Leita í fréttum mbl.is

Drepsóttin: Hið varanlega kreppufyrirkomulag Evrópusambandið

SCHENGEN DREPSÓTT ESB

Ég var að horfa á blaðamannafund Donalds J. Trump Bandaríkjaforseta og teymi hans í kínverska kórónaveirumálinu, sem einnig hefur náð til Bandaríkjanna. En þar eru tilfellin aðeins 26 núna, þegar frá eru talin þau 44 tilfelli sem Bandaríkjamenn urðu fyrir um borð í skemmtiferðaskipi sem sett var fast við stendur Japans af Japan og látið rotna. Faglegheitin þar eða hitt þá heldur. Teymi Trumps var spurt að því hverju það þakkaði að svo fá tilfelli væru enn í Bandaríkjunum miðað við annarsstaðar, í landi sem er bæði Atlants- og Kyrrahafsríki. Svarið er það, að Trump vatt sér í það mjög snemma, og sætti harkalegri gagnrýni fyrir, að loka alveg á Kína og ferðir til og frá sjálfum höfuðstöðvum pestarbælisins þar. Það gerði hann þegar hinn 31. janúar, á meðan Þórdís Kolbrún ráðherra Sjálfstæðisflokksins hafði tveimur dögum síðar mestar áhyggjur af því að ekki væri hægt að moka nógu miklu af kínverskum ferðamönnum yfir okkur Íslendinga. Þetta var algerlega og fullkomlega galin og margfalt ábyrgðarlaus heimska manneskju sem situr á ráðherrastól, og sem ekki einu sinni ætti að vera þar. Donald J. Trump sagði að það hefði verið basics eða grunnatriðin-fyrst, sem skiptu mestu máli fyrir Bandaríkin. Hann er greinilega ekki barn

Svo gott sem bandarískt ferðabann er komið á Ítalíu þegar um ferðir Bandaríkjamanna þangað er að ræða, og í undirbúningi er að banna ferðir erlendra ríkisborgara frá Ítalíu til Bandaríkjanna. Fjöldi kínverskra kórónuveirutilfella á Ítalíu hækkaði um 250 tilfelli á síðasta sólarhring. Þau voru 3 fyrir 10 dögum en eru 1128 á skrifandi stund og búðarhillur standa tómar þar sem staðan er verst. Heilbrigðiskerfi landsins er víða komið á hliðina. Og nógu slæm var staða þess fyrir, þökk sé ESB- og evruaðild Ítalíu, sem hennar vegna hefur varla séð hagvöxt síðustu 30 árin. Viðstöðulaus kreppa er í landinu og Ítalir eru því næstum hættir að geta eignast börn. Restin af ESB er á leið í hina fullkomnu rúst andvara- og ráðaleysis, þar sem sérkirkjuklukkur Schengentrúarinnar glymja dag og nótt, eins og ríkisútvarp Norður-Kóreu sem bannað er að skrúfa fyrir

AFTUR OG AFTUR

Þetta er í þriðja skiptið á 12 árum sem hugmyndafræði Evrópusambandsins veldur slíkum usla að sambandið er nú orðið hið Varanlega kreppusvæði Evrópu (VKE). Smit i fjármálakerfinu milli landa sambandsins sem yfirbuðu hvort annað með Maastricht-bönnuðum ríkisábyrgðum árið 2009, leiddi til hruns í mörgum löndum sambandsins og hafa þau ekki náð að jafna sig enn, og gera sennilega aldrei. Svo kom geðfirrt veisluboð Angelu Merkels kanslara Þýskalands til milljóna geimvera um að koma og leggjast sem engisprettufaraldur yfir Þýskaland, og aðrar þjóðir sambandsins sem ekkert höfðu um veisluboð hennar að segja. Enn er hún að berja á þeim um að taka við þeim eyðileggingarmætti hennar í Evrópu. Þegar Merkel loksins þorir að fara frá völdum er afar líklegt að hún verði næst mest hataða persóna í sögu Þýskalans á eftir Adolf Hitler, eins og þingmenn AfD flokksins hafa spáð. Þess ber þó að geta að hatrið á herr Hitler í Þýskalandi hefur tekið þeim breytingum á síðustu 30 árum, að nú er hann ekki lengur hataður fyrir það sama og áður, heldur er hann hataður fyrir að hafa tapað stríðinu

ÁTTI ÞAÐ SKILIÐ

Í kínverska drepsóttarmálinu fáum við allt í einu að heyra það frá lýðskrumurum ESB/EES og Schengenfirrunnar, að þeir sem látast af völdum kínversku kórónaveirunnar séu fyrst og fremst "bara" þeir sem komnir eru yfir miðjan aldur og alveg sérstaklega þeir sem eru hve elstir og veikburða. En það er einmitt þeirra vegna að við höfum byggt heiðbrigðiskerfi, og hafa þeir einnig borgað mest fyrir það. En vegna pólitískrar hugmyndagloríu ESB/EES og Schengenþvættings úr þurrkögglaverksmiðju þursa í Valhöll og víðar, þá er allt í einu í lagi að gefa fullan afslátt á þeirri hugmynd, sé um ESB/EES og Schengen málefnafirru og þvætting að ræða og sem troða á ofan í þjóðina í það og það skiptið

Í næstu áfallaumferð hins varanlega Schengen-kreppusvæðis ESB og evru, fáum við sennilega að heyra að fólk deyi almennt úr heimsku og að það hafi átt skilið að deyja, er það veikist og deyr vegna ESB/EES- og Schengentrúar stjórnmála- og embættismanna. En þannig töluðu vinstrimenn á borð við Bernard Shaw í Evrópu skömmu áður en gasið fræga komst í notkun í Þýskalandi. Það hét Zyklon. "Beðið eftir gasinu" má kalla pólitík þeirra fram að stríði og meira að segja að því loknu. Schengentrúin fer að minna okkur óþyrmilega á að hugmyndin um Evrópusambandið, evru og Schengen er hugmyndafræði sem nær þannig tökum á fólki að það gengur ekki með hana, heldur gengur hugmyndin með fólkið. Slíkt hefur ekki sést síðan á dögum svartasta kommúnisma á borð við þann sem var í Sovétríkjunum og er núna við völd í Kína, og víðar í samskonar helvítum á jörð. Í öllum þessum löndum fellur fólk ekki fyrir hugmyndinni, heldur fellur það af völdum hennar. Þess vegna er til dæmis Sjálfstæðisflokkurinn fallinn. Hann dó úr EES og Schengen. Hann er steindauður

BLINDFLUG NÚLL

Það tekur um 35-45 ár að mennta einn góðan lækni. Læknar með sérfræðimenntun eru því allir á þeim aldri sem afslátturinn gildir. Þetta er eins og að Bandaríkjamenn segðu um Apache-herþyrluflugmenn sína, sem margir eru með doktorsgráðu og fljúga í 20 milljón dala græju, að allt í lagi sé að láta óvininn skjóta þá niður, því við höfum nóg af fótgönguliði - sem án hans mun sturtast í dauðann. Staðreyndin er nefnilega sú að mesti massi þekkingar, kunnáttu, vísdóms og reynslu heimsins er að finna í hinum gráa heilamassa veraldar yfir fimmtugt. Sértrúarguðspjall Schengenmanna um óheft innfæði og ferðafrelsi óáru, glæpa og drepsótta, hefur á bara þremur vikum náð að fella marga lækna og hjúkrunarfólk, til að varðveita megi mestu, verstu og ónýtustu draslgrein veraldar; ferðamannageirann og ESB. Sem betur fer er sá blindgötu-geiri á leiðinni í ruslið hér á Íslandi á skrifandi stund. Því þar á hann heima, nema sem mjög hægt vaxandi og sjálfsprottin aukabúgrein sem öllum er sama um, og öll þróuð ríki geta verið án, og ættu að vera án, nema sem hobbý. Er kínverska veiran er einnig að þurrka ýmislegt annað glingur og drasl síðustu 30 ára af þvæluborðinu

Margir atvinnurekendur á hinu opna dauðasvæði Evrópusambandsins munu innan fárra vikna koma hágrátandi til svo kallaðra "stjórnvalda" landanna, og biðja um að hið pólitíska mannfall ESB- og Schengen hugmyndafræðinnar verði stöðvað, til að stöðva megi hrun flestra atvinnuvega landanna. Því lengur sem það dregst, því minni fjárfestingar munu þora að skjóta rótum í grafreitum ESB-hugmyndafræðinnar, þegar upp er staðið. Það sem við erum að horfa á núna er pólitískt mannfall af völdum ESB-veiru, þar sem fólk er notað sem fallbyssufóður stjórnmálamanna. Það er hinn nakti sannleikur málsins

Undir stjórnlausri Schengen ruslahrúgu íslenskra stjórnmálamanna sem þora ekki lengur að koma nálægt sínu eigin rusli, eru basics-heilaþvegnir Landlæknir og svo kallaður Sóttvarnarlæknir látnir leika ráðamenn Íslands. Hafa þeir nú gefið út nýjar leiðbeiningar til Vestmannaeyinga um að reyna aldrei aftur að stöðva hraunflæði. Slíkt gæti nefnilega skaðað eldgos annars staðar á jörðinni

Hvers vegna standa landamæri Íslenska lýðveldisins enn galopin kórónadrepsóttinni frá Kína?!

Fyrri færsla

Drepsóttin: "Evrópusambandið að gera ófyrirgefanleg mistök" [u]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Lyfjaframleiðendur sem framleiða mest notuðu og almennustu lyf heimsins neyðast nú til að greiða 50 prósent hærra verð fyrir sum hráefni sem notuð eru í framleiðsluna. Fólk sem lítið er fyrir að láta lotterí án vinnings drepa sig og sína, fæst ekki til að mæta í vinnu án verulegrar áhættuþóknunar. Þeir kjánar sem tala um hysteríu eru ekki þeir sem afgreiða það fólk sem ber drepsóttarsmit á milli manna, án þess að vita af því. Þeir búa í turni, þar til þeir missa vinnuna, og síðan æruna vegna eigin heimsku.

Þess vegna er drepsóttarmálið komið úr böndunum og flæðir út um og yfir allt í til dæmis Evrópu og Asíu. Heimska virðist afar smitandi fyrirbæri í Gamla heiminum. Sein ákvörðunartaka, sinnu- og ábyrgðarleysi og hik á borð við Fyrri heimsstyrjaldar firru, kála þar fólki og síðan þeim efnahag sem fjármagna á það sem komið getur í veg fyrir allsherjar hrun og upplausn.

Að neyðast til að lýsa yfir útgöngubanni á til dæmis Hokkaidoeyju í Japan, þar sem fimm milljón manns búa, er ekki neitt sem gert er sér til gamans. Það gildir um helgina og undantekningarástandi hefur verið lýst þar yfir næstu vikur. Er þó Japan "aðeins" með sexfalt færri tilfelli í þrefalt fjölmennara ríki en Ítalía í geggjunarbæli ESB. Japan er þriðja stærsta hagkerfi veraldar. Og þar eru hagtölurnar að minnsta kosti trúverðugari en í loftbókakerfi Kína.

Það er sinnuleysið sem valda mun hér mestum usla, skaða og mannfalli. Og það hefur keðjuverkandi áhrif.

Gunnar Rögnvaldsson, 1.3.2020 kl. 13:29

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

sunnudagur, 1. mars 2020 kl. 20:37:36

Hér er haldið áfram að vinna með Schengen-rasshendinni og allt gert frá öfugum enda. Það er svona sem Útópía virkar. Það má ekki hefta frjálst flæði drepsótta um Schengensvæðið. Maður kastar upp: 

All­ir sem komu frá Veróna í sótt­kví (eftir á!)

Af hverju var þessu fólki hleypt inn í þjóðfélagið fyrst. Af hverju var það ekki sett í sóttkví fyrst. Er þetta fólk heilabilað sem stjórnar þessu.

Okkar fólk kann ekki basics lengur. Og á bak við þetta fólk skýla stjórnmálamenn sér. Þeir þora ekki að koma nálægt Schengen ruslahrúgunni sem þeir bjuggu til.

Við ættum ekkert skip enn á floti ef íslenskir skipstjórar hegðuðu sér svona. Þau væru öll sokkin.

Gunnar Rögnvaldsson, 1.3.2020 kl. 20:37

3 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar súperpenni!

Eg er búinn að vera með æluna í hálsinum frá því að Merkel kom hér til lands,til að funda með yfirtrúðnum óþjóðholla,heldur þú að þær hafi rætt bara um landsins nauðsynjar.Það má mikið vera ef þyrfti ekki að fela það í eins og 100 ár.Og svo norsku duluna.

Hugsaðu þér líka ef við þirftum alltaf að hafa samband við BRUSSEL til að fá að gera SJóKLáRT.

Óskar Kristinsson, 1.3.2020 kl. 21:36

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

sunnudagur, 1. mars 2020 kl. 22:42:03

Þriðja tilfellið!

"Þýska­land ekki hættu­svæði" (hugsið ykkur dómgreindarleysið og svart-sovéskan vélmennaháttinn)

Þetta fólk gerir sér enga, bara alls enga grein fyrir því að það er að glíma við ábyrgðarlausasta apparat og fyrirkomulag ríkja í veröldinni. Ítalía er komið í flokk með Íran. Þetta eru smjörlíkislönd. Lönd hámarks stjórnleysis. ESB er villimannasvæði sem fórnar mannslífum og velmegun fyrr firrtar pólitískar hugmyndir.

Læknir sem neitar að nota lyf sem lækna og kosta ekkert miðað við að nota þau ekki, er ekki læknir. Loka á landamærunum. Hér bíða bara allir eftir öllum í 30 löndum og enginn þorir að gera neitt fyrstur. Enginn leiðtogi og stjórnandi er við völd neins staðar. Bara full biðstofa ESB-bjána að hámarka tapið fyrir alla.

Allt ESB er hættusvæði!

VARÚÐ

ÍSLAND ER STJÓRNLAUST ! (sökum ESB-tengingar)

Gunnar Rögnvaldsson, 1.3.2020 kl. 22:42

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

sunnudagur, 1. mars 2020 kl. 23:04:40

Ísland verður að taka málin í eigin hendur og hætta að bera neitt hér saman við það sem gert er í "nágrannalöndum" og í Evrópusambandinu. Því þar er ekkert gert. Engin grunnatriði eru framkvæmd þar (basics). Allt er gert með rasshendinni og í öfugri röð.

FYLGIÐ EKKI BILUÐU APPARATI FYRIR BJÖRG

TAKIÐ MÁLIN Í OKKAR HENDUR

ÞAÐ ER FRUMSKYLDA YKKAR!

Gunnar Rögnvaldsson, 1.3.2020 kl. 23:07

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Óskar. Já að hugsa sér. Þetta er óþolandi. Mikið satt og rétt hjá þér.

Það mun fjara hratt undan íslenskum stjórnvöldum bergðist þau ekki við strax og noti þau verkfæri sem standa þeim til boða til að stöðva þau smit sem eru komin og frekari innflutning á smitum.

Traust almennings til stjórnmálamanna okkar er ekki mikið. Noti stjórnmálamenn ekki þau verkfæri sem standa þeim til boða til að stöðva þetta, þá mun hagkerfi þjóðarinnar lamast og fólk láta lífið að óþörfu og upplausn ná yfirhöndinni, þar sem hver verður sjálfum sér næstur.

Það er enginn munur á smitum manna á milli og í fjármálakerfum. Smit eða "contagion" eru óþörf í okkar þjóðfélagskerfum. Það er hægt að koma í veg fyrir að þau verði að faraldri, en það krefst harðra aðgerða eldsnöggt. Höggva verður djúpt og þungt.

Að gera ekkert, af ees-pólitískum ástæðum, er algerlega ófyrirgefanlegt.

Þjóðin er að horfa á - og hugsar sitt - og mun grípa til sinna eigin ráða - standi stjórnvöld sig ekki í stykkinu. Strax!

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 2.3.2020 kl. 02:53

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

mánudagur, 2. mars 2020 kl. 03:47:27

Shinzo Abe forsætisráðherra Japans hefur lært af Diamond Princess málinu og tekur drepsóttina þungum tökum og grafalvarlega. Sækir sér auknar valdaheimildir til að bregðast við beint frá embætti sínu með neyðaraðgerðum. Skipar öllum skólum í landinu að loka til að koma í veg fyrir faraldur þar, þar til annað er fyrirskipað.

Lúxemborg; fyrsta tilfellið komið. Flutt inn frá Ítalíu.

Fjöldi tilfella á Ítalíu þaut upp um 42 prósent á síðasta sólarhring. Eru nú 1700. Aðeins Kína og Suður-Kórea eru verri.

Fjöldi tilfella í Þýskalandi tvöfaldaðist í gær upp í 129.

30 ný tilfelli í Frakklandi á einum degi. Eru þá 130. Louvre safninu lokað.

Fimm ný tilfelli í Bandaríkjunum eru alls 43 núna (án Diamond Princess)

54 látnir í Íran. Trump býður aðstoð.

Tröllslegar borgar,- landshlutalokanir,- og sóttvarnarmúrar í Bretlandi hugsanlegar, segir h-ráðherra landsins.

Engin fyrirtæki eru örugg lengur. Lánshæfnismat ríkja koma til endurskoðunar því þetta mun kosta ofboðslega.

Síðasta vika var versta vika á mörkuðum síðan 2008.

Mikill skaði unninn á fyrirtækjum vegna aðgerðaleysis stjórnvalda. Flest fyrirtæki seinka eða leggja á ís framkvæmdum, verkefnum og fjárfestingum, þar til þau vita meira, og sannfærast um að stjórnvöld séu að gera eitthvað sem gagnast.

Þetta er líklega bara byrjunin. Veiran breiðist stjórnlaust út í Evrópusambandinu, því engar sóttvarnir eru viðhafðar, aðeins eltingaleikur við skottið á sér.

Engin stjórn er á neinu og þýskur sóttvarnarsérfræðingur sagði á forsíðu Die Welt að hann vissi ekki hvað næsta skref væri. Hann er auðvitað líka að bíða eftir því að einhver í einhveri ríkisstjórn einhverstaðar þori að gera eitthvað einhvern tíma.

Gunnar Rögnvaldsson, 2.3.2020 kl. 03:52

8 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Eg er svo FEGIN  að þesso korina virus kom upp.

Af hverju ???

Svar ... hafið þið ekki tekið eftir þvi að allur otti við heimsendi ut af hlynun JARÐAR ER HORFIN !!!

ENfinn minnust einu einasta orði a loefnis forspor lengur .. eg segi b guði se lof fyrir vieusin.

Kv

Lig

Lárus Ingi Guðmundsson, 2.3.2020 kl. 17:07

9 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Þeir einstaklingar sem að voru svo rosalega illa hakdnir af LOFSLAGS kviðanum hafa nuna LÆJNAST af lofslags kviðanum...

ÞOKK SE KORONA VIRUSNUM !!

Þokk se se KOONA VIRUSNUM að nu hefor kolefnis fotspoeið minnkað til muna.

Ekki þarf loftslags heimsenda folkið að rjuka ut og planta niður trjam.

Alt KORNA VIRUSNUM AÐ ÞAKKA.

Þvi meir og hraðar sem virusinn breyðist ut þvi betra fyrir lofslags heimsenda folkið. Minnkar nefnil jolefnis fotsporið.

MUNIÐ AÐ SYNGJA VIRUSNUM LOFGJORÐINA.

Allir hættir að vera hræddir við loftslags vanana af MANNANNA VOLDUM.  !!!!

Hurra hurra fyrir Korona virusnum.

LÆKNING FOLST NEFNILEGA A ENDANUM I VEIKINNI.

Kv

lig

Kv

Lig

Lárus Ingi Guðmundsson, 2.3.2020 kl. 17:23

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Lárus.

Mæli með því að þú takir við stöðu bæði Landslæknis og Sóttvarnarlæknis, því þá gætir þú lýst yfir nefndu og verðskulduðu gleðiástandi í loftslagsmálum.

Ekki svo galið!

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 2.3.2020 kl. 20:38

11 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Lalli&kórónalands-sóttarbætir!

Helga Kristjánsdóttir, 3.3.2020 kl. 00:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband