pestarbæli. En það sem meira er. Banna átti flug Íslendinga til Ítalíu frá og með fyrri part síðustu viku. Nema að þeir myndu skrifa undir að þeir yrðu ekki sóttir eins og verið er að gera núna. 

2) Það á að loka á innflæði ferðamanna eins og Ísrael er að gera núna, eða frá og með klukkan 06:00 á föstudag. Og það átti að byrja að skanna alla erlenda ferðamenn sem komu til landsins frá Evrópu. En þetta tvennt er ekki gert af ESB/EES-Schengen trúarlegum ástæðum. Allt það batterí hefur nú brugðist öllum þeim þjóðum sem við það búa. Mannslífum og lýðheilsu þjóða er fórnað fyrir pólitískt pervertar hugmyndir.

Svona haga fullvalda þjóðir sér ekki. Þær nota þau verkfæri sem standa til boða. Þær afneita þeim ekki. 

Gunnar Rögnvaldsson, 5.3.2020 kl. 13:42

7 identicon

https://www.visir.is/g/202012842d/grof-undan-serfraedingum-um-koronuveiruna-i-fox-vidtali

"Svona haga fullvalda þjóðir sér ekki. Þær nota þau verkfæri sem standa til boða. Þær afneita þeim ekki. "

Brynjar (IP-tala skráð) 5.3.2020 kl. 13:58

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já þarna er Trump heldur betur kominn út á hálan ís. 

Gunnar Rögnvaldsson, 5.3.2020 kl. 14:54

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 5. mars 2020 kl. 15:11:31

34 nú smitaðir: Von á 74 Íslendingum með sjúkraflugi frá Veróna á laugardag

Fyrirtækinu og almenningshlutafélaginu Icelandair virðist hér með hafa verið breytt í sjúkraflugfélag. Skyldu eigendurnir, þ.e. hluthafarnir, vita af þessu?

Er kannski eitthvað fleira sem leggja þarf inn í íslenska hagkerfinu. Hvað með að  taka einn hring með alla ríkisstjórnina yfir Ítalíu og lögsögu ESB og enda svo á hringflugi yfir gamla Kleppi.

Gunnar Rögnvaldsson, 5.3.2020 kl. 15:12

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

"Sóttvarnarlæknir ræður nú frá ónauðsynlegum ferðum til Kína, Suður-Kóreu, Írans, Ítalíu og skíðasvæðisins Ischgl í Austurríki."

Ennþá verið að elta skottið á sér eins og hundur.

Gunnar Rögnvaldsson, 5.3.2020 kl. 15:22

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Róandi ummæli Trumps eru athyglisverð að því leytinu að hann hefur enn sem komið er efni á þeim, vegna þess að hann lokaði á Kína svo snemma og langt á undan öðrum og þess vegna eru tilfellin í Bandaríkjunum öllum ekki nema rúmlega fimm sinnum fleiri en hér á Íslandi.

En það er vitlaust af honum að auka á kæruleysi almennings, því þá minnkar árvekni borgaranna. En kannski er þetta eina leiðin til að fá Evrópusambandið til að gera eitthvað í málunum, því það mun gera allt öfugt við það sem Trump segir.

Gunnar Rögnvaldsson, 5.3.2020 kl. 15:42

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 5. mars 2020 kl. 15:55:03

Fyrir þá sem vita þetta ekki, þá var Kleppur fyrsta íslenska geðveikrahælið sem rúmað gat heila ríkisstjórn og alla þingmenn á sama tíma.

Gunnar Rögnvaldsson, 5.3.2020 kl. 15:55

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 5. mars 2020 kl. 16:04:01

Mér er sagt að Óttar geðlæknir noti nú alla orku sína í að vita ekki hvað er að gerast. Að því leytinu er hann forsætisráðherra Íslands núna.

Gunnar Rögnvaldsson, 5.3.2020 kl. 16:04

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 5. mars 2020 kl. 16:22:36

Heill her af frammámönnum þjóðarinnar keppist nú við að vita ekki neitt og segja ekki neitt. Flestir eru þeir á mjög háum launum hjá okkur skattgreiðendum. Öll starfsorka þeirra fer í að vita ekki neitt og hafast ekki neitt.

Gunnar Rögnvaldsson, 5.3.2020 kl. 16:24

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 5. mars 2020 kl. 16:50:12

Wolfgang Munchau á Eurointelligence er með lýsandi fyrirsögn í dag, yfir þá hlið kínverska krónaveiru málsins sem lýtur að að öllu því sem heldur til dæmis  heilbrigðiskerfum landa opnum: þ.e. hinni efnahagslegu hlið veirumálsins

Waiting for the brain fog to lift

We liked the characterisation of yesterday-s eurogroup telephone conference by the journalist Pierre Briancon: 

"Eurozone finance ministers reiterate that nothing is more urgent than waiting."

Each crisis is different, and requires tailor-made responses. The economic effects of Covid-19 are both on demand and supply. Some of the effects will be permanent. Companies may discover that their workers are more productive at home than in an office. They are also beginning to question the wisdom of just-in-time global supply chains. (nei er það!)

Our criticism of eurozone policy makers, including the ECB, is not the failure to act but the generalised failure of deep thinking and the resort to the usual complacency that has become the hallmark of European politics.

PS; undirstrikanir eru mínar.

Gunnar Rögnvaldsson, 5.3.2020 kl. 16:50

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 5. mars 2020 kl. 18:06:54

Tedros forstöðumaður WHO Alþjóða-heilbrigðisstofnunarinnar segir í dag að núna verði ríkisstjórnir að taka bremsuklossana fram og skella þeim á: strax!

Gunnar Rögnvaldsson, 5.3.2020 kl. 18:09

17 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Lexía sem menn ættu að draga af þessu ástandi er að alþjóðavæðingin sem útivistar heilu atvinnugreinunum er hættuleg. Hver fullvaldaþjóð ætti að vera sjálfri sér nóg með visst hlutfall af matvælaframleiðslu sinni og láta ekki lyfja og bóluefnis framleiðslu í hendur einræðisþjóða eins og Kína. Við sjáum nú hvernig Tyrkland og Kína nota aðstöðu sína til að blackmaila Vesturlönd, hvert með sínu nefi. Lærum!

Ragnhildur Kolka, 5.3.2020 kl. 18:27

18 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Ragnhildur, en ekki nóg með það, þá skipaði menningarmálaráðherra Bretlands sjálfsfróunarmiðstöð vinstrimanna á BBC að hætta 101-elítu- og glóbalista-turnspíru-truntu-stefnu þess, vilji stofnunin lifa af. Allt Bretland en ekki bara Londinium og ESB-imperíalisma stórborgarinnar á stofnunin að endurspegla.

Á pólitískri stefnuskrá BBC (og DDRÚV) er hugtakið fullveldi þjóða og sjálfsbjörg álitið hættulegra en drepsóttin frá Kína.

Kommar og esb-kommar og kommar og esb-kommar.

Guð þeirra er abstraktsjón í Brussel og Peking. Út við ysta sjóndeildarhring eins og Stalín var.

Gunnar Rögnvaldsson, 5.3.2020 kl. 18:43

19 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 5. mars 2020 kl. 18:46:20

Ríkisstjórn Bretlands býr sig undir að svo geti farið að loka þurfi breska þinginu mánuðum saman.

Gunnar Rögnvaldsson, 5.3.2020 kl. 18:46

20 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

1. Við getum þakkað ,, náttúrulækningum kína fyrir svo margt og þar á meðan kórinu veiruna. 

2. þeir sem að héldur að þeir væru að drepast út af hlýnum jarðar er orðnir LKÆKAÐIR af sýkinni. þökk sé kórinar veirunni. 

2. þeir sem að voru haldnir ,, Loftslags  kvíða ,, eru núna oðrnir  LÆKNAÐIR af loftslags kvíðanum. þökk sé kórina veirunni.

3 Sumir sem að hafa dáið, var fólk sem að var kviðið og hrætt við hlýnum jarðar, en augljóslega er það ekki lengur, líka Læknaðir af hugsýkinni.

þetta er gott dæmi um Kínverskar Náttúrulækningar.

------

En svo má við þetta að bæta, hvort að Usa sé alskausir af þessum ohugnaði, þar sem að  ,, TIMASETNINGIN  ,, é þessari útbreyðslu vekur upp supurningar og lóka, að þá er IRAN !!! með hæsta hlutfall sýktra. 

Georgia er sá staður við hliðina á Russnesku landsmærunum þar sem að USA er með allar sínar Vírusar rannsóknir til hernaðar. 

Ég endurtek, við Hliðina á Russnesku landamærunum. 

það er beint flug frá Georgia til Wuhan i kína. 

Ástæn fyrir þvi hversju fljotir Usa voru að loka fyrir landamærin, með þessum hætti, gæti þá verið að þeir viti meira heldur en allir aðrir og það hafi verið þess vegna sem Usa var svona flott að grípa til aðgerða ???

Ef kina hefði verið eitt af ríkjunun með flestu tilfellin, að þá gæti það verið fullkomlega eðlilegt, en þar sem að  ,, IRAN ,, ER MEÐ FLEST TILFELLLI AF ÖLLLUM OG ENN FLEIRI EN KINAVERJAR SJÁLFIR MIÐAÐ VIÐ HÖFÐA T0LU, AÐ ÞA VEKUR ÞAÐ UPP ÁKVEÐNAR SPURNINGAR miðað við allt það brambolt Usa gegn bæði kína og líka IRAN undanfarið. 

Furðulegt hvað folk heldur að washington dc, sem er vatikianið sé miklir ,, englar þar á ferðinni. 

A. Zika vírusin í Brasiliu. Fyrir tæki í washington keypti Breskt fyrir tæki staðsett i braslinu sem að sér hæfði sig i gena breytingum á moskítu flugym. það var nefnilega í kjölfarið á þessum kaupum, sem að Zíka vírusin i Brasiliu vreyddist út og hluta bréf í þessu sama fyyrrtæki hækkaði um flriri hundruð prósent. þeir einu sem að græddu á Zika vírusnum í Brasl og það gríðar fjárhæðir voru nefilega USA. 

B.Ebola virusin i Afirku og þá seinasta útbreyðsla aðallega. 

 I fleiri mánuði og upp í næstum heilt ár þá var  ,, SIERRA LEONE ,, alveg frítt af Ebóla vírussnum, en virusinn breyddist út alstsaðar í kringum Sierra Leone ????  Út frá venjulega faraldursfræði sjónarmiðu, að þá GENGUR ÞETTA EKKI ALVEG UPP. 

Síerra Leone er eins og nafnið bendir til ,, Vatikanið. 

Since

LIG

Lárus Ingi Guðmundsson, 5.3.2020 kl. 21:23

21 Smámynd: Þórhallur Pálsson

Er til eitthvert land sem heitir Ísrael ?

Þórhallur Pálsson, 5.3.2020 kl. 21:50

22 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 6. mars 2020 kl. 03:58:22

Síðustu 7 dagar í þremur löndum (staðfest kínversk kórónaveiru-tilfelli)

Ítalía
650
888
1128
1689
2036
3089
3858

Frakkland
38
57
100
100
191
285
377

Þýskaland
26
57
57
129
157
262
482

Ítalía var á tilfelli númer 3 þann 7. febrúar og var föst þannig næstu 14 daga. En byrjaði þá að margfaldast úr 3 í 9 svo í 76 svo í 124 svo í 229 svo í 322 svo í 400 svo í 650

Gunnar Rögnvaldsson, 6.3.2020 kl. 03:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband